Lögberg - 12.06.1952, Blaðsíða 8

Lögberg - 12.06.1952, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 12. JÚNI, 1952 Úr borg og bygð COOK BOOK Matreiðslubók, sem Dorcasfé- lag Fyrsta lúterska safnaðar lét undirbúa og gaf út; þegar þess er gætt, hve bókin er frábærlega vönduð að efni og ytri frágangi, er það undrunarefni hve ódýr hún er; kostar aðeins $*§0 að viðbættu 15 centa burðargjaldi. Pantanir, ásamt andvirði, sendist: Mrs. R. G. Pollock, 708 Banning St. Winnipeg, Sími 36 603 Miss Ruth BárdaL 5 — 54 Donald St. Winnipeg. Sími 929 037 ☆ — DÁNARFREGN — Þriðjudaginn 3. júní s.l. lézt á Misericordia spítalanum hér í borginni Þorsteinn Marino Vig- fússon frá Steep Rock, Man. 54 ára að aldri. Hann lætur eftir sig konu sína, May Vigfússon, og tvær hálfsystur, Mrs. S. Arn- grímsson í Blaine, Wash., og Mrs. Tymchuk, Kelowna, B.C. Foreldrar Marteins voru þau Þórólfur Vigfússon frá Litlu- Breiðuvík í Reyðarfirði og Ólafía Þorsteinsdóttir frá Höfða- húsum í Fáskrúðsfirði. Fluttust þau hjónin hingað til lands árið 1905 og settust að í Steep Rock- byggðinni, þar sem þau bjuggu til dauðadags. Hélt Þorsteinn þar áfram búi á föðurleifð sinni. Minningarathöfn fór fram frá útfararstofu Bardals, þar sem Rev. Walker flutti kveðjumál. Líkið var flutt til Steep Rock, Man., til greftrunar. ☆ Jehova-vottar halda aamkom- ur að Teulon, Man., dagana 20.— 22. þ. m. kl. 3 e. h. Verður þar meðal annars flutt ræða, sem nefnist: “What Religion will survive the World Crisis?” Allir boðnir velkomnir! Engin samskot tekin. ☆ Mrs. S. Thorarinson, Royal Crest Apts., er nýkomin heim eftir að hafa dvalið undanfarn- ar vikur í Los Angeles, Santa Monica og fleiri stöðum í Cali- fornia; lét hún hið bezta af för sinni og sendir vinum sínum þar syðra innilegar þakkir fyrir alúð þeirra og gestrisni. ☆ Velma Jean Skagfjord, dóttir Mr. og Mrs. B. Skagfjord, Sel- kirk, Man., hlaut Governor— General Medal, er hún lauk prófi í ellefta bekk, fyrir frábæra námshæfileika og ástundun. ☆ Námsverðlaun Þessir íslendingar hlutu náms- verðlaun við vorprófin við Mani- tobaháskólann: Andrea K. Sigurjónsson — Sir James Aikens Scholarship in English, third year, $85.00. Jón Sigurdson — Isbister Scholarship, first year, $60.00. Erlingur Kári Eggertson, B.A. Isbister Scholarship in law, third year, $60.00. ☆ Þann 2. júní árdegis lézt að heimili sínu í Selkirk, Man. Mrs. Helga Sigríður Skagfjörð, 87 ára að aldri. Útförin fór fram frá kirkju Selkirksafnaðar þann 6. júní að viðstöddum fjölmennum ástvinahópi og mannfjölda. — Þessarar merku konu mun verða minst nánar síðar. ☆ Frú Hólmfríður Pétursson, 45 Home Street, fór austur til Toronto á fimtudaginn í vikunni, sem leið, í heimsókn til Þorvald- ar sonar síns og frúar hans, sem þar eru búsett. ☆ Hr. Hannes Kjartansson, aðal- ræðismaður íslands í New York, kom í heimsókn'til Reykjavíkur um miðja fyrri viku. tr Frú María Johnson frá Odda í Geysisbygð, var stödd í borginni nokkra daga 1 vikunni, sem leið. ☆ Samkvæmt símskeyti frá Reykjavík kom Grettir Eggert- son rafurmagnsverkfræðingur þangað flugleiðis frá New York á aðfaranótt fimtudagsins í fyrri viku; hann mun maðal annars sitja aðalfund Eimskipafélags ís- lands fyrir hönd vestur-íslenzkra 28. þing Lúterskra kvenna var haldið að Gimli, Manitoba, dag- ana 6., 7. og 8. júní s.l. Forseti Bandalagsins, Mrs. A. H. Gray, setti þingið kl. 10 f h. Bæjarstjórinn, hr. Barney Egil- son, ávarpaði þingið og bauð gesti velkomna. Þingið sátu 38. erindrekar frá 21 kvenfélagi tilheyrandi Banda- laginu, 3 prestskonur, Mrs. S. Ólafsson, Mrs. R. Marteinsson, Mrs. H. Sigmar, og tveir prestar, séra S. Ólafsson og Dr. Rúnólfur Marteinsson, enrtfremur voru mættir á þinginu fjórir einstakl- ingsmeðlimir, átján stjórnar- nefndarmeðlimir Bandalagsins, auk fjölda gesta. Erindrekar og stjórnarnefnd- armeðlimir, sem skrifuðu undir játningu þingsins voru: Mrsi Fjóla Gray, Helga Guttormsson, Ingibjörg J. Ólafsson, G. A. Er- lendson, R. Jóhannson, Halldóra Bjarnason, Margaret Bardal, Clara Johnson, Elizabeth H. Bjarnarson, Clara Finnsson, Eleanor Gibson, Thora Oliver, Thjóðbjörg Henrickson, Anná Magnússon, Anna Byron, Inga Gillies, Valgerður Hallgrímsson, Flora Benson, Rhoda Freeman, Herdís Erickson, B. Pennycook, Laura Jónasson, Bena Freeman, A. Thorsteinson, Clara Hen- rickson, E. W. Childerhose, Sig-. ríður Sigurdson, Jónína L. Step- hluthafa og ræða við raforku- málastjóra ríkisins varðandi Sogs og Laxárvirkjanirnar, en hann hefir nú um alllangt skeið verið ráðunautur hans og annast um innkaup á margháttuðum vélakosti til áminstra virkjana; ekki mun Grettir eiga langa dvöl á Islandi að þessu sinni. ☆ Þeir bræðurnir Norman og Ted Thorsteinssynir frá Sacra- mento, California, komu ásamt konum sínum og börnum í heimsókn til móður sinnar, Mrs. T. E. Thorsteinsson, 140 Garfield St., og munu þessar fjölskyldur dvelja hér í ndkkrar vikur. ☆ Sigurður Baldwinson frá Gimli, Man., liggur um þessar mundir veikur á General spítalanum; hann býst ekki við að komast heim fyr en eftir miðjan júní. ☆ Innilegí þakklæii, vinir Nú höfum við hjónin flutt okkur búferlum frá þeirri borg, sem verið hefir heimili okkar í meira en hálfa öld. Verða því margar minningar og myndir, sem birtast í hugum okkar. Þær myndir og minningar munu ekki yfirgefa okkur meðan hugsunin er heilbrigð og hjartað vinnur sitt verk. Margir okkar beztu vina, kon- ur og karlar, eru á brott gengn- ir, en svo vinmörg höfum við verið, að hópurinn er enn stór, henson, E. Jónasson, Snjólaug Gillies, C. Thorlakson, Lára Ol- sen, Borga ísberg, J. E. Martein- son, Ingibjörg Johnson, Margaret Kjartanson, Jónína Einarson, Grace Moore, Helga Jacobson, V. Johnson, Dísa Brandson, Emily Vigfússon, Kristrún Sigurd- son, Vilborg Brynjólfson, Kristín Pálsson, Sigríður Sigurdson Helga Gillies, Olive Kunzelman, Eggertína Sigvaldason, Guðlaug Jóhannsson, Steinunn J. John- son, Margaret Scribner, Sigríð- ur Bjerring, Olive Corrigal, Margrét Goodman, Miss Ingi- björg S. Bjarnason, Miss Stefanía Eyford. Erindi voru flutt af Mr. A. Buhr, Mrs. J. Vigfússon, Mrs. Láru Sigurdson og Mrs. H. E. Gordon. Dr. F. E. Scribner skemti með orgelspili og Mr. Doug Smith með fiðluspili; Miss Ingibjörg S. Bjarnason og Miss Lorna Ste- fánsson skemtu með einsöngv- um og með tvísöng skemtu Mrs. Gjavros Jones og Carol Bjarna- son. Allir þing- og skemtifundir voru fjölsóttir. Gjörðir þingsins og nöfn nýrra embættismanna verða birtar í næsta blaði. Helga Guttormsson, skrifari MESSUBOÐ Fyrsta Lúterska Kirkja Séra Valdimar J. Eylands Heimili 686 Banning Street. Sími 30 744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. ☆ Lúterka kirkjan í Selkirk Sunnud. 15. júní Sunnudagaskóli kl. 10 Ensk messa kl. 11 árd. undir umsjón sunnudaga- skólakennara. Engin kvöldmessa. Fólk boðið velkomið. S. Ólafsson sem við eigum því láni að fagna að eiga samleið með, vonum við að svo ínegi verða til daganna enda. Um þá brottförnu, eigi síður en hina, sem ennþá eru með okkur á veginum, getum við tekið undir með Þorsteini Er- lingssyni og sagt: Á meðan saman lá hér vegur vor, þá voru mínar beztu sólskins stundir. Ég man og þakka þær við hvert mitt spor, unz þrýtur leið og sólin gengur undir. Það þýðir ekki að þylja nöfnin tóm, og þjóðin mun þau annars staðar finna . . . Kæra þökk fyrir samvinnu á öllum sviðum, kæra þökk fyrir trygga og langa vináttu, kæra þökk fyrir hið veglega samsæti og höfðinglegar gjafir. Alt þetta verður okkur ógleymanlegt, og þær myndir munu aldrei óskýr- ast, þó sól lækki göngu. Von okkar og ósk er, að sem flest ykkar geti heimsótt okkur í hinu nýja heimili okkar á Gimli. Ólína og Páll S. Pálsson ☆ Síðastliðinn þriðjudagsmorg- un lézt á Almenna spítalanum hér í borginni Charles A.’Niel- sen póstfulltrúi eftir langa sjúk- dómslegu, vandaður maður og vinfastur; hann var fæddur á ísafirði 12. júlí 1889, sonur Sophusar Jörgens Nielsen verzl- Ársþing Bandalags lúterskra kvenna LEIÐBEININGAR UM PERSÓNULEG BANKAVIÐSKIPTI........EIN AF FLEIRI AUGLÝSINGUM Sérhvert útibú veitir yður fullkomna bankaþjónustu Velkomnir, nýir Canadamenn The Canadian Bank of Commerce býtfur nýja Canadamenn velkomna og birtir í röð auglýsingar, sem verða þeim til fræðslu, er kynnast vilja bankastarfi hins nýja lands. Ýmsar aðferðir verða sennilega frábrugðnar því, sem þér hafið vanist, en við von- umst til að þér snúið yður til for- stjóra næsta útibús The Canadian Bank of Commerce, er þér viljið fræðast um starfsháttu canadiskra banka eða þurfið á hjálp þeirra að halda. Næsta útibú fullnægir banka- þörfum yðar. Bankafyrirkomulag í Canada er viðurkent eitt hið full- komnasta í heimi. The Canadian Bank of Commerce hefir verið starfræktur í 85 ár og eru eignir hans metnar á $1.750,000,000. Þér getið í fullu trausti skipt við hvaða útibú sem er. The Canadian Bankof Commerce Býður yður velkomin . . . YFIR 600 ÚTIBÚ í CANADA AÐALSKRIFSTOFA f TORONTO 'niNini - U ii :í||t B 33 Q unarstjóra og Þórunnar Blön- dal Nielsen; hann kom hingað árið 1909 og starfaði lengst af við pósthúsið hér. Mr. Nielsen lætur eftir sig konu sína, frú Solveigu Þor- steinsdóttur Einarssonar frá Brú á Jökuldal og tvær dætur, sem báðar eru útskrifaðar af háskóla Manitobafylkis, frú Valborgu í Ottawa og ungfrú Jóhönnu í heimahúsum; einnig lifa hann tveir bræður í Reykjavik og ein systir í Kaupmannahöfn. Útförin fer fram frá útfarar- stofu Bardals kl. 2 e. h. í dag (fimtudag). Séra Valdimar J. Eylands jarðsyngur. Lögberg vottar ekkjunni og dætrum hennar samúð sína í þeim djúpa harmi, sem að þeim er kveðinn. ☆ Mr. Einar Lúðvíksson er kom- inn hingað til borgarinnar eftir ársdvöl í Vancouver, B.C. ☆ Frú Margrét Stephensen er nýkomin úr þriggja mánaða dvöl í San Diego, California. ☆ Gefin saman í hjónaband í kirkju Selkirk safnaðar, þann 7. júní, Gerald Hamilton Abbott, Souris, Man., og Wanetta May Fey, Pequis, Man. Vitni að gift- ingunni voru: Miss Martha Christine ívarson og Mr. Charles George Jones Abbott, Stein- back, Man. ☆ Gefin saman í hjónaband á heimili séra Sigurðar Ólafssonar í Selkirk, þann 5. júní, John Alfred Howard Clarke, Shilo, Man., og Elizabeth Everette, Selkirk, Man. Vitni að gifting- unni voru: Miss Rose Sybil Sanderson og Mr. Charles Palmer Goodman. Dónarfregn Þann 28. maí s.l. lézt að heimili Mr. og Mrs. Marshall Hördal, Riverton, Man., Sveinbjörn Teitur Hördal, 76 ára að aldri. Hann var fæddur í Hörðudal í Dalasýslu, 4. febr. 1876, sonur Teits Jónssonar og konu hans Ásu Tómasdóttur. Sveinbjörn kom vestur um haf 1895, settist að í Winnipeg og stundaði trésmíði; um mörg hin síðari ár vann hann þar í þjónustu Canadian National Railways við smíði járnbrautar- vagna. Þann 31. okt. 1903 kvæntist Sveinbjörn Önnu Gísladóttur Gíslasonar prest í Nýja-íslandi. Árið 1920 fluttu þau til River- ton, Man. Sveinbjörn misti konu sína árið 1929 frá börnum þeirra á ungþroska- og bernskuskeiði. — Þrír synir og þrjár dætur lifa: Leslie, Marshall og Victor; Mrs. E. G. Santer, Mrs. F. M. Oliver og Mrs. A. R. Gervais, og ellefu barnabörn. Hinn látni var þrek- og dugn- aðarmaður og mikill verkmað- ur. Með honum er fróður og heil- steyptur íslendingur genginn grafarveg. Útförin fór fram frá Lútersku kirkjunni í Riverton, þann 31. maí; hinn látni var lagður til hinztu hvíldar í Olson grafreitnum að Lundi í grend við Winnipeg-Beach. Séra Sig- urður Ólafsson jarðsöng. it Mrs. Olgeir Frederickson fór til Kitchener, Ontario, í heim- sókn til dóttur sinnar og tengda- sonar, Mr. og Mrs. Stephen Jones og mun hún dvelja þar í nokkrar vikur. VEITIÐ ATHYGLI! Hluthafar í Eimskipafélagi íslands, eru hér með ámintir um að senda mér nú þegar arðmiða sína fyrir síðastliðið ár, svo hægt sé að borga ársarðinn; þá er það engu síður nauðsynlegt, í því falli að skipt sé um eigendur hlutabréfa vegna dauðsfalla eða annara orsaka, að mér sé gert aðvart um slíkar breytingar. ( • ARNI G. EGGERTSON. Q.C. 209 Bank of Nova Scotia Bldg. Portage and Garry St. Winnipeg, Manitoba THE BARLEY IMPROVEMENT INSTITUTE announces The Prize Lists in the Nafional Barley Confesf in MANITOBA REGIONAL CONTESTS In Manitoba There are Two Regions SOUTHERN REGION NORTHERN REGION lst — $100.00 lst — $100.00 2nd — 80.00 2nd — 80.00 3rd — 70.00 3rd — 70.00 4th — 60.00 4th — 60.00 5th — 50.00 5th — 50.00 6th — 40.00 6th — 40.00 7th — 30.00 7th — 30.00 PROVINCIAL CONTEST The three top prize winners in each region compete in the Provincial Contest lst — $200.00 2nd — 150.00 3rd — 100.00 INTERPROVINCIAL CONTEST The two top prize winners in Manitoba will compete with the tow top prize winners in Alberta in an Interprovincial Contest lst — $500.00 2nd — 300.00 Secure a complete Prize List from your Elevator Operator, Agricultural Representative or the Extension Service, Depart- ment of Agriculture, and make your entry before JÚLY 15th. This space contributed by SHEA'S WINNIPEG BREWERY LTD. MD-314

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.