Lögberg - 24.02.1955, Blaðsíða 3

Lögberg - 24.02.1955, Blaðsíða 3
3 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 24. FEBRÚAR 1955 Töframeistarar tónsprotans „Snillingar eru yfirleitt meira eða minna brjálaðir, — flestir meira,“ segir Voltaire, „enda þótt ekki sé þar með sagt, að allir brjálaðir menn séu snillingar.“ 1 grein þessari segir nokkuð frá snjöllustu hljómsveitarstjórum vorra tima, og sumir þeirra, — nei, við skulum lesa greinina. Það ber oft við, að hann brýtur tónsprotann í reiðikasti, stund- um á herðum einhvers hljóðfæra leikarans, og komið hefur fyrir, að af því hafa risið málaferli. í eitt skipti særði hann einn hljóð- færaleikarann á augum. Hann sparkar um kóll þeim nótna- trönum, sem næstar honum standa, æpir að hljómlistar- mönnunum og kallar þá klaufa, svín og morðingja. Þegar hinum fræga söngvara, Leo Slezak, mis- tókst eitthvað smávægilegt á leiksviðinu, grenjaði þessi hljóm sveitarstjóri: „Þessi tenórsöngv- ari er fífl og asni!“ Algengt er, að hann ávarpi hljómsveitina á þessa leið: „Reynið þið aftur, klaufabárðarnir ykkar!“ Við cbóleikara nokkurn varð honum að orði: „Ég myrði þig. Þú ætlar mig lifandi að drepa!“ Þá er og altítt, að hann reki hljóðfæra- leikara út og krefjist annarra í staðinn. Þegar hann stjórnaði hljómsveitaræfingum í Bayruth, hrópaði hann án afláts: „Nei, nei!“, svo að hljóðfæraleikararn- ír breyttu nafni hans í Toscan- neinei. Þannig mætti lengi telja, ef segja skyldi frá framkomu Toscaninis, þegar hann stjórnar hljómsveitaræfingum, enda er langur kafli honum helgaður í hinni nýútkomnu bók Friedrich Hertzfeld, „Töframeistarar tón- sprotans“. Höfundurinn hefur um langt skeið verið tónlistar- gagnrýandi í Þýzkalandi, og í starfi sínu átt þess kost, að kynnast mestu hljómsveitar- stjórum mjög náið, sérkennum þeirra og starfsaðferðum. Virðist því lítil takmörk sett, sem hann kann frá að segja, varðandi at- hyglisverðustu skapgerðarein- kenni þessara manna, ýmist mannlega aðlaðandi, eða hann lýsir þeim sem hálfgildings ó- freskjum og miklum snillingum í einu og sömu persónu. Toscanini telzt með síðari hópnum. Að sjálfsögðu dáir Hertzfeld snilld hans takmarka- laust, eins og allir aðrir, en það er engu að síður næsta óhugnan- legt að lesa lýsingu hans á fram- komu meistarans, þegar hann stjórnar hljómsveitaæfingum. I hvíldarstundum dekrar Tosca- nini við kanirífugla sína, og Sonja litla dótturdóttir hans og dóttir Vladimirs Horowitz hins heimsfræga slaghörpuleikara, er eina mannveran, sem vitað er til, að haft hafi nokkur tök á gamla manninum. Hún hefir meira að segja fengið afa sinn til að leika lögin úr teiknimynd- um Disneys á slaghörpuna! LEOPOLD STOKOWSKY er hvorki í tengslum við Pólverja né Rússa. Réttu nafni heitir hann Lionel Stokes, er fæddur í Lundúnum af foreldrum, sem ekki komu nálægt tónlistinni. Af ættarnefninu Stokes mynd- aðist svo gælunafnið „Stoky“, og þegar frægðarferill hins unga hljómsveitarstjóra var að hefj- ast í Bandaríkjunum, tók hann sér þetta nafn, sem síðan er heimsfrægt orðið. Nú harðneitar hann því, að hafa nokkru sinni borið annað nafn, og kveður það vera skírnarnefn sitt. Sem hljóm sveitarstjóri er hann fram úr hófi ráðríkur. Hann breytir sí- gildum verkum frægustu tón- skálda, eins og t. d. Bach, eftir sínu eigin höfði, tekur í notkun hin sérkennilegustu hljóðfæri og lætur hljómsveitina flytja furðulegustu verk áður óþekktra höfunda. Hann reynir nýjustu dægurhljóðfæri, svo sem There- minvox, Clavilux, og hvað þau nú heita. Oft leikur hljómsveit hans á bak við hlíf, svo að áheyr- endurnir sjá hvorki hana né stjórnandann eru þá öll ljós slökkt í salnum, en ljóskastarar varpa síbreytilegu, marglitu skini á hlífina. — Þannig flytur hann t. d. Sheherasade. Og hon- um dugar ekki minna en sex hundruð manna sveit söngvara og hljóðfæraleikara til þess að flytja Mattheusarpassíu Bachs. Stokowsky hikar ekki við að segja áheyrendum meiningu sína. Virðist þá sem hann tali eins og andinn gefur honum að mæla, en í rauninni eru slíkar ræður hans vandlega undirbún- ar. Lætur hann sér þá ekki nægja að skamma þá, sem koma of seint, heldur lætur hann og til sín taka, ef honum finnst sem áhorfendur láti ekki næga hrifn- ingu í ljós, þegar flutning ein- hvers verks er lokið! Hann gætir þess að vera alltaf glæsilegustu klæðum búinn, og notar aldrei tónsprota, fyrir þá sök, að þá gæfist áheyrendum ekki tæki- færi til að veita því athygli, hve fallegar hendur hans eru. Engar mannlegar hendur munu jafn oft hafa verið ljósmyndaðar. Hann er strangur og miskunnarlaus á æfingum, talar aldrei vingjarn- legt orð við hljóðfæraleikarana, — varla að hann kasti á þá kveðju. Takist einhverjum þeirra ekki nógu vel leikurinn að hans dómi, vísar hann við- komanda á brott af miðri æf- ingu. Þrátt fyrir allt er Sto- kowski vel látinn sem hljóm- sveitarstjóri í Bandaríkjunum, og fáir eru gæddir jafn hrífandi persónuleika. Hinn frægi „meistari allra hljómsveitastjóra“, eins og Arthur Nikisch var kallaður á sinni tíð, var hinum tveim fyrr- nefndu gersamlega ólíkur. Það var föst venja hans, að koma fimm mínútum of seint, til þess að komast hjá því að hlusta á, er hljóðfærasleikararnir stilltu strengi sína, eða reyndu hljóð- færin. Þegar hann svo steig upp á hljómsveitarstjórapallinn, leið löng stund án þess hann segði nokkurt orð, eða lyfti tónsprot- anum heldur horfði hann þögull á hljómsveitina, virti hvern ein- stakling hennar fyrir sér nokkra hríð, og sérhverjum þótti sem hann skyggndist inn í leyndustu hugskot hans. Á þennan hátt var þýðingarmesta takmarki æfing- arinnar náð, — hann hafði náð allri hljómsveitinni á töfravald sitt. Ef leika skyldi nokkur al- kunn tónverk og eitt eða tvö ný, lét Nikisch fyrst æfa hin þekktu tónverk til hlítar, til þess að skapa hið innra samræmi og sam band, en tók síðan aðeins erfið- ustu atriðin úr því nýja til með- ferðar, og lét þá leika þau mjög hægt, það var ekki fyrr en á hljómleikunum, sém hann lét leika þau í heild og þá með eðli- legum hraða. Hann var aldrei í slæmu skapi, aldrei óþolinmóð- ur, en alltaf vingjarnlegur við hljóðfæraleikara sína og þakk- látur. Hann þekkti persónugerð þeirra til hlítar, og stjórnaði þeim eins og snillingur leikur á hljóðfæri. WILHELM FURTWANGLER er fyrst og fremst innhverfur í list sinni sem hljómsveitastjóri. Það er eins og tónverkið nái svo miklum tökum á honum, að hann gleymi sjálfum sér, stað og stund, en um leið er sem stjórn hans verði ósjálfráð, vit- und hans losnar úr læðingi og hreyfingar hans verða hnitmið- aðar og þróttmiklar. Hann býr sig undir flutning tónverkanna af mikilli nákvæmni, meðal ann- ars á þann hátt, að kynna sér persónugerð og örlög höfundar, starfsaðferðir hans og viðhorf, ásamt tónlistarsögu þess tíma- bils, er verkið var samið og á þessum grundvelli byggir hann síðan skilning sinn á anda tón- verksins og eðli. Hann er síleit- andi í afstöðu sinni til tónverks- ins endurskoðar hana og gagn- \ rýnir, og getur fyrir bragðið stjórnað flutningi sama verksins hvað eftir annað, án þess 'að þar verði um kyrrstöðu eða þreytu- merki að ræða. OTTO KLEMPERER er hon- um hins vegar ólíkur um flest. Furtwangler er verndari fornra erfða, Klemperer byltingasinni, sífellt með nýjar og nýjar til- raunir, gæddur hamslausu hug- myndaílugi og skapi, og vekur í senn bæði undrun manna og at- hygli, jafnvel hneyksli, fyrir furðulegustu tiltæki, bæði í starfi sínu og utan. Hann stjórn- ar nýstárlegum óperum á abstrakt sviði, þar sem tjöldin eru mestmegnis óskiljanlegur samsetningur af þrepum og hyrningum, og hann tekur að sér flutning tónverka, sem fæstir bera nokkurt skynbragð á, eða flestum mun virðast með öllu óskiljanleg, og það hvarflar al- drei að honum, að honum geti mistekizt eða brugðizt dóm- greind. Eitt sinn gerði hann sér ferð til ritstjórnarskrifstofu og hótaði að myrða tónlistargagn- rýanda, er gerzt hafði svo djarfur að segja honum meiningu sína, og þar eð hann er tröll að vexti og burðum, er enginn vafi á því, að honum myndi hafa tekizt að framkvæma þá hótun, ef gagn- rýnandinn hefði verið við- staddur. Yfirleitt er eins og eitthvað ofurmannlegt sé í fari flestra hinna miklu hljómsveitastjóra. Þeir hefðu aldrei náð þeirri full- komnun í list sinni, sem raun ber vitni, ef þeir væru eins og fólk er flest. Fyrst og fremst eru þeir undantekningarlítið eigin- gjarnir með afbrigðum, og gæddir frámunalegu sjálfsáliti. Sjálfsdýrkunin verður því áber- andi þáttur í fari þeirra, og minnimáttarkennd eða sjálfs- gagnrýni er þeim óþekkt fyrir- bæri. Sumir þeirra hrífa með glæsileik sínum í klæðaburði og framkomu, aðrir eru strangir sem herforingjar, þurrir á mann- inn og fáskiptir. Yfirleitt eru þeir sérvitrir og eirðarlausir, verða sífellt að vera á ferð og flugi í leit að nýjum áheyrend- um og nýjum sigrum, — stjórna nýjum herjum hljómsveitar- manna. Það er engin hending, að hinir miklu meistarar tónsprot- ans eru sífellt á ferðalagi. Með því móti einu fá þeir ívalað eirðarleysi sínu og þörf fyrir viðurkenningu. Sir Thomas Beecham hefur á sér svip fornra aðalsmanna og er öruggur í framkomu eins og þjálfaðir stjórnarerindrekar. — Þegar hann tekur á móti gest- um, er hann klæddur hvítum silkináttfötum undir tyrknesk- um setslopp. Síðustu þrjátíu árin hefur hann eingöngu reykt vissa tegund vindla, sem verk- smiðjan framleiðir fyrir hann einan. Honum leiðast öll pen- ingamál, þar eð hann erfði of fjár eftir föður sinn. Þegar hann gengur upp á pallinn, spyr hann kæruleysislega hvaða óperu hann eigi að stjórna það kvöldið; hann kann þær flestar utan að, svo að hann þarf engan undir- búning. Hann virðist láta allar hversdagslegar hliðar tilverunn- ar lönd og leið og taka lífinu eins og það er. Öðru máli gegnir um Dimitri Mitropoulos hinn gríska, sem nú er hljómsveitarstjórh. í New York. Hannrer látlaus, en dálítið sérkennilegur í framkomu, ó- kvæntur, minnir helzt á klerk í klæðaburði, neytir kjöts aðeins tvisvar í mánuði, en lifir annars á jurtafæðu og bragðar ekki áfengi, Herbergi hans er búið aðeins nauðsynlegustu hús- gögnum. Jafnan ber hann kross á bandi innan klæða. Er sagt, að hann mundi helzt kjósa að búa á eyðiey, þar sem hann gæti lagt stund á tónlist sína í næði. Að hljómleikum loknum er hann svo þreyttur, að hann vill hvorki heyra neinn né sjá. —Alþbl., 14. janúar Til fróðleiks og skemmtunar í Ijóðum og lausu móli Bréf Vinur minn Þórarinn Stefáns- son, bóksali á Húsavík, ritar mér svohljóðandi: I næst síðasta blaði Akraness, sé ég að ég er talinn heimildar- maður að ofurlitlu ljóði eftir Ólaf lækni Guðmundsson, og til- drögum þess. En þessi frásögn er ekki rétt höfð eftir mér, og þar að auki vantar í kviðlinginn eina ljóðlínu, sem er bagalegt. Sagan er svona: Jón „nok“ bjó á Akranesi í tíð Ólafs læknis. Hjá Jóni dó gamall þurfalingur, sem mun hafa heitið Guðmundur, en var kall- aður Gvendur. Einhvern tíma mun hann hafa átt heima á Melum í Melasveit, og þar fékk hann auknefnið Gaulur, af því að hann var ættaður eða upp- runninn frá bænum Gaul á Snæ- fellsnesi, og mun það hafa fylgt honum til æviloka. Jón smíðaði kistuna, þótt hann væri ekki tal- inn smiður, og hélt svo sjálfur ræðu yfir kistunni, allt til þess að spara kostnað við útförina. Þessa ræðu setti Ólafur í ljóð, og er allt efni ræðunnar og orðalag í þessu stutta erfiljóði. Ljóðið er svona: Hér hvílir þú Gaulur, greyið mitt nok, í þessum hvíta tréstokk, sem áður varstu’ á Bakka og gerðir það nok gott, þótt ekki bærir þú mann- virðingarvott. Síðan fórstu’ að Melum, og miður það gekk, auknefnið greyið Gaulur þar fékk. Nú ertu’ í engla útvöldum flokk, syngdu nú hveitikorn, þekktu þitt nok. Ekki er það heldur rétt, að Ásgeir heitinn frá Knarranesi sé heimildarmaður minn að þessari sögu, heldur var það Business and Professional Cards Jóhann, bróðir Ásgeirs, en hann var lengi hér á Húsavík, og er nú látinn fyrir nokkrum árum.i J óhann var stálminnugur, greindur og gamansamur, og gamall lærlingur Hjaltalíns og Gröndals frá Möðruvallaskóla. Það væri æskilegt að þessi leið- rétting yrði birt í Akranesi. Nokkrar vísur efiir Halldór Benjamín Jónsson VÍSA Sljó eru vopnin andans öll og því hótar pínum, fyrir dyrum ferlegt tröll Fátækt stendur mínum. Af hildar velli halda má með hjálm og skjöldinn klofinn, brestur flest og brynjan á báðum hliðum rofin. Mín er orðin vörnin veit veldur mundin lúna, ég úr hörðum hildarleik held svo Gjallarbrúna. Lífs með þróttinn, löngum grimm, leikur skjótt og tekur, Bjarnar nóttin niðadimm nú mér ótta vekur. KVEÐIÐ UM LEIRBURÐ Bragur um daginn birtist nýr, býsna lýtum plágað. Nú ei gjörast skáldin skýr, skratti er ljótt að sjá það. Það má sjá hver þegn, er vill, það er ekkert kýmið, þar í hendur haldast ill hneiging stuðla og rímið. Nú upp snapað fleina freyr, fyrst allt saman gerði, óttast þarf nú enginn meir að hann léirskáld verði. Heilræði ég hygg þér ljá, hugsa þá tillögu. Láttu aldrei ýta sjá oftar frá þér bögu. —AKRANES Phone 74-7855 ESTIMATES FREE J. M. Ingimundson Re-Roofing — Asphalt Shingles Insul-Bric Siding Vents Installed to Help Eliminate Condensation 832 Simcoe St. Winnipeg, Man. G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distrlbutors of FRESH AND FROZEN FISH 60 Louise Street Slmi 92-6227 EGGERTSON FUNERAL HOME Dauphin, Maniioba Eigandi ARNI EGGERTSON Jr. Van's Electric Ltd. 636 Sarganl Ave. Authorized. Home Appliance Dealers GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL McCLARY ELECTRIC — MOFFAT Phone 3-4890 Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary’s and Vaughan. Winnipeg PHONE 92-6441 Gilbart Funeral Home Selkirk, Manltoba. J. Roy Gilbart Licensed Embalmer Phone 3271 Selkirk Dr. ROBERT BLACK SérfræSingur I augna, eyrna, nef og hálssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Gr&ham and Kennedy St. Skrifstofusimi 92-3851 Heimasími 40-3794 Dunwoody Saul Smith & Company Charlered Accounlanls Phone 92-2468 100 Princess St. Winnipeg, Man. And offices at: FORT WILLIAM - KENORA FORT FRANCE? - ATIKOKAN Hofið Höfn í huga Heimili sölsetursbarnanna. Icelandio Otd Folks’ Home Soc , 3498 Osler St„ Vancouver, B.C. ARLINGTON PHARMACY Prescriplion Specialist Cor. Arlington and Sargent Phone 3-5550 We collect light, water and phone bills. Posí Oifice Muir's Drug Store Ltd. J. CLUBB FAMILY DRUGGIST SERVING THE WEST END FOR 27 YEARS Phone 74-4422 Elllce & Home Thorarinson & Appleby Barristers and Solicitors S. A. Thorarinson, B.Sc., L.L.B. W. R. Appleby, B.A., L.L.M. 701 Somerset Bldg. Winnipeg, Man. Ph. 93-8391 Phone 92-7025 H. J. H. PALMASON Chartered AcccHntant 505 Confederation Life Building WINNIPEG MANTTOBA Parker, Parker and Kristjansson Barristers - Solicitors / Ben C. Parker. Q.C. B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson 500 Canadian Bank of Commerce Chambers Winnlpeg, Man. Phone 92-3561 J. J. Swanson & Co. LIMITED 508 AVENUE BLDG. WINNIPEG Faateignasalar. Leigja hús. Ot- vega peningalán og eldsábyrgtS, bifreiBaábyrgB o. s. frv. Phone 92-7538 SARGENT TAXI PHONE 20-4845 For y’úck. Reliable Service DR. E. JOHNSON 304 Eveline Street SELKIRK. MANITOBAs, Phones: Office 26 — Residence 230 Office Hours: 2.30 - 6.0t p.m. Thorvaldson, Eqgertson, Bastin & Stringer Barristers and Solicitors 209 BANK OF NOVA SCOHA Bldg. Portage og Garry St. PHONE 92-8291 CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAGE, Managing Director Wholesale Distributors of Frozen Fish Fresh and 311 CHAMBERS STREET Office: 74-7451 Res.: 72-3917 Office Phone 92-4762 Res. Phone 72-6115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BUILDING Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appointment. A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur likkistur og annast um út- farir. Allur útbúnatSur sá bezti. StofnaS 1894 SlMI 74-7474 Minnist BETEL i erfðaskrám yðar. S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY Sc CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smilh St. Wlnnipeg PHONE 9Z-CSZ4 Creators of Distinctive Printing Columbia Press Ltd. 695 Sargeni Ave. Winnipeg PHONE 74-3411 SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar. öruggasta eldsvörn, og ávalt hrelnir. Hltaelningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- viC, heldur hita frá aB rjúka út meC reyknum.—SkrifiC, slmiC til KELLY SVEINSSON 825 Wall SL Wlnnipeg Just North of Portage Ave. Simar 3-3744 — 3-4431 J. Wilfrid Swanson & Co. Insurance in all ita branches Real Eitate - Mortgagei - Rental* 210 POWER BUILDING Telephone 93-7181 Res. 44-34W LET US SERVE YOU

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.