Lögberg - 12.06.1952, Page 3
LÖGBERG. FIMTUDAGINN, 12. JÚNÍ, 1952
3
Hann hefir skrifað margar bækur, sem einkum eru ætlaðar
guðfræðideildinni. Síðustu stórvirki hans á þessu sviði eru
skýringar hans á Markúsarguðspjalli og Israelssaga hans.
Þegar þetta er skrifað, er hann staddur í Kaupmannahöfn,
situr þar á söfnum og ritar Ævisögu Jesú, sem mun verða
fyrsta vísindaritið, er fjallar um það efni á íslenzkri tungu.
Þá er einnig gefið út mikið af eldri guðfræðibókum. Þrátt
fyrir alla flokkadrættina og skoðanamun í trúarefnum, virð-
ist þjóðin enn meta sína gömlu og mestu meistara, þá Jón
Vídalín og Hallgrím Pétursson. Ritverk þeirra eru gefin út
aftur og aftur í æ * skrautlegri útgáfum. Nú síðast hafa
Passíusálmarnir verið gefnir út með orðalykli; muni
menn orð eða vers einhvers staðar úr sálmunum, þá
er hægt að finna staðinn samstundis með orðalyklinum.
Þetta þarfaverk hefir prófessor Björn Magnússon unnið,
og nú hefir hann tekizt í fang það, sem enn meira er, að
semja Orðalykil að Nýja Testameniinu. Önnur blöð og tíma-
rit, sem um trúmál fjalla og nefna ber, eru Bjarmi, sem á
sér langa sögu, Víðförii, málgagn hinna íhaldssömu guð-
fræðinga, 5. ár, gefinn út af prófessor Sigurbirni Einarssyni,
Heimilisblaðið, Norðurljósið, Dagrenning, málgagn British
ísrael stefnunnar, Gangleri, tímarit guðspekinga, en
Morgunn, tímarit Sálarrannsóknarfélagsins, hefir áður verið
nefnt.
Auk þessa eru einstakir menn eða útgáfufyrirtæki öðru
hverju að gefa út bækur um trúmál. Árið, sem ég var þar,
komu út tvær bækur eftir vel þekkta lækna og vöktu þær
allmikla athygli. Annar þeirra var próf. Dungal; nefndist
bók hans Blekking og Þekking. Var bók þeirri víst ætlað
að reka smiðshöggið á kristni landsmanna. Var haft mjög
hátt um hana í auglýsingum, og hún nefnd bók bókanna,
sem allir hefðu beðið eftir með eftirvæntingu. En það verð-
ur ekki ævinlega mikið úr því högginu, sem hæst er reitt.
Bókin olli, að sögn, almennum vonbrigðum, og mun lítið
lesin. Páll Kolka, læknir á Blönduósi, kunnur kristindóms-
vinur, sem einnig hefir skrifað allmikið um trúmál, skrifaði
ýtarlegan ritdóm um bókina og komst í niðurlagi hans að
þeirri niðurstöðu „að nályktin af doðranti þeim þyki ekki
í húsum hæf“. Hin bókin, eftir dr. Árna Árnason, lét ekki
nærri eins mikið yfir sér. Nefnist hún: „Þjóðleiðin iil ham-
ingju og heilla." Bókin er trúvörn, sem byggist á víðtækri
þekkingu og gjörhygli og lifandi sannfæringu um gildi
kristinnar trúar.
Merkilegur vottur um áhuga leikmanna á Islandi á
kristilegum málum, virðist mér útgáfa Jobsbókar í ljóðum,
eftir Ásgeir Magnússon frá Ægissíðu, áður kennara og nú
skrifstofumann. Hér er maður, sem á efri árum leggur á
sig það feikilega erfiði að brjóta efni þessa stórbrotna skáld-
rits til mergjar, hikar jafnvel ekki við það að læra að nokkru
hebreska tungu til að geta komizt þeim mun betur inn í
andrúmsloft frumritsins, og fær svo bókina í hendur þjóð
sinni í ljóðum á óvenjulega fögru og kjarnmiklu máli. Dóm-
bærir menn bera lofsorð á þýðingu þessa fyrir nákvæmni
hennar í að þræða bæði hugsun, ljóðahætti og orðalag
frumritsins.
Á hinu glæsilega heimili biskupsins, Gimli, í Reykja-
vík, er málverk eitt, meðal margra annarra, sem vakti at-
hygli mína. Það er af íslenzkum sveitapresti við jarðarför
í stórhríð. Allt er grátt og snævi þakið. Líkmennirnir híma
á grafarbakkanum, reiðubúnir að leysa af hendi hinztu
skyldu sína við hinn framliðna. Presturinn stendur þar
berhöfðaður og flytur hinztu kveðjumál. Það gildir einu
hvernig veðrið er, í öllum skilningi. Kirkjan þjónar þjóðinni
í blíðu og stríðu.
Mér fannst málverk þetta táknrænt um kirkju Is-
lands. Hún stendur mitt í margvíslegum stormum, sem
um hana blása, og það eru ekki allt vorvindar. Margvís-
legur kenningaþytur lemur hana; hún er lítils metin af
mörgum, ríkisvaldið, sem hún er háð, hefir í mörg horn að
líta, skammtar henni úr hnefa. En þjóðinni þykir samt
vænt um hana; söfnuðirnir vilja ekki fyrir nokkra muni
missa prestana, eins og ljósast kom fram í umræðum Al-
þingis um prestakallafrumvarpið, sem nú er nýlega afgreitt.
Var í upphaflegri mynd þess ráðgert að fækka þeim
að mun. En þjóðin reis á móti þessu og vann sigur. „Prest-
inn megum við ekki missa,“ sagði gamall bóndi á Norður-
landi við mig, „hann er okkar bezti maður.“ Þannig mun
almenningur hugsa yfirleitt, og er það sízt að undra, því
að prestarnir á íslandi hafa jafnan verið alþýðufræðarar og
vinir fólksins, og auk þess fætt og fóstrað marga mestu
áhrifamenn þjóðarinnar. Þessi stofnun á nú á að skipa
fjölmennu og betur menntuðu starfsliði en nokkru sinni
fyrr, og aldrei á síðari árum hafa jafnmargir ungir menn
undirbúið sig fyrir hið kennimannlega embætti sem nú,
enda eru nú laun prestanna orðin sambærileg við láuna-
kjör annarra embættismanna landsins, en sú grilla er góðu
heilli horfin, að prestvígðir menn séu um leið vígðir ævi-
langri og sárri fátækt.
Kirkja íslands stendur enn í storminum. En það er
henni hollt. Hún stælist við það og styrkist. Það er hætt við
að menn gerist latir og sofni í logninu. Prestarnir, sem ég
kynntist á íslandi, voru hvorki latir né syfjaðir. Þeir voru
glaðvakandi, áhugasamir um embætti sín og vel út búnir
til svars og varnar fyrir skoðanir sínar, sem að vísu eru
nokkuð sundurleitar. En kirkjan stendur róleg, umburðar-
lynd, frjáls, en þó föst við þann málstað, sem hún er helguð:
að þjóna Guði og flytja fagnaðarerindi Jesú Krists til lands-
ins barna. Lífsmeiður þjóðkirkju íslands er enn traustur;
á henni sannast það, sem skáldið segir um tréð, sem spratt
af frækorninu smáa:
„Það vantar ei ennþá hin ísköldu él,
og orma, sem vilja þess rót naga í hel:
en hvernig sem fella það farið er að,
þeir fá því ei grandað, né eyðilagt það.“
—SAMEININ GIN
Alþjóðleg sókn gegn krabbameini
Fyrsta sunnudaginn í apríl má
vænta þess að sjá í blöðum
flestra menningarþjóða greinar
um einn stærsta bölvald nútím-
ans, krabbameinið. Hefir Alþjóða
samband krabbameinsfélaga,
sem á aðsetur í París, mælst til
þess við félagsdeildir sínar víðs-
vegar um heim, að þær þennan
dag sérstaklega leiti til almenn-
ings um að aðstoð í erfiðri bar-
áttu við þennan sjákdóm.
Skyldan til að berjast við
mannskæðan s j ú k d ó m hvílir
ekki aðeins á yfirvöldum, vís-
indamönnum og læknum, heldur
einnig á sérhverjum þegni þjóð-
félagsins. Að sjálfsögðu verða
læknar að hafa forgöngu í slík-
um málum, en án stuðnings veru
legs hluta þjóðarinnar ná þeir
skammt. Sú aðstoð, sem almenn-
ingur getur veitt í baráttunni við
krabbameinið, er mjög mikils
verð. Með samúð sinni og áhuga
ljær hann þeirri baráttu öflugan
síðferðalegan stuðning. Það er
vísindamanninum, sem fæst við
rannsókn meinsins, hvatning í
starfi sínu að verða þess var, að
því sé gaumur gefinn. Það er
einnig hvatning lækninum í dag-
legu starfi hans að vita það, að
almenningur hafi augun opin
fyrir því og geri til hans háar
kröfur. Á fleiri vegu geta menn
almennt stutt þessa baráttu, og
er fjárhagslega aðstoðin ein
leiðin til þess.
Krab.bameinsfélögin vinna ein
göngu að því að bæta aðstöðuna
til varnar og sóknar í því stríði.
Þau eru tengiliður milli almenn-
ings, heilbrigðisyfirvalda og læk-
na. Mörg verkefni þeirra krefj-
ast fjár, og í því tilliti megna
flestir að r é 11 a hjálparhönd.
Loks er ótalið það stuðnings-
atriði ,sem hver og einn getur og
á að veita. Það er í því fólgið, að
menn geri sér far um að kynnast
þeim óvini, sem átt er í höggi við.
Fáfræði er ekki vænleg til sig-
urs. Það hefir mikla hagnýta þýð
ingu, að menn flestir viti nokkur
d e i 1 i á byrjunareinkennum
krabbameins, viti það t. d. að það
fer ævinlega hægt af stað og er
meinleysislegt í byrjun. Upphafs
einkennin eru alltaf óljós og geta
átt við fjölmarga aðra sjúkdóma.
Þau geta aðeins boðað mönnum
það, að vissara sé að leita læknis
í rannsóknarskyni.
Fyrir þremur árum var fyrsta
krabbameinsfélagið stofnað hér
á landi. Nú eru þau þrjú og
starfa sem deildir í Krabbameins
félagi Islands, sem stofnsett var
á síðastliðnu sumhi. Þessi félög
hafa snúið sér til almennings um
'stuðning og vissulega hlotið góð-
ar undirtektir. Þau hafa yfirleitt
mætt skilningi og samúð. Fjöldi
einstaklinga og félagshópa hafa
styrkt þau fjárhagslega til starf-
semi sinnar. Loks munu fjöl-
margir læknar geta vottað það,
að hin almenna fræðslustarf-
semi félaganna hefir þegar orðið
til þess að beina sjúklingum í
tæka tíð til læknismeðferðar, að
svo miklu leyti sem um slíkt
verður dæmt á skömmum tíma.
Allt þetta ber íslenzkri alþjóð
fagurt vitni og gefur góðar vonir
um, að baráttan gegn erkióvinin-
um meðal sjákdóma geti með tíð
og tíma orðið giftumikil hér á
landi. Alfred Gíslason
— TÍMINN, 6. apríl.
París hituð með kjarnorku 1960
5 ára kjarnorkuáæilun hefst á
þessu ári
Frakkar kaupa þungl vain
í Noregi
París (UP). — Frakar ætla
að vera búnir að koma fyrir
kjarnorku-upphitun hér í
borg árið 1960.
Francis Perrin, er hefir með
höndum yfirstjórn kjarnorku-
mála Frakka, lét svo um mælt
við fréttaritara UP fyrir
skemmstu, að Frakkar muni
fyrst og fremst hugsa um að
nota kjarnorkuna til iðnaðar-
þarfa. Með tilliti til þess verður
hafin framkvæmd fimm ára á-
NYTT
"SEAL-TITE
LOK
Heldur
vindlingatóbaki
þínu fersku
rr
ætlunar á því sviði á þessu ári.
„Þegar henni hefir verið
hrundið í framkvæmd, munum
við verða svo nærri því marki
að framleiða kjarnorku fyrir
iðnaðinn, að þá mun ekki taka
nema tvö ár eða um það bil að
reisa verksmiðjú, er framleiði
og nýti þessa orkulind", sagði
Perrin meðal annars. „Þá verður
svo komið, að við getum hitað
alla París með kjarnorku, eða
nota hana til að knýja stór haf-
skip.“
Brfeiar eru byrjaðir
Brezka kjarnorkustöðin í Har-
well byrjaði fyrir skemmstu að
nota ýmis auka-efni, sem til
falla, til að hita hús, en það er
þó ekki í nærri eins stórum stíl
og ætlunin er hjá Frökkum.
Frakkar eru sjálfum sér nógir
að því er úráníum snertir. Þeir
eiga námur í miðhálendi lands-
ins, en auk þess gera þeir ráð
fyrir að hefja vinnslu í nýjum
námum í N.-Afríku, Madagask-
ar og V.-Afríku. Eiga þær að
nægja þeim til framkvæmdar
á fimm-ára-áætluninni.
Kaupa „þungt vatn"
Til þess að koma upp nýrri
kjarnorkustöð til að hita París
hafa Frakkar fest kaup á fimm
lestum af þungu vatni í Noregi
fyrir 500 milljónir franka, en
Norðmenn fengu á móti hreinsað
grafít.
I „miðstöð“ þeirri, sem gera á
fyrir París, verður hitinn yfir
20°C., en slíkri hitun stórra
svæða fylgir mikill sparnaður á
kolum og öðru eldsneyti, sem
kemur sér vel fyrir Frakka.
—VÍSIR, 3. april
Business and Professional Cards
1 S. O. BJERRING
Dr. P. H. T. Thorlakson Canadian Stamp Co.
WINNIPEG CLJNIC St. Mary’s and Vaughan, Wlnnlpeg PHONE 926 441 RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smiih St. Winnipeg PHONE 924 824
J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignaaalar. Leigja hfls. Ut_ vega peningalfln og eldsábyrgS, bifreiðaábyrgð o. s. frv. Phone 927 538 Phone 21101 ESTIMATES H»hFF. J. M. INGIMUNDSON Asphalt Roofs and Insulated Siding — Repalrs * Country Orders AtteodeO To 632 Simcoe St. Wlnnipeg, Man.
SARGENT TAXI PHONE 204 845 PHONE 722 401 FOR QUICK, RELIABLE SERVICE GIMLI FUNERAL HOME 1 51 Firsl Avenue Ný útfararstofa með þeim full- komnasta útbúnaðl, sem vitl er á. annast virðulega um útfarir, selur líkkistur, minnisvarða og legsteina. Alan Couch. Funeral Direcior Phone—Business 32 Residence 59
DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selkirk, Man. Office Hours 2.30 - 6 p.m. Phones: Office 28 — Res. 230
DR. A. V. JOHNSON Dentist 506 SOMERSET BUILDING Telephone 97 932 Home Telephonpe 202 398
—
Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson LögfrœOimgar 209 BANK OF NOVA SCOTIA BG. Portage og Garry St. Phone 928 291 DR. ROBERT BLACK Sérfrœöingur i augna, eyma, nef og hálssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrifstofusimi 923 815 Heimasimi 403 794
CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAGE, Managing Directcr Wholesale Dlstributors of Fresh and Frozen Fish. 311 CHAMBERS STREET Office Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917 ComforÉex the new sensation for the modern girl and woman. Call Lilly Maithews. 310 Power Bldg., Ph. 927 880 or evenings. 38 711.
Office Phone Res. Phone 924 762 726 115 Dr. L. A. Sigurdson 828 MEDICAL ARTS BLDG. Offlce Hours: 4 p.m. - 8 p.m. and by appolntment. GUNDRY PYMORE Limited British Quality Fish Fettino 58 VICTORIA ST. WINNIPEG Phone 928 211 Manager T. R. THORVALDSON Your patronage wili be appredated
A. S. BARDAL LTD.
FUKERAL HOME
843 Sherbrook Street
Selur líkkistur og annast um út-
farir. Allur fltbflnaCur sá bezti.
Stofnaö 1894 Simi 27 324
Minnist
í erfðaskrám yðar.
Phone 23 996 700 Notre Dame Ave. PHONE 927 025
Opposite Matemity Pavillion,
General Hospital. H. J. H. Palmason, C.A.
Nell’s Flower Shop H. I. PALMASON A CO.
Weddlng Bouquets, Cut Flowers. Chartered Acconntante
Funeral Designs. Corsages,
Beddlng Plants 505 Confederation Life Bldg.
Nell Johnson Res. Phone 27 482 WINNIPEG MANITOBA
Offlce 933 587 Res. 444 389 PARKER, PARKER &
THORARINSON & KRISTJANSSON
APPLEBY Barristers - Solicitors
BARRISTERS and SOLICITORS Ben C. Parker. K.C.
4th Floor — Crown Trust Bldg. B. Stuart Parker. A. F. Krlstjansson
364 Maln Street 508 Canadlan Bank of Commerce
WINNIPEG CANADA Chambers
Wlnnlpeg, Man. Phone 923 W1
SELKIRK METAL PRODUCTS G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeinlngar- Keystone Fisheries
rör, ný uppfynding. Sparar eldi- við, heldur hita frá að rjflka öt Limited
með reyknum.—Skrifið, slmið til Wholesale Distributors of
KELLY SVEINSSON 625 Wall Street Winnlpeg FRESH AND FROZEN FISH
Just North of Portage Ave. 404 SCOTT BLK, Simi 925 227
Símar: 33 744 — 34 431
DR. H. W. TWEED
Tannlœknir Bullmore Funeral Home
508 TORONTO GENERAL TRUSTS Dauphin, Manitoba
BUILDING
•Cor. Portage Ave. og Smith St. Bigandi ARNI EGGERTSON, Jr.
Phone 926 952 WINNTPEG
Creators of
Distinctive Pringting
Columbia Press Ltd. Kaupio Logberg
695 Sargenl Ave., Winnipeg
Phone 21804