Lögberg - 22.03.1951, Síða 5

Lögberg - 22.03.1951, Síða 5
5 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 22. MARZ, 1951 AII4VHAI KVENNA Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON BRÉF OG GREIN FRÁ GAMALLI VINKONU Fréttabréf úr Skagafirði Þar hafa verið óvenjuleg jarðbönn í vetur, en þó minni í framsveitum Það er nú orðið all-langt síðan að birst hefir grein í þessum dálkum eftir Kristínu Jóseph- son, er gengur undir rithöfund- arnafninu, Kristín frá Water- town, en hún skrifaði talsvert í blöðin á tímabili og höfðu margir ánægju af greinum henn- ar, sérstaklega endurminning- um hennar frá íslandi og fyrstu árunum hér í álfu. Þessi góða sending gefur til kynna að hún muni enn vera við góða heilsu, þó hnígin sé nú allmjög að aldri; munu vinir hennar fagna því. I. J. Kaera vinkona: Mér kom til hugar að senda þér þessa litlu grein í Kvenna- dálkana, ef þér þykir greinin þess virði; ég er svo þakklát fyr- ir deildina og blöðin í heild sinni. íslenzku blöðin í Winni- peg eru með beztu blöðum landsins, skemtandi, fræðandi og mentandi. En það er ekki alt; þau eru svo hreinlát, sviphrein °g glaðlynd. Þetta elska ég. Al- drei eru þar slúðursögur eða morðsögur. Þetta verður þeim farsæl framtíð, langlífi og auk- in virðing. Guð blessi ykkur. Kristín Jósephson HÚSIÐ MITT Kona nokkur segir frá: Þegar yngsta dóttir mín fór frá mér var ég ein eftir í stóra húsinu mínu. Ég gat ekki skilið við heimili mitt; þar sá ég fyrst börnin mín brosa, hjala hlægja, ganga, tala, hlaupa; þar var hjarta mitt svo glatt og fagn- dndi, svo þakklátt við gjafarann dUra góðra hluta. Húsið var fult af endurminningum. Þegar ég gskk inn í herbergi barnanna komu mér í hug þær mörgu gleðistundir, sem ég sat hjá þeim og kendi þeim bænir og Vers. Þau lásu fagra versið okkar: Jesús bróðir bezti barnavinur mesti, breið þú blessun þína á barnæskuna mína. Þeim þótti svo vænt um að ®g var hjá þeim eftir að þau fóru í rúmið. Þessar endurminn- mgar voru mér gleði og hugg- Un- Og svo var kirkjan mín og Sunnudagaskólinn, sem ég elsk- aði, og sem upplýsti börnin mín í trú og trausti á Guði. Mín heit- ssta ósk og bæn og von var að börnin yrðu góðar og réttvísar ^ianneskjur. Þá verðum við að Vera þeim fyrirmynd í öllu, sem er rétt og gott. Það er einn veg- Ur til þess, það eru orðin meist- arans góða: leitið fyrst Guðsrík- is, og hans réttlætið, þá mun alt annað veitast yður. Þetta er satt °g rétt, sagði pabbi. Allar þessar endurminningar v°ru mér svo kærar. Svo liðu tímar fram, þá fór ég að finna, að stóra húsið mitt varð of mik- 18 fyrir mig, svo ég réði af að Se|ja það með ráðum barna rciinna. Þetta var mikill missir yrir mig; mér fanst ég vera að skilja við góðan vin, sem ekki vildi missa mig. Þetta er ein- kennileg tilfinning, en fleiri afa fundið þetta sama og ég. Nú fór ég til dóttur mjnnar, sem var langt í burtu og var í eftirlæti, en samt var ég e ki ánægð. Bara að ég gæti séð úsið mitt og kirkjuna mína, svo reði ég af að fara til dóttur ^ainnar, sem nú var sezt að í J^inni gömlu borg. Nú leið mér etur; ég gat séð húsið mitt, það ^afði verið málað og leit vel út. s^° fér ég til kirkju minnar, anm ævinlega er upplyfting og ndle§ gleði. m þetta leyti var verið að byggja lítið hús skamt frá gamla húsinu mínu. Mér leist svo vel á húsið; ég fór þangað á kvöld- in eftir að smiðir voru farnir og dáðist að því hvað það var vel innréttað og skemtilegt. Já, Ameríkumenn eru hreinasta fyrirmynd í byggingarlist, eins og flestu öðru, hugsaði ég, húsin eru ímynd frelsis, glöggskygni og vandvirkni. Nú liðu nokkrir dagar, þá kom Mæðradagurinn í maí; þá þurfti ég að sjá húsið mér til gleðiauka. Þá var búið að fylla húsið með fallegum húsgögnum. En nú heyrði ég mannamál. Hvað á ég að gera við sjálfa mig? Nú er eigandi hússins kominn og finnur mig hér. Ég vék út á pall- inn, en þá voru þetta börnin mín. „Komdu inn, mamma, hvern- ig fellur þér húsið?“ „Það er skínandi gull“, sagði ég, „meistaraverk að öllu leyti“. „Elsku mamma", sagði dóttir mín, „húsið er þitt og alt, sem í því er; við lögðum saman og létum byggja það handa þér til að gefa þér það á Mæðradag- inn; okkur fanst það tilhlýði- legt“. Mér varð svo bilt við þessa óvæntu gleðifregn, að ég gat ekki sagt orð; ég settist á stól og mig langaði til að gráta, en þau komu og vöfðu mig að sér. „Engin börn eiga jafngóða mömmu!“ Þá stundi ég upp: „Guð blessi ykkur fyrir mig“. Ég gat ekki komið orðum að þakklæti mínu. Svo fóru þau að syngja og spila á hljóðfæri, en dóttir mín og ég fórum til kirkju; þar heyrðum við talað um Mæðra- daginn með virðingu og þakk- læti, og að móðurástin væri það bezta, sem mannlífið ætti; hún gengi nálægt elsku Guðs til mannanna. Skáldið segir: Móðurhjarta hreina, himindjúpa ást. Lífsins elskan eina, aldrei sem að brást. Nú var ég að óska, að pabbi gæti séð, hvað börnin eru góð við mig; hann kvaddi okkur í fullu trausti, að Guð væri okk- ur alt í öllu. Þegar heim kom, var húsið fult af angandi blómum og ljúf- fengur dagverður á borði. Nú kysti ég börnin mín ástarkossi, og sagði það sama við þau öll: „Guð launar ykkur fyrir mig. Húsið er svo viðfeldið og alveg eins og mér líkar“. Ég hafði gaman að teikna þegar ég var ung; alt voru það lítil hús og hentug. Nú vissu börnin, að ég var þeim þakklát; mér fanst ég vera ung í annað sinn og ég vildi vinna fyrir Drottinn minn, alt sem ég gæti til að efla hans ríki. Kristín frá Watertown SMJÖR EÐA SMJÖRLÍKI Hvort er betra fyrir börn? Er smjör betra en smjörlíki? Árum saman hefir staðið styr um smjör og smjörlíki (smjör- líki er unnið úr plöntufeiti, aðal- lega úr soyabaunum og bóm- olíu), þrátt fyrir tilraunir rann- sóknarstofa á rottum og músum, sem sýndi engan mismun, hvað næringargildi snerti. Árið 1944 fengu þrír læknar í Chicago leyfi frá Landssam- bandi smjörlíkisframleiðenda Bandaríkjanna til að gera til- raunir á mönnum. Læknarnir völdu tvö munað- arleysingja hæli, þar sem hægt var að hafa strangt eftirlit með mataræðinu. 120 börn fengu að- eins smjörlíki með brauði, garð- ávöxtum, kökum og steik. í hinu hælinu voru 107 börn og var þar notað smjör. Eftir tveggja ára athuganir, birtu læknarnir niðurstöður sín- ar í „The Journal of the Ameri- can Medical Association11. Samkvæmt þeim var enginn raunverulegur mismunur milli hinna tveggja barnahópa, að því er snerti hæð, þunga, rauða blóðsins (hæmoglobin) og tölu rauðu blóðkornanna. Almenn heilbrigði vitist betri hjá börn- unum, sem höfðu fengið smjör- líki, en læknarnir gátu annarra kosta þess með varkárni. Tiðurstaða þeirra var þessi: Það hefir ekki áhrif á vöxt eða hreysti, hvort hluti fitunnar er úr jurta- eða dýraríkinu. Smjör- líki er góð matarfeiti fyrir vax- andi börn. í Heimskringlu 7. marz síðast- liðinn, birtist ein sú fáránleg- asta della, sem ég minnist að hafa séð all-lengi í íslenzku blöðunum okkar, sem er álykíun S. Einarssonar á þjóðræknis- málum okkar hér vestra. S. E. finnst rangt, að þjóðræknis- deildir úti í sveitum, hafi rétt til að greiða atkvæði á þjóð- ræknisþingi, eða senda fulltrúa á þingið til að fara með atkvæði sín, því ekki geta allir farið á þing. S. E. segir einnig, að lög Þjóð- ræknisfélagsins séu sniðin eftir lögum Bókmenntafélagsins ís- lenzka, sem Jón Sigurðsson hafi samið! en þá var Jón 5 ára gam- all drengur á Hrafnseyri við Arnarfjörð, en Bókmenntafé- lagslögin voru samin 1816 af Rasmus Rask, og líklega í sam- ráði við Bjarna Thorsteinsson og Grím Jónsson, sem báðir voru kosnir ásamt Rask í stjórn- arnefnd félagsins í Kaupmanna- höfn það ár, og sem báðir urðu amtmenn seinna. R. Rask sendi svo lögin til Reykjavíkur með vorskipum, því póstskip vöru þá engin komin á gang né gufu- skip, — og þar voru lögin sam- þykt, óbreytt að heita mátti, af séra Árna Helgasyn, Sigurði Þorgrímssyni og Halldóri Þor- grímssyni, er kosnir voru í stjórnarnefnd Bókmenntafélags ins, er það var stofnað 1816. Stofnlögin giltu gvo óbreytt að kalla í 95 ár, er Kaupmanna- hafnardeild félagsins var lögð niður og flutt til íslands 1911. Þá voru þau endurnýjuð, og breytt eftir ástæðum. Ekki kom sá virðulegi Jón Sigurðsson þar nærri, því hann var þá búinn að hvíla í gröf sinni 32 ár. En for- seti Bókmenntafélagsins var hann í 28 ár með heiðri og sóma. Lög Bókmenntafélagsins eru mikið frjálslegri en lög Þjóð- 4410 farþegar um Keflavíkurvöll í janúar í janúar síðastliðnum voru farþegar með millilandaflug vélunum, sem lentu á Kefla- víkurvelli, semtals 4410. Aðeins sárafáir urðu þar eft- ir eða fóru þaðan, eða 137 og 157. Flutningur til íslands með millilandaflugvélunum, s e m voru 250 talsins, nam 23,711 kg., en flutningur héðan ham 8.540 kg- Flugpóstur til Keflavíkurflug- vallar var 519 kg. en frá vellin- um 268 kg. Flestar vélarnar, sem lentu á vellinum, voru frá Flugher Bandaríkjanna (98), þar næst frá Tran-Canada Airlines (27), síðan Pan-American Airways (26), en brezka félagið BOAC var fjórða í röðinni (23). Mr. Th. Hallgrímsson fiski- kaupmaður fór norður til Mikl- eyjar á þriðjudaginn til að vera við útför Miás Kjartansson, sem þar fór fram daginn eftir. Sumarið var að öllu saman- töldu betra en í meðallagi. Gras- spretta goð og nýting heyja sæmileg — sums staðar ágæt. Uppskera úr görðum í betra lagi. Síðustu sumarvikurnar var tíð- arfar rysjótt nokkuð, en skipti um með vetrarkomu og gerði ágætistíð, er hélzt óslitið að kalla til nóvemberloka. Eftir það gerði hríðar með verulegum fannburði, svo að um 20. des. var kominn óvenju mikill snjór í héraðinu. Hagar voru þó all- góðir víðast hvar. En rétt fyrir jólin gerði frostleysu með mik- illi rigningu, sem hélzt að vísu skamma stund en þó nægilega lengi til þess, að blotaði í rót og ræknisfélagsins, þeim má breyta með 3ja vikna auglýsingafresti, ef atkvæði falla þannig, en Rögn valdur sálugi reyrði svo saman lög Þjóðræknisfélagsins, að það þarf 3ja ára umhugsun eða frest til að breyta hinu minsta í þeim segir forseti oss. S. Einarsson virðist hvorki vita né skilja, að bændur og búa- lið er öll þjóðin. Að bændur eiga alt landið. Að bændur yrkja alt landið og framleiða allar lífs nauðsynjar þjóðanna, og gætu svelt út allan borgarlýð á fáum mánuðum. Og að bændur leggja til flest-alla embættis- og fram- kvæmdamenn þjóðanna, slíkt er viðurkennt um allan heim. Sjáið íslendingana hérna Vil- hjálm Stefánsson, Josep Thor- son, Skúla Johnson, T. H. John- son, H. A. Bergman, Dr. Brand- son, Byron Johnson og Banda- ríkjaskörungana, alt bændasyn- ir, af því þeir einir af öllum stétt um hafa beztan líkama og sál. En synir framtaksmanna borg- anna, flestir sorglega lélegir. Ég held að S. Einarsson hafi samið álit sitt í Kringlu, „við hræfareldaglóðir Hornafjarðar mána“. S. Baldvinsson Skipastóll lands- manna óx um 1150 lestir 1950 Tvö ný skip komu, sex voru seld úr landi. Skipastóll íslendinga nam samtals 91,523 lestum nú um síðustu áramót. Þar af voru farþega- og flutn- ingaskip 25, með 32.467 lestum. Þá voru togarar samtals 48, eð 26.932 lestir að burðarmagni. Fiskiskip yfir 100 lestir voru 52, samtals 7925 lestir. Ennfremur voru í eigu íslend- inga 538 skip með þilfari undir 100 lestum, en þau voru samtals 16.950 lestir. Fjögur varðskip voru í eigu landsmanna, samtals 815 lestir. Þá áttum við tvö olíuflutninga skip, 1.106 lestir, eitt verk- smiðjuskip (Hæring)), 4898 lest- ir, eitt dráttarskip, 111 lestir, eitt dýpkunarskip, 286 lestir, og eitt mælingaskip 33 lestir. Á árinu hafði skipastóllinn aukizt um 1150 lestir. Ný skip voru „Gullfoss“ og björgunar- skipið „María Júlía“. Hins vegar höfðu verið seld úr landi fjórir vélbátar til Nýfundnalands, „Grótta“, „Richard“, „Huginn I.“ og „Huginn II.“, svo og tog- ararnir „Gylfi“ og „Kári“, er báðir voru seldir til Þýzkalands. Loks var e.s. „Ófeigur", (áður ,,Snæfell“) höggvið upp í brota- járn. Síðan hefir flotanum bætzt einn togari, „Harðbakur“, sem gerður er út frá Akureyri, en hann er ekki talinn með í fram- anskráðu yfirliti. VISIR, 15. febr. krapaði mjög. Síðan fraus og bræddi yfir. Varð þá haglítið víða og haglaust. Mishermi var það í útvarps- fréttum héðan úr Skagafirði á dögunum (annars má þar um segja, að „sjaldséðir séu hvítir hrafnar“, því að undarlega sjaldan ber það við, að fréttir úr Skagafirði komi í útvarpinu), að jarðlaust væri með öllu um héraðið allt, nema helzt á ein- hverri rönd við sjóinn — eins og mig minnir að komizt væri að orði. „Við sjóinn“ hafa litlar snapir verið — og víða engar. En frammi í Skagafjarðardöl- um hafa alltaf verið góðir hag- ar. Nokkur jörð hefir verið og er framan til í Tungusveit, en þó einkum í Blönduhlíð og Við- víkursveit. Þó má vafalaust telja, að í héraðinu yfirleitt hafi í annan tíma eigi komið öllu lengri jarðbönn en nú er orðið, og sízt svo snemma vetrar. Snjór er þó eigi mikill nema í útsveit- um, því að blotar hafa komið og fönn sigið. Tíðarfar hefir og mátt heita gott frá áramót- um. En harðfenni og svellalög hylja víða alla jörð. Hrossahald Skagfirðinga. Víðast hvar eru hross ýmist öll í húsi eða sumum gefið út. Þarf til þess mikil hey og mikla vinnu, þar sem mörg eru hross. En ranghermt er það einnig í áður greindri útvarpsfrétt úr Skagafirði, að þar væri víða um og yfir 100 hross á bæ. Slíkt er víðs fjarri öllum sanni. Mjög fáir bændur eiga fleiri en 60—70 hross, og langflestir miklu færri. — Rangar fréttir eru stórum verri en engar fréttir. — En fyr- ir sakir þess, hversu harðinda- lega fór upp úr hátíðunum, brugðu þeir, er óttuðust fóður- skort, á það hyggilega ráð að fækka hrossum í öryggisskyni. Mun hafa verið lógað upp úr áramótum um 220 folöldum og ungum tryppum. Vár slíkt fjarri því að vera nokkur neyðarkost- ur, þar sem hrossin voru í góð- um holdum og kjötið söluhæf vara. Væri fleiprarinn við Þjóð- viljann fullsæmdur af að hest- húsa þess konar „horket“ og mætti sleikja út um auk heldur. Svo má kalla, að mjólkur- flutningarnir til Sauðárkróks hafi gengið án tilfinnanlegra tafa. Þó hefir stundum orðið að ryðja vegi með ýtum, einkum vestan Héraðsvatna. Byggingar. Nokkuð var unnið við ný- byggingar í héraðinu árið, sem leið, — og þó mest við að ganga frá húsum, er reist höfðu verið árin 1$48 og 1949, en þau voru mjög mörg. Hins vegar var mjög mikið unnið að jarðabótum, ræktun og framræslu. Nú er senn fullgerð hin glæsi- lega stórbygging Mjólkursam- lags Kaupfélags Skagafjarðar, og verður brátt tekin til notk- unar. Á hinn bóginn miðar lítið áleiðis hinu stóra slátur- og frystihúsi, er K. S. hóf að reisa fyrir 2V2 ári. Er sú orsök þess, að fjárfestingai;leyfi hafa ekki fengizt svo ört sem vonir stóðu til. Er að þessu hinn mesti bagi. Kjötfrystihús félagsins er gam- alt og úr sér gengið. Ærið tjón að þurfa að festa til langframa stórfé — hundruð þúsunda — í hálfgerðum húsum, sem eigi er auðið að nota til neins. Enn kem- ur svo til að Frystifél. Sauðár- króks, hlutafélag, sem um ára- bil hefir keypt fisk af sjómönn- um til frystingar, hætti að taka fisk á öndverðu s.l. sumri, mun ekki hafa talið það vænlegt til hagnaðar1. Þetta kom sér að sjálf- sögðu illa fyrir sjómenn á staðn- um. Aflabrögð voru að vísu lé- leg í sumar og það, sem af er vetri. Eiga þó sjómenn allt und- ir því, að geta losnað við afl- ann. Veltur og framtíð bæjar- ins að verulegu leyti á því, að unnt sé að stunda þaðan útgerð, því að landvinna hrekkur hvergi nærri til. Taldi því Kaupfélag Skagfirðinga eigi annað fært en að festa kaup í húseignum Frysti félags Sauðárkróks h.f., svo að útgerð þyrfti eigi að stöðvast fyrir sakir þess, að sjómenn gætu ekki selt fiskinn. Frysti- húsið er að vísu lélegt og lítt til frambúðar. Væntanlega mun þó K. S. reyna að bæta úr bráðri þörf og nota þá aðstöðu sem fyrir hendi er — enda þótt all- miklu fé þurfi til að kosta, unz fullgert er frystihús þess hið nýja. TÍMINN, 6. febr. Tíu ísl. togarar selja ssfisk fyrir 15. þ. m. Að því er Vísir hefir fregn- að munu markaðshorfur í Bretlandi fyrir ísfisk enn vera allgóðar. í dag selur Svalbakur í Grims- by og Karlsefni í Hull, en á morgun, fimmtudag, selja eng- ir íslenzkir togarar ytra. Hins vegar munu margir enskir tog- arar selja á morgun. Á föstudag selja Egill Skallagrímsson í Grimsby, en á laugardag Helga- fell í Grimsby og Jörundur í Hull. Á mánudag selja Uranus, Ing- ólfur Arnarson og ísborg, á þriðjudag Akurey og línuveið- arinn Rifsnes og á miðvikudag Askur. Að því er Vísir hefir fregnað munu brezkir togarar, sem veið- ar stunda við Norður-Noreg, Bjarnarey og í Hvítahafi, hafa aflað fremur illa. Flestir stærstu togarar Breta stunda veiðar á þeim slóðum nú. Sett í herkví Höfuðborgin Teheran í Iran- ríkinu, hefir verið sett í herkví vegna vaxandi óspekta í borg- inni og umhverfi hennar; eins og vitað er, var forsætisráð- herra þjóðarinnar nýlega myrt- ur, og þess getið til, að setið sé um líf eftirmanns hans og ann- ara háttsettra embættismanna. SMART SHORT HAIR FASHIONS Combined. With Amazing New VITAMIZED FLUID COLD WAVE Regular $10.00. $C,00 Now Half Price. 9 OIL MACHINELESS PERMANENTS .75 Now $4 Open Wednesdays the Year 'Round Evenings by Appointment ' WILLA ANDERSON WILL LOOK AFTER YOU She Is Efficient and Artistic GUey jdedtuf. BEAUTY SALON PHONE 924 137 206 TIME BUILDING, 333 Portage Ave. Corner Hargrave Margt er skrítið í Harmonium!

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.