Lögberg - 02.12.1954, Page 1
ANYTIME
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
67. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 2. DESEMBER 1954
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
NÚMER 48
Fréttir fré ríkisútvarpi íslands
21. NÚVEMBER
I vikunni, sem leið, seldu þrír
togarar í Þýzkalandi, þar af einn
til Austur-Þýzkalands og er það
fyrsti farmurinn, sem þangað er
seldur. Verð á þeim fiski er fast-
ákveðið, sem næst ein króna og
83 aurar kílógrammið. — Togar-
inn Jörundur seldi í fyrradag í
Hamborg 2426 körfur af Norður-
sjávarsíld fyrir rösklega 38.500
mörk.
☆
Vöruskiptajöfnuðurinn í októ-
bermánuði s.l. varð hagstæður
um 20,8 miljónir króna. Inn voru
fluttar vörur fyrir 95,9 miljónir
króna en út fyrir 116,8 miljón,
og hefur aldrei áður verið flutt
út í einum mánuði fyrir svo
mikla upphæð. Fyrstu 10 mánuði
ársins er vöruskiptajöfnuðurinn
óhagstæður um 203,5 miljónir
króna. Út hafa verið fluttar vör-
Ur fyrir 691,1 miljón króna en
inn fyrir 894,6 miljónir.
☆
í aprílmánuði s.l. skipaði
kirkjumálaráðherra Skálholts-
nefnd er skyldi gera tillögur um
endurreisn Skálholts og fram-
tíðarskipulag staðarins, sérstak-
lega með tilliti til þess, að árið
1956 eru liðin 900 ár frá því að
biskupsstóll var settur í Skál-
holti. Nefndina skipa Hilmar
Stefánsson bankastjóri, Svein-
björn Högnason prófastur og
Magnús Már Lárusson prófessor.
Nefndin hefur fyrir nokkru sent
kirkjumálaráðherra álit sitt og
tillögur, og leggur meðal annars
til, að í Skálholti verði reist
kirkja, er rúmi 250 manns í sæti.
Stíll kirkjunnar verði í samræmi
við hinar eldri dómkirkjur og í
oddbogastíl, með háu miðskipi
og lægri hliðarskipum og stúk-
um. Sjálfsagt er talið, að þar
verði varðveittir allir forngripir,
sem komið hafa frá Skálholti,
enda verði þeir þar í öruggri
geymslu. Nefndin hefur falið
húsameistara ríkisins að gera
uppdrætti að kirkjunni, og mun
H. Christie arkitekt, sem staðið
hefur fyrir rannsókn hins forna
kirkjugrunns, verða ráðunautur
húsameistara um þessi mál. Þá
er einnig gert ráð fyrir því að
kunnur húsameistari, M. Paul-
sen í Osló, verði með í ráðum
um teikningu Skálholtskirkju.
Talið er, að kirkjan muni kosta
2% til 3 miljónir króna. Nefndin
leggur enn fremur til að reist
verði íbúðarhús fyrir prest stað-
arins eða biskup, helzt báða, og
er svo ráð fyrir gert, að prests-
seturshúsið verði bæði að stærð
°g útliti og allri tilhögun með
óðrum hætti en venjuleg prests-
seturshús, m. a. verði þar stór
fundarsalur og allmörg gesta-
herbergi. Þá skal og reisa íbúð-
arhús fyrir bónda eða ráðsmann,
hitaveita verði lögð í öll hús
staðarins, hraðað lagningu há-
spennulínu og umhverfi fegrað.
Telur nefndin að kostnaður við
framkvæmdirnar verði eigi
hiinni en 6 miljónir króna.
☆
Á fundi í Sameinuðu þingi s.l.
hnðjudag var minnzt Benedikts
Sveinssonar, fyrrum forseta
heðri deildar alþingis, er lézt í
■heykjavík þá um morguninn á
sjötugasta og sjöunda aldursári.
^undir höfðu verið boðaðir í
baðum deildum að venju, en
öeildarfundir voru felldir niður
I.
og boðað til fundar í Sameinuðu
alþingi. Jón Sigurðsson vara-
forseti flutti minningarræðuna
um Benedikt Sveinsson í fjar-
veru Jörundar Brynjólfssonar
þingforseta og rakti fyrst ævi-
feril Benedikts og gat fjölmargra
starfa hans, og sagði síðan m. a.:
Allir þeir, sem kynnt hafa sér
sögu þings og þjóðar á fyrsta
þriðjungi þessarar aldar, vita að
Benedikt Sveinsson stóð jafnan
í fylkingarbrjósti þeirra manna,
sem harðast börðust fyrir sjálf-
stæði landsins, en var þó hverj-
um manni háttvísari og drengi-
legri í vopnaviðskiptum. Mál-
snilld hans í ræðu og riti var
við brugðið og mun lengi verða
minnst. Og það mun almælt, að
ekki hafi skörulegri maður né
virðulegri setið í forsetastól á
Alþingi.
☆
í byrjun næsta árs tekur gler-
verksmiðja til starfa í Reykja-
vík, og segja forstöðumenn fyrir-
tækisins, að hún gæti fullnægt
allri eftirspurn landsmanna eftir
glervarningi, ef hún væri rekin
með fullum afköstum. Notuð
verða ýmis íslenzk hráefni til
framleiðslunnar en nokkuð þó
flutt inn af hráefni. Þarna á að
framleiða rúðugler af ýmsum
þykktum, einnig flöskur og glös,
búsáhöld úr gleri, netakúlur og
fleira. Verksmiðjuhúsið er 1400
fermetra. Belgiskt fyrirtæki að-
stoðar við að koma verksmiðj-
unni upp, og sérfræðingar þaðan
munu starfa við glergerðina
fyrst í stað. Starfsliðið verður
fyrst um sinn 60 til 80 manns,
þar af 9 erlendir glergerðar-
menn. Fyrirtæki þetta heitir
Glersteypan h.f., og fram-
kvæmdastjóri þess er Ingvar S.
Ingvarsson.
☆
Sextánda þingi Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja lauk
á þriðjudaginn var. Formaður
Bandalagsins var endurkjörinn
Ólafur Björnsson prófessor. —
Ákveðið var að kalla saman
Framhald á bls. 4
Kvödd með
samsæti
Um hádegisbil á laugardaginn
var efndi framkvæmdarnefnd
Þjóðræknisfélagsins til samsætis
á Fort Garry hótelinu til heiðurs
þeim Árna G. Eylands stjórnar-
ráðsfulltrúa og frú Margit Ey-
lands, en þau voru gestir fé-
lagsins þann tíma, er þau dvöldu
í Winnipeg og grend. Séra
Philip M. Pétursson varaforseti
Þjóðræknisfélagsins sklpaði for-
sæti í fjarveru Dr. Valdimars J.
Eylands. Séra Philip ávarpaði
heiðursgestina nokkrum vin-
hlýjum orðum, þakkaði þeim
ágæt störf í þágu íslenzkra
menningarmála og árnaði þeim
góðs brautargengis; afhenti hann
þeim síðan viðeigandi gjöf frá
Þj óðræknisf élaginu.
Árni þakkaði félaginu og öðr-
um vinum þeirra hjóna með
fögrum hlýyrðum alla þá vin-
semd, er þeim hefði fallið í
skaut af hálfu Vestur-lslendinga
og óskaði þeim heilla í bráð og
lengd.
Á sunnudagsmorguninn flugu
þau Eylandshjón suður til Bis-
marck, N.D., í heimsókn til Guð-
mundar Grímssonar hæztarétt-
ardómara og frúar hans, en í
Bandaríkjunum munu þau
dveljast fram um miðjan janúar
næstkomandi.
■ Sir Winston Churchill
Áttræður víkingur, er hvergi
v lætur bilbug á sér finna
Síðastliðinn þriðjudag átti heimsborgarinn, Sir Winston
Churchill, forsætisráðherra Bretlands hins mikla áttræðis-
afmæli; hann nýtur enn ágætrar heilsu og lætur hvergi
bilbug á sér finna; í tilefni af afmæli þessarar dáðu
sigurhetju, var svo mikið um dýrðir í London, að hátíða-
höldunum hefir verið líkt við krýningu Elizabetar
drottningar;. allir samþingismenn Sir Winstons, sem nú
eiga sæti á þingi, að undanteknum sex, færðu honum
skrautritað ávarp, en heillaóskaskeyti bárust honum frá
þjóðhöfðingjum vítt um heim. Það var ekki einasta að Sir
Winston talaði kjark í þjóð sína meðan á síðari heims-
styrjöldinni stóð, heldur hvatti hann til átaks allar hinar
lýðræðisþjóðirnar, er hendur sínar áttu að verja; það mun
því eigi ofmælt, að hann sé hin mikla sigurhetja tuttugustu
aldarinnar. Sem þingskörungi er Sir Winston jafnað
við Glandstone.
G. S. Thorvaldson
To Give
Radio Address
G. S. Thorvaldson of Winni-
peg, newly elected president of
the Canadian Chamber of Com-
mrece, will be the guest on the
radio series “Press Conference”
next Sunday evening, speaking
frwn Ottawa. The program will
be broadcast over the Dominion
network at 8.30 p.m. M.S.T.
Mr. Thorvaldson was born in
Riverton, Man., son of one of
Canada’s leading Icelandic citi-
zens. He was called to the Mani-
toba bar in 1925, and has special-
ized in commercial and tax law.
In 1944 he gained national prom-
inence through his work in es-
tablishing the Income Tax Pay-
ers’ Association, dedicated to
securing “a more equitable dis-
tribution of the income tax
burden.”
Grein um ísland
Grein um ísland birtist í hinu
víðlesna tímariti, U. S. News &
World Report, 26. nóv. síðastlið-
inn; fjallar hún um bandarísku
flugstöðina í Keflavík og afstöðu
þjóðarinnar gagnvart herliðinu
þar. Telur greinarhöfundur að
ekki sé öruggt um, að þessi
mikilvæga varnarstöð verði til
lengdar í höndum Atlantshafs-
bandalagsins, vegna þess hve
kommúnistaflokkurinn í landinu
sé öflugur, en hann ali stöðugt
á hatri í garð Bandaríkjamanna,
hins vegar á andvaraleysi gagn-
vart Sovétríkjunum. Ennfremur
sé á íslandi nýstofnaður stjórn-
málaflokkur — Þjóðvarnaflokk-
urinn, — sem vinni að því öllum
árum að stjórnin á íslandi segi
upp hervarnarsamningnum og
komi varnarliðinu úr landi,
vegna þess að þeir telji Banda-
ríkjaliðið, 5000 að tölu, hættu-
legt íslenzkri menningu og
tungu. Verði bandaríska liðið
flutt burt, telur greinarhöfundur
engan veginn ólíklegt, að Rússar
gætu náð þar fótfestu, því þá
yrði landið algerlega varnar-
laust; ennfremur andvaraleysi
almennings gegn hættunni og
áróður og undirbúningsstarf
kommúnista innanlands myndi
greiða þeim aðgang á landi; ef
til styrjaldar kæmi gætu Sovét-
fiskibátar, sem eru jafnan á
veiðum við strendur Islands,
komið á land nægum mannafla
til að leggja undir sig þetta fá-
menna, varnarlausa land.
Sögufrægur Rugby leikur
Á laugardaginn var fór fram
mesta íþróttasamkeppni í
Canada, en það var fótbolta-
leikur — Rugby — milli Vestur-
og Austur-Canada; var hann
þreyttur í Toronto, milli Ed-
monton Eskimos og Montreal
Alouettes. Flestir íþróttasér-
fræðingar höfðu spáð því, að
Montreal-liðið myndi sigra því
það væri miklu hæfara, auk þess
sem margir Rugby leikaranna
höfðu orðið fyrir meiðslum í
Tekjur ríkissjóðs
sennilega millj.
næsta ór
í gœr fór fram fyrsta um-
rœða um fjárlög ársins 1955,
og var henni útvarpað. .
Eysteinn Jónsson fjármálaráð-
herra flutti ræðu um fjárhag og
afkomu ríkissjóðs, eins og venja
er til við slík tækifæri. Ráð-
herrann greindi nokkuð frá af-
komu ríkissjóðs árið 1953, en
reikningur fyrir það ár er nú
fullgerður. Greiðsluafgangur á
því ári reyndist rúmlega 36
millj. króna. Af þessu fé var 27
milljónum varið til aukningar á
rekstursfé ríkisstofnana, atvinnu
áukningar, greiðslu á lánum
vegna vanskila (togara) o. fl., en
9 millj. var varið til lækkunar
lausaskulda.
Fjármálaráðherra sagði m. a.
í ræðu sinni, að margt benti til,
að þetta ár yrði ekki lakara við-
skipta- og atvinnuár en í fyrra,
sem þó var talið gott, en þá
væri skynsamlegt að leggja ein-
hverja fjármuni til hliðar og
eiga handbæra til lakari ára.
Tekjur ríkissjóðs eru áætlaðar
493 millj. króna á næsta ári, en
sennilegt er, að þær kunni að
verða 510—520 milljónir.
Síðan rakti ráðherra einstaka
gjaldliði og greiðslur, en það
verður ekki rakið hér, þar eð
umræðunni var útvarpað.
Af hálfu Sjálfstæðismanna tók
Magnús Jónsson þingmaður Ey-
firðinga til máls. Lagði þing-
maðurinn á það áherzlu, að halla
laus ríkisbúskapur væri skilyrði
farsæýlar þróunar í efnahags-
málum þjóðarinnar.
Sagði Magnús, að Sjálfstæðis-
flokkurinn myndi halda fyrri
stefnu sinni og leggja áherzlu á,
að fjárlög verði afgreidd halla-
laus.
—VÍSIR, 16. okt.
undanfarandi kappleikjum. En
þó fór það svo, að piltarnir frá
vesturfylkjunum fóru með
pálmann í höndunum, það er að
segja gráa bikarinn — Grey Cup,
sem keppt var um. Þó mátti það
ekki tæpara standa; á síðustu
augnablikum leiksins náði einn
leikmanna Eskimóa, Jacky
Parker, í boltann, meir af hend-
ingu en nokkru öðru var sagt,
og kom honum yfir markið og
það réði úrslitunum. Fagnaðar-
læti Vestm#nna voru mikil og
vonbrigði Austmanna að sama
skapi. Svo var mikill áhugi
fyrir leiknum hér í Winnipeg,
að fjöldi fólks fór á bílum í
ófærðinni til Fargo, N.D. til að
sjá leikinn í sjónvarpi. — Mikil
fagnaðarhátíð fyrir sigurvegar-
ana fór fram í Edmonton í gær.
Kjörinn í fram-
kvæmdarstjórn
Mr. J. Harvey Johnson
Mr. Johnson, sem er búsettur
í Fort William og er íslenzkur í
báðar ættir, hefir verið kosinn í
framkvæmdarstjórn O n t a r i o
Chambers of Commerce, en áður
var hann deildarforseti þessara
öflugu samtaka í Fort William;
hann er kunnur dugnaðar- og
ráðdeildarmaður; foreldrar hans
eru hin mætu og vinsælu hjón
Stefán Johnson, er um langt
skeið var prentari hjá The
Columbia Press Limited, og frú
Jakobína Johnson. Stefán er
látinn fyrir mörgum árum, en
Jakobína, nú Mrs. R. Alexander,
er búsett að Thelmo Mansions
hér í borginni.
Fort William blað lánaði Lög-
bergi myndamót af Mr. Johnson
til birtingar.
Að skilnaði
Sargent Avenue er gömul gata
— gata sem að landar þekkja og rata,
þar er íslenzkunnar meginmergur
meðan lífi halda Kringla og Bergur.
Þar er Pállinn Einar orkuslingur,
aldrei bilar þessi norðmýlingur,
þó að fjúki gamanyrði og glettur
garpurinn verður ekki af spori settur.
Þar er Stefán undan austurfjöllum,
ættaður af Hornafjarðarvöllum,
tryggur eins og tröll í hverju máli,
en tregur við að beita hvössu stáli.
Þar er Davíð drengur úr Húnaþingi,
drjúgur hverjum Vestur-lslendingi,
það er hann sem öllum bækur býður
— bókalaus var aldrei frónskur lýður.
Hér á þetta breiða steinda stræti
sterkir menn og konur hafa fæti
stígið oft og staðið fast að verki,
stjörnubjart er enn um þeirra merki.
Winnipeg, 27. nóvember 1954
ÁRNI G. EYLANDS