Lögberg


Lögberg - 12.06.1952, Qupperneq 4

Lögberg - 12.06.1952, Qupperneq 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 12. JÚNÍ, 1952 Lögberg Gefið út hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED 695 SARGENT AVENUB, WINNIPEG, MANITOBA Utanáskrift ritstjðrans: EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENTJE, WINNIPEG, MAN. PHONE 21804 Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram The "Lögberg” is printed and published by The Columbia Press Ltd. 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada Authorized as Second Class Mail, Post Oííice Department, Ottawa Sveinn Björnsson, forseti íslands Eftir prófessor RICHARD BECK Ræða flutl við minningaralhöín í sambandi við ársþing Þjóðræknisfélags íslendinga í Vesturheimi, Winnipeg, mánudaginn 2. júní 1952. Það hefir verið haraingja íslenzku þjóðarinnar, að hún hefir á örlagastundunum í sjálfstæðis- og fram- sókrfarbaráttu sinni átt foringja, sem voru þeim vanda vaxnir að verða vel og farsællega við tímans kröfum og beina þjóðinni braut til nýrra afreka og sigra í at- hafna- og menningarlífi hennar. í þeirri fríðu fylkingu stendur Sveinn Björnsson, fyrsti forseti hins endurreista íslenzka lýðveldis, fram- arlega, og skipar þar virðulegan sess og varanlegan. Hann var um forustuhæfileika og mannkosti verðugur arftaki Jóns Sigurðssonar forseta og annarra braut- ryðjenda í stjórnfrelsisbaráttu íslendinga, enda hafði Sveinn Björnsson unnið sér slíkar ástsældir með löngu og þjóðnýtu starfi sínu, og ekki sízt í forsetasessinum, að það var þjóðarsorg heima á ættjörð vorri, er sú fregn barst, að hann hefði látist snemma morguns þ. 25. janúar síðastliðinn. Fjallkonan draup höfði í djúpri sorg yfir missi eins sinna ágætustu sona. Um Svein Björnsson mátti hið sama segja og skáldið sagði í fögr- um erfiljóðum um föður hans, Björn Jónsson, hinn mikilhæfa foringja í frelsisbaráttu íslendinga: „Saga við brjóst hans byrgir hvarm og grætur, býður í nafni íslands góðar nætur.“ Og lát Sveins Björnssonar vakti söknuð víða um lönd utan íslandsstranda, eins og fram kom eftirminni- lega í hinum fjölmörgu hlýju samúðarkveðjum frá þjóð- höfðingjum, ríkisstjórnum, félagssamtökum og ein- staklingum, kveðjur, er jafnframt báru því órækan vott, hversu víðtækrar virðingar og vináttu forseti íslands naut bæði sem þjóðhöfðingi og persónulega. Sviplegt fráfall hans snerti einnig, að vonum, sér- staklega næma strengi í brjóstum vor íslendinga vestan hafsins, því að hann átti í vorum hópi fjölda vina og aðdáenda; hafði hann og með mörgum hætti látið í ljósi vinarhug sinn í vorn garð. Það er því í alla staði sæm- andi, og í rauninni bein þakkarskylda, að hans er minnst með þessari minningarathöfn. Engum stóð það heldur nær, að efna til slíkrar athafnar, en Þjóðræknisfélagi íslendinga í Vestrheimi, því að Sveinn Björnsson for- seti hafði, eins og kunnugt er, sýnt félaginu þann mjkla sóma að gerast Heiðursverndari þess, og lýsti það, eins og svo margt annað af hans hálfu, skilningi hans á þjóð- ræknisbaráttu vorri samhliða hlýhug hans til vor landa hans hérna megin hafsins. Honum var það full Ijóst, að íslendingar, hvar sem þeir eru í sveit settir, og meðan þeir eiga það nafn skilið, eru allir þegnar í hinu íslenzka ríki andans og hluthafar í hinum sameiginlega menn- ingararfi. Hinum látna forseta lýðveldisins íslenzka, er var maður vitur og þjóðrækinn, skildist það mörgum betur, að skáldið hafði rétt að mæla, er hann fór þessum fleygu orðum um náið samband ættjarðar vorrar og barna hennar: „Saga þín er saga vor, sómi þinn vor æra, tár þín líka tárin vor, tignar landið kæra!“ Og nú, þegar mér hefir fallið í skaut hið veglega hlutverk, að minnast forseta íslands, Sveins Björns- sonar, verður mér eðlilega efst í huga mynd hans, eins og ég sá hann á hátindi glæsilegs æviferils hans, á há- tíðlegustu stund lífs hans, að Lögbergi þ. 17. júní 1944, er hann á hinum mikla frelsis- og fagnaðardegi íslenzku þjóðarinnar hafði verið kosinn fyrsti forseti hins endur- reista lýðveldis hennar. Mér hljóma í eyrum fagnaðar- ópin frá mannfjöldanum, er gullu við, þegar forseti sam- einaðs Alþingis lýsti því yfir, að Sveinn Björnsson væri réttkjörinn forseti íslands, og mátti þar heyra rödd ís- lenzku þjóðarinnar. Festa og virðuleiki svipmerktu Svein Björnsson, er hann vann forsetaeiðinn á hinum fomhelga stað þjóð- arinnar á þeim söguríka degi, og auðséð var, að þess- um manni var treystandi til giftusamlegrar forustu í málum þjóðarinnar á örlagaþrungnum umbrotatímum. Jafnframt ljómaði af svip forsetans sú ljúfmennska og hógværð, sem honum voru jafn eiginlegar sem glæsi- mennskan og virðuleikinn í framkomu. Samruni þess- ara eiginleika í fari Sveins Bjömssonar gerðu hann einnig um annað fram eins ástsælan af alþjóð manna og raun bar vitni. Jafn ríkt í hug verður mér á þessari minningar- stundu fyrsta ávarp hins nýkjörna forseta til þjóðar- innar, er hann flutti að Lögbergi, og var íturhugsað og drengilegt, alvömþrungin lögeggjan til dáða og hjarta- heit bæn fyrir fósturjörðinni. Hóf forseti mál sitt með því að minna á það, að þegar hann var af Alþingi kjörinn ríkisstjóri í fyrsta skipti réttum þrem árum áður, hefði hann lýst því yfir, að hann liti á það starf sitt „framar öllu sem þjónustu við heill og hag íslenzku þjóðarinnar.“ Síðan mælti hann: „Ég bað Guð að gefa mér kærleika og auðmýkt, svo að þjónusta mín mætti verða íslandi og íslenzku þjóðinni til góðs. Síðan eru liðin þrjú ár, sem hafa verið erfið á ýmsan hátt. En hugur minn er óbreyttur. Ég tek nú við þessu starfi með sama þjónustuhug og sömu bæn.“ Hvatti forseti þjóðina síðan til sameiningar og samstarfs, með því að minna hana á hið fagra fordæmi, sem forfeður hennar gáfu henni með friðsamlegri kristnitökunni að Lögbergi 944 árum áður, þegar ann- ars horfði til fullkominnar innanlandsstyrjaldar milli heiðinna manna og kristinna. Lauk forseti þessu fyrsta ávarpi sínu með eftirfar- andi bænarorðum: „Nú á þessum fornhelga stað og á þessari hátíðarstundu bið ég þann sama eilífa Guð, sem þá hélt verndarhendi yfir íslenzku þjóðinni, að halda sömu verndarhendi sinni yfir íslandi og þjóð þess á þeim árum, sem vér nú eigum framundan.“ Fagurt og eggjandi ávarp forsetans snart djúpa strengi í sálum þúsundanna, se'm á hann hlýddu, og hylltu hann örlátlega að málalokum; menn vissu, að hér fylgdi hugur máli, að orð hans voru sprottin beint undan hjartarótum hans, áttu sér sterkar rætur í traustri skapgerð hans og fastmótaðri lífsskoðun. Sveinn Björnsson hafði áratugum saman, með víðtæk- um og mikilvægum störfum í þjóðar þágu, sýnt í verki þjónustulund sína og trúnað við málstað þjóðarinnar. Þess vegna var það einnig í hennar augum, að minnsta kosti alls þorra hennar, eðlilegt og sjálfsagt, að hann yrði fyrsti forseti lýðveldisins. Margt stuðlaði einnig að því, að Sveinn Björnsson var um aðra fram sérstaklega vel til þess fallinn að skipa þann virðingarsess fyrstur íslendinga. Hann var kvistur á meiði kjarnmikilla íslenzkra ætta, svo sem fyrr getur, sonur Sveins Björnssonar, ritstjóra og síðar ráðherra, eins hins ótrauðasta og dáðasta forustumanns í stjórnfrelsis- og menningar- baráttu íslendinga; í móðurætt stóðu að Sveini Björns- syni jafn traustir stofnar. Hann varð því fyrir hinum heilbrigðustu og þjóðlegustu áhrifum í föðurfarði; á hinu mikla menningarheimili foreldra sinna glæddist honum í brjósti ættjarðarást og framsóknarhugur, trú á framtíð íslands og trúfesti við málstað þess. Sveinn Björnsson naut einnig ágætrar menntunar til undirbúnings margþættu og mikilvægu ævistarfi, en hann lauk lögfræðiprófi við Kaupmannahafnarháskóla rúmlega hálf-þrítugur, og stundaði málafærslustörf framan af árum í Reykjavík. Þá ber þess eigi síður að geta, að Sveinn Björnsson var úr hópi hinnar bjartsýnu og framsæknu aldamóta- kynslóðar íslendinga, en hugsjónir og stórhugur hennar enduróma í svipmiklum og eggjandi aldamótaljóðum íslenzkra öndvegisskálda. Aldamótakynslóðin gerði að kjörorði sínu þessa lögeggjan Hannesar Hafsteins: „Aldar á morgni vöknum til að vinna, vöknum og týgjumst, nóg er til að sinna. Hátt ber að stefna, von við traust að tvinna, takmark og heit og efndir saman þrinna.“ Jafn minnisstæð urðu þeirri kynslóð þessi spöku áminningarorð Mnars Benediktssonar: „Hver þjóð, sem í gæfu og gengi vill búa, á Guð sinn og land sitt skal trúa.“ Föðurminning Ég hugsa til þín hljóður í dag, helmóða legst yfir bæinn. Alt hjúpað er dimmum drunga brag, og dauflega færist hvert hjartaslag, er saknaðar sorginni eyðir. Mér finst að sál mín sé fjötrum fest eins og fley, sem er strandað við æginn eða vængteptur fugl, er að lokum legst og lengur ei þreytir við heiminn né verst, þá feigð honum friðinn greiðir. Tíminn hylur tára döpur ár, trega þrunginn vonarleysis blæinn, andans græðir dýpstu sveðju sár. og sorgum mæddar vermir þreyttar brár, og helmyrkri í heiðríkju breytir. ☆ ☆ ☆ ☆ í æsku þú skildir við ættjarðar láð, eldmóði þrungin var framsóknar vonin. Og víkingsins arfleifð, hin dugandi dáð, til drenglyndis studdi fjalldala soninn. Þú áttir stefnufestu og þrekgott þor, að þola nepjugustinn ævidagsins. Þótt tíðum væru af kulda kalin spor, þinn kjarkur skein til hinzta sólarlagsins. Á „Odda“ þínar orkulindir runnu sem óstöðvandi foss til marks að ná. Þar allar þínar vonir bjartast brunnu, þar brautin ein til hinztu hvíldar lá. Frá sálu þinni boðar blíðum glampa og björtum geislum stafa í hjarta mitt. Þar afrek þín á skærum loga lampa í ljúfri minning eftir nafnið þitt. Franklin Johnson í þessum anda hóf Sveinn Björnsson þegar snemma á árum störf sín landi og lýð til heilla, sem bæjar- stjórnarfulltrúi í Reykjavík og alþingismaður höfuð- borgarinnar árum saman, og sem forgöngumaður stofn- unar fjölmargra félaga til framfara og þjóðþrifa, meðal þeirra Eimskipafélags íslands og Rauða kross íslands, er lýsir annars vegar umbótahug hans í atvinnu- og viðskiptamálum og hins vegar djúpstæðan áhuga hans á mannúðarmálum. Með sendiherrastarfi sínu í Danmörku, og fulltrúa- starfi miklu víðar um lönd, í nærri tvo áratugi, gerðist Sveinn Björnsson brautryðjandi á því sviði og lagði traustan grundvöll að íslenzkri utanríkisþjónustu, jafn- framt því sem hann vann þjóðinni aukna virðingu og vináttu út á við; en það er samhljóma dómur allra þeirra, sem til þekktu, að hann hafi verið frábær full- trúi Íslands á erlendum vettvangi, virðulegt prúðmenni í allri framgöngu og snillingur við samningaborðið. Það var því hreint engin tilviljun, að Alþingi kaus Svein Björnsson einum rómi ríkisstjóra Islands 17. júní 1941, og endurkaus hann næstu tvö árin; né heldur hitt, að hann var við endurreisn lýðveldisins að Lögbergi 17. júní 1944 kosinn fyrsti forseti þess, og sjálfkjörinn 1945 og 1949. Auk margra og þjóðnýtra starfa sinna á fyrri árum innan lands, hafði Sveinn Björnsson með fjölþættri starfsemi sinni á erlendum vettvangi bæði unnið þjóð sinni ómetanlegt gagn og hlotið í því starfi þá reynslu, sem gerði hann framúrskarandi hæfan til þess að skipa æðsta og virðingarmesta sess landsins. Hann gat litið málin af hærri sjónarhæð en almennt gerðist, því að hann hafði staðið fyrir utan og ofan erjur og flokkaríg á ættjörðinni og vanist á að hugsa og starfa sem full- trúi þjóðarheildarinnar. Hann reyndist einnig hinn far- sælasti maður í forsetasessinum, ávann sér traust og virðingu þjóðarinnar, og varð henni mikilsvert sam- einingartákn og samhuga. Honum tókst, eins og rétti- lega hefir sagt verið, að skapa forsetaembættinu al- þýðlegan tignarsess í hugum íslendinga. Naut hann þar að sjálfsögðu aðstoðar hinnar ágætu og vinsælu konu sinnar, er lifir hann, ásamt sex mannvænlegum börnum þeirra. En íslenzka þjóðin minnist hins fyrsta forseta lýð- veldis síns eigi aðeins sem glæsilegs þjóðhöfðingja, viturs stjórnmálamanns og mikilvirks athafnamanns, sem markað hafði mörg og varanleg framfaraspor í þróunarsögu hennar um hálfrar aldar skeið og ritað nafn sitt ógleymanlega í sögu hennar; íslenzka þjóðin minnist forseta síns eigi síður fyrir frábæra ljúfmennsku hans og hjartahlýju, mannkostamannsins, sem var friðarberi og sáttasemjari í þjóðlífinu, við vaxandi vin- sældir almennings. Göfug og há-kristileg lífsskoðun Sveins Björnsson- ar forseta lýsir sér fagurlega í þessum orðum úr síð- ustu áramótaræðu hans til íslenzku þjóðarinnar: „Ef vér tileinkuðum oss meira af kjarna kristin- dómsins, þá myndi ferill mannkynsins ekki sýna eins miklar, sjálfskapaðar hörmungar og raun ber vitni. Vér þurfum að tileinka oss meiri sanngirni, meira umburð- arlyndi, meiri góðvild, meiri mildi. Vér þurfum að læra að bera meiri virðingu fyrir skoðunum hvers annars þótt oss sjreini á, en ætla okkur ekki að dæma eða ráða einir. Það er trúa mín, að þau vandamál séu fá, sem eigi er unnt að leysa með góðvild og gætni.“ EJins og vænta mátti um jafn sann-þjóðrækinn mann og Sveinn Björnsson forseti var, lét hann sér annt um hag og framtíð hins íslenzka kynstofns í Vesturheimi, og kom það fram með mörgum hætti. Má sérstaklega á það minna, að það var eitt af fyrstu embættisverkum hans eftir að hann var orðinn ríkis- stjóri íslands að tala á hljómplötu ávarp til vor Vestur- íslendinga, er lýsti miklum hlýleik og drengskaparhug í vorn garð, og dró athyglina að þeim böndum blóðs og sameiginlegra erfða, sem tengja oss við heimþjóð vora. Megum vér á þessari stundu vel minnast eftir- farandi orða úr þeirri kærkomnu kveðju: „Ykkar saga er saga íslands. Þá sögu er ekki lokið að skrifa ennþá. Og þið eigið ykkar þátt í að skrifa þá sögu. Eigum við ekki að koma okkur saman um að reyna að skrifa hana sem bezta, íslandi til gagns og sóma?“ Hér hefir Sveinn Björnsson vitanlega í huga þann grundvallar sannleika, að hver íslendingur, hvar sem hann á dvöl, er með lífi sínu og starfi að skrifa blað í sögu ættþjóðar sinnar. Það skyldum vér íslandsbörn í landi hér ávalt bera í minni. í þeim ræktarhug minnumst vér með virðingu og þakklæti hins mikilhæfa og ástsæla fyrsta forseta ís- lenzka lýðveldisins; samúðarhugur vor streymir á þess- ari stundu heim um haf til ástvina og ættmenna hins látna þjóðhöfðingja, til íslenzku ríkisstjórnarinnar og ættþjóðarinnar allrar. Mætti fagurt fyrirdæmi forsetans verða oss áminning um frjósamt starf í þágu þeirrar þjóðar, sem vér erum hluti af og eigum þegnskuld að gjalda, og jafnframt áminning um framhaldandi trúnað við hið bezta og lífrænasta í menningararfi vorum. Guð blessi minningu Sveins Bjömssonar, fyrsta forseta hins endurreista íslenzka lýðveldis! Jafnframt því sem vér óskum þess, að ættjörðin megi eignast sem flesta sonu honum líka um drenglund og dáðríki, biðjum vér henni blessunarorða í bænarorðum skáldsins: • « „Yfir voru ættarlandi, alda faðir, skildi halt. Veit því heillir, ver það grandi, virstu’ að leiða ráð þess allt. Ástargeislum úthell björtum yfir lands vors hæð og dal. Ljós þitt glæð í lýðsins hjörtum, ljós, er aldrei slokkna skal.“

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.