Lögberg - 22.06.1950, Síða 1
PHONE 21374
/->
Clca'í'
•’ndcreTS
S A Complete
Cleaning
Inslilution
PHONE 21374
Aot*.
U*"!'e
Clctt'*1'
LaU •f'U^ ® A Complete
Cleaning
Institution
63. ARGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 22. JÚNÍ, 1950
NÚMER 25
Campbell lýsir yfir viðreisnartilhögun
fylkisstjórnar vegna óflæðisins í Manitoba
Risavaxið fyrirtæki, sem
íslendingar standa að
Síðastliðinn fimtudag gerði
Mr. Campbell forsætisráðherra
Manitobafylkis heyrinkunnar
skaðabótaráðstafanir f y 1 k i s -
stjórnarinnar vegna áflæðisins í
Winnipegborg hinni meiri og
Suðurfylkinu; var hér fram úr
óvenjulegum vanda að ráða, sem
tvísýnt er um hvort öðrum hefði
tekist betur til um að leysa; mál
þetta er þannig vaxið, að það á
að vera, og má til að vera, utan
°g ofan við pólitíska sérhags-
muna streytu, og verður það
vonandi unz yfir lýkur.
Skaðabótaráðstafanir Mr.
Campbells eru á breiðum grund-
velli á þessa leið:
Greiða skal eigendum heimila
í Rauðárdal, er flóðskemdir
surfu að, $3,000 til viðgerða og
ondurbóta á heimilum þeirra, og
alt að $1,000 vegna viðgerða á
peningshúsum; í bæjum skal
greiða $300 að auki, þar sem
bílaskýli og því um líkt hafa
gengið úr lagi. í engum tilfell-
um er um eignakönnun að ræða
Sen> skilyrði fyrir fjárveitingu,
°g mun því alment fagnað verða.
Nefnd sú, sem gengur undir
Uafninu Red River Valley
Hoard, undir forustu Mr. C. E.
Joslyns, annast um allar greiðsl-
ur> og hún hefir til þess
heimild, að hækka framlög
yfir $3,000 hámarkið, komist
hún að þeirri niðurstöðu, að
slíks sé þörf; þar sem svo hagar
til, að heimili hafi raskast af
grunni, greiðir nefndin þann
kostnað, sem af því leiðir, að
koma því aftur á sinn rétta
stað; greiðslur fyrir aðgerðir
a húsum bændabýla, annara en
heimila og hlöðubygginga, sem
þegar hefir verið skýrt frá, fara
fram eftir mati.
Þar, sem svo er ástatt, að heim
iii hafi sætt slíkum skemdum
af völdum flóðsins, að ekki sé
unt að gera við þau, fer endtir-
bygging fram eftir mati.
Engar greiðslutakmarkanir
koma til greina varðandi úrbæt-
ur til ellistyrksþega, eða njót-
endur mæðrastyrks, né heldur
heimkomna hermenn, er fá 50
af hundraði í eftirlaun eða
nieira, vegna heilsubilunar.
Eigendur heimila, sem þurfa
sðstoðar við, verða að æskja
mats eins fljótt og þeir fá því
viðkomið, en það fæst greiðlega
með því, að leita til skrifstofu
hlutaðeigandi áflæðissvæða í
Winnipeg, eða með því að setja
si§ í samband við skrifstofu
hlutaðeigandi sveitafélaga í á-
flæðishéruðunum. Þeir eigendur
heimila, er vinna sjálfir að við-
gerðum þeirra fá ákvæðiskaup
greitt fyrir vinnu sína, eins og
Þrennar
Qukakosningar
Síðastliðinn mánudag fóru
fram þrennar aukakosningar til
sambandsþings, og voru þær í
Montreal-Cartierkjördæmi, Hali
f&x og Annapolis-Kings kjör-
d*mi í New Brunswick; úrslit
urðu þau, að í tveimur fyr-
nefndu kjördæmunum gengu
Liberaiar slgrandi af hólmi, en
1 því síðastnefnda bar frambjóð-
andi íhaldsins hærra hlut. C. C.
H-sinnar höfðu frambjóðendur
* hjöri í Montreal-Cartier og
Halifax, er hlutu sáralítið fylgi,
ng sama var um frambjóðendur
ommúnista að segja í hinu fyr-
nefnda kjördæmi.
óviðkomandi menn að öðrum
kosti hefðu fengið.
Fylkisstjórn hefir mælt svo
fyrir, að áminst nefnd flýti fyr-
ir því svo sem framast má verða,
jafnt í borg sem til sveita, að
heimili, sem aðgerða, eða end-
urbyggingar þurfa við, komist
sem allra fyrst í viðunandi horf;
nefndin blandar sér á engan
hátt inn í það hverjir um við-
geriðir heimila annist; slíkt er
.eigendum þeirra í sjálfsvald
sett; þeir geta keypt efni hvar,
sem þeim sýnist, en verða jafn-
framt að hafa á takteinum skrá
yfir innkaupsverð; nefndin ann-
ast um skaðabótamat og greiðsl-
ur; verksvið hennar nær ekki
til innanstokksmuna, en á því
sviði kemur til kasta flóðsjóðs-
ins.
Með tilliti til kirkna, verzl-
unarbygginga og samkomuhúsa,
er tilkall vilja gera til aðstoðar
vegna flóðskemda, verða allar
slíkar stofnanir, að fá hlutað-
eigandi umboðsvöldum umsókn-
ir um úrbætur í hendur.
Fyrst um sinn verður sömu
reglu fylgt um fjölbýlishús og
verzlunar- og viðskiptabygging-
ar varðandi fjárhagslega aðstoð.
Fullnaðarmati yfir tjón af
völdum hins geigvænlega á-
flæðis, er enn eigi lokið, og má
vera að nákvæmari athuganir í
þeim efnum breyti að einhverju
leyti til; þó er nú kunnugt um
Séra Valdimar J. Eylands
prestur Fyrsta lúterska safnað-
ar, er verður þingprestur á árs-
þingi Hins evangeliska lúterska
kirkjufélags íslendinga í Vestur-
heimi, sem tekur til starfa í
Riverton í dag.
Uppþot í Perú
Það er nú í sjálfu sér engin ný
bóla þó nokkurra óspekta verði
vart í Perúríkinu, og gæti slíkt
miklu fremur talist til daglegra
viðburða. Venjulegast eru það
hernaðarleg klíkuumbrot, er í
þann og þann svipinn reyna að
sölsa undir sil völdin, ein slík til-
raun hefir staðið þar yfir síð-
asta hálfa mánuðinn, og höfðu
stjórnarandstæðingar, eða upp-
þotsmenn, náð á vald sitt annari
fjölmennustu borg landsins og
hugðu vafalaust gott til kjöt-
katlanna; en svo brást þeim
bogalistin og fylkingar stjórnar-
innar komu þeim að fullu og
öllu á kné.
Fó atkvæðisréfrt
Samkvæmt nýlegum fregnum
frá Ottawa, er nú víst talið, að
sambandsþing gangi svo frá mál
um, að Eskimóum í þessu landi
verði veittur atkvæðisréttur; þá
er þess og að vænta, að það
dragist nú heldur ekki lengur,
að Indíánum hlotnist sömu rétt-
indi, sem þeir vitanlega áttu
fult tilkall til að öðlast.
höfuðdrættina, en einmitt þess
vegna hefir líka reynst kleift að
koma við áminstum úrbótaráð-
stöfunum, er í flestum tilfellum
virðast drengilegar og sann-
gjarnar.
Vel að verki verið
Náttúrufríðinda ráðherra
fylkisstjórnarinnar í Manitoba,
Hon. J. S. McDiarmid, hefir ný-
lega birt í fimm liðum uppá-
stungur, er í þá átt miða, að
glæða viðskiptaafl innan tak-
marka fylkisins; í fyrsta lagi
með auknum auglýsingum með-
al iðjuhölda í Canada og Banda-
ríkjunum, þar sem athygli sé að
því leidd, hve margháttuð skil-
yrði séu fyrir hendi varðandi
arðvænlega verksmiðjufram-
leiðslu í fylkinu> bæði vegna ó-
þrotlegrar og ódýrrar raforku
til iðnreksturs og greiðra og full-
kominna samgangna; í öðru lagi,
að verksmiðjuframleiðendur ut-
an fylkisins séu hvattir til að
kaupa og færa sér í nyt ýmis
konar hráefni héðan, sem fylk-
ið hafi meira en nóg af; í þriðja
lagi, að bjóða hingað fésýslu-
mönnum og iðjuhöldum til að
kynna sér með eigin augum hin
margvíslegu auðæfi fylkisins; í
fjórða lagi, að fylkið sendi er-
indreka á hina miklu iðnsýn-
ingu, sem haldin verður í Chi-
cago frá 10.—20. ágúst næst-
komandi svo að þeim gefist þess
kostur, að kynnast helztu nýj-
ungum í iðnaðarframleiðálu
Bandaríkjanna, og í fimta lagi,
með því að leggja aukna áherzlu
á ferðamannastrauminn inn í
fylkið.
Allar þessar uppástungur Mr.
McDiarmids, eru þess verðar, að
þeim sé fullur gaumur gefinn.
Dr. Harald Gíslason
látinn
Síðastliðinn föstudag lézt
snögglega á North West Army
Command sjúkrahúsinu í Ed-
monton, Dr. Harald Gíslason, 37
ára að aldri, góður drengur og
hið mesta glæsimenni. Dr. Har-
ald var útskrifaður í læknis-
fræða af háskóla Manitobafylk-
is; hann gegndi herlæknisem-
bætti og hlaut Majorstign.
Dr. Harald var sonur G. F.
Gíslasonar lífsábyrgðarumboðs-
manns, sem nú er búsettur í
Vancouver og fyrri konu hans,
frú Ingibjargar, sem látin er
fyrir nokkrum árum; auk ekkju
sinnar, föður síns og stjúpmóður,
lætur Dr. Harald eftir sig tvær
systur, Thoru og Beatrice, og
margt annað nákominna ætt-
ingja, er harma hið óvænta frá-
fall hans. Lík þessa unga og
gjörfulega læknis var flutt til
Vancouver og jarðsett þar í gær.
Séra Egill H. Fáfnis
forseti Hins evangeliska lút-
erska kirkjufélags Islendinga í
Vesturheimi, er setur ársþing
félagsins í Riverton í dag, og
flytur þá prédikun.
Hert ó löggjöf
Dómsmálaráðherra sambands-
stjórnarinnar, Hon. Stuart S.
Garson, hefir borið fram í þing-
inu þá breytingu á núgildandi
refsilöggjöf, að hegning þeirra,
sem rjúfa hollustueið og sekir
gerast um það, að veita erlend-
um þjóðum leynilegar upplýs-
ingar, skuli hér eftir nema fjór-
tán árum í stað sjö ára, svo sem
núverandi löggjafarákvæði
mæltu fyrir.
Skip sekkur í
Rauða hafi
Á aðfaranótt síðastliðins þriðju
dags sökk í Rauðahafinu brezkt
flutningaskip hlaðið sprengiefni,
sem átti að fara til Indlands;
sprenging kom upp í skipinu,
sem ekki er vitað hvernig or-
sakaðist, og er sagt að það hafi
sokkið í einni svipan; um sjötíu
manns týndu lífi, flest Indverj-
ar; forráðamenn skipsins voru
brezkir.
Rúðuneyfisbreyf-
ingar í aðsigi
Þær fregnir hafa nýlega bor-
ist frá Ottawa, að um það, er
sambandsþingi slítur, sem senni-
lega verður fyrstu dagana í júlí,
muni forsætisráðherrann til-
kynna nokkrar breytingar á
ráðuneyti sínu; þess er meðal
annars vænst, að fiskiveiðaráð-
herrann, Mr. Mayhew, hljóti
sæti í efri málstofunni; hann á
sæti á þingi fyrir höfuðborg
British Colubiafylkis, Victoria,
og verður eftirmaður hans senni
lega valinn úr því fylki; þá er
það og 'talið nokkurn veginn
víst, að Mr. Ralph Maybank,
þingmaður fyrir Mið-Winnipeg
kjördæmið hið syðra, verði áð-
ur en langt um líður hafinn til
ráðherratignar.
Það er í rauninn kunnugra en
frá þurfi að segja, hve frábærir
athafnamenn þeir Stoneson-
bræður Ellis og Harry eru, því
svo lengi hafa þeir komið við
sögu, og vakið á sér athygli
vegna drengskapar og framtaks.
Það er víst flestum í fersku
minni hve mikið íslenzka elli-
heimilið Stafholt í Blaine á
þeim upp að unna, og hve stór-
tækir þeir eru um stuðning við
þau málefni, sem þeim eru hug-
stæð; rækt þeirra við íslenzkar
menningarerfðir hefir í mörg-
um myndum komið fagurlega í
ljós, eins og ráða má meðal ann-
ars af framlagi þeirra til hins
fyrirhugaða kenslustóls í ís-
lenzkri tungu og íslenzkum bók-
Mönnum standa enn í fersku
minni áflæðin miklu í Fraser-
dalnum í British Columbiafylki
1948, sem orsökuðu geigvæn-
legt tjón og surfu hart að því
fólki, sem á þeim stöðum bjó;
vonuðust menn þá til, að slík
ógnarsaga endurtæki sig ekki,
að minsta kosti ekki fyrst um
sinn; vonandi er og að annar
eins óvinafagnaður þjaki aldrei
aftur kosti fylkisbúa á svipaðan
hátt, þó horfur þar vestra séu
eins og sakir standa fremur
uggvænlegar; í mörgum ám
hefir hækkað all mjög, og eitt-
hvað milli fjörutíu og fimtíu
mílur austan við Vancouver,
hefir allmargt fólk orðið til þess
neytt, að flýja óðul sín; allmjög
hefir Fraseráin færst í aukana
þessa síðustu daga, þótt ekki
stafaði þaðan stórhætta, er síð-
ast fréttist.
Forsætisráðherra fylkisins,
Hon. Byron Johnson, hefir verið
á ferð um þann hluta fylkisins,
ásamt verkfræðingum sínum,
þar sem mest er um vatnavext-
ina, og tjáist hann þeirrar skoð-
unar, að flóðvarnir við Fraserá
muni standa af sér hvers konar
ágjafir og strauma.
Til
Kirkjuþingsmanna
Kirkjuþing Hins ev. lút. kirkju
félags íslendinga í Vesturheimi
byrjar með guðsþjónustu og alt-
arisgöngu -í kirkju Bræðrasafn-
aðar í Riverton, Man., fimtud.
22. júní 1950, kl. 8 e. h. (Standard
Time).
Máltíð verður til reiðu fyrir
kirkjuþingsfólk í Riverton Com-
munity Hall frá kl. 5.30 e. h. til
kl. 7 e. h. Nefndarmenn verða
þar staddir frá kl. 4 e. h. til að
leiðbeina fólki og útvega veru-
stað. Þeir, sem koma eftir kl. 7
eru beðnir að hitta nefndarmenn
við kirkjuna.
Hvað keyrsluvegi snertir, gild
ir ekki lengur sú aðvörun, sem
gefin var í síðasta blaði. Vegur-
inn frá Gimli beina leið norður
til Riverton er orðinn fult eins
góður og aðrir vegir. Stuttur
kafli milli Camp Morton og Ár-
nes er nokkuð skorinn, en þar
fyrir utan viðunanlega góð
braut.
Hillumsl heilir á kirkjuþingi!
Flóðsjóðurinn vex
Nú er svo komið, að flóðsjóð-
urinn í Manitoba nemur liðlega
fimm miljónum dollara, en svo
var í fyrstu tilætlast, og það
markmið sett, að hann yrði tíu
miljónir; hvort það mark næst,
er að vísu óráðið, þótt jafnt og
þétt streymi nokkurt fé í sjóð-
inn og komi víðsvegar að.
mentum við Manitobaháskól-
ann.
Þessir merku Stonesonbræður
eiga heima í hinni miklu mil-
jónaborg, San Francisco í Kali-
forníuríkinu, en þar hafa þeir
árum saman rekið byggingar-
iðnað í stórum stíl, og standa á
þeim vettvangi í fremstu röð
þeirra manna, er við slíkum iðn-
aði gefa sig í áminstri stórborg.
Nú alveg nýverið, hefir skipu-
lagningarnefnd San Francisco-
borgar, verið að kynna sér til
fullnaðarafgreiðslu undirbúning
að svo risavöxnu byggingar-
fyrirtæki, að annað slíkt mun
vart eiga sinn líka, þó þeir
þarna suður í Kaliforníu kalli
ekki alt ömmu sína þegar um
stórbyggingar ræðir.
Þeír Stonesonbræður veita nú
forstoðu 30 miljón dollara fé-
sýslustofnun í San Francisco,
sem nú er í þann veginn að
koma á fót einu því sérstæðasta
byggingarfyrirtæki, sem sögur
fara af; þetta byggingarfyrir-
tæki verður í rauninni borg inn-
an borgarinnar; þetta gímald
nær yfir 35 ekrur af landi, og
það innibindur meðal annars
þriggja hæða deildabúð, leikhús
með 1,800 sætum, tvö óvenju
umfangsmikil sölutorg, bílastöð,
skrifstofubyggingu, sem er 200,
000 ferfet að gólfmáli, lækninga-
byggingu, tvo banka, en við
höfuðgötuna verður fjöldi sér-
munabúða; þá má og tilnefna
gildaskála mikinn, búinn öllum
þeim fullkomnustu þægindum,
sem nútímatæknin ræður yfir;
einnig verða til taks sex bíla-
stæði, sem veitt geta viðtöku
3,000 bílum; alt verður þetta
bákn undir átta, fegurstu og
fulkomnustu aðliggjandi þökum,
sem veitir þessu nýstárlega
mannvirki samræmdan heildar-
svip.
Þessir mikilhæfu bræður fara
ekki dult með hinn íslenzka upp-
runa sinn; að slíkum mönnum
er hinu fámenna þjóðarbroti
okkar vestan hafs mikill og var-
anlegur gróði.
Fyrsta pósthús í
Rauðórdal
Hið fyrsta pósthús á þeim
slóðum þar sem Winnipegborg
nú stendur, tók til starfa 28.
febrúar árið 1855 og gekk undir
nafninu Red River Settlement
Post Office of British North
America; tekjurnar af því fyrsta
árið námu liðlega 47 sterlings-
pundum; pósthús þetta var rek-
ið við álitlegum hagnaði, því við
lok hins fyrsta starfræksluárs
nam tekjuafgangurinn 24 ster-
lingspundum; þá voru laun póst-
meistara 5 sterlingspund um
árið.
TILKYNNING
Nefndin sem stendur fyrir
landnámshatíðarhöldum þeim,
sem væntanlega fara fram að
Gimli, 6.—7. ágúst n.k., hefir hug
á því að sýna sérstakan sóma,
öllum hinum upprunalegu ís-
lenzku landnemum, sem enn
kunna að vera á lífi í Manitoba,
og öðrum sem fluttust til Mani-
toba fylkis, eða fæddust þar á
árunum 1875—80.
Nefndin mælist vinsamlegast
til þess, að þeir, sem hér kunna
að eiga hlut að máli, gefi sig
fram við einhvern eftirgreindra
manna sem allra fyrst:
Davíð Björnsson. Winnipeg,
Man. — Snæbjörn Johnson.
Árborg, Man. — Wm. Árna-
son, Gimli, Man.
HAFIÐ BRÚAÐ
(Ort á leið á lýðveldishátíð að Mountain, N. Dakota, 16. júní 1950)
Óskir, vonir og þakkir þrinnast
þennan vorbjarta dag.
Ljúft er árdegis æsku að minnast,
œttarlandsins með sigurbrag.
Brúar hafdjúpið hjartans lag.
Hendur tengjast og hugir mœtast,
hljómar fagnaðarmál.
Draumar frændsemi fagrir rætast,
fastar bindast nú sál við sál,
bróðurþeli um breiðan ál.
Heiður brosir þinn heilladagur,
hjartkær feðranna jörð,
söguvígður og sumarfagur
sveipar Ijóma þinn dal og fjörð.
Faðmi gœfan þig, feðrajörð!
-RICHARD BECK
Áflæði í British Columbia