Lögberg - 24.02.1955, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 24. FEBRÚAR 1955
Úr borg og bygð
Föstudaginn þann 15. febrúar
síðastliðinn voru gefin saman í
hjónaband á heimili Mr. og Mrs.
Óli Arason í Glenboro, Miss
Eöith E. Ronlands, hjúkrunar-
kona að Ninette, Man., og
Wermer H. Wirth, sérfræðingur
við olíustöðina í Glenboro. Mr.
og Mrs. O. Arason aðstoðuðu
brúðhjónin. — Sóknarpresturinn
gifti. Veizla var setin að heimili
Arasons hjónanna.
☆
Mr. Ásmundur Benson dómari
frá Rugby, North Dakota og frú,
lögðu af stað heimleiðis á mið-
vikudagsmorguninn. Á skemti-
samkomu Icelandic Canadian
Club, sem haldin var í Fyrstu
lútersku kirkju á þriðjudags-
kvöldið, flutti Ásmundur dóm-
ari snjalla og afar fróðlega ræðu
um stefnu Bandaríkjanna í utan-
ríkismálum og var hyltur af
samkomugestum í ræðulok; það
var Winnipeg-íslendingum ó-
segjanlegt ánægjuefni að hitta
þessi glæsilegu og ágætu hjón.
BLOOD BANK
TMIS
SPACI
CONTRIBUTCD
• V
WINNIPEG
BREWERY
IIMITÍO
M 0-351
Dánarfregn
Þann 12. febrúar s.l. lézt á
Almenna spítalanum í Winnipeg
Clarence L. McLeon frá Pilot
Mound, Man., 47 ára gamall.
Hann var fæddur að Pilot
Mounc' þann 18. marz 1907. Hann
lætur eftir sig konu sína og fimm
börn. Ekkjan er Lilja, dóttir
Guðnýjar og Kristjáns heitins
Jóhannessonar, er lengi áttu
heima við Markerville í Alberta.
Börnin eru: John Elswood,
Myra, Mrs. Curri að Pilot
Mound; Gwenith, Mrs. Dogson,
að Red Lake, Man; Bruce og
Joan í heimahúsum. Clarence
McLeon var hinn mesti myndar-
maður, höfðingi heim að sækja
og bjó fyrirmyndarbúi suðaust-
ur af bænum Pilot Mound. —
Byggðin saknar sárt þessa góða
drengs. Fjölmenn jarðarför fór
fram frá heimilitu þann 15.
febrúar s.l.. Séra Jóhann Fred-
riksson frá Glenboro jarðsöng.
☆
Föstudaginn þann 18. febrúar
voru gefin saman í hjónaband á
prestsheimilinu í Glenboro
Vivian Laufey, dóttir Rev. og
Mrs. J. Fredriksson, og Alvin
Hugh, sonur Mr. og Mrs. A. H.
Carruthers frá Glenboro. Brúð-
urin var leidd fram af bróður
sínum, Allan. Mrs. Barbara
Wallis aðstoðaði brúðurina og
John Sigmar brúðgumann. Mrs.
R. C. Ranlings lék á píanó. —
Sóknarpresturinn framkvæmdi
hjónavígsluna. Fjölmennt boð
boð var setið á prestsheimilinu.
Ungu hjónin setjast að í Glen-
boro.
☆
Á þriðjudagskvöldið hinn 1.
marz næstkomandi, verður af-
mælissamkoma Betel haldin í
Fyrstu lútersku kirkju, ep þetta
verður fertugasta afmælishátíð
hinnar þörfu og vinsælu stofn-
unar á Gimli, er allir Vestur-
íslendingar unna og vilja styrkja
eftir föngum; svo sem á undan-
förnum árum, er það kvenfélag
safnaðarins, sem gengst fyrir
þessum afmælisfagnaði. Skemti-
skráin, sem er vönduð og fjöl-
breytt, birtist á öðrum stað hér
í blaðinu.
Telja má víst, að samkoman
verði fjölsótt og samskot höfð-
ingleg.
☆
Hinn 13. febrúar s.l. lézt gð
heimili sínu að Charlson, N.
Dak., bóndinn Carl O. Sigurd-
son, 71 árs að aldri. Foreldrar
hans voru Stefán Sigurdson og
kona hans Sigríður Jóakims-
dóttir frumbyggjar í íslenzku
nýlendunni í Minnesota. Carl
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
AÐALFUNDUR
Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélag íslands verður
haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugar-
daginn 11. júní 1955 og hefst kl. 1.30 e. h.
DAGSKRA:
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og fram-
kvæmdum á liðnu starfsári, og frá starfstil-
höguninni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir
henni, og leggur fram til úrskurðar endur-
skoðaða rekstursreikninga til 31. desember 1954
og efnahagsreikning með athugasemdum endur-
skoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til
úrskurðar frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um
skiptingu ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, stað
þeirra, sem úr ganga samkvæmt samþykktum
félagsins.
4. Kosnings eins endurskoðanda í stað þess er frá
fer, og eins varaendurskoðanda.
5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál,
sem upp kunna að vera borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum
og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykja-
vík, dagana 7.—9. júní næstkomandi. Menn geta fengið
eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðal-
skrifstofu félagsins í Reykjavík. Óskað er eftir að ný umboð
og afturkallanir eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins
í hendur til skrásetningar, ef unnt er 10 dögum fyrir
fundinn, þ. e. eigi síðar en 1. júní 1955.
Reykjavík, 10. janúar 1955,
STJÓRNIN
var fæddur og uppalinn í
Minneota, Minn. — Jarðarförin
fór fram frá St. Páls lútersku
kirkjunni í Minneota s.l. föstu-
dag. Séra Guttormur Guttorms-
son jarðsöng.
Mrs. J. B. Jónsson, 729 Simcoe
St., hér í borg, fór suður til
Minneota til að vera viðstödd
útför bróður síns.
☆
Mr. Grettir Eggertson rafur-
magnsverkfræðingur og frú
lögðu af stað í gærmorgun áleið-
is til New York, en þaðan sigla
þau til Evrópu hinn 3. marz
næstkomandi; munu þau ferðast
vítt um meginland Norðurálfu
og verða að heiman nálægt
fjórum mánuðum.
Lögberg árnar þeim Gretti og
frú góðs brautargengis.
☆
Næsti fundur stúkunnar
Heklu I. O. G. T. verður haldinn
á venjulegum stað og tíma
þriðjudaginn, 8. marz.
☆
A meeting of the Jon Sigurd-
son Chapter I. O. D. E. will be
held at *the home of Mrs. P. J.
Sivertson 497 Telfer St., on Fri-
day Eve., March 4th at 8 o’clock.
☆
Mr. Jóseph Jóhannsson, um
langt skeið bóndi í Garðarbygð,
N. Dak., lézt á sjúkrahúsi í
Cavalier hinn 16. þ. m., og var
jarðsunginn að Garðar þann
18. þ. m. Jósep var vandaður og
vinsæll maður, ættaður úr Húna
vatnssýslu, 89 ára að aldri. Hann
lætur eftir sig eina dóttur, frú
Sigrúnu Magnússon í St.
Boniface.
☆
The Icelandic Canadian Club,
undir forsæti W. J. Lindal dóm-
ara, hlutaðist til um virðylegt
dagverðarboð á Fort Garry
hótelinu hér í borginni á þriðju-
daginn í heiðursskyni við Ás-
mund Benson dómara; var þetta
eftirminnilega fallegur mann-
fagnaður, félagi og forseta til
mikils sóma.
☆
Dánarfregn
Þann 25. jan. síðastliðinn, lézt
hér á Victoria sjúkrahúsinu Sig-
ríður Árnadóttir Sveinsson,
eiginkona Sveins Sveinssonar
frá Marquette, Man., 62 ára að
aldri. Sigríður var fædd á Glæsi-
bæ í Skagafirði á íslandi. Dóttir
Árna heitins Jónssonar læknis
og seinni konu hans Sigurveigar
Friðfinnsdóttur. Til Vopna-
fjarðar fluttist hún með foreldr-
um sínum og þar misti hún
föður sinn, þegar hún var 5 ára
gömul. Síðar giftist móðir henn-
ar Jóni Benediktssyni, og með
þeim fluttist hún til þessa lands
1905, þegar hún var 12 ára að
aldri. Árið 1918 giftist hún eftir-
lifandi manni sínum, Sveini
Sveinssyni. Hún lætur eftir sig
4 börn: Emil í heimahúsum,
Goodwin dýrlækni í Dauphin,
Man., Henry í Fort Nelson,
British Columbia, og Elenor,
(Mrs. Thompson) í Sault St.
Marie. Einnig 2 hálfbræður, Jón
Árnason og Arthur Benedictson
í St. James. Tvær systur, Ingu
(Mrs. W. McGougan) í St. Vital
og Sigríði Árnadóttur í Reykja-
vík á íslandi. Einnig 6 barna-
börn.
☆
Frú Ingibjörg Shefley frá
Vancouver, B.C., sem dvalið hef-
ir hér um slóðir síðan í haust,
lagði af stað heimleiðis í gær.
☆
Frú Valgerður Dalman frá
New York leit inn á skrifstofu
blaðsins í fyrri viku og
kom hún þá norðan frá Steep
Rock, Man., en þangað fór hún
til að sitja gullbrúðkaup systur
sinnar og tengdabróður, þeirra
Mr. og Mrs. Einar Johnson, sem
haldið var hátíðlegt þar í bæn-
um að viðstöddu miklu fjöl-
menni hinn 16. þ. m. Frú Val-
gerður er kona Cello-leikarans
víðkunna, Freds Dalman; hún er
vinmörg hér í borg frá fyrri tíð
og fögnuðu því margir komu
hennar hingað.
Mesta súlubyggð...
Framhald af bls. 1
1. NA 167
2. SA 2071
3. NV 1306 3544
Samtals 15178
Samkvæmt þessari niðurstöðu
leikur enginn vafi á því lengur,
að á engri einstakri eyju er
stærri súlubyggð en í Eldey.
Hér er þó aðeins átt við byggðir
hafsúlunnar (Sula bassana).
Skulu hér nefndar nokkrar
hinar fjölbyggðustu:
Little Skelling (írland) 12000
Boreray (St. Kilda) 9431
Grassholm (Wales) 9200
Bonaventure (Kanda) ...... 6800
Fjöldi súluhjóna hér á íslandi
mun því nú vera um 21 þúsund,
eða rúm 20% af súluhjónum
Atlantshafsins.
Þær talningar, sem farið hafa
fram í Eldey á undan þessari
eru:
1939 fara H. G. Vevers og L.
Ársskýrsla
Framhald af bls. 5
Utah hið næsta ár, forboði þeirra
miklu tíðinda, að íslandsbyggð-
ir voru stofnsettar víðsvegar
hér í álfu.
Gunnar Thoroddsen, borgar-
stjóri Reykjavíkur, og frú, eru
væntanleg hingað til Winnipeg,
24. marz. Koma þau hjónin hing-
að í boði Háskóla Manitoba-
fylkis og Þjóðræknisfélagsins, og
mun Gunnar flytja fyrirlestur
við háskólann og nokkur erindi
hér í borginni og nágrenni.
Stjórnarnefndin hefir kosið í
undirbúnings- og móttökunefnd
þá Gretti L. Jóhannson, Finn-
boga Guðmundsson og séra
Philip M. Pétursson.
Milliþinganefndir, sem skipað-
ar voru á þingi s.l. vetur, munu
gera grein fýrir störfum sínum
nú. Er þar um að ræða Laga-
breytingarnefnd, sem falið var
að athuga nauðsyn þess að end-
urskoða lög félagsins með sér-
stöku tilliti til afstöðu deilda fé-
lagsins á Kyrrahafsströndinni.
Þá er einnig nefnd í samningu
kennslubókar í íslenzku við hæfi
vestur-íslenzkra barna og ungl-
inga; svo og Skógræktarmála-
nefnd og Húsbyggingarmála-
nefnd.
Af þessum lestri er það ljóst,
að félag vort hefir mörgum verk-
efnum að sinna, og mörg vanda-
mál að leysa. En það ætti ekki
að skjóta mönnum skelk í
bringu. Ef félag vort hefði engin
vandamál til meðferðar, væri
það dautt. Dauð félög hafa engin
vandamál. Við höfum nú fylkt
liði til þess að glíma við vanda-
málin og verkefnin og leysa þau.
Verkefnið mesta er viðreisn og
viðhald þeirra deilda félagsins,
sem örðugast eiga uppdráttar og
standa höllum fæti. í því efni er
vert að athuga hvort félagið er
þess megnugt að ráða útbreiðslu
stjóra til að ferðast um byggð-
irnar einhvern hluta ársins. Þar
sem líkt stendur á um félags-
samtök eins og hjá okkur, er það
jafnan talið nauðsynlegt, og
jafnvel lífsnauðsyn að ráða
slíkan starfsmann.
Um leið og ég fel þinginu mál
vor til afgreiðslu, þakka ég
stjórnarnefndinni ánægjulega
samvinnu á árinu.
Þeir Ásgeir Gíslason og Páll
Guðmundsson frá Leslie, Sask.,
komu hingað um helgina til að
sitja ársþing Þjóðræknisfélags-
ins; létu þeir vel af líðan fólks
og afkomu í bygðarlagi sínu.
☆
Meðal annara, sem sóttu þing
þjóðræknisfélagsins, voru:
Einar Magnússon, Selkirk
Dr. S. E. Björnsson, Miniota
Ari Johnson, Árborg
T. M. Sigurgeirsson,
Prince Rupert
J. Walter Johannson,
Pine Falls.
S. V. Venables til talningar að
Eldey. Þeir félagar telja af sjó
utan í 628 hreiður, en aðstoðar-
maður þeirra, Gísli Guðmunds-
son, telur ofan á 8700. Alls 9328.
1949 fara J. Huxley, James
Fisher, H. G. Vevers og Þor-
steinn Einarsson ásamt fleirum
til talningar að Eldey. Þrír hinir
síðarnefndu töldu af sjó utan í
1177 hræður, en upp á eyjuna
varð ekki komizt en þar voru
áætluð 9700 hreiður, alls 10877.
Með í förinni var Árni Stefáns-
son, og tók hann ágætar myndir
af sjó. Af samanburði mynda
Árna Stefánssonar og þeirra,
sem nú var talið eftir, sést að
mikil aukning er utan í.
Eins og kunnugt er, var Eldey
friðuð árið 1940 með sérstökum
lögum, en áður höfðu Vestmann-
eyingar árlega farið þangað til
að taka súlu-unga. Á árunum
1910—1930 voru teknir þar að
meðaltali 3257 súlu-ungar á ári.
Vestmannaeyingar, sem farið
hafa í Eldey til súlna (venjulega
í lok ágúst) hafa sagt mér, að
þá hafi alltaf verið þó nokkuð
flogið af unga, og aldrei var
venja að slá nema fullgerðan
unga. Meirihluti unga mun því
árlega hafa komizt undan súlu-
keppum veiðimanna. Á þeim 14
árum, sem liðin eru frá því, er
súlu-ungar voru síðast „slegnir"
í Eldey, hafa eigi síður um 45500
ungsúlur bætzt við súlustofninn
vegna friðunar Eldeyjar. Friðun-
in kemur meðal annars fram í
því, að byggðin utan í hefir tvö-
faldazt frá 1939 til 1949, og er
1953 sexfalt meiri.
Eldeyjarfarar hafa sagt mér,
að ofan á væri auður blettur, frá
því að sótt var súludrit í Eldey
1911. Engan blett var hægt að
sjá auðan „ofan á“ á hinum á-
gætu myndum frá 1953. Utan í
er enn hægt að benda á syllur,
t. d. á tveim neðstu stóru syllun-
um að SA, þar sem einstaka
súlur eru komnar inn í svart-
fuglabæli. Viðkoman í Eldey
mun því innan fárra ára hafa
áhrif á vöxt annarra súlubyggða
eða verða vísir að nýjum súlu-
byggðum.
—VISIR, 14. jan.
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. TheoL
Heimili 686 Banning Street.
Sími 30 744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
☆
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnudaginn 27. febr.:
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli á hádegi
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Fólk boðið velkomið.
S. Ólafsson
☆
Messur í Norður-Nýja-fslandi
Sunnudaginn 27. febr.:
Árborg, kl. 2 e. h.
Riverton, kl. 8 e. h.
Báðar messu á ensku.
Robert Jack
COPENHAGEN
_ ' ’Á :■'
Bczta munntóbak
heimsins
Beztu
föt sem
fáanleg
eru.
Ávalt
Tip Top
búC i
grend-
inni.
Veljið í öryggi hjá Tip Top Tailors
Gamlir og nýir viöskiptavinir njóta hlnna sömu
kjörkaupa, hinnar sömu persönulegu afgreiCslu
hjá elztu og frœgustu fatagerCarverzlun i Canada
eftir máli, jafnt fyrlr konur sem karla. BflCir og
umboCsmenn I hverri borg frá strönd til strandar.
tailors
r >Y
AFMÆLISSAMKOMA BETELS
undir umsjón Kvenfélags Fyrsta lúterska safnaðar
verður haldin í
FYRSTU LÚTERSKU KIRKJU
Victor Street
þriðjudaginn, 1. marz 1955 — Byrjar kl. 8.15 e. h.
SKEMMTISKRÁ :
O CANADA
ÁVARP SAMKOMUSTJÓRA Dr. V. J. Eylands
PÍANÓSPIL Edith Lillian Lewis
(I. O. D. E. Scholarship winner)
EINSÖNGUR Hermann Fjeldsted
RÆÐA Rev. Fred J. Douglas
SAMSKOT — Afmælisgjafir til Betel
FIÐLUSPIL Irene Thorolfson
(Sonatina — Anton Anton Dvorak)
EINSÖNGUR Hermann Fjeldsted
GOD SAVE THE QUEEN
Við hljóðfærið: MRS. ERIC A. ÍSFELD
Að lokinni skemmtiskrá er öllum boðið að setjast
til borðs við kaffiveitingar í fundarsal kirkjunnar.