Lögberg - 10.07.1952, Síða 3
LÖGBERG. FIMTUDAGINN, 10. JÚLI, 1952
3
Fögur köllun hins fræga manns
Nöfn einstakra manna heyrast
o f t í útvarpsfréttum. S u m a
þeirra vildum við margir helzt
aldrei heyra nefnda. Aðrir verða
okkur kærir. Þeir menn, sem
ganga um kring og gera gott,
semja frið, ekki í orði, heldur í
verki, verða hugþekkir.
Einn þeirra manna, sem oft hef
ur verið nefndur í erlendum
fréttum, er John Foster Dulles,
maðurinn, sem víða hefur komið
við sögu og allra manna mest
verið riðinn við friðarsamingana
við Japani. Álit manna á þeim
samningum er ærið misjafnt, en
hvað sem hver og einn segir,
verður því ekki neitað, að þeir
samningar eru einsdæmi í ver-
aldarsögunni.
Árið 1950 benti John Foster
Dulles Bandaríkjastjórn á, að nú
væri kominn tími til að hafast
eitthvað að, hugsa ekki aðeins
um sitt eigið líf, heldur frelsi
þjóðanna yfirleitt. Hann benti á,
að Japan gæfi Ameríkumönnum
sérstakt tækifæri, og ári síðar
vann hann manna mest að lausn
þessa vandamáls. Vinir Dulles og
margir aðrir höfðu talað um hina
„ófyrirgefanlegu“ synd Japans,
og þeim mönnum var sannarléga
vorkunn. Nú fyrirgáfu Banda-
ríkin allt, gleymdu árásinni á
Pearl Harbour, gleymdu öllum
skelfingum stríðsins, heltu olíu í
sárin í stað þess að nota svipu
sigurvegarins. — Hvað er nú að
baki þessarar framkomu Ame-
ríkumanna við Japani?
Tortryggnir menn hafa sjálf-
sagt skýringu á takteinum, en
hún hittir þó ekki naglan á höf-
uðið. Útvarpshlustendur hafa oft
heyrt John Foster Dulles nefnd-
an, en þeir hafa litlar upplýsing-
ar fengið um manninn og vita
sízt, að hann hefur stjórnast af
fyrirgefningaranda og friðarvilja
kristindómsins.
Það ber oft meira á ölduróti og
stormhrynum hafsins, en djúp-
straumum. Við heyrum sitt af
hverju um heimsviðburði, en oft-
ast aldrei neitt um hið mikilvæg-
asta, sem er að gerast á meðal
þjóðanna og í lffi einstakling-
anna.
Hver hefur djúpstraumurinn
verið í lífi John Foster Dulles?
Á einu ári flaug hann 125,000
enskar mílur og heimsótti sex
höfuðborgir til þess að flytja mál
sitt. Þannig vinna menn, þegar
þeir hafa fengið ákveðna köllun.
Dulles er prestssonur. Hann er
fæddur 1888. Uppeldið var gott.
Ein af eftirlætisbókum hans var
För pílagrímsins. Hann var einn-
ig knár sveinn, lék sér að því að
synda hálfa þriðja enska mílu,
sem mun vera á sjöunda km.
Nám stundaði hann við ýmsar
menntastofnanir og í ýmsum
löndum og tók lögfræðipróf við
háskólann í Washington. Hann
tók þátt í nokkrum mikilvægum
ráðstefnum, þar á meðal Versala
ráðstefnunni ,sem gerði samning
ana eftir fyrri heimsstyrjöldina,
og þótt hann væri ekki í sama
stjórnmálaflokki og Wilson, dáð-
ist hann mjög að stefnu hans og
hugsjónum, en í kröfum D. Lloyd
George og Clemenceau sá hann
sæði nýrrar styrjaldar.
Hann tók svo upp störf að
nýju hjá Sullivan og Cromwell,
varð þar meigandi og forstjóri
eins merkasta lögfræðifyrirtæk-
is heimsins. Þá var hann um
fimmtugt og bjó við öll þau
kostakjör, sem menn helzt geta
óskað sér. Hann átti skemmti-
snekkju, hús í New York, sumar-
bústað á öðrum stað og bjálka-
kofa á sjálfseignareyju í Ontario-
vatninu og gat skemmt sér þar
bæði við sund og veiðimennsku.
Við slík kjör var hægt að una
sér í rólegheitum, en einhver
rödd hrópaði til þessa manns,
svipað og til Páls fyrr á öldum.
Einhver innri eldur kynti undir
þeirri fögru hugsjón, að hefja
til vegs og virðingar stjórnmála-
stefnu, sem grundvallaðist á
kristilegu siðgæði. Árið 1937 sat
hann þing í París. Það þing var
deild úr Þjóðabandalaginu og var
Dulles þar forseti. En þaðan
hvarf hann sárlega vonsvikinn,
og fór þá til Englands og sat í
Oxfórd, þing, sem fjallaði um
samband ríkis og kirkju. Munur-
inn á þessum tveimur þingum
var áberandi, segir í grein þeirri,
sem hér er stuðzt við. Stjórnmála
mennirnir á Parísarráðstefnunni
voru bugaðir og bölsýnir, en
kirkjunnar menn voru vongóðir
og jákvæðir. Hér bálaðist á ný sú
trú hjá John Foster Dulles, sem
faðir hans, presturinn, hafði
kennt honum. Þremur árum síð-
ar, er styrjöldin var skollin á,
flutti Dulles mál sitt á sambands
ráðsfundi kirknanna (Federal
Council of Churches) og þar var
hann skipaður formaður nefndar,
er leita skyldi að grundvelli var-
anlegs friðar í heiminum. Um
það leyti mátti andi fyrirgefning-
ar og umburðarlynrdis sín ekki
mikils í heiminum. Heimtuð var
skilyrðislaus upgjöf af Þjóðverja
hálfu, og hefna þurfti árásarinn-
ar á Pearl Harbour.
Dulles hafði hugfast, hver á-
hrif friðarsamninganna e f t i r
1 y r r i heimsstyrjöldina urðu.
Hann og nefnd hans sögðu upp-
hátt: „Til er æðri og fullkomn-
ari lífsregla ,sá grundvöllur sið-
gæðis, sem Kristur Jesús kenndi.
Bandaríkin verða að hafa for-
ustuna og gefa öðrum þjóðum
fordæmi í því, að hefja til vegs
það siðgæði, einnig í stjórnmála-
kerfi þjóðanna. Hefndarhugur-
inn verður að víkja.“
Nefndin samdi stefnuskrá, hin-
ar „sex máttarstoðir friðarins.“
Sambandsráð kirknanna s t ó ð
þannig á bak við stofnun Sam-
einuðu þjóðanna. Áriði 1943 hitti
D u 11 e s þingmanninn Arthur
Vandenberg á ráðstefnunni í
Mackinac, þar sem republika-
flokkurinn snerist frá hlutleysis-
stefnunni, en það er einmitt $
þessum stað, að Síðferðisvakning
in (áður kölluð Oxfordhreyfing-
in) heldur þing sín. Þar ræddu
þessir tveir menn áhugamál sín,
en árið 1945 fékk Vandenberg
Þetta eru 125 bindi frá 18. öld og
eru sum mjög fágæt. Gefandinn
er Leó B. Bárðarson
Gísli J. Johnsen, stórkaup-
maður, er nýkominn hingað
til landsins frá Bandaríkjun-
um og kom hann með stór-
merka bókagjöf til Háskóla-
bókasafnsins og Þjóðminja-
safnsins, en gefandi bókanna
er Leó Breiðfjörð Bárðar-
son, Oakland, Kaliforníu.
Faðir Leós B. Bárðarson, Sig-
urður Bárðarson, hafði átt
þessar bækur, sem eru 125 bindi,
og hafði hann eindregið óskað
eftir því, að þær yrðu gefnar
hingað heim, en Sigurður dó
árið 1940. Gísli og Leó kynntust
fyrir tveim árum síðan, er Gísli
var á ferðalagi vestra. Hóf Leó
máls á þessum bókum við Gísla,
en það leiddi nú til þess að
bækurnar eru nú komnar hing-
að til lands frá Kaliforníu með
viðkomu í Skandinavíu.
Var boðið vestur
Svo stóð á ferð Gísla tiþBanda
ríkjanna, að sænskur vinur hans
bauð honum og konu hans far
með skipinu Tosca frá Osló.
Þáðu þau hjónin boðið og varð
það að samkomulagi milli Leós
og hans, að hann tæki bækurn-
ar með sér, er hann færi til baka.
Fóru þau hjónin fyrst til Skand-
inavíu, er þau komu að vestan,
en hingað til landsins komu þau
með Gullfossi, voru bækurnar
alltaf með þeim, og eru þær nú
komnar hingað heilu og höldnu.
Frá 18. öld
Þessi 125 bindi eru gamlar, ís-
lenzkar bækur, og eru sum bind-
in mjög fágæt, m. a. handrit frá
18. öld. Margar bækurnar bera
Roosevelt til þess að senda John
Foster Dulles sem fulltrúa á
stofnfund Sameinuðu þjóðanna í
San Francisco. Þar flutti Dulles
mál sitt um heiðarlega og göfuga
stjórnmálastefnu. Áhrif Dulles
urðu stöðugt meiri og fleiri og
hann hækkaði í tigninni, og það
var fyrir tilstilli Vandenbergs
að Dulles komst í stjórnarráðið
árið 1950. Dean Acheson ráð-
herra útnefndi hann svo til þess
að gera uppkast að friðarsamn-
ingi við Japani. Þar með fékk
hann aðstöðu til að leysa af hendi
það verk, sem hugur hans hafði
staðið til árum saman. Dulles á-
kvað að samningar þessir skyldu
verða á kristilegum grundvelli.
Og nú má geta þess, að árin á
undan, friðarsamninginum voru
Japanar búnir undir þetta á ýms
an hátt, þar á meðal komu nokkr
ir tugir manna, ýmis konar for-
ustumenn, og jafnvel ráðherrar,
írá Japan, í heimsókn til Ame-
ríku og Evrópu, en för þeirra var
þó aðallega gerð til þess, að sitja
þingin í Caux í Svisslandi, en það
eru alþjóðaþing Siðferðisvakn-
ingarinnar, og þangað hafa kom-
ið yfir 40 þúsundir manna frá
110 þjóðum á sex síðastliðnum
árum. Andi þeirra er einmitt
andinn, sem stjórnaði John Fost-
er Dulles og Arthur Vandenberg
og kom til vegar friðarsamningi,
sem er einsdæmi í mannkyns-
sögunni. Auðvitað hatast sumir
við þann samning, af því að þeir
óttast nýtt herveldi Japans, en
það útilokar ekki þá staðreynd,
að samningurinn er hinn mann-
úðlegasti og gerður af göfugum
hvötum.
Þetta er þá í fáum orðum sag-
an um það, sem gert hefur John
Foster Dulles að heimsfrægum
manni og fyrirmynd í stjórn-
málastarfsemi. — Þeim heiður
sem heiður ber, og gefum anda
kristindómsins viðurkenningu
fyrir það dásemdaverk, sem
hann vinnur hvarvetna á bak við
tjöldin, ef ekki opinskátt, og
hvernig hann snýr hugum manna
inn á farsældarbraut hins eina
sanna og varanlega friðar.
með sér, að þær séu uppruna-
lega komnar frá séra Helga
Sigurðssyni, presti á Melum, en
hann var fyrstur til að gefa gripi
í Þjóðminjasafnið, þegar það var
stofnað. Gefandinn lét svo um-
mælt, að þau handrit, sem væru
lítt læsileg, skyldu ganga til
Þjóðminjasafnsins, en Gísli J.
Johpsen afhenti bækurnar í gær
til háskólabókavarðar og þjóð-
minjavarðar.
—TÍMINN, 31. maí
Rausnarleg gjöf til
dvalarheimilis
aldraðra sjómanna
Konur úr kvennadeild Slysa-
varnafélagsins, kvenfélagsins
Hrönn og kvenfélagsins Keðjan,
afhentu í gær stjórn sjómanna-
dagsráðs 11.000 krónur, sem er
ágóði af kaffisölu o. fl. á sjó-
mannadaginn. Er þetta fyrsta
tillag þeirra til herbergis Dvalar-
heimilis aldraðra sjómanna.
Sjómannadagsráð hefir beðið
blaðið að færa konunuum.kærar
þakkir fyrir aðstoðina og sömu-
leiðis Oddi Ólafssyni og starfs-
fólki í Iðnó fyrir störf þeirra í
þágu málefnisins.
—A.B., 12. júní
Maður nokkur var að snæða
morgunverð og um leið var hann
að lesa morgunblöðin. í einu
blaðinu sá hann dánartilkynn-
ingu sjálfs síns. Hanji hringdi
til Jóns vinar síns eins og skot
og sagði:
— Heyrðu, gamli vinur, —
hefurðu lesið dánartilkynning-
una mína í blaðinu í dag?
— Já, svaraði Jón. — Hvaðan
ertu að hringja?
—P. S.
EINING
Merk bókagjöf til Hóskóla
íslarids fró Vestur-íslendingi
Verið að Ijúka lagn-
ingu flugbrautar
við Egilsstaði
Brautin er 1700 metra löng og
malarborin og liggur á milli
Finnstaða og Egilsstaða
Frá fréttaritara Tímans
á Héraði.
Verið er að gera flugbraut
við Egilsstaði, en þar hefir
enginn flugvöllur verið fram
að þessu. Hafa flugvélar
orðið að lenda ýmist á túni
eða Lagarfljóti.
Ekki verður brautin höfð
lengri en 1700 metrar að sinni,
en fyrirhugað er að lengja hana
síðar. Áður höfðu ekki verið
aðrir lendingastaðir tiltækir á
Egilsstöðum en tún, þar sem að
ekki var hægt að lenda nema
litlum flugvélum og svo Lagar-
fljót, sem hefir fram að þessú
verið lendingarstaður áætlunar-
flugvéla og annarra stærri flug-
véla, sem þurft hafa að lenda á
Héraði.
Flugráð væntanlegt austur
Flugbraut þessi liggur á milli
Finnsstaða og Egilsstaða. Er hún
malarborin og verður hægt að
lengja hana til beggja enda, eft-
ir því sem þörf krefur, þegar
ákveðin hefir verið endanleg
stærð hennar. Flugráð mun nú
vera væntanlegt austur og munu
þá verða teknar nánari ákvarð-
anir um lengd brautarinnar.
Keppzt er nú við að ljúka þess-
um kafla, sem fullgerður verð-
ur að sinni og á honum að vera
lokið áður en landsmót ung-
mennafélaganna verður haldið
að Eiðum í byrjun næsta mán-
aðar. —TÍMINN, 13. júní
Gróðurleysið er
alvarlegt ó
Norðurlandi
Ennþá eru stöðugir vorkuldar
Vorkuldar eru enn mjög
miklir fyrir öllu Norður-
landi, þannig að til vand-
ræða horfir með sprettu og
annan gróður. Þó búpeningi
hafi almennt verið sleppt á
beit, er það meira af illri
nauðsyn en því, að bithagi
sé kominn, þar sem gróður
er víðast hvar ekki meiri en
að jafnaði er fyrst í maí í
venjulegu árferði.
Kýr missa nyt og lömb
veslast upp
Gróðurleysið er alvarlegt
símaði fréttaritari vor á Húsa-
vík í gær. Kýrnar missa mjólk
jafnskjótt og þeim er hleypt úr
fjósi og komið hefir fyrir að
lömb hafa króknað úr kulda
síðustu daga, eða beinlínis
veslast upp.
Alvarlegt ástand
Rigning eða slydda hefir verið
hér flesta daga, segir hann enn
fremur, og ástandið er sannast
sagna alvarlegt. Vorverkum er
víða ekki lokið enn.
í innsveitum hefir verið hríð-
arverður við og við, t. d. hefir
hríðað eitthvað alla daga mán-
aðarins nema tvo að Birnustöð-
um í Laxárdal.
Ekki farið að grænka
Út með Eyjafirði er sums stað-
ar alls ekkert farið að grænka,
en inn í firðinum er ástandið
heldur betra, þar sem fönn leysti
tiltölulega seint og jörðin kom
ekki eins slæm undan snjónum.
Auk þess er þar ekki eins opið
fyrir norðan strekkingnum.
Þörf snöggra breytinga
Sömu sögu er að segja úr
ræða.
Business and Professional Cards
Dr. P. H. T. Thorlakson j WINNIPEG CLIN1C St. Mary’s and Vaughan. Wlnnlpeg PHONE 926 441 1 S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smiih Si. Winnipeg PHONE 924 624
J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Pasteignasalar. Leigja hús. Ct. vega peningalán og eldaábyrgC, bifreiðaábyrgð o. s. frv. Phone 927 538 Phone 21 101 ESTIMATES FT(F,F. J. M. INGIMUNDSON Asphalt Roofs and Insulated Slding — Repairs Country Orders Atteudeð To 632 Slmcoe St. Winnlpeg, Man.
SARGENT TAXI PHONE 204 845 PHONE 722 401 FOR QUICK, RELIABLE SERVICE GIMLI FUNERAL HOME 51 First Avenue Ný útfararstofa með þeim full- komnasta útbúnaði, sem völ er á, annast virðulega um útfarir, selur líkkistur, minnisvarða og legsteina. Alan Couch, Funeral Director Phone—Business 32 Residence 59
DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selkirk, Man. Offlce kours 2.30 - 6 p.m. Phones: Office 26 —Res. 230
DR. A. V. JOHNSON Dentist 506 SOMERSET BUILDING Telephone 97 932 Home Telephonpe 202 398
Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson Lögfrædvngar 209 BANK OF NOVA SCOTIA BG. Portage og Garry St. Phone 928 291 DR. ROBERT BLACK Sérfrœðingur’jfQpugna, eyrna, nef og hdlssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrifstofusimi 923 815 Heimasfmi 403 794
1 CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAGE, Managing Director Wholesale Dlstributors of Fresh and Frozen Fish. 311 CHAMBERS STREET Office Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917 Comfortex the new sensation for the modem girl and woman. Call Lilly Matlhews, 310 Power Bldg., Ph. 927 880 or evenings, 38 711.
Office Phone Res. Phone 924 762 726 118 " Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BLDG. Office Hours: 4 p.m. - 6 p.m. and by appointment. GUNDRY PYMORE Limited British Quality Fish Nettino 58 VICTORIA ST. WINNIPEG Phone 828 211 Manager T. R. THORVALDSON Your patronage will be appreciated
A. S. BARDAL LTD. PUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur lílckiatur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá bezU. Stofnaö 1894 Simi 27 324
Minnist BETEL í erfðaskrám yðar.
Phone 23 996 700 Notre llamt yVve. Opposite Maternity Pavillion, General Hospital. Nell’s Flower Shop Wedding Bouquets, Cut Flowers, Funeral Deslgns, Corsages. Beddlng Plants Nell Johnson Res. Phone 27 482 PHONE 927 025 H. J. H. Palmason, C.A. H. J. PALMASON * CO. Chartered Aeeountanta 505 Confederatlon Llfe Bldg. WINNtPEG MANTTOBA
Office 933 587 Res. 444 389 THORARINSON & APPLEBY BARRISTERS and SOLICTTORS 4th Floor — Crown Trust Bldg. 364 Maln Street WINNIPEG CANADA
PARKER, PARKER & KRISTJANSSON Barrlsters - Solicitors Ben C. Parker, K.C. B. Stuart Parker. A. F. Kristjanaaon 500 Canadlan Bank of Commerce Chamben Wlnnlpeg, Man. Phone M3 ff 1
SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldavörn, og ávalt hreinlr. Hitaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- við, heldur hita frá að rjúka út með reyknum.—Skrifið, simið tll KELLY SVEINSSON 625 WaU Street Winnipeg Just North of Portage Ave. Símar: S3 744 — S4 431
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH 404 SCOTT BLK, Sími 925 227
J. WILFRID SWANSON & CO. Insurance in aU lts branches. Real Estate - Mortgages - Rentals 210 POWER BUILDING Telephone 937 181 Res. 403 480 LET US SERVE YOU
Bullmore Funeral Home Dauphin, Manitoba Eigandi ARNI EGGERTSON, Jr.
Creators of Distinctive Pringting Columbia Press Ltd. 695 Sargent Ave., Winnipeg Phone 21804 Kaupið Lögberg