Lögberg - 27.08.1953, Page 1

Lögberg - 27.08.1953, Page 1
Phone 72-0471 BARNEY'S SERVICE STATION NOTRE DAME and SHERBROOK Gas - Oil - Grease Tune-Ups Accessories 24-Hour Service Repairs Phone 72-0471 BARNEY'S SERVICE STATION NOTRE DAME and SHERBROOK Gas - Oil - Grease Tune-Ups Accessories 24-Hour Service Repairs 66. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN, 27. ÁGÚST, 1953 NÚMER 35 Fréttir fró ríkisútvarpi íslands 16. ÁGÚST Síðastliðna viku var yfir- gnæfandi sunnan og austan átt og rigningasamt, einkum sunn- anlands. Oft var þoka við norð- ur og austurströndina. Á föstu- daginn gerði austan hvassviðri við suðurströndina, 8—9 vind- stig suðvestanlands með mikilli rigningu. Að öðru leyti hefir veður verið hlýtt, um meðallag og sums staðar nokkuð yfir meðallag. ' ☆ Síðastliðna viku hefir síldveiði verið mjög lítil norðanlands og hafa ógæftir og þoka hamlað veiðum. Á mánudag og þriðju- dag fengu allmörg skip sæmi- legan og sum allgóðan afla, en aðra daga vikunnar hefir síld- veiðin brugðizt að mestu. Eru nokkur skip þegar hætt veiðum og önnur um það bil að hætta. Á miðnætti fyrra laugardag hafði verið saltað í tæplega 133 þúsund tunnur, á sama tíma í fyrra í tæplega 32 þúsund tunn- ur. í bræðslu höfðu borizt rösk 116 þúsund mál, en á sama tíma í fyrra nam bræðslusíldaraflinn rösklega 27 þúsund málum. Frystar höfðu verið tæplega 6100 tunnur, en tæplega 6400 á sama tíma í fyrra. í lok fyrri viku var 161 skip komið á afla- skýrslu og höfðu 135 þeirra fengið yfir 500 mál og tunnur hvert. 56 skip höfðu komizt yfir 2000 mál og tunnur hvert, en á sama tíma í fyrra höfðu aðeins fjögur skip komizt yfir 2000 mál og tunnur. Aflahæstu skipin voru Jörundur með 5940 mál, Snæfell, Akureyri, með 5356 mál og Edda, Hafnarfirði, með 5295 mál. ☆ Samkvæmt upplýsingum Páls Zophaníassonar búnaðarmála- stjóra var á þessu ári flutt inn 50% meira af erlendum áburði. en áður. Hefir spretta á túnum og í nýrækt yfirleitt verið ágæt. Tún á íslandi eru nú orðin um 50 þúsund hektarar og hafa á tveimur árum stækkað um 10%. Mest hefir aukningin verið í Árnessýslu, þar hafa túnin stækkað um einn hektara á bæ á ári síðustu tvö árin. Búizt er við að töðufengur í sumar verði um tvær milljónir hesta eða fimmtungi meiri en nokkru sinni áður er er það að þakka aukinni nýrækt og meiri áburði. Margir bændur eru búnir að ná inn öllum töðufeng sínum, en aðrir eiga meira og minna ó- slegið. Margir bændur eru komnir áleiðis með annan slátt, en þeir eru miklu fleiri, sem eiga hann eftir. Nú þegar er komin inn meiri taða en áður hefir fengizt allt sumarið enda þótt fimm vikur séu eftir af hey- skapartíð, en eins og viðrað hefir í sumar er taðan ekki allskostar góð sem aðalfóður. Um þriðj- ungur bænda á nú dráttarvélar og ýmis verkfæri með þeim, fjöl- margir bændur eiga hestasláttu- vélar, en um tíundi hluti ís- lenzkra bænda notar enn orf og ljá og fylgist það að, að tún þeirra eru að jafnaði í minnstri rækt og minnst sléttað á þeim. ☆ Flokksráð Sjálfstæðisflokksins ritaði Framsóknarflokknum bréf fyrir skömmu varðandi samn- ingatilraunir til stjórnarmyndun- ar. Lýsir flokksráðið sig andvígt | fyrirsjáanlega tilgangslausum samnmgatilraunum við Alþýðu- flokkinn um stjórnarmyndun og leggur áherzlu á að úr því fáist skorið hið fyrsta, hvort samn- ingar geti tekizt milli Sjálf- stæðisflokksins og Framsóknar- flokksins um stjórnarstarf, en að öðrum kosti beiðist stjórnin lausnar ef óhæfilegur dráttur verði á því, að slíkir samningar takist. Þessu bréfi flokksráðs Sjálfstæðisflokksins svaraði for- maður Framsóknarflokksins í síðustu viku og telur Framsókn- arflokkurinn miður farið, að ekki skuli fást úr því skorið, hvort málefnagrundvöllur fyrir samstarfi á breiðum grundvelli sé fyrir hendi. Þó getur Fram- sóknarflokkurinn fallizt á að ræða' við Sjálfstæðisflokkinn um möguleika til þess að núverandi stjórnarflokkar haldi áfram sam- starfi sínu og hefir Framsóknar- flokkurinn falið ráðherrum sín- um að hefja þessar viðræður við Sj álf stæðisf lokkinn. ☆ Bátar frá Vestmannaeyjum hafa að undanförnu lagt stund á reknetaveiðar umhverfis eyj- arnar, en ekki veitt neitt. Eru þeir nú flestir farnir til veiða í Faxaflóa. ☆ Vísitala framfærslukostnaðar í Reykjavík reyndist vera 156 stig 1. ágúst og kaupgjaldsvísi- talan fyrir ágúst reyndist vera 147 stig. ☆ Enn er allt í óvissu um það, hvenær brezki kaupsýslumaður- inn George Dawson getur hrint í framkvæmd fyrirætlunum sínum um að kaupa frosinn fisk í Bretlandi af íslenzkum togur- um. Á hann við ýmsa erfiðleika að etja, til dæmis hafa eigendur íshúsa í Grimsby neitað honum um ís, sem nauðsynlegur er til flutninga á fiskinum frá höfn og á markað og svo getur farið, að fiskkaupmenn neiti samvinnu við Dawson og taki í þess stað upp samkeppni við hann. — Tveir brezkir þingmenn dvöld- ust hérlendis í fyrri viku í boði Alþingis. Báðir eiga sæti í ráð- gjafanefndum flokka sinna um fiskveiðar og kváðust báðir mundu gera sitt ýtrasta til þess að sættir næðust í fiskveiða- deilu íslendinga og Breta og löndunarbanninu yrði aflétt. ☆ Biskupinn yfir íslandi, herra Sigurgeir Sigurðsson, er nýkom- inn heim frá Noregi, en þangað var biskupshjónunum boðið til þess að vera við hátíðahöld í sambandi við 800 ára afmæli erkibiskupsstólsins í Niðarósi. Hátíðina sótti einnig Bjarni Ás- geirsson sendiherra og kona hans. Biskup Islands prédikaði við guðsþjónustuna í Niðarós- dómkirkju og ennfremur flutti hann erindi í Þingvallakirkju um ísland og íslenzku kirkjuna. Hátíðahöldin voru hin glæsileg- ustu og sóttu þau erlendir bisk- upar, ráðherrar og ýmsir kirkju- höfðingjar. ☆ Jón Krabbe, fyrrverandi sendi- fulltrúi, dvelst hérlendis unt þessar mundir í boði ríkisstjórn- arinnar. ☆ í nýútkomnum Hagtíðindum er birtur ýmiskonar fróðleikur byggður á allsherjarmanntalinu, sem tekið var hér á landi 1950. Á áratugunum 1940—1950 fjölg- aði landsmönnum um 22.500 eða S. V. Sigurdson Endurkosinn bæjarstjóri Síðastliðinn föstudag fóru fram bæjarstjórnarkosningar í Riverton og lauk þeim á þann veg, að S. V. Sigurdson var endurkosinn í bæjarstjóra- embætti með mikiu afli atkvæða umfram keppinaut sinn C. Mayo. í bæjarfulltrúastöður voru kosn- ir þeir Tryggvi Briem, K. Smigelski og G. Romaniuk. Mr. Sigurdson er frábær at- hafnamáður og mikill höfðingi í héraði, og þar, sem hann gengur til verks verður jafnan eitthvað undan að láta. um 18,5%. Á sama tíma fækkaði þeim, sem lifa af landbúnaði og fiskveiðum um rösklega 12 þús- und, þeim, sem lifa af fiskveiðum um 19% og þeim, sem lifa af landbúnaði um 23%, en í öllum öðrum atvinnuflokkum hefir fólki fjölgað og varð langmest aukning þess fólks, sem lifir af iðnaði eða um 75%. ☆ Regluleg sumarslátrun hefst 26. þessa mánaðar, en nokkru af geldfé hefir þegar verið slátrað sunnanlands og er kjöt af því komið á markað. Er verð á því kjöti 28krónur og 30 aurar í smá- sölu kílógrammið. ☆ Síðastliðinn miðvikudag var hleypt af stokkunum hjá skipa- smíðastöð Burmeister og Wain í Kaupmannahöfn fyrra vöru- flutningaskipinu, sem Eimskipa- félag Islands á þar í smíðum. Frú Ingibjörg Thors gaf skipinu nafn og heitir það Tungufoss. Skipið er 1700 lestir að stærð og verður væntanlega fullsmíðað í nóvembermánuði þessa árs. ☆ Danska sanddæluskipið Sansu er komið til Hornafjarðar og vinnur nú að því að dýpka inn- siglingaleiðina. Er áætlað að verkið taki röskan mánuð og kosti um hálfa aðra milljón. Er ætlunin að dýpka innsiglingar- rennuna svo, að skip, sem rista allt að fjórum metrum þurfi ekki að sæta sjávarföllum og geti siglt án tafar að bryggju, jafnvel um stórstraumsfjöru. Verður dýpk- un þessi mikil samgönguDÓt fyrir Hornarfjarðarhérað, ef vel tekst, og eykur mjög á öryggi fólks- og vöruflutninga. ☆ Atvinnudeild Háskólans starf- ar nú að því að gera jarðvegs- kort í Holtum og Þykkvabæ, en ætlunin er að gera jarðvegskort af öllu landinu og mun það verða áratuga verk. . ☆ Norrænt skólamót var haldið í Osló fyrir skömmu og sóttu það 34 íslendingar, þeirra á meðal Helgi Elíasson fræðslu- málastjóri og Arngrímur Krist- jánsson skólastjóri, sem var Framhald á bls. 8 Kveðjusamsæti fyrir Mr. og Mrs. Jón Júlíus Johnson Þann 18. ágúst var haldið kveðjusamsæti undir umsjón Gimli-deildar Þjóðræknisfélags- ins fyrir Mr. og Mrs. Jón Júlíus Johnson í tilefni af burtför þeirra til Vancouver. Um fimmtíu af félagsmeðlim- um og öðrum vinum þeirra hjóna komu saman þetta kveld á hinu skemmtilega heimili Mr. og Mrs. W. J. Árnason, og var sam- sætinu stjórnað af Mrs. Kristínu Thorsteinsson, forseta Gimli- deildar, sem ávarpaði heiðurs- gestina fyrir hönd vina og sam- starfsfólks. Margir fagrir ís- lenzkir söngvar voru sungnir undir stjórn Mrs. Sylvíu Kárdal. Mr. Lárus Nordal flutti frumort kvæði, sem birtast mun í þessu blaði. Mrs. H. G. Sigurðsson og Mrs. Sylvía Kárdal lýstu mjög hlýlega þakklæti sínu og annara vina þeirra hjóna á Gimli, bæði fyrir starf Mr. J. J. Johnson, sem í tvö ár var forseti Gimli- deildarinnar, og hefir starfað með brennandi áhuga fyrir öll- um þjóðræknismálum, jafnframt því að leggja drjúgan skerf til fleiri málefna, og svo fyrir sam- huga gestrisni og góðsemd þeirra hjóna í garð allra, sem þeim hafa kynst hér. Mrs. J. A. Tallman mintist sérstaklega hinnar aldurhnignu móður Mr. J. J. Johnson og þeirrar frábæru umönnunar, sem hún hefir notið hjá syni og tengdadóttur. Síðan afhenti Mrs. Kristín Thorsteins- son þeim hjónum minningargjöf frá vinum þeirra á Gimli, bæði þeim sem viðstaddir voru og hinum sem fjarverandi voru. Bæði Mr. og Mrs. Johnson þökkuðu fyrir sig með velvöld- um orðum. Voru 'síðan sungnir fleiri íslenzkir söngvar, og að því búnu framreiddar ágætar veitingar að íslenzkum sið. — Árnaði síðan hver og einn þeim Mr. og Mrs. J. J. Johnson allra heilla í þeirra nýja heimkynni vestur við haf. MLss S . Stefánsson Hon. W. J. Major Merkur maður látánn Hinn 13. þ. m., lézt að heimili sínu hér í borginni Hon. W. J. Major dómari og um langt skeið dómsmálaráðherra Manitoba- fylkis 72 ára að aldri, vinsæll maður og góðviljaður; hann heimsótti ísland Alþingishátíðar- árið 1930 sem erindreki Mani- tobastjórnar og hafði jafnan hlýjar endurminningar úr þeirri för; ef honum hefði enst líf og heilsa myndi hann nokkurn- veginn fyrir víst hafa vitjað Is- lands öðru sinni, því svo oft hafði hann slíkt við orð. V. B. Anderson bæjarfulltrúi Kjörinn formaður trúnaðarráðs Svo sem áður var frá skýrt hér í blaðinu, sat V. B. Anderson bæjarfulltrúi í t Winnipeg árs- þing The Canadian Congress of Labor, sem haldið var í-Ottawa, en verkalýðssamtök þessi telja yfir hálfa miljón meðlima; á þingi þessu átti Mr. Anderson sæti í ýmissum mikilvægum nefndum; nú hefir hann verið kjörinn formaður trúnaðarráðs framkvæmdarnefndar Manitoba- deildarinnar fyrir hönd Trades and Labor Congress of Canada og ber þetta fagurt vitni því trausti, er hann alment nýtur meðal flokksbræðra sinna og samstarfsmanna. Stjórnarbylting í Persíu Árla morguns á sunnudaginn hinn 14. þ. m., gerðust þau tíð- indi í Persíu (Iran), að koungs- sinnar stofuðu til byltingar með það fyrir augum, að losa þjóðina undan járnkló hins aldurhnigna forsætisráðherra, Mohammed Mossadegh, sem kunnur er vítt um heim vegna pólitískrar ósvífni og valdagræðgi; tilraun þessi fór út um þúfur um stund- arsakir og lét Mossadegh flytja í svartholið allmargt hinna bitr- ustu andstæðinga; konungurinn sá þann kost vænstan að hypja sig úr landi ásamt drottningu sinni og nokkru af föruneyti; komst fjölskyldan þaðan til Iarq, en beið þar ekki lengi boðanna,, heldur flaug svo að segja samstundis til Rómar til óákveðinnar dvalar. En innan tiltölulega fárra klukkustunda hafði viðhorfið í Persíu tekið á sig annað snið; konungssinnar undir forustu Major-General Fazellah Zahedi, náðu brátt völdum og létu hneppa Mossadegh í gæzluvarð- hald, og þykir nú líklegt að hann verði sakaður um dróttinsvik. Zahedic hefir nú verið skipaður forsætisráðherra og hefir meðal annars heitið því að láta fara fram almennar þingkosningar í landinu; konungurinn er nú kom- inn heim aftur1 og hefir tekið við ríkisstjórn; hann er menntað- ur á vestræna vísu og vill að sögn, að í landinu ráði þing- bundin konungsstjórn að for- dæmi Breta. Lífrfr viðráðanlegir skógareldar Síðastliðinn hálfan mánuð hafa geisað í Quebecfylki einir þeir ægilegustu skógareldar, sem sögur fara af og hafa þúsundir ekra af fyrirtaks timburlandi orðið vágesti þessum að bráð; um þúsund manns unnu að slökkvitilraunum, nótt sem nýt- an dag, en loks kom áköf rign- ing, sem skakkaði leikinn. Skógræktarfélag íslands Reykjavík, 17. júlí, 1953 Aðalfundur Skógræktarfélags Islands, sem haldinn var á Laugarvatni dagana 4. og 5. júlí, fól mér að fyltja Þjóðræknis- félagi Vestur-íslendinga kveðjur og þökk fundarins fyrir gjöf þá, sem félagið sendi hingað til gróðursetningar trjáa á Þing- völlum. Á Þingvöllum hefur nú verið markaður reitur, um 6 hektara að stærð, í brekkunum vestur af Hrafnagjá um 500 metra norður af þjóðveginum í Vellankötlu, og er hann helgaður Vestur- Islendingum. Þar voru settar niður um 3000 trjáplöntur á þessu vori, og mun verða séð um, að annað eins fari niður á næsta vori. Sé þess óskað af hálfu Vestur- Islendinga mun engin fyrirstaða vera á því af hálfu Þingvalla- nefndar, að reiturinn verði hafð- ur stærri, alveg eftir því, sem óskað er, því að þar er landrými nóg á þrjá vegu. Landið er afar vel fallið til gróðursetningar, þar sem það liggur í skjóli fyrir norðaustan átt, og þar með vornæðingunum, sem eru öllum nýgræðingi hættulegastir. Það er og vaxið lágvöxnu birkikjarri, sem að vísu þarf að ryðja smátt og smátt, en það skýlir nýgræð- ingnum fyrstu árin. Jarðvegur er að vísu nokkuð grunnur svo sem allsstaðar á Þingvöllum, en hann er frjór og þar er ávalt nægur raki sakir hallans. F. h. stjórnar Skógræktarfélags íslands, Með virðingu, HÁKON BJARNASON Til Þjóðræknisfélags V esiur-í slendinga SkolasefTíingu fresíað Að fyrirmælum heilbrigðis- yfirvaldanna verður skólasetn- ingu í Winnipeg frestað til hins 15. september næstkomandi; eru þessar varúðarráðstafanir teknar vegna lömunarveikinnar, sem mjög hefir útbreiðst í borginni eins og raunar víðar í fylkinu eftir því sem á leið sumar; tala veikindatilfella þessarar teg- undar síðan um áramót, er nú komin á ellefta hundrað. Endurkosinn á þing William M. Benidickson, M.P. I sambandskosningunum, sem haldnar voru hinn 10. þ. m., hlaut William M. Benedickson endurkosningu í Kenora-Rainy River kjördæminu með miklu afli atkvæða; hann fylgir stjórn- arflokknum að málum. Mr. Benedickson er eins og menn að líkinduih muna íslenzk- ur í föðurætt, gáfumaður og fylginn sér vel.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.