Lögberg - 20.11.1952, Qupperneq 1
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil - Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil - Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
65. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 20. NÓVEMBER, 1952
NÚMER 4\7
--------1
Mr. og Mrs. Jón Ólafsson, Leslie, Sask.
Sexfríu ára brúðkaupsminning
Fréttir fró ríkisútvarpi íslands
9. NÓVEMBER
Effrirminnilegfr
heimboð
Á mánudagskvöldið hinn 10.
þ. m., var í meira lagi gestkvæmt
á hinu vingjarnlega heimili
þeirra W. J. Líndals dómara og
frú Guðnýjar Lindal, 788
Wolseley Avenue hér í borginni,
því freklega hundrað manns
þágu heimboð þeirra hjóna;
hafði Lindal dómari lagt á sig
ærið erfiði við undirbúning
boðsins, því hann hafði hóað
saman yfir sjötíu háskólastú-
dentum, auk allmargra annara
gesta; um leið og dómarinn bauð
hinn mikla mannsöfnuð velkom-
inn, skýrði hann frá því með
skilmerkilegum orðum hvað
fyrir sér hefði vakað með því
að kveðja þennan álitlega hóp há
skólanemenda til funda og gefa
þeim kost á að kynnast; fyrir
mörgum árum hefði verið við
líði íslenzkt Stúdentafélag í
þessari borg, er miklu góðu
hefði til vegar komið og verið í
rauninni sjálfstætt þjóðræknis-
félag út af fyrir sig; umræður
hefðu farið fram. á íslenzku og
fundargerningar verið skráðir á
íslenzku; frá þeim tíma hefði af
skiljanlegum ástæðum margt
breytzt og meðal annars í þejm
efnum, að nú væri íslenzk tunga
eigi eins töm háskólanemendum
af íslenzkum stofni og áður
gekst við; á hinn bóginn væri
sýnt, að mentafólk okkar bæri
eigi að síður djúpa virðingu
fyrir íslenzkri menningu og vildi
margt á sig leggja íslenzkri þjóð-
rækni til fuiitingis á þann hátt
er því skildist að haldbezt yrði
til frambúðar; og ef svo færi, að
mannfundur sem þessi leiddi til
stofnunar nýs Studentafélags,
væri betur farið en heima setið,
því vaknandi samtaka væri brýn
þörf; svo margir úr nemenda-
hópnum tóku tii máls, að eigi
tjáir tölum að telja, létu þeir
allir í ljós ánægju sína yfir heim-
boðinu og sýndust albúnir til á-
taks; nokkrir úr hópi annara
gesta létu einnig til sín heyra,
þökkuðu húsráðendum ánægju-
lega kvöldstund og lögðu blessun
sína yfir þessa nýju samtakatil-
raun æskunnar.
Ríkulegar veitingar voru fram-
reiddar og stóðu að þeim í sam-
ráði við húsráðendur Icelandic
Canadian Club og útgáfunefnd
tímaritsins Icelandic Canadian.
Þessi ungi piltur, 22 ára að
aldri, er með ágætustu íþrótta-
mönnum landsins. Hann hefir
leikið þetta ár með Blue
Bombers fótboltaliðinu og er það
fyrsta ár hans í professional
fótboltaleik. Á laugardaginn 8.
nóvember var hann kjörinn
Rookie ársins í fótboltaleik
vesturfylkjanna, en það þýðir
að hann er talinn beztur af
byrjendum í professional Rugby
leik; þann sama dag gáfu félag-
ar hans honum vandað gullúr.
Lorne byrjaði ungur að taka
þátt í íþróttum; þegar hann
stundaði nám við Daniel Mac-
Intyre miðskólann var hann
jafnan valinn í All-Star Rugby-
liðið, en í því voru beztu leikar-
ar miðskólanna. Hann lék með
Western Wildcats junior rugby
og hlaut árin 1950 og 1951
Israel Tessler Memorial Trophy
sem bezti leikari í því liði, en
það er sjaldgæft að nokkur leik-
ari fái þau verðlaun^ tvö ár í
Þann 19. október síðastliðinn
áttu þau Jón Ólafsson, fyrrum
kaupmaður í Leslie, og frú Sig-
ríður Jónsdóttir Ólafsson kona
hans sextíu ára giftingarafmæli.
Börn þeirra nær og fjær mint-
ust dagsins með blómagjöfum
og heillaóskum. Auk þess tóku
sig saman nokkrir vinir þeirra
og sendu þeim heillaóskir og
blóm og færðu þeim dálitla
gjöf í viðurkenningarskyni fyrir
langa og vinsamlega samfylgd
þeirra við íbúana í Leslie,
Saskatchewan.
Jón og Sigríður komu ásamt
fjölskyldu sinni til Leslie 1911
og hafa dvalið hér æ síðan. Þau
eru gestrisin og hjálpfús og
hafa komið börnum sínum vel
til manns. Fyr á árum, á meðan
íslenzk lúterska kirkjan var við
líði, voru þau safnaðarmeðlimir
og enn koma þau til messu þeg-
ar um slíkt er að ræða og þau
geta heilsunnar vegna komist
það. Sömuleiðis er frú Sigríður
ein af stofnendum íslenzka
kvenfélagsins, sem stofnað var
13. desember 1917 og hefir verið
starfandi meðlimur þess ávalt
síðan og um eitt skeið forseti
þess.
Jón og Sigríður eru nú nokkuð
við aldur og hafa þar að auki
átt við vanheilsu að stríða í
seinni tíð. Af þeim ástæðum
þótti mönnum ekki út í það
leggjandi að halda þeim víðtæk-
ari hátíð, þó á heiðurdegi þeirra
væri.
Eins og nærri má geta hafa
ýmsar mótbárur skollið á ævi-
braut þessara hjóna, heilsu-
?
Lorne Benson
röð. — Lorne hefir einnig leikið
Hockey og verið þar liðtækur.
Lorne er fæddur í Riverton,
sonur C. Richards Benson og
konu hans Albertínu dóttur
Baldvins heitins Halldórssonar
og ekkju hans Maríu ólafsdótt-
ur. — Marvin Benson, bróðir
Lornes er einnig ágætur íþrótta-
maður.
Er ánægjulegt til þess að vita
að enn er íslendinga að góðu
getið á íþróttasviðinu.
brestur um lengri eða skemmri
tíma á einum og öðrum með-
limum fjölskyldunnar, jafnvel
dauðinn sjálfur hefir gripið
inn í heimilislífið. En það er
óhætt að fullyrða að þau hafa
borið það með þreki og still-
ingu.
Margir vinir þeirra Jóns og
Sigríðar leita enn að yl og á-
nægju við arinn þeirra í samtali
um eitt og annað, og oft er kaffi-
bollinn með góðum skilum á
borðinu fyrir framan gestina.
Eldavélin er fögur og gljáandi,
eins og bezt fágað gler. Síðast-
liðinn vetur var kaffibrauð frú
Sigríðar með ágætum, svo sem
ung kona hefði bezt gert.
Börn þeirra hjóna eru nú
flest dreifð í ýmsar áttir, eins
og gengur, að sinna sínum .lífs-
störfum, samt er elzta barn
þeirra, Ólafur Ágúst, í Leslie.
Hann er kvæntur enkumælandi
konu, Gladys O’Brien að nafni.
Þau eiga eina dóttur barna; hún
er útskrifuð af verzlunarskóla
í Saskatoon, mjög geðþekk
stúlka. Thorsteinn, kvæntur
Vilhelmínu Thorvaldson, fyrrum
kaupmaður í Leslie, og Gróu
Gillies Thorvaldson konu hans.
Vilhelmína var skólakennari í
Leslie-héraði áður en hún giftist
Thorsteini. Þau eiga tvær dætur
versity). Önnur þeirra fór yfir
til Evrópu eftir stríðið í fylgd
með öðru mentafólki, sem var
sent þangað til að athuga af-
leiðingar stríðsins og greina frá
því, sem mest greip hugi þeirra
og tilfinningar, ef ske kynni að
eitthvað mætti við gera.
Lilja, gift frönskum manni, La-
Belle að nafni; þau eiga börn og
eru búsett' fyrir sunnan línu.
Alberta, gift Halldór Johnson,
fyrrum við Leslie, búsett í
Blaine.
Guðbjörg, kennari, gift frönsk
um manni; þau eiga fjögur börn,
búsett í Saskatchewan.
Rose, ógift, er hjúkrunarkona
við ágætan orðstír í Rosetown,
Saskatchewan.
Sá sólgeisli gæfunnar hefir
ávalt skinið á þau Jón og Sig-
ríði, að ást og eindrægni hefir
ríkt í fjölskyldunni. Hvort hjón-
anna um sig mun þar hafa hald-
ið vel á sínu og börn þeirra
reynst þeim umhyggjusöm og
alúðarrík. Þess utan hafa þau
eignast marga vini, svo sem
raun bar vitni um nú.
Orð fyrir heimsókninni hafði
frú Ena Abrahamsson, um langt
skeið kennari í þessu héraði, vel
þekt kona.
Jón og Sigríður Ólafsson
endurtaka hér með innilegt
þakklæti sitt til allra, sem
lögðu huga eða hönd að því að
gleðja þau á þessum mikla
heiðursdegi þeirra.
Með öllum góðum óskum til
Jóns, Sigríðar og fjölskyldu
þeirra.
Rannveig K. G. Sigbjörnsson
Risovaxsð
yerzlunarfyrirtæki
í uppsiglingu
Dagblöð Winnipegborgar hafa
nýverið flutt þá fregn, að í ráði
sé að koma á fót í Old Kildonan,
sem er eitt af útjaðrahverfum
borgarinnar risavöxnu verzlun-
arfyrirtæki, er kosta muni alt
að átján miljónum dala; að fyrir-
tækinu standa canadiskir og
amerískir fésýslumenn, en for-
stjóri þess verður D. B. Landers,
sem nú er búsettur í Edmonton.
Þetta nýja verzlunarfélag hef-
ir að sögn tekið á leigu hundrað
og fimtíu ekrur lands í Old
Kildonan og er ráðgert, að fyrir-
tækið geti tekið til starfa 1955,
en verk við húsagerð mun hefj-
ast á næsta ári; áætlað er að
fyrirtækið veiti atvinnu um
þrem þúsundum manna og
kvenna.
Blöðin kalla þetta fyrirhug-
aða risafyrirtæki „Shopperville“.
Þar eru ráðgerðar 35 smásölu-
búðir og tvær miklar deilda-
búðir, þrjú geisistór fjölbýlis-
hús og 75 herbergja hótel; fyrir-
tækið rekur sitt eigið pósthús og
starfrækir einnig sjúkrahús; þar
verður einnig leikhús og sam-
komuhús með 15 hundruð sæt-
um; líklegt þykir að lögð verði
neðanjarðarjárnbraut að þessari
nýju verzlunarborg, og nýir bíl-
Vegir einnig lagðir þangað.
Fyrirtæki þetta er skýlaus
traustsyfirlýsing á framtíðar-
möguleikum Winnipegborgar
hinnar meiri.
Kona hvarf suður í
Innri-Njarðvík
í gaer
Árdegis í dag hóf hópur
manna úr Keflavík og Njarð
víkum leit að konu, sem
hvarf suður í Innri-Njarð-
víkum í gær. Skömmu fyir
myrkur fundust skóför, sem
gizkað er á að séu eftir hina
týndu konu.
Fréttaritari Mbl. í Keflavík
símaði í gærkveldi að konan,
sem er að norðan og heitir Guð-
ríður Jónsdóttir, hafi verið búin
að dvelja hjá syni sínum í Innri-
Njarðvík í vikutíma.
Hvarf árdegis
Hún mun hafa ætlað að leita
læknis í Reykjavík. Þaðan sem
sonur hennar heldur til, hvarf
hún árdegis í gærmorgun. Þeg-
ar spurnum hafði verið haldið
uppi þar í þorpinu árangurs-
laust, var ákveðið að hefja
skiplega leit.
Spor við Hafnaheiði
Starfsfólk hraðfrystihússins
tók þátt í leitinni. Skömmu fyr-
ir myrkur í gærkvöldi fundust
spor eftir kvenskó, sem talið er
sennilegt að séu Guðríðar. —
Tókst að rekja sporin í moldar-
flögum úti í Hafnaheiði, í stefnu
á Reykjanestá. Þá var orðið svo
dimmt að ekki tókst að rekja
þau lengra.
Mbl. 14. okt.
Vifrjar á fund
Trumans
Dwight D. Eisenhower, næsti
forseti Bandaríkjanna, vitjaði á
fund Trumans forseta á þriðju-
daginn var, þar sem þeir ræddu
um stjórnarskiptin, sem fram
fara þann 20. janúar næstkom-
andi og fjárlögin eins og þeim
nú er á veg komið fyrir næsta
fjárhagsár; þá munu og utan-
ríkismálin og Kóreustríðið hafa
komið til umræðu.
Heildarfiskafli landsmanna
fyrstu 9 mánuði þessa árs varð
um 275.000 lestir, en á sama
tímabili í fyrra varð hann um
330.000 lestir, og munar þar
mestu hversu miklu meira
veiddist af síld í fyrra en í ár.
Hagnýting aflans var í höfuð-
atriðum sem hér segir: 14.000
lestir voru ísaðar, 106.000 fryst-
ar, 93.000 saltaðar og 14.000
hertar. Helzta breytingin á hag-
nýtingu aflans frá í fyrra er sú,
að nú hafa verið saltaðar um
94.000 lestir í stað 58.000 lesta í
fyrra.
☆
Togarinn Gylfi er nýlega kom-
inn heim til Patreksfjarðar frá
Englandi, en þar var hann í við-
gerð vegna skemmda, sem urðu
á skipinu af eldi í maímánuði í
vor.
☆
Miðstjórn Alþýðusambands Is-
lands hefir kvatt tuttugasta og
þ r i ð j a Alþýðusambandsþing
saman til fundar sunnudaginn
23. þ. m. í Reykjavík.
☆
Engir íslenzkir togarar hafa
selt í Englandi að undanförnu,
en togaraeigendur í Hull og
Grimsby ákváðu í sumar að leyfa
ekki íslenzkum togurum notk-
un löndunartækja sinna. Nú
hefir verið stofnað hlutafélag í
Grimsby, sem ætlað er að taka
á móti fiski til löndunar og hefir
þegar aflað sér tækja til þess.
Islenzkir togaraeigendur eiga
hlut í félaginu. Aðalfram-
kvæmdastjóri þess er Þórarinn
Olgeirsson.
☆
Aðalfundi Landssambands ís-
lenzkra útvegsmanna lauk í
Reykjavík í gærkveldi, og var
Sverrir Júlíusson endurkjörinn
formaður sambandsins í níunda
sinn. í ræðu sinni, er fundurinn
var settur, lýsti formaður í
stuttu máli aðstöðu útvegsins
um þessar mundir, hverning
margs konar óhöpp, langvarandi
aflabrestur og aflaleysi, verðfall
á afurðum og aukin verðþennsla
innanlands, hefðu gert hlut út-
vegsmanna í þjóðarbúskapnum
rýrari en réttlátt væri. Hann
lýsti fögnuði sínum yfir rýmk-
un landhelginnar, og taldi það
stórmerkan atburð. Pétur Thor-
steinsson deildarstjóri í utan-
ríkisráðuneytinu flutti á fund-
inum erindi um utanríkisvið-
skipti og skýrði frá því m. a. að
freðfisksala til Bandaríkjanna
hefði gengið vel á þessu ári, svo
og sala á blautum saltfiski til
ýmissa landa, einkum til ítalíu
og Grikklands, en hins vegar
hefði orðið vart mikilla erfið-
leika á sölu á þurrkuðum salt-
fiski og sölu á freðfiski á Evrópu
markaði. Að vísu væri nú búið
að tryggja sölu á allri freðfisk-
framleiðslu þessa árs, en ekki
víst að brottflutningi vörunnar
til markaðslandanna verði lokið
fyrr en á næsta ársfjórðungi.
☆
Fimmtánda þingi Bandalags
ríkis og bæja lauk í vikunni,
sem leið, og var Ólafur Björns-
son prófessor endurkjörinn for-
maður bandalagsins. Á þinginu
voru m. a. rædd dýrtíðar- og
launamál og skorað á alþingi og
ríkisstjórn að gera tafarlaust
ráðstafanir til stöðvunar vax-
andi verðbólgu og miða að því
að minnka dýrtíð og auka kaup-
mátt launa. Ennfremur var þess
farið á leit að greidd verði að
minnsta kosti 30% uppbót á
laun bæjar- og ríkisstarfsmanna
og eftirleiðis fullar dýrtíðar-
uppbætur á öll laun, persónu-
frádráttur við skattaálagningu
hækki verulega og verði ákveð-
inn eftir útreikningi Hagstofu
íslands með hliðsjón af þurftar-
launum, og skorað var á ríkis-
stjórnina að leggja fram á Al-
þingi því, er nú situr, frumvarp
til laga um réttindi og skyldur
opinberra starfsmanna, sem í
undirbúningi hefir verið að
undanförnu.
☆
í fyrri viku var háð æskulýðs-
þing í Haag í Hollandi og stóð
Evrópuráðið að því. Þrír íslend-
ingar sóttu þingið.
☆
Norræna félagið á íslandi átti
30 ára afmæli 29. september í
haust og minntist þess með sam-
sæti í Þjóðleikhússkjallaranum
í gærkveldi. Meðal gesta þar
voru forseti íslands og forsætis-
ráðherra, og sænski söngvarinn
Jussi Björling söng. — For-
göngu að stofnun Norræna fé-
lagsins hér á landi höfðu þeir
Sveinn Björnsson, þáverandi
sendiherra,- síðar forseti íslands,
og Matthías Þórðarson þjóð-
minjavörður. Fyrsti formaður
félagsins var Matthías Þórðar-
son, en ritari hefir lengt af ver-
ið Guðlaugur Rósinkranz Þjóð-
leikhússtjóri, núverandi for-
maður félagsins. Norræna félag-
ið á íslandi hefir beitt sér fyrir
námskeiðum og boðið heim
fyrirlesurum og listamönnum
frá hinum Norðurlöndunum,
eins og háttur er norrænu félag-
anna allra, en markmið þeirra
er að efla sem mest kynningu
Norðurlandaþjóðanna og vin-
áttu. Félagsmenn eru nú um
1200 og fá þeir ársritið Norræn
jól ókeypis. í tilefni af 30 ára
afmælinu bauð Norræna félagið
sænska söngvaranum nafn-
kunna Jussi Björling hingað til
lands, og var ákveðið að hann
syngi tvisvar sinnum í Þjóðleik-
húsinu. Fyrri söngskemmtunin
var á fimmtudagskvöldið og var
þá hvert sæti skipað í Þjóðleik-
húsinu og listamanninum ákaf-
lega fagnað. Síðari hljómleik-
arnir eru á mánudagskvöldið og
hefir listamaðurinn ákveðið að
allur ágóði af þeirri söng-
skemmtun skuli renna í barna-
spítalasjóð Hringsins. Auk þess
söng Jussi Björling á afmælis-
hátíð Norræna félagsins í gær-
kveldi og í kvöld syngur hann á
kvöldvöku Stúdentafélags
Reykjavíkur.
☆
Sinfóníuhljómsveitin hélt tón-
leika í Þjóðleikhúsinu á þriðju-
dagskvöldið undir stjórn Ró-
berts A. Ottósonar. Einleikari
var Erling Blöndal Bengtson, er
kom gagngert frá Kaupmanna-
höfn til þess að leika með Sin-
fóníuhljómsveitinni á tónleik-
um þessum. Hann fór síðar til
Akureyrar og hélt þar tón-
leika á vegum Tónlistarfélags
Framhald á bls. 5
Tveir nýir ráðherrar
Stjórnarformaðurinn í Saskat-
chewan, T. C. Douglas, hefir
bætt tveimur ráðherrum við
ráðuneyti sitt, en það eru þeir
J. W. Burton, sem tekst á hend-
ur fylkisritaraembættið, og G.
Kuziak, sem verður símamála-
ráðherra; alls er nú ráðuneytið
skipað fjórtán stjórnmálagörp-
um, og má nærri geta að eitt-
hvað verði undan að láta þar
sem svo hagar til.
Frækinn íþrófrframaður