Lögberg - 03.07.1952, Page 8

Lögberg - 03.07.1952, Page 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 3. JÚLÍ, 1952 Úr borg og bygð Ný ljóðabók Falleg og vönduð ný ljóðabók eftir Davíð Björnsson bóksala, fæst nú í Björnssons Book Store, 702 Sargent Ave., Winni peg. Bókin er prentuð hjá The Columbia Press Ltd., og kostar óbundin $2.50, en í afarvönduðu bandi $4.50. Pantið bókina sem fyrst, því upplag er lítið. ☆ FÖÐURTÚN Þeir, sem hugsa sér að eignast þessa ágætu bóku (héraðssögu Húnvetninga) ættu að gera það strax, því aðeins * fáein eintök eru óseld. Bókin er uppseld á íslandi, og fæst því ekkf meir, eftir að þessi fáu eintök eru seld. Munið að þessi bók inniheldur um 500 myndir og margþættan fróðleik. Kostar $10.00 óbundin, $13.00 í bandi og fæst í Björnssons Book Store, 702 Sargent Ave., Winnipeg ☆ COOK BOOK Matreiðsiubók, sem Dorcasfé- lag Fyrsta lúterska safnaðar lét undirbúa og gaf út; þegar þess er gætt, hve bókin er frábærlega vönduð að efni og ytri frágangi, er það undrunarefni hve ódýr hún er; kostar aðeins $1.50 að viðbættu 15 centa burðargjaldi. P a n t a n i r, ásamt andvirði, sendist: Mrs. R. G. Pollock, 708 Banning St. Winnipeg, Sími 36 603 Miss Ruth Bárdal, 5 — 54 Donald St. Winnipeg. Sími 929 037 ☆ — Gullbrúðkaup — Börn séra Alberts E. Kristjáns- sonar og Önnu konu hans, í sam- ráði við safnaðarnefnd og kven- félag Unitara-safnaðarins í Blaine, Washington, hafa ákveð- ið að minnast 50 ára giftingar- afmælis þeirra hjóna með sam- kvæmi í kirkju safnaðarins hinn 20. júlí n.k. Að sönnu er þetta mánuði fyrir hinn rétta dag, sem er 20. ágúst, en sökum þess að hjónin hafa ráðgert ferð til Manitoba með það fyrir augum að ná íslendingadagssamkomu að Gimli, var þessi breyting á deginum gjörð. Engin boðsbréf verða send, en allir vinir þeirra hjóna eru boðn ír og velkomnir. H. A. Kristjánsson ☆ Mrs. O. J. Mclnnes .(Helga) og dóttir hennar, Rosemarie, komu frá Los . Angeles síðastliðinn sunnudag í heimsókn til dóttur sinnar Mr. George Mather og systur sinnar Mrs. D. Björnsson, og dvelja hér "tíu daga. Þær komu í bíl með Mr. og Mrs. Oscar Johnson frá Los Angeles, sem hingað komu að heimsækja ættingja og vini. ☆ — Tilkynning — ' Til allra þeirra, sem vilja eða þurfa að vita mína utanáskrift, þá hefi ég nú flutt í nýjan bú- stað, og er mín utanáskrift þessi: Rev. G. P. Johnson, 2832 W. 69, Street, Seattle 7, Washington, U.S.A. ☆ Séra Skúli Sigurgeirsson og frú Sigríður komu til borgarinn- ar ásamt syni þeirra, Jónasi, síð- astliðna viku; séra Skúli hefir þjónað prestakalli í Indíana á umliðnu ári og láta þau hjón hið bezta af dvöl sinni þar. Áður en þau komu hingað heim- sóttu þau venzlafólk sitt í Moose Jaw.og síðan söfnuðina í Vatna- byggðunum, er séra Skúli þjón- aði fyrrum og flutti hann þar guðsþjónustur. Héðan fóru þau norður til Nýja-Islands í heim- sókn til vina og vandamanna en sonur þeirra fór til Churchill á þriðjudaginn; þar skipar hann ábyrgðarstöðu í þjónustu sam- bandsstjórnarinnar. Þau hjónin leggja af stað heimleiðis til Indíana þann 13. þessa mánaðar. Ólafur Kárdal, söngmaður, kom frá Minneapolis á miðviku- daginn og fór til Gimli sam- dægurs. ☆ Mr. og Mrs. G. Á. Williams og börn þeirra fimm komu til borgarinnar í fyrri viku og fóru til Brandon á iðnaðar- og land- búnaðarsýninguna þar. ☆ — GIFTINGAR — Betty Joice White og Jack Donald McKenty voru gefin saman í hjónaband í United Col- lege Chapel hér í borg, 26. maí; Rev. David Owen framkvæmdi hjónavígsluna. Brúðurin er dótt- ir Mr. og Mrs. George P. White, 1288 Dominion Street; Mrs. White er íslenzk — Sigríður Sig- urðardóttir frá Litla-Hóli í Eyja- firði. Brúðguminn er dótturson- ur Péturs kaupmanns Tergesen á Gimli, er hann nú að fullnema sig í læknisfræði við spítala í Saskatoon. ☆ Betty Jane, dóttir Dr. og Mrs. Jack McKenty, og William Ten- nent Wylie voru gefin saman i hjónaband 7. júní í Harstone Memorial United kirkjunni. — Brúðurin, sem nýlega hefir hlot- ið Master of Arts degree frá Manitobaháskóla, er dótturdótt- ir Péturs kaupmanns Tergesen á Gimli. ☆ Samkvæmt frétt frá Interlake Weekly Observer fór Mrs. Rann- veig Gudmundson, Lundar, suð- ur til Chicago nýlega til að vera viðstödd, er syni hennar, Emil, var veitt Doctor of Divinity degree. ☆ Mrs. Hróðný Thompson lézt á laugardaginn 28. júní, 59 ára að aldri; maður hennar, Harry Thompson, er látinn fyrir nokkr um- árum. Hún var dóttir Finns Stefánssonar. Hún lætur eftir sig son, Harold; tvær dætur, Eileen og Mrs. Joseph Selinger; ennfremur bróðir, Fred Stefáns- son og systir, Mrs. B. C. Mc- Alpine. Útförin fer fram í dag — fimtudag — kl. 4 frá Fyrstu lút- ersku kirkju. ☆ Á útiskemtun sunnudagaskól- ans á Gimli var Miss Jórunni Thordarson afhent falleg gjöf í minningu um 22 ára kenslu- starf við skólann. Hún mun heimsækja ísland í sumar á- samt föður^ínum og systur, Sig- urði Thordarson og Láru Thord- arson. ☆ Landnámshátíðin, sem haldin var á Iðavelli við Hnausa, vár fjölsótt, og fór um alt hið virðu- legasta fram. Nánari umsögn í næsta blaði. Eiríksson. — In loveing memory of my dear husband and father Valdimar, who passed away May 12th 1951. Gone from us but leaving memories death can never take away, memories that will al- ways linger, while upon this earth we stay. Ever rememered by his love- ing wife Guðrún and son Sveinn. ☆ Ritstjóri Lögbergs, Kæri herra: Enn ligg ég á General Hospital og veit ekki nær ég get losnað. Snorri sonur minn að Sheri- dan kom til Winnipeg síðastlið- inn föstudag með konu sína og tvö börn á leið til Vancouver, B.C., hann á þar tvær systur, og kona hans foreldra og syst- kini. Þau bjuggust við að dvelja þrjár vikur vestra, en stanza hér nokkra daga í bakaleið til norð- urlandsins. S. Baldvinson ☆ Eiríkur Sigurðsson, trésmíða- meistari lézt á sunnudaginn, 29. júní, á Almenna spítalanum í Winnipeg, 77 ára að aldri; hann lætur eftir sig ekkju, Jódísi Sigurðsson. Kveðjuathöfn fer fram í Bardals útfararstofunni kl. 1.30 e. h. á föstudaginn, en jarðað verður í Húsavík graf- reitnum. Nánari umsögn síðar. ☆ Vestur-lslendingar hafa um þessar mundir haldið kirkjuþing sín. Þing lúterska kirkjufélags- ins hefir staðið yfir í Minneota, en af því hafa engar fréttir bor- ist. Þingi Sameinaða kirkjufé- lagsins lauk hér í borg á sunnu- dagskvöldið og var séra Philip M. Pétursson endurkosinn í for- setasæti. ☆ Mr. og Mrs. Frederick Frid- geirsson frá Los Angeles, Cal., komu hingað til borgarinnar um síðustu helgi. Mrs. Fridgeirsson (Helga, er systir Sigurðar Jónas- sonar lögfræðings í Reykjavík, en stjúpdóttir frú Jóhönnu Jónasson, sem nú er hér búsett. Frú Helga og þeir bræður, synir Ásmundar P. Jóhannssonar eru systkinabörn. Þau Mr. og Mrs. Fridgeirsson brugðu sér norður í Nýja-ísland og voru viðstödd Landnámshá- tíðina á Hnausum; þau munu hverfa heimleiðis í næstu viku. ☆ Þær systur, Mrs. Sigurðsson frá Swan River og Mrs. Pálsson frá Cloverdale, B.C., dvelja um þessar mundir hér um slóðir í heimsókn til systra sinna hér í borginni, Mrs. Elding og Mrs. Reykdal, og Mrs. Jón Borgfjörð í Árborg; eiga þær mikinn fjölda frændliðs í Winnipeg og grend. Elzti íslendingurinn — kona í Hafnarfirði 105 ára Helga Brynjólfsdóttir, Kirkju- vegi 20 í Hafnarfirði varð 105 ára 1. júní s.l., og er hún vafalaust elzt allra núlifandi Islendinga. Hún er fædd 1. júní 1847. Þrátt fyrir þennan háa aldur er hún vel hress og heldur enn furðu firði, — þar í 44 ár. Helga fæddist á Kirkjubæ á Rangárvöllum og dvaldist í for- eldrahúsum þar og á Selalæk, unz hún giftist 1880 Stefáni Guð- mundssyni frá Lambhaga og þau fóru að búa að Bakkarholtsparti í Ölfusi. Missti hún mann sinn á cðru hjúskaparári, og hefir því verið ekkja í 70 ár. Síðan hefir Helga átt heima á Selalæk, í Viðgey, Reykjavík og Hafnar- — þar í 44 ár. Tíðindamaður blaðsins ræddi um stund við hana í gær, þar sem hún dvelst á heimili dóttur- dætra sinna, sem annast hana. Helga fylgist allvel með því, sem gerist í kringum hana, og daglega klæðist hún og gengur um húsið. En út hefir hún ekki farið síðan síðastliðið sumar, en býst þó við að „hafa sig út í sól- skinið“ þegar betur hlýnar í veðri. — Og ekki kærir hún sig um að láta færa sér kaffisopann, ef hún er á fótum. Þá vill hún heldur fara sjálf fram í eldhús og fá sér sopann, ef svo ber til. „Hvernig heldurðu að þér félli að smakka ekki kaffi í tvö til þrjú ár?“ „Þá myndi ég líklega gleyma hvernig það er á bragðið," svar- aði hún. En hún man vel tvo vinnu- menn foreldra sinna í Kirkjubæ á Rangárvöllum, sem hömpuðu henni, þegar hún var á öðru og þriðja ári. Segir, að þeir hafi heitið Magnús og Einar; en þeir fóru af heimilinu 1849 eða fyrir 103 árum! Þegar aldamótahátíðin var haldin í Reykjavík, átti Helga heima í Viðey. Hafði hún þá mikla samúð með unga fólkinu, sem langaði til að vera með, en komst ekki vegna óveðurs. Vel kveðst hún muna umtal og viðbúnað vegna þjóðhátíðarinn- ar 1874; „en þangað fór ég ekki; rnátti ekki vera að því,“ segir Helga. —A.B., 31. maí Drykkjumannahæli MESSUBOÐ Fyrsta Lúterska Kirkja Framhald af bls. 5 áfram í sínu umhverfi og við sitt starf 'og losnar við þær freisting- ar, sem jafnan eru því samfara að koma á ný út í lífið að langri hælisvist lokinni. Auk þess er meðferð þessi mun ódýrari en hælisvistin. I mörgum tilfellum verður þó ekki hjá því komist, að taka sjúklinginn úr sínu venjulega ' umhverfi til athugunar og lækn- inga. Eru þeir þá lagðir í sjúkra- hús, en dvölin þar höfð sem stytzt, venjulega aðeins nokkrar vikur. Þar sem ekki er sérstök taugadeild í sambandi við spítala, þykir engin frágangssök að veita þessa hjálp í venjulegu sjúkrahúsi. Þá er erlendum sérfræðingum það ljóst, að ekki verður komizt hjá að hafa hæli fyrir þá drykkju menn, sem dýpst eru soknnir. Erlendis, eins og hér, verður viss hópur slíkra manna stöðugir gestir í lögreglustöðvum og í réttarsölum. s Eru það menn, sem gefið hafa upp allt starf, eiga sér hvergi athvarf, en lifa fyrir það eitt að drekka. Að sjálfsögðu eiga þessir menn eins og aðrir að fá fullkomna læknis- og félagsaðstoð, eins og að fram- an greinir, en reynist allt árang- urslaust, ber þjóðfélaginu sjálfs sín og drykkjusjúklingsins vegna að koma þeim fyrir í viðeigandi hæli. Yrði þar um langdvöl að ræða. —0— I samræmi við ofangreindan skilning eru tillögur okkar, sem nú skal frá skýrt. Við teljum að heppileg lausn fáist ekki innan ramma gildandi laga, og eru til- lögur okkar því samdar án tillits til þeirra. 1. Hjálparstöð fyrir drykkju- sjúklinga verði komið upp eins fljótt og unnt er. Verkefni hjálparstöðvarinnar yrði þrenns konar: a) veita sjúklingunum læknismeðferð; b) veita sjúklingunum og að- standendum þeirra félagslega að- stoð; c) safna skýrslum og öðr- um gögnum um áfengisvanda- málið í bænum. Starfslið hjálparstöðvarinnar yrði sem hér segir: Einn eða helzt tveir læknar, sérfróðir í geð- og taugasjúkdómum. Yrði starfstími þeirra á stöðinni sam- tals um 12 klst. í viku, en auk þess má búast við, að læknarnir verði að sinna vitjunum að ein- hverju leyti í heimahús í sam- bandi við starf stöðvarinnar. ■— Þá yrði einnig hjúkrunarkona að starfa við hjálparstöðina. Mundi starf hennar vera fólgið í aðstoð við læknana í stöðinni, félagslegum leiðbeiningum sjúkl mgunum til handa og skýrslu- söfnun. Ef til vill mundi nægja að hjúkrunarkonan ynni aðeins hálfan daginn og er rétt að gera ráð fyrir því, a. m. k. í byrjun. Ennfremur væri að líkindum æskilegt að stöðin nyti að ein- liverju leyti fleiri starfskrafta, t. d. prests, í félagslegum efnum. Húsnæði stöðvarinnar mætti ekki vera minna en þrjú her- bergi (læknisherbergi, herbergi hjúkrunarkonu og biðstofa). Ekki væri óhugsandi að húsa- kynni þessi yrðu einnig notuð í öðru skyni, t. d. sem almennar lækningastofur, enda yrði hjálp- arstöðin aðeins opin vissa tíma á dag. Kostnaður við rekstur hjálpar- stöðvarinnar (laun, húsaleiga, ljós, hiti, ræsting, lyf) áætlum við að verði um kr. 80 þús., og er þá miðað við að húsnæðið yrði einnig notað til annarra þarfa. 2. Séð verði fyrir sjúkrarúm- um handa þeim drykkjusjúkling- um, sem sjúkráhúsmeðferðar þarfnast. Gert er ráð fyrir, að læknis- meðferðin fari fram að lang- mestu leyti í sjálfri hjálparstöð- inni. Þó munu ætíð vera nokkrir sjúklingar, sem þarfnast sjúkra- húsvistar, annað hvort í byrjun meðferðar eða síðar, þegar með- ferðin á hjálparstöðinni ber ekki nægilegan árangur. Yrði þá að- eins um tiltölulega stutta sjúkra- húsvist að ræða, sennilega 3—5 vikur. Vistun drykkjumanna í sjúkrahúsið og burtskráning þeirra væri ákvörðuð af sérfróð- um læknum hjálparstöðvarinn- ar. Erfitt er að segja um, hve mörg sjúkrarúm muni þurfa í þessu skyni, en við teldum það mikinn ávinning, ef 4 sjúkrarúm fengjust til að byrja með handa þessum sjúklingum. Eins og á- standið er nú í sjúkrahúsmálum í bænum, dettur okkur helzt í hug að reynt yrði að semja við Sjúkrahús Hvítabandsins eða Landakotsspítalann um rúm þessi. Benda má á að þetta er engin nýjung, því oft hafa drykkjusjúklingar verið lagðir í sjúkrahús hér, þótt það sé ekki ætíð vel séð af þeim, er yfir sjúkrarúmunum ráða. Dvalarkostnaður mundi greidd ur af Sjúkrasamlagi Reykjavík- ur fyrstu 35 dagana. Þegar sjúkrahúsdvölin yrði lengri, verða aðrir aðilar að taka við. 3. Vinnuhæli fyrir drykkju- sjúklinga verði sett á stofn hið bráðasta. Þangað verði komið til lang- avalar þeim drykkjumönnum, sem verst eru farnir líkamlega og andlega og öll læknismeðferð hefir reynzt árangurslaus við. Hæli þetta þarf fyrst og fremst cð geta veitt vistmönnum hentug starfsskilyrði, helzt við landbún- aðarstörf og e. t. v. sjósókn, en einnig við handiðnir. Hælið þarf að vera þannig staðsett, að ekki gæti ónæðis frá umhverfinu, en þó tiltölulega auðvelt um sam- göngur. Við teljum það ekki miklu máli skipta, þótt hælið verði langt frá Reykjavík, ef skilyrði væru að öðru leyti góð. Ekki er nauðsynlegt að læknir sé fcúsettur á hælinu, og væri eðli- legast að viðkomandi héraðs- læknir annaðist aðkallandi læknisstörf þar. Vistun og burt- skráning drykkjusjúklinga yrði í höndum lækna hjálparstöðvar- innar, sem tæpast þyrftu að heim sækja hælið oftar en tvisvar á ári. Vinnuhælið þarf að geta vist- að frá byrjun um 20 vistmenn, Séra Valdimar J. Eylands Heimili 686 Banning Street. Sími 30 744. Sumarfrí stendur yfir. Guðsþjónustur hefjast 10. á- gúst n. k. ☆ Messur í Norður-Nýja-íslandi sunnudaginn 6. þ. m. Riverton kl. 2 e. h., en að Hnausum kl. 8.30 e. h. Séra Eric H. Sigmar pré- digar á báðum stöðum. en síðan væri rétt að láta reynsl- una skera úr um frekari þörf. Þessa tölu byggjum við aðallega a upplýsingum, sem lögreglu- stjórinn í Reykjavík hefir vin- samlegast látið okkur í té um drykkjumenn, sem mest verða á vegi lögreglunnar. Að lokum viljum við taka fram, að með tillögum okkar höfum við m. a. haft það tvennt í huga, að byrja þessa starfsemi í smáum stíl og að fyrirkomulag hennar yrði frekar til að hæna sjúklingana að en fæla þá frá henni. Hjálparstöð, sem er til húsa með annarri lækninga- eða heilsuverndarstarfsemi og vist í almennum sjúkrahúsum verður áfengissjúklingunum geðþekkari en sérstök drykkjumannastöð og spítali. Mikilvægt er að forðast eftir mætti allt, sem litið verður á sem „stimpil“ í sambandi við þessa hjálparstarfsemi. Á því, hve vel tekst um þetta atriði, veltur mjög, hvort drykkjumenn almennt, og ekki sízt þeir, sem vænlegast er um árangur hjá, leiti til þessara hjálparstofnana eða ekki. —A.B., 17. maí Irsnköllunar-menn Lögbergs ■ Bardal, Miss Pauline .. Minneota, Minnesota ! Minneota, Minnesota Ivanhoe, Minnesota Einarson, Mr. M. .. Arnes, Manitoba ; Fridfinnson, Mr. K. N. S Arborg, Manitoba Arborg, Manitoba í ' Geysir, Manitoba Hnausa, Manitoba ; Riverton, Manitoba ; Vidir, Manitoba Goodmundson, Mrs. . Elfros, Saskatchewan ! Gislason, T. J. Morden, Manitoba Gislason, G. F. . Churchbridge, Sask. Bredenbury, Sask. i Grimson, Mr. H. B. Mountain, North Dak. ’ Mountain, N.D. Edinburg, North Dak. Gardar, North Dak. ! Hallson, North Dak. ; Hensel,*iNorth Dak. ; Johnson, Mrs. Vala Selkirk, Manitoba Kardal, Mr. O. N. . Gimli, Manitoba : cfimli, Manitoba Husavik, Manitoba “Betel”, Gimli, Man. Winnipeg Beach, Man. ; ; Lindal, Mr. D. J. . Lundar, Manitoba • Lyngdal, Mr. F. O. Vancouver, B.C. ! 5973 Sherbrook St. Vancouver, B.C. • Middall, J. J .. Seattle, Washington 6522 Dibble N.W. ; Seattle, Washington ; G. J. Oleson Glenboro, Manitoba Glenboro, Man. Baldur, Manitoba ! Cypress River, Man. ; Olafson, Mr. J. Leslie, Saskatchewan Simonarson, Mr. A. Blaine, Washington ! R.F.D. No. 1, Blaine, Wash. Bellingham, Wash. ; Sigurdson, Mrs. J. . Backoo, North Dak. Backoo, N.D., U.S.A. Akra, North Dak. ! Cavalier, North Dak. ; Walhalla, North Dak. Valdimarson, Mr. J. Langruth, Manitoba Langruth, Man. • Westbourne, Manitoba ;

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.