Lögberg


Lögberg - 16.07.1953, Qupperneq 2

Lögberg - 16.07.1953, Qupperneq 2
2 / LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 16. JÚLl, 1953 ÞORKELL JÓHANNESSON: SAGAN OG FRAMTÍÐIN Ávarp flull á Þingvöllum 14. júní 1953 á samkomu Þjóðræknis- íélags íslendinga í lileíni af heimsókn Vestur-íslendinga Góðir íslendingar, heimamenn og gestir: Vegna Þjóðræknisfélags ís- lendinga býð ég yður öll vel- komin á helgistað þjóðar vorrar, Þingvelli við Öxará. Hér standið þér í sporum þeirra manna, sem björtustum ljóma hafa varpað yfir sögu vora í þúsund ár, allt frá upphafi Alþingis og stofnun hins forna þjóðveldis, fram til hins ógleymanlega dags, er ís- lenzkt lýðveldi var endurreist, 17. júní 1944, fyrir að kalla rétt- um 9 árum. Hér er því margs að minnast og margt að sjá og skoða, vafalaust miklu meira og fleira en stuttrar stundar töf leyfir að þessu sinni. En jafnvel stutt stund á þessum stað rúmar meira af djúpum áhrifum frá umhverfinu og innan frá úr hug- skoti sjálfra vor en langdvöl víðast annars staðar, ef við gef- um okkur aðeins tíma til að sjá og minnast. Við erum hér stödd á kross- götum. Hér mættust ráðamenn þjóðarinnar á hinum hæsta höfuðstað þessa lands um 800 ár. Leið þeirra hefir legið um fjöll og fyrnindi, langa vegu og torsótta. En svo vel fallinn sem þessi staður má virðast til sam- komu mikils fjölmennis fyrir margra kosta sakir, landgæða og fegurðar, þá er augljóst mál, að Þingvellir hefðu samt aldrei orðið höfuðstaður Islands, ef eigi bættist það við, að torfund- inn myndi sá staður, er betur lægi við samgöngum á þeim tíma, er menn fóru allra sinna ferða á hestbaki og greiðasta leið milli landsfjórðunga lá yfir hálendi^S og yfirleitt hið efra um byggðirnar, er ár allar voru óbrúaðar og vegir ruddir en hvergi lagðir. Héðan liggur hin skemmsta leið til Vesturlands um Uxahryggi. Kaldidalur og Kjölur voru og eru beinasta leið til Norð-Austurlands. Val þing- staðarins forna við Öxará sýnir flesu betur, hversu glöggt auga hinir fornu feður vorir hafa haft fyrir hinni hagnýtu hlið þess máls. Hér hefir allt verið athugað gaumgæfilega, allar röksemdir mældar og vegnar af traustu viti og nákvæmri þekkingu, enda ef- ast enginn um það, að hér var fengin rétt niðurstaða. Af mjög mörgu, sem hinir fornu íslend- ingar hafa gert og ráðið, er val þeirra á þingstað sínum eitt hið aðdáunarverðasta. Og staðurinn sjálfur er heim- ur fyrir sig, sem engu öðru verð- ur til jafnað. Mynd hans er óaf- máanlega greypt í hug og hjarta hvers manns, sem hann lítur. Hinir miklu töfrar íslenzkrar náttúrufegurðar eru óvíða mátt- ugri en hér, og að vísu hvergi eins nátengdir örlögum þjóðar vorrar fyrr og síðar. Þess vegna hrífa Þingvellir oss líka af meira krafti og kyngi- magni en nokkur staður annar. Hér segir þjóðerni vort ótvíræð- ast til sín. Á þessum stað er heim kynni vor allra. Hér mætumst vér sem vinir og nánir frændur, hversu torfær fjöll og víð höf sem oss greindu fyrr og síðar hvern frá öðrum. Að koma á Þingvelli er fyrir Islending eins og að koma á kærar bernsku- stöðvar. Það skiptir ekki máli, þó að hann hafi aldrei komið þar áður. Kennileiti, örnefni á þess- um slóðum, eru oss gamalkunn- ug. Vér erum öll, ef svo mætti segja, uppalin méðal þeirra. Það eigum vér, eins og svo margt annað í menningu vorri og þroska, að þakka kvæðum vorra beztu skálda, er vér lásum og lærðum í æsku, og svo fornum frásögnum, er vér hlýddum við kné móður vorrar, ömmu eða afa. Almannagjá, öxará, vellirnir inn af árósunum, gjárnar hand- an við vellina, hraunið, vatnið, djúpið mæta mesta á Fróni, í hinni marglitu fjallaumgjörð sinni, Hrafnagjá og Hrafnabjörg í austri, en til norðurs Skjald- breið og Ármannsfell, með Meyjarsæti og Hofmannaflöt, og lengra til vesturs Súlur. Hinn mikli og breiði dalur,/ sem hér verður norðan frá Skjaldbreið og Þingvallavatni, milli Al- mannagjár og Hrafnagjár, hefir myndazt við stórkostlegt land- sig. Hamraveggir gjánna sýna, hversu landið brotnaði og seig niður, eins og skálaþak fellur í tóft sína. Slík jarðmyndun er fágæt. Á nokkrum stöðum hér á landi má þó sjá svipað, en hvergi jafn tígulega-hrikalegt og hér. En þó þetta mikla sköpunarverk, sem við horfum nú á, væri í höfuðdráttum myndað fyrir þús- undum eða tugþúsundum ára, eru Þingvellir í núverandi mynd nokkuð breyttir frá því, sem var, er Alþingi var sett hér fyrst. Mesta breytingin mun hafa orð- ið á árunum 1784 og 1789, er nýtt landsig varð hér um Þing- velli, svo að landið lækkaði um nær 2 fet, en við það urðu all- mikil spjöll á sjálfum völlunum af ágangi frá vatninu og Öxará. Þessar byltingar eru stundum og sjálfsagt með rétti taldar til or- saka þeirra, er því ollu, að Al- þingi var flutt héðan til Reykja- víkur undir lok 18. aldar og lagt niður árið 1800. Hér stöndum vér á Lögbergi, mitt á sviði hins forna Alþingis, umkringd af rústum búða frá ýmsum tímum. Ef þér gangið hér um á þingstaðnum, munuð þér finna steina í grasi með áletrun um það, hverjir hér hafi tjaldað. Þér munið finna gamal- kunnug nöfn úr fornri og nýrri sögu landsins, frá gullöld þess og lægingartíma. Vér erum hér heima stödd. Allt er hér meira og minna þekkt og kunnugt. Allt með blæ veruleikans en jafn- framt þeim brag endurminning- anna, sem fær hjarta okkar til að slá hraðar, ljær augum vor- um meiri birtu og hvassari og næmari sjón. Það, sem vér horf- um á og skynjum hér, er ekki venjuleg útsýn, ekki aðeins falleg, hugþekk mynd, sem nátt- úran frjáls og sterk töfrar fram. Þetta útsýni, sem þér sjáið hér, er ekki aðeins einn af mörgum stöðum, sem fallnir eru til þess að sýna ferðalöngum svo að þeim megi finnast, að þeir hafi þó fengið eitthvað fyrir pening- ana sína. Sú sjón, sem oss gefur hér, er annað og miklu meira. Hún hefir þegið innihald frá öllu því, sem um þúsund ár hefir skapað og mótað íslenzka þjóð. Þrátt fyrir virkileikans blæ, þrátt fyrir kristalstært skyggni, sem er einkenni lands vors á björtum júnídegi, erum vér stödd mitt í ósýnilegri veröld. Hér um þessar gjár, um vellina og ótal launstigu hins kjarr- græna hrauns, liggja rætur þjóð- lífs vors, duldar, ósýnilegar, en oss þó svo nátengdar, að vér finnum til þeirra í hjartataugum vorum. Þessar rætur verða ekki slitnar, án þess að höggvið sé á þráðinn, sem tengir oss við lífið, sjálfa tilveruna. Þær eru hluti af oss sjálfum, hvort sem vér gerum oss grein fyrir því eða ekki. Hinn mikli snillingur íslenzkr- ar sögu og orðlistar, Snorri Sturluson, segir í Gylfaginningu söguna um Ask Yggdrasils, heimstréð mikla, meið lífsins, sem stendur rótum í þrem heim- um og breiðir lim sitt um alla jörðina. Þessi ævaforna, goð- kynjaða hugmynd, þessi heiðna helgisögn um lífið, eðli þess, uppruna og örlög, kemur mér nú í hug. Hér á Lögbergi stóð og stendur enn lýðmeiður hinnar íslenzku þjóðar. Vér erum sjálf hluti af laufum hans og limi, en rætur hans liggja þúsund ár aftur í tímann og þó miklu lengra. Þær eru greindar og kvíslaðar um. allt þetta land. Þær verða víðar raktar. Vér finn- um jafnvel sprota af þeim á hin- um miklu kornsléttum Norður- Ameríku, allt 'vestur undir Klettafjöll. En þar sem vér stöndum nú, kemur allt saman, rætur, lauf og lim. Ef hin ósýni- lega veröld liðinna alda mætti birtast augum vorum, eins og vér skynjum hana með tilfinn- ingum vorum og minningum, myndi allt þetta mikla sjónar- svið tala til vor lifandi tungu, ofar hinu máttuga en torskilda máli þagnarinnar. Líf og hreyf- ing mundi hér ríkja í stað eyði- kyrrðar. Vér myndum sjá og heyra hina vitrustu og göfugustu menn, syni landnemanna, setja allsherjar lög á Lögbergi og stofna þjóðveldi á Islandi í dög- un sögunnar. Vér myndum sjá vitra stjórnskörunga skipa Al- þingi, setja lög og nefna dóma og ráða ráðum fyrir land sitt. Vér mundum sjá höfðingja landsins á Alþingi víkja af hönd- um sér ásælni erlendra konunga og gera viturlega sáttmála við erlendar þjóðir. Við mundum sjá nafnkenndar hetjur, glæsi- legar konur, skáld og íþrótta- menn, setja lífsins, æskunnar og snilldarinnar brag á þennan stað nokkra hásumardaga ár hvert, stutta stund, en þó nóg til þess að frjógva og auðga þjóðlífið út um hinar afskekktustu byggðir landsins vetrarlangt. Héðan mundum vér sjá flokk hinna fyrstu kristnu manna þokast yfir hraunið að austan frá Vellan- kötlu og halda hina fyrstu, kristnu guðsíþjónustu á Þing- völlum. Vér sjáum hið rólega, fumlausa far hinna fornu lands- stjórnarmanna frá sögu og frið- aröld Vér sjáum ys og þys, um- brot og byltingar Sturlunga- aldar, flekkað blóði, svikum, grimmd, ágirnd og taumlausri valdafíkn, sem fórnar sjálfstæði landsins fyrir vegtyllur og stundarhag þegið úr hendi er- lends konungs. Vér sjáum hina myrku miðöld, þar sem verald- legt og andlegt vald togast á um landslýðinn, völd og fé. Sjónar- sviðið er óbreytt, en samt mjög með öðrum brag en fyrrum. Myndirnar, sem eftir verður tek- ið, eru óskýrari, strjálli og flest- ar dapurlegar. Vér sjáum Norð- lendinga koma hina sömu leið og hina fyrstu kristnu menn austan yfir hraunið frá Vellan- kötlu, með lík Jóns Arasonar og sona hans, og hverfa norður af völlunum í átt til fjalla. Vér sjáum sívaxandi merki kúgunar, fátæktar, harðneskju og grimmd- ar. Yfir þessum völlum hvílir reykjarsvæla frá bálköstum galdramanna, fórnarlamba hjá- trúar og spillts aldaranda. En fleira gefur hér að líta. Austur undir Hrafnagjá sjáum vér tjald- borg biskupsins í Skálholti, meistara Brynjólfs Sveinssonar, tákn þess, að enn sé til í land- inu vald og manndómur, sem gæti átt það til að halda til jafns við mekt sjálfs Bessastaðavalds- ins, sem drottnar yfir lögrétt- unni á sjálfum Þingvöllum. Vér sjáum Skúla Magnússon, aðsóps- mikinn, viljasterkan og glæsi- legan, hefja hér viðreisnarstarf sitt með stofnun Innréttinganna fyrir 200 árum. Þó er Alþingi nú orðið næsta sviplítið frá því sem fyrrum, vegna famennis þing- sóknarmanna, enda hefir hin danska einvaldsstjórn nú náð fullum tökum á öllum efnum landsmanna. Vér sjáum eld- reykjarmóðuna 1783 leggjast yfir þessa velli og skóginn standa með skrælnuðu laufi um hásum- ar, eins og táknmynd um hagi íslenzku þjóðarinnar á mestu neyðartímum, sepi yfir landið hafa gengið. Alþingi á Þingvöll- um riðar til falls. En þó á það eftir að skapa sér verðuga minn- ingu með almennu bænaskránni um frjálsa verzlun og allsherjar mótmælum gegn verzlunar- áþjáninni 1795 að forgöngu Magnúsar Stephenssens. Svo fellur áratugakyrrð yfir þennan stað. Alþingi er horfið á -braut og Snorrabúð verður stekkur Þingvallaprestsins. Hingað koma ekki aðrir en fáeinir náttúru- skoðendur. En í þeim hópi er skáldið Jónas Hallgrímsson, og með honum og hinum ódauðlegu kvæðum hans rísa Þingvellir upp í dögun nýrrar aldar. í stjórnmálaátökum þeim, sem hér verða upp úr 1840, verða Þingvellir að nýju með vissum hætti einn þýðingarnjiesti staður landsins. Þótt Alþingi sé endur- reist í Reykjavík, eru hér á Þing- völlum, á Þingvallafundunum, flest þau ráð ráðin, sem mestu skipta um sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar frá 1848—1907. Þannig hefir sagan helgað þenn- an stað og skáldin, allt frá Bjarna Thorarensen og Jónasi Hallgrímssyni til Einars Bene- diktssonar, Stephans G. Stephans sonar og Davíðs Stefánssonar. En mestur hefir vegur Þingvalla orðið í nýjum sið og á vorum dögum með Alþingishátíðinni 1930 og lýðveldisstofuninni 1944. Þeir dagar eru og verða ógleym- anlegir í minningu allra þeirra, er þar voru viðstaddir. Þær minningar mun þjóðin geyma sem helga dóma um langa framtíð. Ég hefi talað við yður um Þingvelli og söguna, eins og hún blasir við augum vorum hér. En í rauninni ætti þetta aðeins að vera formáli að því, sem öllum er hugstæðast um að ræða, en það er nútíðin og framtíðin. Ég veit samt, að þér virðið mér til vorkunnar, þótt mér fari eins og sagt var um suma gömlu prest- ana, og ræða mín verði, að því að það efni varðar, nokkuð enda- slepp. Við það öðlast hún líka þann mikla kost að verða ekki úr hófi fram löng og þreytandi. Ýmsir gerast nú spámenn meðal þjóðar vorrar og spá misjafnlega góðu. Slíkt er algengt fyrirbrigði á ólgu- og umbrotatímum. Nú ganga miklar byltingar yfir heiminn, yfir þetta land líka og þessa þjóð. Vér erum eins og hæstvirtur forsætisráðherra sagði fyrir skemmstu í ræðu til gesta vorra hér, Vestur-íslend- inga, ekki lengur hinn mikli ein- búi í Atlantshafinu. Þetta er i rétt. En þegar betur er að gáð, þá er býsna langt síðan vér vor- um það. Hvernig var ástatt hér á landi í þessu efni, segjum frá lokum 16. aldar og langt fram á 19. öld? Myndu erlend áhrif ekki hafa gert vart við sig þá eins og nú? Myndi það ekki hafa orðið nokkuð þung raun tungu vorri, þjóðerni og þjóðlegri menningu, er hver höfn á landinu var setin erlendum mönnum um hartnær 3 aldir? Þá voru hinir æðstu landsst j órnarmenn útlendingar og allir lærdómsmenn landsins eða flestir menntaðir erlendis. Nei, eflaust stafar oss hætta af erlendum áhrifum, sem oss þyrpast hvaðanæva að á öld tækninnar og hinna öru sam- gangna og samskipta við erlend- ar þjóðir. En nútíma íslendingar eru áreiðanlega ekki í meiri hættu þjóðernislega séð en feður vorir og forfeður í marga liði, nema síður sé. Þar með er ekki sagt, að öllu sé óhætt. Það sé fjarri mér að halda slíku fram. En sízt af pllu megum vér mikla þann vanda fyrir oss, svo sem ekkert þvílíkt hafi þjóð vorri að höndum borið. Það er hættuleg- ast af öllu vegna þess, að í því felst eða gæti falizt afsökun, sjálfsaumkun, undansláttur við okkar helgustu skyldu. Vitneskj- an, meðvitundin um að hafa staðið í líkum sporum áður er okkur í senn viðvörun — og fyrirheit. En þyki oss vandinn, er nú hvílir á vorum höndum, í þyngra lagi, ættum vér að minn- ast þess, að aldrei síðan á lýð- veldisöld höfum vér átt sterkari aðstöðu í voru eigin landi, vegna sjálfstæðis í stjórnarefnum, vax- andi þekkingar og tækni í at- vinnugreinum og haldgóðrar og almennrar, innlendrar mennt- unar og menningar, sjálfstrausts og sjálfsvirðingar, sem því fylgir að finna til krafta sinna og þekkja sinn vitjunartíma. Oss er að vísu þungur vandi á hönd- um að vernda og þroska tungu vora, þjóðerni og þjóðlega menningu, nú sem jafnan áður. — En vér eigum að vera og erum menn til að standast þá raun. Samkoma vor hér í dag er einn vottur þess, að hér er ekki sofið á verðinum. Og frændur vorir og vinir vestan um hafið vitna ótvírætt um það, að íslenzkt þjóðerni og íslenzkar menningar erfðir eiga sér sterkari rætur en auðveldlega verði niður kæft. Og þá sögu vænti ég að þeir geti borið vestur um hafið til heim- kynna sinna, að enn sé gamla ísland ungt og enn sé íslenzka þjóðin örugg og viti stefnu sína, fram til betra, frjórra þjóðlífs, í nýjum sið en á traustum stoðum þjóðlegra menningarerfða. Máli mínu vil ég svo ljúka með orðum hins bezta íslendings, hins mesta drengskaparmanns og eins hins snjallasta skálds þjóðar vorrar fyrr og síðar, Stephans G. Stephanssonar, er hann beindi til íslendinga vestra við stofnun Þjóðræknisfélags Vestur-lslendinga 1919: Sér í fangi fagra sögu framtíð lengi ber, þó að grasið grói yfir götu okkar hér. Stígðu á Þingvöll stórra feðra. Styrkur vex og þor undir fótum vorum vita vera þeirra spor — vera hróðug þeirra spor. —TÍMINN, 17. júní Kaupið Lögberg Víðlesnasta íslenzka blaðið COPENHAGEN Bezta munntóbak heimsins AÐLAÐANDI HÚSAKYNNI ✓ Nýjar hugmyndir í sambandi við húsakynni bankanna, eru framkvæmdar með það fyrir augum, að veita yður fljótari og þægilegri afgreiðslu. Þær miða að því, að gera bankaviðskipti yðar látlausari og einmitt á þann hátt, er þér æskið. Hinir löggiltu bankar Canada— sem grundvallaðir eru á heilbrigðum bankavenjum, hafa jafnan í þjónustu sinni fólk með það fyrir augum, að fullnægja breyttum og vaxandi þörfum. BANKARNIR ÞJÓNA BYGÐARLÖGUM YÐAR

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.