Lögberg - 04.12.1952, Síða 7
Jónas Stefónsson fró Kaldbak
F. 31. marz 1879 — D. 3. sepi. 1952
Minningarrœða flutt við útför hans 5. september 1952
Eftir séra EIRÍK S. BRYNJÓLFSSON
Náð sé með yður og friður frá
Guði föður vorum og drottni
Jesú Kristi. Amen. —
Krisinu vinir!
Hér er í dag kvaddur hinztu
kveðju hjartkær eiginmaður og
faðir. Eftirlifandi eiginkona og
börn þakka af hjarta fyrir lið-
inn dag. Heima á íslandi eru
systkini hins látna og frá þeim
flyt ég kveðjur og þakkir.
Jónas Stefánsson Kaldbak var
fæddur að Kaldbak í Suður-
Þingeyjarsýslu 31. marz 1879 og
var því á 74. aldursári er hann
lézt á Almenna sjúkrahúsinu
hér í bæ aðfaranótt síðastliðins
miðvikudags eftir nokkurra
mánaða legu, bæði heima og á
sjúkrahúsinu. Foreldrar hans
voru bændahjónin að Kaldbak
Stefán Guðmundsson og Jónína
Jónasdóttir. Þar ólst Jónas heit-
inn upp í systkinahópi og lýsir
hann fagurlega bernsku- og
æskustöðvunum og þeim fögru
unaðsstundum, er hann naut
þar, einkum um bjarta vor- og
sumardaga. Þegar landið klædd-
ist skrúðgrænu klæði og loftið
ómaði af fuglasöng var him-
neskt að lifa. Veturnir voru oft
langir og kaldir og snjóþyngsl-
in gífurleg kringum lítinn bæ
fram til heiða. Þess vegna urðu
dagar og nætur í dýrðarbirtu
vorsins ógleymanlega yndis-
legir tímar. — Ungur mun Jónas
heitinn hafa verið, er hjá hon-
um kom í ljós fróðleiksþrá sam-
fara góðum gáfum og frábæru
næmi á vísur og kvæði. Var
honum þessi næmleiki í blóð
borinn og skáldgáfan sem og
fleiri ættingjum hans. í foreldra-
húsum lærði hann að lesa og
skrifa, því ekki voru barnaskól-
ar í sveitum íslands þegar hann
var á bernzku- og æskuskeiði.
En hann gekk í þann bezta og
hollasta alþýðuskóla á góðu,
fróðleiksfúsu heimili. Þar voru
sögur og ljóð og hvers konar
annar andlegur fróðleikur um
hönd haft seint og snemma.
Kyæði voru lesin og lærð, sálm-
arnir, og þá einkum Passíu-
sálmar Hallgríms Péturssonar,
elskaðir og virtir; rímur eftir
‘Sigurð Breiðfjörð og fleiri
rímnaskáld voru ásamt íslend-
ingasögunum andlegar fróðleiks-
lindir og vöktu til umhugsunar
og athygli um fjölmörg torskil-
in málefni og jók þetta víðsýni
og þroska ungra og gamalla. —
Sveitin, þar sem Jónas var
fæddur óg uppalinn, er alkunn
meðal íslendinga fyrir alþýðu-
menningu og vakandi áhuga
almennings á margvíslegum
þjóðfélags og mannréttindamál-
um, svo á unga aldri mun Jónas
hafa drukkið í sig víðsýni og
frjálslyndi í þjóðfélagsmálum
og ævilanga andúð á ranglæti í
samfélagi einstaklinga og þjóða
og misskiptingu á gæðum þessar-
ar fögru og frjósömu jarðar. —
Snemma vaknaði hjá honum
hugsjón jafnréttis og bræðra-
lags. Af heilum huga tók hann
undir þessi orð Einars Bene-
diktssonar skálds:
„Allt skal frjáls, allt skal jafnt,
réttan skerf sinn og skammt
á hvert skaparans barn
allt frá vöggu að gröf.“
Þessari trú sinni á fullkomið
réttlæti í mannfélagsmálum hélt
hann óskertri allt til hinztu
stundar og kemur það vel fram
í öllu, sem hann ritaði og kvað.
Heima á íslandi leitaði Jónas
sér menntunar eins og efni og
ástæður leyfðu frekast, jafn-
framt því sem hann vann fyrir
sér. í tvö ár stundaði hann nám
í Hólaskóla, sem var og er bún-
aðarskóli. Þar voru kennd bók-
leg fræði og einnig höfð nám-
skeið í verklegum efnum, eink-
um búvísindum og jarðrækt.
Mun Jónas hafa kynnst þar
greindum og þroskuðum mönn-
um, er voru kennarar hans og
skólabræður og haft ómetanlega
gott af því. Einnig stundaði
hann nám í Kennaraskóla Is-
lands, þar sem afburða gáfu-
menn og unnendur íslenzkrar
sögu og íslenzkrar tungu voru
kennarar og leiðtogar nemend
anna. Að afloknu námi stund
aði Jónas kennslustörf á ýmsum
stöðum á íslandi. Hann hafði
verið góður og áhugasamur
kennari, enda hafði hann til þess
starfa góða hæfileika og það
sem er mest um vert: hann unni
börnunum og var góður við þau.
Svo er það 1913 að mestu
þáttaskiptin og örlagaríkustu
verða í lífi hans, er hann ákveð-
ur að flytjast af íslandi til
Vesturheims. ,Um sérstakar á-
stæður til þeirrar ákvörðunar
er mér ekki kunnugt. En hann
átti frændfólk í Argylebyggð,
þar á meðal var móðursystir
hans. Hinn gagnmerki Islend-
ingur Thomas Johnson var einn-
ig náskyldur Jónasi. — Mun
það sannast vera, er hann segir
sjál'fur í einu kvæða sinna á
þessa leið:
/
Með sigurvonum hins síleitandi
ég sigldi vestur um haf,
því ævintýri í ókunnu landi
útþránni vængi gaf.
Útþráin hefir verið og er enn
voldugur þáttur í Islendings-
eðlinu. Löngunin að kynnast
öðrum þjóðum, að sjá ný lönd,
komast í snertingu við menn-
ingu annarra þjóða, hefir fylgt
Islendingum allt frá upphafi ís-
landsbyggðar til þessa dags.
Jónas settist fyrst að í blóm-
legu og fögru Argylebyggðinni
í Manitoba og stundaði þar land-
búnaðar- og akuryrkjustörf um
skeið og svo gjörði hann víðar
í Sléttufylkjunum. Árið 1917
flytzt hann til Mikleyjar í Win-
nipegvatni og stundaði þar bæði
búskap og fiskiveiðar. Þar gekk
hann að eiga eftirlifandi eigin-
konu sína Jakobínu Sigurgeirs-
dóttur prests frá Grund í Eyja-
firði. Fluttist hún barn að aldri
með móður sinni og bræðrum
frá íslandi til Mikleyjar. Voru
þau systkinin vel gefin, dugleg
og framúrskarandi söngvin og
sönggefin svo sem þau áttu ætt
til. Þau hjónin, Jónas og Jakob-
ína, bjuggu í Mikley í 26 ár og
þar fæddust þeim þrjú börn, sem
nú í dag fylgja ástríkum föður
til hinztu hvíldar. Dæturnar,
Sigurbjörg og Selma, eru baðar
lærðar hjúkrunarkonur og
stunda það starf, en hafa um
skeið dvalið með foreldrum
sínum, og Haraldur, sem er
handverksmaður, dvelur einnig
á heimili foreldra sinna.
Árið 1944 flytur fjölskyldan
hingað til Vancouver og byggði
sér lítið hús en snoturt í Burna-
by. Þar er friðsælt og fagurt,
þar blasa við augum skógiklædd
fjöll, sem sveipast mjúkum
töfrablóma kvöldsins og klæðast
gullnum skikkjum morgunroð-
ans við sólarupprás. —
Jónas Stefánsson var prýði-
lega hagmæltur og afkastamik-
ill á því sviði. Hann unni Islandi
og íslenzkri tungu af fölskva-
lausri ást og einlægni. Ég hefi
verið að blaða í ljóðabók hans
og lesa kvæðin eftir hann, sem
bæði eru prentuð og óprentuð.
Tveir megin straumar virðast
mér birtast þar. Annar er ástin
til íslands. Hann segir á einum
stað:
Þó viljinn sé góður mér varnað
er máls.
1 vöku og draumi ég ber
þá löngun, sem orð lýsa eigi til
hálfs,
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 4. DESEMBER, 1952
að lifa og deyja hjá þér.
Því aðeins þá huggun í útlegð
ég fann
að elska þig, vera þér trúr.
Mitt hugtal við þig frjóvgar
hjarta míns rann
sem haglendið gróðurskúr.
Svona var undiraldan í kveð-
skap hans. Margar blaðagreinar
ritaði hann og þótti öllum hann
vera góður rithöfundur og hafa
mjög snjallan stíl, og þar lýsti
hann einnig ættlandi og ættþjóð
af ást og hrifningu.
Annað, sem skín út úr kvæðum
hans og ritgjörðum, er ást hans
á réttlæti og sannleika. Honum
þótti það sárt að sjá ranglætið
hrósa sigri yfir réttlætinu og
kærleikann og sannleikann fót-
um troðinn. Ég veit ekki af eigin
viðkynhingu, um trúarskoðanir
Jónasar heitins eða afstöðu til
kirkju og kristindóms, en.innst
í hjarta bar hann djúpa lotningu
fyrir Kristi, konungi sannleik-
ans, og segir um hann í kvæði:
Hann leiðina til ljóssins fann
á lífsins ólgusjó
og fyrir kærleik fyrstur vann
og fyrir sannleik dó.
Þetta er fallega sagt.
I ljóðum Jónasar má rekja
samúð hans með öllum, sem eiga
bágt og bera sorg í hjarta, og
börnin áttu góðan vin þar sem
hann var. Því.segir hann:
Ei orð fá lýst hve elska ég þig,
mitt yndislega barn,
þín ljúfa vitund leiðir mig
um lífsins eyðihjarn.
Þótt sólin hverfi, ég sé það nú,
mitt sólskin verður þú.
Frá jörð til himins býggir brú
og breytir efa í trú.
Hann þýddi einnig hið ódauð-
lega kvæði: „Deyjandi barn“
eftir H. C. Andersen, og sýnir
þetta að hann átti viðkvæman
og hljómþýðan streng á hörpu
sinni.
Ég er þess fullviss, að Jópas
Stefánsson hefir með ljóðum
sínum, ritgerðum og hugdettum
yljað mörgum um hjartarætur,
glætt ástina til Islands og vit
undina fyrir réttlæti og sann-
leika. — En hann gleymdi samt
ekki eða vanræti skyldur sínar
við þetta land, fósturland sitt.
Hann árnaði Canada allra heilla
í tilkomumiklu ljóði og vildi
MINNINGARORÐ
Kristin Soffía Lambertsen Hansson
F. 20. nóv., 1882 — D. 22. okl., 1952
Lilið til baka
Lít ég yfir liðinn veg —
ljúf í huga mínum
er þín minning, elskuleg,
öllum vinum þínum.
Þessar hendingar komu í huga
minn þegar mér varð litið yfir
þann mannfjölda, sem fyllti
kirkjuna til að kveðja þig,
Kristín mín, í síðasta sinn, þar
sem þú hvíldir í miðjum ylmandi
blómagarði.
Hin ytri fegurð er því sorglega
lögmáli háð, að fölna og falla
til jarðar fyr en skyldi. — Það
er lífsins saga. —
Eftir tuttugu og fimm ára
stríð við kveljandi sjúkdóm,
sem smám saman krepti líkama
hennar, þar til honum tókst að
spenna hið lífseiga hjarta helj-
argreipum. — En jafnvel á þeirri
stundu, var það hún, sem vann
sigur, því hinn miskunnarlausi
óvinur náði aldrei að snerta við
hennar innri fegurð. Það er hún,
sem lifir áfram í minningu henn-
ar mörgu vina. Það er sú fegurð,
sem sjötíu ára löng ævi fékk
aldrei breytt.
Ég minnist Kristínar fyrst fyrir
hér um bil 50 árum á Akureyri.
Hún var ung og falleg, með afar
mikið og fagurt liðað hár, sem
náði henni ofan fyrir mitti. Hún
var yndislega feimin, — en aug-
un og brosið var hið sama, sem
alla ævi hefir speglað.hennar
innri fegurð, svo dásamlega laus
við alla sjálfselsku.
Með geislandi einlægni hefir
hún mætt öllum, sem hafa
kynnst henni á lífsleiðinni, en
þó með þeirri mildi og ráð-
vendni, sem aldrei hallmælti
neinum, hve sem í hlut átti.
Hún var framúrskarandi fund-
vis á kosti annara, — annað
heyrðist aldrei af hennar vör-
um. Og hvernig henni heppnað-
ist að leiða athygli þeirra, sem
heimsóttu hana frá sinni eigin
þjáningu, var svo dásamlegt, að
öllum leið vel í návist hennar.
Mér varð oft á að bera saman
framkomu hennar og margra
annara, karla og kvenna, sem sí
og æ eru kvartandi yfir smá-
andstreymi líkamlegu og and-
legu og ætlast til vorkunnar.
Ég dáðist því meir að Krist-
ínu, sem ég kynntist fleirum,
er kenna í brjósti um sjálfa sig
og gera sér far um að draga
annara athygli að sér.
I fimmta tölublaði Heims-
kringlu þann 29. okt. síðastlið-
inn var vinsamlega minnst á ætt
Kristínar. — Það er áreiðanjega
mikils virði að vera kominn af
góðum stofni, og það var Krist-
ínar arfgeng undirstaða, en þó
Krislín Soffía Lambertsen
Hansson
engu síður hitt, að hún var svo
lánsöm — þegar hún, barn að
aldri missti foreldra sína — að
vera tekin til fósturs af þeim
elskulegu hjónum Kristjáni og
Ólöfu í Fagrabæ við austur-
strönd Eyjafjarðar, og þar ólst
hún upp til fullorðins ára, er
hún flutti til Akureyrar og
giftist þar eftirlifandi manni
sínum, Þorleifi Hanssyni, nýút-
lærðum trésmið á Akureyri. —
Til Winnipeg fluttu þau 1910.
I því nær fimmtíu ár hefir
ástúðleg sambúð þeirra hjóna
verið til fyrirmyndar og aðdá-
unar öllum þeim, sem voru svo
lánsamir að kynnast þieim. Þor-
leifur er að mörgu leyti líkur
henni; hjá honum mætir þú
hinni sömu einlægni, ástúð og
glaðværð. Hvar sem heimili
þeirra var reist, hafa þau alltaf
búið í „Fagrabæ“ og þangað hafa
margir lagt leið sína.
„Hún var eins og ljós í
glugga,“ sem lýsti inn á bjartara
viðhorf lífsins; öllum gleymd-
ust eigin vandræði eftir að gista
„Fagrabæ.“
Hennar lyndiseinkenni var sá
Fagribær, sem vinir og vanda-
menn munu lengi minnast — og
hennar góði eiginmaður og tveir
synir blessa minningu sinnar
ástkæru eiginkonu og elskulegu
móður.
Ég vil enda þessi fátæklegu
minningarorð mín með tveimur
erindum, sem Páll Guðmunds-
son skáld orti við andlátsfregn
Kristínar:
„Þó hún yrði þreytt að ganga
þrautastigu sjúkra manna,
lagði birtu og bros af vanga
bæjarleið til vina og granna.
Þó að drægi af hennar hreysti
hún var eins og ljós á glugga:
Alltaf glóði ’inn glaði neisti
gegnum lífsins harmaskugga."
—A. S.
gefa Canada gengi í öllum
greinum. Hér í Vancouver þótti
honum gott að vera. Fjöllin og
sjórinn minntu hann á margt
hugljúft frá liðnum árum. Þess
vegna orti hann fallegt kvæði
til Kyrrahafsstrandarinnar og
segir þar: „Nú húmar að kvöldi,
ég þakka vil þér, að þú hefir
gistingu ákvarðað mér.“
Nú er hann fluttur héðan til
æðra lífs og ódauðlegra heima.
Vafalaust hefir hann, eins og
allir vel gefnir menn, hugsað
um það, sem við tekur að jarð-
lífinu loknu. Ég þekkti ekki
skoðanir hans í þeim efnum, en
hann óskar þess í einu kvæða
sinna, að strönd eilífa landsins
megi líkjast ströndum gamla
ættlandsins; þá mun hann fagna
því nýja lífi handan við gröf og
dauða.
Jónas var einlægur vinur vina
sinna, ráðhollur og öruggur vin
ur, sem treysta mátti í einu sem
öllu. Hann brást ekki þeim, er
eitt sinn höfðu eignast traust
hans og tryggð. Því leituðu vinir
hans ráða hjá honum og þau
reyndust vel. Hann var elsku-
legur faðir. Börn hans leituðu til
hans með gleði og sorg og vanda-
mál og fundu, að hann vildi
leysa úr þeim af víðtækum og
næmum skilningi og gefa þeim
það bezta og sannasta úr sinni
eigin lífsreyslu og lífsþekkingu.
Af trúmennsku og skyldurækni
vann hann störf sín og annaðist
um heimili sitt af árvekni og
umhyggju svo lengi sem heilsa
hans leyfði. Þar naut hann sinn-
ar góðu konu, sem rækti sínar
húsmóður- og móðurskyldur af
frábærri trúmennsku og inni-
legum kærleika. —
Ég flyt að loknum Jónasi
heitnum Stefánssyni þakkir og
kveðjur frá öllum vinum hans,
skyldfólki og tengdafólki nær
og fjær. Hans mun lengi verða
minnst, en lengst í hjörtum
ykkar eiginkonu og barna. Þá
minningu blessið þið í dag um
leið og þið kveðjið hann og
hann kveður ykkur með hjartans
þakklæti fyrir liðnu samveru-
árin. —
Guð blessi minningu Jónasar
Stefánssonar frá Kaldbak, og í
anda fylgjum við sál hans til
eilífra landa, sem ósýnileg eru
augum vorum. Guð blessi ykk-
ur eiginkonu og börn og gefi
ykkur þá huggun, sem er allri
huggun æðri. —Amen.
Dánarfregn
Björg Christopherson var fædd
þann 23. ágúst 1864 í Vopnafirði
í Norður-Múlasýslu. Hún andað-
ist á sjúkrahúsinu að Baldur,
Man. þann 30. október s.l. 88 ára
gömul. Foreldrar hennar voru
Björn Björnsson Ólafssonar frá
Hjaltastaðaþinghá og Herborg
Jónsdóttir Sigurðssonar frá
Grímsstöðum á Fjöllum. Björg
heitin kom til Canada með for-
eldrum sínum árið 1893. Árið
1899 kom hún til Argylebygðar
og það sama ár giftist hún ekkju-
manninum Hernit Christopher-
son (d. 1928). Björg tók að sér
heimilið með mikilli rausn og
gekk fjórum xbörnum manns
síns í móðurstað: Pétri, Sigurði,
Jóni og Ingibjörgu. Hernit og
Björg eignuðust þrjú börn: —
Herbert, verkfærasali í Baldur;
Jóhann, býr með tveimur eldri
bræðrum sínum á föðurleifð-
inni; og Sigurveig, Mrs. Chris
Helgason, að Grund. Barnabörn-
in eru sex. Stjúpbörnin elskuðu
hana og virtu eins og sína eigin
móður, og öll börnin gerðu sér
far um að hún nyti ellinnar sem
allra bezt, og þau báru hana á
höndum sér, og öll vildu þau
hafa hana hjá sér. En hugur
hennar leitaði á gamla heimilið
til drengjanna sinna; hjartað var
bundið helgum endurminning-
um í gömlu stofunni; þar naut
hún sín bezt; þar hvarflaði hug-
urinn yfir tímans haf; þar endur
lifði hún liðnar sælustundir; þar
réttu ástvinir henni hjálpar-
hendi; þar var hún næst ástvin-
um sínum, sem á undan höfðu
farið.
Björg heitin hlaut þá blessun
að njóta fullra sálarkrafta fram
að seinustu stundu, og svo að
segja með fullri vitund að taka
í hönd frelsara sínum, er hann
kallaði og bauð henni hendina.
Hún v$r trúuð kona, gáfuð, vel
hugsandi, fróðleiksfús, elskuð og
virt af öllum. Hún bað þess að
^ngin líkræða yrði flutt við út-
för sína „bara söngur og bæn“.
Húskveðja var flutt á heimilinu
og kveðjuathöfn í Grundar-
kirkju. Hún var jarðsungin af
sóknarprestinum 2. nóv. í graf-
reit kirkjunnar.
J. Fredriksson
COPENHAGEN
Kaupið Lögberg
Veiklaðar herðar?
Ef þér finnið til veiklunar í herSum,
eSa kveljandi sársauka, fariC eins aS
og þúsundir annara meS góSum ár-
angri. NotiS T-R-C’s, sem til þess eru
gerSar aS lækna gigt, bakverk, tauga-
gigt og marga aSra kvilla. Þjáist eigi
aS óþörfu. FáiS T-R-C’s nú þegar.
65 c., $1.35 1 lyfjabúSum. T-837
Bezta munntóbak
heimsins
,te««eie!e*ie«e«e<«íe«e««w«c<e*«e««íe!€i«íe퀫eíei«íe«i«fei«!eíe«ie«€*!eie<e«e«ew*i«íc*ie*eí5|
Kærkomin jólagjöf!
Það er gamall og góður siður, að gleðja vini sína um
jólin; það eru ekki ávalt dýrustu gjafnirnar, sem veita
hina dýpstu og sönnustu ánægju; hitt ræður meira um,
hvað þær tákna, og hversu varanlegt gildi þeirra frá
minninga- og menningarlegu sjónarmiði er. — Lögberg
hefir yfir sextíu og fimm ára skeið haldið uppi þrotlausri
baráttu fyrir viðhaldi íslenzkrar tungu í þessu landi,
heilbrigðum þjóðræknislegum metnaði og sérhverju því,
er að þjóðhollustu og öðrum borgaralegum dyggðum
lýtur; öllum slíkum málum vill blaðið veita óskipt full-
tingi í framtíðinni án hiks eða efa. — Jólagjafaráðgátan
verður greiðast leyst með því að kaupa Lögberg og senda
það vinum bæði hér og á íslandi.
FYLLIÐ UT EFTIRFARANDI EYÐUBLAÐ:
THE COTUMBIA PRESS LJMITED
695 Sargent Avenue, Winnlpeg, Man.
Sendið Lögberg vinsamlegast til:
Nafn
Áritun
Hér með fylgir $5.00 ársgjald fyrir blaðið
Nafn gcfanda
Aritun ......
StBtatatatatataiatatatataiatBtatBtatatatatasatBtBtataiatatBiataiBtataiatatBiataiBtBtataiBtatasaíaíatata
tatatatstatatatatatataataiaíatatatataisatasataatatatataiatatatBtatatatatatatatatatatatatataiatBtati