Lögberg - 25.06.1953, Page 1

Lögberg - 25.06.1953, Page 1
Phone 72-0471 BARNEY'S SERVICE STATION NOTRE DAME and SHERBROOK Gas - Oil - Grease Tune-Ups Accessories 24-Hour Service Repairs Phone 72-0471 BARNEY'S SERVICE STATION NOTRE DAME and SHERBROOK Gas - Oil - Grease Tune-Ups A.ccessories Repairs 24-Hour Service 66 ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 25. JÚNÍ, 1953 NÚMER 26 FJÖLMENNIÐ A ÍSLENDINGADAGINN A HNAUSUM FYRSTA JÚLl Ávarp fulltrúa ríkisstjórnar íslands, Péturs Eggerz, á 75 ára afmælishátíð íslenzku byggðanna í Norður-Dakota, haldið að Mountain, mánudag- inn 15. júní 1953 Góðir Islendingar! 1 dag þegar íslenzku byggðar- lögin í Norður-Dakota halda há- tíðlegt 75 ára afmæli sitt, þá leitar straumur hlýrra tilfinn- inga frá íslenzku þjóðinni út hingað til ykkar. Islenzka ríkisstjórnin hefir skipað mig sem sérstakan full- trúa sinn til þess að flytja hér kveðjur og árnaðaróskir sínar. Ríkisstjórn Islands sendir Is- lendingum í Norður-Dakota á þessari hátíðarstund innilegar árnaðaróskir og óskar byggðar- laginu allra heilla. Ég hef verið beðinn fyrir aðra kveðju, sendiherra íslands í Waöhington, Thor Thors sendir ykkur kveðjur og heillaóskir. Fjallkonan íslenzka hefir ekki alltaf haft miklu að miðla, og stundum hefir hún þurft að fara hrjúfari höndum um börn sín heldur en hún hefði kosið. Fjallkonan íslenzka hefir fæst- um okkar gefið gull eða græna skóga, en ihún hefir með marg- breytileik íslenzkrar náttúru stælt líkama okkar og sál og þannig búið okkur sem bezt undir að geta tekist á við þá örðugleika sem bíða okkar allra, þegar við yfirgefum föðurhúsin til þess að heyja lífsbaráttuna upp á eigin spýtur. Það er okkar að brjóta okkur Þreyi-ir krapparóður Hon. George Drew Hér getur að líta Hon. George Drew foringja íhaldsflokksins í Canada, sem heitir canadisku þjóðinni gulli og grænum skóg- um í því falli að flokkur hans komist til valda að afloknum sambandskosningum þann 10. ágúst næstkomandi. Mr. Drew er glæsilegur maður að vallar- sýn og vel máli farinn; hann áfellist Liberalstjórnina fyrir fjárbruðl og teiur það lítið vandamál, að lækka skatta um hálfa miljón dollara á ári; með hverjum ihætti þetta megi lán- ast, er þjóðinni hvergi nærri að fullu ljóst enn, sem komið er, og þess vegna bíður hún °breyjufull frekari upplýsinga. Blað nokkurt lét þess nýlega getið, að sjálfsagt væri að koma þeim flokkum til valda, er flest gsefi loforðin; ekki voru efnd- irnar gerðar að umtalsefni. brautir og eins og gengur leita sumir viðfangsefnanna heima, en aðrir að heiman. Þið íslendingar komuð hingað til Norður-Dakota með sama veganesti sem íslendingar allir flytja úr föðuíhúsum, stæltan vilja og sterka löngun til að sigra, og þar fyrir utan ekkert. Þið buðuð erfiðleikunum byrg- inn, brutuð land og byggðuð hús, og bjugguð í haginn fyrir börn ykkar. í dag brosir blómleg byggð Norður-Dakota við ykkur og niðjum ykkar. En að heiman horfir Fjallkonan með velþókn- un til barnanna sinna í Norður- Dakota, sem nýtt hafa sitt ís- lenzka veganesti, barist og sigrað. Megi gæfa og gengi alltaf fylgja þessu byggðarlagi! Líflófsdómi fullnægf Síðastliðið föstudagskvöld, laust fyrir miðnætti, voru þau Julius og Ethel Rosenberg tekin af lífi í Sing Sing hegningar- húsinu í New York. Þau hötðu verið ákærð og fundin sek um glæpsamlega njósnarstarfsemi eða landráð gegn öryggi Banda- ríkjanna; það þótti fullsannað, að þau hefðu gefið Rússum upp- lýsingar um framleiðslu atóm- vopna innan vébanda hinnar amerísku þjóðar og með því gerzt sek um drottinsvik. Mál þetta hafði staðið yfir í þrjú ár eða því sem næst og komið fyrir rétt hvað ofan í annað; áfrýjun af verjenda hálfu til hæztaréttar varð ár- angurslaus og Eisenhower for- seti þverneitaði, að koma í veg (fyrir fullnægingu dauðadómsins. MRS. SVAVA SPRING Fjallkona íslendingadagsins á Hnausum 1. júlí 'MISS GUÐRÚN SKÚLASON Miss Canada á Hnausaháiíðinni 1. júlí Flytur stefnuskrórræðu Forsætisráðherrann, Hon. L. St. Laurent, hóf kosningaleið^ angur sinn í Windsor, Ont. síð- astliðinn mánudag og flutti þár stefnuskrárræðu sína með hlið- sjón af sambandskosningunum, sem nú fara í hönd; var ræðunni hvarvetna stilt í hóf svo sem vænta mátti, því Mr. St. Laurent er kunnur að prúðmannlegum málflutningi; hann hét fáum nýjungum varðandi stjórnar- reksturinn, en bað kjósendur að athuga gaumgæfilega og hleypi- dómalaust athafnir stjórnarinn- í brúðkaupi Sylvíu Florence Hólm og Dr. David Frame Simpson Ég veit eina ljómandi listasnót i sem leikur á strengjaböng, Svo verða hin andlegu yndismót mér augljós af töfrasöng. Og Sylvíu fingur með svanakvak og sál minni skiljanleg orð, Sem fannhvítar dúfur um fannhvítt þak, þá fljúga um nótnaborð. Að vísu er ei neitt, sem er nýtt, að sjá, en nóturnar eru samt þau jólakerti sem kviknar á — þær hvítu og svörtu jafnt. Og ljósálfar stíga sinn leifturdans unz liðinu skipa í röð. Að hnýta sveininum sigurkrans, en Sylvíu lárviðarblöð. Ei undur þó heillaði hennar spil með hljómlistarvaldi og tign, Með barnshjartans sakleysi og sálaryl þann svein sem á fegurð er skygn, Þann svein sem á andlegan auð sem hún og ann hennar tungu og þjóð / Og finnur að Sylvíu föðurtún . er fyrirmynd ræktunar góð. Já, guð hefir samtengt þær sálir tvær sem sungnar voru í eitt Og aðeins þögnin fær aðskilið þær — ei annað á jörðu neitt. Og þögnin í lífsins lagi er stutt, en lagið án enda sjálft, Því blaði er aðeins flett, og flutt er framhaldið aldrei hálft. Guttormur J. Guttormsson Hon. Louis St. Laurent ar síðustu fjögur árin og kvaðst þá sannfærður um, að kosning- arnar gengi Liberalflokknum í vil; hann kvað ásakanir forustu- manna andstöðuflokkanna um fjárbruðl af hálfu stjórnarinnar, og þá einkum Mr. Drews, á sára- litlum rökum bygðar, enda hefðu allir þingflokkarnir verið á einu máli um það, að um lækk- un útgjalda vegna hervarna gæti ekki verið að ræða; hann kvað velmegun í landinu meiri og almennari en nokkru sinni fyr; hann fór nokkrum orðum um íhaldsstjórnarkreppuna 1930 og skaut jafnframt þeirri spurn- ingu til kjósenda, hvort þeir vildu eiga það á hættu, að slík harmsaga endurtæki sig, en því kvaðst hann naumast trúa. Mr. St. Laurent lagði á það sérstaka áherzlu hversu cana- disk þjóðeining ætti Liberal- flokknum mikið að þakka og hve röggsamlega hann hefir gengið fram í sjálfstæðismálum þjóð- arinnar; nú þyrfti ekki fram- vegis að áfrýja málum til hæzta- réttar Breta, því nú væri það hæztiréttur Canada, sem hefði æðsta valdið í dómsmálum hinn- ar canadisku þjóðar; hann kvað Liberalflokkinn vera hinn sanna þjóðeiningarflokk, og slík myndi köllun hans enn verða í fram- tíðinni; forsætisráðherra lýsti eindregnu trausti á sameinuðu þjóðunum og Norður-Atlants- hafsbandalaginu, og kvað þessi tvö áhrifaöfl hafa átt bróður- hlutann í því, að þriðja heims- stríðið væri ekki skollið á. Viðsjár í Austur-Berlín í fyrri viku varð ærið róstu- samt í Austur-Berlín, þeim hluta borgarinnar, sem rúss- neskir kommúnistar ráða yfir; Imegn óánægja ríkir hvarvetna meðal Þjóðverja á þessu her- numda svæði, er svo færðist í auka, að nærri lét opinberri borgarastyrjöld; mælt er, að um 50 þúsundir Þjóðverja hafi tek- ið þátt í uppþotinu, sem mun hafa átt rót sína að rekja til hungurs og þrælkunar; fólk þetta reif niður af stöngum rússneska fána og krafðist þess að rússnesk hernaðarvöld tæki saman pjönkur sínar og hypjuðu, sig austur fyrir járntjald; svars- ins þurfti ekki lengi að bíða, því innan skamms tíma höfðu Rússar sent inn í Austur-Berlín liðsafla mikinn, auk skriðdreka, 'er ganga átti milli bols og höfuðs á hinum vanlþakkláta lýð og hófst þá þegar snörp skothríð; óstaðfestar fregnir herma, að um þrír tugir manna af hálfu Þjóðverja hafi látið lífið, en hátt á þriðja hundrað sætt meiri og minni meiðslum; mótmælin voru að lokum kveðin niður, að minsta kosti um stundarsakir. Símskeyti vegna landnámshótíðar- innar að Mountain Kveðja forseia íslands iil land- námshátíðarinnar að Mountain • Reykjavík, 15. júní 1953 Séra Egill H. Fáfnis, Mountain, N. Dak. Á sjötíu og fimm ára land- námsafmæli sendi ég íslending- um í Dakota beztu samfagnaðar kveðjur og heillaóskir. Ásgeir Ásgeirsson ☆ Kveðja lil landnámshátíðarinnar að Mountain Reykjavík, 15. júní 1953 Séra Egill H. Fáfnis, Mountain, N. Dak. Fjölmenn Þingvallasamkoma til heiðurs heimkomnum Vestur- íslendingum sendir Dakota-Is- lendingum hamingjuóskir á 75 ára afmælinu. Þjóðræknisíélagið Sigurgeir Sigurðsson Ófeigur J. Ófeigsson ☆ Kveðja biskups íslands til land- námshálíðarinnar að Mountain Reykjavík, 12. júní 1953 Prófessor Richard Beck, Grand Forks, N. Da'k. Flyt heillaóskir mínar 75 ára afmæli íslenzku byggðanna. Bið þeim blessunar Guðs og varð- veizlu. Sigurgeir Sigurðsson ☆ Wynyard, Sask., June 14 Icelandic Jubilee Celebration Committee, Mounlain, N.D. Regreting my inability to at- tend your Jubilee Celebration June the fifteenth wish you all Gods blessings that day and all the days to come. Tryggvi J. Halldorson ☆ Blaine, Wash., June 12 Jubilee Committee Care Theo. Thorleifson Edinburgh, Dak. Sincere greetings best wishes for a wonderful Dimond Jubilee. Rev. and Mrs. H. Sigmar Mesta flugslys, sem sögur fara af Hinn 18. þ. m. fórst amerísk herflutningaflugvél skamt frá Tokyo svo að segja rétt eftir að hún hafði hafið sig til flugs; vélin hafði innan borðs 128 menn, er allir týndu lífi; þetta var fjögurra hreyfla flugvél af hinni svonefndu Globemaster gerð og voru farþegarnir nálega einvörðungu amerískir hermenn á leið til Kóreu eftir nokkurra daga hvíld í Japan; þetta er mesta flugslys, sem sögur fara af. Lýðveldisyfirlýsing Forsætisráðherra Egyptalands lýsti yfir því síðastliðinn laugar- dag, að frá þeim degi væri bund- inn endi á konungdóm í landinu og lýðveldi sett á fót; fagnaði þjóðin mjög tíðindum þessum, að því er símfregnir herma. Veltur á ýmsu í Kóreu Þau tíðindi hafa gerzt í Suður- Kóreu, er valdið hafa gremju meðal forustumanna sameinuðu þjóðanna og yfirmanna herja þeirra í Kóreustríðinu, en þetta stafar af því, að Syngman Rhee, forseti Suður-Kóreulýðveldisins, sem er sáróánægður með fyrir- hugað vopnahlé, slepti úr varð- haldi 26 þúsund föngum, sem sagðir eru að vera andvígir kommúnistum og lætur þá leika lausum hala; þetta sýnist vera skýlaust brot á varnarsáttmála Suður-Kóreu við hinar banda- lagsþjóðirnar. Eisenhower for- seti hefir stranglega mótmælt þessu tiltæki Mr. Rhees og nú hefir Mr. Churchill tekið í sama streng.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.