Lögberg - 01.06.1950, Síða 1
Hin borgaralegu yfirvöld
taka við umsjón flóðvarna af hernaðaryfirvöldunum
Flóðunum í Winnipeg og
Suðurfylkinu linnir nú óðum
Tvær nefndir
skipaðar til mats
Q áflæðistjóninu
Flóðsjóðurinn nálgast
hálfa þriðju miljón
dollara
Sambandsstjórn hefir skipað
tveggja manna, konunglega
rannsóknarnefnd, Carswell-
Shaw-nefndina, er hafa skal það
hlutverk með höndum, að semja
heildaryfirlit yfir það tjón, sem
Winnipegborg, útjaðrahverfi
hennar og Suðurfylkið, hafa
sætt af völdum hins geigvæn-
lega áflæðis; svo mun til ætlast,
að á skýrslum þessarar nefndar
byggi sambandsstjórn ákvörðun
sína um þær fjárhæðir, sem hún,
veiti fylkisstjórninni í Mani-
toba til viðreisnarstarfsins inn-
^n áflæðissvæðanna; vitaskuld
hefir nefnd þessi mikið vanda-
verk með höndum, en vonandi
er að hún skili áliti sínu eins
fljótt og framast má auðið
verða, því dráttur á viðreisnar-
Ljúka prófi
við Martifoba
Hóskólann
í síðasta blaði birtust nöfn 40
^ámsmanna og kvenna af ís-
lenzkum stofni, er luku á þessu
ári prófi við Manitoba háskól-
ann. Það er ekki auðvelt að
greina Islendingana úr þeim
mikla fjölda er útskrifaðist, alls
1,551, og var því fólk beðið að
tilkynna blaðinu, ef einhvern
námsmann íslenzkrar ættar,
vantaði á listann. Hér bætast
við nokkur nöfn:
starfinu myndi aðeins hafa auk-
in óþægindi í för með sér; hina
nefndina, sem samsett er af
þremur mönnum, hefir Camp-
bell forsætisráðherra skipað, og
er formaður hennar C. E. Joslyn
framkvæmdarstjóri 1 þessari
borg, en megin verkefni þeirrar
nefndar verður það, að gerkynna
sér allar þær skaðabótakröfur,
er fylkisstjórninni berast og
kveða á um réttmæti þeirra; er
í þessu einnig fólgin mikil á-
byrgð og ærinn vandi.
Nú er flóðunum hér um slóð-
ir svo farið að linna, að hin
borgaralegu yfirvöld hafa tekið
við flóðvörnum af hernaðaryfir-
völdunum; um fimm þúsundir
hermanna úr landher, lofther og
flota voru að verki meðan á
mestu ósköpunum stóð, og mun,
því lengi viðbrugðið hve vel og
röggsamlega þeim tókst til um
hin margþættu og vandasömu
störf sín.' Brigadier Morton
hafði forustu flóðvarnanna með
höndum og standa fylkisbúar
við hann í djúpri þakkarskuld
vegna forsjár hans og ágætrar
háttlægni.
Bráðabirgðaráætlun um fast-
eignatjón í St. Vital, Fort Garry
og East Kildonan gefur til
kynna, að það nemi að minsta
kosti 12 miljónum dollara; þar
að auki er svo alt lausafjártjón-
ið.
Nú streymir daglega í hundr-
aða tali fólk til baka, sem flúið
hafði Winnipegborg, sem þegar
er tekið að hagræða einu og
öðru og búa um sig á ný, og fer
sá straumur úr þessu hraðvax-
andi, því flestir vilja komast
heim.
Viðreisnarstarfið er þegar
hafið, og færist í auka frá degi
til dags. Flóðsjóðurinn, sem á-
ætlað er að skuli nema 10 miljón
um dollara, er nú að nálgast
hálfa þriðju miljónina, og má
það vissulega mega kallast vel
að verki verið á ekki lengri
tíma, en liðinn er frá stofnun
hans.
Hið fegursta samræmi ein-
kennir viðreisnarstarfið í öllum
þess mörgu myndum, og allir
líta björtum vonaraugum til
framtíðarinnar; svo átti það líka
að vera og varð að vera.
Olíuleiðsla til
Winnipeg
Nú í ár verður fyrir atbeina
Imperial olíufélagsins hafið verk
að olíuleiðslu hingað til borgar,
og mun kostnaðurinn við pípu-
lagninguna nema hálfri þriðju
miljón dollara. V.eitt verður
hingað olíu frá Alberta, en inn
í Manitoba kemur pípuleiðslan
frá bænum Gretna, sem liggur
um 75 mílur suðaustur frá Win-
nipeg.
Alvarlegir
skógareldar
Síðan um lok fyrri viku, hafa
skógareldar gert mikinn usla í
Austurfylkjunum, Ontario, Que-
bec, Nova Scotia og New Bruns-
wick, er brent hafa til ösku þús-
undir ekra auðugs timburlands;
mest hefir þó að tjóninu kveðið
í New Brunswick, þar sem um
tuttugu heimili hafa brunnið til
kaldra kola; hvergi mun þó
manntjón hafa orðið af völdum
þessara skógarelda enn sem
komið er.
Dóir forustu
Rauða Krossins
Mr. Colin Herrie, einn af
framkvæmdarstjórum Rauða
Kross samtaka Bandaríkjanna,
sem verið hefir í Winnipeg-
borg nokkra' undanfarna daga,
dáir mjög starfsemi og skipu-
lagningu Rauða Krossins hér um
slóðir í þeim mikla vanda, sem
hér hefir að höndum borið. Mr.
Herrie lét þess getið, að Rauði
Kross Bandaríkjanna hefði oftar
en einu sinni átt við stórkost-
legri viðfangsefni að glíma en
þau, er hér um ræddi; en þrátt
fyrir það sagðist hann aldrei
hafa komið auga á nánara sam-
ræmi björgunarráðstafana, en
hér ætti sér stað; samstarf Rauða
Krossins og hernaðaryfirvald-
valdanna væri slíkt, að óhjá-
kvæmilegt væri, að aðdáun
hvarvetna vekti; það væri meðal
j annars eftirtektarvert og lær-
dómsríkt, hversu fagurlega hefði
tekist til um það, að flytja á
brott úr ýmsum sjúkrahúsum
borgarinnar alla sjúklinga með
afar naumum fyrirvara, án þess
að truflana eða nokkurs minsta
áreksturs yrði vart. Mr. Herrie
taldi það undrunarvert hversu
frábærlega vel hefði tekist til
um stofnun og starfrækslu
þeirra margvíslegu líknardeilda,
sem Rauði Frossinn hefði komið
á fót í samkomuhöll borgarinn-
ar.
Víða pof-fur brotinn
í norðevsturhluta Iranríkis
hafa áflæði valdið geisilegum
spjöllum og hátt á þriðja þúsund
manna orðið til þess neyddir að
flýja óðul; það er víðar en í
Manitoba sem vatnavextir láta
til sín taka í sumar.
Um manntjón er ekki getið í
síðustu fréttum frá Iran.
Uoclor of Medicine
George Johnson, sonur J. G.
Johnson, deildarstjóra hjá T.
Eaton Co., Ltd. hér í borginni og
frúar hans; hinn ungi læknir er
agætur námsmaður og líklegur
til mikils frama. Hann er kvænt
ur Doris Blöndal, dóttur þeirra
^r- Ágústs heitins Blöndal og
eftirlifandi ekkju hans, frú Guð-
rúnar Blöndal.
Dr. Johnson hefir nú tekist á
hendur læknisembætti á Gimli.
fliploma in Music
Associate in Music, Manitoba
Gloria Olive Sivertson (Piano-
forte, Performer).
Miss Sivertson er dóttir þeirra
Mr. og Mrs. P. J. Sivertson, 497
Telfer Street hér í borg; Marg-
aret Helen MacKeen.
Bachelor of Science
Berta Solveig Andresson.
Hiploma in Educaiion
Gloria Andrey Johnson,
Gloria Anne Marie Swanson,
B-A.
Krefjast
sjólfsfjórnar
Hálf önnur miljón Skota hefir
Sent brezku stjórninni tilkynn-
tngu um það, að þessi hópur
^anna krefjist þess að Skotland
ái fult sjálfsforræði og sitt eig-
ið þing; þó er það skýrt tekið
ram, að Skotar vilji halda sam-
andi sínu við krúnuna og
rezka heimsveldið.
R. K. í. stofnar Reykjavíkurdeild á morgun
Á SÍÐASTA aðalfundi Rauða Kross íslands var samþykkt sú
skipulagsbreyting, að stofnuð yrði sérstök Rauða Kross deild í
Reykjavík. Stjórn Rauða Krossins skýrði fréttamönnum frá því
í gær, að nú yrði þessu máli hrundið í framkvæmd, og er boðað
til stofnfundar deildarinnar á morgun, fimtudaginn 27. apríl, kl.
eitt e. h. í kennslustofu Háskólans.
Þ e s s a r i Reykjavíkurdeild
Rauða Krossins er ætlað að fara
með þau mál, er aðallega varða
Reykjavík. Verður í henni kos-
in sérstök stjórn, er aftur kýs
sína fulltrúa á aðalfund Rauða
Kross Islands, svo sem aðrar
deildir landsins, en fram að
þessu hefir stjórn hans haft á
hendi Reykjavíkurmálin og
jafnframt verið yfirstjórn Rauða
Krossins hér á landi.
Slarfið hófst fyrir 25 árum
Rauði Kross Islands var stofn-
aður fyrir 25 árum í Reykjavík,
og var starfsemi hans í upphafi
deildir í helztu kaupstöðum og
víðar úti um land, og er þeim
fjölgaði, þótti nauðsynlegt að
stofna sérstaka Reykjavíkur-
deild og að stjórn hennar yrði
skilin frá aðalstjórn Rauða
Krossins á Islandi.
Meðlimir Rauða Krossins í
Reykjavík verða meðlimir þess-
arar deildar, en þeir eru nú rúm
lega 900 manns, og verður það
að teljast fátt. Fjölmennasta
deild utan Reykjavíkur er á
Akureyri, sem hefir um 500 með
limi, og er það, í samanburði við
fólksfjölda , miklum mun meira.
Meiðlimir innan við 2000
Rauði Krossinn er ekki fjöl-
mennur hér á landi. Eru með-
limir hans innan við 2 0 0 0
manns, og verður að þakka hið
mikla starf hans því, hve dug-
lega einstaklinga hann hefir átt
í þjónustu sinni.
Starfsemi Rauða Krossins er
aðallega sjúkraflutningar, og a
hann alla sjúkrabíla, sem not-
aðir eru hér á landi, aðstoð við
Islendinga erlendis, fyrir-
greiðsla á gjafabögglum og sum-
ardvalir barna. Hefir félagið nú
í byggingu stórt sumardvalar-
heimili að Laugarási. Er húsið
um 1000 ferm. að flatarmáli og
munu þar rúmast á annað
hundrað börn. Mbl. 26. apríl
BERGTHOR EMIL JOHNSON
Fæddur 1. ágúst 1896 — dáinn 25. febrúar 1950.
Eg þekti þig ungan með æskunnar bál:
það yljaði hugsjónum mínum.
Og vaxandi styrkur og stœkkandi sál
þá stjórnaði draumunum þínum.
Eg þekti þig ungan sem ástríkan son —
Sem augastein föður og móður.
Og seinna sem foreldrum fullrétta von,
og Fjállkonu þjóðinni gróður.
Sem trúfastan eiginmann þekti ég þig,
og þú barst af öðrum sem faðir.
Og „hús“ eins og þitt eiga þökk fyrir sig,
því þau eru friðhelgir staðir.
Og hún sem þér fölskvalaust unni og ann,
á einverustundunum sínum,
þig blessar sem góðan og göfugan mann
og geislana‘ af kærleika þínum.
Eg fann það var sál þinni samvaxin trú
í sannleika skyldum að gegna,
og því voru fáir eins fljótir og þú
að finna til annara vegna.
Þó lífið til athafna leiddi þig skamt
með lögum og dulráðum sínum:
þú lifir í íslenzku sögunni samt
og sálrænu Ijóðunum þínum.
SIG. JÚL. JÓHANNESSON
Fred Ruppel Bachelor of Science
in Pharmacy
Vinnur þrenn
heiðursverðlaun
Við nýlega afstaðin háskóla-
próf í Manitoba, lauk fullnað-
arprófi í lyfjafræði með hæztu
ágætiseinkunn Friðrik (Fred)
Ruppel 1517 Jameswood Pl. hér
í borginni og hlaut þrenn heið-
ursverðlaun, gullmedalíu há-
skólans í lyfjafræði, silfur-
medalíu lyfjafræðingafélagsins
ásamt verðlaunum formanns
þess félagsskapar.
Fred Ruppel er fæddur hér í
borg, sonur þeirra Mr. og Mrs.
F. W. Ruppel, 650 Home Street;
móðir hans er íslenzk, Hildur,
dóttir Magnúsar trésmiðs Magn-
ússonar úr Hjaltastaðaþinghá og
Gróu konu hans, sem bæði eru
látin.
Fred Ruppel var Sargeant í
canadíska flughernum í síðasta
stríði; hann er frábær námsmað-
ur, og að sama skapi ástundun-
arsamur og viljafastur.
Bretar minnast Win-
nipeg og Manitoba
Brezka stjórnin hefir veitt
þrjú hundruð þúsundir dollara
til aðstoðar því fólki í Manitoba,
er flóðin miklu hafa sorfið harð-
ast að; varningur ýmis konar,
fyrir fjárhæð þessa verður send-
ur hingað einá fljótt og auðið
má verða, og eru fyrstu birgð-
irnar komnar hingað loftleiðis.
Þess er vænst, að meginhluti
birgðanna komi til Winnipeg
fyrri part júnímánaðar; þá sendi
stjórn Breta hinar og þessar
nauðsynjar borgunum í Quebec,
Rinouski og Cabano, er lögðust
að miklu leyti í eyði af völdum
nýlegra eldsvoða; meðal varn-
ings þessa frá Bretlandi, er mik-
ið af sængurfatnaði, handklæð-
um, og barnafötum, auk nokk-
urs af leikföngum; þá mun og
nokkuð húsgagna og eldhús-
áhalda verða innifalið í áminst-
j um vörusendingum.
Ennfremur hafa ýmis brezk
verzlunar- og verksmiðjufyrir-
tæki ákveðið að senda hingað
gjafavörur.
Ein hækkunin enn
Samkvæmt fregnum frá Ot-
tawa síðastliðinn fimtudag, hef-
ir járnbrautarráðið í Ottawa
heimilað járnbrautarfélögunum
tveimur, Canadian Pacific Rail-
ways og Canadian National
Railwayls, eina fargjaldahækk-
unina enn, sem nemur 3y2 af
hundraði; áætlað er að þessi
nýja hækkun auki tekjur á-
minstra járnbrautarfélaga um
13 miljónir dollara á ári; hækk-
Glaðnar yfir
viðskiptalífinu
Þó ekki sé enn langt um liðið
síðan að vöxtur 1 Rauðá og flóð-
systrum henna tók að réna, eru
áhrifin auðsæilega farin að gera
vart við sig hér í borginni, því
nú er þegar tekið að glaðna
mjög yfir viðskiptalífinu; verzl-
unarbúðir, sem stóðu hálftómar
dag út og dag inn, eru nú farnar
að fyllast af viðskiptavinum,
sem gera innkaup sín eins og í
ekkert hefði skorist; þetta nær
þó ekki til allra verzlunarbúða
eða annara viðskiptastöðva enn
sem komið er, þó hjartsláttur
viðskiptalífsins sé smátt og
smátt að færast í sitt eðlilega
horf.
Viðskiptaráð Winnipegborgar,
undir forustu R. H. G. Bonny-
castle, beitir sér af eldmóði fyrir
um það, að endurvekja traust
almennings á Winnipegborg og
skilyrðum hennar til framtíðar-
þróunar; vonandi eru þeir ekki
margir, sem glatað hafa trausti
á sinni fögru og friðsælu borg,
því þó hún nú hafi um stundar-
sakir sætt nokkurum ágjöfum, á
hún eftir að verða borg mikillar
framtíðar í miklu framtíðar-
landi.
Óverðskuldaðar
hnútur
Hon. Stuart S. Garson, dóms-
málaráðherra sambandsstjórnar
og fyrrum forsætisráðherra
Manitobafylkis, kvað núverandi
forsætisráðherra fylkisins, Mr.
Campbell, hafa sætt úr ýmsum
áttum óverðskulduðum hnútum
vegna afskipta hans af flóð-
varnaráðstöfunum í Manitoba.
Mr. Garson kvaðst sannfærður
um það, að hið eina, sem að Mr.
Campbell mætti með nokkrum
rétti verða til foráttu fundið,
væri það, að hann hefði ekki
skýrt almenningi frá því nægi-
lega snemma, hve róttækar þær
bjargarráðstafanir hefðu verið,
sem hann hefði tekið löngu áður
en flóðin í Winnipeg og suður-
fylkinu ágerðust svo sem raun
varð síðar á; að minsta kosti yrði
það ekki hrakið, að hann hefði
leitað til sambandsstjórnar um
aðstoð hersins vikum áður en
til þess kom, að slíkt yrði óhjá-
kvæmilegt.
Mr. Garson kvað stjórnina
hafa varið hátt á annari miljón
dollara til kaupa á sandpokum,
dælum og öðrum nauðsynjum
til flóðvarnanna, auk þess sem
hún hefði unnið að því, að flytja
hey í flugvélum til búpenings á
flóðsvæðunum og hjálpað til að
koma yfir 9 þúsund stórgripum
til öruggra staða; og þetta væri
aðeins byrjun á því mikla verki,
sem stjórnin þegar hefði gert
og væri að gera.
un farmgjalda síðan 1948 nemur
nú orðið 20 af hundraði.
Sjö fylki af tíu höfðu fyrir
löngu mótmælt hinni fyrirhug-
uðu farmgjaldahækkun, sem nú
er orðin að staðreynd, og má
búast við að þau geri það enn.
Quebec, Newfoundland og On-
tario, hafa látið sig hækkun
þessa litlu skipta.
Hækkun farmgjalda kemur
jafnan þyngst niður á Sléttu-
fylkjunum og Strandfylkjunum
eystra.