Lögberg - 12.11.1953, Page 1
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil - Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas • Oil - Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
66. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN, 12. NÓVEMBER, 1953
NÚMER 46
RepubSicanar fá póíit'ískt glóðarauga
Þjóðminjavörður hefir fengið
fjalir úr Flatatunguskálanum
Á þriðjudaginn þann 3. þ. m.,
fóru fram nokkurar kosningar
í Bandaríkjunum, er gáfu
Republicanaflokknum pólitískt
glóðarauga; til ríkisstjóra í New
Jersey fengu Demókratar kos-
inn frambjóðanda sinn og enn-
fremur frambjóðanda til neðri
málstofunnar, en þar fór fram
aukakosning; nokkru áður höfðu
Republicanar tapað þingsæti í
Wisconsin; í New York var kos-
Róðinn vesfra til
órs í upphafi
Séra Bragi Friðriksson þjónar
veslur-íslenzkum söfnuðum
Innan skamms fer nývígður
prestur, séra Bragi Frið-
riksson, héðan af landi burt
til starfa í Vesturheimi.
Vísir átti í gær tal við séra
Braga og innti hann eftir áform-
um hans í þessum efnum.
Sr. Bragi er ráðinn til Canada
í eitt ár, og mun hann þjóna
tveim söfnuðum í Manitoba-
fylki, Lundar- og Langruth-
söfnuðum. Svo stendur á um
ráðningu sr. Braga vestur, að
" fyrst var íeitað til annars ís-
lenzks guðfræðings, Þóris Kr.
Þórðarsonar, sem nú stundar
biblíurannsóknir við háskólann
í Chicago, og honum boðin prests
staðan hjá þessum tveim söfn-
uðum. Þórir gat ekki þekkzt
boðið, en vísaði hins vegar á
Braga, en síðan stóð séra Valdi-
mar J. Eylands, formaður ís-
lenzk-lúterska kirkjuráðsins í
Canada, í sambandi við Braga,
með þeim árangri, sem nú er
kunnur.
Séra Bragi kvaðst mundu
fara vestur jafnskjótt og inn-
flytjendaskjöl hans hefðu verið
afgreidd, og fer með honum
kona hans, Katrín Eyjólfsdóttir.
Eins og fyrr segir, er sr. Bragi
ráðinn til hinna tveggja safnaða
til eins árs, en alls býst hann við
að dvelja vestra í tvö ár eða svo.
—VÍSIR, 9. okt.
Kjörinn
framsögumaður
Ásmundur Loptson
Þingmaður Saltcoatskjördæm-
is í fylkisþinginu í Saskat-
chewan, Asmundur Loptson,
hefir verið kjörinn þingleiðtogi
og framsögumaður Liberal-
flokksins; á hann langan og
merkilegan þingferil að baki.
Ásmundur er harðsnúinn stjórn-
málamaður, er sjaldan ræðst á
garðinn þar sem hann er lægstur.
inn til borgarstjóra Demokrat,
Robert F. Wagner, sonur hins
þjóðkunna stjórnmálamanns
Senator Wagners, sem fyrir
skömmu er látinn;. var hann
kjörinn með nálega fjögur
hundruð þúsund atkvæðum um-
fram keppinaut sinn af hálfu
Republicana; í Virgina gekk
frambjóðandi Demokrata til
ríkisstjóra einnig sigrandi af
hólmi.
í öllum þessum áminstu kosn-
ingum hafði Eisenhower forseti
lagt blessun sína yfir frambjóð-
endur flokks síns og fylgdi
þeim úr hlaði með þeim hreysti-
yrðum, að Republicanar væri á
áframhaldandi sigurför um
landið, en hér fór nokkuð á
annan veg.
Eftir þennan mikla kosninga-
sigur þykir líklegt að Demo-
kratar nái fullu haldi á báðum
þingdeildum í kosningunum
næsta haust.
Hjarfans þakkir
Hér með bið ég Lögberg að
flytja alúðar þakkir, einlægar og
hjartanlegar, öllum þeim vin-
um, sem minntust mín með
kveðjum og með gjöfum á
sjötugsafmælinu 24. okt. s.l.
Leif Eiríksson Club í Winni-
peg þakka ég mjög innilega fyrir
samkomuna 23. okt. og öllum
þeim er þar voru viðstaddir.
Sérstaklega þakka ég Dr. Beck
fyrir ræðuna, Dr. S. J. Jóhann-
essyni fyrir kvæðið — og þeim,
sem sungu og lásu upp.
Síðast en ekki sízt þakka ég
af hlýjum huga afmælisveizlu
hér í Seattle 4. nóv. — sem rúm-
lega 100 manns sóttu. Þjóð-
ræknisdeildin Vestri stóð fyrir
framkvæmdum, en nágrannar
og vinir tóku höndum saman.
Fyrir ávörp, og ræður, frum-
samin kvæði, söngva og góðar
gjafir þakka ég sem allra ástúð-
legast. Allt fór svo vel og
skemmtilega fram að mér mun
kvöldið — haust-kvöldið mitt —
ætíð minnisstætt. — Konunum,
sem alt gerðu með mestu prýði,
til þess að veizlan yrði sem
fallegust og bezt, þakka ég kær-
lega fyrir kvöldið, ásamt öllum
þátttakendum, og óska þeim
blessunar.
Ástarkveðjur til vina minna
nær og fjær!
Jalcobína Johnson
Seattle, Washington,
8. nóv. 1953
Piano Recifal
Thora Ásgeirson du Bois
Thora Ásgeirson du Bois will
give a piano recital Friday, Nov.
20th, oommencing at 8.30 p.m.
in the First Federated Church,
Banning Street. The recital is
under the auspices of the Ice-
landic Canadian Club, in aid of
its scholarship fund.
Thora du Bois has recently
returned from two years of
study in Paris. She gave recitals
at École Normale de Musique,
Cite Universitaire, and also re-
corded a recital which was
broadcast to Iceland. Since her
return she has participated in a
joint recital at the Winnipeg
Wednesday Musicale meet.
The Icelandic community will
welcome this first public appear-
ance of Thora du Bois since her
return from overseas.
Tickets may be had at Davíð
Björnsson’s book store, Sargent
Avenue; Western Music, 286
Graham Avenue, and from mem-
bers of the club executive.
Góðu landar mínir í Norður-
Dakota!
Eins og mörg af ykkur hafa
vafalaust lesið um í íslenzku
vikublöðunum, þá er hin ágæta
íslenzka söngkona frú Guð-
munda Elíasdóttir um þessar
mundir á söngferðalagi um
byggðir íslendinga á þessum
slóðum á vegum Þjóðræknis-
félagsins.
Hefir nú, eins og ykkur mun
einnig kunnugt af blaðafregn-
um, verið ákveðið, að frú Guð-
munda heldur söngskemmtun í
samkomulrúsinu (American Leg-
ion Hall) að Mountain, N.
Dakota, þriðjudagskvöldið þ. 17.
nóvember kl. 8. Stendur þjóð-
ræknisdeildin „Báran“ að sam-
komunni.
Útsl.urður með Hringaríkisstíl
frá 11. öld
Kristján Eldjárn þjóðminja-
vörður er nýkominn heim úr
Noregsferð. 1 þessari ferð
sinni sat hann svonefndan
„víkingafund“, er haldinn
var í Noregi. Tíðindamaður
frá blaðinu gekk á fund
hans í gær til að fá fréttir af
fyrirlestri, er Kristján hélt
á þessum fornfræðingafundi
um fjalir þær, sem fundizt
hafa í Flatatungu í Skaga-
firði og aUar líkur eru til að
séu úr skála Þórðar hreðu.
Útskurður í „Hringaríkisstíl"
— Að hverju leyti eru þessar
fjalir frásagnarverðar á víkinga-
þingi?
— Fornar sagnir herma, að
Þórður hreða hafi smíðað skála
í Flatatungu í Skagafirði og
lengi var þar á bæ mikið af út-
skornum fjölum, sem taldar
voru leyfar úr þessari fornu
byggingu.
Nú er búið að rífa síðasta
torfbæinn í Tungu. 1 sumar
sótti ég þangað norður fjórar út-
skornar fjalir sem þar voru eftir.
Á .fjölunum er merkilegur forn
útskurður, ef til vill ekki frá
dögum Þórðar hreðu, en þó
miklu eldri en ég hefði fyrir-
fram trúað.
Stíllinn er svokallaður Hringa
ríkisstíll, sem var í tízku á Eng-
landi og Norðurlöndum á fyrri-
hluta 11. aldar.
Á Flatatungufjölunum er
bæði óhlutrænt skrautverk og
Er hér um fágæta söng-
skemmtun að ræða, því að ekki
minnist ég, að við íslendingar í
N. Dakota höfum átt þess kost
að hlýða á söngvara heiman af
ættjörðinni síðan Karlakór
Reykjavíkur og Eggert Stefáns-
son voru á ferðinni, sællar minn-
ingar. Vil ég því eindregið hvetja
ykkur til að fjölmenna á um-
rædda samkomu.
Ekki mun okkur heldur iðra
þess, að leggja þangað leið okkar,
því að eins og blaðadómar um
söng irú Guðmundu bera með
sér, þá hefir hún bæði mikla og
fagra rödd, og túlkar viðfangs-
efni sín að sama skapi á áhrifa-
mikinn hátt. Á þessum samkom-
um sínum í byggðum landa
sinna syngur hún bæði íslenzk
og erlend úrvalslög, og má óhætt
fullyrða, að íslenzku lögin verða
þar ekki útundan.
Undirleikinn á samkomunni að
Mountain annast frú Margaret
Samson frá Akra, N. Dak.
Notum hið sjaldgæfa tækifæri
til þess að hlýða á frú Guðmundu
Elíasdóttur! Hittumst heil á sam-
komu hennar að Mountain að
kvöldi þ. 17. nóvember
RICHARD BECK
Úr borg og bygð
Síðastliðinn fimtudag voru
stödd hér í borginni Mr. og Mrs.
Theodore Vatnsdal og Mrs. Sigg
Nelson frá Hensel, N. Dakota.
☆
Mr. S. A. Austmann ffá Sel-
kirk var staddur í borginni á
mánudaginn.
☆
Guðmunda Elíasdóttir, söng-
konan víðkunna, syngur við
kvöldguðsþjónustuna í Fyrstu
lútersku kirkju á sunnudaginn
kemur, 15. nóv. kl. 7.
mannamyndir kristilegar, hempu
klæddir menn með geislabaug
og einn sem lyftir höndum og
blessar, ef til vill Kristsmynd.
Eini iréskurðurinn þessarar
iegundar
Þessi skurður er mjög vel
gerður og hreinræktaður í sinni
grein, og þessar íslenzku fjalir
eru einu tréskurðarminjar í
Hringaríkisstíl, sem til eru yfir-
leitt.
Áður var hann þekktur á
steinum, skrautgripum og hand-
ritum (í Englandi). Af þessu
öllu þótti mér fjalirnar frá-
sagnarverðar á víkingaþinginu,
þótt þær séu aðeins lítilfjörlegar
leifar af stóru verki.
Frá þeim er mikil útsýn um
ýmislegt í sögu listar óg menn-
ingar á síðvíkingaöld.
— Eru þessar f jalir til sýnis á
Þjóðminjasafninu nú?
— Ekki enn, en áður en langt
um líður verða þær hafðar þar
til sýnis.
Satt að segja tel ég þær með
merkustu fornminjum, sem
komið hafa á safnið lengi. Ég er
Oddi bónda Einarssyni í Flata-
tungu og konu hans mjög þakk-
látur fyrir umhyggju þeirra og
áhuga á að þessar minjar varð-
veittust. Það mátti ekki tæpara
standa að þessar síðustu leifar
hins forna skála færu sömu leið
og allt hitt.
Fjalirnar frá Bjarnastaðahlíð
— En hvað er þá um fjalirnar
eða leifarnar, sem lengi hafa
verið á Þjóðminjasafninu og
eru kenndar við Flatatungu eða
skála Þórðar hreðu en komu á
safnið frá Bjarnastaðahlíð í
Vesturdal. Þar voru fjalir þessar
í árefti í skemmu? .
— Fjalir þessar komu í safnið,
segir Kristján, með römmum
ummælum um að þær uppruna-
lega væru úr skálanum í Flata-
tungu.
Hingað til höfum við haft það
fyrir satt að fjalir þessar væru
þaðan. En af útskurðinum, sem
á fjölunum er, er ekki hægt að
tímasetja þessar fjalir vegna
þess að á þeim eru aðeins mynd-
ir en ekkert skrautverk.
Þegar við nú höfum þessar
fjalir sem áreiðanlega eru úr
Flatatunguskálanum, getur mað
ur ekki verið alveg viss, um að
Bjarnastaðahlíðarfjalirnar séu
þaðan líka, því að sumu leyti er
útskurður þeirra frábrugðinn
hinum.
Ég tel mig ekki að svo.stöddu
geta skorið úr því, hvort hvorar
tveggju fjalirnar séu verk sama
manns, eða skornar á sama tíma.
Það mál þarf að rannsaka betur.
Fjalir frá báðum stöðum með
krislilegu innihaldi
Annars eru myndir á Bjarna-
staðahlíðar-fjölunum með biblíu
legu innihaldi eins og er á þeim
fjölum, sem komið hafa beina
leið frá Flatatungu, er gæti bent
til þess, að allar hafi þessar
fjalir verið í sama húsinu.
— Hvað má ráða af Þórðar
sögu hreðu um aldur þessa út-
skurðar?
— Talið er að sagan hafi verið
skrifuð á seinni hluta 14. aldar.
Hún er ekki mikilsmetin sem
sagnfræðirit, og vafi mikill tal-
inn á sannsögulegu gildi hennar.
Og fráleitt væri að halda því
fram sem fullri vissu, að Þórður
hreða hafi gert útskurðinn á
Framhald á bls. 8
Vinnur
námsyerðlaun
George Johnson
George Johnson, ungur náms-
maður af íslenzkum ættum, er á
þessu hausti hóf nám í læknis-
fræði á ríkisháskólanum í N.
Dakota (University of North
Dakota), vann nýlega $500.00
námsverðlaun í víðtækri sam-
keppni miðskólanemanda.
Er hér um að ræða námsverð-
laun, sem flutningafélagið “Con-
soliated Freightways”, pr bæki-
stöðvar hefir í Oregon, efnir til
meðal miðskólanemenda í 12
Mið-Vesturríkjum, þar sem fé-
lagið hefir starfsemi sína. Hlýtur
einn miðskólanemaftdi í hverju
ríki slík námsverðlaun árlega, og
bar George sigur úr býtum í N.
Ðakota.
Hann er fæddur í Bismarck, N.
Dakota, 16. júní 1935, sonur
þeirra Nels (Níelsar) Johnson,
lögfræðings og fyrrum dóms-
málaráðherrá í N. Dakota, sem
fæddur er á íslandi og löndum
sínum að góðu kunnur, og konu
hans, Ruth Hallenbeck, af
skozkum ættum.
Lauk George síðastliðið vor
miðskólanámi í Bismarck High
School með háum heiðri, var
þriðji í röðinni af 176 nemendum,
sem þá útskrifuðust. En jafn-
framt náminu hafði hann tekið
mikinn þátt í félagslífi stúdenta,
var meðal annars íþróttaritstjóri
skólablaðsins.
George Johnson er hinn mann-
vænlegasti maður eins og hann
á kyn til, og spáir námsferill
hans fram að þessu góðu um
framtíð hans.
RICHARD BECK
i
Góðar bókagjafir
íslenzku bókadeildinni við
Manitobaháskóla hafa nýlega
borizt 3 góðar bókagjafir. Er hin
fyrsta frá frú Margréti Bárdal,
er gaf meginið af bókum manns
síns, Arinbjarnar heitins Bár-
dals. Er þar að vonum margt
góðra bóka.
Önnur bókagjöfin er frá frú
Soffíu Jakobsdóttur, 551 Elm
St., ekkju Tómasar Benjamíns-
sonar, en þau hjónin bjuggu
lengi að Lundum, Manitoba. Var
Tómas mjög bókhneigður, átti
laglegt safn íslenzkra bóka, er
frú Soffía hefur nú gefið ís-
lenzku bókadeildinni til minn-
ingar um hann.
Þriðja gjöfin er frá Þorgerði
Þórðardóttur, 589 Alverstone
St. Hefur Þorgerður smám sam-
an — eða frá því fyrir alda-
mót — komið sér upp hinu ágæt-
asta bókasafni, er veitt hefur
henni marga ánægjustund um
dagana. Er það hvorttveggja, að
í safni hennar eru úrvalsbækur
og unun að sjá, hve vel hún hef-
ur farið með þær.
Hafi gefendurnir nú heila þökk
fyrir gjafir sínar og þann hug,
sem þeim fylgir. F. G.
Forsefahjónin ó Suðureyri
14. júlí 1953
í dag er bjart um fjöll og lygnan fjörð,
og íirnalétt er sporið öllum hjá,
því sólin baðar geislum græna jörð
og gleðin ljómar hýrt á hverri brá.
í sameiningu fólk og grænar grundir
hér gestum tignum fagna á allar lundir.
Það verður jafnan mesta lán hvers lands,
ef leiðsagnar það nýtur hvern einn dag
hins góða, vitra, göfugborna manns,
er gerla skilur þjóðar sinnar hag,
en fólkið traust í starfsins kliði stendur
með styrka lund og vinnufúsar hendur.
Og hér er einmitt brot af þeirri þjóð,
sem þekkir vel og skilur örlög sín —
eitt brot, er fyrrum sterkt við hlið þér stóð
og stendur enn — og metur verkin þín,
og mun í framtíð hylla hugsjón þína
með hönd í starfi: að blessa ættjörð sína.
Séra Jóhannes Pálmason,
sóknarprestur í Súgandafirði
—SUÐURLAND 5. september
Fógæt söngskemmtun að Mountain, ND