Lögberg - 04.09.1952, Side 1
Phone 74-6643
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil - Grease
Tune-Ups
Accessories
Repairs
24-Hour Service
Phone 74-6643
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil • Grease
T.une-Ups
Accessories
Repairs
24-Hour Service
65. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 4. SEPTEMBER, 1952
NÚMER 36
-------1
TiSkynning um íslenzkukennsíu við
háskólann
Til Sylvíu og Ólafs Kárdals
Gimli ykkur árnað færir,
ótal þakka störfin góð. —
Þegar vinir kveðja kærir,
kólna sýnist gömul slóð.
_ Sá, er eftir situr lærir:
söngvamálin eru hljóð.
Vaki ætíð vorsins andi:
von og traust í ykkar bæ.
Svífið hátt á sólskins gandi
sumri mót, er festir snæ.
Erfðafé frá ættarlandi
aldrei kastið þið á glæ.
Listahjón af foldu fanna
færið jönkum íslands skál:
Þið, sem túlkið hljóminn hranna,
hörpuslög og söngvamál.
Lifið heil í hugum manna,
heil í ykkar starfsins sál.
28/8, 1952 Þ. Þ. Þ.
Minnisvarði Stephans G. Stephanssonar
á æskustöðvum hans
Kennsla í íslenzku hefst við
Manitobaháskóla (í Fort Garry)
síðari hluta septembermánaðar
að lokinni aðalinnritun, er fer
fram 17.—20. sept. (17.—18. ný-
liðar, 19.—20. eldri nemendur).
Tvö námskeið verða í íslenzku,
eitt fyrir algjöra byrjendur
(IA, 101) og annað fyrir þá, sem
eitthvað kunna í íslenzku (1,110).
Kennari deildarinnar, Finn-
bogi Guðmundsson, verður við-
staddur innritunardagana kl.
10—12 og 1—4 í herbergi 307 í
stjórnarbyggingunni 1 (Admini-
stration Building). Er til þess
ætlazt, að þeir nemendur, sem
hyggja á íslenzkunám, snúi sér
til hans, áður en þeir láta innrita
sig. Getur hann þá ákveðið,
a. m. k. til bráðabirgða, í hvorn
flokkinn þeir fara, og gefið þeim
aðrar nauðsynlegar upplýsingar.
Kennslubók sú, sem notuð
verður, er Icelandic, Grammar
— Texts — Glossary, — eftir
Stefán Einarsson, 2. útgáfa 1949
(The Johns Hopkins Press, Balti-
more). — Fæst hún í bókabúð
háskólans.
Höfuðáherzla verður lögð á
málið fyrsta kastið, en nemend-
um jafnframt veittur almennur
fróðleikur um land og þjóð, bæði
að fornu og nýju.
Ráðgert er, að íslenzka verði
einnig kennd niðri í bænum, í
kvöldskóla þeim fyrir almenn-
ing, sem starfræktur er á vegum
háskólaus við Brc-dway (The
University of Manitoba Evening
Institute, Broadway Buildings).
Hefst sá skóli seint í október, og
verður íslenzkukennslan nánara
auglýst, þegar þar að kemur.
ALLSHERJAÞING sambands
n o r s k r a bræðralags-og þjóð-
ræknisfélaga vestan hafs (Sup-
reme Lodge, Sons of Norway)
var háð í Minneapolis þ. 21-23.
ágúst, og sat þingið fjöldi full-
trúa og gesta úr deildum sam-
bandsins víðsvegar í Bandaríkj-
unum, Canada og Alaska. Þessir
íslendingar tók þátt í störfum
þingsins eða samkomum þess:
Dr. Richard Beck prófessor og
frú, Fred Fredrickson, Everett,
Washington og Valdimar Björn-
son, fjármálaraáðherra Minne-
sotaríkis.
Dr. Beck, fyrrv. forseti félags-
deildarinnár í Grand Forks, var
einn af fulltrúum 4. umdæmis,
sem tekur yfir N. Dakota, Mon-
tana og Sléttufylkin í Canada;
hann var formaður einnar af að-
alnefndum þingsins (“Commit-
tee on Resolutions”) og flutti
minningarræðuna um látið fé-
lagsfólk.
Fred Fredrickson, fyrrv. for-
seti hinnar fjölmennu félags-
deildar í Everett, var einn af
fulltrúum hins víðlenda 2. um-
dæmis, er tók yfir Vesturströnd-
ina alla, en var á þinginu skipt
í tvö umdæmi; hann hefir tekið
mikinn þátt í íslenzkum og
norskum félagsmálum á sínum
slóðum.
Valdimar fjármálaráðherra
var einn af ræðumönnum í
hinni fjölsóttu og virðulegu
kvöldveizlu, sem haldin var í
sambandi við þingið; flutti hann
þar kveðjur ríkisstjórans í Min-
í sambandi við námskeið þau
við háskólann, er hér hefur verið
skýrt frá, fórust forseta háskól-
ans, Dr. A. H. S. Gillson, svo
orð:
„Þessi kennsla, í hinu lifandi
íslenzka máli, er höfuðverkefni
íslenzkudeildarinnar. Hún tákn-
ar upphaf að starfsemi innan
vébanda háskólans, sem vér
óskum, að með tíð og tíma megi
fá þann vöxt og viðgang, sem
vonir manna standa til.“
Miljón þýzkra
stríðsfanga
Nefnd sú af hálfu sameinuðu
þjóðanna, sem um stríðsfanga
fjallar, hélt í fyrri viku fund í
Geneva og komst að þeirri nið-
urstöðu, að miljón þýzkra stríðs-
fanga frá síðustu heimsstyrjöld
myndi vera í þrælakvíum í Rúss-
landi, en þrátt fyrir það þótt
Rússar eigi sæti í nefndinni,
hefir það fram að þessu reynst
öldungis ókleift, að fá þá til að
opna munninn varðandi lausn
þessa alvarlega vandamáls.
Innflutnings
ekki þörf
Eins og vitað var keypti Can-
adastjórn í fyrra um níu miljón-
ir punda smjörs frá Ástralíu og
New Zealand til að koma í veg
fyrir yfirvofandi smjörþurð; nú
líta stjórnarvöldin þannig á, að
með því að smjörframleiðslan
hér í landi hafi aukist til muna
í ár, muni innflutningi smjörs
ekki verða þörf að sinni.
nesota og ríkisins, og mæltist hið
bezta að vanda.
Þingið var að allra dómi hið
ánægjulegasta og tók ýmsar
ákvarðanir til eflingar félags-
skapnum.
ÚTVARP
frá Fyrstu lútersku kirkju
Á sunnudaginn 7. sept. verður
árdegis guðsþjónustunni útvarp-
að frá Fyrstu lútersku kirkju í
Winnipeg. Útvarpið hefst kl. 11
f. h. (Winnipeg tíma); sendi-
stöðin verður C. K. Y.
Næsta ár (nánar sagt: 3. okt.
1953) verða 100 ár liðin frá fæð-
ingu Stephans G. Stephanssonar
skálds. Verður þess afmælis hins
mikla skálds vafalaust minnst
með verðugum hætti meðal
landa hans hér í álfu, er eiga
honum ómetanlega menningar-
skuld að gjalda; enda var hug-
myndinni um hátíðahald í því
tilefni af hálfu vor Vestmanna
hreyft á nýlega afstöðnu þjóð-
ræknisþingi með samþykkt sér-
?takrar tillögu í þá átt.
Sveitungar Stephans skálds
heima á ættjörðinni hafa einnig
þegar fyrir nokkuru h a f i s t
handa um að minnast umrædds
aldarafmælis hans með því að
reisa honum á komandi ári virðu
legan minnisvarða á Arnarstapa
í Skagafirði, sem er örstutt frá
fæðingarstað skáldsins. Er það
Samband Ungmennafélaganna
í Skagafirði, sem gengst fyrir
því, að þessi minnisvarði verði
reistur skáldinu á æskustöðvum
þess, og á Sambandið skilið
þakkir velunnara skáldsins
beggja megin hafsins fyrir það
framtak sitt; skylt er og að geta
þess, að ýmsir aðdáendur Steph-
ans, bæði félagsheildir og eins-
taklingur, hafa stutt minnis-
varðamál þetta með fjárframlög
um, og mætti það verða öðrum
til fyrirdæmis í því efni.
Ríkarður Jónsson myndhöggv-
ari hefir gert líkan að minnis-
merkinu, sem er varði hlaðinn
úr brimsorfnu grjóti og stuðla-
bergi; én fyrirhugað er, að varð-
inn verði 4% metri á hæð, þrí-
Framhald á bls. 5
Raymond Beck, B.Sc.
Vinnur mikinn
námsframa
Þessi ungi og frækni náms-
maður, Raymond Beck, lagði af
stað til London þann 3. þ.m., þar
sem hann stundar tveggja ára
framhaldsnám í rafurmagns-
verkfræði; honum voru nýlega
veitt Athlonenáms-verðlaunin,
sem nema um þrjú þúsund
dollurum. Mr. Beck lauk fulln-
aðarprófi við Manitobaháskól-
ann 1947 og gekk þá í þjónustu
Canadian National Railways í
Toronto; hann er sonur hinna
kunnu hjóna Mr. og Mrs'. J. Th.
Beck, sem búsett eru í þessari
borg.
Sameiginleg filraun
til úrlausnar
Staðhæft er um þessar mund-
ir, að brezk og amerísk stjórnar-
völd hafi í sameiningu ákveðið
að freista lausnar á olíudeilunni
í íran; vitjuðu þeir Lloyd Hen-
derson sendiherra Bandaríkj-
anna og George Middleton sendi-
fulltrúi Breta í Iran á fund
Mossadeghs forsætisráðherra og
áttu við hann langt viðtal; mun
viðtalið einkum hafa lotið að því,
að veita íransstjórn einhverja
bráðabirgðahjálp vegna hinnar
ískyggilegu fjárhagskreppu, sem
nú sverfur að þjóðinni.
Veitist að
Truman forseta
John Foster Dulles, víðkunn-
ur amerískur sérfræðingur á
vettvangi utanríkismálanna og
um nokkurt skeið ráðunautur
Truman-stjórnarinnar í þeim
efnum, hefir nýlega í ræðu út-
húðað forseta fyrir tvískinnungs-
hátt varðandi aískipti hans af
alþjóðamálum; nú er svo komið,
að Mr. Dulles, sem um langt
skeið hefir staðið í fylkingar-
brjósti Republicana, og vafa-
laust verður utanríkisráðherra
ef flokkur þeirra sigrar í nóvem-
berkosningunum, leggur Eisen-
hower svo að segja allar lífs-
reglur meðan á kosningahríð-
inni stendur og vill að utanríkis-
málin verði gerð að megin
stefnuskráratriði; ýmissum for-
kólfum flokksins þykir of langt
gengið í þessa átt og telja að
viturlegra sé að meiri áherzla
verði lögð á meðferð innríkis-
málanna, eða ráðsmenskuna á
þjóðarbúinu heima fyrir.
Eisenhower telur það verða
munu eitt af aðalhlutverkum
væntanlegrar Republicana-
stjórnar, að vinna að endur-
heimt frelsis þeim þjóðum til
handa, er Rússar hafi með of-
beldi og lævísi troðið um tær.
Veglegf samsæti
Þeim Ólafi N. Kardal og frú
Sylvíu var haldið veglegt sam-
sæti í samkomuhúsi Gimli bæj-
ar á fimmtudagskvöldið 28. á-
gúst.
Eru þau hjón nú sem kunn-
ugt er, á förum frá Gimli; er
Ólafur ráðinn söngvari á vegum
miðskólanna í Norður Dakota
og Minnesota, (Lyceum Pro-
gram Division of Supervised
Study), en kona hans ann-
ast undirspilið. Þjóðræknisdeild
in á Gimli stóð fyrir samsæti
þessu, sem var bæði fjölmennt
og bar vitni um vinsældir þess-
ara hjóna. Jón J. Johnson, for-
seti deildarinnar hafði sam-
kvæmisstjórn á hendi, og fórst
hið bezta. Auk hans fluttu er- \
indi þau ungfrú Anna Johnson,
kornung stúlka sem mælti á ís-
lenzku og þakkaði Mrs. Kardal
fyrir starf hennar við íslenzku
kennslu deildarinnar, og afhenti
um leið peningagjöf frá sam-
komugestum; Barney Egilson,
borgarstjóri, þakkaði heiðurs-
gestunum fyrir starf þeirra í
þágu bæjarfólks og annara sem
hefði notið ánægju af listrænum
hæfileikum þeirra; Mrs. Aug-
usta Tallman þakkaði þeim fjöl-
margar og ánægjulegar heim-
sóknir til vistfólksins á Betel;
Mrs. Ellen Magnússon þakkaði
Mrs. Kardal sérstaklega fyrir
starf hennar sem kennari við
bæjarskólann og að almennri
söngmennt sveitarinnar. Einnig
talaði séra Valdimar J. Eylands
forseti Þjóðræknisfé1ag<'ins, og
vottaði söngvaranum þakkir fyr
ir kynningarstarf hans á ís-
lenzkri sönglist, og óskaði þeim
hjónum heilla fyrir félagsins
hönd. Einnig var lesið mjög vin-
gjarnlegt bréf frá sóknarprest-
inum, séra H. S. Sigmar, sem
sakir embættisanna gat ekki
verið viðstaddur.
Á milli ávarpanna var sungið
bæði á ensku og íslenzku, og
Sylvia Hólm lék á píanó. Að
loknum ávörpum afhenti sam-
Framhald á bls. 8
Óttast um gin- og
klaufnaveiki
Landbúnaðarráðherra brezku
stjórnarinnar, Sir Thomas Dug-
dale, lýsti yfir því í þingræðu í
fyrri viku, að hömlur gegn flutn-
ingi búpenihgs á suðaustur
Englandi úr einum stað í annan,
^rði eigi afnumdar fyrst um
sinn, því enn væri síður en svo,
að lánast hefði að uppræta veik-
ina í áminstum landshlutum.
Sæmdur
heiðursmerki
William M. Benidickson, M.P.
Sendifulltrúi Canada, William
M. Benidickson, við embættis-
töku herra Ásgeirs Ásgeirssonar
forseta Islands, hefir verið
sæmdur riddarakrossi hinnar ís-
lenzku Fálkaorðu.
Kveðja til íslenzkra sjómanna
Eftir prófessor RICHARD BECK
Ég rétti’ ykkur hönd yfir hafið!
í hillingum rís mér úr sjá
vor dýrðlega fjallanna drottning
með daginn um sviphýra brá.
Hún horfir með tign yfir hrannir
og hyllir það sonanna lið,
er gnægtirnar sækir og gullið,
og gæfuna á fjarlæg mið.
Hún dáir þá hreysti, er hræðist
ei hafdjúpsins trylltasta mátt,
en horfist í augu við hættur
í hamförum myrkustu nátt.
Hún fagnar er fengsælar hetjur
með farminn sinn koma í höfn,
en grætur öll hraustmenni horfin,
sem hvíla í fangi þér, dröfn.
☆ ☆ ☆
Ég hugvængjum flýg yfir hafið
í hóp ykkar, farmenn, í dag;
því særinn mér svellur í blóði
og seiðandi úthafsins lag.
SJ ÓMANNAD AGSBLAÐIÐ 1952
Tóku þátt í allsherjarþingi
norskra þjóðræknisfélaga