Lögberg - 01.06.1950, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 1. JÚNÍ, 1950
3
GRÓANDIJÖRÐ:
Hugsjónir og londbúnaður
Efiir Jón Þorbergsson á Laxamýri
„Sú kemur tíð að sárin foldar gróa,
sveitimar fyllast, dkrar hylja móa.
brauð veitir sonum móðurmoldin frjóa,
menningin vex i lundi nýrra skóga,(.
ÞETTA MERKILEGAR erindi
Hannesar Hafstein, minnir okk-
ur á hugsjónir, sem bundnar eru
við landbúnaðinn og sem land-
búnaðarfólk þarf óaflátanlega að
halda lifandi, virða og auka og
umfram allt að handa í hávegum.
Mannlíf án hugsjóna er einskis
virði. Ef aðeins er hugsað um
munn og maga og dagleg mak-
indi þá hafa mennirnir raunar
ekkert sér til ágætis fram yfir
úýr merkurinnar. Heimsmenn-
ingin er: Göfugar hugsjónir
mannanna og framtak tengt við
þær. Það eru gjafir til mannanna
frá almættinu. Að horfa hátt og
hugsa göfuglega, er fyrsta spor-
ið til að hagnýta gjafirnar. Segja
má að hugsjónirnar séu á marga
vegu og hafi hverjar sitt tak-
markaða og takmarkalausa rúm.
Það eru hugsjónir um fegurra
°g betra líf, um framtak til fegr-
unar og umbóta. Hugsjónir um
að vaxa sjálfir af framtakinu,
vera þátttakandi til uppfyllingar
timans, í baráttunni fyrir vax-
sndi fegurð lífsins, fyllingu þess,
fíðfgi og gæðum.
Hugsjónir um líf í réttu sam-
bandi við annað líf. Þetta er
hugsjón allra hugsjóna, án henn-
ar renna allar aðrar hugsjónir
nt í sandinn.
Steingrímur heitinn Matthías-
son læknir skrifaði grein, sem
hann nefndi: „Annað líf í þessu
Hugsjónirnar eiga að vaka
1 °kkur, svo að við komum á öð-
ru lífi í þessu lífi. En miklu betra
lífi. Það er aðalverkefni heims-
menningarinnar.
Menn geta farið ýmsar leiðir
til að þjóna hugsjónum. En eng-
in atvinnugrein eða framleiðslu-
þáttur, með þjóðunum, sameinar
jafnvel göfugar hugsjónir og
verklegt framtak, sem landbún-
aðurinn. Allt framtak, ræktun er
framkvæmd á hugsjón, sem mið-
ar að því að fegra og bæta lífið.
Mér kemur til hugar Jaðarinn í
Noregi. Það er stór flatlendis-
spilda, syðst, vestan fjalls.
Skömmu eftir aldamótin átti ég
tal við gamla menn þar í byggð.
Þeir mundu vel þá tíma er fram-
taks og getuleysi var svo mikið
að þeir máttu stinga upp korna-
krana á vorin, líkt og við hér
stingum upp smágarða. „Da stod
man og spadde hile dagene,“
sögðu þeir. Þeir mundu vel
hvernig hérað þetta leit út áður
en Norðmenn hófu sitt stórfellda
ræktunarstarf — á síðara helm-
ingi 19. aldar. — Þá voru á Jaðr-
inum bændabýli á stangli, en
meginhluti landsins voru grýttir
ásar með fátæklegum holtagróð-
ri og mýrarsund á milli þeirra,
með lélegum hálfgrasagróðri. Nú
er þessi stóra spilda nær öll orð-
in akrar, tún, garðar og skóg-
lendi. Stærstu framræsluskurðir
eru orðnir að stórum vatnsföll-
um, grjótið úr ásunum er
sprengt burt og horfið, komið
í hús og girðingar í bygðinni,
selt til borganna og jafnvel af
landi burt. Áður lifði fólk þarna
við lítinn kost í strjábýli, með
Marshallhjálpin verður fjórð-
ungur innflutnings í ár
Búizt við, að allt að þriðjungur f járfestingar á árinu
hvíli á vörum fyrir Marshallfé
kíARSHALL-VÖRUR munu að
Hkir^dum verða um 25% af heild-
arinnflutningi yfirstandandi árs,
°g auk þess munu þær standa
undir allt að 30% af fjárfestinu
^andsmanna á árinu, að því er
Hjörn ólafsson, viðskiptamála-
ráðherra, skýrði frá í útvarps-
ræðu í gærkvöldi, er hann flutti
1 tilefni af tveggja ára afmæli
Marshallhjálparinnar. S a g ð i
hann, að það léki ekki á tveim
tungum, að með Marshall-að-
stoðinni hafi verið hægt að reisa
skorður við því, að lífskjör al-
niennings versnuðu til mikilla
muna á árunum 1948—49 vegna
^flaskort og vaxandi markaðs-
erfiðleika. Hefði þessarar aðstoð-
ar ekki notið við, sagði Björn
ennfremur, varð ekki hjá því
komizt að draga stórkostlega úr
innflutningi fjáresftingarvara,
sem hefði haft mjög óhagstæð
ahrif 4 atvinnutekjur margra
stétta þjóðfélagsins.
Ráðherrann skýrði frá því, að
a síðustu tveim árum hefði ís-
land fengið úthlutað 13,2 millj.
^ollara af Marshall-aðstoð, en
Pað samsvarar 136,7 millj. krón-
Urn. Um síðustu áramót höfðu
homið til landsins Marshall-vör-
ar fyrir rúmlega 52,7 milljónir
hróna. Hlutur Marshall-vörunn-
ar af heildarinnflutningnum 1
yrra var um 11% en mun í ár
nalgast 25%.
fnnflutningur Marsha
ársloka skiptist eftir 1
vörum, rekstrarvörum og
vörum þnnig:
^apitalv. kr. 21.9 millj.
ríekstrarv.. kr. 21.7 millj.
Neyzluv. kr. 8.4 millj.
Stærstu vöruflokkarnir, sem
Sreiddir hafa verið fyrir Mars-
nallfé, eru:
Hóðurbætir 10 millj. Hveiti 7.3
111Þ Landbúnaðarvélar og
hráttarvélar 4.8 millj. Aðrar vél-
og varahlutir 10.6 millj.
Uiurnings- og brennsluolíur 3.4
"hUj. Áburður 1.7 millj. Smjör-
^kisolíur 1.7 millj. Pappír og
pappi til fiskiumbúða 0,9 millj.
Járn og stál kr. 0.8. Hrísgrjón kr.
0.8. Síidarnætur.
A!þbl., 4. apríl
— Kveðja —
Jón Bergmann
Dáinn II. maí 1950
Hólmgöngunni,
hér er lokið.
Skjöldur ristur
rúnum dauðans.
Börn þín kæru,
sárt nú sakna,
systkin, — vinir,
sem nú kveðja. —
Fagnandi þíns
fundar bíða,
ástvinir sem
áður kvöddu.
Er nú bjóða
bhðum rómi
velkomnum til
vina þinna. —
Alt sem áður þjáði,
er nú lækning fengin.
Hels í hinsta stríði,
hlífð er dauðans engin.
Sæll þú burt er svifinn,
sælli lífs til geyma,
alt í yndi leikur
ert nú giaður heima. —
Þín var ævin ætíð,
óðal ljóss og gteði,
öllu slíku unni,
er sú hugsjón réði.
Þótt að mótbyr mæddi,
misjöfn reynist stundin.
Þrekið þig nam styðja,
þín var sama lundin. —
Árdags æsku sólin,
öðru sinni hefur,
upp þér aftur runnið,
æðri fögnuð gefur.
Andans auðinn bezta,
alsælunnar bandið,
þar sem alt er öllum
alsnægtanna landið! —
B. J. Hornfjörð
hið ljóta landslag daglega fyrir
augum. Nú er þetta orðin fögur.
þéttsetin byggð, þar sem fólkið
býr blómabúum, við svo góðan
fjárhag, að óvíða eða hvergi mun
hann betri vera í byggðum Nor-
egs. Þarna má sjá hvernig
„hugsjónir rætast“ og „akrar
hyja móa“, þarna má sjá hvern-
ig jörðin skilar aftur erfiði og
svitadropum jarðyrkjumannsins,
þarna má sjá hvernig fram-
kvæmd jarðræktarhugsjónarinn
ar fegrar og bætir lífið og bætir
fólkið sjálft. Því að góð, holl,
nauðsynleg og drengileg störf,
bæta allan manninn. Þótt okkar
land sé enn mjög lítið ræktað,
eigum við þó hliðstæð dæmi að
benda á, með einstakar jarðir.
En hvergi er hér til fullræktuð
sveit, eða hérað, eða jafnvel
nokkur sveitajörð, svo skammt
erum við komnir, íslendingar,
í ræktun og þá líka í aðferðum
og þekkingu á því að lifa við
xæktað iand og lítið annað.
—Dagur
SELKIRK HETAL PRODUCTS LTD.
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hreinlr. Hitaeiningar-
rör, ný uppfynding. Sparar eldi-
viö, heldur hita frá aS rjúka öt
meö reyknum — Skrifið stmið til
KELLY SVEINSSON
187 Sutherland Ave., Winnipeg
Simi 54 358
PARKER, PARKER
& KRISTJANSSON
Barristers - Solicitors
Ben C. Parker, K.C.
B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson
500 Canadian Bank of Commerce
Chambers
Winnipeg. Man. Phone 923 891
Business and Professional Cards
MINNINGAR OG ÞAKKARORÐ:
Kolbeinn S. Thordarson
(F. 1872 — D. 1950)
Vísi-konsúll íslands í Seattle 1942—1950
Sæmdur r.kr. Fálkaorðunnar 11. okt 1949
Vestur-íslenzku blöðin hafa
þegar flutt andlátsfregn Kol-
beins S. Þórðarsonar, vísi-kon-
súls íslands í Seattle, Washing-
ton. Hann lézt að heimili sínu
þann 27. apríl s. 1. Eftir þung-
bær veikindi vetrarlangt kom
vorið með hvíldina og friðinn.
Jarðarförin fór fram 1. maí,
að viðstöddum fjölda ættmenna,
vina, nábúa og samverkafólks í
hinum ýmsu félögum er hinn
látni tilheyrði. Samúðarskeyti
og blóm bárust víða að — m. a.
frá Hon Thors Thors í Washing-
ton D.C. fyrir hönd íslands —
og frá Dr. R. Beck í Grand Forks
N. D. Hinn látni var meðlimur
í Seattle Consuiar Corps, heið-
ursforseti í ísl. lúterska söfnuð-
inum og heiðursmeðlimur í Þjóð
ræknisdeildinni „Vestri“.
Dr. Haraldur Sigmar frá Van-
couver B.C. flutti á íslenzku
stutt æviágrip og hlýtt og fag-
urt kveðjuávarp. Séra Haraldur
S. Sigmar, prestur ísl. safnaðar-
ins í Seattle, flutti á ensku vand-
aða minningarræðu út af text-
anum í öðrum sálmi 3. k. 38
„Konugur mælti við menn sína:
Vitið þér ekki að höfðingi og
mikill maður er fallinn í ísrael?“
— Tani Björnson söng „Kallið
er komið“ — Crossing the Bar“
— og síðast „Góða nótt“. Greftr-
unarathöfn fór fram í Pacific
Lutheran Cemetery.
— þeir nánustu sem eftir lifa
eru sem fylgir: ein systir — frú
Ólöf, kona Tryggva Arasonar í
Argyle, Manitoba; — ekkjan,
frú Anna Jónsd. Sigurjónssonar;
níu börn af ellefu sem þeim
hjónum fæddust, og fimtán
barna-börn. Synirnir eru: Dr. S.
Stefán, læknir í Tacoma, Was-
ington; Herman, eigandi Caslon
Printing C. og Jón, starfsmaður
þar. Dæturnar eru: Louise, gift
Dr. R. H. Harris í Fargo N.D.;
Margrét, hér vestur frá; Esther,
gift Milton Hallgrímssyni, í
Seattle; Agnes, gift T. C. Hend-
ricks, í Oregon; Metta, gift H.
Rhenberg, í New York og Inga
gift Lloyd Tyo, í Alaska.
Kolbeinn S. Thordarson var
fæddur 19. okt. 1872 á Hofsstöð-
um í Hálsasveit í Borgarfjarðar-
sýsiu á íslandi. Forddrar hans
voru þau hjónin Siggeir Þórðar-
son og Anna Stefánsdóttir frá
Kalmanstungu. Þó ekki verði
nein ættartala rakin hér, má
geta þess að hann átti til nafn-
kendra manna að telja, svo sem
Óiafs Stephensens stiptampt-
manns og séra Stefáns ólafssón-
ar í Vallanesi. Árið 1886 fluttu
þau Siggeir og Anna með börn
sín vestur um haf og settust að í
Winnipegborg. Þar áttu þau
heima jafnan síðan.
Bernskuár og bernskudraum-
arKolbeins sál. mótuðust því í
íslenzku umhverfi, en unglings-
árin og þroskaferillinn í land-
náminu margþætta vestan hafs.
Börn landnemanna lærðu nýtt
tungumál, öfluðu sér fræðslu og
menntunar eftir því sem mögu-
legt var og unnu fyrir sér við
hvað sem bauðst. Koibeinn var
að eðlisfari góðum hæfileikum
gæddur — t. d. var hann mjög
athugull og einbeittur — ígrund-
aði alt sem hann las og lærði.
Þessvegna notaðist honum alt
svo prýðilega, og þessvegna
bætti hann stöðugt við sig á öll-
Kolbeinn S. Thordarson
um sviðum. öll framkoma hans
bar vott um þetta, eins bréf
hans skrifuð með svo áferðar-
fallegri rithönd. Hann lærði
ungur prent-iðn og stundaði
hana þar til nokkur síðustu ár-
in. En þá tóku synir hans við
Caslon Printing Co., sem hann
hafði stofnað og starfrækt hér.
Eftir það keypti hann íbúða-hús
(Apartments) — leigði út, og
farnaðist vel. Hann var mjög vel
að sér í öllu því, sem að við-
skiptum laut, þar með fyigdi
persónuleiki sem ávann honum
traust og virðingu, og það því
meir sem árin færðust yfir.
Kolbeinn sál. kvæntist 11.
okt. 1899, önnu Jónsd. Sigur-
jónssonar frá Einarsstöðum í
Reykjadal, í S.-Þingeyjarsýslu
— merkri hæfileika konu. Þess
var hátíðlega minnst s.l. haust,
með fjölmennu samsæti. —
Fyrst áttu þau hjónin heima í
Winnipeg — Þar næst 4 ár í
Edinburg N. D.Síðan á nokkrum
stöðum í Canada, þar sem Kol-
beinn sá tækifæri með atvinnu-
grein sína — og gaf þá út viku-
blöð. Frá Saskatoon, Sask. fluttu
þau til Seattle árið 1924 — höfðu
því búið hér rúmlega 25 ár.
Heimili þeirra hér, þar sem
öll yngri börnin ólust upp, varð
brátt vinsælt og vinmargt. Þátt-
takan í ísl. félagsskap hefir ver-
ið alveg ómetanleg. Bæði kirkju-
leg og önnur félagssamtök hafa
um fleiri ár notið forgöngu Kol-
beins sál. og ötulleika hans og
styrks, ásamt fjölskyldu hans.
Eigi er unnt að minnast heimilis
þeirra Kolbeins og önnu, nema
beggja sé getið, svo samhuga og
samtaka voru þau. Frá heimili
þeirra stafaði gestrisni og góð-
vild til vina og kunningja nær
og fjær. — Því erum við, fólk
af íslenzku berig brotið í þessu
héraði, samhuga í aðdáun fyrir
afreki þessara hjóna, sem komu
til mennta stórum barnahóp, og,
reyndust jafnframt hinir beztu
nágrannar og vinir og ágætustu
borgarar í hinu nýja landnámi.
Við þökkum þeim eitt og alt.
Við viljum votta öllum í fjöl-
skyldunni samúð okkar í missi
þeirra. Við minnumst með gleði
og af hlýjum huga, allra góðra
stunda sem við áttum saman,
ekki sízt gullbrúðkaupsins s.l.
haust. Við vissum öll að þá hall-
aði degi, en samt réði gleði og
hetjuiund lögum og loftum.
Þannig er gott að kveðja kæran
samferðamann. — í guðs friði!
Vinsamlegast,
Jakobína Johnson
Seattle, Washington.
S. o. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smith St. Winnipeg Phone 924 624 JOHN A. HILLSMAN. M.D.. Cb. M. 332 Medical Arts. Bldg. OF FICE 929 349 Home 403 288
Office Ph, 925 668 Res, 4C4 319 NORMAN S. BERGMAN, B.A..LL.B. Barrister, Solicltor, etc. 411 Childs Bldg, WINNIPEG CANADA Phone 724 944 Dr. S. J. lóhannesson 8UITJ5 6 — 652 HOME ST, ViOtalsttml 3—5 eftlr hádegl
,, . .. Aiso 123 rrn»sTEii tenthít. BRANDON 447 Portage Ave, Ph, 926 885 DR. E. JOHNSON 304 KVELINF, STREET Selkirk. Man. ortioe hrs 2.30—6 p.m Phones: OffUe 26 — Ret 2*0
Phone 21 101 ESTIMATES FREE J. M. 1NGIMUNDSON Asphalt Roofs and Insulated Slding — Repairs Country Orders Attended To 632 Simeoe St. Wlnnipeg, Man Ofrice Phone Rea Phone 924 762 126 115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BLDG. Offlce Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appointment
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
606 SOMKRStíT BUILDINO
Telephone 97 932
Rome Telephone 202 39R
DR. H. W. TWEED
Tannlæknir
508 TORONTO GEN. TRUSTS
BUILDING «
Cor. PortaRe Ave og Smlth 8t
Phone 926 962 WINNIPEO
Talslml 925 826 Heimilis 404 630 DR. K. J. AUSTMANN Sérfrœðingur i augna, eyrna, net og kverka sjúkdómum. 209 Medical Arts Bldg. Stofutlmi: 2.00 til 5.00 e. h. Cars Bought and. Sold SQUARE DEAL MOTOR SALES "The Working Man’s Friend" itL, VI#. 297 Princkss Strket Kll. Z0404 Half Btock N Logan
DR. ROBERT BLACK 8érfræöinour < augna, eyrna, nef og hdlssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG Graham and Kennedy St. Skrifstofusfml 923 851 Heimasfmi 403 794 SARGENT TAXI Phone 722 401 FOR QUICK RELIABLE SERVICE
EYOLFSON’S DRUG PARK RIVER, N. DAK. islenzkur lytsali Fölk getur pantad meBul og annaB meB pósti. Fljðt afgreiBsla. J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG WPG. Fastelgnasalar. Leigja hðs. Ot- vega penlngalán og eldsðbyrgB bifreiBaábyrgB, o. a. try. Phone 927 538
GUNDRY PYMORE Limited Brttish Quality Fish Netting 68 VICTORIA ST„ WTNNIPEG Phone 92 8211 Uanager T. R. THORVALDBON Your patronage wtll be appreciated Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson LögfrecSingar 209BANK OF NOVA SCOTIA BG Portage og Garry St. Phone 928 291
G. F. Jonasson, Pres. & Mac. Dír. Keystone Fisheries Limited 404 SCOTT BLK, Sfmi 925 227 Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH C A N A D 1 A N FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAGE, Managing Director Wholesale Distributors of Frssh and Frozen Fish. 311 CHAMBERS STREET Offlce Fh. 26 328 Res. Ph. 73 917
Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary’s and Vaughan, Wpg, Phone 926 441 A. S. B A R D A L 848 SHERBROOK STREET Selur lfkklstur og annast um ttt- farlr. Allur útbúnaBur sá bezti. Ennfremur selur hann allskonar minnlsvarBa og legsteina. Skrifstofu talsfml 27 324 Heimllls talsfml 26 444
Phone 927 025 H. J. H. Palmason, C.A. H. J. PALMASON & CO. Chartered Acconntanta 505 Confederation Llfe Bldg. Wlnnipeg Manltoba Phone 23 996 761 Notre Dame Ave. Just West of New Matemlty Hospital Nell's Flower Shop Wedding Bouquets, Cut Flowers Funeral Designs, Corsages Bedding Plants Nell Johnson Ruth Rowland 27 462 88 790