Lögberg - 09.11.1950, Qupperneq 4
4
- lögbetg
GefitS út hvern flmtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA
Vtanátkrift ritatjórant:
EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVEUNE, WINNIPEG, MAN.
PHONE 21 804
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Verð $5.00 um árið—Borgist fyrirfram
The ''Lögberg" ia printed and publiehed by The Columbia Presg Ltd.
696 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada.
Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
Menningarfrömuðurinn og þjóðhetjan
Jón Arason
Eftir prófessor RICHARD BECK
(Rœöa flutt á minningarsamkomu í Winnipeg, að kveldi 6. nóv.9 1950)
Sumir dagar í lífi þjóðanna eru skráðir óafmáan-
legu letri blóðs og tára á spjöld sögunnar. Hinn 7. nóv-
ember 1550, þá er þeir Jón biskup Arason og synir hans
voru af lífi teknir í Skálholti, er slíkur dagur í sögu
hinnar íslenzku þjóðar. Rétt 400 ár eru nú liðin írá
þeim örlagaríka atburði, og það er bæði heilbrigð þjóð-
rækni og lærdómsríkt að sama skapi, að minnast þess
atburðar meðal vor íslendinga hérna megin hafsins
eigi síður en heima á ættjörðinni. Minningin um hann
er snar þáttur í hinum íslenzka sögu- og menningar-
arfi vorum. Um þann manninn, sem höfuðpersónan var
í þeim harmleik, er gerðist að Skálholtsstað þ. 7. nóv-
ember 1550, um Jón biskup Arason, leikur altaf mikill
Ijómi í hugum allra góðra íslendinga, því að hann var
persónugerfingur svo margs þess, er vér unnum og
dáum: — trúmennskunnar við sannfæringu sína og
hugsjónaástar, æðruleysis og hetjuhugar, frelsis- og
ættjarðarástar. Þessvegna er svo bjart um hann á þess-
um 400 ára minningadegi hans; þessvegna hefir hann
öldum saman verið hugstæður og hjartfólginn þjóð
sinni, og þá ekki sízt íslenzkri alþýðu.
Sjöundi nóvember er þegar af djúpi runninn heima
á íslandi; morgunroði þess söguríka dags varpar inn-
an fárra klukkustunda ljóma sínum um fjöll og firði,
strendur og dali ættjarðar vorrar. Vér getum því óhik-
að tekið undir þessar ljóðlínur úr fögru kvæði Valdi-
mars V. Snævarrs skólastjóra, er hann flutti í virðu-
legri og fjölsóttri minningarhátíð um Jón Arason að
Hólum í Hjaltadal sunnudaginn 13. ágúst í sumar:
í dag er maður minninganna
Guðs mikla hetja sú,
er vörð hélt fremstur fullhuganna
um frelsi lands og trú.
Vér hyllum slíkan hetjuanda, —
hans hróður skal um aldaraðir standa.
í stein er greipt hans minning merk
og mun þar geymast sigursterk.
Ekki er að efa það, að hið veglega og trausta minn-
ismerki, turninn, himingnæfi, sem Norðlendingar reistu
hinum sögufræga biskupi sínum að Hólastað, og vígð-
ur var fyrrnefndan sunnudag, mun lengi standast tím-
ans tönn. Ennþá óbrotgjarnari er þó sá lifandi minnis-
varði, sem Jón biskup hefir reist sér í íslenzkum hjört-
um.
Allt frá því að hann hneig að mold fyrir böðulsöxi
hins erlenda valds og fram á þennan dag hefir Jón
Arason og mikil örlög hans orðið íslenzkum skáldum
hugstætt yrkisefni. Mörg ljóðskáld vor, og í hópi þeirra
súm öndvegisskáld vor, hafa um hann ort merkileg og
eggjandi kvæði; mun óhætt mega fullyrða, að kunnast
þeirra sé hið andríka og magni þrungna kvæði séra
Matthíasar Jochumssonar um hann á aftökustaðnum,
sem lesið hefir verið upp á þessari samkomu. Hann
hefir einnig, eins og kunnugt er, samið harmsöguleik
um Jón Arason, og Tryggvi Sveinbjörnsson hefir enn-
fremur samið um hann leikrit, sem nýlega var sýnt við
mikla athygli á*Kongunglega leikhúsinu í Kaupmanna-
höfn. Þá hefir Gunnar Gunnarsson skáld ritað merka
skáldsögu um Jón biskup. Þessi dæmi nægja til þess
að sýna það, hve persónuleiki hans, afrek og ævilok,
hafa heillað hugi íslenzkra skálda, og er það eitt sér
glöggur vottur þess, hversu minning hans hefir fest
djúpar rætur í hugum og hjörtum landa hans og hvern
heiðurssess hún skipar þar.
Og það er ekki séra Matthías Jochumsson einn,
sem brugðið hefir upp í ljóði átakanlegri og ógleyman-
legri mynd af Jóni biskupi Arasyni á aftökustaðnum.
Jóhannes skáld úr Kötlum hefir í kvæði sínu „Vertíð
Norðlinga“, í söguljóðabálki sínum Hrímhvíta móðir,
einnig lýst hinum aldna þjóðskörungi á örlagastund
hans á áhrifamikinn og minnisstæðan hátt í þessum
erindum:
„In manus tuas“ — harmblíð hljóðar
hin hintza kveðja vökumanns.
Og gullnum tárum sólin sáldrar
á silfurhvíta lokka hans. —
Á stokknum hetjuhöfuð liggur,
og höggin falla: eitt og tvö
og þrjú og fjögur, fimm og sex og —
nú fýkur það af bolnuih — sjö!
Og herðalotinn hærukollur
í helgri skikkju fórnarblóðs
að brjósti íslands hljóður hnígur,
sem hintza stef síns eigin ljóðs.
Og enginn bjarmi af biskupsskrúða
né bagli og mítri framar framar sést,
en aðeins þessi glaði geisli,
sem Grýtu-snáðann vermdi bezt.
Og með þeim „glaða geisla“, eins og segir síðar
í kvæðinu, á skáldið við þá himinbornu frelsisþrá, sem
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 9. NÓVEMBER, 1950
brann svo óvenjulega glatt í sál
Jón Arnasonar, að hann hikaði
ekki við að leggja lífið í sölurn-
ar fyrir málstað þjóðar sinnar
og frelsi hennar.
Eigi verður hér rakin umsvifa-
mikil athafnasemi Jóns Arason-
ar í prests- og biskupssessi, né
heldur stormasamur æviferill
hans, en athygli aðeins dregin
að meginþáttum í rhenningar-
starfsemi hans og baráttu hans
fyrir landsréttindum þjóðar
sinnar.
Er þess þá fyrst að geta, að
hann átti frumkvæði að því, að
prentsmiðja var stofnuð á Is-
landi, að því er ýmsir telja árið
1530, þó að eigi verði það sagt
með vissu, og að hann lét prenta
fyrstu ritin, sem út komu á ís-
landi. Með því steig hann einn-
ig það framfara-og menntaspor,
sem eitt hefði nægt til þess, að
tryggja honum sess í menning-
arsögu hinnar íslenzku þjóðar,
þó eigi hefði öðru verið til að
dreifa. En mennta-og menning-
arstarfsemi hans var fleiri þátt-
um slungin. Þorsteinn Gíslason
fer ekki villur vegar, þegar hann
lýsir Jóni biskupi þannig í byrj-
un hre'ssilegs kvæðis síns um
hann:
Einnig fremur öðrum snjall,
er hann fór með vísna-spjall,
og kjarna-klerkur.
En það er skemmst frá að seg-
ja, að Jón biskup var höfuðskáld
íslenzkt sinnar tíðar. Mjög ung-
ur tók hann að yrkja, og hefir
sýnilega verið mjög létt um það,
eins og eftirfarandi saga bendir
til, þó að hún kunni að vera
þjóðsögum blönduð (en hér er
fylgt frásögn dr. Páls Eggerts
Ólasonar í hinu gagnmerka riti
hans um Jón Arason):
Þegar Jón Arason var í upp-
vexti, hitti hann einu sinni
bónda, sem Jón hét; hann átti
góðan hest móálóttan. Jón Ara-
son falaði hestinn að nafna sín-
um, en hann svaraði, að hann,
mætti eiga hestinn, ef hann gæti
kveðið vísu, meðan hann gengi
í kring um hann einu sinni, og
nefnt Móaling í öðru hverju
vísuorði.
Jón Arason kvað þá þessa
vísu, meðan hann gekk í kring
um hestinn:
Mín er lyst í ferðum fyrst
að fara í kring um Móaling,
finna þann hinn fróma mann,
er fær mér slyngan Móaling;
átt hefi’ ég í aurum fátt
annað þing sem Móaling.
Því er mín bón, að bóndinn Jón
bringi mér sinn Móaling.
Segir sagan, að hann hafi eign-
ast hestinn síðan.
Jón biskup orti fjölda helgi-
kvæða, er um bragsnilld og
hreimmikið málfar sverja sig í
ætt til Eysteins munks Ásgríms-
sonar, höfundar hinnar ástsælu
„Lilju“, sem mælt er, að allir
vildu kveðið hafa. En jafnframt
eru þessi kvæði Jóns biskups
hjartnæm og einlæg, þrungin
djúpri og innilegri trúarsann-
færingu. „Sýna þau“, eins og dr.
Páll Eggert segir réttilega, „orð-
hagt og orðauðugt skáld, rím-
fróðan mann og smekkvísan."
Lýsir rímsnilld hans sér fagur-
lega í lokaerindinu í „Davíðs-
dikti“ hans:
Endann víst ég vildi
vinna og finna inn bezta
á minni málagrein.
Skýra og dýra ég skyldi
skærum færa ið mesta,
væri mín vizkan hrein.
Eyðist, sneyðist orðasmiðjan
kalda,
inni og minni má því ráða cg
valda.
Lát oss, drottinn, lífsins trúna
halda.
Lof sé þér um allar aldir alda.
Ekki tókst Jóni biskupi síður,
þegar hann sló á strengi glettni
(og stundum græsku) í verald-
legum kvæðum sínum og lausa-
vísum, og þar sést það eftir-
minnilega, hve þjóðlegur harn
var í kveðskap sínum. Einnig var
það nýlunda á hans tíð, að ort
væru kvæði um samtímisvið-
burði íslenzka, eins og hann
gerir. Mun þeirra kunnastur
bragur hans um viðskipti þeirra
Marteins biskups („Bóndi nokk-
ur bar sig að biskups veldi
stýra“), sem ýmsum er enn í
fersku minni, ekki síst vísan:
Víkr hann sér í Viðeyjarklaustr,
víða trúi ég hann svamli
hinn gamli.
Við Dani var hann djarfr og
hraustr,
dreifði hann þeim á flæðar-
flaustr
með brauki og bramli.
En Jón biskup gat einnig ver-
ið harðskeyttur og beinskeyttur
í ádeilum, eins og þegar hann
reiðir sverð sitt að ósóma aldar
sinnar í þessu kröftuga erindi:
Hnigna tekur heims magn.
Hvar finnur vin sinn?
Fær margur falsbjörg,
forsómar manndóm.
Tryggðin er trylld sögð.
Trúin gerist veik nú.
Drepinn held ég drengskap.
Dyggð er rekin í óbyggð.
Það er því ekki ofmælt, sem
sagt hefir verið, þó að hér hafi
verið stiklað á stóru, að Jón
biskup hafi öðrum betur sinna
samtíðarmanna kunnað að beita
íslenzkri tungu, enda unni hann
móðurmáli sínu og bar fyrir því
mikla lotningu. Það er hvorki
lítill þáttur né ómerkilegur í
djúpstærði ættjarðarást hans.
Menningarstarfsemi Jóns Ara-
sonar á sviðum bóklegra mennta
og skáldskapar hefði því fylli-
lega nægt til þess að skipa hon-
um í merkisess í sögu íslands.
En þó er það um annað fram
ættjarðarvinurinn og þjóðhetj-
an, sem vér minnumst á þessum
degi.
Jón Arason stóð fast á réttind-
um þjóðarinnar samkvæmt
Gamla sáttmála, og barðist ó-
trauðlega gegn því, að þeim rétt-
indum væri traðkað af Danakon-
ungi og fylgifiskum hans.
Undarlegt er ísland,
ef errginn réttir þess stétt,
segir hann , og hóf djarflega upp
vörn fyrir málstað þess gegn
hinu erlenda ofurefli. Mun það
iétt athugað, að hann hafi séð
lengra fram öðrum samtíðar-
mönnum sínum og verið það
fullljóst, að næði konungsvaldið
tangarhaldi á kirkjumálunum,
myndi þess eigi langt að bíða, að
það svifti íslendinga fornum
stjórnarfarslegum réttindum
þeirra, eins og fljótt kom
hatramlega á daginn. „Líf hans
og dauði voru fórnfæring á alt-
ari heilagrar kirkju og fyrir það,
sem honum var næst-helgast,
sjálfstæði og metnaði þjóðarinn-
ar“, sagði séra Friðrik J. Rafnar
vísglubiskup í minningarræðu
sinni á Hólahátíðinni síðastliðið
sumar, og er það vel mælt og
drengilega.
Jafn djarflega og Jón biskup
gekk í berhögg við hið erlenda
konungsvald, jafn vel varð hann
við dauða sínum. Hitt sveið hon-
um sáran, að hann skyldi láta
lífið fyrir ofbeldi konungs og
fulltrúa hans, sem hann taldi
engan rétt hafa til að dæma
hann, og kemur það kröftuglega
fram í hinni frægu vísu, er hann
orti eftir handtöku sína:
Vondslega hefir oss veröldin
blekkt,
vélað og tælt oss nógu frekt,
ef ég skal dæmdr af danskri
slekt
og deyja svo fyrir kongsins
mekt.
Hér er það næm réttlætistil-
finningin, sem kyndir undir, en
hvorki ótti né hugarhik. Skap-
lyndi Jóns biskups lýsir sér ann-
ars ágætlega í síðustu vísu hans,
sem einnig er alkunn:
Þann held ég ríða úr hlaðinu
bezt,
sem harmar engir svæfa.
Hamingjan fylgir honum á hest,
heldur í tauminn gæfa.
Hér talar hinn norræni hetju-
skapur, sem horfist djarflega í
augu við hvað, sem að höndum
ber á lífsins leið; sami hetjuandi
og túlkaður er í víðfrægum orð-
um „Hávamála":
Glaðr og reifr
skyli gumna hverr,
unz sinn bíðr bana.
Jón biskup Arason var maður
stórbrotinn að skapgerð og hæfi-
leikum, búinn miklum kostum,
en jafnframt, eins og títt er um
mikilmenni, fjarri því að vera
gallalaus. Eftirfarandi mat dr.
Páls Eggerts Ólasonar á sterkum
persónuleika hans og grundvall-
andi ævistarfi hittir ágætlega í
mark:
„En stórmenni verða ekki veg-
in á vog smámenna og miðlungs-
manna. Jón Sigurðsson hefir
farið þeim orðum um Jón Ara-
son, að hann væri síðastur ís-
lendingur. Hefir Jón sjálfsagt
haft í huga hin alkunnu orð um
rómversku hetjuna Cassius, er
hann ritaði þessi orð, og auðvit-
að ekki ætlazt til' þess, að þau
yrðu skilin bókstaflega. Fyrir
Jóni Sigurssyni hefir það vakað,
að Jón biskup Arason varð síð-
astur íslendinga til þess að halda
uppi baráttu gegn drottnunar-
gjörnum og einvaldssjúkum
konungi fyrir þjóðréttindum
landsins, síðastur manna til þess
að sýna, ekki aðeins í orði, held-
ur og í verki, með lífi og blóði
sínu, að hann mat þjóð sína,
land, tungu og kirkju framar
öllu.“
Þessvegna var það, að heilt
herbergi á hinni merkilegu sögu-
sýningu í sambandi við lýðveld-
isstofnunina 1944 var sérstaklega
helgað minningu Jóns Arasonar
og baráttu hans gegn ásælni hins
erlenda valds. Þessvegna hefir
orðið æ bjartara um hann í hug-
um landa hans. Og þessvegna
hylla þeir hann nú örlátlega og
þakklátlega á 400 ára ártíð hans.
Líf hans, starf og hetjudauði á
höggstokknum er oss áminning
°g eggjan til frjórra athafna og
framsóknar. Er vér rennum
sjónum yfir feril hans og ævi-
lok, óma oss í eyrum orð hins
ameríska skálds og frelsisvinar
(í þýðingu séra Matthíasar):
Allir miklir menn oss sýna,
manndóms tign er unt að ná,
og eiga þegar árin dvína
eftir spor við tímans sjá.
é
Mannsæmandi lífi, í andlegum
skilningi, geta allir lifað, hvar
sem þeir eru í sveit settir. Spak-
leg orð skáldsins standa óhögg-
uð:
Þann úrkost á sá, sem í örbirgð
er smár,
að unna því göfuga og stóra.
Það hlutskipti getur enginn
frá oss tekið, ef vér, eftir mætti,
viljum neyta þeirrar aðstöðu.
Trúmennska við hugsjónir,
fórnfús ættjarðar-og frelsisást,
runnu í einn farveg í lífi og
starfi Jóns Arasonar. í þeim get-
um vér vel tekið hann oss til
fyrimyndar, því að þeirra dygða
er eigi síður þörf á vorri um-
brotaöld en í byltingasamri sam-
tíð hans.
Eggjandi, líkt og lúðurhljóm-
ur úr fjarska, hljómar oss rödd
hans, ættjarðarvinarins og frels-
ishetjunnar, yfir djúp fjögra
alda í orðum fornhetjunnar ís-
lenzku. „Eptir er enn yðvarr
hluti!“
Þá er minningu Jóns Arasonar
fegurst á lofti haldið, ef vér
verðum vel og drengilega við
þeirri eggjan til dáða, því að eins
og Valdimar V. Snævarr sagði
í kvæði sínu um hann:
Þáð er svo margt, sem ógert er,
en öld vor krefst af mér og þér.
10 þús. lestir
af hraðfrystum
fiski til U.S.A.
Útlit er fyrir, að á næstu
mánuðum muni takast sala
á allmiklu magni af hrað-
frystum fiski til Bandaríkj-
anna. Er hér um að ræða
þúsundir smálesta af ýmsum
fisktegundum, og fer fyrsta
sendingin af þessum fiski
með Tröllafossi næst. Það er
Ingólfur G. S. Esphólín, sem
forgöngu hefir um þessa
sölu.
SAMKVÆMT áreiðanlegum
heimildum er verð það, sem
fyrir fiskinn fæst, tiltölulega
hagstætt, og þeim mun betra, en
verðið, sem áður hefir fengizt
þar fyrir hraðfrystan fisk, er
nemur innflutningstollum þar
vestra.
Alls eru það um tíu þúsundir
smálestir af hraðfrystum fiski,
sem útlit er fyrir, að þessi nýju
viðskipti taki til, og eru þar af
sjö þúsund lestir af þorskflök-
um, en þau hefir hingað til verið
erfiðleikum bundið að selja.
Seinna á að reyna sölu á ufsa og
ýmsum öðrum fiskitegundum.
Fyrstu sendingarnar af þorskin
um verða að fara vestur í bráða-
birgðaumbúðum, sökum skorts á
umbúðum hér, og munu fást
seytján sent fyrir pundið af
þorskflöknum í þeim umbúðum,
komnum í bandaríska höfn.
Kaupandinn vestra greiðir sjálf-
ur innflutningstolla, viðbótar-
kostnað og annan kostnað þar.
Frá ferðum P. Kolka
Á laugardagsmorguninn var
leit Páll Kolka læknir snöggvast
inn á skrifstofu Lögbergs, en um
miðaftan daginn fyrir kom
hann úr ferðalagi frá New York,
þar sem hann sat læknaþing eitt
mikið fyrir hönd Læknafélags
Island's; frá New York fór hann
til Cleveland, Ohio, sem gestur
Dr. P. H. T. Thorlakson, er þar
flutti eina aðalræðuna um sögu
krabbameins og fangbrögð
læknavísindanna við þennan
skæða óvin mannkynsins; kvað
Páll læknir, að freklega fimtán
hundruð skurðlæknar hefðu
hlýtt á hina miklu ræðu Dr.
Thorlakson, en þetta var alþjóða
þing skurðlækna; sagðist Páll
læknir hafa fundið til ósegjan-
legs metnaðar yfir því, að ís-
lendingar ættu á alþjóðaþingum
vísindamanna slíkan fulltrúa
sem Dr. Thorlakson.
Frá ferðum Páls læknis um
íslendingabygðirnar í North
Dakota hefir Dr. Beck áður
skýrt svo rækilega hér í blaðinu,
að þar er í rauninni engu við að
bæta.
Páll læknir naut ógleyman-
legrar ánægju af suðurferðinni
að því er honum sagðist frá;
hann undraðist gróðursæld og
víðáttu landsins og dáði viðmót
hinnar amerísku þjóðar; á heim-
leið staðnæmdist hann í London,
Ont., og hitti þar gamlan starfs-
bróður frá New York fyrir 27
árum, Dr. M. G. Peever, er tók
honum með kostum og kynjum
á glæsilegu landssetri sínu utan
við borgina.
Meðan Páll læknir stóð við á
skrifstofu blaðsins, sýndi hann
ritstjóra þess eintak af hinni
miklu Húnvetningabók sinm
Föðurtún, sem nýkomin er út a
Fróni, sem telur yfir 500 blað-
síður og geymir innan spjalda
sinna sæg mynda af fólki og
frægum sögustöðum; þeir, sem
gerast vilja áskrifendur að bók-
inni, geri aðvart Björnsson Book
Store, 702 Sargent Ave., Winni-
peg. — Óbundin kostar bókin
$10.00, en $13.00 í vönduðu
bandi.
Páll læknir lagði af stað vest-
ur á Kyrrahafsströnd á sunnu-
dagsmorguninn.