Lögberg - 05.07.1951, Blaðsíða 3

Lögberg - 05.07.1951, Blaðsíða 3
LOGBERG, FIMTUDAGINN 5. JÚLÍ, 1951 í 3 Hæsfi foss í heimi Angelfossinn í Venezuela Gamall málsháttur segir, að ekkert sé nýtt undir sólinni. Og það má gjarna segja um foss þann, er hér verður sagt frá, því að um þúsun^ir eða jafnvel miljónir ára hefir hann verið til. En hann er n„nýr“ að því leyti, að það er aðeins nú fyrir skemstu að menn hafa fundið hann. Og þó er þetta hæsti foss í heimi. Um mörg ár hefir verið talið, að Ribbon-fossinn í Kosemite- dalnum í Sierra Nevada, væri hæsti foss í heimi. óslitin fall- hæð hans er 1612 fet. Að vísu er efri fossinn í Yosemite hærri, eða samtals 2565 fet, en hann er í tvennu lagi og er hærri foss- inn 1430 fet. Síðan flugvélarnar komu til sögunnar, hafa menn aflað mik- illar nýrrar þekkingar í sögu jarðfræðinnar, því að flugvél- arnar geta farið yfir það, sem engum manni var fært áður. Meðal annars var áður algjör- lega órannsafeaður suðaustur- hlutinn af Venezuela, milli fljót- anna Orinico og Amazon. Eru þar svo miklir frumskógar að engum manni var talið fært að brjótast í gegnum þá. En á þess- um slóðum fannst nú hinn hái foss, er ber langt af öllum foss- um á jörðinni. Árið 1935 var maður nokkur, sem Angel hét, á flugi yfir þess- um slóðum, og kom hann auga á fossinn fyrstur manna. Þess vegna er fossinn við hann kend- ur og kallaður Angelfoss. En ekki tókst Angel að mæla hæð hans, og ekki heldur þeim öðr- um flugmönnum er seinna fóru þar yfir. Er það og hrein tilvilj- un ef hægt er að sjá fossinn all- an vegna hins mikla úða, sem þar kemur upp og fyllir gljúfrin fyrir neðan hann. Þokusamt er einnig þarna í háfjöllunum. Fyrstu myndirnar voru teknar af fossinum 1947. Það gerði ung- frú Ryth Robertson, sem þá var að taka myndir fyrir fréttablöð, en hafði áður verið stríðsfrétta- ritari. Til þess að ná þessum myndum varð hún að fljúga inn í gljúfrin fyrir neðah fossinn, og var það mjög hættulegt vegna þess hvað þar var þröngt, en flugvélin varð að snúa við í gljúfrunum til þess að geta flogið út úr þeim aftur. Eftir þetta vaknaði mikill á- hugi fyrir því að mæla hæð foss- ins, en það var ekki unt nema menn kæmust upp í gljúfrin. Þá var það, að Mr. Lowrey, starfs- maður hjá Socony Vacuum Oil Company í Venezuela, tók sér fyrir hendur að gera út leiðang- ur þangað. Var það þó ekkert áhlaupaverk. Þeir urðu að fara eftir ánum í eintrjáningsbátum, draga þá þar sem straumharðast var, bera þá fram hjá fossum og flúðum, og þó var lífsháski að ferðast á þeim, því hvað af öðru fyllti þá. Ekki gátu þeir haft með sér annan mat en nið- ursoðinn, því að vegna hita og rigninga hlaut allt annað nesti að skemmast. Rigningarnar voru svo miklar að aldrei var á þeim þurr þráður, og auk þessa ætl- aði bitvargur (skæðar flugur) al- gjörlega að gjöra út af við þá. Ungfrú Robertson var með í ferð inni. Komust þau að lokum að fossinum í björtu veðri og tungls ijósi, og segir hún að það hafi verið svo dásamleg sjón að horfa ú fossinn, að það hefði marg- borgað alla erfiðleikana. En okki máttu þau vera þarna leng- ur en þrjá daga, vegna þess að uiatvæli þeirra voru af skorn- um skamti. Þó tókst þeim að u^æla fossinn og gera ýmsar mik- ils verðar athuganir á honum °g umhverfinu. Þess má geta að loiðangursmenn höfðu með sér Rovafzos Flower Shop 253 Notre Dame Ave. WINNIPEG manitoba Bus. Phone 27 989—Res. Phone 36 151 Our Specialtles: WEDDING CORSAGES COLONIAL BOUQUETS FUNERAL DESIGNS MU* 1. ChrUtle, Proprietreu Formerly with Robinson & Co. loftskeytatæki og gátu því alltaf haft samband við umheiminn. Sýnir það vel hvað nú eru breyttir tímar frá því er þeir Livingstone og Stanley voru að ferðast um frumskóga Afríku. Mælingar sýndu að fossinn er alls 3212 fet á hæð, en hann er brotinn á einum stað. Bein fall- hæð neðri hlutans er 2648 fet, og er það meiri hæð en á efri fossunum í Yosemite saman- lagt. Hér er því um langsamlega hæsta foss jarðarinnar að ræða. Hve gífurleg þessi fallhæð er, má marka á því, að hinn óbrotni foss er þrisvar sinnum hærri en Eiffelturinn í París, sjö sinnum hærri en Viktoriafossinn í Zambesi í Afríku, 19 sinnum hærri en Niagarafossinn, og ætt- um við að miða við eitthvað hjá oss, svo sem Dettiíoss, þá þyrfti að setja 11 slíka fossa hvern upp af öðrum til þess að jafnast á við neðri hluta Angel-fossins. ----☆----- Fossar eru auðvitað algeng- astir í fjöllum, en tveir af nafn- toguðustu fossum heimsins, — Viktoríafossinn og Niagarafoss- inn, eru svo að segja á sléttlendi, þar sem vatnið hefir hitt á lin jarðlög og getað grafið sig nið- ur. Niagarafossinn fellur fram af brún, sem er úr hörðum kalk- steini, en þar fyrir neðan hafa verið lausari bergtegundir, sem vatnið hefir unnið á. Sama máli er að gegna um Viktoríafossinn, nema að hann fellur fram af hraunbrún. Yosemite-fossarnir falla niður 1 djúpan farveg eftir skriðjökul. Er sá farvegur sjö mílna langur og þverskurður af honum er eins og V í laginu og dýptin er 4—5000 fet. Sums staðar hafa fossar mynd- ast vegna þess að þröskuldar hafa orðið í vegi fyrir vatns- rennslinu. Verður þá stöðuvatn fyrir ofan þröskuldinn, en vatn- ið steypist fram af neðri brún hans. Einkennilegastur af slík- um þröskuldafossum er í St. Johns ánni í New Brunswick. Með fjöru fellur fossinn fram til sjávar, en með flóði inn í ána. —Lesb. Mbl. Dánarfregn Mrs. Guðrún Jónsdóttir Guð- mundsson andaðist að heimili dóttur sinnar og tengdasonar, Mr. og Mrs. Davie, í Winnipeg- borg, 11. júní árdegis. Hún var fædd 30. des. 1862 í Hraun- hreppi í Mýrasýslu og ólst þar upp. Hún giftist Þorvaldi Guð- mundssyni. Þau fluttu vestur um haf 1887, settust brátt að í Sel- kirk og bjuggu þar. Þorvaldur andaðist í Selkirk 1936. — Börn þeirra eru: Jón, til heim- ilis í Selkirk; Einar, bóndi í East-Selkirk; Helga, Mrs. Ólafur Ólafsson, látin; Sigríður, Mrs. Davie, Winnipeg; Hólmfríður, Mrs. R. O. Romou, Winnipeg; Jónína, Mrs. Johnson, Winnipeg; Ella, látin 16 ára að aldri. Guðrún heitin var þreklunduð kona, er bar með stillingu erfiði og áföll ævidags síns — og gerði jafnan sit* bezta til að mæta öll- um skyldum lífs síns. Hún naut frábærrar heilsu til hárrar elli. Útför hennar fór fram frá kirkju Selkirk safnaðar þann 15. júní, að fjölmennu ástvinaliði hennar og mörgu fólki öðru viðstöddu. S. Ólafsson Presti nokkrum hafði verið boðið að messa í nágrannabæ, svo að hann fól aðstoðarpresti sínum að prédika í sinn stað. Þegar hann kom heim, spurði hann konuna sína, hvernig ræða aðstoðarprestsins hefði veríð. „Ó, það er lélegasta ræða, sem ég hefi nokkurn tíma heyrt“, svaraði hún. „Það var ekki nokk urt vit í henni“. Seinna um daginn hitt klerk- ur aðstoðarprest sinn og spurði hann, hvernig hefði gengið. Prýðilega“, var svaraði. „Ég hafði ekki tíma til að útbúa ræðu sjálfur, svo að ég tók eina af þeim, sem þú hefir samið, en varst ekki búinn að flytja“. Sögulegur vitnisburður „Við ráðum fyrst með sjónum seinni ára, hvað sagan markar rúnum blóðs og tára“. Orð þessi er þeim einum leyft að segja, sem með haukfránum augum horfir yfir sögulega at- burði fortíðarinnar. Má reynd- ar kalla orð þessi og mörg önnur sömu tegundar „Véfréttir“, sem skáldum er gefið að segja. Þetta verður auðsætt með því að ryfja upp ýmislegt, sem sag- an hefir sett á minnisspjöld sín. Hún markar það „rúnum blóðs og tára“. Það er næsta merki- legt að flest af því, sem manns- andanum hefir áunnist er mark- að „rúnum blóðs og tára“. Það hefir ávalt kostað ótal mann- raunir og líflát. Menn voru fús-. ir til að leggja allt í sölurnar til þess að ryðja braut hugsjónum sínum. Án þessa varð ekkert komist. Mun þetta vera sígildur sannleikur, sem skáldið er að minna menn á. Nú er það víst, að óteljandi eru þeir sem trú- lega börðust fyrir hugsjón sinni hvíla nú óskráðir og gleymdir eftir að hafa skilað verkefni sinu. Það er nokkur bót eins og Benedikt Gröndal kemst að orði: „Marmarinn enginn er yfir þeim fallna her. Sólin akín samt á hans daga“. Það er raunalegur sannleikur að tiltölulega fáir fá að njóta viðurkenningar á samtíð sinni. „Við ráðum fyrst með sjónum seinni ára“ o. s. frv. Það er aldrei létt að fórna öllu fyrir hugsjón sína. Þeir, sem það gera eru iðulega lýttir, lastaðir og líflátnir. Þeir hafa sýnilega unnið fyrir gýg. Það virðist helzt að ætla, að ævi slíkra manna hafi farið til spillis, en þó verður dómur sög- unnar allur annar. Að vísu er dómur sögunnar með tvennu móti. Til eru þeir menn, sem gátu sér ódauðlegan orðstír, en sá orðstír er í því innifalinn að gera eyingargarð sinn auðugan og öflugan án þess að hafa hliðsjón af hagsmunum annara. Menn, hraustir og her- fráir, sem nálega unnu heim allan þóttu ágætir á sinni tíð; en nú er svo komið að þeirra er sjaldan minst; frægð þeirra var fólgin í því að gera þá sjálfa fræga; nú er glæsimenska þeirra að miklu leyti gleymd. Menn, sem eitt sinn rituðu með mikilli snild, svo að nálega menn um víða veröld lásu rit verk þeirra; nú muna fæstir eft- ir mönnum þessum. Líka getur sagan þeirra manna sem blæddi í augum álit ann- ara svo mjög, að þeir sviptu þá lífi, eins og þegar Þorvaldur í Vatnsfirði Snorrason svipti lífi Hrafn Sveinbjarnarson, sem er talinn einn af göfugustu leik- mönnum á þeirri tíð. Starfsemi þessara flokka hef- ir sjaldnast reynst heiminum til heilla og blessunar. Saga þeirra er næstum í skúmaskoti, þar sem hún vekur litla eftirtekt. Aftur á móti hefir sagan skráð óafmáanlegu letri nöfn manna og minning, sem seint mun gleymast. Svo voru menn þessir ágætir, að „heimurinn átti slíka menn skilið“. En all-sjaldnast voru menn þessir í hávegum hafðir af samtíðarmönnum sín- um. Við lesum um vinina þrjá, sem getið er um í spádómsbók Daní- els spámanns; þeir virðast fjær viti sínu að bjóða byrginn hin- um volduga konungi. Nebúkanesar konungur lætur gera líkneski kostulegt, og legg- ur svo fyrir að allir menn skuli falla fram og tilbiðja líkneskið. Alþýða manna gengur að hinu gullna goði, en svo kemur á- reksturinn; þrír menn afsegja með öllu að tilbiðja þessa gyltu mynd. Umtalið um þessa sérvitringa berst til eyrna konungs; líf þess- ara manna er í veði; þeir eru dæmdir til aftöku, en bjargast þó fyrir guðlega vernd og hjá- stoð. Konungurinn verður for- viða og allmjög snortinn af at- burði þessum og skýlausum vitnisburði um almætti hins lif- andi guðs. En ekkl verður séð að þessi hrifning konungs hafi verið djúp eða varanleg; þess vegna býður hans þungbærari reynsla. Sagan af mönnum þessum staðfestir þann sannleika, að Guð hefir aldrei látið sig án vitnisburðar í hjörtum þeirra, sem óttast hann og stunda af hjarta, helgun og réttlæti. Það sannast löngum, að „Guðsmanns líf er sjaldan happ og hrós, held- ur tár og blóðug þyrnirós . Það mun sannast að samfara trúnni er ætíð nokkur þjáning eða jafnvel skilyrði til trúar- legrar þroskunar. Jóhannes skírari var einn af þeim mönnum, sem var dæmd- ur til að eyða dögum sínum ein- mana og misskilinn. Menn könn- uðust að vísu við ómælanlegan andans þrótt hans og djörfung; nokkrir skipuðust við hina ströngu betrunar prédikun hans, en sumir létu sér fátt um finn- ast; flestum var hann ráðgáta, hinn strangi boðskapur hans kom sér víða illa; hann fór einn síns liðs og var hataður af mörg- um. Líf hans var ævilöng út- legð; yfirgefinn og gleymdur sleit hann ævinni mað því að falla fyrir morðvopni hins versta manns. Fljótt álitið virðist að líf þessa einangraða manns hafi farið til spillis. Þó hlotnaðist honum sá vitnisburður: „Eigi hefir fram komið meðal þeirra, er af konum eru fæddir, meiri maður en Jóhannes skírari“. (Matt. 11.). Og nú þegar litið er til baka er hægt að glöggva sig á sögu- legri þjáningu fyrir æviferli þessa einangraða manns. Ávalt mun hann standa eins og klettur úr hafinu, eins og leiðarvísir og fyrirmynd öllum þeim, sem vilja og dirfast að ganga veg skyldu og réttlætis, og láta ekki hugfallast að feta braut þyrna og þistla. Því það mun yfirleitt flestra vegur á einn eða annan hátt. Flestum mun sú leið kunn. En í sporum þessara manna hafa oft sprottið rósir svo fagrar, að þær gleðja aldna og unga. Ritverk þeirra í bundnu og óbundnu máli lýsa um ókomnar aldir. Ekki þarf annað en að minn- ast ljóða Hallgríms Péturssonar og ótal annara fyr og síðar, sem hafa átt samleið með honum. „Við sjáum fyrst með sjónum seinni ára. hvað sagar markar rúnum blós og tára“. Rúnir blós og tára er það sem er ástæðan fyrir því, að sagan geymir gullu letri nöfnin. Það eru nöfn þeirra, sem með ósérplægni og fórnfýsi — „sjálfs- gleymsku“ svo að segja vörðu ævidögum sínum öðrum til heilla og blessunar. Það hefir viðgengist frá upp- hafi vega, að menn bera hróður á hvern annan, titlar og tignar- merki falla mönnum í skaut eins og fífan, sem fellur af trjánum að vordegi. En sagan sker úr því, hvaða gildi alt þetta hefir þegar fram líða stundir. Stund- um virðist það vera víst: „Nafn- bóta glansinn í felurnar fer. Þá ferlegur nálægist dauði“. Orðstír manna fylgir þeim iðu- lega til grafar, og þá er sagan öll. s. s. c. Business and Professional Cards Gamanleikarinn, Willie Col- lier, ferðaðist eitt sinn um með leikflokki, og heppnin var ekki með þeim. Eitt sinn var sýning í þann veginn að hefjast í borg nokkurri, og Willie stóð við gægjugatið á tjaldinu og var að telja áhorfendur. „Hvernig er í húsinu?“ spurði einn meðleikandinn. „Fínt , fínt“, svaraði Willie. „Það eru nokkrir þarna. En við erum enn í meiri hluta, gamli vinur, enn í meiri hluta“. PHONE 724 944 Dr. S. J. Jóhannesson SUITE 6—652 HOME ST. ViStalstími 3—5 eftir hádegi J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Ut_ vega peningalán og eldsábyrgfS, bifreifSaábyrgð o. s. frv. Phone 927 538 SARGENT TAXI PHONE 722 401 FOR QUICK. RELIABLE SERVICE DR. E. JOHNSON 304 EVEUNE STREET Selkirk, Man. Office Hours 2.30 - 6 p.m. Phones: Office 26 — Res. 230 Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson Lögfrœðingar 209 BANK OF NOVA SCOTIA BG. Portage og Garry St. Phone 928 291 CANADIAN FISH PRODUCERS, 'LTD. J. H. PAQE, Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish. 311 CHAMBERS STREET Office Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917 E HAGBORG FliEL PHOII 2ISSI W\ Offlce Phone 924 762 Res. Phone 726 115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BLDG. Offlce Hours: 4 p.m_ - 6 p.m. and by appointment. A. S. BARDAL 843 SHERBROOK STREET Selur likkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá beztL Ennfremur seiur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talsími 27 324 Heimilis talsími 26 444 Phone 23 996 761 Notre D&me Ave. Just West of New Matemity Hospital Nell’s Flower Shop Weddlng Bouquets. Cut Floweri. Funeral Designs, Corsages, Bedding Plants Nell Johnson 27 482 Ruth Rowland 88 790 Office 933 587 Res. 444 389 THORARINSON & APPLEBY BARRISTERS and SOLICITORS 4th Floor — Crown Trust Bldg. 364 Maln Street WINNIPEG CANADA SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- við, heldur hita frá að rjúka út með royknum.—Skrifið, simlð til KELLY SVEINSSON 625 WaU Street Winnipeg Just North of Portage Ave. Símar : 33 744 — 34 431 DR. H. W. TWEED Tannlæknir 508 TORONTO GENERAL TRUSTS BUBLDING Cor. Portage Ave. og Smlth St. Phone 926 952 WINNIFEG S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smilh St. Winnipeg PHONE 924 624 Phone 21101 ESTIMATES FREE J. M. INGIMUNDSON Asphalt Roofs and Insulated Siding — Repairs Country Orders Attended To 632 Slmcoe St. Wlnnlpeg, Man. DR. A. V. JOHNSON Dentist 506 SOMERSET BUILDING Telephone 97 932 Home Telephonpe 202 398 Talsími' 925 826 Heimilis 404 630 DR. K. J. AUSTMANN Sérfrœöingur í augna, eyma, nef og kverka sjúkdómum 209 Medical Arts Bldg. Stofutlmi: 2.00 til 5.00 e. h. DR. ROBERT BLACK Sérfræöingur t augna, eyma, nef og hálssjúkd&mum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrifstofusimi 923 815 Hsimasími 403 794 447 Portage Ave. Branch Store at 123 TENTH ST. BRANDON Ph. 926 885 GUNDRY PYMORE Limited British Quality Fish Nettino 58 VICTORIA ST. WINNIPEG Phone 928 211 Manager T. R. THORVALDSON Your patronage will be appreclated Minnist CETCL í erfðaskrám yðar. Dr. P. H. T.Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary's and Vaughan, Winnlpeg PHONE 926 441 PHONE 927 025 H. J. H. Palmason, C.A. H. J. PALMASON & CO. Chartered Accoontants 505 Confederation Life Bldg. WINNIPEG MANTTOBA PARKER, PARKER & KRISTJANSSON Barristers - Solicilors Ben C. Parker. K.C. B. Stuart Parker, A. F. Krlstjansson 500 Canadlan Bank of Commeree Chambers Wlnnlpeg, Man. Phone KJW JOHN A. HJLLSMAN, M.D., Ch. M. 332 MEDICAL ARTS BLDG. Offlce 929 349 Res. 403 288 G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH 404 SCOTT BLK, Sími 925 227

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.