Lögberg - 28.06.1951, Qupperneq 3
LOGBERG, FIMTUDAGINN 28. JÚNÍ, 1951
3
DÁNARMINNING:
Gísli Þorvarðsson
(Dánarminniny sú, sem hér fer á eftir um Oisla porvarðsson í Papey
i Suður-Múlasýslu, er birt að tilmœlum systur hans, Mrs. Bjarni Sveins-
son, sem búsett er að Keewatin í Ontario-fylki. Gísli lézt 12. október
191,8. Hann var i sinni tið í röð allra merkustu bænda á Austurlandi,
en megin œviatriðum slikra atgerfismanna, er jafnan holt að kynnast.)
Ritstj.
Business and Professional Cards
PHONE 724 944 Dr. S. J. Jóhannesson SUITE 6—652 HOME ST. Viðtalatími 3—5 efttr hádegi S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smilh St. Winnipeg PHONE 924 624
y J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Lelgja hús. tJt. vega peningalán og eldsábyrgð, bifreiðaábyrgð o. s. frv. Phone 927 538 Phone 21 101 ^STIMA TES FREE j. M. ING1MUNDS0N Asphalt Roofs and Insulatcd Siding — Repalrs Country Orders Attended To 632 Stmcoe St. Wlnnipeg, Man.
SARGENT TAXI PHONE 722 401 FOR QUICK, RELIABLE SERVICE DR. A. V. JOHNSON Dentist 506 SOMERSET BUILDING Telephone 97 932 Home Telephonpe 202 398
DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selkirk, Man. Office Hours 2.30 - 6 p.m. Phones: Office 26 —Res. 230 Talsími 925 826 Heimilis 404 630 DR. K. J. AUSTMANN Sérfræðingur i augna, eyma, nef og kverka sjúkdómum 209 Medícal Arta Bldg. Stofutimi: 2.00 til 5.00 e. h.
Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson Lögfræðimgar 209 BANK OF NOVA SCOTIA BG. Portage og Garry St. Phone 928 291 DR. ROBERT BLACK Sérfræðingur í augna, eyma, nef og hálssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrifstofusimi 923 815 Heimasimi 403 794
CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAOE, Managing Director Whoiesale Distributors of Fresh and Frozen Flsh. 311 CHAMBERS STREET Offlce Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917 Branch
e s store at
pfEDDSTEW 123 TENTH SL BRANDON 447 Portage Ave. Ph. 926 885
6 GUNDRY PYMORE Limited British Quality Fish Nettina 58 VTCTORIA ST. WINNIPEG Phone 928 211 Manager TjtR. THORVALDSON Your patronage wUl be appreclated
tftv HAGB0R6 RJEl/V^ nwk xissi ■ |
Office Phone Res. Phone
924 762 726 115
Hinn 12. október 1948 lézt hér
í bænum Gísli Þorvarðsson, óð-
alsbóndi í Papey. Hann kom
hingað fársjúkur heiman að, ef
einhverra meinabóta mætti
vænta, en var þá banvænn orð-
inn, svo að ekki varð að gert.
Dvaldist hann hér um hálfs
mánaðar tíma á heimili Ingólfs
læknis sonar síns og konu hans,
frú Ellenar Sigurðardóttur, og
naut þar frábærrar aðhlynning-
ar þeirra hjóna og dætra sinna,
sem hér eiga heima.
Sjúkdómsins taldi hann sig
hafa kent fyrir 4 mánuðum, en
lét þó ekki á sig bíta lengi vel
og gekk til verka sinna, unz
kraftar voru með öllu þrotnir.
Minningarathöfn um hann fer
fram í Dómkirkjunni á morgun
(mánudag 25. þ. m.), en jarðsett-
ur verður hann í grafreit sínum
í Papey. Þar verður honum búin
hinzta hvíla við hlið Margrétar,
fyrri konu sinnar, og Þorvarðar
sonar þeirra og annarra ástvina.
Gísli Þorvarðsson var fæddur
á Fagurhólsmýri í öræfum hinn
3. okt. 1868 og varð einmitt átt-
ræður í sjúkdómslegu sinni hér.
Foreldrar hans voru hin góð-
kunnu Mýrarhjón, Þorvarður
(d. 1922) Gíslason og Ingibjörg
(d. 1914) Jónsdóttir, er þar
bjuggu lengi. Þau Þorvarður og
Ingibjörg voru systkinabörn, því
að Gísli, faðir Þorvarðs og Ing-
veldur, móðir Ingibjargar, voru
börn Gísla Jónssonar (frá Hell-
um í Mýrdal) og Sigríðar Lýðs-
dóttur, sýslumanns Guðmunds-
sonar. Jórunn móðir Þorvarðs á
Mýrinni var systir Árna Þor-
varðssonar á Hofsnesi, Pálsson-
ar, en Árni var faðir Helgu,
móður Bjarna frá Vogi og þeirra
bræðra. Voru þeir því þremenn-
- ingar, Gísli í Papey og Bjarni.
Gísli var í móðurætt 8. maður
frá Guðbrandi Hólabiskupi og
11. maður frá Jóni biskupi Ara-
syni. Þá var og Ingibjörg, móð-
ir Gísla, fjórmenningur við
Bertel Thorvaldsen myndhöggv-
ara. Má og glögt sjá ættarmótið
á þeim Gísla og Thorvaldsen.
Tvær systur Gísla eru enn á lífi
(í Vesturheimi), Jórunn og Matt-
hildur, en látnar eru: Stefánía
(móðir Friðriks skólastjóra Ólafs
sonar) og Jóhanna.
Á Fagurhólsmýri ólst Gísli
upp með foreldrum sínum og 24
ára gamall tók hann þar við bús-
forráðum (1892), en kvæntist 5
árum síðar (28. okt. 1897) Mar-
gréti Gunnarsdóttur frá Flögu
í Skaftártungu, systur Vigfúss,
sem enn býr þar. Árið 1900 flutt-
ust þau Gísli austur að Papey
og festu kaup á þeirri jörð —
og hefir Gísli búið þar síðan
(hátt upp í hálfa öld). Árið 1910
niisti hann Margréti, er hann
tregaði sáran, og hafði þeim orð-
ið 10 barna auðið, 7 þeirra náðu
fullorðinsaldri. Gunnar skip-
herra, Þorvarður skipherra (d.
1935), Ingólfur læknir, Gústaf
Björgvin, Sigríður, Ingibjörg,
Margrét. Árið 1912 (18. júlí) gekk
Gísli að eiga mágkonu sína, Jó-
hönnu Gunnarsdóttur, er hún
yngst þeirra Flögusystkina og
lifir mann sinn. Þau eignuðust
4 börn, og lifa 3 þeirra: Snorri,
Kristín og Gunnþóra. Jóhanna
hefir reynst manni sínum dygg-
Ur og trúr förunautur í 36 ára
sambúð þeirra og staðið með
honum í blíðu sem stríðu, þótt
við mikinn heilsubrest hafi hún
oftast átt að etja. Ungum systur-
hörnum sínum gekk hún þegar
1 móðurstað og hefir jafnan verið
þeim hollráð og kærleiksrík.
Hún er nú komin fast að sjötugu.
Gísli í Papey var hraustleika
maður og ekki kvellisjúkur um
®vina, þó að gigt og annar stirð-
leiki ^ækti að honum hin síð-
ustu árin, af lúa við sleitulaus
störf og mannraunir, einatt daga
°S nætur í senn. En að lokum
hilaði heilsan fyrirvaralítið og
varð þá brátt sýnt hvert stefndi.
Karlmennið gekk fram af sér og
hlífði sér lítt, unz þrótturinn var
gerþrotinn. Hann var aðfarabú-
maður og umsýslusamur á alla
lund og heljarmenni til allra
verka, í rauninni varla einham-
ur. Búhagur var hann í bezta
lagi — og reyndar miklu meira
en það. Hann reisti sér sjálfur
íbúaðarhús vandað og veglegt,
ásamt útihúsum öllum, búsmuni
smíðaði hann allskonar, svo og
báta, og flest lagði hann á gerva
hönd, enda átti hann óvenju-
lega mikið safn smíðatóla, svo
að varla var þar nokkurs vant.
Harðskeyttur var hann ef mót-
stöðu var að mæta, og má vera,
að ýmsum hafi þótt hann harð-
drægur, en hreinskiptinn var
hann og stórhöfðingi til allra út-
láta, þar var ekki numið við
nögl, því að maðurinn var um
allt stórtækur og þoldi ekki
smámunasemi og sýtingshátt,
hvorki af sjálfum sér né öðrum.
Kröfuharður var hann víst, en
á sjálfan sig lagði hann jafnan
þyngstu byrðarnar, og það var
metnaðarmál hans að vera ætíð
fremur veitandi en þiggjandi,
en af eyrisskekkju mátti hann
ekki vita hjá sjálfum sér. Fyrir-
hyggja hans var einstök, í búi
sínu átti hann jafnan ærin föng,
langt fram yfir það, sem heimil-
ið þarfnaðist, því að ætíð var
hann undir það búinn að hýsa
gest og ganganda og veita hinn
stórmannlegásta beina. Eitt sinn
spurði ég hann, hverju það sætti,
að hann hefði birgðir vista og
varnings (m. a. eldspýtna) bæði
heima fyrir og í naustahúsunum
við sjó. „Ef bruna ber að hönd-
um eða annað óhapp á öðrum
hvorum staðnum“, svaraði hann,
„þá er gott að grípa til birgð-
anna á hinum staðnum". Svona
var um alla hluti, hvergi mátti
skeika, allt skyldi vera til taks.
Var því ekki furða þótt þessum
óbrigðula fyrirhyggjumanni
væri torskilin heimtufrekja og
andvaraleysi nútímans, er allir
vilja hirða hlut sinn allan á
þurru landi og fyrirhafnarlaust.
Með Gísla í Papey er í valinn
hniginn mikill og merkilegur
bændahöfðingi, og þótt Papey
megi kalla nokkuð afskekta,
mun ekki fjarri sanni, að nú sé
héraðsbrestur orðinn um Suður-
Múlaþing við fráfall Papeyjar-
bóndans, þessa einstaka önd-
vegishölds, og öræfingar þeir,
sem nú eru komnir af miðjum
aldri, mega lengi minnast hins
glæsilega bónda, sem ungur hóf
búskap sinn á Fagurhólsmýri
fyrir 56 árum. Mér er það og í
barnsminni, að Gísli á Mýrinni
(eins og hann þá var nefndur)
þótti afbragð annarra uppvax-
andi manna, svo gervilegur var
hann, fríður sýnum og karl-
mannlegur. Papey hefir Gísli
gert að höfuðbóli, húsað þar og
reist allt úr rústum einum og
sléttað tún þar, sem fyrir var
óræktarkargi. Veit ég óðals-
bóndaheitið hvergi hafa betur
skartað en á honum. „Papey
hefir engan hrakið“, sagði hann
eitt sinn, „en auðsetin er hún
ekki ef vel á að vera“. Þar vildi
hann lifa — og deyja.
Fuglatekjan og annar veiði-
skapur var honum harla geð-
feldur starfi, og var hann þar
flestum mikilvirkari. Svo var og
um alla búsýslu. Þar máttu aðr-
ir gæta sín, jafnvel hinir mann-
taksmiklu synir hans, og meira
að segja eftir að hann var tekinn
að mæðast af elli og lúa. Sjó-
garpur var hann og mikill, svo
sem bezt kom í ljós í sjóhrakn-
ingnum mikla 1908. Undan opin-
berum trúnaðarstörfum mun
hann hafa skorast, sem von er
til á svo afskektu býli, en veður-
athuganir hefir hann þó gert frá
aldamótum (fyrst í þágu Veður-
athuganafélagsins danska). Vita-
vörður hefir hann og verið, síðan
viti var reistur í Papey (1922), og
má ólíklegt þykja, að misfellur
hafi orðið á þessum verkum
hans fremur en öðrum.
í æsku stóð hugur hans mjög
til mennta, en allt varð að þoka
fyrir búsumstangi sveitamanns-
ins. Fróður var hann og fjölles-
inn, stálminnugur og greina-
góður um flesta hluti, en fróð-
leiks síns hefir hann orðið að
afla sér með næturvökum, því
að eljumaðurinn hafði engan
tíma til slíkra hluta að degi til.
Gísli í Papey verður hugstæð-
ur vinum sínum, flestum þeirra
með öllu ógleymanlegur. Þeim
þykir nú að vonum ærið skarð
fyrir skildi við fráfall hans, þótt
sárastur sé söknuðurinn í ást-
vinahópnum .Og þó að ég hafi
farið hér nokkrum orðum um
þennan aldavin minn látinn, ná
þau þó skamt til að lýsa mann-
kostum hans og veglyndi hans
og drengskap mér til handa.
„Þrotna mér og minnig þín
má ei nokkru sinni“.
Páll Sveinsson
—Mbl.
— Fyrir alla lifandi muni,
skrifaði hermaðurinn heim til
konu sinnar, — vertu ekki að
þessu sífellda rifrildi í bréfun-
um, sem þú sendir mér til víg-
stöðvanna. Ég vil fá frið til þess
að berjast í þessu • skrattans
stríði.
☆
Dómarinn: — Hvers vegría af-
hentuð þér ekki lögreglunni
demantshringinn ,sem þér fund-
uð?
Ákærði: — Það var óþarfi.
— Hvað eigið þér við?
— Það stóð á hringnum: —
„Þinn að eilífu".
Verður rannsóknarstöð og mið-
siöð þeirra, er aðhyllast kenn-
ingar dr. Helga Péturss
Félag Nýalssinna, er stofnað
var í vetur til þess að kynna
kenningar dr. Helga Péturss
um þitóun lífsins, framhalds-
líf á öCrum jarðstjörnum og
samband hnatta á milli, hef-
ir mikið í huga. Félagið hefir
ákveðið að hefja fjársöfnun
til byggingar stjörnusam-
bandsstöðvar, sem mun eiga
að verða eins konar musteri
og miðstöð Nýalssinna.
Stjórnendur félagsins, Svein-
björn Þorsteinsson, Þorsteinn
Guðjónsson og Sigurður F. Ólafs
son, hafa beðið Tímann fyrir
svolátandi ávarp:
„Góðir samlandar!
Félag Nýalssinna hefir ákveð-
ið að efna til fjársöfnunar í því
skyni að byggja stjörnusam-
bandsstöð í Reykjavík. Stjörnu-
sambandsstöð er hús, sem er sér-
staklega ætlað til þess að leita
sambands við íbúa annarra
hnatta. Verður þetta fyrsta hús
þeirrar tegundar á þessum
hnetti. Kunnugt er mönnum af
ritum dr. Helga Péturss, með
hvaða aðferðum hægt er að ná
sambandi við aðra hnetti. Verð-
ur við stjörnusambandsstöðina,
þegar hún kemst upp, að sjálf-
sögðu byggt á uppgötvunum dr.
Helga um þessi efni.
Ekki þarf að taka fram við þá,
sem lesið hafa Nýala dr. Helga,
Smíði véloverkstæðis á
Hvolsvelli að Ijúka
Aðalfundur Kaupfélags Rang-
æinga var haldinn að Lauga-
landi í Holtahreppi sunnudag-
inn 20. maí s.l. Fundinn sátu full
trúar frá 9 deildum félagsins,
stjórn endurskoðendur og fram-
kvæmdastjóri ásamt mörgum
félagsmönnum.
Sala erlendra vara hjá félag-
inu á s.l. ári nam kr. 6,8 milj.,
sala innlendra vara nam kr. 1
miljón og varð sala erlendra og
innlendra vara kr. 7,8 miljónir,
og hafði heildarsalan aukizt um
rúmlega 1 miljón kr. frá fyrra
ári. Tekjuafgangur varð kr.
85.407,00, en áður hafði verið
lagt í varasjóð 1% af vörusölu,
kr. 74.467,00. Af tekjuafgangi
var lagt í stofnsjóð félagsmanna
kr. 75.971,00, sem er 5% af á-
góðaskyldri úttekt.
Sjóðir í vörzlu félagsins, juk-
ust á árinu um 215.000,00 kr.
Viðskiptamenn bættu hag sinn
við félagið á árinu um kr.
390.000,00 og lækkuðu skuldir
þeirra um kr. 41.000,00.
Á s.l. ári var hafin bygging á
landbúnaðarvéla- og bifreiða-
verkstæði að Hvolsvelli, og mun
verða lokið við byggingu þess
á árinu, ef efnisvöntun tefur
ekki fyrir framkvæm^lum. Þá
hefir félagið í undirbúningi að
kon^a upp samvinnuþvottahúsi
að Hvolsvelli, og munu vélar í
það væntanlegar á árinu.
Úr stjórn félagsins gengu
Ölver Karlsson, bóndi, Þjórsár-
túni og Ólafur H. Guðmundsson,
bóndi, Hellnatúni, og annar aðal
endurskoðandi félagsins, Guðjón
Jónsson, bóndi, Hallgeirsey, voru
þeir allir endurkjörnir.
hvílík nauðsyn það er að byggja
stjörnusambandsstöð, og komast
þannig í fullkomnara samband
en verið hefir við lífið á öðrum
hnöttum. — Heitum vér svo á
alla þá, sem styðja vilja stærsta
framfaramál vorrar aldar, að
leggja fram nokkurt fé til bygg-
ingar stjörnusambandsstöðvar-
innar, hver eftir sínum efnum.
Sigurður Ólafsson, Skaftahlíð
5 (eða c.-o. Fálkinn Laugaveg
24), Reykjavík tekur við fram-
lögum manna“.
Vísindalegar rannsóknir
fyrirhugaðar.
í þessari fyrirhuguðu stjörnu-
sambandsstöð Nýalssinna mun
eiga að framkvæma sérstakar
rannsóknir á ýmsum fyrirbær-
um, sem þeir telja, að stafi frá
íbúum fjarlægra hnatta, er séu
að reyna að komast 1 samband
við jarðarbúa. Meðal annars á
að láta miðilsfundi fara fram á
stórri vog, svo að hægt sé að
rannsaka, hvort líkamningar séu
af efni gerðir, og taka hljóma og
tal, sem stafar frá fyrirbærun-
um á stálþræði og segulbönd,
svo að unnt sé að rannsaka þetta
eftir á, utan við stemningu mið-
ilsfundar.
Margar aðrar rannsóknir
hyggjast Nýalssinnar að stunda,
en tilgangurinn er að sanna, að
ýms dularfull fyrirbrigði stafi
frá öðrum hnöttum og ná sam-
bandi við þá, sem þar eru að
verki.
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BLDG.
Oííice Rouis: 4 pjn. - 6 pjn.
and by appolntment.
A. S. BARDAL
843 SHERBROOK STREET
Selur ltkklstur og annast um tlt-
farir. AXlur útbúnaSur sá. beztl.
Ennfremur selur hann allskonar
mlnnisvarða og legsteina.
Skrifstofu talsími 27 324
Heimilis taistmi 26 444
Pbone 23 996 761 Notre Dame Ave.
Just West of New Matemity Hospltal
Nell’s Flower Shop
Weddlng Bouquets, Cut Flowers,
Funeral Designs, Corsages,
Bedding Plants
NeU Johnson Ruth Rowland
27 482 88 790
Offlce 933 587 Res. 444 389
THORARINSON &
APPLEBY
BARRISTERS and SOLICITORS
4th Floor — Crown Trust Bldg.
364 Main Street
WINNIPEG CANADA
SELKIRK METAL PRODUCTS
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hreinir. Hitaeinlngar-
rör, ný uppfynding. Sparar eldl-
viC, heldur hita frá aC rjúka út
meC reyknum.—SkrifiC, stmiC til
KELLY SVEINSSON
625 WaU Street Winnipeg
Just North of Portage Ave.
Símar: 33 744 — 34 431
DR. H. W. TWEED
Tannlœknir
508 TORONTO GENERAL TRUSTS
BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smlth St.
Phone 926 952 WINNIFEG
Minnist
BETCL
í erfðaskrám yðar.
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary's and Vaughan, Wlnnipeg
PHONE 926 441
PHONE 927 025
H. J. H. Palmason, C.A.
H. J. PALMASON * CO.
Chartered Acconntants
505 Confederation Llfe Bldg.
WINNIPEG MANITOBA
PARKER, PARKER &
KRISTJANSSON
Barrisiers - Solicilors
Ben C. Parker, K.C.
Ð. Stuart Parker, A. F. Kristjansson
500 Canadiaa Bank of Commareo
Chambers
Wlnnlpeg, Man. Phone g]|ll
JOHN A. HILLSMAN,
M.D., Ch. M.
332 MEDICAL ARTS BLDG.
Offlce 929 349 Res. 463 286
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
404 SCOTT BLK, Simi 925 227
—TÍMINN, 14. júní
KAUPENDUR- LÖGBERGS
Á ÍSLANDI
Gerið svo ve! að senda mér sen. fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið
ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir
eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir
að snúa sér til min.
B J ÖRN GUÐMUNDSSON
BARUGATA 22 REYKJAVÍK
—TÍMINN, 10. júní
Nýalssinnar safna fé fri! byggingar
sfrjörnusambandssfröðvar
\