Lögberg - 12.06.1952, Page 1

Lögberg - 12.06.1952, Page 1
O Canada we stand on guard for thee íslendingar viljum vér allir vera 65. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 12. JÚNÍ, 1952 NÚMER 24 Alþingi ráðstafar 20 þúsund dollara fjárveitingu til - íslenzku fræðadeildarinnar við Manitobaháskóla Forseti Manitöbaháskólans, Dr. Gillson, hefir nýverið látið birta í dagblöðum borgarinnar yfirlýsingu um hina höfðing- legu fjárveitingu Alþingis til ís- lenzku fræðadeildarinar við há- skólann, er nemur 20 þúsund dollurum; tvær greiðslur hafa þegar farið fram, hin síðari alveg nýverið. Forseti hefir þegar þakkað hr. Steingrími Stein- þórssyni gjöfina og fagnar þar hinu glæsilega skrefi, sem með þessu sé stigið til enn aukinnar samvinnu og skilnings milli ís- lendinga austan hafs og vestan, og þá um leið meðal íslendinga og þjóðanna, sem álfu þessa byggja. Hér fara á eftir tvö bréf, sem skýra sig sjálf,' er formanni há- skólanefndarinnar, Dr. P. H. T. Thorlakson hafa borist, hið fyrra frá forsætisráðherra ís- lands, en hið síðara frá Thor Thors, sendiherra íslands í Canada og Bandaríkjunum: FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ Reykjavík 9. apríl 1952 Herra yfirlæknir Dr. Thorbjörn Thorlakson Winnipeg Eins og yður, herra yfirlæknir, er kunnugt veitti Alþingi í fyrra 80 þúsund íslenzkar krón- ur til kennarastóls í íslenzkum fræðum við háskólann í Mani- toba. Þykir ráðuneytinu rétt að skýra yður frá því, að á þessu ári eru einnig veittar í sama skyni 80 þús. krónur og jafn- framt var ákveðið að veita enn í tvö ár 80 þúsund krónur. Islendingum hér er ljóst, að þetta er eigi mikið framlag, enda væntum vér að fyrst og fremst verði litið á fé þetta sem vott vinsemdar og þakklætis að heiman fyrir elju og áhuga Vestur-íslendinga á því að halda tengslunum við land feðra sinna. Steingr. Steinþórsson Kosinn í forsetaembætti Séra Valdamar J. Eylands Á nýafstöðnu ársþingi Þjóð- ræknisfélags íslendinga í Vest- urheimi, var séra Valdimar J. Eylands kosinn í forsetaem- bætti; meðstjórnendur eru Dr. Tryggvi J. Oleson, Grettir L. Jóhannson, Grettir Eggertson, frú Ingibjörg Jónsson, Finnbogi prófessor Guðmundsson, Guð- mann Levy, Ólafur Hallsson og J. K. Laxdal. LEGATION OF ICELAND WASHINGTON 6. D.C. Dr. Thorbjörn Thorlakson, Winnipeg Clinic, Winnipeg, Manitoba, Canada Kæri Dr. Thorlakson: Utanríkisráðuneytið í Reykja- vík hefir falið sendiráðinu að greiða þér íslenzkar krónur 80,000.00, sem veittar eru til kennarastóls í íslenzkum fræð- um við háskólann í Manitoba á fjárlögum ársins 1952. Mér er ánægja að senda hér með ávísun að upphæð U. S. $4,901.96, og bið þig góðfúslega að undirrita og endursenda hjá- lagðar kvittanir. Með beztu kveðjum og óskum. Þinn einlægur, Thor Thors Failegt samsæti Um miðja fyrri viku komu hingað í kynnisför Thorolf Smith fréttaritstjóri dagblaðsins Vísis og frú, Hilmar Skagfeld og frú og Guðmundur Þorvalds- son bóndi á Litlu-Brekku í Mýrasýslu og frú hans Guðfríður Jóhannesdóttir; ferðafólk þetta kom sunnan frá Florida; hinar fyrrnefndu tvær konur eru dætur þeirra Litlu-Brekkuhjóna; frú Guðfríður var systir Ástu heitinnar, konu Helga Johnson frá Eskiholti í Borgarfirði. Á þriðjudaginn efndi fram- kvæmdarnefnd Þjóðræknisfé- lagsins til dagverðarboðs í Fort Garry hótelinu undir öruggri forustu hins nýja forseta síns, séra Valdimars J. Eylands, til heiðurs við gesti þessa, og fór samsætið hið bezta fram; auk forseta tóku til máls Finnbogi prófessor Guðmundsson, Einar P. Jónsson og Thorolf Smith, er þakkaði í drengilegri tölu þá sæmd, er gestahópnum hefði fallið í skaut með þessum vin- gjarnlega mannfagnaði. Smith-hjónin og hjónin frá Litlu-Brekku, fara innan skams til íslands, en Skagfeld-hjónin eru búsett í Florida-ríkinu. Fólk þetta fór suður til Banda- ríkjanna í gær. Háskólaprófessor í heimsókn Hingað kom til borgarinnar á þriðjudaginn í stutta heimsókn Gylfi Þ. Gíslason alþingismaður og prófessor í viðskiptafræðum við Háskóla íslands, en hann hefir dvalið í Bandaríkjunum síðan þann 19. apríl síðastliðinn og þangað var hann boðinn af utanríkisráðuneyti amerísku þjóðarinnar; hann hefir heimsótt ýmissar helztu mentastofnanir sunnan landamæranna, svo sem Harvardháskólann; er prófessor Gylfi kom vestur í vor mintist Lögberg að nokkru ættar hans, mentunar og ævistarfs, og er því engu þar við að bæta öðru en því, að bjóða hann innilega vel- kominn; megin erindi prófessors Gylfa til Winnipeg var það, að heilsa upp á föðurbróður sinn, hr. Hjálmar Gíslason, 66 Mary- land Street, og mun hann búa á heimili hans hinn stutta við- dvalartíma sinn hér um slóðir. Stáliðnaðarverkfallið í Banda- ríkjunum stendur enn yfir og hefir þegar haft ískyggileg áhirf á alt atvinnulíf þjóðarinnar; út- flutningur stáls hefir verið bann- aður að Canada undanskildu. Endurkosinn í fram- kvæmdarstjórn Ásmundur P. Jóhannsson Samkvæmt upplýsingum frá Árna G. Eggertsyni, var Ás- mundur P. Jóhannsson bygg- ingameistari, endurkosinn til tveggja ára í framkvæmdar- stjórn Eimskipafélags Islands á nýafstöðnum aðalfundi félagsins í Reykjavík; var þetta falleg og réttmæt viðurkenning fyrir mikilvægt starf Ásmundar í þágu félagsins og íslenzkra menningarmála yfirleitt. Árni lögmaður, sem enn á sæti í fram- kvæmdarnefndinni, lét þess enn- fremur getið, að félagið hefði á- kveðið að greiða hluthöfum 4% í arð fyrir árið, sem leið. Framboðsfrestur til forsctakjörsinsrcnn út í gærkvöldi Framboð séra Bjarna Jónssonar lagi fram í gær siuit hæstu leyfilegu meðmælendatölu fólks af öllum stéttum og því sem næst jafnt úr öllum kjördæmum landsins. Sat umdæmisþing norskra þjóðræknisfélaga Dr. Richard Beck sat þing fjórða umdæmis norskra þjóð- ræknisfélaga í Fargo, N. Dakota, föstudaginn og laugardaginn 6.—7. júní sem fulltrúi Grand Forks deildar félagsskaparins (Sons of Norway), en hann er fyrrv. forseti hennar. Þingið sóttu fulltrúar deilda félagsins í N. Dakota, Montana, Alberfa, Manitoba og Saskatchewan. Dr. Beck var framsögumaður aðalnefndar þingsins (“The Com- mittee on Resolutions”) og var einnig kosinn fyrsti af sjö full- trúum umdæmisins, er ásamt forseta þess og ritara, sitja alls- herjarþing norskra þjóðræknis- félaga 21.—23. ágúst í Minne- apolis, en það sækja fulltrúar víðsvegar úr Bandaríkjunum og Canada. Epli handa íslendingum Lagðir af stað í heimsókn til íslands Með framboði séra Bjarna var lögð fram hæsta leyfileg með mælendatala fólks af öllum stéttum og flokkum hvaðanæfa af landinu og sem næst því hlut- fallslega jafnt úr öllum kjör- dæmum landsins. Framsóknar- flokkurinn og Sjálfstæðisflokk- urinn standa þó fyrst og fremst að framboði hans og hefir með- mælendasöfnunin farið fram á vegum þeirra. Þjóðin fylkir sér nú með degi hverjum fastar um séra Bjarna Jónsson. Enda er það samboðið þeirri einingu, sem á að ríkja um kjör forsetans. Framboð Ásgeirs Ásgeirsson- ar var einnig lagt fram í gær, en blaðinu var ekki kunnugt um, er það fór í pressuna, hvort fram- boð Gísla Sveinssonar hefði verið lagt fram. —TIMINN, 25. maí Að lokinni síðari heimsstyrj- öldinni gáfu íslendingar Þjóð- verjum mikið af þorskalýsi, og einnig nokkuð af fatnaði og pen- ingum. Var þetta notað einkum til hjálpar þýzkum börnum. Nú hafa Þjóðverjar vottað ís- lendingum þakklæti sitt með því að senda þeim þrjú tonn af úr- valseplum. Amerísk flugvél var fengin, fyrir milligöngu séra John H. Deutschlander, sem er í þjónustu ameríska flughersins, til að fljúga með eplin til Is- lands. Myndin sýnir dr. Sigurgeir, biskup Islands, þar sem hann þakkar Deutschlander presti fyrir eplin. Gísli Jónsson Síðastliðirtn þriðjudagsmorgun lögðu af stað héðan úr borginni flugleiðis til íslands, þeir G. F. Jónasson forstjóri Keystone Fisheries Limited og Gísli Jóns- son ritstjóri; þessir ferðafélagar koma til Reykjavíkur í dag, og þar kemur Mr. Jónasson til fundar við konu sína, sem þá kemur til landsins með flugvél frá Prestwick á Skotlandi, ásamt G. F. Jónasson frú Guðrúnu Blöndal, en þær fóru til Evrópu með skipi frá Montreal. Gísli mun verða ná- lægt þrem mánuðum í ferðinni, en Guðmundur er væntanlegur heim um næstu mánaðamót. Gísli er ættaður frá Háreksstöð- um í Jökuldalsheiði, en Guð- mundur er hér fæddur, en rekur ætt sína til Hróarsdals í Skaga- firði. Fyrirlestur og myndasýning í Morden Samkoma verður í .Morden mánudagskveldið 16. júní kl. 8.30. (Ekki sumartími). Mun Finnbogi Guðmundsson flytja þar erindi en Áskell Löve sýna litmyndir frá íslandi. Fréttir af þjóðræknisþinginu Kvöldsamkoma Þjóðræknis- félagsins, fór fram, eins og aug- lýst var, á þriðjudagskvöldið í Fyrstu lútersku kirkju, var hún fjölsótt og tókst um alt hið bezta. Próf. Tryggvi Oleson stýrði samkornunni með lipurð og háttvísi. Frú Alma Gíslason söng nokkur lög við mikla hrifn- ingu áheyrenda. Ungfrú Dorothy Jónasson spilaði á fiðlu; hefir hún lagt sérstaka stund á fiðlu- nám við tónlistarskóla í Toronto síðastliðið misseri, og augsýni- lega tekið miklum framförum. Með upplestri á íslenzkum kvæðum skemmtu þeir Ragnar Stefánsson og Óskar Sigvalda- son, ungur sveinn frá Árborg, vakti hið hreina tungutak hans mikla hrifningu. Dr. Richard Beck kynnti ræðumann kvölds- ins, séra Friðrik A. Friðriksson, prófast frá Húsavík. Flutti hann skemmtilegt og fróðlegt erindi með því fjöri og dramatiska krafti sem honum er eiginlegur. Frekari umsögn um störf þingsins birtist í næstu viku. Merkilegur nómsferill Og blærinn var svo Ijúfur og hagstæður Eftir R. H. GRENVILLE Lýkur prófi í dýralækningum Svo heiðskýrt var loftið og hagstæður blær, sem heillandi skuggsjá ’hinn töfrandi sær. Það engum gat hugkvæmst að ástin í burt að óvörum fyki, sem visnandi jurt. Það grunaði’ ei neinn um svo dýrðlegan draum, að dvínandi bærist í ólgandi straum, í ráðleysi hrektist að hrjóstrugri strönd og hyrfi’ ei til baka í draumanna lönd. Hver elskandi sál væri útsýn og spök, sem eygði í byrjun, og fyndi því rök, að ástin er hverful um æfinnar sæ, og enginn á stöðugan, hagstæðan blæ. Með þess konar útsýni ástvinir tveir, — þó öldum og stórviðri mætt hafi þeir — ei skelfast? — Þeir bíða eftir bjartari dag og búast í æfilangt samferðalag. Sig. JÚL Jóhannesson þýddi Wilhelmina Jónsson Mabb, B.A. Þessi unga kona lauk í vor Bachelor of Arts prófi við Mani- tobaháskólann og hlaut þá silfur medalíu þessarar æðstu menta- stofnunar fylkisins, en á Öðru námsári sínu við háskólann hlaut hún Sir Humphrey Gra- ham námsverðlaun og árið eftir önnur tvenn námsverðlaun, Isbister og Andrew Browning Scholarships. Þessi ágæta námskona er dóttir Þóru Jónsson frá Útey í Laugardalnum og manns henn- ar, Gísla Jónssonar frá Hólshjá- leigu í Norður-Múlasýslu, en þau hjón bjuggu um langt skeið á Gimli. Dr. Jóhann V. Johnson ÞeSsi ungi og efnilegi maður, sem nýlega hefir lokið með ágætiseinkunn prófi í dýralækn- ingum við háskólann í Toronto, er sonur hinna merku hjóna Mr. og Mrs. J. B. Johnson á Gimli; hann er nú kominn til Spring field, 111., og hefir tekist þar á hendur embætti hjá landbúnað ardeild ríkisins. Dr. Jóhann er kvæntur maður og eiga þau hjón kornunga dóttur. íslendingur reisir fyrirmyndar stórhýsi Hinn frábæri athafnamaður, G. F. Jónassbn forstjóri og eig- andi Keystone Fisheries Ltd., er byrjaður á að láta reisa stór- hýsi á Alexander Avenue hér í aorginni, er verður hvorttveggja í senn frysti- og fiskflökunarhús; þar verða einnig skrifstofur fé- lagsins; þetta verður langvand- aðasta bygging slíkar tegundar í Sléttufylkjunum og þó víðar væri leitað; byggingin er upp á þrjár hæðir og er 90 fet á lengt en 75 fet á breidd; í bygging- unni verður tekið á móti fiski og fiskur sendur þaðan til markaðar; svo stórbrotið er fyrirtæki Guðmundar, að hann mun vera mesti fiskútflytjandi í þessu landi; hann rekur jafn- framt mikla fiskverzlun í bænum Pas hér í fylkinu og á þar einnig stórbyggingar.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.