Lögberg - 18.11.1954, Blaðsíða 2

Lögberg - 18.11.1954, Blaðsíða 2
2 Slíkar sögur gerast — en ekki á hverjum bæ í fjalllandi í suðurhluta Banda ríkjanna bjó fátækt og menn- ingarsnautt fólk. Þar um slóðir ólst upp ung stúlka, Martha Berry að nafni. Faðir hennar var efnaður jarðeigandi. Sunnudag einn sat Martha og lék á hljóðfæri, en varð þess vör, að nokkur töturlega klædd börn stóðu fyrir utan gluggann og hlustuðu. Hún bauð þeim inn. Meðal annars spurði hún börnin, hvort þau gengju í sunnudagaskóla. — Þau skildu ekkert um hvað hún var að tala, þau höfðu ekki heyrt skóla nefndan, ekki séð ritblý né bók. Þetta var um síðustu aldamót. Martha sagði þessum börnum fallegar biblíusögur, og næsta sunnudag hópuðust þau til hennar úr ýmsum áttum. •— Barnahópurinn óx ört og unga stúlkan varð að fá afnot nær- liggjandi kirkju til þess að hafa nægilegt húsrúm handa þessum nemendum sínum. Hún komst brátt að þeirri niðurstöðu, að ekki var einhlýtt að fræða börnin og unglingana um kenn- ingu kristindómsins, þau þyrftu að hljóta almenna uppfræðslu og menntun. Mörg foreldranna kunnu hvorki að lesa né skrifa. Martha lét nú gera ofurlítið skólahús skammt frá heimili hennar. — Fyrstu nemendurnir vou 12 drengir. Hrædd og feimin börn frá fjarlægari heimilum læddust að húsinu til þess að forvitnast um þessa nýung. Þau unnu brátt bug á óttanum og komu inn, en berfætt voru þau öll. Martha þóttist sjá það, að ýmsar annir á heimilunum mundu gera börnunum skóla- gögnuna erfiða. — Eina varan- lega lausnin yrði að koma upp heimavistarskóla. Hún brá sér til borgarinnar til þess að gefa erfð sína — jörðina — slíkum skóla. — Lögfræðingur hennar reyndi að fá hana ofan af slíku, en hún svaraði því einu til, að „hún skyldi rækta þar dýrmæt- ari gróður en þann, sem jörðin þá gæfi af sér“. Árið 1902 opnaði hún slíkan skóla, nálægt hinum fyrri. Hinir föstu nemendur voru aðeins fimm drengir. Þetta var byrjun- in. Skólinn fékk nafnið, sem hann ber enn í dag, Mount Berry "A Realislic Approach lo ihe Hereafier" by Winnipeg aulhor Edith Hansson Bjornsson's Book Siore 702 Sargeni Ave. Winnipeg Minnist BETEL í erfðaskrám yðar. School. — Martha er dáin, en um 40 ára skeið gaf hún þessari merku stofnun líf sitt og krafta og allar eignir. Hún bætti stöð- ugt við landeign skólans, sem er nú um 30 þúsund ekrur — (ekran rúmir 4 þús. ferm.), — 1000 ekrur eru akrar, 2000 beiti- land, 40 ekrur grænmetisgarðar og 300 ekrur snjóhvítt blómahaf á vorin, þegar öll eplatrén standa í blóma. Meðal annars, sem skólabúið á, eru 13 þúsund hænsni og 1400 svín. Alls eru húsin nú 100, sem til- heyra skólanum á staðnum, þar á meðal gagnfræðaskólar handa piltum og stúlkum, og Martha Berry var svo hyggin að hafa það sérskóla. Þar er einn mennta skóli og kirkja. Kirkjuna byggðu piltarnir sjálfir, hjuggu til stein- ana í veggina, unnu viðarverkið úr timbri af landareigninni og smíðuðu einnig skreyttar járn- lamir á kirkjuhurðirnar. Allir nemendur skólans vinna tvo daga í viku fyrir skólavist sinni. Við skólann eru nú 150 kennar- ar. Laun þeirra eru ekki há, en þeir starfa í hinum upprunalega anda skólans og varðveita hann. Þegar ríkisstjórinn hafði eitt sinn litast um á þessum stað og kynnt sér starfshætti skólans, sagði hann: „hingað vil ég senda drenginn minn, er hann hefur aldur til þess“. En honum var svarað: „Því miður getum við ekki tekið hann. Við tökum ekki nemendur, sem eru svo efnum búnir að þeir geti stundað nám við aðra skóla“. Fimmtán þúsundir nemenda hefur skóli þessi brautskráð. Sumir þeirra eru nú ýmist for- menn vísindastofnana, vísinda- menn, læknar, lögfræðingar, rit- stjórar, kennarar, þingmenn eða í öðrum embættum. Sem drengir unnu þeir öll algeng sveitastörf á stóra skólaheimilinu. Margir lærisveinar Mörtu Berry, karlar og konur, eru nú kennarar við skólann. Skólinn heldur áfram á sinni upprunalegu braut, að sameina bóklegt og verklegt nám. Sið- ferðileg alvara ríkir þar, en engu að síður glaðværð og hlátur. Á öllum húsum skólans eru turn- ar. — „Nauðsynlegra er“, sagði Martha Berry, „að hafa turna á fjósum og hlöðum en kirkjum. Á leið til kirkjunnar er hugur manna jafnan himinsækinn, en við búsýsluna er meiri þörf á einhverju, sem beinir huganum upp á við“. Á þeim árum, er skólinn átti örðugast uppdráttar, leitaði Martha Berry stundum þangað, sem helzt var von á fjárhags- styrk. Hún fór til New York og kynnti þar óform sín. Einn Wall Street-búi gaf henni 500 dollara og einn kirkjusöfnuður nokkurt fé. í Hvíta húsinu í Washington var henni haldin miðdegisverð- arveizla, og þar gáfu gestirnir peningaávísanir. En einna bezt hljóp þó á snæri skólans, er Henry Ford og frú komu þar eitt sinn. Er þau höfðu snætt vel framreiddan mat, litu þau inn í Færið yður í nyt hina ódýrustu flugferð til íslands til heimsókna um jólaleytið! Sanktl Kláus heflr rött fyrir sér. Pullkomnasta jólagjöfin, sem J>ér getiö fært ástvinum yðar 4 íslandl er helmsökn yðar sjálfra um jólin. Og hinn mikli fjársparnaður, sem yður fellur I skaut á þessu “The Great Circle” ferðalagi, vekur margfaldan fögnuð, er heim kemur! Tiðar og reglubundnar flugferðir með 4 hreyfla Douglas Skymaster frá New York. Milli Reykjavikur og New York báðar leiðir — AÐEINS $265 LeitlO frekari upplýsini/a hjá umboOsmanni ferSa- skrifstofu yðar varðandi fargjöld. n sn n ICELANDICl AIRLINES u/Aalo LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 18. NÓVEMBER 1954 Soekarno forseti spurði hvernig hitaveitan í Reykjavík reyndist Sveinn Gíslason segir frá skemmíilegri dvöl í Indónesíu eldhúsið og dáðist frú Ford að snyrtimennsku og hreinlegri umgengni þar. Frúin gekk að eldavélinni, kallaði á mann sinn og sagði: „Henry, á þessari elda- vél hafa stúlkurnar eldað hinn ágæta mat, er við fengum. Þær hafa nýtt hana svo vel, að þær eiga sannarlega skilið að fá aðra betri“. Henry Ford gaf meira en elda- vél. Hann gaf skólanum þrjár milljónir dollara til þess að byggja borðsal, eldhús, tvær heimavistir, samkomuhús og eitthvað fleira. Seinna renndi hann augum yfir staðinn og varð þá að orði: „Lítið er það, sem ég hef lagt til hér. Þessa stofnun hefði ekki verið unnt að byggja fyrir alla veraldarinnar pen- inga“. Þetta sá réttilega hinn duglegi kaupsýslumaður. Öll heimsins auðæfi geta ekki komið því til vegar í heimi manna, sem andi fórnfýsi, mannkærleika og guð- elsku getur afrekað sálum manna til tímanlegrar og eilífrar farsældar. Þótt fréttablöð og útvarp helli í eyru okkar daglega mestum fréttum um styrjaldir, glæpi, slys og ófarnað um allar álfur heims, gerist þó margt í mann- heimi, sem er aðdáunarvert, uppörfandi, fagurt og gott. Og líklega er það svo mikið vexti, að fréttablöð og útvarp treystast ekki til að fylgjast þar með og skýra frá öllu því. Þessu skyldu menn sízt gleyma. Unga stúlkan, sem kom snemma auga á, hversu mætti rækta líf barna og æsku- manna, og gaf til þess allt sem hún átti, einnig sig sjálfa, öll sín æfiár, starfskrafta og hæfileika, eins og hér hefir verið sagt frá, er vissulega ein af hinum feg- urstu fyrirmyndum, og bauta- steinn hennar mun standa lengi óbrotgjarn. Endursögn úr Reader's Digest —EINING, okt. 1954 Með ýmsu móti geta vinskap- ur og tryggðir tekizt með mönnum. Þarf viðkynning ekki ætíð að hafa verið löng. Ég var minntur á þetta þegar ég fyrir skömmu heimsótti foreldra mína í Glenboro. Þangað kom árið 1939 búfræðingurinn góð- kunni Árni G. Eylands. Drakk hann kaffi með föður mínum og rabbaði við hann nokkra stund. Þótt persónuleg viðkynning þeirra yrði ekki önnur en þessi, hefur Árni frá þeim degi sýnt föður mínum mörg merki vin- skapar og tryggðar og oft sent honum bækur. Rifjaðist þetta upp fyrir mér, þegar ég sá síð- ustu bókina, sem Árni sendi föður mínum. Þessi bók heitir Búvélar og ræktun (Bókaútgáfa Menningarsjóðs, Rvík, 1950), eftir Árna sjálfan, og vakti strax furðu hjá mér, er ég tók að blaða í henni. Hún er mjög vönduð að öllum ytra frágangi og efni hennar geysifróðlegt fyrir hvern þann, eruáhuga hefir á búnaðarsögu íslands. En þó« þótti mér einna merkilegast, að smáþjóð, sem telur ekki 150,000 þegna, skyldi geta ráðizt í að gefa út slíka bók. Faðir minn hefir lengi ætlað að rita nokkur orð um þessa bók, en langvarandi vanheilsa hefir valdið því, að hann hefir ekki komið þessu í verk, Ég sagði því vi£S hann, að mér mundi ljúft að rita nokkur orð um bókina, þótt ekki hefði ég vit á ræktun, en hefði þar á móti snefil af þekkingu á búvélum, þar sem ég hefði unnið mörg sumur við að setja saman og gera við akuryrkjuverkfæri. Búvélar og ræktun er 475 bls. að stærð í stóru broti. I henni eru á sjötta hundrað myndir og teikningar af búvélum og öðru. Þessar myndir eru margar mjög nákvæmar og skýra bæði gerð véla og notkun þeirra. T. d. eru hér ótal myndir, sem lýsa hinum mismunandi hlutum traktora (eða draga, eins og þeir vilja Ég var Wz ár að venjast hinum miklu hitum Indó- nesíu. Eftir það háði verðr- áttan mér lítið. Og síðan hefur mér líkað svo vel þarna austurfrá, að ég er staðráðinn í að fara þangað aftur enn um hríð, enda er flugmannsstarfið afbrags vel launað þar austur frá. ÞANNIG fórust Sveini Gísla- syni flugmanni orð, er ég rabb- aði svolítið við hann um dvöl hans í Indónesíu. Sveinn er meðal víðförlustu íslendinga og hefir getið sér gott orð sem flug- maður á hinum erfiðu og' löngu flugleiðum í þessu austræna eyjaveldi. Flugstjóri í Indónesíu — Ég fór þangað austur á fyrrihluta árs 1952 og var þá upphaflega ætlazt til að ég yrði þar í 2 ár, en rétt áður en þeim tíma lauk var ég beðinn um að starfa þar lengur. Er ég nú kom- inn heim í stuttu fríi, en hverf aftur austur innan skamms og mun verða þar enn í Wz til 2 ár. Fyrst starfaði ég sem aðstoðar- flugmaður, en síðar sem flug- stjóri. Mikill flugfloli — Hvaða flugvélar eru notað- ar þarna? — Það er allstór flugfloti, 16 Convair-flugvélar, 14 De Havil- land Heron, rúmlega 20 Douglas Dakota og Katalína-flugbátar hafa verið notaðir. — Er ekki nauðsynlegt að nota flugbáta í svona eyríki eins og Indónesíu? —Nei, eins og ég sagði hafa Katalína-flugbátar verið notaðir, en nú er verið að leggja þá niður. Það er búið að gera svo marga flugvelli víðsvegar á kalla þá á Islandi) og starfi þeirra. Hafði ég ekki sízt gaman af að athuga myndirnar í bók- inni, því að þar rakst ég á marg- ar vélar, sem nú eru horfnar af sviðinu, sem voru mér að góðu kunnar frá uppvaxtarárunum, þegar ég hafði þó talsverðan áhuga á vélum. Þarna rakst ég t. d. á gamla International 10/20 traktorinn, en hann var með betri traktorum um og eftir 1925. Bókin skiptist í tólf kafla, og yrði of langt mál að ræða þá hér, en geta má tveggja eða þriggja. Einna skemmti- og fróð- legastur þótti mér þátturinn um sögu plógsins á liðnum öldum og fram á vora daga í kaflanum: „Jarðvinnsla með hestum“. Er þar að finna myndir af plógum frá elztu tímum fram á þennan dag. Þá þótti mér, eins og fyrr segir, stórmerkilegur kaflinn um traktora og gaman hafði ég af að læra í fyrsta sinn hin íslenzku nöfn á mörgum hinna mismun- andi hluta þessara véla. Hygg ég og, að marga þarfa bend- ingu fengi margur bóndi í þess- ari álfu, ef hann læsi kaflan: „Meðferð traktora og hirðing“, enda er ekki fallegt að sjá van- hirðingu á vélum á mörgu býli hér í fylki. Eins og við er að búast, er langur kafli um heyskap, og gefur hann góða hugmynd um, hversu íslendingar á seinni árum hafa notfært sér allar hin- ar mörgu nýtízku heyskapar- vélar. Eins er fróðlegur kaflinn: „Garðrækt og kornrækt“, þótt kornrækt sé enn á tilraunastigi á íslandi. En hér skal staðar numið. Að- eins skal það tekið fram, að ekki munu margar þjóðir, og er þá stórveldunum ekki sleppt, eiga eins aðgengilega og fullkomna bók um búvélar og ræktun. Hún er bæði höfundi og þjóð til sóma. Tryggvi J. Oleson eyjunum, að það er ekki lengur þörf fyrir sjóflugvélar. Áður var það hollenzka flugfélagið, sem hélt uppi öllum flugferðum í Indónesíu, en nú hefir sú breyt- ing orðið, að flugfélagið er að fullu eign indónesísku stjórnar- innar, an starfsemin hins vegar rekin af hollenzka flugfélaginu KLM. Hollendingar ómissandi — Hvernig er annars sambúð Indónesa og Hollendinga? — Hún hefir verið slæm. Indónesar litu á Hollendinga sem nýlendukúgara og vildu helzt reka þá alla af höndum sér. En sannleikurinn er sá, að þeir geta ekki komizt af án hinna hollenzku innflytjenda, tækniþekkingu þeirra og kunn- áttu. Þeir ráku sig á að illa fór á ýmsum sviðum, þar sem Hol- lendingar voru reknir. Nú eru Indónesar almennt farnir að skilja þetta og má meðal annars sjá það í rekstri flugfélagsins. Leyniskytiur við alfaravegi — Hafið þið flugmennirnir nokkuð orðið fyrir barðinu af innanlandsóeirðum þeim, sem verið hafa í Indónesíu? — Nei, ekki að heitið geti. Það er rétt að taka það fram, að það er algerlega eitt ríkisvald, sem ræður á öllum þeim ógrynnum eyja, sem í Indónesíu eru. En við og við kemur það fyrir að upp- reisnir brjótist út meðal þjóð- flokka eða sértrúarflokka, t. d. á Vestur-Java, Celebes, Norður- Súmatra og víðar. Þegar slíkar skærur brjótast út er vissara að fara varlega. Ég minnist þess t. d. að þegar uppreisn var á eynni Celebes, gátum við ekki farið frá flugvellinum til bæjar- ins, vegna þess að leyniskyttur lágu meðfram veginum og okk- ur voru gefin fyrirmæli um að fljúga ekki lágt að flugvellinum af hættu við leyniskyttur, held- ur hringsóla og lækka flugið yfir sjálfum vellinum. Flug almennt meðal auðugra — Er flugið orðið almennt meðal fólks í Indónesíu? — Kjör meginhluta þjóðar- innar eru slík, að þeir hafa engin efni til ferða, heldur dveljast að mestu á sama stað allt sitt líf. En flugið verður æ þýðingar meira í þjóðlífinu. Mest eru það að vísu embættismenn, höfð- ingjar, þingmenn og kaupmenn sem við flytjum. Stundum flytj- um við jafnvel nokkuð af her- mönnum, þegar nauðsyn er her- liðs til að bæla niður róstur og mótþróa við stjórnina. í ferðum með Soekarno — Þá hef ég margar skemmti- legar minningar frá langri flug- ferð, sem ég fór með Saekarno, forseta Indónesíu til norður- hluta Súmatra og annarra nær- liggjandi eyja. Ferðin tók 10 daga og komum við þar á flesta þá staði, þar sem flugvél gat lent. Þá kynntist ég ýmsum nýjum stöðum. — Hvernig kom forsetinn þér fyrir sjónir? — Hann er lágvaxinn maður, eins og flestir Indónesar. Ákaf- lega þægilegur í viðmóti. Hann gaf sig m. a. á tal við mig. Hafði honum verið sagt, að ég væri Is- lendingur. Fór hann að rabba við mig um Island og virtist hafa dágóða þekkingu á þessu fjar- læga landi. M. a. spurði hann mig hvernig hitaveitan í Reykja vík reyndist. Hann hafði áhuga fyrir því, en í Indónesíu eru víða heitir hverir. Þeir hafa hins veg- ar engin not fyrir að hita upp hús sín með hverahita, því að ríkið liggur undir miðjarðar- baug. — Þetta var opinber heim- sókn, sem forsetinn var í og var honum hvarvetna tekið ákaflega vel og hátíðlega. Haldnar voru danssýningar og sungið fyrir forsetann. Búvélar og ræktun — Á einum stað, við svonefnt Topa-vatn, sem er uppi í fjöll- um, varð ég afskila við áhöfn flugvélarinnar. Þá bauð forset- inn mér að koma með sér til hátíðahaldanna. Fórum við fyrst all-langa leið með bifreiðum, stigum svo út úr í borginni. Ef til vill hefði ég ekki átt að ganga í fylgdarliði forsetans inn um mannfjöldann, en ég áttaði mig ekki fyrr en of seint, veggur mannfjöldans var á báða bóga, svo að ekki varð snúið við. Fór ég síðan með fylgdarliði forset- ans upp á heiðurspall mikinn Þar ætlaði ég að reyna að kom- ast undan til hliðar, en var þá boðið að taka mér sæti. Sátum við þar í nokkrar klukkustundir, horfðum á dans og hlýddum á söngva. En list þessara austur- landabúa hefir mér fundizt miög aðlaðandi, fíngerð og með sér- stakan töfrandi blæ. Var tíminn fljótur að líða við hinn austræna dans. Við Borobudur og Bali — Þú hefir þannig haft mikil kynni af þjóðlífi Indónesa? — Já, hér á landi hefir Björg- úlfur Ólafsson læknir skrifað ýtarlegar bækur um Austur- Indíur. Við frásögn hans þarf litlu að bæta, því að ég hef sann- færzt æ betur um það við kynni mín af Indónesíu hve snilldarleg lýsing hans er. Mér gafst t. d. tækifæri til að skoða hið stór- merkilega forna hof Borobudur og virðist mér að í lýsingu hans sé hvergi ofmælt um þetta vold- uga listaverk frá fornri öld menningar á Java. Ég hef einnig heimsótt sælueyna Bali, þar sem fólk er nokkuð með öðru móti, en víðast annars staðar í Indó- nesíu, hávaxnara og ljósara. Þar þróast mjög sérstæð list og bera t. d. dansarnir á Bali af annarri danslist, útskurður og listiðnað- ur hefir þar og sitt sérstaka svip- mót, sem margir Evrópubúar verða heillaðir af. Vestræn menning sækir á — Já, segir Sveinn að lokum, þarna býr þjóð, sem á miklar fornar arfleifðir og víða hvílir austrænt dulmagn yfir umhverf- inu. En á síðari árum ryður vestræn tækni sér æ meira til rúms. Flugmennirnir eru að vissu leyti eins konar boðberar hinnar vestrænu menningar a þessum slóðum. En þess gætir víðar, nýtízku hús rísa upp 1 borgunum, bifreiðar þjóta um götur og svo blandast austrænt og vestrænt saman á undarlegan hátt eins og þegar kúlíarnir hætta að draga leiguvagna sína og aka leigureiðhjólum nm strætin. Þ. Th. —Mbl., 7. okt. Hagfræðideild Landsbanka ls- lands hefur byrjað útgáfu tímarits um efnahagsmál, og heitir það Fjármálaiíðindi. Rit" stjóri er Jóhannes Nordal. Rit1 þessu er ætlað að birta aðgengi- legar upplýsingar og greinar um efnahag þjóðarinnar og fjár- mál, og enn fremur á það að verða vettvangur fyrir ritgerðir og umræður um hagfræðileg efni. Meginefni það, sem áður hefur komið í Árbók Lands- bankans, á að birtast hér eftir í þessu tímariti. Fjármálatíðind1 koma út fjórum sinnum á arx- í fyrsta heftinu segir m. a. 1 yfirliti um peningamarkaðinn, að hin mikla þensla í peninga' kerfinu, sem einkenndi árið 1953 hafi haldið áfram á þessu ári, en aukning seðlaveltunnar þó ekki verið eins mikil. Hag' stæðasti þáttur þróunarinnar undanfarið er sá, að spari-innlög í bönkunum hafa haldið áfram að vaxa jafnt og þétt, en alvar- legast hitt, að hin mikla aukn- ing innlána hefur hvergi nærri nægt til þess að vega upp á móti útlánaukningunni. Jöfnuður hef ur náðst með því, að seðlaveltan hefur aukizt og gjaldeyriseign bankanna slórlækkað, en hvort tveggja horfir í öfuga átt við það, sem æskilegast er, segir 1 greininni.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.