Lögberg - 05.11.1953, Blaðsíða 3

Lögberg - 05.11.1953, Blaðsíða 3
I 3 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 5. NÓVEMBER, 1953 Fréttir fré ríkisútvarpi íslands 11. OKTÓBER Farið er nú að kólna í veðri og á föstudaginn var hvítt í byggð hvarvetna um Suðvest- urland, en talsverður snjór norðarlega á Vestfjörðum. í fyrri nótt var frost um allt land, mest á Þingvöllum, 8 stig. * I gær var nýja raforkuverið við Laxá í Suður-Þingeyjar- sýslu tekið í notkun að við- stöddum fjölda gesta. Stein- grímur Steinþórsson raforku- málaráðherra flutti ræðu og hleypti síðan háspennustraum- inum á línuna. I ræðu sinni sagði ráðherrann m. a.: „Ekkert hefir þjáð og þjakað hina íslenzku þjóð allt frá því að landið var numið í öndverðu eins og kuldi og myrkur. Þessar andstæður ljóss og yls höfðu því nær kyrkt þessa litlu þjóð í heljargreipum. Mikið hefir á- unnist að bæta úr þessu hin síðustu ár, — en allt of marga vantar r-afmagn. Það er því full ástæða til þess að gleðjast yfir þeirri athöfn, sem hér fer fram í dag, þegar hin nýja aflstöð Laxárvirkjunarinnar er opnuð og tekur til starfa. Hér gerist það tvennt, að þeir aðiljar sem áður höfðu of lítið rafmagn, fá það nú nægilegt — en jafnframt er verið að leggja grundvöll að því að margar sveitir sem ekk- ert rafmagn hafa, geti nú höndl- að þetta hnoss innan skamms." Fyrsta virkjun Laxár tók til starfa haustið 1939 og næstu virkjun var lokið 1944. Þessar tvær virkjanir voru samtals 6600 hestöfl, en nýja virkjunin er um 8000 kílóvött. Þegar í hana var ráðist, var gerður samningur milli ríkisins og Akureyrarbæjar um sameign virkjunarinnar, og er eignar- hluti ríkisins 35 af hundraði. Skipuð var þá sérstök Laxár- virkj unarstj órn og hefir Steinn Steinsen bæjarstjóri verið for- maður hennar frá upphafi. — Samningar um aðalhluta verks- ins voru undirritaðir sumarið 1950 og var áætlað að virkjunin gæti tekið til starfa haustið 1952, en ýmsir erfiðleikar og dráttur á afgreiðslu efnis til virkjunarinnar kom þá í veg fyrir að hægt væri að ljúka henni fyrr en nú. Kostnaður við þessa aflstöð var áætlaður í upphafi um 60 miljónir króna og mun sú áætlun standast. Fjárins hefir verið aflað þann- ig, að lán frá efnahagssamvinnu stofnun Bandaríkjanna er 5,4 miljónir króna, lán frá alþjóða- bankanum 7 miljónir, lán úr mótvirðissjóði 43 miljónir króna, lán frá Akureyrarbæ 3,2 milj- ónir og skuldabréfasala 1,4 milj- ónir króna. I lok ræðu sinnar benti ráðherrann á það, að í málefnasamningi þeim, sem nú- verandi ríkisstjórn varð ásátt um, þegar hún tók við störfum, er svo ákveðið að stórmiklu meira fjármagni en áður hefir verið skuli varið til þess að koma raforku sem víðast um byggðir landsins, — jöfnum höndum með því að leggja línur frá þeim orkuverum sem til eru, svo og á þann hátt að reisa ný orkuver og miðla frá þeim. ☆ Á föstudaginn kemur verður nýja aflstöðin við Irafoss í Sogi tekin í notkun, en þaðan mun áburðarverksmiðjan nýja, sem nú er í smíðum fá rafmagn sitt. ☆ Fimmtánda Iðnþing íslend- inga var sett í Reykjavík í gær. Fulltrúar verða þar um sjötíu og voru 59 komnir til þings. Fimmtíu og sex félög eru nú í Landssambandi iðnaðarmanna og í þessum félögum eru sam- tals um 2500 félagsmenn. ☆ Síldveiðin hefir verið heldur lítil að undanförnu og vantar enn mikið á að veiðst hafi Faxa- síld upp í samninga þá, sem gerðir hafa verið. Togarar veiða í ís og salt. Togarinn Röðull seldi í Bremenhaven í Þýzka- landi í gær 185 lestir fyrir 110.000 mörk, og er það bezta sala hjá íslenzkum togara á þessu ári. Sennilegt er, að einn 'togari selji í Þýzkalandi í næstu viku. ☆ Bæjarútgerð Hafnarfjarðar hefir keypt togarann Elliðaey frá Vestmannaeyjum fyrir 5,3 miljónir króna, og gekk bæjar- stjórn Vestmannaeyja endan- lega frá þeirri sölu á miðviku- dagskvöldið. Menntaskólinn á Akureyri var settur á sunnudagipn var. Þór- arinn Björnsson skólameistari flutti ræðu og hvatti nemendur til þess að vanda allt sitt far, utan skóla og innan. Skólinn starfar í vetur í 11 deildum og eru nemendur 244 að tölu. ☆ Um miðjan s.l. mánuð var byrjað að grafa fyrir grunni menntaskólahúss í Reykjavík, en gamla menntaskólahúsið er fyrir löngu orðið allt of lítið fyrir skólann. Nýja húsið mun verða 15.500 rúmmetrar og flat- armálið 1800 fermetrar. Fram- hlið hússins verður rúmlega 80 metra löng. Gert er ráð fyrir, að byggingin muni kosta 15 til 16 miljónir króna. Um 500 nem- endur eiga að geta notið kennslu í skólanum samtímis. ☆ 1 s.l mánuði var háð í Björg- vin í Noregi svo nefnt Víkinga- þing, en það er ráðstefna nor- rænna og brezkra fræðimanna, sem fást við rannsóknir á vík- ingaöldinni. Kristján Eldjárn þjóðminjavörður sótti þingið af íslands hálfu og flutti þar er- indi um fjalir frá Flatatungu í Skagafirði, en þær eignaðist Þjóðminjasafnið í sumar. Fjalir þessar eru útskornar í svo nefndum Hringaríkisstíl frá söguöld, og eru einu tréskurðar- minjarnar, sem til eru nú í þeim ■stíl. Fjalirnar munu vera frá fyrstu áratugum eftir kristni- 'tökuna á íslandi, og telur þjóð- minjavörður þær með merkustu fornleifum, sem komið hafa í safnið í seinni tíð. Almennur kirkjufundur hefst í Reykjavík á föstudaginn kem- ur og verða aðalmálin þar Ríki og kirkja — og Kristindómur og kennslumál. ☆ Sú nýskipun hefir orðið í hljómlistarmálum Ríkisútvarps- ins, að hljómsveit þess hefir verið stækkuð og jafnframt hef- ir útvarpið tekið að sér rekstur Sinfóníuhljómsveitarinnar. Olav Kielland verður hljómsveitar- stjórinn fyrst um sinn. Útvarpið mun gangast fyrir opinberum tóhleikum í vetur og hafa tveir þegar verið haldnir. Verður á- herzla lögð á það í tónlistar- flutningi útvarpsins, að þar fel- ist eitthvað fyrir flesta tónlist- arunnendur. Útvarpið hefir fengið heimild til að flytja ó- prentuð tónverk eftir Svein- björn Sveinbjörnsson, sem geymd hafa verið í Landsbóka- safninu, og verður úr þeim valið til flutnings í vetur. Nú er útvarpað 7 til 9 stundir á dag, um 700 flytjendur koma fram i útvarpinu á ári, auk kóra og hljómsveita, flutt eru um 6 til 7 hundruð erindi á ári, á annað hundrað einsöngvarar láta til sín heyra og flutt eru 50 til 60 leikrit. Ýmislegt nýtt er ráðgert með vetrinum og m. a. verður tekinn upp fastur útvarpsþáttur frá Akureyri. ☆ Hinn 5. október s.l. var opnuð í Konunglega bókasafninu í Stokkhólmi sýning íslenzkra bóka. Meðal gesta var Gústaf Adolf Svíakonungur. Sendi- herra Islands, Dr. Helgi P. Briem, opnaði sýninguna með ræðu, þakkaði sænskum mennta mönnum áhuga þeirra á ís- lenzkri menningu að fornu og nýju og rakti nokkrar stað- reyndir um bókaútgáíu íslend- inga. Á sýningunni eru íslenzk handrit, bækur prentaðar á ís- landi irá upphafi prentlistar í landinu fram til ársins 1953, dagblöð, tímarit, gömul landa- bréf, ásamt línuritum um ís- lenzka útgáfustarfsemi. 1 einni deildinhi eru sýndar allar bækur Halldórs Laxness á íslenzku á- samt þýðingum þeirra á fjölda þjóðtungna. ☆ Ýmsar menningarstofnanir og útgáfufynrtæki heiðra Dr. Pál ísólfsson á sextugsafmæli hans á morgun með því að efna til hátíðatónleika í Þjóðleikhúsinu og gefa út verk hans, lagasöfn og tónverk, er hann hefir leikið á plötur. Tónlistarskólinn og Ríkisútvarpið efna í sameiningu til hátíðatónleika í Þjóðleik- húsinu og verða þar flutt verk eftir Pál ísólfsson, og ræður flytja Dávíð Stefánsson skáld og Vilhjálmur Þ. Gíslason út- varpsstjóri. Brautskráðir nem- endur Tónlistarskólans afhenda þar Tónlistarskólanum brjóst- líkan af Páli ísólfssyni, sem gert hefir Sigurjón Ólafsson myndhöggvari. Tímaritið Helga fell er að miklu leyti helgað Páli ísólfssyni í tilefni af- mælisins. ☆ Listdansskóli Þjóðleikhússins er nýlega tekinn til starfa, og vérða þar 140 nemendur í vetur. Kennarar eru Erik Bidsted ball- ettmeistari og Lisa Kærgaard kona hans. ☆ Þrír íslenzkir kennarar dvelj- ast í Bandaríkjunum í vetur í boði utanríkis- og fræðslumála- ráðuneyta Bandaríkjanna. Þeir kynna sér skóla þar í landi og bandaríksk lífsviðhorf. ☆ í fyrradag kom til Reykja- víkur sendinefnd frá Ráðstjórn- arríkjunum í boði félagsins Menningartengsla íslands og Ráðstjórnarríkjanna. í þeim hópi er söngkona frá stóra leik- húsinu í Moskvu, danspar frá Leningrad-óperunni, kunnur fiðluleikari og píanóleikari. — Fólk þetta kemur fram á skemmtun í Þjóðleikhúsinu í dag. ☆ í gær var opnuð í Reykjavík málverkasýning, er Nýja mynd- listarfélagið stendur að, og sýna þar sex málarar um 60 málverk, olíumálverk og vatnslitamyndir. Málarar þessir eru Ásgrímur Jónsson, Jóhann Briem, Jón Stefánsson, Jón Þorleifsson, Karen Agnete Þórarinsson og Sveinn Þórarinsson. Sýningin verður opin hálfan mánuð. ☆ Sambandsráð Ungmennafé- lags íslands hélt nýlega fund sinn í Reykjavík og fól Ung- mennasambandi Eyjafjarðar að athuga möguleika á því að lands mót ungmennafélaganna verði haldið á Akureyri 1955. Ákveðið hefir verið, að halda norrænt æskulýðsmót hér á landi næsta sumar og fagnaði fundurinn þeirri ákvörðun og kaus fimm manna nefnd til þess að undir- búa mótið í samráði við stjórn Ungmennafélags íslands. — 1 ályktun um þjóðernis- og menningarmál var talið, að sér- staklega beri þjóðinni að vera á verði um frelsi sitt og sjálfstæði í sambandi við herstöðvamálið, og því var beint til félagssam- taka landsins, skóla og annarra menningarstofnana, að þau vinni að því ötullega, að þjóðlífið megi byggjast á hugsjónum þjóðlegrar lífsskoðunar og lýð- ræðis. ☆ Guðmundur Gamalíelsson bókaútgefandi og bóksali var jarðsunginn í Reykjavík á þriðju daginn. Hann var á áttugasta og þriðja aldursári, er hann lézt. Guðmundur stundaði bókaút- gáiu og bókasölu í nær því 50 ar, stuðlaði að framgangi margra góðra mála, starlaði mikið í Iðnaðarmannafélaginu og var aðalhvatamaður að stofnun Iðn- skólans. Hann var mætur maður. ☆ Nýlega var haldið þing Bridgesambands íslands. For- seti var kjörinn Brynjólfur Stefánsson. ☆ Á þriðjudaginn var gerð á Akureyri útför Kristínar Sig- fúsdóttur skáldkonu, er lézt 77 ára að aldri. Meðal rita hennar er leikritið Tengdamamma, Sögur úr sveitinni og skáldsagan Gestir. Business and Professional Cards Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg PHONE 92-6441 Phone 74-7855 ESTIMATES FREE J. M. ingimundson Asphalt Roofs and Insulated Siding — Repairs Country Orders Attended To 632 Simcoe St. Winnipeg, Man. J. J. Swanson & Co. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgö, bifreiöaábyrgð o. s. frv. Phone 92-7538 1 Dr. A. V. JOHNSON Dentist 506 SOMERSET BUILDING Telephone 92-7932 Home Telephone 42-3216 Dr. ROBERT BLACK SARGENT TAXI SérfræSingur í augna, eyrna, nef pg hálssjúkdómum. StiHileg grein og sanngjörn í „The Economist,// „Ofbeldið var aldrei sierkur leikur hjá brezkum iogara- eigendum" í hinu kunna, brezka tíma- riti, „The Economist“, birt- ist hinn 19. þ. m. stillileg grein og sanngjörn um fiskveiðadeiluna og löndun- arbann það, sem haldið hefir vérið uppi gegn ís- lenzkum togarafiski í Bret- landi undanfarið. Grein þessi stingur mjög í stúf við ýmsar þær æsinga- greinar og þvætting, sem sést hafa annað veifið í „Fishing News“ og víðar undanfarnar vikur. Hér fer á eftir útdráttur úr greininni: „Hinar vel auglýstu tilraunir, sem gera á til þess að hefja á ný innflutning á íslenzkum togarafiski til Bretlands vekja enn athygli á deilu íslenzku ríkisstjórnarinnar og brezkra togaraeigenda. Snemma á árinu sem leið, féll dómur Haagdóm- stólsins Norðmönnum í vil og heimilaði þeim að færa út land- helgi sína. Vitaskuld fór hin ís- lenzka ríkisstjórn eins að og markaði nýja landhelgislínu til þess að vernda hrygningar- stöðvar fisksins. Þó að veiði smá báta á þeim slóðum sé leyfð, er öll togveiði þar bönnuð. Eðlilegt var að brezkum tog- araeigendum gremdist þessi á- kvörðun, sem hrakti þá af sum- um beztu miðunum. Þeir gripu þá til þeirra refsiaðgerða að skella á banni gegn innflutningi íslenzks fisks til Bretlands. Nú hafa fregnirnar um tilraunir til þess að rjúfa það bann varpað nokkru ljósi á aðferðir þær, sem beitt er. Mr. Dawson, sem hyggst flytja inn fiskinn, hafa verið bannaðar allar bjargir í löndunarhöfhum, þar á meðal neitað um öflun íss, sem nauð- synlegur er til dreifingar fisk- inum. Þá hafa brezkir togara- eigendur hótað því að selja engum fiskikaupmönnum fisk, sem verzla við íslenzka togara. Málstaður togaraeigenda hef- ir ekki batnað við það, að fiskur er nú dýrari en þegar hinnar íslenzku samkeppni naut við. Það var aldrei sterkur leikur hjá togaraeigendum að beita ofbeldisaðferðum (strongarm tactis) löndunarbanns. Sem óopinbert diplomatlskt vopn er það gagnslaust. íslenzka ríkis- stjórnin hefir ekki afturkallað ákvörðun sína, jafnvel þó að fiskveiðarnar hafi beðið nokk- urn hnekki. Rétt lausn málsins væri vitanlega sú að láta fara fram alþjóðlega rannsókn á of^ veiðivandamálinu á hrygningar- stöðvunum, ekki aðeins á ís- lands- og Noregsmiðum, heldur einnig við Skotlandsstrendur, þar sem fiskimenn hafa orðið hart úti af völdum erlendra togara.“ —VÍSIR, 28. sept. PHONE 20-4845 For Quick, Reliable Service Lesið Lögberg SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- vitS, heldur hita frá aC rjúka flt meC reyknum.—Skrifiö, simiö til KELLY SVEINSSON 625 Wall St. Winnipeg Just North of Portage Ave. Simar 3-3744 — 3-4431 J. Wilfrid Swanson & Co. Insurance in all its branches Real Estate - Mortgages - Rcntals 210 POWER BUII.DING Telephone 93-7181 Res. 46-3480 LET US SERVE YOU S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smith Si. Winnipeg PHONE 92-4624 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrifstofusimi 92-3851 Heimasimi 40-3794 Creators of Distinctive Printing Columbia Press Ltd. 895 Sargenl Ave. Winnipeg PHONE 74-3411 Hafið Höfn í huga Heimili sðlsetursharnanna. Icelandic Old Folks’ Home Soc., 3498 Osler St., Vancouver, B.C. Aristocrat Stainless Steel Cookv/are For free home demonstrations with- out obligation, write, phone or call 302-348 Main Slreei. Winnipeg Phone 92-4665 “The King of the Cookware” Gundry Pymore Ltd. British Quality Fish Netting 58 VICTORIA ST. WINNIPEG Phone 92-8211 T. R. THORVALDSON Manager Your patronage will be appreclated Minnist BETEL í erfðaskróm yðar. Phone 92-7025 H. J. H. PALMASON Chartered Accountant 505 Confederation Life Building WINNIPEG MANITOBA Parker, Parker and Kristjansson Barristers - Solicitors Ben C. Parker, Q.C. B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson 500 Canadian Bank of Commerce Chambers Winnipeg, Man. Phone 92-3561 G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH 60 Louise Street Slmi 92-5227 EGGERTSON FUNERAL HOME Dauphin, Maniloba Eigandi ARNI EGGERTSON Jr. Van's Electric Ltd. r 636 Sargenl Ave. Authorized Home Appliance Dealers GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL McCLARY ELECTRIC — MOFFAT Phone 3-4890

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.