Lögberg - 12.06.1952, Blaðsíða 6

Lögberg - 12.06.1952, Blaðsíða 6
6 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 12. JÚNÍ, 1952 Langt í Burtu frá HEIMSKU MANNANNA Eftir THOMAS HARDY J. J BILDFELL þýddi örlögin,'duttlungafull og glettin, réðu því, að Bathsheba skyldi taka blæjuna og hattinn af höfðinu á sér og láta á höíuðið á honum. Tray henti sinni húfu í berjarunna þar rétt hjá. Svo þurfti að festa blæjuna að neðan um hálsinn á honum og setja hanzkana á hendurn- ar á honum. Hann leit svo skringilega út í þessum bún- ingi, að Bathsheba gat ekki annað en skelli- hlegið, sem varð til þess að draga enn eina stoð undan andúð hennar til hans. Hún horfði á hann á meðan að hann var að sópa og hrista bíflugurnar af trénu og hélt bíflugnabúinu uppi með annari hendinni, svo að flugurnar gætu farið inn í það. Bathsheba notaði þá stund, sem hún var úr augsýn hans, td að snyrta sig dálítið. Svo kom hann ofan og hélt bíflugna- búinu eins langt frá sér með annari hendinni og hann gat og á eftir því kom mökkur af bíflugum. „Ég segi alveg satt“, sagði Tray í gegnum blæjuna, „að það þreytir mig meira í hand- leggnum að halda þessu bíflugnabúi uppi, en að vera við sverðsæfingar í heila viku.“ Þegar að hann var kominn niður og búinn að setja frá sér bíflugnabúið, fór hann til hennar og sagði: „Viltu vera svo góð að leysa mig, svo að ég komizt úr þessari prísund? Ég var nærri kafnaður innan í þessu silki.“ Til þess að hylja vandræðin, sem hún var í, þegar hún var að leysa blæjuna af hálsinum á honum, sagði hún: „Ég hefi aldrei séð það, sem að þú varst að tala um.“ „Hvað þá?“ „Sverðsæfingarnar.“ ,?Ó! þætti þér gaman að sjá þær?“ Það kom hik á Bathshebu. Hún hafði heyrt undraaögur af og til frá fólki, sem átti heima í Weatherbury, nálægt hermannabúðunum, af þessum undraverðu sverðsæfingum. Menn og unglingar, sem höfðu horft inn um rifur á girð- ingunni í kringum búðirnar eða klifrað upp á þær komu til baka með leiftrandi lýsingu af þeim; búningar og sverð blikuðu eins og stjörn- ur — hér og þar og alls staðar — en þó með hinum stökustu reglum. Svo að hún sagði hæ- versklega það, sem að hún brann af löngun eftir: „Já, mér þætti mjög gaman að sjá það.“ „Og það skaltu líka fá að gera.“ „Nei! Hvernig?“ „Ég skal athuga það.“ „Ég vil ekki sjá það gjört með göngustaf — það verður að vera með sverði.“ „Já, ég veit það, en ég hefi ekkert sverð með mér hér, en ég held, að ég gæti fengið eitt í kveld. En vilt þú gera dálítið fyrir mig?“ Hann laut að henni og hvíslaði einhverju að henni. „Ó, nei, vissulega ekki!“ sagði Bathsheba og roðnaði. „Þakka þér innilega fyrir, en ég get það ekki undir neinum kringumstæðum." Vissulega gætir þú gert það. Enginn þyrfti að vita það.“ Hún hristi höfuðið, en þó með þverrandi neitunarafli. „Ef að ég gerði það,“ sagði hún, „þá yrði ég að hafa hana Liddy með mér. Má ég ekki gjöra það?“ Tray horfði út í loftið. „Ég sé ekki hvers vegna að þú ættir að koma með hana,“ sagði hann kuldalega. Óafvitandi samþykki í augnaráði Bathshebu gaf til kynna, að eitthvað, auk kaldsinnis Tray, kom henni til að fallast á, að Liddy mundi verða ofaukið á þessum væntanlega samfundi. Hún hafði fundið til þess jafnvel á meðan að hún var að fara fram á að Liddy væri þar líka. „Jæja, ég skal ekki koma með Liddy — og ég skal koma; en aðeins fyrir stutta stund,“ bætti hún við ; „örstutta.“ „Það tekur ekki meira en fimm mínútur,“ sagði Tray. XXVIII. KAPÍTULI Á móti húsi því, sem Bathsheba átti heima í, var hæð um mílu á lengd og náði annar endi hennar inn í óræktað svæði, sem var alvaxið burkna glitrandi í fagurgrænum vexti sínum. Klukkan átta þetta sama miðsumarkveld, þegar sólin í vestri baðaði burknann og hæðina í lækkandi geislum sínum, hefði mátt heyra hreyfingu í þessari hljóðu hásumar dýrð, og Bathsheba kom í ljós. Hún stansaði, sneri við og fór yfir hæðina og miðja vegu heim að húsi sínu og leit oft til baka þangað, sem að hún hafði snúið við og ráðið við sig að bíða ekki. Hún sá eitthvað sérkennilegt cg rautt hreyfast og hverfa yfir hæðina. Hún beið í mínútu — tvær mínútur og fór að hugsa um vonbrigðin, sem að Tray mundi verða fyrir ef að hún héldi ekki loforð sitt um að mæta honum, þangað til að hún var aftur farin af stað og hljóp við fót upp hæðina og til staðar þess, sem að ákveðinn hafði verið. Hún var nú orðin óttaslegin og skjálfandi út af þeirri fífldyrfsku að ráðast í þetta; hún var orðin móð og það var óvanaleg- ur glampi í augunum á henni. En hún varð að gjöra þetta. Hún kom fram á lautarbrún, sem var í miðri burknabreiðunni. Tray stóð ofan í lautinni og horfði upp til hennar. „Ég heyrði til þín koma og sá þig,“ sagði hann og kom upp til hennar, rétti henni hend- ina og leiddi hana ofan í lautina. Lautin var í laginu eins og undirskál og var þannig löguð frá hendi náttúrunnar og hún var hér um bil þrjátíu feta víð að ofan, en ekki dýpri en það að sólargeislarnir léku um höfuð þeirra. Þegar þau stóðu í miðri lautinni bar burnakranzinn fyrir ofan þau við heiðan him- inn allt í kring og burkninn náði eða óx í laut- arbrekkunum niður undir botn. En botn lautar- innar, inn í þessu jurtaskrúði, var vaxinn mosa og grasi, svo að þau sukku í hann upp undir ökla. „Nú,“ sagði Tray og dró sverð sitt úr slíðr- um og rétti það upp í geislandi sólina, sem að sindraði frá því, eins og kveðja frá lifandi veru; „fyrst höfum við fjögur högg til hægri og fjög- ur til vinstri, fjögur lög til hægri og fjögur iög til vinstri handar. Högg fótgönguliðs og varð- mannaliðs eru eftirtektarverðari en okkar að því er mér finnst, en þau eru ekki eins djarf- tæk. Það eru sjö högg og þrjú lög. Jæja, þetta er nú byrjunin. Næst kemur fyrsta högg okkar, það er eins og að þú værir að sá korni, svona — og Bathsheba sá eins og öfugan regnboga í loft- inu, og svo var hendi Tray aftur kyrr. Högg númer tvö er eins og að þú værir að hörfa — svona. Högg þrjú, eins og þú værir við upp- skeru — svona; og svo hið sama til vinstri. Lögin eru þessi: eitt, tvö, þrú og fjögur til hægri, eitt, tvö, þrjú og fjögur til vinstri.“ Hann endurtók þetta. „Hafðu þetta yfir aftur,“ sagði hann. „Eitt, tvö.........“ Hún greip fram í fyrir honum og sagði: „Ég vil síður gera það; ég fæst ekki svo mikið um tvö og fjögur, en eitt og þrjú eru óþolandi!" „Nú, jæja. Ég skal sleppa fyrsta og þriðja laginu. Næst sýni ég þér högg, stungur og varn- arlög til samans.“ Eftir að hann var búinn að því, sagði hann: „Svo eru áframhaldandi æfing- ar þannig.“ (Hann lék sama sverðsleikinn og áður). „Þettar eru hinar fastákveðnu sverðs- reglur. Tvær stungur upp á við, eða lög, sem fótgönguherdeildir nota, eru djöfulleg. Þau eru lík þessu — þrjú, fjögur.“ „Hvílík blóðvarga grimmd!“ sagði Bath- sheba. „Þau eru frekar skaðleg. Nú ætla ég að vekja meiri áhuga og sýna þér dálítið af laus- legum sverðsleikjum — með því að endurtaka högg og lög riddara og fótgönguliðsherdeild- anna fljótar en leiftur og eins og af handahófi, en þó nógu reglubundið til þess að tempra eðlishvötina, án þess að þvinga hana. Þú ert mótstöðumaður minn, með aðeins þeim mis- mun frá reglulegri hersókn, að á milli högga minna og laga og þín verður eins og hársbreidd, máske tveggja hárabreidd. Mundu eftir að vera ekki hrædd.“ ^ „Ég skal muna eftir því,“ sagof hún einbeitt. Hann benti á blett, svo sem þrjú fet fyrir framan hann. Bathsheba, sem var farin að finna til ofur- lítillar ævintýrahrifningar í sambandi við þessar afar nýstárlegu athafnir, fór þangað, sem að hann benti henni og sneri sér að honum. „Nú ætla ég að gjöra nokkrar undirbúnings tilraunir til þess að vita hvort þú hefir hug- rekki til að standast það, sem ég ætla að gjöra.“ Hann sveiflaði sverðinu eins og til reynslu. Það næsta, sem Bathsheba vissi, var það, að oddurinn og eggin á sverðinu kom glampandi með flughraða að vinstri hliðinni á henni rétt fyrir ofan mjaðmirnar og eftir augnablik við^ hægri hliðina á henni, og það var engu líkara en að sverðið hefði smogið í gegnum hana. Það næsta, seni að hún varð vör við, var, að hún sá sverðið hreint og spegilfagurt í hend- inni á Tray. Þetta hafði skeð með leifturhraða. „Ó!“ hljóðaði hún upp og þrýsti höndun- um á síður sér. „Hefurðu rekið mig í gegn? Nei, þú hefir ekki gert það! Hvað var það, sem að þú gerðir?“ . „Ég hefi ekki snert þig,“ sagði Tray stilli- lega. Þetta er ‘aðeins handfimi. Sverðinu var brugðið á bak við þig. Þú ert ekkert hrædd núna, ertu ? Því ef að þú ert það, þá get ég ekki haldið áfram.“ „Ég held að ég sé ekki hrædd. Þú ert viss um, að þú grandir mér ekki?“ „Alveg viss.“ „Er sverið beitt?“ „Ó, nei — stattu aðeins kyrr eins og mynda- stytta. Nú!“ —Jl augabragði breyttist allt fyrir augunum á Bathshebu. Ljósgeislar frá bliki sól- arinnar og sverðinu í hendinni á Tray glömp- uðu allt í kringum hana og yfir höfðinu á henni og huldu nærri alla útsýn hennar, og allt var þetta framleitt með sveiflunum af sverði Tray, sem alls staðar sýndist vera, en þó hvergi sér staklega. Þessu hringgeislaflugi fylgdu snarp- ar hreyfingar, sem líktust mest vindstrokum — og hliðarhreyfingar allt í kringum hana á einu og sama augnabliki. í stuttu máli: hún var inni- lukt í blikandi lofthafi með loftsteina hrynj- andi og hvæsandi allt í kringum sig. Aldrei, síðan að breið-sverðið var gjört að þjóðbundnu vopni, hafði meiri fimleikur verið sýndur í meðhöndlun þess, heldur en Tray sýndi í þetta sinn, og aldrei hafði hann verið í betra skapi, heldur en að hann var í nú, þarna sem hann stóð í geislum kveldsólarinnar í burknabreið- unni hjá Bathshebu. Það má fullyrða, í sam- bandi við högg hans og lög, að hefði verið mögulegt fyrir sverðið að skilja eftir þétt efni, þar sem að það flaug og féll, þá hefði það verið nálega sönn eftirmynd af Bathshebu. Á bak við þennan bjarta Aurora Militaris (herljóma) gat Bathsheba séð litblæinn á hand- legg Tray fljúga fram og aftur í rauðleitri móðu um rúm það sem að hann náði yfir eins og tvinnaðan hörpustreng. Og á bak við Tray sjálfan, oftast beint á móti sér; en þegar að hann var að sýna sverðslögin á bak við hana, sneri hann sér að hálfu leyti við, en hafði alltaf augun á ummáli hennar og þrýsti vörunum fast saman. Svo hægði hann smátt og smátt á sér, svo að hún sá hann sjálfan. Þytur sverðsins hætti og hann stóð kyrr. „Það lafir lokkur niður úr hárinu á þér, sem þarf að laga?‘ sagði hann; og áður en hún gat nokkuð sagt eða hreyft sig, bætti hann við: „Ég skal laga hann!. Það glampaði á silfurboga við eyrað á henni. Sverðið féll og hárlokkurinn datt ofan á jörð. „Hreystilega af borið!" sagði Tray. „Þú kveinkaðir þér ekki minstu vitund. Það er dá- samlegt af konu.“ „Það var vegna þess, að ég átti ekki von á að þú mundir gera það. Ó, þú hefir skemmt á mér hárið!“ „Einu sinni aftur — aðeins einu sinni.“ „Nei — nei! Ég er hrædd við þig — svo sannarlega er ég það,“ sagði hún óróleg. „Ég skal ekki snerta þig — ekki einu sinni hárið á þér. Ég ætla aðeins að drepa orminn, sem er að skríða á þér. Vertu alveg kyrr!“ Það virtist eins og ormurinn hefði skriðið úr burknanum og staðnæmst framan á upp- hlutnum, sem að Bathsheba var í. Hún sá sverðsoddinum stefnt að brjósti sér og það var eins og honum væri stungið í það. Hún lét augun aftur í þeirri fullvissu, að nú væri henn- ar síðasta stund komin. En þegar að hún fann enga breytingu á sér opnaði hún augun aftur. „Sjáðu, þarna er hann,“ sagði Sergeantinn og hélt sverðsoddinum fyrir augunum á henni. Ormurinn var fastur á sverðsoddinum. „Þetta er galdur!“ sagði Bathsheba alveg hissa. „Ó, nei — aðeins handfimi. Ég stakk sverðs- oddinum að brjóstinu á þér, þar sem að orm- urinn var, en í staðinn fyrir að renna honum í brjóstið á þér, stöðvaði ég hann einn þúsund- asta part frá því.“ „En hverngi gastu skorið lokk úr hárinu á mér með sverði, sem að engin egg er á?“ „Engin egg! Þetta sverð er eins beitt og rak- hnífur — sjáðu!“ Hann dró sverðseggina eftir lófa sér og sýndi henni skinnflygsurnar, sem það hafði skorið. „En þú sagðir mér í byrjun, að það væri egglaust og að engin hætta væri á, að það skæri mig.“ „Ég sagði það til þess að fá þig til að standa kyrra, svo að þú værir óhult. Hættan á að meiða þig var of mikil til þess, að ég vildi eiga á hættu að segja þér eins og var.“ Bathsheba skalf. „Ég hefi þá verið við hlið dauðans án þess að vita það!“ „Réttara sagt, þú hefir verið að því komin að vera flegin lifandi ‘tvö hundruð níutíu og fimm sinnum!“ „Þú hefir framið hermdarverk á mér!“ „Þú varst samt aldrei í neinni hættu. — Sverði mínu skeikar aldrei,“ sagði Tray og slíðraði sverð sitt. Bathsheba, sem var gagntekin af undrun yfir því, sem að hún hafði séð, settist niður á lyngþúfu, sem var rétt hjá henni, hálf utan við sig. „Ég verð nú að skilja við þig,“ sagði Tray í mjúkum málróm. „Og ég ætla að leyfa mér að taka þetta og geyma til minningar um þig.“ Hún sá hann beygja sig og taka upp hár- lokkinn, sem að hann hafði skorið með sverð- inu af hári hennar, vefja honum um íingur sér og hneppa hnappi á brjóstvasa sínum og láta hann svo gætilega í vasann. Hún fann, að hún gat hvorki neitað eða bannað honum þetta. Hann var henni algjört ofurefli; og Bathsheba var eins og sá, sem gengur á mót i vaxandi vindi, sem að gjörir andardrátt hans æ erfið- ari. Hann kom nær henni og sagði: „Ég verð að fara.“ Hann færði sig nær henni. Eftir mínútu sá hún hann hverfa inn í burknabreiðuna nærri eins fljótt og von sem snögglega er brugðið. En þetta stundarhlé hafði sett ólgu í blóð henn- ar frá hvirfli til ylja. og vakið tilfinningarót hjá henni, sem yfirskyggði alla hugsun. Það hafði komið yfir hana eins og reiðarslag, likt því, er máske reyndi á Horeb í sambandi við vatns- lindina — en í hennar tilfelli var það táralind, sem flóði af augum hennar, og ástæðan til tár- annar var sú, að henni fannst, að hún hefði framið stórsynd. Þegar Tray fór hafði hann beygt sig ofan að henni og snert varir hennar með sínum vörum. — Hann hafði kysst hana. XXIX. KAPÍTULI Við höfum nú séð hinar ófullkomnu lyndis- einkunnir blandast saman við hinar mörgu og margvíslegu lyndiseinkunnir, sem mynduðu skepgerð Bathshebu Everdene. Þær áttu nálega ekkert ítak í hinni raunverulegu og innri skap- gerð hennar, heldur voru þær þangað komnar eins og togleðursvökvi á örvum Erosar, sem smeygðu sér smátt og smátt inn, unz þær höfðu sett mark sitt á hugsanaferil hennar allan. Þótt skilningur Bathshebu væri of skarpur til þess að láta stjórnast eingöngu af kvenlegri hneigð, þá hafði hún samt of mikið af þeirri hneigð til þess að geta notað skilningsþrótt sinn sér til hagsmuna. Konur vekja máske ekki meiri undrun hjá lífstíðarförunaut sínum á neinu, í hinum smærri atriðum, eins og með hinni ein- kennilegu hneigð sinni til að trúa hóli og yfir- hylmingum, sem að þær þó vita að er fals — nema máske með því að leggja aldeilis engan trúnað á aðvaranir og aðfinnslur, sem þær vita að eru sannar. Bathsheba unni Tray eins og að sjálfstæð- ar konur unna, þegar að þær sleppa haldi á sjálfstæði sínu. Þegar að kona í kæruleysi hendir frá sér styrkleika sínum, er hún ver stödd en sú kona, sem engan styrkleika hefir átt til þess að glata. Ein tegund veiklunar hennar er stundar-nýjung. Hún hefir aldrei átt kost á því að gjöra sér sem mest úr slíkum kringumstæðum. Veiklunin er tvöfalt veikari, þegar að hún er ný. Bathsheba var sér ekki meðvitandi neinnr- ar táldrægni í þessu efni. Þó að hún væri í einu tilliti veraldarkona, þá var það þó veröld dags- birtunnar, fagurgræns engis, þar sem að naut- gripirnir voru búendurnir, vindurinn, anna- ákafinn, þar sem kanínu- eða hérafjölskyldur bjuggu hinu megin veggjarins, þar sem ná- grannarnir voru allir gjaldendur, og þar sem að allir útreikningar eru háðir kaupferða-dög- unum. Um uppgerðarsmekk í góðu nýtízku félagslífi vissi hún lítið og um hið reglubundna sjálfs-nautnalíf vissi hún hreint ekkert. Ef að ítrustu hugsanir hennar í þessa átt hefðu verið skráðar af henni sjálfri, sem þær ekki voru, hefðu þær verið í þá átt, að henni fyndist að hrifningin væri geðfeldari vegvísir en varkárn- in. Kærleikur hennar var hreinn og einlægur eins og barsins, og þó að hiann væri ylríkur eins og sumarið, þá var hann eins frjáls og lifandi og vorið. Yfirsjón hennar var í því fólg- in, að hún reyndi ekki til að takmarka eða tempra tilfinningar sínar með því að hugsa rólega og grandskoða afleiðingarnar. Hún gat bent öðrum á bratta og erfiða vegi, en aðgætti ekki sínar eigin torfærur. Vankantar Tray voru djúpt grafnir og faldir kvennaaugum, en þeir kostir, sem hon- um voru lánaðir, voru fyrir allra augum. Og þess vegna, í beinni mótsetningu við Oak, sem bar vankantana utan á sér svo ljósa, að þeir, sem að hálfblindir voru, gátu séð þá, en kostir hans voru grafnir eins og gull í jörðu. Mismunurinn á milli ástar og virðingar var mjög ábærilegur í fari Bathshebu. Hún hafði talað frjálslega um afstöðu sína til Bold- woods við Liddy, en geymdi hana hins vegar í huga sér og hjarta að því er Tray snerti. Alla þessa umönnun Bathshebu fyrir Tray, sá Gabríel og hún lá á honum eins og martröð frá morgni til kvölds — og jafnvel fram undir morgun marga nóttina. Að ást hans skyldi ekki vera honum endurgoldin, var honum þungt sorgarefni; en að sjá Bathshebu vera að falla í snöru, var honum þyngri sorg en sú fyrri, svo að hún nálega yfirskyggði hana. Ástand hans’ var hliðstætt umsögn Hippocratesar, sem oft er endurtekin í sambandi við líkamlegar kvalir. Það er göfugur kærleikur, þó að hann sé máske vonlítill, sem að ótti við að auka andúð í hjarta þess, sem að maður ann, aftrar manni ekki frá að berjast á móti mistökum hans eða hennar.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.