Lögberg - 22.04.1954, Síða 8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 22. APRIL 1954
Úr borg og bygð
The Dorcas Society of the
First Lutheran Church, Winni-
peg, is putting on 2—1 Act
plays and musical selections on
April 30th, in the lower Audi-
torium of the First Lutheran
Church. This will be good enter-
tainment, Candies will be sold—
also refreshments for all. Silver
Collection.
☆
Mr. og Mrs. Murray McKillip,
sem dvalið hafa í borginni í
vetur eru nýfarin heim á búgarð
sinn í Dauphin, Man.
☆
The Thirtieth Annual Con-
vention of the Lutheran Wom-
en’s League of Manitoba will be
held at Selkirk, Manitoba, on
Friday, Saturday and Sunday
May 28, 29 and 30th.
☆
Gunnthor Hinrikson, sonur
Mr. og Mrs. E. J. Hinrikson, Sel-
kirk, Man., hefir nýlega verið
skipaður Staff Engineer hjá
B.C. Electric félaginu í Van-
couver. Hann lauk prófi í fræði-
grein sinni við Manitobaháskóla
árið 1936. Eftir herþjónustu í
síðustu styrjöld gekk hann í
þjónustu ofangreinds félags, og
hafa honum með ári hverju
verið falin æ ábyrgðarmeiri
störf.
*
Dr. Haraldur Sigmar og frú
gera ráð fyrir að leggja af stað í
Evrópuferð í næsta mánuði;
ferðast þau flugleiðis frá New
York til Noregs. Á heimleiðinni
fara þau til íslands og dvelja
þar um tíma.
☆
Meðal gesta frá Winnipeg, er
sóttu gullbrúðkaup Guttorms-
son-hjónanna í Riverton voru
þessir: Mr. og Mrs. Jochum Ás-
geirsson; próf. Finnbogi Guð-
mundsson; Mr. Lúðvík Kristjáns-
son; Mr. og Mrs. H. F. Daniels-
son; Mr. og Mrs. W. Kristjáns-
son; Mrs. Elma Gíslason; Mr. og
Mrs. John Samson; Mr. Timothy
Samson; Mr. Arni G. Eggertson;
Mr. G. S. Thorvaldson; Mr. T. L.
Hallgrímsson; Mr. og Mrs. E. P.
Jónsson; Mr. og Mrs. Jón K. Lax-
dal og Dr. Lárus Sigurdson.
☆
Mr. G. A. Williams frá Hecla
kom til borgarinnar á sunnudag-
inn ásamt þremur börnum sín-
um; fór fjölskyldan heim á
mánudaginn. Er nú að verða
hver síðastur með ferðir milli
eyjar og meginlands á ís.
☆
Miss Columbine Baldwinson,
Riverton, Man., er nýkomin
heim eftir tíu mánaða dvöl á
íslandi í heimsókn hjá systur
sinni og tengdabróður, frú Alice
og Jóhannesi Snorrasyni flug-
manni.
Gestur Kristjánsson lækpir og
frú frá Allendale, North Dakota,
komu til borgarinnar á föstu-
daginn í fyrri viku. Gestur
læknir hafði hér skamma við-
dvöl og hélt heim til Allendale
á páskadagsmorgun, en frú hans
og dóttir munu dvelja hér um
þriggja vikna skeið.
☆
Þeir séra Robert Jack og Sig-
urður Einarsson tinsmíðameist-
ari frá Árborg voru staddir í
borginni á mánudaginn.
☆
The Women’s Association of
the First Lutheran Church will
meet Tuesday April 27th at 2.30
in the lower auditorium of the
church.
☆
Miss Dorothy Joan Johnson,
nemandi í þriðja bekk í Home
Economics við Manitobaháskól-
ann, hefir verið kosin Lady
Stick.
☆
Mrs. B. S. Benson, sem dvaldi
um páskana í Fort William hjá
dóttur sinni og tengdasyni, þeim
Mr. og Mrs. Harold Sigurdson,
kom heim á þriðjudaginn.
tr
Gefin saman í hjónaband í
Teulon 27. marz s.l. Miss Lillian
Larson frá Teulon og Laurence
Eyjólfsson. Er brúðguminn
yngsti sonur Mrs. S. Eyjólfsson
að Vestfold.- Heimili þeirra verð-
ur í Vestfóld.
Minneapolis, St. Paul og Chicago.
Einn íslenzkur drengur hlaut
þessa vikuskemmtiferð, Pétur R.
Erlendson, sonur Mr. og Mrs.
Leifur Erlendson, Sherburn St.
☆
Mrs. Jóhanna Hólm lézt að
heimili sínu, 662 Valour Road á
mánudaginn 19. apríl, 76 ára að
aldri; hefir hún búið hér í borg
um 42 ára skeið. Hún lætur eftir
sig tvær dætur, Mrs. A. L.
Herron og Mrs. F. A. Dyer; tvo
sonu, Ralph og Stefán. tJtför
hennar fór fram frá Bardals út-
fararstofunni í gær, miðvikudag.
Séra Rúnólfur Marteinsson jarð-
söng.
Fréttir fró ríkisútvarpi íslands
☆ ' /
Heyrst hefir að C. P. R. félagið
muni hætta að senda fólksflutn-
ingalest til Árborg þann 24.
apríl. Mun fólk, sem er búsett
meðfram þessari járnbraut,
sakna þessarar ferðaþjónustu,
sem það hefir notið um 43 ára
skeið.
Blaðið Wynyard Advance
birti nýlega stóra mynd á for-
síðu blaðsins af frú Sigríði
Guðjónsson í tilefni þess, að hún
átti 96 ára afmæli í þessum
mánuði; er hún elzti búandi í
Wynyard bæ. Hún býr hjá Mr.
og Mrs. Bogi Peterson, en hún
er amma annars þeirra. Hún
ber aldurinn frábærlega vel, les
talsvert, hefir áhuga fyrir heim
ilisstörfunum og fagnar vor-
fuglunum með því að gefa þeim
í sarpinn á hverjum morgni. -
Lögberg óskar henni til ham-
ingju með afmælið.
☆
Mr. og Mrs. S. Brandson, Ár-
borg, eru nýkomin heim úr
mánaðarskemmtiferð til Cali-
fornia.
tr
I sex undanfarin ár hefir Free
Press valið um páskaleytið 30
beztu blaðadrengi sína í borginni
og sent þá í skemmtiferð til ein-
hverra stórborga í álfunni; í
þetta sinn er ferðinni heitið til
SAVE
Besl for Less
Davenport and Chair,
$82.50
Chesterfield and Chalr,
$149.50
Hostess Chair $16.50
T.V. Chalrs $24.50
Chesterfield and Chair.
recovered, from $89.50
up.
HI-GRAOE UPHOLSTERING AND DRAPERY SERVIGE
625 Sargenl Ave.
Phone 3-0365
Judges in the National
Barley Contest
The judges shall consist of the Professor of Plant
Science, University of Manitoba; the District Super-
visor, Plant Products Division; and the Provincial
Agronomist in the Extension Service. In addition there
shall be three consultant judges representing the two
Western Malt companies, and the Chief Grain Inspector
of the Board oí Grain Commissioners for Canada.
Only car grading No. 3 C.W. Six-row and over will
be eligible for judging.
The basis for judging the grain shall be its suit-
ability for malting.
For further information write to:
BARLEY IMPROVEMENT INSTITUTE,
206 Grain Exchange Building,
Winnipeg, Manitoba. MD-342
Thi
s space
donated b y DREWRYS
Framhald af bls. 1
miðvikudag. Færði sjórinn bát-
inn í kaf og reif hlera af opi
niður í vélarhúsið og skolaðist
fiskur af þilfarinu með sjónum
niður í vélarrúmið. Vélin stöðv-
aðist þó ekki og tókst að ná ferð
á bátinn svo að hann gat haft
sig úr brotinu. Nokkrar skemmd-
ir urðu á bátnum, en engan
mann sakaði. — Á þriðjudags-
morgun var lýst eftir fjórum
bátum frá Hellissandi, sem voru
á sjó, er óveður brast á, gátu
nærstödd skip komið þeim öll-
um til hjálpar og fylgt til lands.
í fyrradag gerði mikið hvass-
viðri með éljagangi á Sauðár-
króki og var óttast um fjóra
trillubáta þaðan, sem voru á sjó,
en er leið á daginn gekk veðrið
niður og komust allir bátarnir
heilu og höldnu til hafnar. Höfðu
þeir legið í landvari meðan
óveðrið gekk yfir.
☆
Eins og kunnugt er, var hrepps
nefndarkosningin í Kópavogi í
vetur kærð. Sigurgeir Jónsson
lögfræðingur, sem var settur
sýslunefndaroddviti í þessu máli,
hefir nú fellt úrskurð, sem ekki
verður áfrýjað. Féll úrskurður
hans á þá leið, að kosningin
skuli vera ógild og hreppsnefnd-
arkosningarnar endurteknar, en
framboðslistar verða óbreyttir
frá því í vetur. Skal kosningin
endurtekin innan mánaðar frá
lögbirtingu þessa úrskurðar. Úr-
skurður hins setta sýslunefndar-
oddvita byggist á því, að opin-
ber embættismaður, ræðismaður
Islands í Minneapolis, fór rang-
lega með tvö atkvæði í þessum
kosningum í vetur, svo að þau
urðu ógild. Hefðu atkvæði þessi
getað ráðið úrslitum um það,
hvort A-listi eða B-listi komu
manni í hreppsnefndina, þar eð
ekki munaði nema einu atkvæði
á þessum listum í kosningunni.
☆
Togarinn Úranus frá Reykja-
vík var nýlega tekinn að veið-
um innan fiskveiðitakmarkanna
við Öndverðarnes og hefir saka-
dómarinn í Reykjavík kveðið
upp dóm í máli skipstjórans. Var
skipstjórinn dæmdur í 74 þús-
und króna sekt og afli og veiðar-
færi gerð upptæk. Skipstjórinn
hefir áfrýjað dóminum.
☆
Vöruskiptajöfnuðurinn í fe-
brúarmánuði varð hagstæður
um rösklega 7, 4 milljónir króna.
Út voru fluttar vörur fyrir rúm-
lega 75,1 milljón króna, en inn-
flutningur nam tæplega 67,7
milljónum króna. Fyrstu tvo
mánuði þessa árs hefir vöru-
skiptajöfnuðurinn við útlönd
orðið óhagstæður um rösklega
17,8 milljónir króna. Hefir út-
flutningur numið 136.2 milljón-
um króna, en nnflutningur rösk-
lega 154 milljónum króna. Á
sama tíma í fyrra var vöruskipta
jöfnuðurinn óhagstæður um ríf-
lega 31,7 milljónir króna.
☆
Bæjarstjórn Akureyrar hefir
samþykkt að fallast á samein-
ingu Glerárþorps við Akureyri.
Mál þetta hefir verið á döfinni
síðan snemma árs 1952, er 190
manns í Glerárþorpi óskuðu
eftir sameiningu þorps og bæjar.
Samkomulag hefir náðst um
markalínu milli Glæsibæjar-
hrepps og Akurpyrarbæjar um
að markalína milli hrepps og
bæjar skuli dregin um Lónsbrú
og fylgi síðan sauðfjárvarna-
girðingu til fjalls- Sameiningar-
tillagan er miðuð við næstu ára-
mót.
☆
Biskup íslands hefir , nýlega
ritað öllum próföstum bréf, þar
sem hann tilkynnir að hinn al-
menni bænadagur þjóðkirkj-
unnar skuli haldinn sunnudag-
inn 23. maí. Er ætlazt til, að
þann dag verði fluttar messur í
svo mörgum kirkjum, sem fram-
ast er unnt.
☆
Prestastefna Islands 1954 verð-
ur haldin í Reykjavík 21.—23.
júní og hefst með guðþjónustu
og prestsvígslu í Dómkirkjunni.
Aðalmál prestastefnunnar verð-
ur Kirkjan og líknarmálin. Að
lokinni prestastefnunni verður
haldinn aðalfundur Prestafélags
Islands.
☆
Á þriðjudaginn Kom upp eldur
í barnaskólahúsinu í Reynis-
hverfi í Mýrdal (og magnaðist
eldurinn svo, að ekki varð við
neitt ráðið. Tókst aðeins að
bjarga örfáum munum úr skóla-
stofunni, en húsið brann til
kaldra kola. Talið er að kviknað
hafi í út frá rafmagni.
☆
Nú eru starfandi hér á landi
150—160 hjúkrunarkonur, eða
allmiklu færri miðað við fólks-
fjölda, en á hinum Norðurlönd-
unum. Byrjað er að byggja
hjúkrunarkvennaskóla á Lands-
spítalalóðinni og er búizt við að
nemum fjölgi er skólabygging-
unni er lokið, en nú eru 80—-90
nemar í Hjúkrunarkvennaskól-
anum.
☆
Leikfélag Reykjavíkur hafði
frumsýningu síðastliðinn mið-
vikudag á gamanleiknum —
Frænku Charleys — eftir
Brandon Thomas í nýrri þýð-
ingu Lárusar Sigurbjörnssonar.
Með aðalhlutverkið fer Árni
Tryggvason, en leikstjóri er
Einar Pálsson. Var leiknum
forkunnar vel tekið og skemmtu
leikhúsgestir sér hið bezta. —
Leikfélag Reykjavíkur ráðgerir
að sýna nýjan íslenzkan gaman-
leik á þessu vori. Heitir leikritið
Gimbill og kallar höfundur sig
Hákon Hádal. — Ónafngreindur
maður hefir nýlega fært Leik-
félagi Reykjavíkur 25 þúsund
krónur að gjöf í húsbygginga-
sjóð félagsins. Félagið hefir sótt
um lóð undir húsið og hyggst
vinna af kappi að því að koma
upp viðunandi húsnæði fyrir
starfsemi sína hið fyrsta.
☆
Lárus Pálsson ' leikari er ný-
kominn frá Stokkhólmi þar sem
hann lék hlutverk Beinteins í
Króknum í kvikmyndinni, sem
verið er að gera eftir skáldsög-
unni Sölku Völku eftir Halldór
Kiljan Laxness. Miðar kvik-
myndasögunni vel áfram og er
nú lokið að taka flest inniatriði
og hinn 4. maí kemur 40 manna
flokkur frá .Nordisk Tonefilm
til íslands. Verða í förinni leik-
stjórinn Arne Mattsson, aliir
kvikmyndaleikararnir í mynd-
inni, myndatökumenn og annað
starfslið og allur útbúnaður, sem
nauðsynlegur er erlendis frá.
Flokkurinn mun starfa hér allan
maí og út júnímánuð og verða
útiatriði myndarinnar tekin að
miklu leyti í Grindavík, en
einnig við Ártún á Kjalarnesi.
Búizt er við að myndin verði
fullgerð til sýninga í nóvember
eða desember og verði frum-
sýnd samdægurs í Reykjavík og
Stokkhólmi.
☆
Guðrún Á. Símonar efndi til
söngskemmtunar í . Reykjavík
um miðja vikuna. Söng hún lög
eftir innlenda og erlenda höf-
unda og tvær óperuaríur við
ágætar undirtektir áheyrenda.
☆
Séra Hálfdán Helgason, pró-
fastur að Mosfelli í Mosfellssveit,
lézt aðfaranótt föstudags 56 ára
að aldri. Banamein hans var
hjartabilun.
☆
Þingeyingafélagið í Reykjavík
hefir ákveðið að láta gera kvik-
mynd úr Þingeyjarsýslu. Félag-
ið vinnur nú að útgáfu héraðs-
lýsingar Suður-Þingeyjarsýslu
eftir Jón Sigurðsson á Yztafelli
og sýslulýsing Norður-Þingeyj-
arsýslu er einnig vel á veg kom-
n. Þá hefir félagið ákveðið að
reisa Skúla Magnússyni fógeta
minnismerki í Keldunesi, en
þar var Skúli fæddur.
☆
Á ísafirði og Akureyri verður
efnt til margvíslegra hátíða-
halda í dymbilviku og yfir
páskana. Verður efnt til skíða-
móta og á kvöldin verða ýmsar
samkomur og skemmtanir í
samkomuhúsum bæjanna.
M ESSU BOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Stærsti strætisvagn bæjarins tekinn í
notkun innan skamms
Ýmsar nýjungar í smíði hans,
m. a. er diesel-vél hans á hliðinni
undir góljinu
Um þessar mundir er verið
að ljúka smíði fullkomnasta
og stærsta strætisvagns, sem
hér hefir sézt á götunum.
Fréttamaður Vísis brá sér inn
í Bílasmiðju, þar sem bíll þessi
er í smíðum, átti þar tal við Lúð-
vík Jóhannesson, framkvæmda-
stjóra, og fékk hann til þess að
sýna sér þetta merkilega farar-
tæki.
Smíðinni er svo langt komið,
að búast má við, að bíllinn verði
tekinn í notkun ní byrjun næsta
mánaðar. Þetta er Volvo-bíll af
allra nýjustu gerð, og er hér um
ýmsar nýjungar að ræða, sem
ekki munu hafa sézLhér í þess
konar farartækjum. T. d. er
diesel-hreyfill bílsins á hliðinni
undir vagninum miðjum, eða því
sem næsta, en ekki við hliðina á
bílstjóranum, eins og tíðkazt
i efir um frambyggða bíla til
þessa. Þá er fullkomið hitunar-
kerfi í vagninum, með þeim
hætti, að vél bílsins dælir heitu
lofti inn í vagninn gegnum göt á
hliðum hans.
Öðrum megin í bílnum verða
tvær sætaraðir, en hinum megin
ein, en aftast í honum opið gólf-
pláss, mjög rúmgott. Þrennar
dyr verða á vagninum, og ætti
það að auðvelda farþegum að
komast inn í vagninn og úr.
Þá er þess að geta, að hátalara-
kerfi er í vagninum, og mun
bílstjórinn segja í hljóðnema
nöfn gatna og vegamóta, þar
sem nema á staðar, en hátalarar
eru á nokkrum stöðum í bílnum,
og geta farþegar því betur fylgzt
með ferðum vagnsins en áður
hefir verið, og er það mjög mikil
bót.
Vagninn er 10 l/z metri á lengd,
eða jafnlangur Keflavíkurbíl
Steindórs, sem Vísir sagði frá á
sínum tíma,, en þetta eru stærstu
almenningsvagnar hérlendis. —
Ekki veit Vísir, hve marga far-
þega nýi vagninn getur tekið í
sæti og standandi, en óhætt er
: ð fullyrða, að á 2. hundrað far-
þegar munu komast í hann, ef
mikið liggur við. Volvo-diesel-
hreyfillinn, undir gólfinu, er 150
hestöfl, af nýjustu gerð, eins og
fyrr segir.
Að lokum má geta þess, að
Jramrúður vagnsins eru tvöfald-
ar, og getur því ekki myndast
móða á þeim, og er þetta til
mikils öryggis.
—VÍSIR, 2. marz
1 Sr. V. J. Eylands, Dr. TheoL
Heimili 686 Banning Street.
Sími 30 744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
☆
Gimli Lulheran Parish
Betel, kl. 9 f. h. Séra Sigurður
Ólafsson prédikar.
Kl. 10.45 f. h. flytur séra Sig-
urður Ólafsson guðþjónustu á
ensku og íslenzku.
Kl. 7 e. h. messar séra H. S.
Sigmar á ensku.
☆
Messur í Norður-Nýja-íslandi
Sunnudaginn, 25. apríl
Riverton, kl. 2
Árborg, kl. 8.
Messar á íslenzku á báðum
stöðum.
Robert Jack
You’ll save a lot of worry,
With the way prices are today;
If you pick your cakes and
dainties,
From Aldo’s great display.
ALDO'S BAKERY
613 Sargent Ave. Phone 74-4843
DtSH to FLASH anil SAVE CtSH
FATAHREINSUNIN í NAGRENNINU (Abyrgð á öllu)
SHIRTS VAFÐAR í CELLO 5for*100
FREE Sótt og heimflutt afgreiðsla Sími 3-3735 3-6898
FLASH
CLEANERS
LIMITED
611 SARGENT AVE. (við Maryland)
Afítrtíiðsla sttma dag í
Fatahrclnsun vorri fiá
10 f. h. tíl 5 e. h.
\
CHICKS FOR PROFIT
Approved 100 50 25 R.O.P. Sired 100 50 25 R.O.P. Bred 100 50 25
White Leghorns Unsexed White Leghorn Puilets 118.50 $ 9.75 $ 5.15 36.00 18.50 9.50 20.00 $10.50 $ 5.50 39.00 20.00 10.25
Barred Rocks Únsexed Barred Rock Pullets 20.00 10.50 5.50 33.00 17.00 8.75 21.50 11.25 5.70 36.00 18.50 9.50
New Hampshlres Unsxd. New Hampshire Pullets 20.00 10.50 5.50 33.00 17.00 8.55 21.50 11.25 5.70 36.00 18.50 9.50
Light Sussex Unsexed Light Sussex Pullets $19.00 $10.00 $5.25 31.00 16.00 8.25 20.00 10.80 5.50 33.00 17.00 8.75
R.O.P. Bred Chicks Are the kind that reaHy lay And give you a better profit For thc money that you pay.
Black Australorps Unsxd Black Australorp Pullets 20.00 10.50 5.50 33.00 17.00 8.75
COCKERELS White Leghorns Heavy Breeds April Delivery 5.00 3.00 2.00 18.00 9.50 5.25 May Delivery 6.00 3.50 2.00 20.00 10.50 5.50
FARMERS' CHICK HATCHERY
Phone 59-3386
1050 Main Street Winnipeg, Man.