Lögberg - 12.06.1952, Page 5

Lögberg - 12.06.1952, Page 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 12. JÚNl, 1952 5 AHLGAMAL IWENNA Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON ERU ALLAR JAFNRÉTTISKRÖFUR KVENNA RÉTTMÆTAR? í>ótt konur í vestrænum lönd- um hafi öðlast meiri og víðtæk- ari réttindi heldur en þær hafa nokkru sinni áður notið, og þótt starfssvið þeirra hafi víkkað á ,alla vegu og þær eigi þess kost að stunda margs konar atvinnu utan heimilis, sem þær áður áttu ekki aðgang að, eru margar stúlkur og konur ennþá sár- óánægðar yfir ýmiskonar órétti, er þeim finnst þær vera beittar. Þeim finnst að karlmaðurinn sé ávalt tekinn fram yfir konuna, er þau sækja um stöðu, sem bæði eru jafnhæf til að skipa hvað snertir menntun og hæfi- leika; ennfremur fái konur ekki sama kaup fyrir sömu vinnu; þá sé og meiri örðugleikum bund- ið fyrir konur að fá aðgang að læknis- lögfræðinga- og guð- fræðinámi og að ýmissu öðru námi heldur en karlmenn; þetta mun rétt vera að miklu leyti. En hver er þá orsökin? Þetta mál hefir fleiri en eina hlið, eins og flest önnur mál, og ekki er hægt að komast að réttri niðurstöðu nema því aðeins að öll rök og allar aðstæður séu teknar til greina. Eins lengi og heimili eru við líði, sú stofnun, sem þjóðfélagið grundvallast á, má ganga út frá því sem sjálfsögðu, að mikill meiri hluti kvenna gerist hús- mæður og konur njóti þeirrar tryggingar, að eiginmenn þeirra sjái þeim og börnum þeirra far- borða eftir að þær giftast. Svo lengi sem þetta fyrirkomulag viðgengst hlýtur þjóðfélagið að veita karlmönnum betri aðstöðu bæði til menta og atvinnu. Það virðist sanngjarnt. Það er satt, að til eru konur, sem ekki giftast og enn aðrar, sem halda áfram starfi sínu utan heimilis eftir að þær giftast, en það er enginn vegur að greina þær frá hinum, er munu taka að sér húsmóðurstörf, að minsta kosti ekki á ungdómsárum þeirra. Fyrir þessar ástæður fara atvinnurekendur varlega í það, að veita konum ábyrgðarmiklar stöður; þeir segja sem satt er, að þeir geti ekki reitt sig á, að konur starfi hjá þeim til lengd- ar, að þær einbeiti ekki hugan- um að störfum sínum eða leggi allan hug á, að fullkomna sig svo í starfsgreinum sínum að þær verði hæfar til að taka að sér ábyrgðarmestu stöðurnar. Þetta er eðlilegt, því flestar stúlkur hafa að minsta kosti hálfan hugan við það að giftast góðum manni og stofna eigin heimili, og verða þeirri stundu fegnastar þegar þær losna við að fara dagsdaglega í vinnu í skrif- stofum, verzlunum, verkstæðum eða í gðra utan heimilisvinnu. Þótt pólitískir öfgaflokkar reyni að telja konum trú um að þær séu nokkurs konar píslar- vottar þjóðfélagsins, þá er það víst, að kjör kvenna yfirleitt á þessu meginlandi eru betri en nokkurs staðar annars staðar á hnettinum og jafnvel betri en karla, ef allt er tekið til greina. — Hin svokallaða kvenréttinda- barátta hefir farið út í öfga og gert margar konur eigingjarnar og heimtufrekar. Þær heimta ýmis konar réttindi, en taka ekki með í reikninginn þau hlunnindi, sem þær njóta sem konur. Konur eru til dæmis ekki her- skyldaðar, þótt konur geti leyst af hendi ýmisleg störf í sam- bandi við herinn og geri það líka margar af sjálfsdáðum, en þær eru ekki skyldaðar til þess. ser Þær eru ekki skyldaðar sam- kvæmt lögum að sjá mönnum sínum farborða, ef þær skilja við þá og oftast fá mæðurnar að hafa börnin hjá sér þegar hjónin skilja. Konur og börn hafa og forgangsrétt að björgun, ef um lífshættu er að ræða, eins og til dæmis af sökkvandi skipi. Flest ar kurteisisvenjur eru konunni í vil og tillit tekið til þess að hún er minnimáttar líkamlega. Þá er það og venja, að piltar upp á þann hugunarhátt, sem er að ná yfirhöndinni. Til dæmis birtast nú oft í auglýsingum um eldavélar og önnur innanhúss tæki myndir af hjónunum og er karlmaðurinn klæddur svuntu og er að aðstoða konu sína við matreiðsluna eða við uppþvott- inn. Þetta getur nú verið gott og blessað einstöku sinnum, en það gengur nokkuð langt, ef konur ætlast til þess, að heimilisfaðir- inn striti allan daginn fyrir þeim og heimilinu og eigi síðan, eftir að hann kemur heim, að aðstoða þær við húsverkin. — Kröfur og heimtufrekja slíkra kvenna spillir málstað kvenná ýfirleitt, því að karlmenn eru ekki þær dulur, að þeir þoli slíkan yfirgang til lengdar. En svo er annar hópur kvenna, er skiptir þúsundum og ef til vill miljónum — konur, hafa gifst illa, og þurfa að taka til sinna ráða til að sjá heimil- inu farborða, og fátækar ekkjur með börn og hinn mikli fjöldi ógiftra kvenna, sem þurfa að vinna utanheimilis fyrir sjálfum og skyldmennum sínum; þessar konur eiga rétt á því, að sérstakt tillit sé tekið til þeirra, að þær fái að njóta fullkominna réttinda á við karlmenn í at- vinnulífinu, því þær leysa sams konar skyldur af hendi og karl- menn; þær viðhalda heimilun- um, en þau eru og hafa verið frá alda öðli máttarstólpar hvaða þjóðfélags sem er. Það er fyrir réttindum þessara kvenna, sem við verðum að berjast, en ekki fyrir kröfum hinna, sem færa sér gefi stúlkum, sem þeim líst vel MINNINGARORÐ: Magnús Sigurðsson F. 5. ágúst 1883 — D. 4. maí 1952 í nyt öll þau hlunnindi, sem á, gjafir og þeir borgi fyrir allan kostnað, er þau fara á skemtanir. Margt fleira mætti telja í þessu sambandi, en þetta nægir til að um sýna, að konur njóta nokkurra forréttinda -og sumra ekki lítil- vægra, að minsja kosti ættu konur að hugsa sig um tvisvar áður en þær varpa þeim frá sér fyrir þau vafasömu réttindi að taka að sér karlmannsstörf á öllum sviðum atvinnulífsins fyr- ir sama kaupgjald og karlmenn. Kjör húsmæðranna hafa farið síbatnandi á síðustu áratugum. Tækni nútímans hefir látið þeim í té allskonar tæki er létta þeim hússtörfin; læknavísindin hafa dregið úr hættunni í sambandi við fæðingu barna þeirra; skól- arnir hafa að miklu leyti tekið að sér uppeldi barnanna; þær hafa nú miklu meiri tíma en áður til að taka þátt í félags- lífinu. Konur eiga nú yfirleitt við betri kjör að búa en menn þeirra; þessu til sönnunar eru skýrslurnar, sem sýna, að aldur kvenna er nú að meðaltali hærri en aldur karla; meðalaldur kvenna í þessari álfu er nú kom- inn upp í 71.5 ár, en aldur karla aðeins 65 ár. Hópur þeirra kvenna, sem ger- ist æ heimtufrekari, og hægt er að segja um, að ekki réttlæti til- veru sína á nokkurn hátt með starfi sinu í þágu heimilis eða í þágu mannfélagsins, fer sífelt vaxandi. Þær hafa einhvern veginn komist upp á lagið með það, að láta eiginmenn sína trúa því, að þeir eigi að láta þeim allt í té, sem þær krefjast, og að þær hafi að öllu leyti gegnt skyldum sínum við þá og lífið með því aðeins að vera kven- menn. Myndir, sem birtast í aug- lýsingum, eru oft táknrænar konur hafa notið sem konur og heimta síðan ekki aðeins jafn- rétti við karlmerin á öllum öðr- sviðum heldur og síaukin forréttindi. Safan á hraðfrystum fiski gengur vel Rætt við ELÍAS ÞORSTEINSSON Elías skýrði svo frá að á síðast- liðnu ári hefðu verið flutt út til Bandaríkjanna um 6000 tonn af karfaflökum. Óseld eru nú rúm- lega 1000 tonn, sagði hann, af fyrra árs afla. Vegna þess að sumarið fer nú í hönd, og sala á fiski þar vestra minnkar mikið yfir sumartímann, þá teljum við rétt, að hætta í bili að verka karfa fyrir Ameríkumarkað. KAUPENDUR LÖGBERGS Á ÍSLANDI Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna. Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir að snúa sér til mín. BJÖRN GUÐMU N DSSON FREYJUGATA 34 . REYKJAVIK Salan hefir gengið vel Salan á karfaflökum hefir annars gengið mjög sæmilega undanfarin missiri og karfinn líkar mjög vel. Gerum við því fyllilega ráð fyrir, að geta fram- vegis selt mjög mikið af þess- ari vöru ef karfaflökin verða ekki of gömul þegar þau koma á markað, og verkunin verður eins góð og hún hefir hingað til verið. Karfinn er seldur á stóru svæði um miðbik Bandaríkj- anna. Verður reynt að víkka þann markað á næstunni. En vegna þeirra birgða, sem nú eru óseldar, býst ég við, að við byrj- um ekki að útbúa karfa fyrir Ameríkumarkað fyrr en komið er fram í júní. „Þolinmæðin gjörir mórberja- blaðið að silki.“ (Orðskviður í Austur-álfu). En í íslenzka ríkinu hljóðar hann þannig: Þolinmæð- in þrautir vinnur allar.“ „Grisjast skógurinn!“ Þau orð hafa hljómað fyrir eyrum mér síðan dauðinn burtkallaði úr okkar fámenna íslenzka þjóðar- broti hér í Keewatin okkar vænsta og dygðaríkasta mann sinnar samtíðar, Magnús Sig- urðsson. Dauðinn gjörir oss alment skygnari á manngildi og störf samferðamanna vorra á lífsleið- inni, ekki sízt þegar um er að ræða vellátna menn gædda sem kostum dygða og þolgæðis. — Sannur sómamaður ávinnur sér traust og virðingu allra þeirra, er hann hefir kynni af, og sann- ir mannkostir eru máttugt vald engu síður en þekkingin — vér dáumst að gáfunum, en virðum mannkostina. Þessa eiginleika átti okkar góði samtíðarmaður, Magnús Sigurðsson, 1 ríkum mæli, og þess vegna stóðu hon um allar dyr galopnar og menn sóttust eftir að hann notaði þær sem oftast til þess að hann mætti þannig flytja inn í híbýli þeirra yl sinn og hið þolinmóða dagfar. Smámunir daglega lífsins sýna glögglega hvað í hverjum manni býr. Bezt má þekkja hvern mann af breytni hans við aðra menn. Hógværðinni er líkt farið og ljósinu, það varpar fögrum lit og blíðum blæ á alla hluti. Það megnar meir en há- reystin. Hver maður getur verið prúður og vinsamlegur í fram- komu við samtíðarborgara sína og starfsfélaga, þó eigi hafi úr veraldlegu góssi verið að spila, en það mun oftast nær hafa verið takmarkað. En Magnús hafði samt safnað auðnum bezta huga og hjörtum allra sinna samtíðarmanna, en það var hlý- hugur og einlægt vinarþel allra, því enginn vissi til að Magnús ætti nokkurn andstæðing. Sannleiksást, ráðvendni og þýðleg umgengni við alla menn eru einkunnir hins sanna sóma- manns. Sá, sem hefir þessa kosti sameinaða þreki og einbeittum vilja, er sannarleg hetja. Spill- ingin getur ekki lokkað hann, erfiðleikarnir ekki bugað hann. Hann þorir að gera það, sem hann veit að er satt og rétt, og hann hræðist ekki að segja sann- leikann hver sem í hlut á. Magnús Sigurðsson var gáf- aður maður, þó að hann nyti lít- illar ef nokkrar skólagöngu á yngri uppvaxtarárum sínum. En hann aflaði sér allrar sinnar mentunar með lestri góðra bóka. Hann las jafnt ensku sem ís- Magnús Sigurðsson álita stundum, hvort að hann og heimili hans liði ekki fyrir, ef menn notuðu sér um skör fram þennan góðvilja hans. Það var ekki einasta að til hans væri leit- að í verklegum efnum heldur þurfti einnað að sækja hann ef misklíð kom upp manna á milli til þess að slétta yfir og koma kyrð á. Alla sína góðu eiginleika not- færði sér vel hinn látni vinur vor, Mr. Sigurðsson, eins og hann var nefndur í daglegu tali, í sam- búð sinni við samferðasveitina og umhyggju fyrir sinni stóru fjölskyldu. En oft var á bratt- ann að sækja í gegnum heilsu- brest, missir konu sinnar og sumra barnanna á tímabili hinn- ar óþjálu kreppu, sem mörgum er minnisstæð enn þann dag í dag. Magnús Sigurðsson frá Knarra nesi á Vatnsleysuströnd í Gull- bringusýslu var fæddur 5. ágúst 1883 og skorti því rétta 3 mán- uði til að vera 69 ára, þegar við- skilnaðinn við hérvistartilver- una bar að 4. maí 1952. Foreldrar hans voru þau hjónin Sigurður Sigurðsson og Margrét Magnús- dóttir, sem bjuggu á Knarra- nesi. Móður sína misti Magnús þegar hann var 12 ára, og þá byrjaði fyrir honum skóli sjálfs- b j ar garviðleitninnar. Magnús fluttist til Canada árið 1904 og settist að í Keevatin, Ontario, og þar vann hann að mestu leyti hjá hveitimyllufé- laginu, Lake of the Woods, til sinnar síðustu stundar. Árið 1910 kvæntist Magnús Margréti Valgerði Þorvalds- dóttur frá Berufirði í S.-Múla- sýslu. Móðir Margrétar var Ragnhildur Eyjólfsdóttir Odds- sonar gullsmiðs í Reykjavík. — Árið 1930 misti Magnús konu sína frá átta börnum, en það 9. höfðu þau áður mist fárra mán- aða gamalt, og síðar varð Magnús að bera einn saknaðarþungan af barn; Sylvía, Mrs. Joe Bynski, fjögur börn; Ingibjörg, Mrs. Elgen Phinney, á þrjú börn; Guðrún, Mrs. James Margitts, á eitt barn; og svo einn sonur, Tómas Þorgrímur Hafstein, nú nýverið útskrifaður af flugskóla með ágætum orðstír. Tveir bræður Magnúsar eru á lífi: — Sigurður, býr hér í Keewatin og hefir unnið fyrir hveitimyllu- félagið, en er nú mjög farinn að heilsu, og Þorgrímur i Reykja- vík, sem er þar framkvæmdar- stjóri vátryggingarfélags. Fáum mánuðum fyrir sitt út- rennandi lífsskeið, og þá sjáan- legt að hverju stefndi, veittist hinum vinsæla og dygðuga dreng, Magnúsi Sigurðssyni, sú ánægja, að sjá sinn fjórða ættlið bætast við hinn fríða hóp barna og barna-barna er fyrir var, en það var dóttur-dóttir hans Mrs. Douglas Jackson, sem eignaðist son er markaði þennan merka viðburð, sem nú er að verða tíð- ari í hinu íslenzka landnáms- þjóðarbroti í þessari álfu, — að fjórir ættliðir mætast við sólar- upprás og sólsetur. Þessi góði Keewatin-íslend- ingur og trúi íslandsþulur var jarðsettur 6. maí s.l. í grafreit Lake of the Wood, Kenora, að mörgu fólki viðstöddu. Minning- arorð við kveðjuathöfnina fram- kvæmdi prestur Sambands-safn- aðar í Keewatin, Rev. W. T. Brady. Öll skyldmenni Magnúsar nær og fjær og fjöldi vina blessa minningu síns göfuga samtíðar- félaga og góðs íslendings — Magnúsar Sigurðssonar. B. Sveinsson Þegar vinir og frændur handan hafs þarfnast peninga lengu, en lét sér þó þau orð um missi tve^a ungþroska og myndarlegra barna sinna, en Til ísrael — Hefir ekki verið reynt að senda karfaflök á nýja staði? — í janúarlok sendum við 670 tonn til ísrael. Var sá karfi, sem þangað var sendur í 7 punda pergament-pökkum. Ekki er enn fengið nákvæm vitneskja um, hvernig þessi sending líkar þar syðra, en við gerum okkur vonir um vaxandi markað þar. Fyrir 180 milljónir — Hve mikið flutti Sölumið- stöðin út af hraðfrystum fiski árið, sem leið? Útflutningur Sölumiðstöðvar- innar nam um 30.000 tonnum. — Verðmæti han var um 180 millj. munn fara, að lestur íslenzkra bóka væri undirstöðubetri og endurminningaríkari. Magnús lét lítið yfir vísdómi sínum. En í hógværum viðræðum við hann, því öðruvísi var ekki hægt við hann að ræða, þurfti sá, er með íonum sat og við hann ræddi, að vera víða heima, ef skilja skyldi við jafntefli. Sá, sem þessar línur ritar, getur hér dálítið iim sagt, því hann hefir verið læri- sveinn Magnúsar um 30 ára skeið. Greiðvikni Magnúsar Sigurðs- sonar var viðbrugðið, því hann gat engum manni neitað, sem til hans leitaði, og þar kom til þau voru: Ásdís Thelma, er dó rúmlega tvítug og Hermann, er lézt á 17. ári. Börn Magnúsar, sem á lífi eru: Margrét, Mrs. Donald Johnson, er ekkja og á 2 börn; Ragnhild- ur, Mrs. Frank Crawdes, á eitt Canadian Pocific Express Greiðslur til útlanda • Heimsækið hvaða Can- adian Pacific skrifstofu, sem er. Greiðið þá upp- hæð, er þér viljið senda og fáið kvitteringu. Skrifstofan setur sig þeg- ar í samband við Can- adian Pacific umboðs- mann handan hafs og greiðir hann vini yðar eða frænda upphæðina við gildandi gengi. Þetta er auðvelt og ábyggilegt. Umboðsþóknun er lítil og þér eruð trygðir gegn tapi. CoAUuCiðM Qacifac króna. En útflutningur á hrað- frystum fiski alls var á því ári um 35 þús. tonn. Til Bandaríkjanna seldum við auk karfans 3200 tonn af þorsk- flökum og gerum okkur vonir uki að útflutningurinn á þessari vöru þangað geti numið í ár um 5000 tonnum. Höfum við gert ráðstafanir til að hafa umbúðir fyrir Ameríkumarkað sem því nemur. —Mbl., 2. apríl FLUGPÓSTUR YFIR HAFIÐ Nýir Canadamenn, hafið þetta hugfast, er þér skrifið heim — 1. Flugpóstur yfir hafið, er veginn í kvartúnzum. Burðargjald er 15 cents fyrir hverja kvartúnzu til Evrópu, Bandaríkj- anna og brezku ejanna; 10 cents fyrir hverja kvartúnzu til Suður-Ameríku; 25 cents fyrir hverja kvartúnzu til Afríku, Asíu, Austurlanda eða Ástralasíu. 2. Látið pósthúsið ávalt vega þann póst, er þér sendið yfir hafið. Fyrir hverja kvartúnzu, sem eigi er borguð í Canada, verður að greiða tvöfalt verð hinum megin. 3. Ódýrasti flugpóstur yfir hafið, er Canada Air Letter. Slík bréf fara eins fljótt á milli og annar flugpóstur. Kostar að- eins frá 10 cents til 15 cents að pappír inniföldum eftir því hvert þau eru send. Spyrjist fyrir á pósthúsinu. CANADA POST OFFICE* ALCIDE COTE, Q.C., M.P., Postmaster General W. J. TURNBULX,, Deputy Postmaster General

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.