Lögberg - 20.11.1952, Blaðsíða 8

Lögberg - 20.11.1952, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 20. NÓVEMBER, 1952 Úr borg og bygð Having passed the 10-year mark, all Viking members and friends are invited to come and celebrate with us at our 10TH ANNIVERSARY DINNER Empire Hoiel, Main Dining Room Friday, November 28, ai 6.30 p.m. This is a day that we have been looking forward to for a long time and we ask you to help us make it a memorable mile-post in the history of our club. We are happy to announce that we have secured as the guest-speaker our old friend and honorary member, — DR. RICHARD BECK, Pro- fessor of Scandinavian lang- uages and literature at the University of North Dakota, Grand Forks. His address will be: "Our Scandinavian Culiural Heriiage." A brief review of the history of The Viking Club will be given by H. A. Brodahl, Secre- tary of the Club, through all of these ten years. Entertainment will be given by Art Gallie and his Barber- shop Quartette. The dance will commence at 9.00 to the tunes of Mannig’s Orchestra. The committee in charge con- sists of A. J. Bjornson, H. A. Brodahl, H. Jacob Hansen, Mrs. Martha Norlen, Helge Pearson and S. R. Rodvick. Tickets are: $2.00 for dinner and dance and 75 cents for the dance alone and must be sé- cured early from members of the executive (see above). Telephone reservation may be made, not Iater than Thursday, November 27th from: — Mrs. M. Norlen, 288 Beverley St. Phone 3-3962, H. Jacob Hansen, 725 Grain Exchange Bldg. Phone 92-2940 and after 4 p.m. 225 Empire Hotel Phone 92-5307. ☆ The Women’s Association of the First Lutheran Church will meet next Tuesday, Nov. 25th, at 2.30 in the church parlors. ☆ GEFIÐ TIL Sunrice Lulheran Camp Mr. P. R. Johnson, Manager Windsor Theatre, St. Vital, $50.00 í minningu um foreldra sína Mr. og Mrs. Guðmundur Jónsson frá Reykjum í Geysis- bygð. Með innilegu þakklæti Anna Magnússon Box 296, Selkirk, Man. Mr. John Thorsteinsson frá Steep Rock, Man., var staddur í borginni um miðja fyrri viku. ☆ Miss Sæunn Bjarnason frá Gimli hefir dvalið í borginni undanfarinn vikutíma. ☆ Carl Hanson leggur af stað á föstudaginn suður til Santa Monica, California, þar sem hann ráðgerir að dvelja í vetur. ☆ Dánarfregnir Magnús Jóhannesson, er fyrr- um bjó að Vogar, Manitoba, lézt á miðvikudaginn 12. nóvember í Vancouver, B.C.; hann var 76 ára að aldri. Auk ekkju sinnar lætur hann eftir sig einn son, Joe; fjórar dætur, Mrs. J. Ind- riðason, Mrs. O. L. Scramstad, Mrs. Melvin Heidrick og Mrs. Gunnar Holmes; ennfremur tíu barnabörn. Hann var jarðaður í Vancouver. Halldór Guðjónsson dó á elli- heimilinu Betel á Gimli á sunnu- daginn 9. nóvember, 88 ára að aldri. Hann fluttist frá Islandi tií Canada árið 1902 og settist þá að í grend við Wynyard, Sask., og bjó þar í 45 ár, en á • Betel dvaldi hann í fimm ár. Hann lætur eftir sig einn son, Sam; tvær dætur, Mrs. Emily Eyjólf- sðn og Miss Guðrúnu Guðjóns- son; fimm barnabörn og fimm barnabarna-börn; ennfremur eina systur, Mrs. J. O. Björnson. Útförin fór fram frá Betel og jarðað var í Lúterska grafreitn- um á Gimli. Jónína Sigríður Vigfússon, ekkja eftir Víglund Vigfússon frá Úthlíð í Biskupstungum, lézt á Betel, Gimli, á föstudag- inn 14. nóvember, 87 ára að aldri. Áður en hún fluttist að Gimli átti hún heima á 528 Maryland Street, Minnipeg, og hafði hún dvalið í borginni í 26 ár áður en hún fór til Betel fyrir 6 árum. Hún lætur eftir sig þrjár dætur, Mrs. M. F. Knott, Mrs. J. Volberg og Mrs. J. Anderson. Útförin fór fram frá Bardals út- fararstofunni á mánudaginn. — Séra Valdimar J. Eylands jarð- söng með aðstoð séra Guttorms Guttormsson frá Minneota, Minnesota; jarðað var í Brook- side grafreit. Mrs. Thora Ásmundson frá Eston, Sask., dó á laugardaginn, 8. nóvember, á Misericordia spítalanum hér í borg; hún var 63 ára að aldri. Hún lætur eftir sig eina dóttur, Mrs. G. Blood; tvo sonu, Harvey og Gerald; þrjár systur, Mrs. John Sigurd- son, Mrs. M. Sigurdson og Mrs. G. W. Daugherty. Jarðarförin fór fram í Eston. THE VIKING CLUB TENTH ANNIVERSARY DINNER EMPIRE HOTEL FRIDAY, NOVEMBER 28th, 6.30 p.m. Tickets for Dinner $2.00 Admission to Dance 75c Tickets may be obtained at The Electrician's, 685 Sargent Ave. Guest Speaker: DR. RICHARD BECK Heimsækið Evrópu í vor! Takist nú á hendur ferðina, er dregist hefir á langinn. Finnið umboðsmann ferðaskrif- stofunnar þegar í stað, og hann mun skýra yður frá lækkuðum fargjöldum og veita yður ókeypis leiðbeiningar . . . um það, hvernig bezt megi verja „SPARNAÐAR- ARSTÍÐUM“. Vegna frekari upplýsinga skrifið Icelandic Consulate General 50 Broad Street New York 4, N. Y. European Jravel £ommission Evrópisku ferðaskrifstofunnar Sameinuð Evrópa vegna aukinna vináttusamninga og og þróunar vegna ferðalaga SAMKOMURÆÐA FRÓN heldur ársfund sinn á mánudagskveldið, 8. desember, nánar auglýst síðar. ☆ GIFTINGAR framkvæmdar af séra Sigurði Ólafssyni í Selkirk: 1. nóv. í sóknarkirkjunni: Verner Alvin Meger, Selkirk, Man., og Lena Lazaruk, Lock- port, Man. Veizla í Memorial Hall, að giftingu afstaðinni. 7. nóv. á prestssetrinu: Jane Thurston Law, Selkirk, Man., og Edna Margaret Good- man, sama stað. 10. nóv. í sóknarkirkjunni: Aubrey Charles Peel, R.R. No. 1, Selkirk, og Emily Krist- rún Stefánson, Selkirk. Vitni að giftingunni voru: Mrs. Louise Jones og Mr. Robert William Peel. — Veizla var setin í samkomuhúsi safnað- arins að giftingu afstaðinni. GAMAN 0G ALVARA Faðirinn: — Þú kynnist sannri hamingju þegar þú giftist. Sonurinn: — Er það satt, pabbi? Faðirinn: —,Já, en þá er það orðið of seint. ☆ Hershöfðingi og ofursti gengu saman eftir götunni. Þeir gengu fram hjá mörgum hermönnum og í hvert skipti, sem ofurstinn heilsaði hermannakveðju hinna óbreyttu hermanna, sagði hann í lágum hljóðuni: — Sömuleiðis. Hershöfðinginn undraðist og spurði hvers vegna hann gerði þetta. Þá svaraði ofurstinn: — Ég hef sjálfur verið óbreyttur hermaður og veit hvað þeir hugsa!!! Jóna: Ég giftist honum af því að mér fannst hann vera eins og grískur guð. Gunna: — Nú, reyndist hann. ekki vera það? Jóna: — Jú, að vísu, en mér finnst hann líkjast helzt Bakk- usi! ☆ Fulltrúinn: — Hvers vegna hlóstu ekki að fyndni forstjór- ans? — Það var búið að segja mér upp frá 1. ágúst. Er þer sendið Peninga yfir hafið Sendið þá • GREIÐLEGA • AUÐVELDLEGA • TRYGGILEGA Með CANADIAN PACIFIC EXPRESS Erlendar greiðslur Sérhver C a n a d i a n Pacificskrifstofa send- ir fyrir yður peninga yfir hafið . . . fljótt.. . . . . ábyggilega. Minnist þessa er þér næst sendið peninga frændum, vinum eða viðskiptavinum. GoMtuíLoAi (Pacific Framhald af bls. 7 þar farsæll netaafli nema rétt á meðan loðna er í göngu. Ég minntist áðan á ræskna- vertíðina gömlu. Hún lagðist niður, sem slík, árið 1903 (að minsta kosti á Suðurnesi) var þá stjóralegum hætt og færin hengd upp í hjall, en ræksnun- um beitt á lóð, var það ólíkt skemtilegra og afli drjúgum meiri. Með sexmannaförunum hófst nýtt tímabil í útgerðarsögu Mið- nesinga; afli varð meiri en áður og vaxandi áhugi með batnandi hag. Sjósókn var mjög mikil á þessum árum, um og eftir alda- mótin. — Voru um þetta leyti margir af sjómönnum á Miðnesi innan flóa menn, allt frá Reykja- vík til Keflavíkur — (því ringul- reið nokkur var þá á útgerð við Faxaflóa vegna netasamþyktar- innar, sem nokkrir elztu menn muna enn, og svo byrjuðu ensk- ir togarar að skafa beztu fiski- miðin þar um 1890 og ætíð síðan) — margir þessara manna voru þaulvanir siglingum á opnum skipum með Engeyjar- lagi, sem frægt er fyrir góða siglingahæfileika, en einmitt þau skip voru Miðnesingar nú að taka upp, sem vertíðarskip, kenndu þeir ungu formönnun- um margt í lagi og útbúnaði segla og fleira er að siglingum laut. Enda hófst nú mesta sigl- ingatímabil opinna skipa á Mið- nesi. Barningar lögðust niður, iiema ósiglandi væri fyrir öldu- sjó, en sífellt var slagað, af hvaða átt, sem vindur blés, ef ekki var einstefnu leiði heim. Við höfum nú dvalið dálítið á sjónum og er því bezt að sigla til sama lands. — Við erum fram í Stafnesdjúpi, Vörðufellið og Keili um Klofninga. Það er landnyrðingsstormur, við höf- um náð allri lóðinni og fengið hálffermi í skipið, það er góð kjölfesta, en þó fært í flestan sjó. Við setjum upp, greiðum úr ; seglum og siglum með öllu. Skipið tekur á rás og öslar á- fram. En við verðum að muna að við erum á opnu skipi, enda taka austurrúms-menn trogin og hafa tilbúin, því ágjöf hlýtur að verða. Formaður beitir vök- ulum augum á bæði borð. Það má ekki taka hlésjó, en það má sjóða á keipum, og það er undra- vert hve skipið liggur stöðugt á listanum á hlé, en gutlar öðru hvoru upp á keipstokkinn. Og með lítilli hreyfingu á stýris- sveifinni, sem varla er af öðr- um tekið eftir, getur laginn for- maður afstýrt áföllum á kul- borða, og skipið leikur í hendi hans eins og vel taminn gæð- ingur, en fjörugar ægisdætur og gáskafullar fá engum kinn- hestum viðkomið. Svo fimleg var stjórn gömulu formannanna á þessum opnu smáfleytum. Við náum upp á Þórshafnar- hraun, rétt fyrir sunnan Staf- nes, og vendum út um, en tök- um niður stagfokkuna í vend- ingunni, því nú verður nasa- kvika fyrir Stafnestanga — það er eins og kvikan beygi ætíð fyrir nes og tanga. — Ef við. siglum með báðum fokkum í nasakviku (það er þegar kvikan kemur beint á móti) rennur skipið á mikilli ferð upp á kvik- urnar svo barkinn verður á lofti er skipið hleypur fram af, og er þá tvöföld hætta, næsta kvika gín fyrir framan og skipið stingur sér í hana með því afli að það tekur hlésjó, — sem get- ur orðið of stór — á hnútuna, veldur stagfokkan þar mestu því hún þrykkir niður. Hin hættan er í því fólgin, að hálsar í barka geta rifnað eða sprungið frá stefni (eru þess dæmi). Var þá nauðsynlegt að klýver-mað- urinn kynni vel sitt verk, þannig, að gjöra klýverinn á- hrifalausan á réttu augnabliki, með því að gefa eftir á klónni svo hann var við það að blakta, það dró úr skellinum, ekki mátti klýverinn þó taka högg, þá gat útleggjarinn hrokkið sundur. Ætíð var haldið í klýverkló í stormsiglingu, eða hafður laus, eins og það var orðað. — Við siglum nú út með Urð og Rifi og nokkuð út og norður, en ekki er vert að hafa slaginn mjög langan, því kvikan stækkar er dýpra kemur, við vendum því upp aftur og komum þá upp sunnan við Hvalsnes, því norður- fall er komið, við vendum enn og siglum norður með strand- klöppinni og Æðarflös. Nú þarf ekki langan slag, við vendum í síðasta sinn og drögum upp fokkuna, því ekki er nasakvika á uppslag og stefnum nú heim. Allt hefir gengið slysalaust. Litla sigludýrið okkar hefir stiklað létt og fimlega um ýsu- grundina vota og þýfða. Hásetar eru í sólskinsskapi og kveða hátt, margraddað: Að sigla fleyi, og sofa í meyjar faðmi, ýtar segja yndið mest, og að teygja vakran hest. Það var líka til yndi á þeim dögum. Um 50 ár eru liðin síðan við sigldum í land. — Ef við lítum nú suður á Miðnes, þá er ekkert opið vertíðarskip að sjá, og ekki ein einustu naust eru starfrækt og ekkert þeirra nema svipur hjá sjón, því ekkert opið ára- skip er nú gert út á vertíð þar. Gömlu sundin og gömlu lend- ingarnar heyra sögunni til, og gleymast að fullu nöfnin á sund- um og boðum, svo og fiskimiðin, sem aldrei eru nefnd á nafn framar, fara sömd leið. Allt þetta þarf að skrifa upp af kunnugustu mönnum á hverjum stað. Ef ég lít á mínar fornu slóðir sé ég þetta: Sundvarðan á túninu, há og gild, eins og gömul, siðlát sóma- kona í krinolíni (þannig var vöxturinn) en í seinni tíð gugg- in og grá af mosa, er ætíð stóð á verði og vísaði rétt sund milli Vatnsfellsboða og Flögunnar, stendur nú á blábakkanum með dauðann við tærnar, því sjór- inn er að brjóta túnið, hægt en markvisst. Er hún hrynur niður fyrir bakkann heyrist urg í grjóti, það er hennar neyðaróp. En aldrei mun hún aftur úr ösku rísa. — Á sama stað voru tvö lítil vik, sem nú eru orðin að einni breiðri vík (á flóði). Úti fyrir vík þessari er kletta- hólmi, sem er að verða að út- skeri. Það voru Landanaustin. 1 miðjum hólmanum er sléttur malarkambur, það var skipti- völlurinn. Dálítil þúfa er enn jar, sem timburskúrinn stóð, en byrgi sjómannanna allt í kring fallin inn í sjálf sig, eru orðin að grjóthrúgum. En lítið eru enn máðar raufarnar í klöppina eft- ir kjölför bátanna, og ennþá sést í brúnum raufanna rauður litur- inn eftir ryðguð drögin. Allt ber þetta þögult vitni, eins og blóðdroparnir, sem féllu úr visnu höndinni í höfuð „Valtýs á grænni treyju". Magnús Þórarinsson MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Séra Valdimar J. Eylands . Heimili 686 Banmng Street. Sími 30 744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. ☆ Lúterska kirkjan í Selkirk Sunnud. 23. nóv. Ensk messa kl. 11 árd. Sunnudagaskóli á hádegi íslenzk messa kl. 7 síðd. Fólk boðið velkomið. S. Ólafsson ☆ Við guðsþjónustu í Fyrstu lútersku kirkju á sunnudaginn kemur kl. 7 e. h., prédikar Dr. Rúnólfur Marteinsson. ☆ Við gugsþjónustu í Lútersku kirkjunni á Gimli kl. 7 næsta sunnudagskvöld, flytur séra Valdimar J. Eylands erindi um Lúterskt kirkjustarf í Nýja- íslandi. ☆ Gimli Lutheran Parish H. S .Sigmar, Pastor Sunday, Nov. 23rd 9:00 a. m. Betel 10:00 a.m. Gimli, Sunday School 11:00 a.m. Gimli, Morning Ser- vice 2:00 p.m. Arborg 7:00 p.m. Gimli.,Guest Speaker, the Rev. V. J. Eylands: “The History of the Church in New Iceland.” People from the entire area are invited to attend this Special Evening Anniversary Service and to hear the President of our Synod. Ræðumaður var að útmála ógnir helvítis fyrir áheyrend- um. Hann sagði m. a.: — Þið vitið öll hvernig bráðið blý er? í helvíti borða menn það það í staðinn fyrir rjómaís. ☆ Svartsýnismaður er bjartsýnis maður, sem einungis neitar að lifa samkvæmt kenningum sín- um. —Judge ☆ Ungur nýliði hafði verið að æfa sig í að skjóta í mark, heilan morgun, en aldrei hæft markið. Að lokum sneri hann sér að lið- þjálfa sínum og mælti: — Stundum óska ég jafnvel heldur eftir því, að ég verði skotfnn, heldur en að ég þurfi að skjóta meðbræður mína. — Það er víst óþarfi fyrir þig að hafa áhyggjur út af því, því þú verður áreiðanlega skotinn áður en varir.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.