Lögberg - 22.04.1954, Side 5
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 22. APRIL 1954
5
Biður prinsessupilsin
vel að lija
Dior biður prinsessupilsin vel
að lifa, sem hann kveður of stíf,
umfangsmikil og óþægileg í
notkun. I þeirra stað mælir hann
með einbrotnum pilsum, hæfi-
lega rykktum eða felltum, með
belti á eðlilegum mittisstað. Pils-
síddin er langt frá því að vera
neitt aðalatriði í hinum mörgu
tízkuáformum hans í dag, þó
hún hafi vakið mesta athygli út
á við. Pilsfaldurinn á dagkjólum
Diors er um 14 þuml. frá jörðu.
Kvöldkjólarnir eru styttri —
faldurinn um 16 þumlunga frá
jörð.
Á öndverðum meiði
Dior er á öndverðum meiði við
flesta aðra tískufrömuði í París
1 dag. Jacques Fath, t. d., heíir
ekki látið af tilhneigingum sín-
um til hinna ýmsu glæsilegu
útúrdúra í tízkufyrirmyndum
sínum, sem jafnan eru vinsælar,
þó að ýmsir telji þær nokkuð
tilgerðarlegar.
Að því er varðar „cocktail"
óoðin, þá hefir Dior sínar á-
kveðnu skoðanir. Hann er mót-
fallinn flegnum og áberandi
kjólum við slík tækifæri, eins og
oft tíðkast, og gera sitt til, segir
f>ann, að draga slík samkvæmi á
ianginn meira en góðu hófi
gegnir. Venjulega byrja þau kl.
4—5 og ættu alls ekki að standa
fram yfir kl. 7. Hinn rétti klæðn-
aður kvenna við þessi tækifæri
or laglegur síðdegiskjóll, jakka-
kJóll eða dragt. 1 samkvæmum
oftir kl. 7 á hins vegar hinn
kvenlegi glæsileiki að setja svip
sinn á klæðnað kvenna. En kven-
legur og glæsilegur kjóll, segir
Dior, þarf ekki nauðsynlega 'að
vera íburðarmikill eða fleginn á
bak og brjóst — nema síður sé.
Og eitt atriði enn í sambandi
við samkvæmisklæðnað: Það er
mikilvægt, að samræmi sé á
f“i klæðnaðar karla og kvenna,
karlmennirnir vilja nokkuð oft
umma fram af sér að búa sig
^PP á svo sem tækifærinu til-
heyrir- —Mbl.
MPAN Y
O F CANADA, LIMITED . 25 KING STREET WEST, TORONTO
IVÍáLMEFNIN í Inco’s Creighton námunni
voru svo léleg, að ekki þótti borga sig að
vinna hana; nú hafa Inco námufræðingar
fært sér í njrt nýja aðferð, sem nefnist “induced
caving” og þarfnast engra sprenginga
Svo má segja að þessi náma starfræki sjálfa sig og
veiti Canada aukna auðlegð.
“The Romance of Nickel” 72 'blaOsiöubók veröur scnd
ókeypis þeim, er œskja.
NICKEL
AHIJGAMAL
rVENNA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
DIOR SÆKIR Á
Vill látlausa og einfalda klœðatízku
Það er nú viðurkennt — M.
Christian Dior hefir enn einu
sinni tekizt að umbreyta tízku-
smekknum og afstöðu kvenþjóð-
arinnar í þessum málum. Nýj-
ustu fregnir frá París vekja at-
hygli á, hve hin nýju Dior-snið
sameina, svo að það gengur
kraftaverki næst, kvenlegan
þokka, glæsileik og fullkomið
látleysi og einfaldleik.
Einbrotin og látlaus
Dior hefir komizt að þeirri
niðurstöðu, að tízka undanfar-
inna ára hafi markazt af marg-
breytni, smámunasemi og til-
gerð, sem alls ekki samrýmist
daglegu lífi og þörfum kvenþjóð-
arinnar í dag.
Hann vill, að hinn daglegi
kvenkjóll sé þannig, að hann geti
átt við hvaða stund dagsins sem
er. Hinum, sem miðaðir eru að-
eins við einn afmarkaðan hluta
dagsins, varpar hann fyrir borð.
Hann heitir á kvenþjóðina að
segja skilið við allt útflúr og út-
úrdúra í klæðaburði. Silki, satín,
margbrotinn útsaumur og dýrt
skraut eiga ekki að sjást nema
til kvöld og viðhafnarklæðnaðar.
Hann mælir með einbrotnum
verksmiðjuefnum, sem eru hent-
ug í notkun, og í hæverskum lit-
um. Dökkblái liturinn verður
hæstráðandi í vortízkunni í ár.
UM HENDUR OG
VASAKLÚTA
Öll erum við sammála um það,
að sjálfsagt er að forðast í
lenzstu lög að smita náungann af
þeim sjúkdómi, sem maður
sjálfur hefir verið svo óheppinn
að fá.
En hins vegar vita ekki allir,
hvort sjúkdómurinn sem þeir
ganga með, er smitandi eða
hvernig hann er smittandi.
Menn fá þó vitneskju um þetta
smátt og smátt eftir því sem þeir
komast til vits og ára. Flestum
hlýtur t. d. að vera það ljóst að
bæði kvef og hálsbólga er
smittandi.
En hvernig berast þessir sjúk-
dómar frá manni til manns?
Það er ekki nema eðlilegt, að
menn hugsi sér, að þessir tveir
sjúkdómar fari á milli manna
með því að sjúklingurinn annað
hvort með hósta eða hnerra
dreifi sýklunum yfir nærstadda.
Þessi skýring er líka viðurkennd.
Þess vegna á að forðast að hósta
eða hnerra framan í fólk, og sé
maður kvefaður eða með særindi
í hálsi, þá að tala ekki upp í and-
iit fólks. Auk þess er rétt, þegar
maður kvefast illa, að halda sér
heima tveggja daga skeið.
Hins vegar er líka önnur leið
opin og hún ekki síður hættuleg.
Þar á vas^jdúturinn sinn virka
þátt. Langoftast eru sóttkveikj-
ur, sem kallaðar eru Strepto-
coccar, valdir að hálsbólgu, en
menn geta gengið með þær í
slímhúðinni í hálsi og nefi án
þess að kenna sér nokkurs meins.
Gerð var tilraun með 30 skóla-
drengi. Þeir voru látnir koma
syngjandi fullum hálsi inn í
kennslustofuna og síðan var
mælt á sniðugan hátt hve mikið
af Streptococcum þeir hefðu
dreift um þar. Það var þó smá-
vægilegt í samanburði við það,
sem kom í loftið af steptokokk-
um, þegar drengirnir höfðu veif-
að vasaklútunum sínum í eina
mínútu í kennslustofunni.
Aðrar tilraunir hafa sýnt, að
streptokókkar — og auðvitað
í'leiri tegundir sýkla — geta bor-.
izt manna á milli af höndum
manna, séu þessir sýklar í slím-
húðinni í nefi og munni, er ekki
vandi fyrir þær að komast á
hendur fólks, og þegar sami
maður tekur í hendina á kunn-
ingja sínum, fast og innilega, þá
þarf sýkillinn varla margar
krókaleiðir til að komast í nefið
á honum.
Það er ekki hægt að dauð-
hreinsa menn, dýr og innan-
stokksmuni fyrir bakteríum.
Ekki frekar en hægt er að nema
allar bifreiðar brott af götum
borganna, en bifreiðar eru að
verða mönnum lífshættulegri en
allar sóttkveikjur. Það er líka
ómögulegt að standa við handa-
þvott allan liðlangan daginn. En
menn geta gert það svo oft, að
þær séu nokkurn veginn hreinar.
Það er líka lítið gagn í því að
halda hendinni fyrir munninum
á meðan hóstað er, ef maður á
næsta augnabliki tekur svo hönd
ina á kunningja sínum í kveðju-
skyni.
Sá siður er ákaflega algengur
hér á landi að menn heilsast með
handabandi og útlendingum
kemur það oft einkennilega fyrir
sjónir. Heppilegra væri að vera
ögn sparsamari á þess háttar.
Menn eiga líka að forðast að
taka upp vasaklút sinn beint fyr-
ir framan nefið á öðrum. 1 heima
liúsum ættu menn líka að venja
sig á að nota bréfþurrkur, sem
íleygja má eftir notkup.
Og af því ég hef minnzt á
hendurnar, þá skaðar ekki að
geta þess, að óþægilegar bakte-
ríur eiga heimkynni sín á fleiri
stöðum en í nefi og hálsi. Þær
eru líka í þörmunum. Brýnið
það því umfram allt fyrir börn-
um yðar og heimilisfólki að þvo
sér um hendurnar, þegar það
hefir gengið erinda sinna, og
áðpr en það sezt að snæðingi.
Enda þótt bakteríur í þörmun-
um geri ekki þeim sem hefir
þær neitt ógagn, þá geta þær
verið skaðlegar fyrir aðra.
Væri ekki líka hentugra að
nota handþurrkur úr bréfi, sem
fleygja má eftir notkun, á sal-
ernum í skólum. Sama gildir um
almenningssalerni.
Handklæðin, sem þar sjást, eru
óhugnanlegri en nokkur drauga-
saga. —Mbl.
Kaupið Lögberg
V ÍÐLESNEST A
ÍSLENZKA BLAÐIÐ
LOOK AFTER YOUR FIGURE
New Spirelette creations styled
by Spirella. Glamo-rously new
ready-to-wear girdles and bras
with a Spirella Guarantee. For
information, without obligation,
call:
MRS. JANA STILLER
Phone 72-7756
Hvað er í fréttum hjá
INCO L/ETUR
VERflUHR NAMUR
Inco ?