Lögberg - 17.07.1952, Síða 1

Lögberg - 17.07.1952, Síða 1
O Canada we stand on guard for thee 65. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 17. JÚLÍ, 1952 íslendingar viljum vér oliir vera NÚMER 29 Minning merkrar konu Konu þeirrar, sem nú verður hér í fám orðum getið, hefði vitaskuld átt að hafa verið minst löngu fyr, því svo átti hún langan og merkan starfsferil að baki. Frú Össuría Bjarney Friðriks- dóttir var fædd að Hjarðardal í Önundarfirði hinn 22. dag júlí- mánaðar árið 1864. Foreldrar hennar voru hin góðkunnu hjón, Friðrik Jónsson og Kristjana Gísladóttir. Faðir Friðriks var Jón Sveinsson lögmaður, en móðir hans í þriðja lið frá Jóni Sigurðssyni forseta. Móðir frú Össuríu var Kristjana dóttir Gísla Jónssonar, en kona hans var Júlíana Kristjánsdóttir Ol- sen. Frú Össuría ólst að miklu leyti upp hjá Arngrími Jónssyni föðurbróður sínum, en dvaldi síðan nokkur ár hjá þeim séra Janusi Jónssyni og frú Sigríði að Holti í Önundarfirði; hún giftist 11. nóvember árið 1894 Jósepi Jóhannssyni ættuðum úr Húnaþingi, prúðum sæmdar- manni; bjuggu þau í Önundar- firði fram til ársins 1910, er þau fluttust að Hnífsdal og dvöldu þar árlagt hjá þeim hjónum Hálfdáni Hálfdánarsyni og frú Ingibjörgu Halldórsdóttur. Árið 1911 komu þau Jósep og Össuría til Vesturheims og sett- ust að í grend við þorpið Garðar Toka yið embættum Séra Jóhann Friðriksson Á sunnudaginn var, 13. júlí, voru tveir af prestum lúterska kirkjufélagsins settir í embætti sín. í Cavalier, N.D., var séra Stefán Guttormsson settur í em- bætti af föður sínum, séra Gutt- ormi Guttormsson frá Minneota. Séra Jóhann Friðriksson tók einnig við embætti sínu sem prestur Argyle prestakalls við sameiginlega guðsþjónustu safn- aðanna í Grundarkirkju. Séra Valdimar J. Eylands, forseti kirkjufélagsins, framkvæmdi innsetninguna. Athöfnin var mjög fjölmenn; að henni afstað- inni ávörpuðu fulltrúar safnað- anna prestshjónin og buðu þau velkomin. Síðan báru kvenfé- lagskonur fram veitingar í sam- komuhúsi kirkjunnar. Séra Stefán Gullormsson í North Dakota; þar komu þau sér upp notalegu og vingjarn- legu heimili, er þau bæði unnu og lögðu mikla alúð við; þeim varð fjögurra barna auðið, þriggja sona og einnar dóttur; tveir synirnir dóu í æsku, en sá þriðji lét lífið í snjóflóðinu mikla í Hnífsdal árið 1910 og var hann þá við nám hjá áminst- um Hálfdáni Hálfdánarsyni. Dóttirin, frú Sigrún Magnússon, á heima í St. Boniface. Frú Össuría var aðsópsmikil gáfukona, er unni mjög íslenzkri bókfræði; svo var hún vinföst að í þeim efnum verður naumast lengra náð; hún var ástrík móð- ir og eiginkona, er nú lætur eftir sig aldurhniginn lífsföru- naut og dygglynda dóttur. Frú Össuría var eftirsótt ljós- móðir bæði á íslandi og hér vestra, og þann starfa leysti hún af hendi, eins og raunar öll sín störf, með slíkum ágætum að til fyrirmyndar mátti jafnan telja. I maímánuði í fyrra fluttu þau Jósep og Össuría á elliheim- ilið Borg að Mountain, N. Dak., og þar seig henni hinzti blundur á brá hinn 9. desember 1951. Hún var fyrsta íslenzka konan, er safnaðist til feðra sinna á hinu friðsæla heimili sólseturs- barnanna í hinni fögru Moun- tainbygð, er íslendingar hafa sett svip sinn á. Ég hafði nokkur persónuleg kynni af frú Össuríu, sem mér verður jafnan ljúít að minnast og þakka. Útför frú Össuríu fór fram að Gardar hinn 11. desember, tveim dögum eftir andlát hennar, að viðstöddum fjölmennum hópi vina og þakklátra samferða- manna. Séra E. H. Fáfnis flutti hin hinztu kveðjumál. Aðstandendur hinnar látnu þakka af öllu hjarta þeim hin- um mikla mannfjölda, er heiðr- aði útför hennar með nærveru sinni, svo og vistfólki á Borg, og þá ekki sízt framkvæmdarnefnd þessarar ágætu og virðulegu stofnunar; einnig þakka ástvin- irnir minningargjafirnar um hina látnu, er báru glögg merki þeirrar virðingar, er hún hvar- vetna naut. „ —r* J. Kjörinn forseti Kominn vestur ósamt fjölskyldu J. D. Wilion Á ársþingi þeirra samtaka, sem ganga undir nafninu The Manitoba Federation of Agricul- ture and Co-Operation, sem haldið var nýlega hér í borginni, var Mr. J. D. Wilton frá Roland kjörinn forseti þessa fjölmenna félagsskapar fyrir starfstíma- bilið 1952—’53. Spjallað við G. F. Jónasson um íslandsferð hans Séra Eiríkur Brynjólfsson Hingað kom flugleiðis frá New York í gær séra Eiríkur Bryn- jólfsson fyrrum prestur á Út- skálum, er nú tekst á hendur prestsþjónustu hjá söfnuði ís- lendinga í Vancouver; þau hjón eru vinmörg hér um slóðir frá þeim tíma, er séra Eiríkur þjón- aði Fyrsta lúterska söfnuði hér í borg, en séra Valdimar J. Ey- lands þjónaði Útskálaprestakalli. Lögberg býður séra Eirík vel- kominn til starfs meðal íslenzka mannfélagsins vestan hafs. Úr borg og bygð íslenzk siúlka úlskrifasl í lyfjafræði Joanne Eyjólfsson, dóttir Mr. og Mrs. T. W. Eyjólfsson, Park River, lauk í vor fullnaðarprófi í lyfjafræði, N.D.A.C. School of Pharmacy, í Fargo. — Miss Eyjólfsson á glæsilegan náms- feril að baki og tók mikinn .þáti, í félagslífi háskólans. Hún tekur nú til starfa í lyfjabúð föður síns. ☆ Dr. og Mrs. I. G. Arnason, Waverley Street, Winnipeg, sigldu 1. júlí til Englands og annara Evrópulanda með Queen Elizabeth; búast þau við að dvelja þar sumarmánuðina. ☆ í dag verða gefin saman í hjónaband að Minneota, Minn., hr. Jón Metúsalemsson og ekkju- frú Kay Anderson. Jón er út- skrifaður í búvísindum af Min- nesota háskólanum og hefir með h ö n d u m búnaðarráðunauts- stöðu; hann er sonur Metúsalems Stefánssonar búnaðarfélagsráðu- nauts og Guðnýjar Jónínu Ólafs- dóttur frá Höfn á Völlum; brúðurin er ættuð úr North Dakotaríki. Heimili þeirra verð- ur fyrst um sinn í Minneota. Lögberg flytur ungu hjónunum innilegar árnaðaróskir. ☆ Síðastliðinn sunnudag lézt að heimili sínu, 431 Tweed Avenue, Mrs. Sigríður Rafnkelsson, ekkja Benedikts Rafnkelssonar frá Lundar, 77 ára að aldri; út- för hennar fór fram í gær frá Bardals. Séra Valdimar J. Ey- lands jarðsöng. ☆ Þær systur Helga Sigurdson píanisti og Louise hjúkrunar- kona frá New York, eru nýlega komnar hingað í heimsókn til foreldra sinna Mr. og Mrs Sigurbjörn Sigurdson, Minto Street og munu dveljast hér um hríð; þær komu í bíl austan frá New York. ☆ Mrs. J. Sigurdson frá Van- couver, B.C., er nýlega komin til borgarinnar í heimsókn til Mr. og Mrs. Paul Sigurdson, 98 Kingsway. ☆ Stödd eru hér í heimsókn um þessar mundir Mr. og Mrs. Ed. Weley frá Sudbury, Ont. Mr. Weley er skólastjóri þar í bæn- um, en kona hans er dóttir Mrs. J. Sigurdson í Vancouver. Nýlega er kominn heim úr íslandsferð Guðmundur F. Jón- asson, eigandi og forstjóri Key- stone Fisheries félagsins; hann fór flugleiðis fram og til baka, lagði af stað 10. júní og kom til baka 7. júlí; er þetta í fyrsta sinn að hann hefir litið ættland sitt og mun því lesendum blaðs- ins nokkur forvitni á því, hvernig landið og þjóðin kom honum fyrir sjónir, en hann er maður eftirtektarsamur og glöggskygn á hlutina frá sjónarmiði athafna- mannsins. — Ég fékk far með Pan American Airways frá New York, sagði Mr. Jónasson, og við lentum í Keflavík kl. hálf þrjú um nótt, en þá var bjart á ís- landi eins og um hábjartan dag. Konan mín hafði farið áður með skipi til Englands og þaðan til Parísar, en kom nú til Islands degi seinna en ég. Vinir okkar, herra Sigurgeir Sigurðsson biskup og frú Guðrún Péturs- dóttir kona hans og fjölskylda buðu okkur að dvelja hjá sér, á Gimli, meðan við værum á íslandi og á ég engin orð til að lýsa ástúðlegum viðtökum þeirra; alt hugsanlegt var gert til þess að gera dvöl okkar sem ánægjulegasta. Hálíðahöldin 17. júní — Þið hjónin Lafið verið við- stödd hátíðahöldin 17. júní; eru þau lík Islendingadagshátíðum okkar? — Nei, alls ekki; ég hafði búist við að þau færu fram á Þing- völlum með þátttöku fólks úr öll- um landshlutum, en svo var ekki; hver bær og sveit efndi til síns eigins hátíðahalds. Hátíðin í Reykjavík hófst með skrúð- göngum um götur bæjarins og síðan guðsþjónustu í Dómkirkj- unni. Þá var Lækjargötu lokað fyrir umferð alla leið til Austur- strætis og Arnarhóls og þar fóru síðan fram skemtanir allskonar, skrúðgöngur, söngur og ræðu- löld. — Veðrið þennan dag var bjart og hlýtt. Bústaður biskups, Gimli, er við Lækjargötuna, við höfðum jví ágætt útsýni .yfir það, sem G. F. Jónasson fram íór úr glugga á efri hæð hússins. Ég hafði kíkir, sem var svo góður, að hægt var að greina augnalit fólksins, er gekk um götuna. Mér fanst fólkið alment frábærlega vel til fara, eiginlega betur til fara en fólk yfirleitt á íslendingadögum okkar hér vestra; ég sagði við konuna mína, að ef teknir væru hundr- að manns af handahófi úr þess- um hóp og þeir settir niður á Portage í Winnipeg eða Fifth Avenue í New York, myndu þeir samlagast fjöldanum á götunni á nokkrum mínútum, þannig að ekki væri hægt að greina þá úr, hvorki af útliti, klæðaburði eða látbragði. —Bar mikið á Bandaríkjaher- mönnum? — Nei, yfirmenn hersins kunn gerðu að setuliðið myndi ekki koma nálægt hátíðahaldinu, því þetta væri einkahátíð íslend- inga. Um kveldið hafði forsætis- ráðherrann, Steingrímur Stein- þórsson boð og voru þangað boðnir nokkrir yfirmenn hers- ins, sendiherrar erlendra ríkja og ýmsir forustumenn þjóðar- innar; við hjónin áttum einnig þeim heiðri að fagna, að vera boðin þangað og höfðum við mikla ánægju af því. Hátíðahaldinu lauk með því að hljómsveit lék danslög á Arnarhóli, og fólkið dansaði hingað og þangað á Lækjargötu fram eftir nóttu. FRtJ LOIS GUTTORMSDÓTTIR KELLER Fjallkona íslendingadagsins í Seattle Forsetakjörið — Það hefir verið gaman fyrir ykkur hjónin að vera á íslandi um það leyti, sem forsetakosn- ingarnar fóru fram? — Já, fólkið þar virðist hafa miklu meiri áhuga fyrir stjórn- málum en fólk hér; þau mál eru rædd þar af miklu kappi; annars fannst mér athyglisvert, hve flokkadrættir eru miklir þar. í útvarpsræðum formanna póli- tísku flokkanna var sjaldan minnst á, hvað landinu og vel- ferð þess væri fyrir beztu, held- ur hitt, hve áríðandi væri að standa stöðugur með sínum flokki og veita honum hollustu og fylgi — velferð flokksins virtist tekin fram yfir velferð þjóðarheildarinnar. Þetta fannst mér miður heilbrigð stjórn- málastefna. 81.25 prósent at- kvæðisbærra þegna greiddi at- kvæði í kosningunum og sýnir það gjörla hve mikill áhugi er þar fyrir stjórnmálum og þátt- takan almenn. Ég sendi hinum nýkjörna og virðulega forseta ís- rlands heillaóskir og fullvissaði hann um, að margir Vestur- íslendingar myndu fagna kjöri hans. Reykjavík — Hvernig leist þér á höfuð- borgina? — Reykjavík er þrifaleg borg og húsakostur góður, jafnvel betri en hér; þar eru að rísa upp heil hverfi af nýtízku stein- steypuhúsum, flestöll útbúin nýjustu tækjum og þægindum. Bílaumferðin er afar mikil; í þessari smáborg, er telur um 50,000 íbúa eru um 6000 bílar eða einn bíll fyrir hverja 8 íbúa. En vörur allar eru mjög dýrar, því skattaálagningin er gífurleg; til dæmis er Pall Mall sígarettu- pakki 10 krónur, en verðið í New York er 24 cents, sem inni- felur skattaálagningu stjórnar- innar þar; útflutningsverðið er því sennilega helmingi lægra — 10 eða 12 cent, en þegar til ís- lands kemur selst pakkinn á sem .svarar 63 cents. Eins og flestir gestir, sem koma til íslands, undruðumst við yfir hinum mikla fjölda bóka- búða í borginni; þær eru tiltölu- lega eins margar eins og „Fil- lings Stations“ (benzínstöðvar) hér. í þeim rakst ég á bók, sem ég hygg að ekki eigi sinn líka hér, en það er Skattskráin. Þar eru skráð nöfn þeirra, er gjalda skatt og einnig upphæð út- svarsins. Hér er það ekki álitið rétt að skýra frá slíku, því það er talið einkamál. Bók þessi selst sennilega vel. Ég fletti upp 1 bókinni nöfnum bókabúða og sá, að samkvæmt útsvari þeirra, var verzlun þeirra mikil, enda var mér sagt, að bókaverzlun gæfi jafnvel meira í aðra hönd heldur en til dæmis fataverzlun eða aðrar slíkar verzlanir. Okk- ur þótti eftirtektarvert að sjá í bókabúðunum og í einkasöfnum á heimilum bækur á ýmsum tungumálum og gefur það til kynna hve málakunnátta þjóðar- innar er yfirleitt mikil. — Fóruð þið í Þjóðleikhúsið? — Já, og þar var leikið Die Fledermaus eftir Johann Strauss. Það vildi svo til, að við hjónin höfðum séð flokk frá Metropolistan Opera leika þessa óperettu í Winnipeg Auditorium, og okkur kom saman um að ís- lenzka sýningin hefði verið til- komumeiri og skemtilegri, söng- urinn og leikurinn yfirleitt betri. Þjóðleikhúsið er mikil og vönduð bygging, borginni og þjóðinni til sóma. Framhald á bls. 4

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.