Lögberg - 10.07.1952, Page 8

Lögberg - 10.07.1952, Page 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 10. JÚLf, 1952 Stækkun íslenzku landhelg innar skýrð í brezku blaði Úr borg og bygð Helga Guðný, dóttir Mr. og Mrs. L. T. Johnson, Lundar, Man., og Milton Earl Nichol frá Warren, Man., voru gefin saman í hjónaband í lútersku kirkjunni að Lundar 27. júní. Séra Jóhann Fredriksson gifti. Að athöfninni lokinn var vegleg brúðkaups- veizla í samkomuhúsi bæjarins. ☆ Mr. Thorsteinn Mýrdal dýra- læknir frá Edinburg, N. Dak., var staddur í borginni um síð- ustu helgi ásamt frú sinni og dóttur. ☆ Nýlega er íátinn Björn Hin- riksson frá Churchbridge, 56 ára að aldri; hann var forustu- maður í héraði, bæði í kirkju- og sveitarmálum. Hann var jarðað- ur á sunnudaginn 6. júlí að afar miklu fjölmenni viðstöddu. — Hann lætur eftir sig ekkju, Vil- borgu og eina dóttur, Grace — Mrs. Glen Davis. — Væntanlega verður þessa mæta manns nánar getið síðar. ☆ Mr. Fred Helgason frá Ed- monton hefir dvalið í borginni undanfarna daga og sat hér árs- þing International Seed Growers samtakanna. ☆ Gísli J. Markússon frá Breden- bury og kona hans, Elín, dóttir Magnúsar heitins Hinrikssonar, komu til borgarinnar á mánu- daginn. Mr. Markússon hefir um langt skeið tekið mikinn þátt í félagsmálum Vatnabyggða; hef- ir verið sveitarráðsmaður í 10 ár og oddviti í 5 ár. Þau hjónin dvelja í borginni í nokkra daga hjá tengdabróður Gísla og konu hans, W. J. Líndal dómara og Mrs. Líndal. ☆ Þann 2. þ. m., lézt í Seattle, Wash., frú Anna Thordarson ekkja Kolbeins Thordarsonar fyrrum vararæðismanns fslands þar í borginni, mæt kona og merk; hún var ættuð frá Einars- stöðum í Aðal-Reykjadal og var áttræð, er dauða hennar bar að; hennar verður vaf*i,laust nánar minst áður en langt'um líður. ☆ Mr. og Mrs. J. Kennedy komu til borgarinnar ásamt ungri dóttur sinni í fyrri viku, en nú hefir Mr. Kennedy, sem er lög- fræðingur, fengið ágæta stöðu hjá stóru olíufélagi hér í borg- inni. Mrs. Kennedy —Geraldine — er yngri dóttir Mr. og Mrs. C. O. Einarson. Grein ejtir fiskiráðunaut íslenzka sendiráðsins í London í „Evening Telegraph“ í brezkum blöðum hefir margt beiskt orðið birzt undanfarnar vikur út af stækkun íslenzku landhelg- innar og því brýna nauð- synjamáli okkar verið furðu lítill skilningur sýndur. Þess vegna ber því mjög að fagna, að brezka blaðið „Evening Telegraph“ birti 20. maí s.l. ágæta grein um þessi mál eftir F. Huntley Woodcock, ráðunaut íslenzka sendiráðs- ins í London um fiskimál. Fer grein hans hér á eftir í íslenzkri þýðingu. í KJÖLFAR auglýsingar um að hin nýja landhelgis-reglugerð Islendinga fái gildi frá 15. maí hafa ýmsir fyrirliðar brezka togaraflotans og nokkrir reyndir skipstjórar með ævilanga þekk- ingu á íslenzkum fiskimiðum gefið út yfirlýsingar. Fram hafa komið hin venju- legu stóryrði manna, sem hætta lífi sínu í baráttunni við náttúru- öflin og umferðarhætturnar á leiðinni til skrifstofa sinna og heim aftur, en hins vegar hefir líka verið um að ræða skipstjóra eins og t. d. W. Oliver frá Hull, sem talar af reynslu. Órökstudd krafa En sú fullyrðing, að brezkir togarar hafi fundið og útvíkkað íslenzku fiskimiðin hefir eins mikið til síns máls og sú, að Jón Freysteinsson og sonur hans, Donald, frá Churchbridge, Sask., komu til borgarinnar á mánudaginn og dvelja hér 4 til 5 daga. ☆ Mr. og Mrs. S*an Walter og .börn þeirra þrjú frá Moose Jaw komu til borgarinnar á sunnu- daginn á leið til Hecla. Mrs. Walter er dóttir Mr. og Mrs. V. Valgardson, Moose Jaw, Sask. ☆ Nýlega er látin í Foam Lake Mrs. Halldóra Helgason, ekkja Kristjáns Helgasonar, sem verið mun hafa fyrsti íslenzki land- neminn í þeirri byggð; verður hennar væntanlega nánar getið síðar. ICristopher Kolumbus hafi fund- ið Ameríku. í bæði skiptin voru íslendingar á undan. íslenzkir skipstjórar af kynslóð hr. Oliv- ers, sem voru brautryðjendur í togveiðum á íslenzku miðunum, eru enn í fullu fjöri og hafa sína sögu að segja um það mál. Ein kynslóð hefir horft á fiski- miðin tæmd með svo óskaplegum árangri, að byggja hefir þurft stærri og öflugri skip til þess að veiða á dýpri miðum. Á miðunum, sem hr. Oliver þekkir, mátti áður fá fullt net fiskjar eftir hálftíma tog, en nú orðið fást oft aðeins nokkrar körfur þótt togað sé tímum sam- an, nema á hagstæðum miðum, en það eru ekki uppeldisstöðv- arnar í flóum og fjörðum íslands og Noregs. Níutíu og fimm prósent af þjóð arbúskap íslendinga er fiskur, þeir hafa ekkert annað, og ef sama rányrkja, sem hófst með kynslóð hr. Olivers heldur áfram, þá blasir gjaldþrot við íslenzku þjóðinni og það innan skamms. Hjálp Breta Bretland hefir kol, ísland hefir f:sk. Bretland hefir stál, bif- íeiðaframleiðslu og margs konar iðnað, auk fjölmargra annarra utflutningsverðmæta. ísland hef- ir fisk, og ekkert nema fisk. Það er rétt, að fjárhagsleg að- stoð var látin í té til byggingar nýtízku togara fyrir ísland með lánum frá stórum verzlunar- bönkum í London. Hér er aðeins um að ræða venjuleg viðskipti, sem greiddir eru fullkomnir vextir fyrir, en ekki aðstoð frá brezku ríkisstjórninni eða brezk- um skattgreiðendum. Það er ósvífni af hr. Oliver að benda á, að þjóðin geti útilokað sína eigin togara í eitt ár. Bannið við togveiðum mun standa fyrir allar þjóðir, ísland, Þýzkaland, Holland o. s. frv. eins lengi og nauðsynlegt er til þess að reisa við þessi ofveiddu og uppþurrk- uðu mið. 'Eyðing miðanna Sömu aðilar sem tæmdu fisk úr Norðursjónum hafa með því ofstæki, sem þeim er tamt, sýnt eyðileggingarvilja sinn gagnvart hinum bráðnauðsynlegu skref- um, sem ísland og Noregur hafa tekið til þess að fyrirbyggja að þessi fjarlægu fiskimið hljóti sömu örlög fyrir ránshendi þeirra. Það er helber vitleysa að álíta, að löndun togara af íslandsmið- um, sem verið hafa 20% af afla togaraflotans brezka, muni ljúka vegna hinna nýju takmarkana. Almenningur ætti að gera sér ljóst, að togaraeigendur við Humberfljót bjuggu 1950 út á- ætlun, sem gerði ráð fyrir því, að lagt yrði upp hvorki meira né minna en 25% af togurum þeim, sem veiða á fjarlægum miðum og takmarka áhöfn hvers skips við 20 menn, sem leiðir til þess, að þegar brezkir togarar eru ,,í fiski“ við ísland eru áhafnirn- ar of fámennar til að hafa undan við verkun og frágang aflans. Á að útiloka Islendinga? Hið mikla magn af fiski, sem dæmt hefir verið ónýtt og yfir- leitt slæmur fiskur, sem borizt hefir að síðustu vikurnar á báð- um bökkum Humberfljótsins, tala sínu máli. Útgerðarmennirnir, sem miða við monopol-aðstöðu á markaðn- um og hagræði af atvinnuörðug- leikum hjá brezku skipstjórun- um, stýrimönnum og sjómönn- um, óttast auðvitað bæði sam- keppni íslendinga, sem bjóða betri fisk, og mikið framboð af fiski frá öðrum þjóðum. Þetta er ástæðan til þess að menn vilja knésetja íslendinga með því að útiloka þá frá brezka markaðnum. islendingar vilja samvinnu Þúsundir tonna af fyrsta flokks hraðfrystum íslenzkum fiski eru fáanlegar í Englandi einmitt á þeim árstíma, þegar lít- ið er um nýjan fisk og vegna góði%r skipulagningar koma ís- lendingar með nýjan fisk til brezkra hafna þegar skortur er á honum og minnst hætta er á að markaðurinn líði af því tjón. Kvartanir út af því, að mark- aðurinn hafi undanfarnar vikur verið yfirfylltur vegna landana utlendinga ná ekki til Islendinga, því að skip þeirra forðast að landa hér, þegar svo stendur á. Ef ekki er óskað eftir birgðum af hraðfrystum fiski í landinu þá er það verkefni brezku stjórnar- innar, en ekki brezkra togara- eigenda, að kveða á um það. ís- lenzkir togaraeigendur eru reiðu búnir að semja við brezka tog- araeigendur og þeir hafa með því að vinna eftir einasta planinu, sem notað er um landanir í Eng- landi, sýnt skilning sinn á vanda- málum Breta. Bretland réðst með her inn í Island árið 1940, sjálfs sín vegna, en það kastaði ekki eign sinni á landið. Ríkisstjórn íslands verst nú bæði gegn innrás og eigna- námi ekki aðeins Breta heldur og annarra þjóða á einu auðlind þjóðarinnar og hún hefði enga lífsmöguleika, ef hún léti þessi mál afskiptalaus. Framtíð íslands og alls heims- ins byggist á því, að allar þær matvælalindir, sem til eru, verði verndaðar í stað þess að tæma þær. —A. B., 4. júní Viking Club Awards Annual Bursary to Normal School Graduate At the proposal of Jon K. Laxdal, vice principal, Pro- vincial Normal School, Tuxedo, it was unanimously passed by the executive of The Viking Club that an annual bursary of $50.00 be awarded to a student of the Normal School of Scand- inavian decent who ranks highest in proficiency, the dec- ision to be determined by the faculty of the school. In attendance 1951—52 were 27 students of Scandinavian birth or decent, as follows: Icelandic 14; Swedish 6; Nor- wegian 4 and Danish 3. Miss Ellen Berg, of Ericksdale, Manitoba, was selected for 1952, and the presentation of the award took place at the morn- ing service on Tuesday, June 3rd, at the Normal School as- sembly hall with the full teach- ing staff and student body over 400 present. Mr. S. R. Rodvick, president of The Viking Club, presented the award to Miss Berg, ac- companied by A. J. Bjornson, treasurer, and H. A. Brodahl, secretary, who were introduced by Mr. Laxdal, also member of The Viking Club executive. Miss Berg was very happy and announced that she was going to use the money for further study at the summer school this year. The executive of the club is also happy in being of some as- sistance for the advancement of cultural purpose in this pro- vince. Garden Parly Saturday, July 19 at H. Jacob Hansen's home The Viking Club will hold a Garden Party at the summer home of H. Jacob Hansen, past president of the club, 2406 Portage Avenue, St. James, on Saturday, July 19th, beginn- ing at 2 p.m. till midnight. Refreshments will be served by the ladies’ committee, and Dancing and Bonfire will con- clude the evening. All mebers and friends are heartily welcome! íslendingar í Los Angeles Jónsmessuhátíð sína höfðu ís- lendingar hér hinn 22. júní í Centinela Park í Inglewood, á einum af þessum fögru dögum í Suður-California, þegar að ekki blaktir hár á höfði, og gott er að hylja sig í skugganum; voru þarna um 100 íslendingar og vinir þeirra, og ætíð eru nýir að koma í hópinn, t. d. munu nú vera hér um 25 ungar konur og stúlkur frá íslandi, munu þær nú hafa sérstakan félags- skap, þar sem að þær reyna að halda hópinn saman — þrátt fyrir fjarlægðir og ýmsa agnúa — og stundum finnst mér sem að þeim hafi tekist að gjöra menn sína íslenzka í anda, enda hafa margir af þeim dvalið á íslandi langdvölum — og er saga þessra hundrað kvenna efnis- rík og í mörgum myndum. — Meðal gesta þarna voru Ari Eyjólfsson og kona hans Ingunn Sveinsdóttir og sonur þeirra, Guðmundur, frá Reykjavík. Hingað komu þau frá Las Vegas, þar sem þau höfðu dvalið í nokkrar vikur. Frú Ingunn er systurdóttir Jóns Sigurdsonar í Las Vegas, en bróðurdóttir Gísla Sveinssonar, sem var í kjöri til forseta íslands, en Mundi Sveins son, bróðir Ingunnar, á heima í Los Angeles. Snemma á þessu vori voru hér á ferð Gísli Johnsen stórkaup- maður frá Reykjavík og frú Anna kona hans. Gísli er ættað- ur frá Vestmannaeyjum, en eftir 20 ára veru í Reykjavík var hann gerður að heiðursborgara í Vestmannaeyjum. Þau Ingólf- ur og Kristjana Bergsteinsson í Orange, California (40 mílur frá L. A.) höfðu mikið boð fyrir þau og marga Islendinga, en frú Kristijana er dóttir hinna góð- kunnu hjóna frú Guðrúnar og Ólafs Hallsson að Ericksdale, Manitoba, en náskyld frú John- sen; Bergsteinssonhjónin eiga fagurt heimili á milli appelsínu- trjánna þarna í Orange, eiga þau fjögur börn hvert öðru efnilegra, sjálf eru þau fyrirmyndarhjón. Frú Kristijana, ein af þessum hressandi, duglegu íslenzku konum. Bróðursonur Gísla John- sen, Rögnvaldur Johnsen á heima í Los Angeles, kona hans er Stella Valdimarsdóttir, eiga þau þrjú börn. Gísli og Anna Johnsen fóru héðan með skipi til New York, þaðan til Belgíu, Svíþjóðar og síðan heim. ----☆---- Sunnudaginn 29. júní komu um 30 manns í óvænta heimsókn til Odds og Helgu Johnson í Glendale. Það var í tilefni þess, að þau voru nýlega flutt í nýtt hús, sem Oddur hefir smíðað að mestu leyti sjálfur ásamt Tom syni sínum, stendur húsið á hæð og er útsýnið fagurt, einkum til fjallanna, sem aðskilja Glendale og Sinland, og svo hinn fagri gróður í öllum áttum. Hans og Emily (Einarsson) Ortnor stóðu fyrir veitingum, en Gunnar Matthíasson hafði orð fyrir gest- unum og færði þeim Oddi og Helgu fagrar fjafir frá vinum þeirra. Þau Johnsonshjónin komu hingað.fyrir mörgum árum frá Detroit, Mich.; er Oddur ætt- aður frá Vestmannaeyjum, en Helga af Eyrarbakka, eiga þau miklu mvinsældum að fagna sökum framkomu þeirra undir öllum kringumstæðum, og er vinum þeirra ánægjuefni að vita af þeim í hinu fullkomna og fagra heimili, þar sem að víð- sýnið skín! Skúli G. Bjarnason Ný ljóðabók Falleg og vönduð ný ljóðabók eftir Davíð Björnsson bóksala, fæst nú í Björnssons Book Store, 702 Sargent Ave., Winni- peg. Bókin er prentuð hjá The Columbia Press Ltd., og kostar óbundin $2.50, en í afarvönduðu bandi $4.50. Pantið bókina sem fyrst, því upplag er lítið. MESSUBOÐ Fyrsta Lúterska Kirkja Séra Valdimar J. Eylands Heimili 686 Banning Street. Sími 30 744. Sumarfrí stendur yfir. Guðsþjónustur hefjast 10. á- gúst n. k.' ☆ Séra Eric H. Sigmar frá Seattle, Wash., flytur guðsþjón- ustu á ensku í lútersku kirkjunni í Langruth á sunnudaginn þann 13. þ. m., kl. 2 e. h. (Standard Time). Allir hjartanlega vel- komnir. Fimmf’íu nemendur í Tónlistarskóla ísafjarðar Frá fréttaritara Tímans á ísafirði. Tónlistarskóla ísafjarðar var slitiÖ síðastliðið fimmtudags- kvöld. Skólastjórinn, Ragnar H. Ragnars, flutti ræðu við skóla- slit og skýrði frá starfsemi skól- ans. Einnig hélt formaður skóla- nefndar, Óli Ketilsson, ræðu og þakkaði skólastjóra og kennur- um mikið og gott starf. Kennarar við skólann voru Ragnar H. Ragnars, Elísabet Kristjáns- dóttir og Jónas Tómassom Kennt var píanó- og orgglleikur, og auk þess tónfræði. Fimmtíu nemendur sóttu skól- ann í vetur. Fipim nemendur hlutu verðlaun fyrir bezta frammistöðu í vetur. Voru það þær Halldóra Karlsdóttir, er hlaut Biblíuna í myndum, gefna af Verzlun Rögnvaldar Jónsson- ar; Sigurborg Benediktsdóttir, er hlaut kr. 1000, gefnar af ís- firðing h.f., og skulu þær vera skólagjald nemandans næsta vetur; Jóhanna Ingvarsdóttir, er hlaut Eversharp pennasett, gefið af Smjörlíkisgerð Isafjarðar; Ragnheiður jósk Guðmundsdótt- ir, er hlaut bókina Islenzkar þjóðsögur, gefna af Prentstof- unni Isrún og Margrét Krist- jánsdóttir, er hlaut pennahníf úr silfri, gefinn af Marelíusi Bern- harðssyni. Þrír nemendur léku á orgel og píanó við skólaslit fyrir hina fjölmörgu gesti, sem mættir voru. Mikil ánægja er með skólann, sem á eflaust eftir að glæða tón- listaráhuga ísfirðinga í framtíð- inni. Skólinn er rekinn af Tón- listarfélagi ísafjárðar og var þetta fjórða starfsár hans. —TÍMINN, 8.'júní Fréfrfrir . . . Framhald af bls. 4 Þjóðverjana með tveimur mörk- um gegn einu. Árbók Ferðafélags íslands 1952 er komin út og fjallar um Strandasýslu. Höfundur er Jó- hann Hjaltason skólastjóri. I bókinni er ýtarleg lýsing á hér- aðinu og hún er prýdd fjölda mynda. Þetta er 25. árbók Ferðafélags íslands. ☆ Ú r s 1 i t forsetakosninganna sunnudaginn 19. júní urðu þau, að kjörinn var Ásgeir Ásgeirs- son með 32.925 atkvæðum Séra Bjarni Jónsson hlaut 31.042 at- kvæði, og Gísli Sveinsson 4255 atkvæði. Á kjörskrá voru á öllu landinu um 86.700, en atkvæði greiddu 70.444, eða 81,25%. — Auðir seðlar voru 1940. Ásgeir Ásgeirsson hlaut 46,7% af greiddum atkvæðum, séra Bjarni Jónsson 44% og Gísli Sveins- son 6%. Talið var í öllum kjördæmum á þriðjudaginn, 1. júlí og var talningu lokið um kl. 20,30 um kvöldið. ♦ I Reykjavík voru úrslit þessi: Asgeir 14.970 atkvæði, — séra Bjarni 11.784, — Gísli Sveins- son 2053. Þegar úrslit urðu kunn safn- aðist fólk saman við heimili Ásgeirs Ásgeirssonar og voru þau hjónin hyllt. Hinum ný- kjörna forseta barst fjöldi árn- aðaróska, m. a. frá séra Bjarna Jónssyni og Gísla Sveinssyni. SAVE DOLLARS IN COMBINING Some farmers lose from $200.00 to $400.00 per carload on their barley because of improper methods of threshing and combining. Come to one of the Manitoba Barley Field Days and see an expert demonstrate the proper adjustments on your combine. Russell, Manitoba............. July 14th Benito, Manitoba July 15th Sandy Lake, Manitoba July 17th Prominent barley scientists, agricultural engineers, maltsters and machinery experts will demonstrate how to thresh barley. For future information as to exact time and place, call your local Elevator Operator, Agricultural Repre- sentative or write the Extension Service, Department of Agriculture, Winnipeg. Sixteenth in Series of Advertisements. This space contributed by JHEA'S WINNIPEG BREWERY LTD. MD-316

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.