Lögberg - 03.09.1953, Blaðsíða 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 3. SEPTEMBER, 1953
Lögberg
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Gefið út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA
J. T. BECK, Manager
Utanáskrift ritstjörans:
EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN.
PHONE 74-3411
Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram
The 'Lögberg” is printed and published by The Columbia Presa Ltd.
695 Sargent Avenue, Wlnnipeg, Manitoba, Canada
Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
Kærkominn ferðafélagi
Bækur og blöð, sem orðið hafa manni lengi samferða,
fléttast eins og ósjálfrátt inn í örlög manns og verða
óaðskiljanlegur hluti af manni sjálfum, svo er.það með Eim-
reiðina og mig; ég var enn innan við fermingu, er Eimreiðin
fyrst lagði leið sína inn á öræfabýli mitt og tókst þá með
okkur góð vinátta, og þó mig að vísu rámaði eitthvað í
Sunnanfara og kvæði Þorsteins Erlingssonar, er þar birtust,
svo sem „Örlög guðanna“, kynnist maður honum nákvæmar
og betur í ljóði við lestur kvæða hans í Eimreiðinni, er ég
inni undir Lindarseli í heiðinni minni sat yfir ánum; litlu
síðar komu Þyrnar á heimili mitt og þóttu enginn smá-
ræðisfengur.
Ég kyntist dálítið fyrsta ritstjóra Eimreiðarinnar dr.
Valtý Guðmundssyni sumarið 1908, er frelsisbarátta ís-
lenzku þjóðarinnar stóð sem hæst; af öðrum ritstjórum
þessa vinsæla tímarits átti ég nokkura samleið með dr.
Magnúsi Jónssyni, þó lengst og nánust hafi kynni mín orðið
við núverandi ritstjóra, Svein Sigurðsson, þennan spaka og
velviljaða alvörumann, sem sagt hefir þjóð sinni flestum
fremur til syndanna með þeirri hógværð, sem jafnan hefir
auðkent skaphöfn hans.
Ég hefi nýlokið lestri Apríl—Júní heftis Eimreiðar-
innar, sem nýlega er komið vestur, og haft af því ósegjan-
lega' ánægju; lesefni er fjölbreytt og að flestu leyti vandað;
þó verður naumast sagt, að kvæðin auki til muna á ljóð-
gróður samtíðarinnar, að undanskildu Kóngsbænadags-
kvæði Guðmundar Frímanns, sem ber á sér nokkurn
snilliblæ.
Við, sem ólumst upp við móðurbrjóst Fróns, fögnum
hverju fögru orði og hverri fagurri hugsun, er þaðan berst
og finnum í hvorutveggja andlega endurnæringu, og okkur
er ant um, að holl tímarit, svo sem Eimreiðin óneitanlega er,
nái hér sem styrkastri fótfestu.
Með það fyrir augum, að Vestur-lslendingum gefist
kostur á að glöggva sig á þeim stórmálum, sem nú eru efst á
baugi, svo sem stjórnarskrármálinu, birtir Lögberg eftir-
farandi kafla um þetta mikla mál málanna úr inngangsgrein
Sveins ritstjóra Við þjóðveginn:
„A landsfundum sínum í vetur höfðu flokkarnir stjórn-
arskrármálið á dagskrá, og virðist nú sem nokkur skriður
sé á það mál kominn, að íslenzka ríkið fái nýja stjórnarskrá
í s-amræmi við kröfur tímans. Bæði Framsóknarflokkurinn
og Sjálfstæðisflokkurinn gerðu um málið samþykktir á
landsfundum, og Framsóknarflokkurinn hefur lýst því ský-
laust yfir, að hann vilji láta leysa málið á sérstöku stjórn-
lagaþingi. Er sú ályktun í samræmi við það, sem stjórnar-
skrárfélögin í landinu, fjórðungsþingin, — og nú síðast hinn
nýi Lýðveldisflokkur, — hafa lagt til. Stjórnarskrárfélagið
í Reykjavík, sem telur meðal meðlima sinna menn úr
flestum eða öllum flokkum í landinu og starfar eingöngu
að lausn þessa máls, óháð öllum flokkum, hefur síðan það
var stofnað lagt ríka áherzlu á þetta atriði: að hin nýja
stjórnarskrá verði samin og lögtekin á sérstöku stjórnlaga-
þingi og staðfest með þjóðaratkvæði. Það þing mundi ekki
hafa nein önnur mál til afgreiðslu og ætti að vera háð á
Þingvöllum.
I stjórnarskrármálinu eru það sjö atriði, sem ræða
þarf og komast að niðurstöðu um: í fyrsta lagi, að sérstakt
stjórnlagaþing fjalli um málið, hvenær og hvar það komi
saman og hvernig það verði skipað. I öðru lagi, að sam-
kvæmt hinni nýju stjórnarskrá skipi þjóðkjörinn forseti, án
afskipta alþingis, ráðuneyti, sem fer með stjórn landsins á
ábyrgð forseta ákveðið kjörtímabil, án tillits til trausts eða
vantrausts alþingis. 1 þriðja lagi, hvort taka skuli upp þann
hátt, að forseti velji stjórnarmeðlimi sína utan alþingis, en
að þeir eigi setu á alþingi og hafi þar málfrelsi, meðan þeir
sitja í stjórn. 1 fjórða lagi, að alþingi eitt hafi allt löggjafar-
vald, forsetar alþingis hafi rétt til að setja bráðabirgðalög,
að beiðni ríkisstjórnar, en þingrofsvald forseta hverfi. f
fimmta lagi, að kjörtímabil forseta sé 4 ár, eins og nú er, og
að hann semji fjárlög og leggi fyrir alþingi. f sjötta lagi, að
skipun æðsta dómstóls þjóðarinnar sé ákveðin í stjórnar-
skrá landsins. Og í Sjöunda lagi, að landinu verði skipt í
fylki, sem njóti nokkurrar sjálfstjórnar, verði umdæmi
þessi ákveðin í stjórnarskránni, en málefnum þeirra og
stjórn skipað með lögum frá alþingi. Stungið hefur verið
upp á sjö fylkjum alls í landinu.
Það verður að vísu ekki sagt, að stjórnarskrármálið
væri haft mjög á oddinum í umræðum flokkanna fyrir kosn-
ingarnar. Þannig var þess lítt getið í útvarpsræðum flokks-
fulltrúanna 23. þ. m. Það var í rauninni ágætt, að draga
þetta mál ekki inn í flokkadeilur. Það er mál allrar þjóðar-
innar, en ekki neins sérstaks flokks. Áhugi fyrir því er
vakandi um allt land. Undanfarið hefur staðið yfir skoðana-
könnun um það á vegum Fjórðungssambands Austurlands.
Allir landsmenn þurfa að taka höndum saman um að leysa
það farsællega og til heilla fyrir land og lýð á ókomnum
árum og öldum.“
Heyskapur hefir gengið vel um land allt
Heyskapur hefir gengið vel um
land allt 24B—40 Center
Grasspretta allsstaðar með
ágætum og nýting heyja góð
Kostir súgþurrkunar og vot-
heysverkunar koma enn í ljós
Heyskapur hefir yfirleitt geng-
ið með ágætum hér á landi það
sem af er sumrinu, enda hafa
verið stöðugir þurrkar núna
síðustu vikurnar að heita má um
land allt. Bregður bændum mjög
við eftir undanfarin óþurrkaár.
Þá hefir sprettan verið sérstak-
lega góð, t. d. víða tvöföld á við
það, sem hún var í fyrra. Það
eina, sem amað hefir að er, að
gras var allvíða farið að spretta
úr sér, og hefir því komið sér
vel að nýtingin er hin bezta
víðast hvar.
Það hefir greinlilega komið í
ljós, að þeir bændur, sem hafa
súgþurrkun, eða hafa komið sér
upp votheysturnum, eða gryfj-
um, eru mun betur settir en
hinir. Hafa þeir verið fyrri til
við hirðinguna og náð inn betra
heyi.
Gengur bezt þar sem
súgþurrkun er
Heyskapartíð hefir verið mjög
góð tvær síðustu vikurnar,
sagði Steinþór Gestsson, bóndi
að Hæli 1 Gnúpverjahreppi, er
blaðið átti tal við hann í gær,
og heyskapur gengið vel. Gras
var mun meira en undanfarin ár,
en nokkuð farið að spretta úr
sér.
Sláttur er ekki nærri búinn
hér ennþá. Tún eru almennt
stór, frá 400—1000 hesta. Áber-
andi er, hve betur gengur þar
sem súgþurrkun er, sérstaklega
þar sem þar var hægt að byrja
slátt fyrr. Um þriðjungur bænda
hér hefir nú súgþurrkunartæki.
Smá væta var hér í dag, en ekki
teljandi þó.
Nokkuð óslegið af túnum
Magnús bóndi Guðmundsson
að Mykjunesi í Holtum, skrifar
blaðinu, að sláttur hafi hafizt
þar um og eftir síðustu mánaða-
mót. Byrjuðu menn heyskapinn
heldur seinna, en á horfðist
vegna óþurrkanna, sem þá voru.
Margir settu fyrst í vothey, en
síðustu viku var mjög hagstæð
tíð, þurrkur flesta daga og var
þá miklu af töðunni bjargað í
hlöðu eða sæti. Ýmsir eiga þó
allmikið óslegið af túnum enn-
þá, því víða er heldur fáliðað á
bæjum.
Mikill meirihluti bænda hér á
nú orðið dráttarvélar til ómetan-
legs hagræðis við erfiðustu
störfin, segir Magnús.
Grasvöxtur er með þeim ágæt-
um, að vart hefir jörð áður verið
jafnvel sprottin. Má segja, að
allt sé jafn hlutfallslega gott,
tún, engi og hagar. Vel fer fram
í görðum og ætti að geta orðið
góð uppskera, ef svo heldur
áfram sem nú horfir.
Langt komnir með túnaslátt
Heyskapur gengur hér vel,
sagði séra Gísli Brynjólfsson á
Kirkjubæjarklaustri. Þurrkur
hefir nú verið í tæpa viku og
víða er langt komið með tún.
Taðan hefir yfirleitt verkast vel,
en grasið var nokkuð úr sér
sprottið, og dregur það nokkuð
úr gæðunum. í dag er hér þykkt
loft, en rigningarlaust.
Fólksfæðin iefur
Ég náði tali af Þorgeiri Þor-
steinssyni á Grund í Skorradal,
segir fréttaritari vor á Akranesi.
Sagði hann að ofan Skarðsheið-
ar hefði létt til með norð-austan
átt og verið brakandi þurrkur í
allan gærdag. í dag var daufur
þerrir framan af, en sæmilegur,
þegar leið á daginn. Margir eiga
töluvert af túnum óslegið þar
um slóðir, einkum þar sem þau
eru stór og fólkið fátt. Þó munu
nokkrir bændur þar efra búnir
með tún, helzt þeir, sem mest
hafa látið í súrhey. Grasspretta
er með eindæmum góð.
Ekki hægi að vænta betra
Segja má, að tíðarfar hafi ver-
ið hið ákjósanlegasta til hey-
skapar hér um slóðir, segir frétta
ritari blaðsins í Borgarnesi, og
ekki hægt að vænta þess betra.
Bændur eru flestir langt komnir,
eða búnir að hirða af túnum, og
alls staðar er ágætis gras.
Töðufengur mikill og góður
Heyskapartíð hefir verið hin
ákjósanlegasta hér við Djúp,
símar Páll Pálsson að Þúfum.
Þurrkur hefir verið ágætur núna
eina viku, töðufengur óvenju
mikill og nýtist eftir hendinni.
Hefir taðan náðst inn algerlega
óhrakin. Verði þessi veðrátta
áfram, verða tún alhirt um mán-
aðamótin júlí—ágúst, en tún eru
þó þegar langt komin sums
staðar. Útlit er ágætt með gras
á útengi.
Hiri nú á sama iíma og sláiiur
hófsi í fyrra
I blaðinu í gær var skýrt frá
heyskap í Skagafirði og Eyja-
firði, samkvæmt frásögnum
fréttaritara blaðsins. Á sumum
bæjum í Skagafirði hafði nú
verið hirt af túnum um sama
leyti og sláttur hófst þar í fyrra,
og töðufengurinn var tvöfaldur.
í Eyjafirði voru óþurrkar fyrst
framan af, en svo kom blíðviðri,
þannig að nýting varð góð á
mestum hluta töðunnar. Spretta
er þar með fágætum góð, og
sumir bændur þegar byrjaðir á
öðrum slætti.
Byrjað þrem vikum fyrr
en síðastliðið ár
Heyskapur byrjaði almennt
hér um slóðir þremur vikum
fyrr en í fyrrasumar, símar
fréttaritari vor á Húsavík. Og
óhætt er að segja, að hann gangi
yfirleitt vel. Þeir, sem hafa súg-
þurrkun eða súrhey, eru þó mun
betur settir, og hafa margir
þeirra þegar hirt mikið. Hinir
eiga enn nokkuð mikið úti, en
Þegar við nú eftir meira en
átta ára dvöl hér á Gimli erum
að flytja okkur búferlum vestur
að hafi, er svo margs að minnast
og margt að þakka. Við höfum
átt því láni að fagna að kynnast
og vera með ágætu fólki — fólki,
sem á allan hátt hefir gert okk-
ur dvölina hér skemtilega og
eftirminnilega, og verða minn-
ingarnar um dvöl okkar hér
fagrar og heilnæmar hvar, sem
bústaður okkar verður hér eftir.
Viljum við nú einnig minnast
hins ánægjulega og myndarlega
samsætis, sem okkur var haldið
þriðjudagskvöldið 18. f. m. og
yfir sextíu manns tóku þátt í;
má segja með sanni, að þar ríkti
gleði og góðvild, ánægja og ein-
lægir vinarhugir. Það kvöld
verður minningaríkt og ógleym-
anlegt í hugum okkar. Það var
sannur sólskinsblettur í heiði,
sem margir hlýir ylgeislar munu
stafa frá.
Okkur er það ljóst, að „það
þýðir ekki að þylja nöfnin tóm,“
því svo margir lögðu þar hönd
að verki til að gera þetta kveðju-
samsæti sem ánægjulegast, að
rúm leyfir ekki upptalningu. —
Verður því að sætta sig við að
segja, að Mrs. Kristín Thor-
steinsson hafði samsætisstjórn
með höndum, en auk hennar
tóku til máls Mrs. H. G. Sigurðs-
son, Mrs. Talln^an, forstöðukona
„Betel“ og Mrs. Sylvía Kárdal,
sem einnig hafði söngstjórn með
höndum, þar sem allir sungu
saman, og var að því eftirminni-
leg skemtan. Einnig flutti Lárus
Nordal ágætt kvæði, sem fylgir
hér með.
Nú viljum við minnast þess,
að nokkrir nágrannar okkar
það hey er óhrakið og nýting
þess ætti að vera góð, ef veður
ekki spillist. Þurrklaust er hér í
dag, en engin úrkoma.
Síðari sláltur að byrja á
Skriðuklaustri
Heyskapartíð má teljast góð
það sem af er, símar Jónas
Pétursson á Skriðuklaustri í
Fljótsdal. Skúrasamt var þó víða,
einkum til dala fyrri hluta síð-
ustu viku, en ágætur þurrkur í
vikulokin. Tún eru víða að verða
búin og að mestu hirt. Á Skriðu-
klaustri er taða hirt og síðari
sláttur að byrja. Grasvöxtur er
með ágætum.
Kartöflugarðar líta ágætlega
út og rófur og aðrar garðjurtir.
Var gerl fyrir frumkvaeði Hall-
gríms Helgasonar
’ Fyrir frumkvæði og milli-
göngu Hallgríms Helgasonar
tónskálds var 20. júlí haldið
íslenzkt kvöld í ríkisútvarp-
inu í Sviss, Beromunster.
Dagskráin stóð í tvo tíma sam-
fleytt. Kvöldið hófst á því, að
leikið var á trómeta og básúnur
með kontrabössum ísland far-
sælda frón í fornum tvísöngs-
stíl. Þar næst flutti ávarp utan-
ríkisráðherra Bjarni Benedikts-
son, sem vakti sérstaka athygli.
Síðan voru flutt íslenzk þjóðlög
fyrir hljómsveit eftir Hallgrím
Helgason undir stjórn höfundar.
Auk þess fluttu erindi dr. Alex-
ander Jóhannesson um tungu og
bókmenntir, prófessor Gylfi Þ,
Gíslason um atvinnuvegi og
utanríkisverzlun, dr. Jón Gísla-
son um íslenzka þjóðtrú og
ævintýri og Hallgrímur Helga-
son um skáldlist og söng Islend-
inga að fornu og nýju. Tónlist
var flutt eftir Sveinbjörn Svein-
björnsson, Þórarinn Jónsson, dr.
Pál Isólfsson, Jón Leifs (íslands
forleikur með útvarpshljómsveit-
inni svissnesku undir stjórn
heimsóttu okkur 6. f. m. og
færðu okkur góðar gjafir, var
og þetta sama fólk með í þessu
áminsta samsæti, meðal þeirra
voru: Lárus og Anna Nordal,
Mr. og Mrs. H. G. Sigurðsson,
Mr. og Mrs. Eric Stefánsson, Mr.
og Mrs. Daníel Pétursson, Mr. og
Mrs. Sig. Guðmundsson, Sigur-
jón Jóhannsson og dóttir hans
Steinunn, Guðm. Jónsson, Gyð-
ríður Anderson og Sæunn
Bjarnason.
Við þökkum öllu þessu fólki,
við þökkum Gimlibúum fyrir
margra ára ágæta viðkynningu
og vinarhug og biðjum guð að
lýsa friði yfir þessum bæ og
íbúum hans. — Við kveðjum
ylckur með kærum minningum.
Mr. og Mrs. Jón Júlíus Johnson
Hlýiur að ganga vel
Þetta er með allra beztu sumr-
um, sagði Sveinn bóndi á Egils-
stöðum á Völlum, er blaðið átti
tal við hann í gær. Þurrkur hefir
verið hér því nær dag hvern að
undanförnu, og ýmsir eru þegar
búnir með tún. Alls staðar, sem
ég hefi haft fregnir af, hefir hey-
skapurinn gengið ágætlega, enda
getur ekki annað verið, tíðarfarið
hefir verið það gott. Þó hafa
skúrir í dölum tafið þar eitthvað
fyrir.
Hirt eflir hendinni
Bændur hér um slóðir hafa
hirt töðu sína svo að segja eftir
hendijsii að undanförnu, símar
fréttaritari vor á Vopnafirði.
Þurrkar hafa verið miklir og
spreíta góð. Fyrri slætti er nú
víðast aij verða lokið.
—Mbl., 22. júlí
Paul Búrkhards) og Björgvin
Guðmundsson.
Margir erlendir lista- og vís-
indamenn aðstoðuðu ennfremur
við kvöldið, svo sem Eskild Rask
Nielsen óperusöngvari frá Kaup
mannahöfn, Renate Bauermeist-
er óperusöngkona frá Berlín,
söngstjórinn Walter Simon
Huber, Zurich, með blönduðum
kór, dr. Eduard Strauble með
þætti úr sögu íslands flutt af
þremur upplesendum og Edgar
Frey með landlagslýsingu. Enn-
fremur lék Hans Richter-Haaser
frá Detmold einleik á píanó
(íslenzkan dans eftir Hallgrím
Helgason) og dönsk kammer-
hljómsveit lék „Intrada og Can-
sona“ eftir sama höfund, mag-
ister Chr. V. Pedersen stjórnaði'
Odense Motekor, orgel: René
Muller.
Sérstakur þáttur var helgaður
upplestri úr Eddukvæðunum.
Var lesið upp úr Völuspá og
Hávamálum, fyrst á íslenzku og
síðan þýzkar þýðingar eftir
Felix Genzmer og Karl Esmarch.
Karlakór K.F.U.M. undir stjórn
Jóns Halldórssonar söng í lok
þessa atriðið „Ár vas alda“ í
hinni prýðisgóðu og fornlegu út-
setningu Þórarins Jónssonar.
Dr. Hermann Leeb og dr.
Guiod Frei sáu um niðurskipun
dagskrárinnar og stjórn. Sýndu
þeir báðir mikinn áhuga á að
ísland yrði kynnt á lifandi og
fjölbreytilegan hátt. Eiga þeir
þakkir skilið fyrir framtak sitt
og fullan skilning á mikilvægu
hlutverki og ómetanlegu menn-
ingarframlagi útherjanna í At-
lantshafi.
Tímarit svissneskra útvarps-
hlustenda, Basel-Bern-Zurich,
flytur í tilefni kvöldsins grein
um land og þjóð, prýdda hinum
glæsilegustu myndum.
—VÍSIR, 1. ágúst
Gesturinn: — Það er auglýst,
að hér þurfi ekki að gefa þjórfé.
Þjónninn: — Já, það veit ég
vel. En það er hins vegar ekki
bannað að gefa það!
VÍSUR
í lilefni af burtíör Mr. og Mrs. Jón J. Johnson frá Gimli
Út við Vancouver strendur, þar sem veðrið er milt,
þar sem hauðrið er fagurt og hafið er stillt.
Þar sem háfjöllin teygja sig himninum mót,
þar sem skógurinn hylur allt, skriður og grjót,
Þar sem laxinn í torfum sér leikur í ám,
þar sem ávextir hanga í hávöxnum trjám,
Þar sem ístypptum hnjúkum ljær ársólin traf,
þar sem kveldsólin gyllir hið kyrláta haf.
Þar er sólsetrið fagurt og friðandi milt,
eins og væri það næstum því alsælu skylt.
En þar hafa vinir okkar valið sér stað,
og af heilhug við óskum til heilla með það.
Og verði þeim aftanskin æfinnar bjart.
Við þökkum þeim fyrir svo margt, já, svo margt.
Lárus B. Nordal
Þakklætis- og skilnaðarorð
íslenzkt kvöld í ríkisútvarpi í Sviss