Lögberg


Lögberg - 14.09.1950, Qupperneq 3

Lögberg - 14.09.1950, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 14. SEPTEMBER, 1950 3 Séra Jón Auðuns dómkirkjupreslur: Biskupinn yfir íslandi, doktor Sigurgeir Sigurðsson, sextugur Við þeirri ósk Morgunblaðsins að skrifa nokkur afmælisorð um herra biskupinn sextugan vil ég fúslega verða. Svo oft hafa leið- ir okkar legið saman, frá því er ég gekk til hans sem ferm- ingardrengur, þegar hann var nýorðinn prestur á ísafirði, og fram til þessa dags. En það er vandhæfni á að skrifa um mann, sem enn stend- ur í hita starfsdagsins, en virð- ist eiga miklum starfskröftum að fagna, og er einráðinn í að leiða mikið dagsverk til lykta. En svo er um herra biskupinn. Ég veit heldur ekki hvort hon- um er mjög að skapi, að á lofti sé haldið þessum áfanga ævi hans. Mér hefir aldrei fundist hann kæra sig um slíkt. Hann kom prestur til Isafjarð- ar sama árið og hann lauk em- bættisprófi frá háskólanum, og hafði þar prestsþjónustu á hendi um 22. ára skeið, og var prófast- ur í Norður-ísafjarðarsýslu í tólf ár, unz prestar landsins kjöru hann til biskupstignar. Á undan honum var prestur á ísafirði séra Magnús Jónsson, síðar prófessor, alkunnur hæfi- leikamaður og einn glæsilegasti kennimaður þjóðarinnar á þeirri tíð. Eftir slíkan mann var ung- um kandídat ekki vandalaust að koma. En innan skamms átti séra Sigurgeir frábærum vin- sældum að fagna meðal sóknar- barna sinna. Prúðmennska hans gat verið öllum til fyrirmyndar. Hin hátíðlega altarisþjónusta og ljósar, hjartnæmar prédikanir gerðu mönnum ljúft að sækja til hans guðsþjþnustur. Af alúð sinni og samúð með mönnunum varð hann sálusorgari, sem menn elskuðu. 1 félagsmálum þar vestra vann hann stórmikið starf, og þótt það gæti eðlilega ekki orðið árekstralaust með öllu, hygg ég að ævinlega hafi furðu fljótt tekist fullar sættir aftur með honum og þeim, sem öðruvísi höfðu litið á málin en hann. Þess vegna söknuðu menn hans mjög, er hann hvarf frá ísafirði. Af vestfirskum prestum hafði, hann miklar og verðskuldaðar vinsældir, enda veitti hann for- ystu félagsmálum þeirra, og all- ir áttu þeir erindi við hann. Frjálsmannlegt viðmót og hisp- Urslaust frjálslyndi í skoðunum féll stéttarbræðrum hans vel þar vestra, enda kjöru þeir hann til prófasts í fyrsta sinn, er til slíkra kosninga kom eftir að hann kom vestur. Hann var ágætur æskulýðs- fræðari, og stóð kristilegur æsku lýðsfélagsskapur með miklum blóma undir forystu hans, er hann fluttist frá ísafirði. Þegar að því kom að dr. Jón Helgason legði niður biskups- dóm var prestunum ljóst, að mikill vandi var að velja honum eftirmann, því að í hafróti breyttra tíma var að verða æ örðugra að stýra skipi kirkj unn- f-r- En fyrir þessum vanda trúðu þeir prófastinum á ísafirði, og Var séra Sigurgeir vígður bisk- Upsvígslu Jónsmessudag, 24 júní 1939. Um biskupsdóm hans kann að vera of fljótt að dæma enn, þar sem vér vonum, að þar njóti nans enn lengi við, en á þessum timamótum blessa fjölmargir Þann ellefu ára biskupsferil, sem er að baki. Er vér lítum til þess, sem ligg- ur nasst, dylst ekki, að ólíkir menn voru þeir um margt herra nn og herra Sigurgeir, annar i-ithofundurinn og fræðimaður- lnn’ ^inn athafnamaðurinn og atkastamaðurinn í praktísku s arfi. Og engum er gert rangt U af ágætum fyrri biskupum P°tt fullyrt sé, að engum þeirra afi betur tekist en honum að Vlnna að velferðarmálum prest- han„nt-FöðurIeg umhyggJa fyrir gsbotum þeirra hefir lýst sér Herra Sigurgeir Sigurðsson, dr. iheol. fagurlega í þrotlausu starfi, og með dugnaði sínum og þeim hyggindum að kunna að grípa tækifærin, þegar þau gáfust, hefir honum tekist að vinna stórmikið fyrir prestana, sem hann var settur yfir. Enda hefir sumum þótt nóg um þá um- hyggju, sem hann ber fyrir prestsheimilunum og prestssetr- unum, sem hann þráir að verði að kristnum menningarmið- stöðvum í hverri byggð. En þetta er herra biskupinum ekki annað en hin ytri umgerð um það andlega líf, sem hann þráir að kirkja íslands veki með þjóðinni. Menn eru vitanlega ekki allir á sama máli og hann um það, hvernig kirkjan í land- inu eigi að starfa. Á biskupa- fundum erlendis, bæði á Norð- urlöndum og í Bretlandi, hefir einurð, drengileg og hispurslaus framkoma hans vakið athygli. Þar hefir hann reynst virðuleg- ur fulltrúi íslenzku kirkjunnar. Eins og eining íslenzku kirkj- unnar inn á við er honum brenn- andi áhugamál, svo er hann lif- andi áhugamaður um kirkjulega eining um heim allan. En hann er sannfærður um, að vér Islend ingar getum ekki farið að öllu eftir því, hverja stefnu kirkjur annarra landa kunna að taka um starfsaðferðir sínar og háttu, heldur verði íslenzk kirkja að mótast eftir einkennum íslenzkr ar þjóðarsálar og íslenzks skap- ferlis, að öðrum kosti geti hún ekki staðið djúpum rótum með þjóðinni. Þess vegna mótast við- horf hans mjög af því, að með fullri gagnrýni eigum vér að taka stefnum þeim, sem mótast kunna í öðrum löndum, t. d. í systurkirkj unum á hinum Norð- urlöndunum. Að svo miklu leyti, sem þjóðarsál vor sé ólík því sem er með frændþjóðum vor- um, verði kirkjan hér að bera annan svip. Á íslandi verður að vera íslenzk kirkja, þess vegna sé það engan veginn víst, að það, sem hæfi öðrum þjóðum í trú- arefnum, hæfi oss. Og herra biskupinn er sann- færður um að á íslandi verði kirkjan að vera frjálslynd kirkja, að öðrum kosti geti hún ekki staðið föstum fótum í ís- lenzkri þjóðarsál. Guðfræðilega mótun sína fékk hann hjá kenn- urum sínum á háskólaárunum, þeim prófessorunum Haraldi Níelssyni, Jóni Helgasyni og Sigurði P. Sívertsen. Þar hlaut biskupshugsjón hans þá eld- skírn, sem hefir mótað allt starf hans í biskupssessi, og þessari hugsjón er hann fús að þjóna svo lengi, sem Guð gefur hon- um kraft til. Á yfirreiðum sínum um land- ið, sem hann hefir rækt að beztu biskupa hætti, hefir þessi skoð- un hans á sambandi kirkjunnar og þjóðarinnar styrkst, enda hefir hann áunnið sér miklar vinsældir úti um landið. Ég er ekki viss um að í nokkru öðru heimili í Reykjavík sé gestkvæmara en í biskupssetr- inu að Gimli, en þar stendur við Business and Professional Cards hlið húsbóndans biskupsfrúin Guðrún Pétursdóttir. Heimilið hefir .hún ekki aðeins gert dýr- mætt eiginmanni og börnum, heldur hefir hún nú um ellefu ára skeið rekið heimili, þar sem flestir ef ekki allir íslenzkir prestar hafa notið frábærrar al- úðar og rausnar, — og heimili þar sem öllum hefir verið vistin jafn ljúf, hinum tignu gestum, innlendum og erlendum, og fá- tæku umkomulitlu alþýðufólki. Þar hefir hjarta húsfreyjunnar dregið hið ólíkasta fólk saman að breiddu rausnarborði. Á prestsskaparárunum vestur á ísafirði þjónaði séra Sigurgeir um skeið Bolungarvík, auk heimakirkjunnar. Er þangað út eftir hinn erfiðasti vegur, hættu- samur og torfær. Þangað fór presturinn þrásinnis fótgang- andi um vetur sem sumar og söng messuna fyrir þakklátum söfnuði eftir margra klukku- stunda göngu um urðir, svell- bungur og ófærur. Menn dáðust þar vestra að þeirri þjónustu, þeim lifandi áhuga, þeirri sívak- andi samvizkusemi. Eftir nokkr- ar vikur fer biskupinn þangað vestur til að vígja nýjan bílveg um þessa leið, og hann vígir þá um leið stóran steinkross, sem verið er að reisa á ófærunni gömlu, sem hann hefir oft farið sjálfur til að flytja fagnaðar- erindið. Ég þykist vita, að þetta verk verði herra biskupnum sérstak- lega ljúft, að þeirri beiðni gamla sóknarfólksins sé honum kært að sinna. Biskupshugsjón hans er sú, að reisa kross í hverri sókn og hveri byggð, merki Krists um Island allt. Allt starf hans er borið uppi af lifandi sannfæring um, að undir því merki muni þjóð vor sigra alla erfiðleika og hættur: IN HOC SIGNO VINCES. Guð blessi þann biskupsdóm og gefi íslenzkri kristni sigur krossins. Jón Auðuns SELKIRK METAL PRODUCTS LTD. Heykhftfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- viö, heldur hita frð aö rjúka út meö reyknum — Skrifið sfmið til KELLY SVEINSSON 625 Wall Street, Wínnipeg Just north of Portage Ave. Simar: 33-744 — 34-431 S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smith Si. Winnipeq Phone 924 624 Office Ph, 925 668 Res, 404 319 NORMAN S. BERGMAN, B.A., LL.B. Barrister, Soiicltor, etc. 411 Childs Bldg, WINNIPEG CANADA PARKER, PARKER & KRISTJANSSON Barrislers - Soliciiors Ben C. Parker, K.C. B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson 500 Canadian Bank of Commerce Chambers Winnipeg, Man. Phone 923 961 JOHN A. HILLSMAN, M.D., Ch. M. 332 Medical Arts. Bldg. QI FICE 929 349 Home 403 288 Phone 724 944 Dr. S. J. Jóhannesson 8UITE « — 652 HOME ST, Viötalstlmi S—5 eftlr hádegl Bretar heiðra íslenzka björgunarmenn Hátíðleg athöfn hjá brezka sendiherranum í gær, er Slysavarna- fél. voru færðar gjafir, en björgunarmenn hlutu viðurkenningu / 1 gær voru heiðraðir íslenzkir menn, sem unnu að björgun skips- hafnar af brezkum togara, er strandaði við Reykjanes í aprílmán- uði síðastliðnum. Var haldin hátíðleg athöfn í brezka sendiherra- bústaðnum í gær, þar sem gjafir og heiðursviðurkenningar voru afhentar og ræður fluttar af hálfu Breta og íslendinga. Strandaði í þoku við Reykjanes Nánari tildrög þessarar viður- kenningar, sem íslenzkir björg- unarmenn hafa orðið aðnjót- andi eru þau, að hinn 24. apríl síðastliðinn strandaði brezki tog arinn Preston North-End í þoku rétt við Reykjanes. Hvassviðri var og var talið að allir menn- irnir hefðu farízt, ef fljótlega hefði ekki tekizt að bjarga. Að björguninni unnu þrír vél- bátar íslenzkir: Fróði, Jón Guð- mundsson og Sæbjörg, auk brezkra togara. Giftusamleg björgun „Góðar gjafir, en vináttan meira virði" Séra Jakob Jónsson þakkaði fyrir hönd Islendinganna og flutti stutta ræðu, þar sem hann lagði áherzlu á það, að íslenzkar björgunarsveitir ynnu ekki störf sín í því skyni að fá viðurkenn- ingar, heldur af einskærri hjarta gæzku og ást til náungans. Þetta væri hugsjónastarf og þess vegna væru slysavarnasamtökin í landinu svo sterk, sem raun beri vitni. Hann lauk máli sínu með því að vitna til orða Gunn- ars á Hlíðarenda, er hann lof- aði gjafirnar, en sagði að vin- áttan væri þó meira virði. íHlDQÍSIÍEfi JEWELLERS 447 Portage Ave, Also 123 TENTH ST. BRANDON Ph, 926 886 Phone 21 101 ESTIMATES FREE J. M. INGIMUNDSON Asphalt Roofs and lnsulated .Sidine — Repairs Country Orders Attended To 632 Simcoe St. Winnipeg, Man. DR. A. V. JOHNSON Denttst 506 SOMERSET BUILDINQ Telephone 97 932 Home Telephone 202 398 Talslml 925 826 HelmiUs 404 630 DR. K. J. AUSTMANN SérfrœOinour t augna, eyma, nef oo kverka sjúkdómum. 209 Medical Arts Bldg. Björgun skipbrotsmannanna gekk vel og varð hin giftusam- legasta. Tókst íslenzku bátun- um að bjarga 18 mönnum af 22 manna áhöfn. Aðrir aðilar björg uðu hinum fjórum, en einn þeirra lézt þó síðar af völdum vosbúðar. Er talið fullvíst, að ef ekki hefði tekist að bjarga svona fljótt hefðu allir af áhöfninni farizt, enda mátti skipið heita í kafi morguninn eftir. Fulltrúar Breta komnir Bj örgunaraf rek þetta vakti talsverða athygli í Bretlandi og eru nú komnir hingað til lands þrír skozkir menn til að verð- launa og sýna þeim sóma, er stóðu að hinni giftusamlegu björgun. Tveir þeirra eru full- trúar tryggingarfélagsins, en einn fulltrúi útgerðarinnar, sem átti togarann. í gær hafði svo brezki sendi- herrann boð inni, þar sem hinir brezku gestir afhentu gjafir sín- ar. Var það ávísun til Slysa- varafélagsins, að upphæð 100 sterlingspund. Auk þess fá ein- staklingar, sem þátt tóku í björg uninni, 31 heiðursskjal, eða skrautritað ávarp, sem þakk- lætis- og viðurkenningarvott. Tveimur þessara manna var í gær afhent viðurkenningarávörp in. Voru þeir báðir úr slysa- varnadeildinni í Grindavík. Eru það þeir Sigurður Þorvaldsson og Árni Magnússon. Til fleiri var ekki hægt að ná í gær, enda eru flestir þeirra, sem heiðurinn eiga að hljóta, bundnir við skyldu- störf í öðrum landsfjórðungi, nefnilega við síldveiðarnar fyr- ir Norðurlandi. Munu brezku fulltrúarnir fara ti.l Norðurlands í dag og af- henda þá viðurkenningar til þeirra manna, sem hægt verður að ná til. TÍMINN, 27. júlí Dánarfregn Þann 12. ágúst s.l. andaðist að heimili dóttur sinnar Mrs. Fjólu McKay, Maryfield, Sask., Jakob- ína Hallgrímsdóttir Símonarson í hárri elli. Hún var fædd á Kotamýrum í Ljótavatnshreppi í Suður-Þingeyjarsýslu (og samkvæmt manntalsbók séra Friðriks Hallgrímssonar er hún fædd í apríl 1854). Hún kom til Vesturheims, og í Hólabygðina í S. Cypress-sveitinni ári síð- ar. Þar giftist hún Jónasi Snorra syni, er var bróðir Símonar föð- ur W. G. Simmons og Mrs. J. B. Skaptason í Winnipeg. Jónas dó 1913. Síðan hefir hún verið á vegum barna sinna, lengst í þessu umhverfi, en nokkur síð- ustu árin hjá dóttur sinni í Sask. Börn hennar: Elfcti sonur hennar, Gestur Davidson, húsa- byggingamaður í Souris, Man.; Arilíus, dó 1942; Ingibaldur, Hilton, Man., starfar fyrir C.N.R.-járnbrautarkerfið; Odd- ný Fjóla fullu nafni (Mrs. Mc- Kay áðurnefnd); stjúpdóttir enn á lífi; (Guðrún) Mrs. J. Benson í Winnipeg. Jakobína verðskuldaði virð- ingu samferðafólksins, hún var heilsteypt kona, skipti sér ekki að þarflausu um annara hagi, en vann sitt verk með trúmensku. Hún var verklagin, iðjusöm, sparneytin og ráðdeildarsöm; hafði sterka sál og líkama og var haglega greind, en lét lítið yfir sér. Hún var jarðsungin frá ís- lenzku kirkjunni í Glenboro 16. ágúst. Séra E. H. Sigmar jarð- söng. G. J. Oleson Stofutlmi: 2.00 til 6.00 e. h. Phone 927 03S H. J. H. Palmason. C.A. H. J. PALMASON * CO. Chartered Accountante 505 Confederatlon Ufe Bldg. Wlnnipeg Manltoba DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selklrk. Man. Offlce hrs. 2.30—6 p.m. Phones: Offtce 2« — Re«. 280 Offlce Phone Ree Phone 924 762 726 116 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BLDO. Offlce Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appolntment DR. H. W. TWEED Tannlæknir 508 TORONTO GEN. TRUST8 BUILDING Cor. Portage Ave. og Smlth St. Phone 926 952 WINNIPKO Office 933 587 Res. 444 389 S. A. THORARINSON BARRISTER and SOLICITOR 4th Floor — Crown Trust Bldg. 364 Main Street WINNIPEG CANADA SARGENT TAXt Phone 722 401 FOR QUICK RKLIABLE 8ERVICE J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDQ WPQ. Fastelgnasalar. Lelgja húa. Ot- vega penlngal&n og eldsAbyrgB blfreiCa&byrgC, o. 8. frv. Phone 927 518 Andrews, Andrews. Thorvaldson and Eggertson Lögfræfjinoar 2093ANK OF NOVA SCOTIA B</ Portage og Oarrv 8t. Phone 928 291 CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAOE, Managing Director Wholesale Distributors of Fraah and Frozen Flsh. 311 CHAMBERS STREET Office Ph. 26 328 Res. Ph. 72 917 A. S. B A R D A L 848 SHERBROOK STREET Selur llkklstur og annast um ttt- farir. Allur útbúnaCur s& beztl. Ennfremur selur hann allskon&r minnisvarOa og legsteina. Skrlfstofu talslml 27 324 Helrnills talsiml 26 444 Phone 23 996 7«1 Notre D&me Ave. Just West of New Maternity Hospltal Nell's Flower Shop Weddíng Bouquets, Cut Flowen Funeral Designs, Corsages Bedding Plants Nell Johnson Ruth Rowland 27 482 88 790

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.