Lögberg - 24.09.1953, Side 1

Lögberg - 24.09.1953, Side 1
Phone 72-0471 BARNEY'S SERVICE STATION NOTRE DAME and SHERBROOK Gas - Oil - Grease Tune-Ups Accessories 24-Hour Service Repairs NÚMER 39 Fréttir fró ríkisútvarpi íslands 13. SEPTEMBER Undanfarnar vikur hafa Sjálf- stæðisflokkurinn og Framsóknar flokkurinn ræðst við um mynd- un nýrrar stjórnar. Samningar tókust í vikunni, sem leið, og nýja stjórnin var mynduð í fyrra dag. Á ríkisráðsfundi um há- degið þann dag féllst forseti Is- lands á beiðni Steingríms Stein- þórssonar forsætisráðherra um lausn frá embætti fyrir sig og ráðuneyti sitt, og á sama fundi skipaði forsetinn Ólaf Thors for- sætisráðherra. Ólafur Thors verður einnig atvinnumálaráð- herra. Úr stjórninni gengu tveir menn, Björn Ólafsson og Her- mann Jónasson, en í stað þeirra komu Ingólfur Jónsson alþingis- maður og dr. Kristinn Guð- mundsson skattstjóri. Bjarni Benediktsson er dóms- og menntamálaráðherra, Eysteinn Jónsson fjármálaráðherra, Ing- ólfur Jónsson viðskipta- og iðn- aðarmálaráðherra, dr. Kristinn Guðmundsson, utanríkisráðherra og Steingrímur Steinþórsson landbúnaðarráðherra. — Ólafur Thors forsætisráðherra flutti út- varpsávarp í fyrrakvöld og greindi frá stjórnarmynduninni og málefnasamningi flokkanna. ÍÞað er höfuðstefna ríkisstjórnar- innar að tryggja landsmönnum sem öruggasta og bezta afkomu. Hún hyggst beita sér fyrir halla- lausum ríkisbúskap og fyrir því að atvinnuvegirnir geti orðið reknir hallalaust þannig að þeir veiti næga atvinnu. Haldið verður áfram að vinna að fram- kvæmd framfaramála þeirra, sem fyrrverandi ríkisstjórn beitti sér fyrir og um einstök mál er þetta tekið fram: Lokið verði á næsta Alþingi endurskoðun skatta- og útsvarslaga m. a. með það fyrir augum að lækka beina skatta og færa með því til leið- réttingar misræmi vegna verð- lagsbreytinga og stuðla að auk- inni söfnun sparifjár. Hraðað verði byggingu orkuvera, dreif- ingu raforku og fjölgun smá- stöðva vegna byggðarlaga í sveit koma fastri skipun á þau mál. — Haldið verði áfram að stuðla að öflun atvinnutækja til þeirra byggðarlaga, sem við atvinnu- örðugleika eiga að stríða til þess að fullnægja atvinnuþörf íbú- anna og stuðla að jafnvægi í byggð landsins. — Til þess að auðvelda framkvæmd varnar- mála verði sett á stofn sérstök deild í utanríkisráðuneytinu, sem fari með þau mál. — Fjár- hagsráð sé lagt niður, enda séu nauðsynlegar ráðstafnanir gerð- ar af því tilefni. Þetta voru meginatriðin í mál- efnasamningi stjórnarflokkanna. ☆ Vöruskiptajöfnuðurinn í á- gústmánuði s.I. var hagstæður um 12,3 miljónir króna. Inn voru fluttar vörur fyrir 63 milj- ónir króna en út fyrir rúmlega 75,3 miljónir. Vörujöfnuðurinn frá áramótum til ágústloka er óhagstæður um 217,6 miljónir króna. ☆ Nokkrir íslenzkir togarar veiða nú fyrir Þýzkalandsmarkað og selja hinir fyrstu þeirra afla smn í Þýzkalandi á mánudaginn og þriðjudaginn. Níu togarar eru nú farnir að veiða karfa fyrir frystihúsin upp á Rússlands- samningana. Nokkrir togarar eru á saltfisksveiðum eða veiða fisk í ís og til herzlu. Enginn ísfiskur hefir enn verið fluttur til Eng- lands, en brezki kaupsýslumað- urinn Dawson, er samninga hef- ir gert um kaup á íslenzkum togarafiski, hefir ákveðið að taka á móti fiskinum í Grimsby. Hann hefir keypt þar fismóttöku hús, sem verið er að breyta og lagfæra, ennfremur íshússvélar, sem framleiða um 150 lestir af ís á viku. ☆ Nokkur síldveiði er nú í rek- net bæði suðvestanlands og norðan, ennfremur austur í hafi. Fáeinir bátar eru fyrir austan ísland og salta skipverjar um borð, — á Húnáflóa veiða nokkr- ir í reknet, og margir bátar hafa verið að reknetaveiðum frá ver- stöðvum við Faxaflóa og víða sunnanlands og vestan, en síldin hefir verið heldur smá til söltun- ar, og hafa útgerðarmenn og síldarsaltendur boðað stöðvun söltunar, fáist ekki starfsgrund- völlur fyrir söltun síldarinnar. Talsvert magn hafði verið selt fyrirfram af Faxasíld, en þar var miðað við svo stóra síld, að meira en helmingur þess afla, sem nú fæst, nær ekki því máli. ☆ í fyrrakvöld höfðu skrifstofu Rauða Kross Islands borizt sam- tals 32.000 krónur í Grikklands- söfnunina, ennfremur 10 lestir af saltfiski frá Sölusambandi ís- lenzkra fiskframleiðenda, og aðalfundur Stéttarsambands bænda heimilaði stjórn sam- bandsins að verja allt að 30.000 krónum til kaupa fyrir osta frá mjólkurbúum landsins og senda þá sem gjöf til jarðskjálftasvæð- anna í Grikklandi. ☆ Á ríkisráðsfundi í fyrradag veitti forseti íslands dr. Helga P. Briem lausn frá embætti sem sendiherra íslands og ráðherra með umboði í Sovétríkjunum. Á sama fundi skipaði forseti, sam- kvæmt tillögu fráfarandi utan- ríkisráðherra, Pétur Thorsteins- son deildarstjóra í utanríkis- ráðuneytinu, til þess að vera sendiherra og ráðherra með um- boði í Sovétríkjunum. — Þessir menn voru á fundinum skipaðir í orðunefnd hinnar íslenzku fálkorðu: Birgir Thorlacius skrif- stofustjóri, Jón Maríasson banka stjóri, Pálmi Hannesson rektor og Richard Thors forstjóri. Enn- fremur var Arngrímur Kristjáns- son skólastjóri, formaður Sam- bands íslenzkra barnakennara, skipaður varamaður í nefndina. Forsetaritari á samkvæmt stöðu sinni sæti í nefndinni sem orðu- ritari. ☆ Aðalfundur Stéttarsambands bænda var haldinn í vikunni, sem leið, að Bjarkarlundi. Frá því var skýrt á fundinum að smjörbirgðir í landinu væru nú alls yfir 300 lestir og mjólkur- framleiðslan í stöðugri aukningu. Taldi fundurinn óhjákvæmilegt að gerðar verði öruggar ráðstaf- anir til þess að koma birgðum þessum í verð hið allra fyrsta og úyggj3 framhaldandi markað fyrir mjólkurvörur. Skorað var á ríkisstjórnina að fella niður skömmtun smjörs en láta allt smjör njóta sömu niðurgreiðslu, og ennframur að hætta niður- greiðslu á smjörlíki. Æskilegt var talið, að ákveðinn verði á hverjum tíma það mikill útflutn- ingur af osti, smjöri og öðrum landbúnaðarvörum að hann fyr- irbyggi óeðlega birgðasöfnun og þessar vörur vprði verðbættar þannig, að sama nettóverð fáist fyrir þær og sams konar vörur á innlendum markaði. Fundurinn treysti því, að Alþingi og ríkis- stjórn setji lög á næsta alþingi, er veiti fjárhagslegan stuðning til útflutnings landbúnaðarvöru, ekki minni eða óhagstæðari en bátaútvegurinn nýtur nú. — Margar aðrar ályktanir voru gerðar á fundinum og m. a. var stjórn sambandsins falið að vinna að því, að framlög til raforku- mála verði aukin svo, að raforku- þörf dreifbýlisins verði fullnægt á næstu 6 til 10 árum. ☆ Á fjórðungsþingi Vestfirðinga, sem nýlega var haldið, var fagn- að þeirri hugmynd að byggja sérstakt hús yfir íslenzk handrit og önnur fornrit og hvatt til þess að hver og einn leggi fram sinn skerf til þeirrar fram- kvæmdar, svo að unnt verði sem fyrst að hefjast handa um bygg- ingu slíks húss, en þar verði jafnframt miðstöð fornfræði- iðkana í landinu. ☆ Norðurlandsmóti í knatt- spyrnu lauk á Akureyri á mánu- dagskvöldið, og sigraði félagið Þór á Akureyri. ☆ Landsþing Kvenfélagasam- bands Islands var sett á mánu- daginn í Reykjavík. I því eru 202 félög og félagskonur samtals um 12.000. Á s.l. ári gengust sam- bandsfélögin fyrir 139 námskeið- um og sóttu þau nær 2800 konur. ☆ Félag íslenzkra organleikara hélt nýlega aðalfund sinn og var þar samþykkt að halda árlega 6 til 8 tónleika í kirkjum í Reykja- vík, Hafnarfirði og Akureyri og ef til vill víðar. Verða þeir einu nafni kallaðir Musica sacra og annast félagsmenn sjálfir flutn- ing. Fyrstu tónleikarnir verða í dómkirkjunni í Reykjavík í þessum mánuði. Páll ísólfsson leikur þar einleik. Þá er í ráði að fá árlega einn kunnan erlendan organleikara til að halda tón- leika í þessum flokki. Hinn fyrsti er væntanlegur í aprílmánuði næstkomandi, og er það E. Power Biggs, sem er einn frægasti organleikari Bandaríkjanna. og við sjó, sem ekki hafa raf- magn eða búa við ófullnægj- andi raforku, og unnið að lækk- un raforkuverðs, þar sem það er hæst. Tryggt verði til þessara framkvæmda fjármagn, sem svarar 25 miljónum króna á ári að meðaltali næstu ár. I þessu skyni verði lögboðin árleg fram- lög af ríkisfé aukin um 5 til 7 miljónir króna, og rafmagsveit- um ríkisins og raforkusjóði tryggðar 100 miljónir króna að láni og sitji það fyrir öðrum láns- útvegunum af hendi ríkisstjórn- arinnar, að undanteknu láni til sementsverksmiðjunnar. Auk þess séu gerðar ráðstafnanir til að hraða áframhaldandi virkjun Sogsins. — Tryggt verði aukið fjármagn til íbúðabygginga í kaupstöðum, kauptúnum og þorpum, lögð áherzla á að greiða fyrir byggingu íbúðarhúsa, sem nú eru í smíðum, og lagður grunJvöllur að því að leysa þetta vandamál til frambúðar. — Því verði til vegar komið, að framleiðendur sauðfjárafurða eigi kost á rekstrarlánum út á afurðir sínar fyrirfram snemma á framleiðsluárinu eftir hlið- stæðum reglum og lánað er út á sjávarafurðir. — Endurskoðaðar verði reglur um lán til iðnaðar- ins með það fyrir augum að Paul W. Goodman Býður sig fram í 2. kjördeild Við bæjarstjórnarkosningarn- ar, sem fara fram þann 28. október næstkomandi, býður sig fram í 2. kjördeild til bæjar- stjórnar í Winnipeg mætur og vinsæll Islendingur, Paul W. Goodman, 562 Goulding Street; hann er fæddur í Selkirk 1905, sonur Páls Goodman og Ingi- ríðar Magnúsdóttur; hann naut alþýðuskólamentunar í fæðing- arbæ sínum, fluttist ungur til Winnipegborgar og gerðist þar rafvirki. Mr. Goodman er með- eigandi og meðstjórnandi fyrir- tækisins Sargent Electric, sem mjög hefir fært út kvíar hin síðustu ár. Mr. Goodman er kvæntur Lenu Polson og eiga þau tvær dætur; hann er efni í ágætan bæjarfulltrúa og er þess því að vænta, að íslenzkir kjósendur veiti honum einhuga kjörfylgi. Það slys varð á Hólmavík fyrra fimmtudag, að stúlkubarn á fjórða ári týndist, og fannst ekki fyrr en á sunnudaginn og var þá látið. Leit var hafin að litlu stúlkunni þegar á fimmtu- dagskvöidið og leitaði síðan fjöldi manna að henni á föstu- dag, laugardag og sunnudag, en þann dag fannst hún fram á Þiðriksvalladal, um 10 km. frá Hólmavík. Hún hét Daðey María Pétursdóttir. — Það slys varð í Reykjavík snemma á sunnudags morguninn að Bjarni Oddsson læknir beið bana, er bifreið hans fór út af veginum á Miklubraut. ☆ Formaður Tónlistarfélagsins í Reykjavík hefir sagt frá því í blaðaviðtali, að þýzki söngvarinn Fischer Dieskau komi til Reykja- vílcur í dag og syngi þar á tveim- ur söngskemmtunum fyrir fé- laga Tónlistarfélagsins, ennfrem- ur eigi félagið von á þýzkum hljómlistarmönnum í nóvember í sambandi við þýzka listsýn- ingu, sem þá verði haldin hér. ☆ Þórunn Jóhannsdóttir hefir haldið hljómleika hér að undan- förnu og farið víða um land og verið hvarvetna mjög vel tékið. Hún er nú 14 ára. I gærmorgun fór hún með föður sínum til Osló og þar átti hún að halda hljómleika í hátíðasal háskólans í dag. ☆ Landsmót Esperantista hófst í Reykjavík í gær. I sambandi ís- lenzkra esperantista eru 4 félög. Forseti sambandsins er séra Halldór Kolbeins, Vestmanna- eyjum. ☆ Stjórn Útgerðarfélags Akur- eyringa hefir nýlega keypt tog- arann Helgafell, Reykjavík. — Kaupverð var 5% miljón króna. Skipið hlaut nafnið Slétibakur. Framhald á bls. 5 Glæsilegt hátíðarhald í Mikley vegna ferjusambands milli eyjar og meginlands Á mánudaginn var tjaldaði Mikley sínu bezta, því þá fór fram í samkomuhúsi bygðarinn- ar nokkurs konar vígsluathöfn í tilefni af hinu nýstofnaða ferjusambandi milli eyjar og meginlands; veður var fagurt og stilt og ánægjulegt um að litast í þessari vingjarnlegu frum- herjabygð, er íslenzkir land- námsmenn lögðu grundvöll að fyrir sjötíu og átta árum; við bygðarlagið eru af skiljanlegum Merkur stjórn- málamaður látinn Síðastliðinn laugardag lézt af völdum krabbameins á sjúkra- húsi í Toronto, Mr. .Gordon Graydon, sambandsþingmaður fyrir Peel kjördæmið í Ontario, 56 ára að aldri; hann stóð í fremstu röð sambandsþing- manna sinnar samtíðar; hann fylgdi íhaldsflokknum að mál- um og var um hríð framsögu- maður hans í þinginu. Mr. Graydon var í rauninni hátt haf- inn yfir flokkaskiptingu og naut trausts allra þingflokka jafnt. Liberalstjórnin gerði hann að varaformanni nefndar þeirrar, er um utanríkismálin fjallaði og skipaði hann jafnframt erind- reka á þing sameinuðu þjóðanna fyrir Canada hönd; við fráfall hans lýsti forsætisráðherra yfir því, að með honum væri genginn grafarveg einn af ágætustu son- um canadisku þjóðarinnar og í sama streng tóku foringjar hinna þingflokkanna, Mr. Drew, Mr. Low og Mr. Coldwell. Mr. Graydon var talinn sér- fræðingur á vettvangi utanríkis- mála og varð þjóðkunnur vegna meðferðar þeirra á þingi. Líknarsamlagið Hin árlega fjársöfnun í sjóð Líknarsamlags Winnipegborgar, The Red Feather Campaign, er nú í þann veginn að hefjast, og er þess að vænta, að borgarbúar, svo sem við hefir gengist á und- anförnum árum, bregðist vel við; hér er um fyrirtæki að ræða, ,sem grípur djúpt inn í velfarn- an margra manna, kvenna og barna, sem höllum fæti standa i lífsbaráttunni og þarfnast sam- úðarríks stuðnings af hálfu sam- borgara sinna; hér er ekki um fórnfærslu að ræða af hálfu sjálgbirgra þegna bæjarfélags- ins, heldur sjálfsagða skyldu, sem öllum ber jafnt að inna af hendi með fúsum vilja og glöðu geði. Minnist þess, er umboðsmaður Líknarsamlagsins drepur á dyr, að hann heimsækir yður mann- úðarinnar vegna og yðar sjálfra vegna. ástæðum tengdar margar minn- ingar, minningar eldrauna og líka mikilla sigra; í samkomu- húsinu var setin vegleg veizla þar sem borð svignuðu undir dýrindisréttum og hvorki skorti gleði né góðan fagnað. Veizlustjórn hafði með hönd- um Helgi K. Tómasson og fórst honum sá starfi með ágætum úr hendi; margar ræður voru flutt- ar og var ræða Dr. S. O. Thomp- son þingmanns Gimli kjördæmis yfirgripsmest að efni til, en dugnaði hans eiga Mikleyingar eigi aðeins að þakka ferjuna, heldur svo margt annað. Fjórir ráðherrar Manitoba fylkis, Campbell forsætisráð- herra, Mr. Morton, Mr. Green- lay, Mr. Shuttleworth og Bach- insky þingforseti, heiðruðu Mikleyinga með nærveru sinni og fluttu allir hlýjar og fagur- yrtar ræður og þökkuðu höfð- inglegar viðtökur; ýmsir fleiri tóku til máls viðriðnir hinar ýmsu stjórnardeildir, og einnig sambandsþingmaður Selkirk kjördæmis, Mr. Wood. Viðstadd- ur var einnig yfirsmiður ferj- unnar, Mr. K. Thorsteinsson í Riverton. Af hálfu íslendinga ávörpuðu veizlugesti, auk veizlustjóra, Helgi Jones, séra H. S. Sigmar, B. Egilsson, Einar P. Jónsson og frú Ingibjörg Jónsson. I næstu viku væntir Lögberg að geta birt eitthvað af myndum frá hátíðahaldinu ásamt frekari greinargerð. Elliheimilið Grund byggir sundlaug fyrir baðlækningar Hafin er nú bygging sund- laugar á vegum Elliheimilis- ins Grundar.Ær ætlunin að nota laugina í sambandi við heilsugæzlu á sjúklingum elliheimilisins. Elliheimilið Grund hefir nú fengið fjárfestingarleyfi fyrir byggingu sundlaugarinnar. Steypuvinna að hefjast Eru framkvæmdir þegar byrj- aðar. Hefir undanfarið verið unnið við grunn byggingarinnar og steypuvinna er að byrja. Sundlaugin verður 57,75 fer- metrar að stærð og 2600 rúmm. Verður sundlaugin álma vestur úr aðalbyggingunni. Tveggja hæða viðbótarálma Framkvæmdir standa nú einn- ig yfir á viðbótarbyggingu fyrir elliheimilið. Er það steinsteypt tveggja hæða álma, 2955 ferm. á stærð. Alþbl., 28. ágúst íslenzkur arkátekt stendur fyrir endurbyggingu ráðhúss í Odense Kjarlan Sigurðsson frá Eyrar- bakka hefir unnið við húsa- byggingar í Danmörku Um þessar mundir er verið að endurbyggja og auka ráðhúsið í Odense í Dan- mörku. Kjartan Sigurðsson arkitekt frá Eyrarbakka hefir teiknað bygginguna og stendur fyrir verkinu. Ráðhúsið í Odense í Dan- mörku er mikil bygging og. veg- leg. Er nú unnið að því að endur- byggja hana algerlega og er það mikið verk. Hefir Kjartan gert allar teikn- ingar og stjórnar verkinu. Lærði húsbyggingalist í Danmörku Kjartan Sigurðsson er ættað- ur frá Eyrarbakka. Hann lærði húsbyggingalist í Danmörku á stríðsárunum. Kom hann síðan hingað til íslands og vann hér um nokkurra ára skeið. En síðan fluttist Kjartan aftur til Dan- merkur og hefir unnið þar síðan. —Alþbl., 27. ágúst

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.