Lögberg - 10.07.1952, Qupperneq 1
O Canada we stand on
guard for thee
íslendingcr viljum vér
ailir vera
6D. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 10. JÚLÍ, 1952
NÚMER 28
Beitir synjunarvaldi
Eins og vitað er báru Banda-
ríkin fyrir nokkru fram uppá-
stungu í þá átt, að Rauða Kross-
inum yrði falið að rannsaka á-
kærur Rússa um sýklahernað í
Kóreu af hálfu sameinuðu herj-
anna þar í landi; ætla mætti að
Rússum, eins og þeir þóttust
vissir í sinni sök, hefði orðið
ljúft að slík rannsókn kæmi til
framkvæmda, en það var nú
öðru nær, að þeir féllist á slíkt.
í fyrri viku komið málið til um-
ræðu í öryggisráði hinna sam-
einuðu þjóða og urðu þar úrslit
á þann veg, að fulltrúar ellefu
þjóða greiddu atkvæði með upp-
ástungu Bandaríkjanna, en
erindreki Rússa, Jacob Malik,
beitti enn á ný synjunarvaldi
sínu og þar með var uppástung-
an feld. Vera má að Malik sé
eitthvað í nöp við Rauða Kross-
inn, þótt það sýnist að vísu
næsta ótrúlegt. En hvers vegna
fór hann þá ekki fram á, að við-
urkendir vísindamenn yrði til
þess fengnir, að rannsaka ákær-
urnar um sýklahernaðinn og láta
þá skera úr málum?
Kirkjuþingið í Minneota
Úr borg og bygð
Hjónavígslur
framkvæmdar af séra Valdi-
mar J. Eylands.
27. júní Daníel Peter Snidal,
M.D., og Carmen Rhoda Fred-
rickson. Brúðguminn er sonur
Dr. og Mrs. J. G. Snidal, brúður-
in er af norskum ættum.
27. júní, Leonard Thomas
Jackson, 214 Spence St., og
Edna Beth Hull, 285 Spence St.
5. júlí, Marino Calvin Ingi-
mundson, 632 Simcoe Street, og
Verna Mae Swanson, 305 Harvi-
son Avenue.
21. júní, James Harvey John-
son, 939 Ingersoll St., og Audrey
Aurora Bowley, 277 Cambell St.
Sigurður Júlíus Líndal, Sylvan,
Sylvan, Man.
☆
Gefin saman í hjónaband af
séra Sigurði ólafssyni að prests-
setrinu í Selkirk þann 5. júlí
Sigurður Júlíus Líndal, Sylvan,
Man., og Emily Agnes Martin,
Víðir, Man. Við giftinguna að-
stoðuðu Miss Alma Martin, syst-
ir brúðarinnar og Mr. Joseph
Líndal, bróðir brúðgumans.
Ungu hjónin setjast að í
Sylvan, Man.
☆
Síðastliðinn mánudag lézt á
elliheimilinu Betel að Gimli
Miss Guðrún Johnson 74 ára að
aldri; hún var systir frú Ingi-
ríðar heitinnar konu Dr. Björns
B. Jónssonar.
Útförin fer fram frá Bardals
í dag (fimtudag). Séra Valdimar
J. Eylands flytur hin hinztu
kveðjumál.
☆
Mr. Stefán Skagfjörð frá
Blaine, Wash., kom til borgar-
innar um síðustu helgi á leið til
Vogar í heimsókn til frænda
síns B. Eggertssonar kaupmanns
þar sem hann mun dveljast í
tvo til þrjá mánuði.
☆
Mr. og Mrs. George Jóhannes-
son frá Edmonton eru stödd hér
um slóðir þessa dagana. Mr. Jó-
hannesson er sonur frú Guðlaug-
ar Jóhannesson, 739 Alverstone
Street hér í borginni; þau brugðu
sér einnig vestur í Argyle þar
sem þau eiga margt skyldmenna
og annara vina.
Sextugasta og áttunda ársþing
íslenzka lúterska kirkjufélagsins
er nýafstaðið. Var það haldið,
eins og áður var auglýst, í
prestakalli séra Guttorms Gutt-
ormssonar í Minneota, Minn., og
hófst með árdegisguðsþjónustu,
sunnudaginn 29. júní, í kirkju
safnaðarins þar. Mikill fjöldi
fólks var þarna samankominn.
Gat þar að líta gesti og erindreka
frá Chicago, Seattle, Vancouver,
Winnipeg og fjölda annara staða
fjær og nær. Á sunnudagmn, við
morgunmessuna, var vígður til
prests sonur prestshjónanna í
Minneota, Stefán Guttormsson,
hinn efnilegasti maður, sem nú
gerist prestur safnaðarins í
Cavalier, N.D. Forseti kirkju-
félagsins, séra Egill H. Fáfnis,
frá Mountain, N.D., framkvæmdi
vígsluna með aðstoð presta sem
viðstaddir voru. Séra Kristinn
K. Ólafsson frá Sharon, 111., um
langt skeið forseti félagsins,
flutti vígsluræðuna. Eftir há-
degið flutti Dr. Bishop, forseti
Synod of the North West, virðu-
legur fulltrúi United Lutheran
Church in America, erindi. Á
Séra Stefán Gullormsson
sunnudagskvöldið fór fram guðs
þjónusta með altarisgöngu; þá
flutti Dr. Haraldur Sigmar, frá
Ömurleg tíðindi
Á þriðjudaginn 1. þ.m., sem er
Þjóðhátíðardagur Canada, týndu
níutíu og þrír canadískir borgar-
ar lífi sínu með ýmissum atburð-
um, svo sem með druknunum og
slysum á akvegum landsins;
þetta er hár skattur, sem ekki
er auðvelt að sætta sig við.
Þingi stefnt
til funda
Fylkisþinginu í Manitoba hef-
ir verið stefnt til funda þann
22. þ. m., í því augnamiði eink-
um, að ræða um og koma í fast
horf rafveitumálum fylkisins;
mun stjórnin fara fram á ríflega
fjárupphæð til að koma upp
nýjum orkuverum.
Sambandsþingi
frestað
Síðastliði,nn laugardag var
sambandsþinginu frestað til hins
20. nóvember næstkomandi; for-
sætisráðherra lét þess jafnframt
getið, að ef þörf krefði, yrði
þing endurkvatt til funda nær,
sem verða vildi.
Umræður urðu einna snarp-
astar um hina fyrirhuguðu
endurskipun kjördæma, og
b r u g ð u andstöðuflokkarnir
stjórninni um hlutdrægni í þeim
efnum.
Séra Valdimar J. Eylands
Kjörinn forseii hins Evangeliska
lúterska kirkjufélags íslendinga
í Vesturheimi.
Blaine, Wash., prédikun. Næstu
þrjá dagana fóru fram þing-
fundir, unz störfum þingsins var
lokið síðdegis á miðvikudag. Á
mánudagskvöldið fluttu erindi
þeir séra Valdimar J. Eylands,
og hinn nývígði prestur, séra
Stefán Guttormsson. Á þriðju-
dagskvöldið var ræðumaður
þingsins ungur guðfræðikandi-'
dat frá Háskóla íslands, Þórir
Kr. Þórðarson, sem nú stundar
framhaldsnám í gamla testa-
mentisfræðum við Háskólann í
Chicago. Fjallaði ræða hans um
fornleyfarannsóknir og gömul
biblíuhandrit sem fundist hafa
í Palestínu. Fjárhagur félagsins
stendur nú betur en áður, þrátt
fyrir vaxandi örlæti safnaðanna
í framlögum til hinna almennu
samtaka kirkjunnar í trúboðs- og
menningarmálum allskonar. —
Gestrisni byggðarfólks var frá-
bær, og veitingar allar bornar
fram af mikilli rausn. Séra Eric
H. Sigmar frá Seattle var þing-
prestur og fórst það mjög vel úr
hendi. Séra Sigurður Ólafsson í
Selkirk var skrifari þingsins í
veikindaforföllum séra Harold
S. Sigmars, sem sótti einnig
þingið, en varð, samkvæmt
læknisráði, að hlífa'sér sem mest
við allri áreynslu.
Á miðvikudaginn fóru fram
kosningar embættismanna og
nefnda. Aðalbreytingarnar urðu
þær, að séra Valdimar J. Ey-
lands, prestur Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg, var kosinn
forseti félagsins, en séra Gutt-
ormur Guttormsson vara-forseti.
Heiðursforseti var kjörinn Dr.
Rúnólfur Marteinsson, en heið-
ursverndari Dr. Sigurgeir Sig-
urðsson, biskup yfir íslandi.
Samkvæmt tilboði frá söfnuð-
um félagsins í Seattle og Blaine,
verður næsta kirkjuþing senni-
lega haldið vestur á Kyrrahafs-
strönd.
íslendingar í
Hollywood
Alt í grænum sjó í Briíish Columbia
Miðvikudaginn 18. júní s.l.
komu saman í Hollywood há-
skólanum nokkur hundruð
manns, þar á meðal margir ís-
lendingar, en ástæðan var sú,
að þarna átti að fara fram
skemtiskrá, sem að snerist ein-
göngu um Island — “Iceland—
Key to the North”, en fyrir þessu
stóð mentaráð Hollywood og
svo íslenzkur félagsskapur hér —
sá, sem að stjórnaði samkom-
unni, var enginn annar en hinn
góði íslendingur, Larry Thor,
hinn yinsæli þulur, og nú sem
stendur stjarna í “Broadway is
my Beat”! leysti hann hlutverk
sitt af hendi með smekkvísi og
mikilli röggsemi, stundum smá-
glettni. Frú Guðný Thorwald-
son setti samkomuna með vel-
völdum orðum. Ræður fluttu
Carl Hendrikson, Stanley Ólafs-
son og Sumi Swanson. Kafli úr
myndum Hals Linker frá íslandi
voru og sýndar. Einsöng sungu
þau Guðmundur Guðlaugsson
og Dorothy Christophersson —
(systir Eileen), söng hún Drauma
landið, er hún ljóshærð og lit-
fríð og minnir mjög á systur
^sína á allan hátt — ennfremur
söng Sverrir Runólfsson, en
kona hans, Janet Muphy, lék
undir fyrir alla af sinni alkunnu
prýði. Einnig söng fjögurra
manna kór nokkur uppáhalds-
lög; þeir, sem að sungu voru
Gunnar Matthíasson, Magnús
Magnússon, Carl Erlendsson og
Guðmundur Guðlaugsson — en
í forsal skólans voru margir
fagrir munir frá íslandi, en þær
Inga Freeberg og Ásta Bærings
sáu um það, voru þær báðar
klæddar íslenzkum búningi. Fór
samkoma þessi ágætlega fram
og var öllum til sóma, sem að
þar höfðu hönd í bagga.
Skúli G. Bjarnason
Eins og menn rekur minni til
fóru fram kosningar til fylkis-
þingsins í British Columbia
þann 12. júní síðastliðinn; hlut-
fallskosningar voru um hönd
hafðar og aðeins forgangsat-
kvæði talin á kosningadaginn;
kom þá brátt nokkurn veginn
ábyggilega 1 ljós, að Liberal-
flokkurinn undir forustu Byrons
Johnson forsætisráðherra, hafði
svo að segja verið þurkaður út
af jörðunni; framhaldstalning
hófst þann 2. þ. m. og skipting
atkvæða á hina ýmsu frambjóð-
endur, er leiddi afdráttarlaust í
ljós hrun gömlu flokkanna; enn
er talningu eigi fulllokið, en víst
talið, að C.C.F.-flokkurinn nái
mestum þingstyrk, og næst hon-
gangi sá flokkur, er kennir sig
við Social Credit. Byron John-
son beið persónulegan ósigur í
kjördæmi sínu New Westmister.
Setur siglingamet
Ameríska farþegaskipið nýja,
United States, hefir sett met í
hraðsiglingu milli New York og
La Havre á Frakklandi á þrem
dögum, tíu klukkustundum og
fjörutíu mínútum; fór skipið
vegalengdina á tíu klukkustunda
skemmri tíma, en Queen Mary,
er fram að þessu hafði sett
heimsmet í siglingahraða.
Dánarfregn
Thorvaldur Mýrdal, Árborg,
Man., lézt að heimili sínu, 4. júlí.
Útförin fór fram á þriðjudaginn
8. júlí frá Lútersku kirkjunni;
séra Sigurður Ólafsson jarð-
söng. Hinn látni lætur eftir sig
tvo bræður, Joe Peterson og
Einar; þrjár systur, Mrs. B.
Daníelson, Mrs. J. Madson og
Mrs. Chris Johnson.
Framboðsþing
Republicana
Á mánudaginn hófst í Chicago
flokksþing Republicana, er velja
skal forseta- og varaforsetaefni
flokksins við næstu forsetakosn-
ingar, sem fram fara í öndverð-
um nóvembermánuði næstkom-
andi; þingið stendur yfir í þrjá
daga, og verða úrslit eigi kunn
fyr en eftir að Lögberg fer í
póst þessa viku.
Megin keppinautar um útnefn-
ingu til forsetakjörs eru þeir
Senator Robert A. Taft frá Ohio
og Dwight Eisenhower, fyrrum
yfirforingi sameinuðu herjanna
í Vestur-Evrópu.
Fyrrum hersköfðingi hinna
sameinuðu herja í Asíu, Mac-
Arthur, var framsögumaður
flokksins á mánudagskvöldið.
Töfrar
Vorhiminn blár yfir brosandi
grundum
blæstrokjium vötnum og
angandi skóg.
Kvakandi fuglar í laufgrænum
lundum
langdegið bjartsýnt og sóldýrðin
nóg.
—P. G.
Séra Philip M. Péiursson
Endurkosinn forseli Sameinaða
kirk j uf élagsins.
SUMMER
By HELEN SWINBURNE
Green is the gown she fashioned with her fingers . .
A myriad shades of green. She gaily chose,
Merely for the rose,
Thread of many colours, tints and tones
Of yellow, of pale blush to richest red;
Nimbly she broidered as the swift hours fled:
She lured the stars to earth, _the blue of heaven
Into reeded pools of sleeping azure;
And then, from ocean unto ocean, flung
All of the witchery
Which she had captured in her vivid stitchery.
Now we arise to feast with her, to feed
Our hungry souls upon her loveliness;
To listen to, and bless
The feathered bards, who, caught within her noose,
Unwind a silver skein of rapturous song ....
Music which plunges deep within our hearts,
And lingers long;
To drink her warm fragrance, share her mirth;
To feel the breath of God upon the earth.
And when she draws her robe into the shadow,
And leaves in legions turn to autumn gold;
Then is her saga told.
On tiptoe .... now we see her dance away
In dim phantasmal play;
And, ere the final notes of her refrain
Fade into silence, through the air is borne
The essence of her aura of enchantment
To dwell with us until she comes again.
Hon. Byron Johnson
Ósigur Mr. Johnson’s varpar
engum skugga á persónuleika
hans, því hann er eftir sem áður
viðurkendur víðsýnn hæfileika-
maður; ströng sjálfsgagnrýni
varð honum að falli; hann var
faðir sjúkratrygginganna í fylk-
inu, en sannfærðist um að þær
bæri sig ekki fjárhagslega nema
því aðeins, að einstaklingar er
sjúkrahússvistar þörfnuðust
greiddu að minsta kosti $35.00
til að byrja með og þetta gerði
hann að stefnuskráratriði; hinir
flokkarnir lofuðu gulli og græn-
um skógum og á það agn beit
mikill meiri hluti kjósenda.
Leiðtogi íhaldsmanna, Mr.
Anscomb, féll einnig í val; að
því er síðast fréttist hafa Liberal
ar unnið sex þingsæti, en íhalds-
menn tvö.
Mr. Johnson hefir lýst yfir
því, að hann mæli með því, að
þeim flokknum, sem liðsterk-
astur verður á þingi, verði falin
st j ór nar myndun.
Hörmulegt
umferðarslys
Árla morguns síðastliðinn
fimtudag vildi það slys til, að
Greyhound langferðabíll þétt-
skipaður farþegum, rakst á
stóran flutningabíl, sem stað-
næmst hafði vegna bilunar á
Pembinabílveginum um 11 míl-
ur suður af Winnipeg, og varð
áreksturinn þess valdandi, að
átta manns létu lífið, en nítján
voru fluttir til aðgerða á sjúkra-
hús hér í borginni; svo að segja
jafnskjótt og hljóðbært varð um
slysið, kom lögreglan á vettvang
auk lækna og hjúkrunarkvenna,
og varð þess eigi langt að bíða
unz allir þeirra, er sætt höfðu
meiðslum höfðu fengið sjúkra-
hússvist. Sjö hinna brákuðu
voru Bandaríkjamenn, en þrett-
án úr canadiska stórskotaliðinu,
er voru á heimleið frá Valcartier,
Quebec.
Winnipeghjón, Mr. og Mrs.
Bert Miller, 410 Ellice Avenue,
voru meðal þeirra, er týndu lífi.
Rannsókn stendur enn yfir
vegna slyssins og var henni ó-
lokið, er síðast fréttist.
Kominn heim
úr íslandsför
Á aðfaranótt síðastliðins mánu
dags kom heim úr íslandsför hr.
Guðmundur F. Jónasson for-
stjóri, en hann fór héðan í heim-
sókn til ættlands síns þann 10.
júní síðastliðinn, og var þetta í
fyrsta skiptið, er honum gafst
þess kostur að líta ísland.
Lögberg væntir þess að geta
á næstunni átt viðtal við Guð-
mund, sem er glöggur maður og
greinargóður, og birt það les-
endum sínum til skemtunar og
fróðleiks.