Lögberg - 14.09.1950, Blaðsíða 1
PHONE 21374
»v.^ed
»*-!Sss»r
,tvCTs
A Complele
Cleaning
Insiiiuíion
PHONE 21 374
ciea,vCirs
fLOff^^Sb*
Liauri •f'VjB- ® A Compleie
Cleaning
ínsiiiuiion
63. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 14. SEPTEMBER, 1950
NÚMER 37
Varar við rússneskum óróðri
Brúnkolalögin á Skarðsströnd
rannsökuð í ór
Verður unni að hefja brúnkolavinnslu?
í fyrri viku héldu verkalýðs-
samtökin brezku ársþing sitt í
bænum Brighton, en þau telja
nú um 8 miljónir meðlima; á
þinginu mætti forsætisráðherr-
ann, Mr. Attlee og flutti langa
ræðu, þar sem hann varaði á-
minst samtök við rússneskum á-
róðri, er það markmið hefði, að
veikja félagsskap verkamanna
og gera forustu þeirra tortryggi-
iega í augum almennings; hann
lagði sérstaka áherzlu á það, að
lýðræðisþjóðirnar yrðu að vaka
á verði, og gæta vandlega þeirra
réttinda, er þær nú byggi við;
kommúnisminn væri grímu-
klæddur nazismi, er hygði á
ótakmarkaða heimsdrotnun. Mr.
Attlee lét þess getið, að vegna
hinnar ósvífnu árásar kommún-
ista í Norður-Kóreu á Suður-
Kóreulýðveldið, yrði það óhjá-
kvæmilegt, að hækka til muna
útgjöldin til landhers, sjó- og
loftflota; en af þessu leiddi að
sjálfsögðu það, að fólk yrði að
spara við sig og bíða ýmissa
þeirra kjarabóta, er stjórnin
hefði ákveðið að hrinda í fram-
kvæmd.
Ekki verður annað sagt, en
þingheimur tæki máli forsætis-
ráðherra vel, og væri ánægður
með málaforustu hans.
Hlýfrur tvenn
námsverðlaun
Thor Thorgrímsson, B.A.
Þessi gáfaði íslenzki náms-
maður hefir nýlega hlotið tvenn
námsverðlaun: Ruben Wells Le-
onard fellowship scholarship
frá Toronto háskóla og Manitoba
Brewers and Hotelmen award.
Hann fer senn til Toronto há-
skóla, þar sem hann mun halda
áfram rannsóknum sínum í mið-
aldasögu. Að loknu fjögra ára
námi þar, hefir hann í hyggju
að takast á hendur háskóla-
kenslu.
Thor er sonur séra Adams
heitins Thorgrímssonar og eftir-
Bfandi konu hans, Sigrúnar;
hann er fædur að Hayland,
^Æanitoba 1920; stundaði nám
yið Lundar miðskóla, en gekk
1 herinn þegar stríðið braust út
°g var í herþjónustu í fimm ár.
-^ð stríðinu loknu hóf hann
namið á ný og útskrifaðist síð-
astliðið ár frá United College
Bachelor of Arts stigi.
Mr. Thorgrímsson er kvæntur
Bamelu Thomas; þau eiga tvö
^ðrn, Stefán og Janet.
Hær mæðgur frú Solveig Niel-
s°n og ungfrú Jóhanna, Ste. 19
^ccadia Apts., eru nýlega lagðar
stað í mánaðarferðalag til
ew York, Montreal og Ottawa.
Úr borg og bygð
Vegna þess, að enn er ófréíí
um komu skipsins iil New York,
sem Páll Kolka læknir er væni-
anlegur með, er enn eigi uní að
ráðsiafa fyrirlesirarferðum hans
að sinni.
☆
Ferming —
Þessi ungmenni voru fermd í
Lútersku kirkjunni á Mikley, 13.
ágúst s.l. af séra Skúla Sigur-
geirsyni:
Melvin Gustaf Williams,
Þerrina Gladys Sigurgeirson,
Marge Katrín Sigurgeirson,
Helga Valgerður Linda Paul-
son,
Sesselja Margrét Doll.
☆
STRÖNDIN vill leiða athygli
íslendinga að afmælis-samkomu
Gamalmennaheimilisins HÖFN.
Verður þar „Silver Tea“ og önn-
ur skemtun sem stendur yfir
allt eftir nón og fram eftir
kveldi 1. október n.k. Mun sam-
koma þessi verða auglýst á sín-
um tíma, en setjið þetta á minn-
ið!
☆
Mr. John Thorsteinson frá
Steep Rock, var staddur í borg-
inni í vikunni, sem leið.
☆
Fundir í stúkunni HEKLU
I.O.G.T. hefjast aftur eftir sum-
arfríðið, fimtudaginn 21. sept. á
venjulegum stað og tíma.
☆ ~
LEIÐRÉTTING —
Úr minningargrein minni um
Jóhannes heit. Einarsson, Calder
Sask., sem birtist í Heimskriglu
og Lögbergi 30. ágúst s.l. hefir
því miður fallið úr nafn eins af
sonum hans — Halldórs Frank-
líns, sem heima á í Prince Al-
bert, Sask. Þetta er góðfús les-
ari beðinn að athuga.
J. J. B.
☆
Gefin voru saman í hjóna-
band í Lútersku kirkjunni
í Selkirk, laugardaginn 9. sept.
Charles William Melind, Winni-
peg, Man. og Myrtle Ione Pear-
son, Selkirk, Man. Við gifting-
una aðstoðuðu Mr. og Mrs. Don-
ald FrederichChapman frá Win-
nipeg. ☆
Sunnudaginn 3. september
voru Jóna Fjóla Thorsteinson
frá Arborg, Man. og Ernest
Leslie Penwarden frá Winni-
peg, Man. gefin saman í hjóna-
banda á heimili Penwarden fjöl-
skyldunnar við Matlock Beach.
Rev. J. C.Mathieson gifti. Þau
voru aðstoðuð af Jack Guinlan
og Mrs. J. Halldorson, Arborg,
Man. Að hjónavígslunni lokinni
fór fram veizla að ofangreind-
um stað. Samdægurs lögðu Mr.
og Mrs. Penwarden á stað í
skemtiferð til Ontario.
☆
— GIFTING —
Þau Robert Kenneth Sparhes
og Lillian Victoria Helgason,
Foam Lake, voru gefin saman í
hjónaband 3. þ. m., af séra Skúla
Sigurgeirsyni, að heimili for-
eldra brúðarinnar. Ted Gveritt
aðstoðaði brúðgumann og brúð-
urin var aðstoðuð af systur
sinni, Mrs. G. Laxdal og Yuonne,
systur brúðgumans. Mrs. S. Sig-
urgeirson söng einsöngva; við
hljóðfærið var Qlen Narfason.
Delbert Narfason og Jónas Sig-
urgeirson vísuðu til sætis. Brúð-
guminn er af enskum ættum og
brúðurin er dóttir þeirra Helga
Helgasonar og konu hans Helgu
Narfasonar. Helgi er stórbóndi
i Foam Lake-bygðinni og odd-
viti sveitarinnar.
Að giftingunni afstaðinni var
setin fjölmenn veizla. Séra Skúli
mælti fyrir minni brúðarinnar;
svo mælti brúðguminn fram vel-
valin þakkarorð.
Framtíðarheimili brúðhjón-
anna verður fyrst um sinn í
Saskatoon, þar sem brúðgum-
inn stundar nám við háskólann.
☆
Dáinn er í Seattle 1. septem-
ber, Skapti L. Johnson, 53 ára
að aldri. Hann lifa auk ekkj-
unnar og eins sonar, Haraldar
Leo, háöldruð móðir, Ingibjörg
að Oak Point, Manitoba, og þrír
bræður: Kári áð Oak Point, Jón
og Jónatan í Seattle.
Skapta verður nánar minst
síðar. A. E. K.
☆ ’
The Chartered Bus for Dele-
gates to the Convention of The
Lutheran Women’s League will
leave from the First Lutheran
Church on Friday morning sept.
,15th at 9.15 standard time —
10.15 Daylight Saving time —
for Lundar.
☆
Frú Hrund Skúlason frá
Geysi, var stödd 1 borginni
seinnipart fyrri viku.
Frá sambandsþingi
Aukaþingið í Ottawa situr enn
á rökstólum, þó líklegt þyki, að
störfum þess verði senn lokið.
í fyrri viku lagði Mr. Abbott
fram fjárhagsáætlun sína, sem
felur í sér $150.0000 aukningu
vegna Kóreustríðsins og annara
þarfa til hervarna; til þess að
standa straum af þessum auknu
útgjöldum, hafa skattar á mun-
aðarvöru hækkað nokkuð, og
einnig skattar stóriðjufyrir-
tækja. Persónulegur tekjuskatt-
ur verður óbreyttur.
Bálfarir fara í vöxt
hér á landi
Úlfararkoslnaður
lækkar að mun
Síðan bálstofan í Fossvogs-
kirkjugarði tók til starfa 1947
hefir 71 lík verið brennt þar, og
fara bálfarir mjög í vöxt meðal
íslendinga. Þar sem bálstofur
hafa tekið til starfa erlendis hef-
ir tala þeirra sem brenndir eru
ekki vaxið jafn'ört og hér á
landi.
Um 70% allra jarðarfara i
Reykjavík fara fram frá Foss-
vogskirkju, enda sjást nú sjald-
an líkfylgdir á götum bæjarins
Til dæmis má geta þess, að í
júlímánuði fóru fram 17 jarðar-
farir frá Fossvogskirkju en ekki
nema 7 frá öllum kirkjum bæj-
arins samanlagt.
Sú nýjung hefir verið tekin
upp við jarðarfarir í Fossvógs-
kirkju að öll útförin fer fram
í kirkjunni sjálfri og þar er einn
ig rekunum kastað og losnar
fólk við þau óþægindi að standa
við gröfina úti í garðinum þegar
vond eru veður eins og oft er
hér að vetrarlagi.
Útfararkostnaður hefir einnig
lækkað og kostar útför, þegar
um greftrun er að ræða frá 1000
til 1300 kr. en bálför kostar um
800 til 900 kr.
Fyrir sunnan kirkjuna er ver-
ið að útbúa reiti þar sem duft-
öskjum verður komið fyrir. Ef
óskað er, fást þar reitir sem eru
40 sinnum 40 centimetrar að
stærð og ætlaðir eru fyrir duft-
öskjur. Einföld plata með nafni
hins látna verður svo komið fyr-
ir á leiðinu.
TÍMINN, 16. ágúst
Göfug kvenhetja
látin
Frú Valgerður Sigurðsson
Síðastliðið föstudagskvöld lézt
að heimili sonar síns og tengda-
dóttur í Riverton, frú Valgerð-
ur Sigurðsson 94 ára að aldri,
ein af gagnmerkustu mæðrum
landnámsins í Nýja-íslandi; hún
var ættuð frá Svarfhóli í Borgar-
firði hinum syðra, og ekkja eft-
ir hinn stórbrotna athafnamann,
Stefán Sigurðsson fyrrum kaup-
mann að Hnausum hér í fylk-
inu; útförin hófst með hús-
kveðju á heimilinu, en síðar með
kveðjumálum í kirkju Bræðra-
safnaðar; kveðjumálum stýrðu
þeir Dr. Rúnólfur Marteinsson
og séra Bjarni A. Bjarnason, í
kirkjunni söng Mrs. Bjarni A.
Bjarnason, en við hljóðfærið var
Mrs. S. A. Thompson; jarðsett
var í Breiðuvíkur-grafreit í
grend við Hnausa.
Þessarar stórmerku konu verð
ur frekar minst við allra fyrstu
hentugleika.
Átökin harðna
. Herfylkingar sameinuðu þjóð-
anna færast nú mjög í aukana
upp á síðkastið í Kóreu, og sýn-
ist nú svo komið, að miklu frem-
ur sé um sókn en vörn að ræða
af þeirra hálfu; liðssveitir frá
Bretlandi eru nú komnar til víg-
Stöðvanna og láta mikið til sín
taka; þá hefir og flugflota hinna
sameinuðu þjóða á áminstum
vígstöðvum, aukist allverulega
fiskur um hrygg.
Frú Björg ísfeld
Tekst á hendur
organistastarf
Svo hefir skipast til, að frú
Björg ísfeld hefir nýlega tekist
á hendur organistastarf við
Fyrstu lútersku kirkju hér í
borg, og mun því alment fagn-
að verða; hún hafði áður haft
um hríð þetta starf á hendi við
kirkjuna, og sýndi í því, auk
viðurkendra hæfileika, frábæra
skyldurækni.
Frú Björg stendur í fremstu
röð hljómlistarkennara þessa
fylkis, og var í vor, eins og Lög-
berg þá skýrði frá, kosin forseti
hljómlistarkennara sambandsins
í Manitoba.
Eins og kunnugt er eru á
Skarðsströnd allmikið brún-
kalalög í jörðu. Hafa kol
stundum verið tekin þar til
eldsneytis úr fjörunni og á
styrj aldarárunum voru unn-
ar fjögur hundruð lestir
brúnkola úr námu í landi
Skarðs á Skarðsströnd, og
átta lestir í landi Tinda.
Tíðindamaður frá Tímanum
átti í gær símtal við Kristin
bónda Indriðason á Skarði, og
sagði hann, að nú um mánaða-
mótin hefðu menn verið við bor-
anir í Tindalandi og er búið að
bora eina 45 metra djúpa holu,
en verið að bora aðra. Fleiri hol-
ur er fyrirhugað að bora.
Kolalögin 2—3 m. þykk.
Kolalögin á Skarðsströndinni
eru upp frá flæðarmálinu, og
verður vitanlega þykkara jarð-
lagið ofan á þeim, er ofar dreg-
ur. Á Skarði var kolunum skip-
að út svo að segja beint úr opi
kolanámunnar, þegar kolanám
VEITIÐ ATHYGLI!
Eins og undanfarin ár hefir
Kvenfélagið „Eining“ á Lundar
ákveðið að hafa haustboð fyrir
aldraða fólkið, 60 ára og eldra,
sem heima á norðan við Mani-
tobavatn, í Lundarbæ og bygð-
inni umhverfis og á Oak Point,
með sama fyrirkomulagi og áð-
ur, að hafa al-íslenzka skemti-
skrá og kaffidrykkju. Fylgdar-
mönnum, sem sumir þurfa að
hafa, er einnig vinsamlega boð-
ið og öllum þeim, sem áður hafa
sótt þessi haustboð og hafa tæki-
færi til að koma.
Samkoman verður haldin
sunnudaginn 24. sept. 1950, kl.
1.30 í Lundar-samkomuhúsinu.
Við vonum að sjá sem flest af
gamla fólkinu þennan dag.
Fyrir hönd Kvenfélagsins Eining
Vinsamlegast,
Björg Björnsson, forseti
Rannveig GuSmundson, skrifari
Á sambandssvæði Búnaðar-
sambands Borgfirðinga er
ráðgert ^að reisa a. m. sjö
votheysturna í sumar, og er
byggingu fimm þeirra lokið.
Tíðindamaður blaðsins hitti
Hauk Jörundsson, kennara á
Hvanneyri, en hann hefir
haft umsjón með byggingu
turnanna fyrir hönd sam-
bandsins.
Turnarnir hálfir í jörð.
Turnar þessir eru byggðir því
sem næst hálfir í jörð, sagði
Haukur. Þeir eru sex metrar á
hæð og gerðir úr mjög sterkri
járnbentri steinsteypu. Þvermál
þeirra er fjórir metrar og eiga
þeir að geta tekið um fimm kýr-
fóður. Þeir eru steyptir í mót
frá S. í. S.
Þarf ekki saxblásara.
Höfuðkostur þessara turna er
sá, að ekki þarf saxblásara til
þess að koma heyinu í þá. Sax-
blásarar eru dýrir, kosta líklega
um 10 þúsund kr. Þar sem turn-
arnir eru hálfir í jörð verður
meirihluti heysins í jörðu að
vetri og frýs því minna og má
gera sér vonir um minni
var stundað þar á stríðsárunum.
Kolalögin munu á þessum
slóðum vera tveggja til þriggja
metra þykk, og rannsóknir hafa
sýnt, að þetta eru góð brúnkol.
Lokaþállur rann-
sóknarinnar.
Boranir þær, sem nú eru fram
kvæmdar, eru lokaþáttur í rann-
sókn á því, hvort vinnandi veg-
ur sé að hefja þar kolanám á
venjulegum tímum.
Félag, sem stofnað hefir verið
í því skyni, að hefja þarna námu
vinnslu, ef fært þykir, stendur
fyrir þessum rannsóknum, og er
Haraldur Guðmundsson frá
Háeyri framkvæmdastjóri þess.
TÍMINN, 16. ágúst
Skipaður prófessor
Dr. T. J. Oleson
Nú við byrjun yfirstandandi
háskólaárs, hefir Dr. T. J. Oleson
verið skipaður prófessor við
sagnfræðideild Manitobaháskól-
ans. Dr. Oleson hafði áður kent
sagnfræði við Jon Bjarnason
academy, Grandview Collegiate,
British Columbia háskólann og
United College í Winnipeg; hann
er sonur þeirra Mr. og Mrs. G. J.
Oleson í Glenboro, hefir hlotið
mikilvæga námsstyrki og er lær-
dómsmaður með ágætum. Dr.
Oleson er varaforseti Þjóðrækis-
félags Islendinga í Vesturheimi.
skemmdir af þeim sökum. Hæð-
in er heldur ekki meiri en svo,
að víðast má koma fyrir ská-
borðum af heyvögnunum upp í
hliðarop turnsins og draga hey-
ið inn af bifreiðum eða heyvögn-
um. Hey mun verða sett í alla
þessa turna í Borgarfirði í sum-
ar.
Margir biðja um iurna.
Eins og fyrr segir er búið að
byggja fimm turna, verið er að
steypa hinn sjötta og einn er
eftir. Efni er ekki til í fleiri
turna, en fáist það, sem enn er
óvíst, munu nokkrir fleiri verða
steyptir í sumar áður en mótin
fara í aðra landshluta. Margir
hafa beðið um slíka turna en
líkur til að þeir verði að bíða til
næsta sumars.
Turnar þeir, sem gerðir eru í
sumar, eru á þessum bæjum:
Tveir á Hæli í Flókadal, einn á
Oddsstöðum í Skorradal, einn á
Indriðastöðum í Lundar-Reykja-
dal, einn í Ferjukoti og verið er
að steypa turn á Lambastöðum
en eftir er að byggja turn á
Litlu-Brekku.
TÍMINN, 16. ágúst
Sjö votheysturnar byggðir í
Borgarfirði í sumar
Þeir eru sleyplir hálfir í jörð, og þarf ekki saxablásara
til að koma heyinu í þá