Lögberg - 14.09.1950, Page 4
4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 14. SEPTEMBER, 1950
lögterg
Gefl6 út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA
Utanátkrift ritstjórant:
EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVEUNE, WINNIPEG, MAN.
PHONE 21 804
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Verð $5.00 um 4rið—Borgist íyrirfram
The “Lögberg” is printed and publiehed by The Columbia Press Ltd.
69 5 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada.
Authorized as Second Clasa Mail, Post Office Department, Ottawa
Veglegt og verðskuldað minnismerki
Á mánudaginn þann 4. yfirstandandi mánaðar var
afhjúpaður veglegur minnisvarði í minningu um eitt
höfuðskáld íslendinga að fornu og nýju, Stephan G.
Stephansson, og var þá formlega tekinn til afnota nýr
skemtigarður í Alberta fylkinu í grend við Markerville
í heiðursskyni við hinn mikla andlega höfðingja, er þar
bjó um langt skeið, orti máttug, ódauðleg Ijóð, en erjaði
jafnframt jörðina og gerði hana sér undirgefna; það
var Sögustaða- og Minnismerkjanefndin í Canada, er
beitti sér fyrir um framkvæmdir málsins, form minnis-
varðans og tilhögun, en hið opinberlega stóð straum af
kostnaðinum; það er því canadíska þjóðin í heild, sem
með áminstu minnismerki og hátíðahaldi í tilefni af af-
hjúpun þess, heiðrar hið spaka og stórbrotna skáld,
sem nú er alment talið að hæzt rísi meðal samveldis-
þjóðanna brezku; þetta hlýtur að vera okkur íslend-
ingum mikið fagnaðarefni, og það ætti að vekja hjá
okkur hollan metnað, sem hvorki á skylt við þjóðernis
legan gorgeir né mont.
Prófessor Skúli Johnson, sem sæti á í áminstri
Sögustaða- og minnismerkjanefnd, var aðalræðumað-
ur við afhjúpunarathöfnina, og þarf eigi að efa, að ræða
hans hafi verið íturhugsuð og mikið í hana spunnið, en
vegna þess að líkur munu á að hann flytji ræðuna fyrir
íslendingum hér í borg áður en langt um líður, hefir
Lögberg enn, sem kqmið er, ekki farið fram á að fá
hana til birtingar; það var okkur íslendingum lán, að
prófessor Skúli skyldi verða valinn til áminsts ræðu-
flutnings, því hann er manna kunnugastur ljóðum
Stephans G. Stephanssonar, og sjálfur kunnur að skáld-
skygni.
Minnisvarðinn, að því er prófessor Skúla sagðist
frá, er tíu feta hár og samsvarar sér vel að öllum hlut-
föllum, og hann prýðir viðeigandi áletrun; hann stend-
ur þárna fram í aldir eins og klettur upp úr sléttuhaf-
inu, eins og „hreinskilnin klöppuð úr bergi“. Minnis-
varðann afhjúpaði sonur skáldsins, Jakob K. Stephans-
son; margmenni var viðstatt afhjúpunarathöfnina, er
var um alt hin virðulegasta, en dásamleg veðurblíða
faðmaði umhverfið allan daginn.
Flokkur íslendinga, söng þjóðsönginn, Ó, guð vors
lands, er vakti djúpstæða hrifningu veizlugesta; í at-
höfninni, auk prófessors Skúla, og ýmissa annara, tóku
þátt prófessor Long frá háskóla Alberta-fylkis, og Ó-
feigur Sigurðsson frá Red Deer, aldavinur hins látna
stórskálds, er átti að því frumkvæði, að skáldinu yrði
reistur minnisvarði á býli þess; er Ófeigur um alt hinn
mesti sæmdarmaður, vinfastur og hollráður.
Af furðulegum ástæðum andaði um hríð kalt í garð
Stephans G. Stephanssonar frá ýmissum samlöndum
hans hér í álfu, er jafnvel sýndust fúsir ‘til að leggja á
sig ómök til að misskilja hann og lífsskoðanir hans,
en slíkt hrein ekki á honum til neinna muna, til þess
var hann of stór, en hinir of smáir; en góðu heilli, var
heimaþjóðin fljót að átta sig á Stephani G. Stephans-
syni og meta snildarverk hans í ljóði, og það gerðu líka
margir merkir menn vestur hér; í hugsjónalífi hans
var hátt til lofts og vítt til veggja, og nú heíir að minsta
kosti kjörþjóðin hans, canadíska þjóðin, auðsýnt hon-
um meiri sæmd, en flestum hinna innfæddu sona henn-
ar fram að þessu hefir hlotnast.
GUÐ ( HJARTA
##
##
eflir dr. RÚNÓLF MARTEINSSON
Fimm kirkjuþings prédikanir, 1949.
Gefnar út á 50 ára prestsvígslu afmæli
höfundarins. — Kostnaðarmenn: Nokkrir vinir.
Prédikana söfn eru yfirleitt ekki sú tegund bók-
mennta sem fólk sækist eftir nú á dögum, fáir gefa
sér tíma til að lesa langar ræður um kirkjuleg eða kristi-
leg efni. En hér er aðeins um örstuttar hugvekjur að
ræða sem hver um sig fjallar um ákveðið efni, og gera
því skil á látlausu en fögru máli. Þrjár af hugleiðing-
um þessum eru á íslenzku; er sú fyrsta þeirra „Guð í
hjarta“ samin út af Orðskv. 4:23. „Varðveit hjarta þitt
framar öllu öðru“. „Guð í fegurðinni“, Matt. 6:28—29,
og „Hin mikla þörf á krafti Guðs í freistingum“, Matt.
6:13. Tvær eru á ensku: „Love in Deed“, John 15:1—10,
og „Rejoice and Remember", Ecc. 11:9—10; 12:1—21.
En fremst í ritinu er stutt ávarp á ensku sem séra Skúli
Sigurgei^sson flutti í kirkjuþinginu í Argyle. um leið
og fimmtíu ára prestskapar afmælis séra Rúnólfs var
minnst. En það var á því kirkjuþingi að séra Rúnólfur
flutti þessar hugleiðingar sem þingprestur.
Þessar hugleiðingar hafa vakið athygli manna
vegna efnis síns og anda. Hinn mikilvirki bókmennta-
og fræðimaður dr. Beck, segir um þær í bréfi: „Las
prédikanirnar þegar í einni lotu núna um helgina mér
til ánægju og uppbyggingar. Þær eru markvissar, anda
til lesandans djúpri trúartilfinningu og hjartahlýju“.
Gunnar Björnsson skattstjóri í St. Paul segir: „These
meditations are rich in worth-while thoughts, and it
is nice to have them in the convenient form here pre-
sented“.
Bæklingur þessi var prentaður skömmu fyrir s.l.
kirkjuþing sem haldið var í Norður Nýja íslandi, og var
allmikið af upplaginu, sem er mjög takmarkað, selt þar.
Nokkur eintök eru þó enn eftir og má panta þau hjá
Mrs. B. S. Benson á skrifstofu Columbia Press. Verðið
er aðeins 50c eintakið, og rennur það til höfundarins.
Bókin er einkar hentug til tækifærisgjafa, auk þess sem
hún varðveitir nöfn hinna mætu hjóna, frú Ingunnar
og séra Rúnólfs, en góð mynd af þeim fylgir ritinu.
V. J. E.
Modern lcelandic Poets
By Walson Kirkconnell
Sömu laun til karla og kvenna
fyrir sömu vinnu
Fundin leið lil að koma á sællum
í vinnudeilum
Frá 33. þingi Alþjóðavinnumála-
siofnunarinnar
Tillag íslands til Alþjóða-
vinnumálastofnunarinnar er
á þessu ári rúmlega 6000
dollarar, en verður á næsta
ári eitthvað yfir þús. dollar-
ar, eða sem næst 110 þús.
ísl. króna.
HISTORY OF ICELANDIC
POETS, 1800-1940. By Richard
Beck, 257 pp. Ithaca. N.Y. Cor-
nell University Press.
Afmæli biskupsins
Á öðrum stað hér í blaðinu birtist fögur ritgerð
um biskupinn yfir íslandi, herra Sigurgeir Sigurðsson
sextugan; ritgerðin er samin af séra Jóni Auðuns, presti
við dómkirkjuna í Reykjavík, víðsýnum ágætismanni,
sem auk umsvifamikils prestsembættis, hefir gefið sig
allmikið að ritstörfum, og meðal annars haft með hönd-
um um nokkur undanfarin ár ritstjórn tímaritsins
Morgun.
Við, sem höfum átt því láni að fagna, að þekkja til
margra ára herra Sigurgeir biskup og fylgjast með
ævistarfi hans og þróunarferli, erum séra Jóni Auðuns
þakklátir fyrir hans markvissu og vinsamlegu ritgerð
um þenna hógværa og drengilega forustumann þjóð-
kirkjunnar á íslandi, sem með hjartahreinleik sínum
og prúðmensku hefir unnið sér varanlegan og virðu-
legan sess í sögu íslenzkrar kristnimenningar; hann er
auk þess manna þjóðræknastur, og við Vestur-íslend-
ingar stöndum í mikilli þakkarskuld við hann fyrir
margháttaða góðvild hans í okkar garð; við sexmenn-
ingarnir að vestan, er heimsóttum herra Sigurgeir um
sumarið 1946, munum seint gleyma ástúð hans og frú
Guðrúnar, er umvafði okkur á heimili þeirra og hvar
annars staðar sem fundum bar saman.
Herra Sigurgeir Sigurðsson er víðsýnn kirkjuhöfð-
ingi, er helgar líf sitt þeirri háu hugsjón, að kirkjan og
þjóðin haldist í hendur á braut hinnar eilífu þróunar.
Helgar vættir vaki yfir afmælisbarninu og fjöl-
skyldu í bráð og lengd!
LITERATURE, more than any
other achievement, is the Ice-
lander’s claim to fame, whether
in Iceland or in Canada. The
older legacy of saga and of Eddic
and skaldic verse, going back to
the early Middle Ages, has had
its notable hifftorians in the Eng-
lish language; but there has
hitherto been no adequate sur-
vey of the nation’s copious and
distinguished output in the 19th
and 20th centuries.
That lack has now been met
for modern Icelandic poetry by
Dr. Richard Beck, professor of
Scandinavian languages and
literatures in the University of
North Dakota, while a valuable
companion volume on modern
Icelandic writers was published
last year by Dr. Stefan Einars-
son of Cornell University.
Canadians who have already
been dimly aware of the poetic
activity of their I c e 1 a n d i c
fellow-citizens in their ancestral
language will now be able, in
Dr. Beck’s pages, to see Ice-
landic-Canadian poetry as the
striking projection west of the
Atlantic of a poetic tradition
that, coming from a little nation
of 100,000 souls, is one of the
most remarkable phenomena of
modern times. As produced by
a population one-third the size
of that of Winnipeg, it may well
seem. miraculous.
Realislic Movemeni
As Dr. Beck explains, the
main tides of 19th century
European thought and art came
flooding into Iceland by way of
Copenhagen, where Icelandic
students of that period went to
pursue their university studies.
Thus the Romantic generation
of Bjarni Thorarensen and Jonas
Hallgrimsson, beginning in the
1840’s, was succeeded in due
course in the 1880’s by the real-
istic movement of Gestur Pals-
son, Einar Hjorleifsson Kvaran
and Hannes Hafstein, even as
Leftist ideologies caught an un-
derprivileged younger genera-
tion in the 1930’s.
The great mass of Icelandic
poetry of all these periods, how-
ever, does not lend itself to neat
and explicit pigeon-holing in
assorted categories. In the
seventy-six poets analysed in
detail by Dr. Beck there is a
variety of thought and emotion
as rich as life itself.
The Tennyson and the Brown-
ing of Iceland are Matthias Joc-
humsson (1835-1920) and Einar
Benediktsson (1864-1940). The
former excels in poetry of re-(
ligious faith and has given Ice-
land the n o b 1 e s t national
anthem in the world. The latter
combines the metaphysical and
psychological subtlety of a
Browning with a much greater
mastery of prosodic technique.
Most Icelandic poetry reveals a
deep awareness of long historic
tradition, an urgent striving
after the political independence
from Denmark that became vir-
tual in 1918 and absolute during
World War II, a strong desire
for social justice, and a consum-
ing interest in intricate patterns
of verse-structure.
Literary Inheriiance
This was the literary inherit-
ance brought to Canada by
those Icelandic pioneers who
settled in Manitoba in 1875 and
succeeding years and made Win-
nipeg the centre of Icelandic
cultural life in America. One
whole section of the present
volume is given over to a survey
of the extensive and important
mass of poetry that they in their
turn have created in Canada in
the Icelandic language. Their
chief single protagonist, Stephan
G. Stephansson (1853-1927), an
Alberta farmer, overcame all
handicaps of pioneer poverty to
vindicate his intellectual gifts.
Of him Dr. Beck says:
“He was born to the great cul-
tural heritage of the saga land,
personified that inheritance in
a rare degree, and was endowed
by nature w i t h surpassing
genius. At the same time it was
his good fortune to live and
work in the midst of a civiliza-
tion richer and more varied than
that of his native land. His
poetry is the greater for it; it
bears the stamp of universality.
He is not only one of the great-
est Icelandic poets but also
one of the greatest Canadian
poets ...”
(Frh. á bls. 8)
Vísi hefir borizt greinargerð
frá Félagsmálaráðuneytinu frá
33. Alþjóðavinnumálastofnunar-
innar, en þing þetta sat Jón
Guðmundsson skrifstofustjóri
fyrir íslands hönd. — Honum
til aðstoðar var Haraldur Kröyer
fulltrúi.
Þau tvö mál þingsins, sem
hvað mesta athygli vöktu voru
annars vegar umræður um sam-
ræmingu launa karla og kvenna
við sams konar störf og hins
vegar um vinnudeilur og verk-
föll og hvernig koma megi í veg
fyrir þau.
Það mál þingsins sem áreið-
anlega vakti mesta athygli var
frumvarp að alþjóðasamþykkt
um, að sömu laun skuli greidd
konum og körlum fyrir sömu
vinnu. Allt frá upphafi hefir Al-
þjóðavinnumálastofnunin haft
þetta mál á stefnuskrá sinni og
talið það sjálfsagt réttlætismál,
enda þóttr ekki hafi þar til nú
þótt tímabært að gera um það
alþjóðasamþykkt. í síðustu styrj
öld sýndu konur það, að í mörg-
um starfsgreinum standa þær
körlum fyllilega á sporði og hef
ir mönnum af þeim sökum orð-
ið ennþá ljósara að óréttlátt sé
að greiða þeim ekki sömu laun
og körlum, þegar þær inna af
hendi jafnverðmæt störf.
Á þessu þingi fór fram fyrri
umræða um þetta mál og var
ákveðið að ljúka afgreiðslu
þess á þingi stofnunarinnar
næsta ár.
Það mál, sem þó var mest um-
deilt og áhugi manna á þinginu
beindist mest að, var frumvarp
að alþjóðaályktun um heildar-
samninga milli verkalýðssam-
banda og atvinnurekendasam-
banda og sættir og gerðir í vinnu
deilum. Hin miklu og tíðu verk-
föll, sem orðið hafa í ýmsum
löndum á undanförnum árum
og sem mörg hver eru ólögleg
og hefir orðið að brjóta á bak
aftur með því að bjóða út her
til að vinna störfin, hafa mjög
ýtt undir þá skoðun, að nauð-
synlegt sé, að heildarsamning-
unum sé yfir leitt komið á í
öllum löndum og sættir og gerð-
ir í vinnudeilum fari fram sam-
kvæmt lögum, til þess að fyrir-
byggja að smáhópar geti stöðv-
að allt atvinnulíf á stærri eða
minni svæðum. Það ýtir einnig
undir þá skoðun, að löggjöf um
þessi efni sé nauðsynleg, að vit-
að er að verkföll þessi eru oft
pólitísks eðlis og gera launþeg-
unum oft vafasamt gagn. En
mál þetta er viðkvæmt mjög,
bæði fyrir verkalýðs- og atvinnu
rekendasamtökin og það er fyrst
nú, eftir að málið hefir verið í
þrjú ár á dagskrá, að útlit er
fyrir að það takist að finna
lausn, sem flestir sætta sig við.
Ýmis fleiri mál voru rædd á
þinginu. i
VÍSIR, 17. ágúst
Vinna við hina nýju
Sogsvirkjun er byrjuð
Byrjað er að byggja brú yfir
Sogið og nauðsynlega vegi iil að-
flulninga. Einnig er hafin bygg-
ing húsa
Sogsvirkjunin nýja stærsta
mannvirki, sem Islendingar
ráðast í til þessa. Heildar-
kostnaður er áætlaður 140
milljónir króna. Áætlað er
að verkinu muni ljúka seint
á árinu 1952. Hin nýja stöð
mun framleiða 32 þúsund
kw., sem koma til viðbótar
þeim 14300 kw., sem Ljósa-
foss-stöðin framleiðir nú.
Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóri, skýrði blaðamönnum frá
því í gær, að samningar um
framkvæmd verksins væru þeg-
ar undirritaðir og vinna hafin.
Vélar og rafbúnaður verða keypt
af tveim bandarískum fyrir-
tækjum, Westinghouse og Inter-
national General Electric. Samn
ingar um kaup á túrbínum var
gerður við sænskt fyrirtæki,
Karlstad Mekaniska Werkstad.
Samningur um byggingu neðan-
jarðarstöðvar og neðanjarðar-
ganga o. fl. var gerður við þrjú
fyrirtæki í sameiningu, eitt
danskt og tvö sænsk, A. B. Grav-
maskinor, Östlunds Bygnads A.
B. og E. Phil og Son. Samningur
um byggingu tveggja íbúðar-
húsa fyrir starfsmenn og eitt
mötuneytishús var gerður við
byggingameistarana Benedikt
Sveinsson, Gissur Sigurðsson og
Stefán Jakobsson.
Fjáröflun.
Til kaupa véla, rafbúnaðar,
vinnuvéla og annara áhalda hef-
ir verið veitt lán frá Marshall-
stofnuninni, en 19,1 millj. kr. er
gert ráð fyrir að fá annað hvort
frá greiðslubandalagi Evrópu
eða frá Alþjóðabankanum, en
bráðabirgðalán hefir verið tek-
ið í Danmörku og Svíþjóð vegna
þeirra útgjalda sem til falla í ár.
Innanlands fjársöfnun er með
þeim hætti að Reykjavíkurbær
leggur fram 12 millj. króna til
fyrirtækisins en tilætlunin er
sú að annanð innlent fjármagn
verði fengið úr mótvirðissjóði
Marshallframlaga.
Mikil vinna.
Gert er ráð fyrir að 150 til 160
manns fái vinnu við virkjunina
þegar framkvæmdir eru komnar
í fullan gang. Nú í vetur má
gera ráð fyrir að 50 manns verði
þar í vinnu og jafnmargir við
húsabyggingar, vega- og brúar-
gerð.
Tala íslenzkra verkamanna-
vörubifreiðarstjóra og iðnaðar-
manna verður nokkurnveginn
sú sama hverju tilboðinu sem
tekið hefði verið.
Aukin rafmagnsnotkun.
Heildar raforkuaflið, sem
Reykjavík hefir nú er um 25
þúsund kw. og er það langt fyrir
neðan þörfina. Með nýju stöð-
inni verður orkan 57 þúsund kw-
Gert er ráð fyrir mikilli aukn-
ingu á rafmagnsnotkun bæði á
heimilum og til iðnaðar og má
í því sambandi geta um hina
væntanlegu áburðarverksmiðju.
Áætlað er að um 15% af orku
nýju stöðvarinnar fári til sveit-
anna og nær kerfið yfir Suður-
og Suðvesturland.
—TÍMINN, 28. júlí
Óvenjuleg auglýsing birtist ný
lega í enska blaðin „The Times”
í smáauglýsingadálki þeim, sem
það birtir á forsíðu. Auglýsingin
hljóðaði á þessa leið: Maður,
sem er í þann veginn að gifta
sig, óskar eftir hugmyndum, sem
hann gæti notað í brúðkaups-
ræðuna. Sendið bréf merkt „The
Times“ í Box 1189, E. C. 4.
JOHN J. ARKLIE
Optometrvn and Optictan
(Eyes Exarnined)
Phone 95 650
MITCHELL COPP LTD.
PORTAGE AT HARGRAVE