Lögberg - 03.11.1950, Blaðsíða 3

Lögberg - 03.11.1950, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 3. NÓVEMBER, 1950 3 Sigurður Vigfússon Melsted Sigurður var glæsilegur mað- ur að vallarsýn. Naumast meira en meðal maður á hæð, fríður sýnum, beinvaxinn, vel limaður, frár á fæti, bar sig manna bezt, og það var eins og lífsfjörið spriklaði í hverri hans hreyf- ingu. Hann var prýðilega vel gáf- aður og átti yfir að ráða óvana- lega miklu andans jafnvægi, og það var fátt sem að hann bar ekki gott skyn á af hinum al- gengu verkefnum mannanna, þó að reikningsgáfan hafi máske verið mest áberandi hjá honum og hefði hann getað notið meiri mentunar, eins og til stóð, hefði hann óefað getað komist langt í þeirri námsgrein, eins og að hann sýndi sjálfur síðar, eins og líka í öðrum námsgreinum, því anclans janfvægi hans var mikið, eins og sagt hefir verið. í eðli sínu var hann nokkuð skapbráður og skapríkur, þó að fáir yrðu þess varir, því að hann hafði gott vald á skapsmunum sínum og svo var sálarylur hans svo mikill og lífsskoðun hans svo björt, að skapsmuna hans gætti naumast í sambúð hans og samneyti við aðra. Hann var um fram allt maður bjartsýninnar. Engir erfiðleikar svo miklir, að ekki væri hægt að yfirstíga þá. Ekkert ský svo svart, að hann sæi ekki sólina á bak við það, og í viðbót við þessar lyndis- einkunnir Sigurðar, var við- kvæm lund sem ekkert aumt gat séð, án þess að leitast við að bæta úr því; ákveðin lífs- skoðun og hreint hjartalag. Hann var maðurinn hreini og hugljúfi, hvar sem að hann var og hvert sem að hann fór. Sigurður Melsted var fæddur 30. janúar 1876 á Ytri-Völlum í Húnavatnssýslu á íslandi.For- eldrar hans voru Vigfús Guð- mundsson prests Vigfússonar á Melstað og Oddný ólafsdóttir Jónssonar dbrm. og þingmanns á Stóru-Giljá og síðar á Sveins- stöðum í þingi og var hann einn af fimtán alsystkinum sem flest er nú dáin. Þau, sem enn eru á lífi, eru: Solveig Elínborg og Elísabet Þórunn á íslandi og Finna Margrét, ekkja eftir Kristján Hjálmarsson í Winni- peg. Einn hálfbróðir Sigurðar heit. er á lífi, Oddur Vigfússon í Vancouver í Canada. Sigurður ólst upp við rauns og myndarskap á heimili for- eldra sinna, naut góðrar undir- stöðumentunar. Fyrst í barna- skóla, útskrifaðist frá gagn- fræðaskóla og las svo í prívat- kenslu eitt ár til undirbúnings í annan bekk í latínuskólanum, en þangað fór hann aldrei, því árið 1891 misti hann móður sína og faðir hans brá búi. Sigurður kom til Winnipeg í Canada 3. september 1892 með þennan lærdóm sinn í veganesti, 16 ára að aldri. Æviferill hans hér vestra er næsta eftirtektar- verður og merkilegur. Hann liggur aðallega um verzlunar- lendur og viðskiptaóðul. Hann gengur nálega strax í þjónustu verzlunarmanna eftir að hingað kom, og fetar sig upp og áfram tröppu af tröppu unz að hann er orðinn skrifstofustjóri og síðar forstjóri einnar stærstu húsgagnaverzlunar í Vestur- Kanada, Banfields-verzlunarinn- ar í Winnipeg, og hélt þeirri stöðu um áraraðir. Ef til vill er þetta ekki eins dæmi. Aðrir ^nenn hafa máske gjört það áður, en þó má það þrekvirki heita af ungum manni, sem að kemur hingað frá framandi landi, ó- kunnugur og mállaus. En Sig- urður hafði meira til síns ágæt- is en viljann og framsóknar ein- heittnina. Hann hafði líka gáf- urnar, sem að hann þroskaði svo sérstaklega á sviði verzlunar og reikningsfræðinnar, að þeir voru ekki margir hér um slóðir, sem hetur voru að sér í þeim grein- um en hann. í sambandi við verzlunarlega °g reikningsfærslulega þekk- ingu Sigurðar segir William P. Cawkell ritari húsgagnaverk- smiðjusambandsins í Kanada,- þetta: „Hann er að mínu áliti einn @f þeim allra hæfustu reikningshöldurum, sem að nokk urt verzlunarfélag getur kosið sér að hafa í þjónustu sinni“. Ekki slæmur vitnisburður um drenginn íslenzka, sem kom alls laus, ókunnugur og framandi hingað til lands, frá þjóðkunn- um manni, sem vissi vel um hvað hann var að tala. En listhæfni Sigurðar náði lengra en til greina verzlunar og viðskipta. Það var eins og allt léki honum í höndum og huga. Hann gat tekið hamar og sög eða málarabursta og beitt hvorutveggja, eins og vanir fag- menn. Hann lagði líka gjörfa hönd á myndasmíði og fullkomn aði sig svo í þeirri list, að hann tók verðlaun fyrir myndir sín- ar í opinberri samkeppni við hæfustu myndasmiði Winnipeg- borgar. í mannfélagsmálum tók Sig- urður mikinn og ákveðinn þátt, bæði á meðal enskumælandi manna og íslendinga, og ávalt sér og þjóðbræðrum sínum til sóma og öðrum til uppbygging- ar. Hann var ekki búinn að vera hér í landi nema tiltölulega stutt an tíma, þegar að hann gerðist félagi í hljómsveit Dr. Adams og ferðaðist með henni víða um vesturhluta Manitoba-fylkis. — Hann var og félagi í Evanson- hljómsveitinni í Winnipeg og síðar í Hibbins hornleikara- flokknum, og ennfremur í horn- leikaraflokki 90. herdeildarinn- ar (Baritone). Hann var einnig aðal hvatamaður að stofnun Foresters hljómsveitarinnar, sem síðar breytti um nafn og nefndist Jubilec-hljómsveitin til minningar um 50 ára ríkis- afmæli Victoriu Englandsdrottn ingar. Ennfremur var hann hvatamaður að því, að sameina Jubilec hljómsveitina og eftir- stöðvar af boragar (Citizen) hljómsveitinni í eina heild — Winnipeg hljómsveitina. Hann sat í verzlunarráði (Board of Trade) Winnipegborgar frá 1918 —1930, eða í tólf ár. Var félagi í Kiwonis klúbbnum — félagi sem sérstaklega hefir tekist á hend- ur að sjá um föðurlaus og van- heil börn í 13 ár. í yfirstjórn Forester lífsábyrgðarfélagsins í Manitoba sat hann í mörg ár. Hann var og forseti frjálslynda stjórnmálafélagsins í Norður- Mið-Winnipeg um skeið. öll þessi störf kröfðust mikils tíma og umstangs. En Sigurður Mel- sted lét ekki þar við sitja, því að hann tók mikinn og góðan þátt í félagsmálum íslendinga í Win- nipeg líka. Hann sat lengi í safnaðarráði Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg og var vara forseti þess safnaðar svo árum skipti. Forseti Karmannafélags- ins (Mens Club) í þeim sama söfnuði, og einlægur og ágætur félagi í söfnuðinum sjálfum. Hann var ritari, stjórnarnefndar maður og féhirðir Jóns Bjarna- sonar skóla í 23 ár og ritari í stjórnarnefnd Betels, heimilis aldraða fólksins á Gimli um skeið. Það má merkilegt heita, hve víðtæk, drengileg og áhrifa- rík að þátttaka Sigurðar var í félagsmálum, þrátt fyrir tíma- frekt og umsvifamikið aðalstarf, sem að hann varð að vinna. En þar sem viljinn er góður má miklu afkasta. Árið 1898 kvæntist Sigurður Þórunni ólafsdóttur Ólafssonar söðlasmiðs frá Sveinsstöðum í Húnaþingi og konu hans Krist- ínar Maríu Jónínu Kristjánsdótt ur prests Kristjánssonar á Breiðabólstað í Vesturhópi, á- gætri konu. Þau leigðu sér íbúð í Winnipeg fyrstu tvö árirí, en fluttu svo til Milton í Norður Dakota þar sem Sigurður gegndi verzlunarstörfum í eitt ár eðá frá 10. maí 1900 til 3. maí 1901, er þau fluttu aftur til Winnipeg Business and Professional Gards Sigurður Vigfússon Melsied og reistu sér heimili að 673 Bannatyne Ave. og bjuggu þar nálega í hálfa öld. Heimili þeirra Sigurðar og Þórunnar var fyrir- myndarheimili. Á því héldust í hendur góðvild, gestrisni, prúð- menska og glaðværð og var þar oft margment og glatt á hjalla, í gamla daga. Þeim varð sjö barna auðið sem öll prýddu heimilið og juku á heimilis- ánægjuna. Þau eru öll á lífi og hér talin eftir aldursröð: Ólavía Kristín, gift Sveini Indriðasyni í Oxbow, Sask.; Guðrún Oddný, ógift í Winnipeg; Sigurður Þór- arinn, ógiftur í Winnipeg; Garð- ar giftur amerískri konu, í Des Moines Iowa í Bandaríkjunum; Vigfús Hermann, giftur Ednu Bjarnason í Flint Flon, Mani- toba; Lárus Alexander, giftur Edeth Jefforis, Winnipeg og Anna Dorothes, gift Clement. Desormeux, Winnipeg. Öll eru þessi börn vel gefin, geðþekk og efnileg, og auk þeirra eru 9 barnabörn og 2 barnabarnabörn, sem að þessi merku hjón áttu. Á meðan að síðara alheims- stríðið stóð yfir var Sigurður kvaddur til að skipuleggja sér- stakt verk í Ottawa fyrir stjórn- ina í Kanada svo að þau hjón fluttu þangað um tveggja ára skeið, en þegar þau komu aftur úr þeirri ferð gekk Sigurður und ir uppskurð all-alvarlegan, sem að hann náði sér víst aldrei full- komlega eftir, því að heilsu hans fór hrörnandi upp frá því, og svo bættist þar ofan á, að hann misti konu sína, Þórunni, í fe- brúar 1947, sem að hann tók nærri sér og varð svo að yfir- gefa heimilið, sem að hann hafði dvalið svo lengi á sökum þess, að stjórn barnaspítala bæjarins þurfti á því að halda ásamt öðr- um byggingum á því svæði til nýrrar spítalabyggingar, sem að líka hafði lamandi áhrif á hann, og þó að börnin gerðu allt, sem í þeirra valdi stóð, til að hlynna að honum og létta honum lífið, fór heilsu hans sí-hnignandi unz að hann lézt 24. maí síðastliðinn á Almenna sjúkrahúsi bæjarins þangað sem hann hafði verið fluttur, þegar að vatnsflóðið mikla rak hann og börn hans, sem aldrei þreyttust á að ann- ast hann og að hlynna að hon- um, út úr hinu nýja heimili þeirra á Lyndale Dr. hér í borg- inni. Hann var jarðsunginn frá Fyrstu lútersku kirkjunni í Win- nipeg 27. maí af séra V. J. Ey- lands að mesta fjölda fólks við- stöddum. — Ég sem þetta rita, átti ekki kost á sökum fjarveru að kveðja þennan merka og mæta mann þar, en ég geri það nú með orðum skáldsins: „Far þú í friði, friður guðs þig blessi, Hafðu þökk fyrir alt og alt“. Jón J. Bildfell Haustið er til að BIRGJA UPP Um atS gera aS full- nægja vetrarþörfun- um strax. PantlS vörur eftir EIATON’S Haust og Vetrar VERÐSKRÁ Fyrir f jölskylduna, borgarheimiliö etSa býlitS — á vertSi, sem samrýmist gjaldþoli yöar. MUNID "Ef eigi ánægðir með vöru er peningum skilað aftur að inniföldu flutningsgjaldi." T. EATON CANADA SELKIRK METAL PRODUCTS LTD. Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- viö, heldur hita frá að rjúka út meö reyknum — Skrifið slmiö til KELLY SVEINSSON 625 Wall Street, Winnipeg Just north of Portage Ave. Símar: 33-744 — 34-431 , S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smith Sl. Winnipeg Phone 924 624 JOHN J. ARKLIE Optometritt and Optician (Eyes Examined) Phone 95 650 MITCHELL COP? LTD. PORTAGE AT HARGRAVE liMÉ JEWELLER5 447 Portage Ave, Al$o - 123 TENTH ST. BRANDON Ph, 926 385 Phone 21 101 ESTIMATES FREE J. M. INGIMUNDSON Asphalt Roofs and Insulated SJding — Repairs Country Orders Attended To 632 Slmcoe St. Winnipeg, Man. DR. A. V. JOHNSON Dentist 506 SOMERSHT BUILDING Telephone 97 932 Home Telephone 202 398 Taislmi 925 826 Helmilis 404 630 DR. K. J. AUSTMANN SérfrœOingur i augna, eyrna, nef oo kverka sjúkdómum 209 Medical Arts Bldg. Stofutlmi: 2.00 til 5.00 e. h. DR. ROBERT BLACK BérfrœOingur i augna, eyma, nef og hálssjúkdómum. «01 MEDICAL ARTS BLDG Graham and Kennedy St. Skrifstofuslml 923 851 Heimaslml 403 794 HAGBORG PHOME 21351 GUNDRY PYMORE Limited British Quality Fish Netting 68 VICTORIA ST„ WINNIPEG Phone »2 8211 Uanager T. R. THORVALDSON Tour patronage will be appreclated G. F. Jonasson, Pres. A Mac. Dir. Keystone Fisheries Limited 404 SCOTT BLK, Simi »25 227 Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary’s and Vaughan, Wpg. Phome 926 441 Phone 927 02S H. J. H. Palmason, C.A. H. J. PALMASON Jk CO. Chartered Accountanta 505 Confederation Llfe Bldg. Wlnnipeg Manitoba PARKER, PARKER & KRISTJANSSON Barrisiers - Soliciiors Ben C. Parker, K.C. B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson 500 Canadian Bank of Commerce Chambers Winnipeg, Man. Phone 923 M1 JOHN A. HILLSMAN, M.D., Ch. M. 332 Medical Arts. Bldg. OÍFICE 929 349 Home 403 288 Phone 724 944 Dr. S. J. Jóhannesson 8UITE 6 — 652 HOME ST, Viötalsttinl 3—5 efUr hádegi DR. E. JOHNSON 804 EVELINE STREET Selklrk. Man. Office hrs. 2.30—6 p.m. Phones: Office 26 — Res. 280 Offlce Phone Res Phone 924 762 726 115 Dr. L. A. Sigurdson 628 MEDICAL ARTS BLDG. Offlce Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appointment DR. H. W. TWEED Tannlæknir 608 TORONTO GEN. TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. Phone 926 952 WINNIPEG Office 933 587 Res. 444 389 S. A. THORARINSON BARRISTER and SOLICITOR 4th Floor — Crown Trust Bldg. 364 Main Street WINNIPEG CANADA SARGENT TAXI Phone 722 401 FOR QUICK RELIABLE SERVICE J. J. SWANSON & CO. LIMITED 808 AVENUE BLDG WPG. Fasteignasalar. Leigja hús. Ot- vega penlngalán og eldsábyrgö. bifreiöaábyrgö, o. a. frv. Phone 927 638 Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertscn LögfrœOingar 209BANK OF NOVA SCOTIA BG. Portage og Garry St. Phone 928 291 C A N A D I A N FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAOE, Managing Director Wholesale Distributors of Frssh and Frozen Fish. 811 CHAMBERS STREET Office Ph. 26 828 Res. Ph. 78 917 A. S. B A R D A L 848 SHERBROOK STREET Selur llkklstur og annast um *t- farir. Allur útbúnaöur sá bezU. Ennfremur selur hann allskonar minnisvaröa og Iegsteina. Skrifstofu talsimi 27 824 Heimills talsfmi 26 444 Phone 23 996 761 Notre D&me Ave. Just West of New Maternlty Hospltal Nell's Flower Shop Wedding Bouquets, Cnt Flowers Funeral Designs. Corsages Bedding Plants NeU Johnson Ruth Rowland 27 482 88 790

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.