Lögberg - 17.07.1952, Qupperneq 7
s-iOGBERG, FIMTUDAGIínN. 17. JÚLÍ, 1952
7
Heimsókn oð Sogsfossum
M ÞESSAR mundir er lið-
ið hálft annað ár frá því að
iramkvæmdir hófust við bygg-
ingu neðanjarðar-orkuversins
við Neðri-Fossa í Sogi, Irafoss og
Kistufoss. Hér er um að ræða al-
veg sérstætt mannvirki í sögu
mannvirkjagerðar hér á íslandi.
Það er fróðlegt að koma þangað
og skoða hvernig framkvæmd
verksins miðar áfram.
Þegar ekið er úr Grímsnesinu
up eftir Sogsveginum, blasa við
reisuleg og rismikil hús við af-
leggjarann, sem liggur frá Sogs-
veginum niður að virkjunar-
staðnum. Hér er um að ræða
Mötuneytis- og samkomuhús og
íbúðir vélstjóra. En byggingar
þessar eru nú notaðar til íbúðar
fyrir þá, sem þar vinna. Á virkj-
unarstaðnum sjálfum eru nokk-
ur rauðmáluð sænsk íbúðarhús,
skrifstofur, verkstæði og geyms-
luhús. Umhverfið er í eðli sínu
mjög fagurt.
Á hlaðinu
Þegar staldrað er við á hlaðinu
er augljóst að unnið er með lífi
og sál að stórkostlegum fram-
kvæmdum. Úr fjarska heyrast
taktföst hamarshögg trésmið-
anna, skrölt ýmiss konar vinnu-
véla, ys og þys. Hér virðast allir
vera glaðir og ánægðir. Þeir sem
eru á gangi um vinnuplássið
ganga greitt og frjálsmannlega
með brúna eða hvíta hjálma á
höfði. Þeir eru að koma fyrir
neðanjarðargöngum. Það er aug-
ljóst að allir stefna að settu
marki, að vinna fljótt og vel og
halda vinnuáætlun.
Fyrir ókunnuga er vinnupláss-
ið undraheimur, sem ekki verður
lýst nema með aðstoð þeirra, sem
þar vinna.
Byggingarvinna orkuversins
er framkvæmd af dönskum og
sænskum byggingarfélögum,
sem hafa myndað með sér bygg-
ingarfélagið Fosskraft. Framkv.
stj. þes er Kai Langvad verkfræð
ingur, sem er landsmönnum
kunnur frá virkjun Ljósafoss og
Skeiðfoss og framkvæmdum við
Hitaveitu Reykjavíkur. Við þetta
mannvirki er yfirverkfræðingur
danski verkfræðingurinn Öster-
gaard.
Byggingaframkvæmdum við
orkuverið má skipta í þrjá meg-
in hluta, sem eru: Stíflan á foss-
brún írafoss, Stöðvarhúsið, neð-
anjarðar vélasalur sambyggður
lóðrétt stigagöng og lyftu-
göng við ofanjarðarbyggingu, og
loks frárennslisgöng, sem eru
neðanjarðar.
Stíflunni lokið í sumar
Framkvæmdir standa nú þann-
ig að lokið er við smíði stíflunn-
ar á austurbakka Sogsins, þar
sem inntökin eru fyrir aðrennsl-
isæðar vélanna, og eystri hluta
stíflugarðsins, þar sem botnrásir
stíflunnar eru. Soginu er nú veitt
um botnrásirnar og unnið að
byggingu vestari hluta stíflu-
garðsins, og verður stíflunni að
fullu lokið á þessu sumri.
Lokið er að mestu við spreng-
mgar fyrir vélasalsbyggingu með
tilheyrandi gryfjum fyrir vatns-
túrbínur, aðrennslisæðum og
sográsum. Aðalhvelfing vélasal-
arins var steypt á s.l. vori. Nú
verður hafizt handa um að slá
upp mótum fyrir vélahúsinu í
stórum „helli,“ sem sprengdur
hefur verið í bergið. Unnið er að
ofanjarðarbyggingunni og innan
skamms verður lokið við að
steypa verkstæði og lyftiturn, en
ofanjarðarbyggingunni verður
að fullu lokið um miðjan júlí í
sumar.
í salnum verður 75 tonna krani
til uppsetningar og eftirlits véla.
Skammt frá ofanjarðarbyggingu
vélahússins er spennistöð stöðv-
arinnar. Frá henni verður orku
stöðvarinnar veitt til Reykjavík-
ur með 138000 volta spennu.
Frárennslisgöngin, sem liggja
frá Sográsum túrbínanna eru,
sem fyrr segir um 640 m. að
lengd og 60 fermetra að flatar-
máli, og koma út í farveg Sogs-
ins um það bil 300 m. fyrir neðan
K i s t u f o s s. Úr jarðgöngunum
verða sprengdir um 41000 tenings
metrar af grjóti, eða nálega 120-
000 tonn. Eftir er að sprengja um
20 metra leið. Standa vonir til að
því verði lokið næstu daga.
Stíflan á fossbrún írafoss, sem
lokið verður við smíði á í sum-
ar, er um 150 m. að lengd og um
8 m. á hæð. í eystri hluta stíflu-
garðsins eru 3 botnrásir og 3 flóð
gáttir. Vestan við flóðgáttirnar
tekur við 64 m. langt virki, sem
takmarkar vatnsborð lónsins, fyr
ir ofan stíflu, við um 64 m. hæð
yfir sjávarmál. Við austurbakka
Sogsins og sambyggt stíflugarð-
inum eru 3 inntök fyrir aðrennsl
isæðar að vélasamstæðum.
Stöðvarhúsið sjálft
Samhliða austurbakkanum,
um 35 m. frá inntökunum og um
40 m. undir jarðvegsyfirborði, er
vélasalurinn fyrir 3 vélasamstæð
ur. Vélasalurinn verður 42 m. á
lengd, 12 m. á breidd og um 20
m. á hæð, eða að rúmmáli hér um
bil 10.000 teningsmetrar. — Sam-
byggð vélasalnum um lóðrétta
lyftu og stigagöng, er ofanjarðar
bygging stöðvarinnar. Þar verð-
ur verkstæði, skrifstofa og töflu-
salur, þaðan sem rafvélum og
tækjum er stjórnað. Yfir lyftu
opinu er skáli, þar sem komið
verður fyrir 40 tonna krana til
að hleypa vélahlutum niður í
vélasalinn.
I skrifstofu Östergaards yfir-
verkfræðings, en hún er í einu
rauðu sænsku húsanna, hitti ég
hann sem snöggvast að máli.
Verkinu hefur í aðalatriðum
miðað áfram samkvæmt áætlun,
segir verkfræðingurinn og bend-
ír á uppdrátt er sýnir fyrirkomu-
lag orkuversins og hvernig fram-
kvæmdum miðar áfram. En þær
tafir, sem orðið hafa, stafa aðal-
lega af erfiðleikum við boranir
fyrir sprengingum. Þar sem leir-
lög og jökulruðningur er inn á
milli blágrýtislaganna, er erfitt
að bora. Borarnir festast o^bor-
holurnar stíflast. Nú er spreng-
ingum að mestu lokið og þar af
leiðandi er minni hætta á óvænt-
um töfum í framkvæmdum
vinnu áætlunarinnar.
í jarðgöngunum
Það er bæði fróðlegt og skemm
tilegt að koma niður í frárennis-
göngin. Þau eru tæplega 8 metra
há, þar sem þau eru hæst, og 7.50
m. á breidd. Þau eru ekki ósvip-
uð í laginu og þegar horft er á
braggagafl, en niðri við gólfið í
göngunum er veggurinn lóð-
réttur.
Frárennslisgöngin frá orkuver-
inu eru 640 metra löng og verður
alls að sprengja og flytja úr þeim
41.000 teningsmetra af grjóti. Það
lætur nærri að vera rúmlega 100
þúsund tonn eða álíka mikið og
tveir skipsfarmar alls skipaflota
Islendinga eins og hann er í dag.
I göngunum, en gólfið í þeim
er svo til hallalaust alla leiðina
frá orkuverinu að opi., Þar niðri
gætu rúmast sæmilega um 20,-
000 manns.
Frárennslisgöngin verða steypt
að innan og notuð við það færan-
leg mót. Ég spurði einn verk-
fræðinganna að þvíð hvort það
væri gert til þess að forðast
skemmdir af völdum jarðsigs,
eða vegna jarðskjálfta. Ekki er
það nú höfuðástæðan, sagði
hann.
— Segja má, bætti hann við,
að mjög snarpur jarðskjálfta-
kippur fari um jarðgöngin öll
einu sinni á sólarhring. — Þá
leikur þar alt á reiðiskjálfi og
jafnvel heima við húsin verður
titrings vart.
Þakið yfir jarðgöngunum, það
er að segja bilið milli loftsins í
göngunum og yfirborðs jarðar,
er sums staðar 35 metrar, en
hvergi er það minna en 8 metrar.
Hvernig eru jarðgöngin lögð?
Þegar sprengt er, eru boraðar
milli 60—80 fjögra metra djúpar
holur inn í stálið. Við þá borun
vinnur sérlega þjálfuð sveit
manna á hreyfanlegum vinnu-
pöllum, tveggja hæða. Er hún
um 10 klst, að bora þessar holur.
— Þessu verki stjórnar Svíinn
Lokander.
Síðan er dýnamitinu komið
fyrir í holunum, og það sprengt
með rafmagni. Dýnamittúparn-
ar, sem eru í stálinu miðju,
springa fyrst en síðan allt í kring
út frá þeim og þær, sem yzt eru,
springa síðast. Þegar þetta er um
garð gengið, fara hópar verka-
manna til að ryðja því frá sem
sprakk ,og er því ekið út á bing.
Þar er allt blágrýtið tekið, sétt í
grjótmulningsvél og fer sá muln-
ingur í alla steypu. Með löngum
járnstöngum sem minna helzt á
laxveiðistangir, og ná upp um
veggi, allt upp í mæni jarðgangn
anna, hreinsa verkamennirnir,
svo allt laust grjót í burtu, út í
fastan klettinn. Loftið þar niðri
er móðukennt, en vélar dæla
þangað hreinu lofti.
Húsið byggt í „hellinum“
I hinni hrikastóru hvelfingu
sem komin er í bergið undir íra-
fossi og stöðvarhúsið verður í,
hefur þurft að sprengja alls 10.-
000 teningsmetra af grjóti.
Verið var að slá upp steypu-
mótum að útveggjum stöðvar-
hússins.'Mennirnir, sem voru þar
að vinnu voru líkastir dvergum
í svo hrikalegu og hrissingslegu
umhverfi. Vera má, að dauf birt-
an og móðan þar niðri hafi hjálp-
að til að gera þetta svona lítið
vistlegt.
Þegar stíflugarður raforkuvers
ins var steyptur þurfti að veita
Soginu til í sínum venjulega far-
vegi. En nú er langt komið með
að steypa garðinn, en á honum
verður hús, þar sem í verða vatns
lokur stíflunnar. Þ æ r m u n u
þýzkur verkfræðingur setja upp.
I alla þá steypu, sem til orku-
versins við Neðri Fossa þarf,
munu fara um 6.000 tonn af sem-
enti. Nú er aðeins búið að nota
um 1.300. Mest fer í jarðgöngin.
Alls þarf um 400 tonn af steypu-
styrktarjárni.
Östergaard verkfræðingur
kvaðst ekki á þessu stigi vilja
um það segja, hvenær mann-
virkjagerðinni yrði lokið. — Ég
vona að okkur muni takast að
halda þeirri áætlun er gerð var
í upphafi. Samkvæmt henni á
mannvirkinu að vera lokið vorið
1953. Hér er nú allt unnið í á-
kvæðisvinnu, bætti hann við.
Verkamenn, sem í jarðgöng-
unum vinna, hafa sérstakan kaup
taxta með tilliti til þess, að þeir
eru tryggðir hærra með hliðsjón
af slysahættu. Um þessar mundir
vinna hér hjá okur, sagði Öster-
gaard, milli 160—170 verkamenn
og iðnaðarmenn og mun tala
þeirra ekki verða öllu meiri. I
hverri viku fara um hendur okk-
ar' milli 160—170 þúsund kr. í
launagreiðslur til þessara manna.
Áður en við slitum samtali okk
ar sagði östergaard verkfræðing-
ur, að milli verkfræðinganna,
verkamanna og verkstjóranna
ríkti gott samstarf.
Þennan dag var að hefjast und-
irbúningur að upsetningu að-
rennslisæðar og sogrása túrbín-
anna, sem fyrst verða settar nið-
ur. Túrlýnurnar eru keyptar í
Svíþjóð og er sænskur verkfræð-
ingur, Lokander að nafni, kom-
inn austur til að sjá um uppsetn-
ingu þeirra, en Stálsmiðjan. Héð-
inn og Hamar hafa tekið í á-
kvæðisvinnu að setja saman að-
rennslisæðar og sográsir.
I byrjun júni eru væntanlegir
lyftikranarnir, sem settir verða
upp í lyftuturninum og í véla-
salinn, sem minnzt var á í sam-
bandi við vélasalinn.
Lokur og lokubúnaður fyrir
stíflur, sem þýzkur verkfræðing-
ur mun setja upp, er væntanleg-
ur fyrri hluta sumars og verður
hafizt handa um upsetningu jafn
óðum og tækin koma til landsins.
Vélarnar flutningur þeirra
vandasamt verk
Þennan dag var þar eystra Ing-
ólfur Ágústsson verkfræðingur
hjá Rafmagnsveitunni. Hún mun
annast allan flutning á vélum og
rafútbúnaði austur. Ingólfur
sagði að undanfarna mánuði
hefði komið til landsins alls kon-
ar rafbúnaður til virkjunarinnar,
svo sem spennar, rofar og ýmis
hjálpartæki. Rafalarnir eru væn-
tanlegir á næstunni, sagði Ing-
ólfur.
Þegar vegirnir austur eru orð-
nir öruggir eftir holklaka og aur-
bleytur verður hafizt handa um
flutninga á því efni, sem komið
en til landsins. En flutningur ý-
missa vélahluta og tækja hingað
austur verður tafsamur og erfið-
ur. Þyngstu stykkin, spennarnir,
vegna allt að 40 tonnum og eru
um 4,6 metra á hæð, sagði Ing-
ólfur.
Vonir standa til að unnt verði
að hefjast handa um upsetningu
rafbúnaðarins síðari hluta sum-
ars og upsetning rafala geti haf-
izt um áramótin. Ef engar óvænt-
ar tafir verða á afgreiðslu véla og
tækja, og vinnuáætlun sú, sem
unnið er kappsamlega eftir,
stenzt, ætti fyrri vélasamstæða
að vera tilbúin til prófunar á á-
liðnu sumri 1953, en síðari véla-
samstæðan um áramót 1953—54.
I sambandi við virkjun Irafoss
hefur verið reist Aðalspennistöð
við Elliðaár, þar sem tekið er við
raforkunni, 130000volt frá Ira-
foss-stöðinni, en undir því nafni
mun neðanjarðarorkuverið
ganga. Orkunni er síðan dreift
með 30 þús. volta spennu til
Reykjavíkur, Hafnarfjarðar og
Reykjaness, og til Áburðarverk-
smiðjunnar í Gufunesi.
Nýja sogslínan á Stálstaurum
Ingólfur skýrði mér frá því, að
nú væri búið að merkja fyrir
hinni nýju háspennulínu frá Ell-
iðaárstöð og austur að írafoss-
stöð. Mun línan liggja um Lækj-
arbotna, Svínahraun, meðfram
veginum, þvert yfir túnið á Kol-
viðarhóli og up í gegn um Hellis-
skarð. Síðan yfir Hellisheiðina
sunnanvert í Kömbum eftir Graf
ningshálsi og um Bíldsfell. Staur
ar línunnar eru stálgrindur og
verða smíðaðir í Bandaríkjunuim
Vonazt er til að hægt verði að fá
afgreidd í sumar undirstöðujárn-
in ,svo að hægt verði að steypa
þau í undirstöðustöplana. Ætti
þá að vera hægt næsta haust og
vetur að leggja línuna. Háspennu
línan verður um 51 km. löng og
munu 260 stálstaurar verða á
henni. Alls fara um 150 km. af
stál-aluminium vír í línuna.
Bílamir með nöfnin
Ingólfur sagði mér söguna af
því, hvernig á því stendur, að
grjótmulningsbílar, sem ég sá á
hlaðinu og notaðir eru til að aka
grjótruðningi út úr göngunum,
hafa hlotið mannanöfn. Þegar
bílarnir komu til landsins í s. 1.
vetri, varð að aka þeim austur.
Bílarnir eru ekki góðir ferða-
vagnar, á þeim eru engar fjaðrir
og ekkert skýli fyrir stjórnanda
þeirra. — Loks er ekki hægt að
aka þeim nema mjög hægt. Það
þurfti því hrausta náunga til að
aka þeim austur um hávetur, en
til þess völdust Ævar og Guðjón.
Þeir voru 24 klst. á leiðinni með
hvorn bílanna, og hreptu slæmt
ferðaveður. Þegar austur kom
voru nöfn þeirra sett á bílana.
I skrifstofu Rafmagnsveitunn-
ar þar eystra hitti ég að máli
Borg Ólsen byggingarverkfræð-
ing. Hann er þar eystra sem full-
trúi Berdal verkfræðings, er á-
ætlun gerði um þessa virkjun.
Með honum starfar Erlingur Guð
mundsson, verkfræðingur.— Eru
þeir báðir ungir og áhugasamir
menn, er leystu greiðlega úr
spurningum mínum.
Þegar við Ólafur K. Magnús-
son ljósmyndari, sem tekið
hafði allmargar myndir, ókum
heim um Þingvelli, komum við
þangað, sem Þrengslin heitir, en
þar rennur Þingvallavatn út í
Sogið, sáum við þess merki að á
bakkanum gengt okkur var verið
að vinna, en ekkir gerðum við
okkur þá grein fyrir því, hvað
um væri að vera.
Þegar til Reykjavíkur kom og
við fórum að grennslast fyrir um
þetta, kom í ljós, að hér er um
athugun að ræða á því, hvort til-
tækilegt sé, að næst þegar Sogið
verður beizlað, að stíflugarður
verði settur þarna þvert í Þrengs
lm. Þessar rannsóknir fara fram
á vegum Sogvirkjunarinnar. Ef
slíkt þykir fært, er sennilegt, að
ekki liði fimm ár héðan í frá, þar
til sú virkjun hefir farið fram.
Rafmagnsþörfin á orkusvæði
Sogsvirkjunarinnar mun vaxa
með þeim krafti á næstu árum.
Og þess ber að gæta að Áburðar-
verksmiðjan í Gufunesi ein, þarf
um 20.000 kilóvött í næturorku.
I þessu nýja orkueri verða 3 véla
samstæður sem framleiða hver
15.500 kw. eða 46.500 kw. alls.
Fyrst í stað verða tvær vélasam-
stæður. Þá hefur orkuveitusvæði
Sogsvirkjunarinnar til umráða
allt að 60.000 kílóvött.
Þessi dagstund austur við Sog
hafði liðið svo fljótt við að skoða
og heyra um þetta stórkostlega
mannvirki, að komið var langt
fram á kvöld, er við komum að
Elliðaánum. En við að horfa
heim að gömlu rafstöðinni, fóru
ósjálfrátt að rifjast upp fyrir mér
hin stutta en atburðaríka saga
raforkumálanna, sem stórhuga
menn hrundu í framkvæmd með
byggingu Elliðaárstöðvarinnar
árið 1921. Á þeirra braut verður
haldið áfram. írafossstöðin, neð-
anjarðarorkuverið, hið fyrsta hér
á landi, er og verður merkur á-
fangi á leiðinni. Sv. Þ.
— MBL., 29. maí.
Gjafir til „Höfn", Vancouver
Safnað af Mrs. S. Thorkelson,
Victoria, B.C.
Victoria Icelandic Women’s
Club $25.00; Mr. og Mrs. Soffan-
ías Thorkelson $25.00; Mr. og
Mrs. Grímur Johnson $25.00; Mr.
og Mrs. C. Brynjólfson $2.00;
Valgerður Albertine Multer
$2.00; Mrs. Margaret Gower
$1.00; Mrs. Inga Evender $1.00;
Mrs. Áslaug Gauti og fjölskylda
$5.00; Mr. og Mrs. C. Thorsteins-
son $2.00; Mr. Hugh Tyrrell
$10.00; Miss Lilly Stevenson
$5.00; Mrs. Sigríður Pálsson
$2.00ý Mrs. Lauga Josephson
$2.00; Mr. og Mrs. H. M. Páls-
son $1.00; Mr. og Mrs. Barrie
Inglish $1.00; Mr.' og Mrs.
Johnny Dalman $1.00; Mr. Joe
Lindal $10.00; Mr. og Mrs. K. B.
Dalman $5.00.
Safnað af Mrs. Sigtri. Goodman,
Wynyard
Mr. og Mrs. Hjörleifur Martin
$50.00; Mr. og Mrs. O. J. Jónas-
son $10.00; Mr. og Mrs. O. O.
Magnússon $10.00; Mr. og Mrs.
H. K. Halldórsson $10.00; Mr.
Jóhann Kristjánsson, Mozart,
$10.00; Mr. og Mrs. Marvin
Johnson $5.00; Mr. Carl Magnús-
son $5.00; Mr. og Mrs. Hosi Pét-
ursson $5.00; Mr. og Mrs. A. S.
Thorfinnsson $5.00; Mr. og Mrs.
Hákon Kristjánsson $5.00; Mr.
og Mrs. A. R. McLeod $5.00; Mr.
og Mrs. Th. Jóhannesson $5.00;
Mrs. Dómhildur Johnson $5.00;
Mr. og Mrs. Pete Pétursson $5.00;
Mr. og Mrs. Skúli Anderson
$2.00; Mr. og Mrs. Kris Gíslason
$2.00; Mr. og Mrs. A. K. Hall
$2.00; Mr. og Mrs. Helgi Péturs-
son $2.00; Mr. og Mrs. Valdi
Bjarnason $2.00; Mr. og Mrs. W.
Magnússon $2.00; Mr. og Mrs.
Gunnar Johnson $2.00; Mr. Ingi
Magnússon $1.00; Miss Sigrún
Johnson $1.00; Mr. Joe Joseph-
son $1.00; Mr. John Jónasson
$1.00; Mr. og Mrs. Gunnar J.
Jóhannsson $1.00; Skúli og
Gunnar $1.00; Vinur $0.50; Mrs.
Vic Campbell, Humbold $1.00.
Safnað af Mrs. Bealrice Árnason
Campbell River, B.C.
Vilborg og Paul Einarsson
$10.00; Mr. og Mrs. Steini Ein-
arsson $5.00; Mr. og Mrs. S.
Einarsson $2.50; Mr. og Mrs.
John Borgfjörð $5.00; Carl og
Thor Eiríksson $1.00. Mr. O.
Erickson $1.00; Mr. Magnús
Árnason $1.00; Mr. og Mrs.
Eyjólfur Gunnarsson $2.00; Mr.
og Mrs. Albert S. Árnason $5.00.
Jon Sigurdson Chapter I.O.D.E.,
Winnipeg, $50.00; Mrs. Inga
Sveinsson, Inglewood, Cal.,
$20.00; Mr. og Mrs. S. G. Bjarna-
son, Los Angeles, $20.00; Mr.
Byron Johnson, Premier, B.C.,
$25.00; Mr. og Mrs. M. G. Guð-
laugsson, White Rock, $10.00 (í
minningu Ingu og Jóns Straum-
fjörðs); Mr. og Mrs. D. E. Ólafs-
son, Vancouver, $10.00; Mrs.
Laura Johnson, Vancouver,
$2.00; Miss Mary K. Anderson,
Vancouver, $10.00; Mrs. Tucker,
Vancouver, í minningu sonar
síns, William, $10.00; Mr. og Mrs.
Bogi Bjarnason, Vancouver,
$10.00; Mr. og Mrs. J. S. Halli-
day, Vancouver, $2.00; Mr. og
Mrs. J. Phillipson, Osland, B.C.,
$10.00; Mr. og Mrs. O. V. Jóns-
son, Osland, B.C., $20.00; Mr.
Gísli Jónsson, Osland, B.C.,
$10.00; Mrs. Elín Kristmannsson,
Osland, B.C.; $10.00; Mr. og Mrs.
K. Einarsson, Osland, B.C.; $5.00.
ÍSLENDINGADAGURINN
í Seattle, Washington
vertSur haldinn
3. ágúst, 1932 að Silver Lake
Prógramm byrjar kl. 2:00 e. h. — 1:00 o’clock Stamlard Tirnc
Forseti ........................G. P. JOHNSON
Söngstjöri ................... TANI BJÖRNSSON
ViS hljótSfœriÖ FRÚ H. M. EASTVOLD
SKEMTISKRÁ:
1. THE STAR SPANGLED BANNER
2. Ó, GUÐ VORS LANLS
3. ÁVARP FORSETA ..............G. P. Johnson
4. EINSÖNGUR ..................Tani Björnsson
5. ÁVARP FJALLKONUNNAR
Frú Lois Guttormsdóttir Keller
6. SÖNGUR Fósturlandsins Freyja
7. RÆÐA Á ÍSLENZKU OG ENSKU
Próf. Finnbogi Guðmundsson
8. EINSÖNGUR ...........Dr. Edward P. Pálmason
9. SÖNGUR ...........3 drengir af íslenzkum ættum
10. SÖNGUR: Yfir fornum frægðarströndum, Eldgamla
ísafold og God Bless America
íþróttir lieíjast klukkan 3.30 — Dans fró klukkan 6.30 til 9.30
FRAMKVÆMDARNEFNDIN:
Jón Magnússon, formaöur, J. J. Middal, Stefán Johnson, Steve ólason,
G. P. Johnson, K. Thorsteinsson, Bill Kristjánsson, Jónas Helgason,
Arthur Kristjánsson, Ted Samuelson
Ókeypis kaffi allan daginn
NEFNDIN