Lögberg - 31.01.1952, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 31. JANÚAR, 1952
3
NÝÁRSÁVARP FORSETANS:
Vér þurfum meiri sanngirni, meira umburðar-
lyndi, meiri góðvild . . .
Forseti íslands, Sveinn
Björnsson, ávarpaði þjóðina
í útvarpi frá Bessastöðum á
nýársdag, eins og undanfar-
in ár, og brýndi það fyrir
mönnum, að til þess að
skapa þjóðinni betri fram-
tíð þyrfti að leggja meiri
alúð við uppeldi ungu kyn-
slóðarinnar. „Ræktun lýðs-
ins“, sagði forsetinn, „er
ekki vandaminni en ræktun
landsins“; en „góð menntun,
samúð og góðvild eru þau
leiðarljós, sem munu leiða
oss til betra lífs í landi
voru“. — Nýársávarp for-
setans er birt hér orðrétt.
I^NN ER ÁR LIÐIÐ í aldanna
** skaut. Eins og önnur ár skil-
ur það eftir misjafnar minning-
ar, sumar sárar, aðrar ljúfar.
Ég hefi ástæðu til að þakka
sérstaklega fyrir gamla árið —
alla þá alúð og hlýju, sem mér
\ar sýnd sjötugum og í sjúk-
leika mínum að undanförnu.
Einnig vil ég þakka viðtökur
þær, er ég hlaut á ferðum mín-
um um landið. Ég kom á nýjar
slóðir, hitti margt fólk, sem mér
var ókunnugt áður eða kunnugt
af afspurn einni.
Náttúrufegurð Islands er róm-
uð af útlendum og innlendum,
formfegurð fjallanna hrífur
hvern mann. Sífelldur breyti-
leiki í línum og litum mætir
auga ferðamannsins. En fulla
nautn af fegurð landsins og ann-
an skilning fá menn aðeins með
því að kynnast fólkinu, sem
byggir það. Þetta hefir verið
fyrri reynsla mín á ferðum
mínum um landið og staðfestist
hún fullkomlega á ferðum mín-
um 1 sumar. Kynni mín af fólk-
inu voru mér mikil uppörfun og
ollu mér aldrei vonbrigðum.
Hvorki varð ég var við barlóm,
vonleysi um framtíðina né van-
trú á landið og gæði þess. Víða
mátti sjá miklar framkvæmdir
undanfarinna ára og fullur á-
hugi ríkti um að halda í horfinu,
bæta við, sækja á brattann. Á
þetta við bæði um jarðrækt og
aðrar verklegar framkvæmdir.
Ég kom á fæðingarstað Jóns
Sigurðssonar, Hrafnseyri við
Arnarfjörð. Þótt fátt minni þar
nú á bernskuspor hinnar miklu
frelsishetju og aðeins standi
eftir af baðstofunni, sem hann
fæddist í, einn fallandi veggur,
er enn ilmur úr jörðu á þessum
stað. Byggðin þar er fámenn, og
víða annars staðar þar sem ég
kom hafði safnazt saman fleira
fólk. En þarna var þó meira af
ungu fólki, að því er mér virtist.
Á Hrafnseyri er óbrotinn
minnisvarði um Jón Sigurðsson.
Það er gott að höggva í stein
minningar um forna frægð og
unnin afrek til örvunar síðari
kynslóðum; en þjóð, sem horfir
fram og vill ekki einungis una
við ljóma liðins tíma, þarf fyrst
og fremst að leggja ajúð við
menntun og uppeldi æskulýðs-
ins, sem innan stundar á að leysa
hina eldri af hólmi.
Nú á tímum heyrast oft raddir
um það, sem miður er í fari ís-
lenzkar æsku, hóglífi hennar,
gleðifíkn og eyðslusemi. Margt
af þessu er rétt og fullkomið á-
hyggjuefni. En mér fihnst ekki
ástæða til þeirrar bölsýni, sem
stundum gætir í þessu sambandi.
Vér skulum minnast þess, að
slíkum dómum hefir ekki ein-
ungis æska vorra tíma orðið að
una. Æskuna og oss hin eldri,
sem slíka dóma fellum, virðast
stundum skilja mikil höf. Roskn-
ir menn gleyma því sumir furðu
fljótt, hvernig þeir voru sjálfir
í æsku. Ég vil með þessum orð-
um benda á, hve skeikulir dóm-
ar okkar geta verið, og hvetja
menn til að vera ekki miður
skyggnir á kosti unga fólksins
en galla þess, til að sýna skiln-
ing og mildi í dómum og leita
orsaka þess, sem aflaga fer. Vera
má, að nokkur sök finnist hjá
þeim, sem eldri eru. Þeir eru
margir, sem vanda um við æsku-
lýðinn, en hve margir eru þeir,
sem hann getur með stolti tekið
sér til fyrirmyndar?
Ef menn krefjast reglusemi,
elju og hófsemdar af fólkinu,
sem er að vaxa upp, þá verður
það að finna þessa kosti í fari
þeirra, sem ráða fyrir því. Ann-
‘ars er engin von um árangur.
Vér skulum gera oss ljóst, að
æskulýður nútímans hefir ekki
ástæðu til að vera hrifinn af allri
sinni arfleifð. Vá og voði hafa
sjaldan verið tíðari gestir í
mannheimi. Þegar æskan og ell-
in horfast í augu, þá er meiri á-
stæða fyrir hina eldri að líta
undan.
Ef vér tileinkum oss meira af
kjarna kristindómsins, þá myndi
ferill mannkynsins ekki sýna
eins miklar sjálfskapaðar hörm-
ungar og ráun ber vitni. Vér
þurfum að tileinka oss meiri
sanngirni, meira umburðarlyndi,
meiri góðvild, meira mildi. Vér
þurfum að læra að bera meiri
virðingu fyrir skoðunum hvers
annars, þótt oss greini á, en ætla
okkur ekki að dæma eða ráða
einir.
Það er trú mín, að þau vanda-
mál séu fá, sem eigi er unnt að
leysa með góðvild og gætni.
Æskan og íramtíðin eru óað-
skiljanleg hugtök. Ef vér viljum
skapa þessari þjóð betri tíð en
vér búum sjálfir við, þá þurfum
vér að leggja alúð við uppeldi
ungu kynslóðarinnar. Vér meg-
um ekki láta oss nægja, þótt vér
vitum, að oft vaxi styrkir stofn-
ar umhirðulaust á víðavangi, því
að kræklurnar eru miklu al-
gengari við slík skilyrði. Rækt-
un lýðsins er ekki vandaminni
en ræktun landsins; en allir vita
hvernig fer í þeim •efnum, ef
menn leggja sig ekki alla fram.
Hver kynslóð á að ala næstu
kynslóð upp og láta hana njóta
þess bezta, sem hennar eigin og
fyrri kynslóða reynsla hefir
skapað, gera hana skyggna á
bresti, sem háðu fortíð og nútíð
og benda á brautir, sem geta
leitt til meiri farsældar.
Góð menntun, samúð og góð-
vild eru þau leiðarljós, sem
munu leiða oss til betra lífs í
landi voru, því að hvort tveggja
er gott: landið og fólkið.
í þessari trú árna ég öllum
íslendingum árs og friðar.
A. B., 3. jan.
NOKKUR MINNINGARORÐ:
Aðalsteinn Johnson
Fæddur 21. apríl 1889 — Dáinn 30. okl. 1949
Það hefir dregist nokkuð að
minnast þessa manns, sem þó að
mörgu var merkur maður í sinni
stöðu, góður bóndi, vellátinn ná-
granni og vinur, og fyrsti frum-
herjinn af íslendingum í sínu
byggðarlagi og sem hefir eftir-
skilið mikið og velunnið æfi-
starf.
Aðalsteinn (bezt þekkur:
,.Steini“) var fæddur á Tjörnesi
í Suður-Þingeyjarsýslu. Voru
foreldrar hans Jakob Jónsson
og kona hans Guðrún Egilsdótt-
ir. Ungur var Steini tekinn til
fósturs af móðurbróður sínum
Ólafi Egilssyni og fyrri konu
hans Guðrúnu Gísladóttur og
með þeim fluttist hann vestur
um haf 1893. Ólafur settist að í
Argyle-byggð og dvaldi þar í 5
ár. Á þeim tíma missti hann
konu sína. Næst flutti Ólafur á-
samt Steina til Big Point (sem
nú er almennt kallað við Lang-
ruth)). Þar giftist hann í annað
smn: Svövu Magnúsdóttur frá
Bakka í Svarfaðardal í Eyja-
fjarðarsýslu. Þau hjón eignuðust
4 börn: Davíð, Ólöfu, Svein og
Guðjón, sem dó ungur. Ólst
Steini upp með þeim systkinum,
sem væri hann einn þeirra og
hélst sú vinátta og samband til
hins síðasta, þó vegir skildu, því
þau systkini hafa öll heimili í
eða nálægt Langruth.
Steini sótti skólanám sitt á
barnaskólann á Big Point. En
snemma mun hann hafa farið að
vinna, og ungur sótti hann
vetrarvinnu nokkra vetur norð-
ur að Narrows, og kynntist sá,
er þetta ritar, honum nokkuð á
því tímabili. En heimili sitt
hafði hann ávalt hjá Ólafi móð-
urbróður sínum og Svövu konu
hans á Big Point.
Árið 1912 giftist Steini Mar-
gréti Helgason, dóttur Josephs
Helgasonar bónda við Big Point
og konu hans Guðrúnar.
í tvö ár bjuggu þau hjón í
Big Point-byggðinni og þar
fæddist fyrsta barn þeirra,
Thelma Guðrún.
Big Point-byggð var þá al-
byggð og þröngt um landkosti
fyrir nýbyrjendur, svo þau hjón
ákváðu að leita fyrir sér um
meira landrými. Fluttu þau þá
til Beaverdam Lake, eigi langt
frá MacCreary. Munu nokkrir
fleiri landar frá Big Point hafa
flutt þangað um líkt leyti. Eftir
að hafa dvalið þar eitt ár álitu
Aðalsieinn Johnson
þau plássið ekki hentugt sem
framtíðar-gripaland og fluttu þá
til Lonely Lake, þar sem heimili
þeirra var ætíð síðan. Árið, sem
þau dvöldu við Beaverdam Lake
eignuðust þau tvíbura, tvær
stúlkur, sem síðar verða nafn-
greindar.
Þegar þau fluttust til Lonely
Lake var þar um engin þægindi
að ræða, en auðsjáanlega nógir
erfiðleikar framundan. Nágrann-
ar fáir og strjálir og af öðrum
kynflokkum, vegir bókstaflega
engir, en torfærur nógar, fen,
foræði og skógar, en þar höfðu
þau fundið það, sem að var leit-
að, nægilegt landrými til gripa-
ræktar lítið og ekkert notað.
Bjálkahús var réíst, sem víðar
var í þá daga, en húsakynnin
voru ekki verstu erfiðleikarnir,
heldur að draga að sér og koma
frá sér afurðum, þar sem ekki
var til nokkur vegarspotti og
stundum þurfti að höggva ill-
færar brautir gegnum erfiða
skóga til að komast kringum ó-
fær fen. Hvað sem fyrir kom
var öll læknishjálp með öllu ó-
hugsanleg í slíkurú plássum.
Það hefir því þurft meir en
meðalkjark og áræði að taka sig
upp frá vinum og vandamönn-
um með 3 ung börn og setja sig
niður á svo afskekktum og erf-
iðum stað. Efni munu einnig
hafa verið af mjög skornum
skamti. Nokkrir gripir, þau hross
sem nauðsynleg voru til vinnu
og aðdrátta og allra nauðsynleg-
ustu verkfæri.
Þar bættust við 10 börn og
má geta nærri að oft hafi verið
erfiðleikar á því tímabili, og
eins að hvorugt þeirra hjóna
hafi legið á liði sínu, því þrátt
fyrir fátækt, þungt heimili og
alla aðra erfiðleika brutust þau
áfram af eigin ramleik, og hafa
altaf verið fremur veitandi en
þiggjandi.
En er fram leið lagaðist nokk-
uð, fleiri settust að á þessu
svæði, verstu ófærur voru lagað-
ar svo nokkru léttara varð að
komast um, þó verulegar vega-
bætur kæmu ekki fyrr en fyrir
tiltölulega fáum árum.
En starf þeirra og áræði bar að
lokum góðan árangur, því á
seinni árum bjuggu þau þar
stórbúi og höfðu byggt upp á-
gætis heimili.
En Steini sál. naut stutt ávaxt-
anna af striti sínu. Hann var
hraustur alla sína daga, en
krabbamein lagði hann sem
marga fleiri í gröfina fyrir aldur
fram.
Ég hefi reynt hér í fáum
dráttum að gefa hugmynd um
frumbyggjaár þessara hjóna og
erfiðleika, þó þá sögu — þeirra
og margra annara — mætti bet-
ur segja og skýrar. En það er
kjarkur, áræði og dugnaður
slíkra frumbyggja sem mér
finnst þess virði að halda á lofti,
sem bending og fyrirmynd til
hinna yngri.
Samheldni og samvinna mun
ætíð hafa verið góð á því heimili,
bæði meðal hjóna og barna, sem
einnig hefir átt sinn þátt í góð-
um árangri.
Ég sagði í byrjun, að Steini
sál. hefði verið vellátinn og vin-
sæll meðal nágranna og er ó-
hætt að fullyrða að hann var
það meðal allra sem kynntust
honum. Ætíð kátur og spaugandi
og oft orðheppinn, var þar oft
glatt á hjalla, sem Steini var í
hóp. Að kunnugra sögn var geð-
prýði hans og jafnlyndi eins
hversdagslega. Það var ekki há-
tíðabúningur sem farið var í á
mannamót heldur hans eðlilega
framkoma. Er mér sagt, að hann
hafi sýnt léttlyndi sitt og jafn-
aðargeð til hins síðasta og borið
sjúkdóm sinn vel. Veit ég það,
að þá sjaldan fundum okkar bar
saman á því tímabili, gerði hann
alltaf lítið úr veikindum sínum,
en var kátur og spaugandi, eins
og honum var svo eðlilegt.
Af 13 börnum þeirra hjóna eru
11 á lífi, mjög mannvænlegur og
myndarlegur hópur. Elzti sonur
þeirra Christopher Jón drukkn-
aði ofan um ís á Manitobavatni
rúmlega tvítugur. Mesti efnis-
maður og vellátinn af öllum sem
hann þekktu. Var að þeim hjón-
um þungur harmur kveðinn við
hið sviplega fráfall hans. Stan-
ley Raymond, unglingspiltur, dó
mánuði á eftir föður sínum.
Á lífi eru:
Thelma Guðrún, gift Elmer
Taylor, Lonely Lake; Josphine
Fjóla, gift Marino Erlendsson,
hótelhaldara, Gladstone, Man.;
Ólafía Pearl, gift R. Lundström,
Red Lake, Ont.; Jsseph Soffaní-
us, kaupmaður við Eddystone,
Man., giftur Mettu Thorkelsson
frá Árnes, Man.; Leonard Aðal-
steinn, giftur Ethel Mailman frá
Bay End, Man., bóndi við Lonely
Lake; Lúella Margrét, gift Guð-
jóni Finney, bónda við Coyer,
Man.; Bertha Grace, ógift, til
heimilis í Gladstone, Man.; Helgi
Alexander, ágiftur, hótelhaldari
í Gladstone, Man.; Freeman
Leslie, ógiftur, heima hjá móður
sinn; Fríða Joanne, heima hjá
móður sinní; Audrey, símastúlka
í Gladstone, Man.
Aðalsteinn sál. hafði, sem und-
anfarið ber með sér, bæði kjark
og dugnað, var auk þess hraust'
menni og afkastamaður, er mér
sagt, að við vinnu sem önnur
tækifæri hafi hann ætíð verið
kátur og léttlyndur hvernig sem
aðstaðan var.
Hann var maður ráðvandur og
ábyggilegur, og hjálpaði því til
að halda uppi þeim heiðri, sem
fyrstu Islendingar hér unnu sér
að vera vandaðir og áreiðanlegir
í öllum viðskiptum.
Hans er sárt saknað af ekkj-
unni, barnahópnum efnilega,
fóstur-systkinum og fjölda vina
og nágranna, og mun minning
hans lengi lifa í hugum þeirra.
J. R. J.
Business and Professional Cards
PHONE 724 944
Dr. S. J. Jóhannesson
SUITE 6—«52 HO.ME ST.
Viötalatími 3—5 eftir hádetti
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDG. WINNIPEG
Fasteignasalar. Leigja hús. 0t_
vega peningalán og eldsábyrgS,
bifreiðaábyrgð o. s. frv.
Phone 927 538
Office 933 587 Res. 444 389
THORARINSON &
APPLEBY
BARRISTERS and SOLICITORS
4th Floor — Crown Truat Bldg.
364 Maln Street
WINNIPEG CANADA
SELKIRK METAL PRODUCTS
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hreinir. Hitaeiningar-
rör, ný uppfyndlng. Sparar eldi-
viB, heldur hita frá aS rjöka út
metS reyknum.—SkrifitS, simiB til
KELLY SVEINSSON
625 Wall Street Winnipeg
Just North of Portage Ave.
Símar: 33 744 — 34 431
DR. H. W. TWEED
Tannlækn ir
508 TORONTO GENERAL TRUSTS
BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smlth St.
Phone 926 952 WINNIPEG
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smilh Sl. Winnipeg
PHONE 924 624
Phone 21101
ESTIMATES
FREE
J. M. INGIMUNDSON
Asphait Roofs and Insulated
Siding — Repairs
Country Orders Attended To
632 Slmcoe St.
Winnipeg, Man.
SARGENT TAXI PHONE 204 845 PHONE 722 401 FOR QUICK. RELIABLE SERVICE
DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selkirk, Man. Offlce Hours 2.30 - 6 p.m. Phones: Office 26 — Res. 230
Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson Lögfræðingar 209 BANK OF NOVA SCOTIA BG. Portage og Garry St. Phone 928 291
CANADiAN FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAGE, Managing Directer Wholesale Dlstributors of Fresh and Frozen Fish. . 311 CHAMBERS STREET Office Ph. 28 328 Res. Ph. 73 917
áfK HAGBORG FUEl/?^ PHOME 21531 J-
Office Phone Res. Phone 924 762 726 115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BLDG. Office Hours: 4 p.m. - 6 p.m. and by appointment.
A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur likkiatur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá bezti. Stofnaö 1894 Sími 27 324
Phone 23 996 700 Notre Dame Ave. Opposite Maternity PaviUion, General Hospital. Nell’s Flower Shop Wedding Bouquets, Cut Flowers, Funeral Deslgns. Corsages, Bedding Plants NeU Johnson Res. Phone 27 482
GIMLI FUNERAL HOME
51 Firsl Avenue
N'ý útfararstofa með þeim full-
komnasta útbúnaði, sem völ er
á, annast virðulega um útfarir,
selur líkkistur, minnisvarða og
legsteina.
Alan Couch. Funeral Dixector
Phone—Business 32
Residence 59
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
506 SOMERSET BUILDING
Telephone 97 932
Home Telephonpe 2C2 398
DR. ROBERT BLACK
Sérfræöingur i augna, eyrna, nel
og hálssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy St.
Skrifstofusimi 923 815
Heimastmi 403 794
ÍIIDSIW
JEWELLERS
447 Portage Ave.
Brancn
Store at
123
TENTH ST.
BRAN00N
Ph. 926 885
GUNDRY PYMORE
Limited
British Quality Fish Nettina
58 VICTORIA ST. WINNIPEG
Phone 928 211
Manager T. R. THORVALDSON
Your patronage wiU be appreciated
Minnist
CETEL
í erfðaskrám yðar.
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary's and Vaughan, Wlnnlpeg
PHONE 928 441
PHONE 927 025
H. J. H. Palmason, C.A.
H. J. PALMASON & CO.
Chartered Acconntanta
505 ConfederaUon Life Bldg.
WINNIPEG MANITOBA
PARKER, PARKER &
KRISTJANSSON
Barrisfers - Solicitors
Ben C. Parker, K.C.
B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson
500 Canaðlan Bank of Commerce
Chambers
Wlnnlpeg, Man. Phone 923 M1
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Ðir.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
404 SCOTT BLK, Slmi 925 227
Rovalzos Flower Shop
253 Notre Dame Ave.
WINNIPEG MANITOBA
Bus. Phone 27 989—Res. Phone 36 151
Our Specialties:
WEDDING CORSAGES
COLONIAL BOUQUETS
FUNERAL DESIGNS
Mlss t. ChrlsUe, Proprietress
Formerly with Robinson & Co.