Lögberg - 03.07.1952, Side 2

Lögberg - 03.07.1952, Side 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 3. JÚLÍ, 1952 GUÐNI JÓNSSON, skólasljóri: Formenn í sjö ættliðu >< Tileinkað GUÐMUNDI JÓNSSYNI, skipsijóra á m.b. „Sigrúnu", írá Akranesi Enn er þjóöinni í fersku minni fárviðrið mikla í janúarmánuði síðastliðnum, er tveir Akranes- bátar náðu eigi landi og menn biðu milli vonar og ótta um af- drif þeirra. En fárviðri þetta var svo hart og langt, að menn hugðu vart nokkurri bátskel afturkvæmt, þeirri er á sjó var. Vonbið þessari lauk á þann veg, að annar hinna umræddu báta gekk í greipar ægi og týndist, en hinn náði höfn á fjórða dægri eftir ærna hrakninga og mann- hættu. Það var vélbáturinn „Sigrún," en skipstjóri á honum er Guðmundur Jónsson frá Gamla-Hrauni á Eyrarbakka. Hann hefir verið búsettur á Akranesi í mörg ár og er meðal fremstu sjósóknara þar um dugnað og aflabrögð. Margir dáðu að verðleikum hetjulega frammistöðu Guðmundar og fé- laga hans í hrakningum þeirra í vetur og hið einstaka lán, sem þeim fylgdi, m. a. í því að ná aftur manni þeim, er útbyrðis féll í slíkum stórsjó og veður- ofsa. Afrek þeirra Guðmundar er þess vert, að það sé í minnum haft, sem dæmi um einkar giftu- samlega skipstjórn og frábæra sjómennsku þeirra félaga allra. Guðmundur Jónsson hefir set- ið á sævartrjám frá blautu barnsbeini. Hann ólst upp hjá foreldrum sinum á Gamla- Hrauni. Þar hagar svo til, að túngarðurinn er a einn veg sjó- garðurinn. Leikvangur Guð- mundar í æsku var því fjaran og sjórinn. Hann stundaði sjó í Vestmannaeyjum í margar ver- tíðir, er hann hafði þroska til, en þaðan fluttist hann til Akra- ness. Síðan hafa fiskimiðin á Faxaflóa verið vettvangur hans á vetrum, en síldarmiðin fyrir Norðurlandi á sumrum. En þótt það megi með sanni segja, að Guðmundur sé vaxinn upp með sjómennskunni, þá er hitt eigi síður satt, að honum sé sjómennskan í blóð borin. Mann fram af manni hafa forfeður hans stundað sjóinn í verstöðv unum sunnan lands, ýmist í Þor- lákshöfn eða á Stokkseyri, og Guðmundur er sjöundi ættliður- inn í óslitinni röð, sem kunnugt er um, að hafi verið formenn. Það var að vísu nokkuð algengt, að formenska gengi í ættir, enda var það eðlilegt. Formenn áttu oftast skip sín að nokkru eða öllu sjálfir. Þeir kenndu sonum sínum sjó eða komu þeim til annarra reyndra formanna og létu þá síðan taka við af sér, er þeir höfðu aldur og þroska til. Oft er því hægt að rekja formennskuna í þrjá til fjóra ættliíji, en sjaldan öllu lengra vegna skorts á heimildum. Hitt er mjög sjaldgæft, að hægt sé að rekja hana svo langt aftur í tímann, sem áður var sagt um forfeður Guðmundar. í tilefni af sjómennskuafreki hans á síðastliðinni vertíð, datt mér í hug að biðja sjómannablaðið „Víking" fyrir greinarkorn þetta til fróðleiks og skemmtunar þeim, er það vilja nýta. ☆ Fyrsti ættliðurinn í formanna- röðinni, sem hér verður talinn, er Jón hreppsljóri Kelilsson í Ferjunesi, er síðar nefndist Ós- eyrarnes (f. 1710, d. 1780). Hann var bóndi í Nesi á árunum 1758—1778, en síðustu tvö árin, sem hann lifði, bjó hann á Stokkseyri. Jón var formaður í Þorlákshöfn, og auk þess var hann ferjumaður í Óseyrarnesi. En það er haft eftir Þorkeli gamla Jónssyni í Nesi, er þar bjó löngu síðar, að ekki væri öllu minni vandi að vera góður ferjumaður í Óseyrarnesi en formaður í Þorlákshöfn, og hafði hann reynt hvart tveggja. Annar æltliðurinn er Hannes lögréllumaður Jónsson í Kald- aðarnesi (f. 1747, d. 1802), sonur Jóns Ketilssonar. Hannes bjó í Ferjunesi á árunum 1778—1782, en fluttist þá að Kaldaðarnesi og bjó þar síðan til dauðadags. Hann var auðugasti maður í Ár- nessýslu á sinni tíð og dugnaðar maður mikill. Hann var formað- ur í Þorlákshöfn í mörg ár. Þess skal getið til gamans, að árið 1789 skipaði Steindór sýslumað- ur Finnsson þá Har\pes lög- réttumann og Þórð bónda Gunn- ársson í Þorlákshöfn til þess að vera „forstjórnar og forgangs- menn“ til undirbúnings og varn- ar gegn erlendum sjóræningj- um, ef þeir legðu að landi í Þor- lákshöfn á vertíðinni (Bréfab. Árn. 28. marz 1789). Að minnsta kosti tveir synir Hannesar voru formenn 1 Þorlákshöfn, þeir Einar í Kaldaðarnesi og Jóhann á Lambastöðum. Þriðji ættliðurinn er Einar spítalahaldari Hannesson i Kald- aðarnesi (f. 1781, d. 1870). Hann var bóndi í Kaldaðarnesi 1813— 1856, og hreppstjóri í Sandvíkur- hreppi í marga áratugi. Einar var formaður í Þorlákshöfn, og er þess getið meðal annars i skrám yfir spítalahluti frá ár- unum 1825—1827 (Árn. II. í Þjóð- skjalasafni). Tveir synir Einars voru formenn í Þorláksjhöfn, þeir Þorkell í Mundakoti og Hannes bóndi í Tungu í Flóa. Fjórði ættliðurinn er Þorkell bóndi Einarsson í Mundakoti á Eyrarbakka (f. 1802, d. 1880). Hann var bóndi í Mundakoti á árunum 1829—1864. Þorkell var formaður í Þorlákshöfn. Um hann orti séra Guðmundur Torfason í formannavísum úr Þorlákshöfn 1840: Þorkell Einars arfi snar, ók frá Mundakoti, víðis hreina vagni þar, Vandils beinu traðirnar. Þorkell átti svo sonu, sem upp komust, Guðmund á Gamla- Hrauni og Jóhann í Mundakoti. Þeir voru báðir lengi formenn. Fimmti æitliðurinn er Guð- mundur bóndi Þorkelsson á Gamla-Hrauni (f. 1830, d. 1914). Hann var formaður i 30 vertíðir (1856—1886), fyrst fimm vertíðir á Stokkseyri, en síðan alla tíð í Þorlákshöfn. Um 1860 smíðaði Jón Gíslason í Austur-Meðal- holtum, bróðir Gríms í Nesi, áttróinn sexæring handa Guð- mundi. Hann hét „Bifur, ein- stök gangfttroka, og var Guð- mundur formaður á honum, fyrst á Stokkseyri og síðan lengi í Þorlákshöfn. Á „Bifur“ var skorin þessi bitavísa: Að „Bifur“ leiði um báru heiði og branda meiði lukku með, gefi veiði, en grandi eyði guðs ég beiði almættið. Árið 1885 smíðaði Jóhannes Árnason á Stéttum tólfróinn teinæring handa Guðmundi og átti hann 2/3 hluta skipsins, en Jón, sonur hans, 1/3. Smíða- kaupið var 70 krónur, og greiddu þeir feðgar það í gulli. Skip þetta hét „Svanur,“ og var Guð- mundur formaður á því tvær seinustu formannsvertíðir sínar. Þá tók Guðmundur, sonur hans, við því og var með það í fimm vertíðir. Það voru fyrstu for- mannsár hans. Árið 1892 tók Jóhann, annar sonur Guðmund- ar, við „Svani“ og byrjaði þá formennsku. — Þessar for- mannsvísur um Guðmund á Gamla-Hrauni munu vera frá fyrri árum hans, en ókunnugt er um höfund þeirra: Húna gammi hrindir fram, Hrauns ráður hann Gyðmundur lætur þramma um lúðudamm, liðugur við stjórn situr. Hann GuðmuSciur Hrauni frá, hestinn sunda keyrir, seims með lunda landi frá, lýra grunda brautir á. En þessi er úr formannavísum úr Þorlákshöfn 1885, eftir Brynj- ólf Jónsson frá Minna-Núpi: Gjálfurs dýr með Guðmund rann, grund um hlýra og afla fann Gamla býr á Hrauni hann, hefnir skírást Þorkels vann. Guðmundur á Gamla-Hrauni átti fimm sonu, sem upp kom- ust. Þeir voru kallaðir Gamla- Hraunsbræður, og stunduðu all- ir sjó að meira eða minna leyti, en þrír þeirra urðu formenn Jón á Gamla-Hrauni, Guðmund- ur í ,ólafsvík og Jóhann á Litlu Háeyri. Guðmundur Guðmunds- son var formaður í Þorlákshöfn frá 1887 og fram að aldamótum, en fluttist þá til Ólafsvíkur. Þar hélt hann áfram formennsku og innleiddi sunnlenzka siglinga- lagið þar vestra. Var hann kall- aður. Guðmundur sunnlenzki, sem segir í þessafi formannsvísu úr Ólafsvík: 1 aflandsvindi undan landi stýrir, hjörva lundur hugprúði, hann Guðmundur sunnlenzki. Guðmundur drukknaði frá Ólafsvík 1907. — Einkasonur hans var Guðmundur, stofnandi og fyrsti forstjóri Hampiðjunn- ar h.f. í Reykjavík. Jóhann Guðmundsson á Liltu- Háeyri var formaður í Þorláks- höfn í 39 vertíðir (1892—1930). Um hann eru þessar formanns- vísur úr Þorlákshöfn 1914, og er að minnsta kosti fyrri vísan eftir Pál skáld á Hjálmsstöðum: Jóhann eigi hefur hátt, Hrönn þótt veginn grafi, hleður fleyið fiski þrátt, fram á reginhafi. mennsku vegna veikinda, en reri eftir það 19 vertíðir í Þor- lákshöfn hjá Gísla silfursmið Gíslasyni (mynd af skipshöfn- inni er í ritinu Þorlákshöfn I, milli bls. 40 og 41), og síðan 5 vertíðir í Vestmannaeyjum. Alls reri Jón ýmist sem háseti eða formaður í 54 vetrarvertíðir, en auk þess var hann í marga ára- tugi formaður á vor- og haust- vertíðum heima á Gamla- Hrauni. Jón var af öllum talinn framúrskarandi sjómaður, gæt- inn og glöggþekkinn á sjó og veður. Hann þekkti svo vel sjóvarbotninn á fiskimiðum Þorlákshafnarbátanna, að til þess var tekið, gat nákvæmlega sagt til um það, hvar hraun var undir eða hvar bollar voru hrauninu, þar sem fisks væri von. Það hefir sagt mér einn af hásetum Gísla silfursmiðs, merk- ur maður, að svo mikið traust hafi þeim félogum þótt að Jóni, að þeir hefðu viljað vinna það til að bera hann út í skipið, ef með hefði þurft, til þess að hafa hann með á sjónum. Hraun- brúnina neðansjávar fyrir Eyrar bakka þekkti Jón eins og túnið heima, vissi um hvert vik og hverja holu, svo og öll örnefni og mið á þeim slóðum. Um Jón á Gamla-Hrauni eru til margar formannsvísur. Þessi er úr Þorlákshöfn 1885, eftir Brynjólf Jónsson frá Minna- Núpi: Lætur skeiða „Svaninn“ sinn, sels um breiða flóa, hefur leiði út og inn, oft með veiði nóga. Jón á sjóinn setur far, sonur tjáist Guðmundar Borg er frá án búskapar, í blóma sá er æskunnar. Storhugur bænda í Eyjafirði við ræktunarframkvæmdir AKUREYRI, 19. maí. — Það má í rauninni segja að fyrsti sumardagurinn okkar hér Norðanlands hafi verið 17. maí. — Tíðindamaður blaðs- ins fór í smáferðalag um nærsveitir Akureyrar. Veð- ur var ákaflega fagurt, sól- skin og 16 stiga hiti. Lækur sem í gær hafði verið smá- ' spræna, var orðinn að belj- andi fljóti. Almenn tíðindi Við hittum nokkra bændur að máli og spurðum almennra tíð- inda. Kváðu þeir gripi hafa geng- ið vel fram og hey verið næg, en fyrningar munu verða með minna móti sakir þess, hve seint vorar. I innsveitum var þó lítið eitt farið að grænka, áður en kuldakast það gerði er nú hafði staðið í nærfellt hálfan mánuð. Nú er þó aftur farið að grænka *í rót á ræktuðu landi og virðist jörð ætla að koma vel undan snjónum, ekki unnt að sjá kal enn, utan bletti frá í fyrra. Farið er að láta kýr út sums staðar, þótt varla geti það talist til ann- ars en að lofa þeim að viðra sig. Unglömb hoppa um grund og móa og elti mynda vél okkar þau uppi, þótt þau virðist enn of ung til að skilja hina þýðingar- miklu setningu ljósmyndarans „alveg kyrr, nú“. Spóinn er kom- inn en hefir frekar hægt um sig enn sem komið er, líklega er hreiðurstæðið hans varla þurt ennþá. Meðal sona Jóhanns er Run- ólfur skipasmiður í Vestmanna- eyjum, en annar var Axel tog- araskipstjóri í Boston og afla- kóngur þar um skeið. Hann fórst með togaranum „Guðrúnu“ frá Boston í janúar 1951. Sjötii æitliðurinn er Jón bóndi Guðmundsson á Gamla-Hrauni (f. 1856, d. 1914), en hann var elztur þeirra Gamla-Hrauns- bræðra, er nú voru nefndir. Hann bjó nokkur ár í Framnesi í Hraunshverfi (1886—1892) og 1904—1906), en annars á Gamla- Hrauni. Jón byrjaði að róa á vetrarvertíð 15 ára gamall hjá Jóhannesi Árnasyni á Stéttum og var hjá honum eina vertíð, þá var hann þrjár vertíðir hjá föðurbróður sínum, Jóhanni Þor- kelssyni í Mundakoti, og aðrar þrjár hjá Grími Gíslasyni í Ós- eyrarnesi. Eftir það gerðist hann sjálfur formaður og hafði það starf á hendi í 23 vertíðir (1879— 1901), fyrst 12 vertíðir í Þor- lákshöfn, þá 9 vertíðir á Stokks- eyri og loks aftur 2 vertíðir í Þorlákshöfn. Þá hætti hann for- Eftirfarandi vísur eru eftir Símon Dalaskáld, kveðnar í Þor lákshöfn 1887—1888: Jón með háa hugprýði, hlutar snilldarlega. Þessi frá er Framnesi, fáki ráar stýrandi. Stýra sunda mæki má, mikið snilldarlega, er Guðmundar sonur sá síldar grundu djarfur á. Tvær næstu vísur eru eftir Steingrím Ólafsson frá Geld- ingaholti, kveðnar í Þorlákshöfn 1889, eftir því sem næst verður komizt: Japa sunda jarðar hrings Jón Guðmundar arfi, meður lunda báru bings beitir á grundu hafrennings. Jón Guðmundar arfinn er, á Framnesi býr hann, hvals á grundu greiðast fer, geira lundar höpp ei þver. Eftirfarandi vísa er úr for- mannavísum á Stokkseyri 1891, eftir Hofs-Gísla: Framnes-Jón um foldar hring, fer 1 happa vonum, laus við tjón í landnyrðing, lukkan þjónar honum slyng. Loks er þessi vísa úr formanna vísum á Stokkseyri 1891, eftir Magnús Teitsson: Hvals á frón inn hugdjarfi, hlunna ljóni stýrandi, gildur þjónar gæfunni gætinn Jón 1 Framnesi. Sjöundi ætiliðurinn eru synir Jóns á Gamla-Hrauni eða hinir síðari Gamla-Hraunsbræður. Jón átti níu sonu, sem upp komust, og urðu þrír þeirra formenn eða skipstjórar. Elztur þeirra var Þórður á Bergi í Vestmanna- eyjum (f. 1887, d. 1939), er var mörg ár formaður á velbátnum „Enok“ í Eyjum. Annar er Guð- mundur (eldri) á Háeyri í Vest mannaeyjum (f. 1888), er var lengi formaður á vélbátnum „01gu.“ Báðir stunduðu þeir bræður einnig skipasmíðar. Þriðji bróðirinn er Guðmundur (yngri, f. 1908) skipstjóri á m.b. „Sigrúnu" frá Akranesi, sem grein þessi er tileinkuð. Tveir aðrir af bræðrunum lögðu auk þess sérstaklega stund á báta- og skipasmíði í Vestmannaeyjum, þeir Magnús (f. 1892, d. 1920) og Gunnar Marel (f. 1891) slipp- stjóri við Dráttarbraut Vest- mannaeyja h.f., þjóðkunnur dugnaðar- og hagleiksmaður sinni grein. ☆ Vér nútíðarmenn megum ve . minnast þess mitt í ys og önnum dagsins, að vér erum sjálfir eigi alls fyrstir. Aðrir hafa farið fyrir og rutt götuna á undan oss. Kynslóðirnar, sem það gerðu, eru horfnar af vettvangi, en þær lifa í oss ósýnilegu lífi. Þegar mest reynir á manngildið standa þær oss næst. Þegar Guð mundur, bróðir minn, háði glímu sína við krappar kyljur flóans í janúarveðrinu í vetur, þá er það trúa mín, að þær hafi veitt honum fylgd og brautar gengi. —VIKINGUR, maí, 1952 Mikill jramfarahugur Framkvæmdir munu verða all miklar á þessu vori og sumri. Ólafur Jónsson, búnaðarráðu- nautur, fræddi okkur um það að minnsta kosti 5 skurðgröfur myndu verða að verki víðsvegar um héraðið og mun ein þeirra þegar komin í gang, en allvíða er klaki til hindrunar. Allmikið mun vera til af heimilisdráttar- vélum og eru bændur um það bil að byrja að plægja og herfa. Þó mun vélaskortur enn aukast að mun og komu t. d. 15 dráttar- vélar með síðasta skipi til Akur- eyrar. Mikið land liggur í flögum og er stórhugur í bændum með í æktunarframkvæmdir. Margar jarðýtur hafa gengið um héraðið þvert o^ endilangt á vegum ræktunarfélaganna undanfarin sumur og hafa þær skilað feikna afköstum. Nokkur samvinna mun einnig um minni dráttar- vélar, en þó mun draumur flestra bænda vera að eignast sinn eigin vélakost. Eitthvað mun fyrirhugað að byggja, aðal- lega peningshús, hlöður og vot- heysturna, en Byggingarsam- vinnufélag Eyjafjarðar á steypu- mót til votheysturnagerðar, hið mesta þarfaþing. Fjárskortur til vegagerðar Við spurðum Karl Friðriksson, vegaverkstjóra, um fyrirhugaðar vegagerðir. Lét hann lítið yfir og kvað fjárveitingar til þeirra hluta mjög af skornum skammti. Mun Eyjafjarðarsýslu allri hafa verið veitt um 130 þúsund kr. til nýbygginga vega. Hrekkur það skammt þegar t. d. eitt bílhlass af möl kostar 50 kr. komið út í veg; fjárveitingunni er skipt á milli margra vegakafla og byrj- unarkostnaður mikill á hverjum stað. Brúagerð mun einnig verða ítil í sýslunni, en þó mun lokið við nýju brúna á Krossstaðaá og er verið að leggja veg að henni. Kostnaður við snjómokstur í lágsveitum hér á síðastliðnum vetri nam um 100 þúsund kr. og mun það fé mestmegnis hafa farið til þess að halda opinni leiðinni milli Dalvíkur og Akur- eyrar. Gott heilsufar Heilsufar hefir verið allgott 1 héraðinu, engar skæðar umgangs pestir herjað á fólk. Haldizt tíð- arfar eins og nú horfir má segja að Eyfirðingar hafi sloppið vel irá síðasta vetri. —Vignir —Mbl., 22. maí COPENHAGEN Bezta munntóbak heimsins OVER THE PARTY LINE----------BY M.T.S. "Aliaf. altaf í noikun! Hver hefir ekki hengi upp heyrnariolið?" ^ réplace ríceiver K pRO/npnr F Sýnið nærgætni, er þér notið hinn sameiginlega símþréð! 92—3

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.