Lögberg - 31.03.1955, Blaðsíða 1

Lögberg - 31.03.1955, Blaðsíða 1
ANYTIME ANYTIME _ ANYWHERE CALL TRANSIT - SARGENT SILVERLINE TAXI 5 Telephone Lines 20-4845 — ANYWHERE CALL TRANSIT - SARGENT SILVERLINE TAXI 5 Telephone Lines 20-4845 68. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN, 31. MARZ, 1955 NÚMER 13 Gagnkvæm hópferð milli Reykjavíkur og Winnipeg kirkju á föstudags kvöldið kemur VALA THORODDSEN, borgarstjórafrú Þrír áhugamenn í Winnipeg, flugfélagið Loftleiðir og ferða- skrifstofan Orlof í Reykjavík hafa síðan fyrir jól verið að at- huga möguleika á gagnkvæmri hópferð flugleiðis milli Reykja- víkur og Winnipeg á sumri kom- anda. Er nú málið komið á þann rekspöl, að ákveðið hefur verið að auglýsa slíka för í vegum ferðaskrifstofnuuar Orlofs bæði austan hafs og vestan. Áætlaður faratími verður sem hér segir: Hópur frá íslandi 12. júní, brottför frá Reykjavík. 13. júní, komið til Winnipeg, — eftir um 19 stunda flug. Sami hópur flýgur frá Winni- peg 2. ágúst, komið til Reykja- víkur 3. ágúst. Hópferð Vestur-fslendinga til fslands 14. júní, brottför frá Winnipeg. 15. júní, komið til Reykjavíkur. 30. júlí, brottför frá R.-vík. 31. júlí, komið til Winnipeg. Verður hér því nálega um 7 vikna ferð að ræða. í ráði, er að skipuleggja 3-4 daga ferð (auk annarra ferða, ef menn kjósa það) um nærsveitir Reykjavíkur fyrir hóp þann, er héðan færi til Íslands. Yrð.i sú för farin rétt eftir komuna þang- að, en þó örugglega dvalist í Reykjavík á sjálfan þjóðhátíðar- daginn, 17. júní. Svipuð ferð verður og skipu- lögð um næstu íslendingabyggð- ir og víðar um Manitoba fyrir hóp þann, er frá íslandi kæmi, en lengri ferð t.d. vestur að hafi, fyrir þá, er þess óskuðu. Allar þessar ferðir yrðu farnar á veg- um ferðaskrifstofunnar Orlofs, er samband hefur við ferðaskrif- stofur um allan heim. Beðið er eftir upplýsingum frá Islandi um flugfargjöldin milli Reykjavíkur og Winnipeg, Og verða þær birtar jafnskjótt og þær berast. Þessi frásögn er aðeins til að vekja athygli á ferðinni, svo að menn geti þegar farið að hugsa sér til hreyfings. Ég undirritaður hef tekið að mér að afla þáttakenda vestan hafs, og bið ég menn því að hafa Bágborinn hagur sjúkrahúsa Nokkra undanfarna daga hafa dagblöð Winnipegborgar flutt alvarlegar fregnir um það, hve Almenna sjúkrahúsið í Winni- peg ætti erfitt uppdráttar frá fjárhagslegu sjónarmiði séð, þar sem rekstrarhalli þess á árinu sem leið hefði numið þrjú hundruð þúsundum dollara eða freklega það; forráðamenn sjúk- rahússins hafa verið þungyrtir í garð fylkistjórnarinnar fyrir af- skiptaleysi hennar af málinu, með því að nú hefir þing setið á rökstólum án þess að nokkurrar minstu ráðstafana til úrbóta yrði vart, og nú hafa sjúkrahúsa samtökin í Manitoba, The As- sociated Hospitals of Manitoba tekið í sama streng og segja sín- ar farir ekki sléttar að því er fjármál þeirra áhrærir. Hér eru auðsjáanlega góð ráð dýr; fylkið getur ekki verið án sjúkrahúsa sinna og hverjum stendur það þá nær en fylkis- stjórnni, sem fer með umboð fyrir fólksins hönd, að hlaupa undir bagga og leysa skjótlega þetta vandamál? beint samband við mig, þegar þar að kemur. Þeir Jakob Kristj- ánsson og Finnbogi Guðmunds- son hafa unnið að undirbúningi með mér og munn veita mér að- stoð eftir því, sem á reynir. Vitað er, að talsverður áhugi er á Islandi á hópferð vestur og vonandi, að áhugi á íslandsferð héðan verði ekki minni. Gagn- kvæm hópferð er í senn skemmti legasta og verklegasta leiðin til aukinna kynna milli Islendinga vestan hafs og austan að ó- gleymdum þeim þægindum og sparnaði, sem vinnast hlýtur við slík samtök. Veitið athygli frekari greinar- gerð í næstu blöðum. Með kærri kveðju THOR VIKING 515 Simcoe St., Winnipeg Sáffrncli staðfestur Franska þjóðþingið samþykti með miklu afli atkvæða síðast- liðinn sunnudag aðild Frakka að London-París sáttmálanum, er veita s k a 1 Vestur-Þýzkalandi fullkomin ríkisréttindi ásamt heimild til endurhvervæðingar innan vébanda Norður-Atlants- hafsbandalagsins, einnig var stað festur samningurinn við Vestur- Þýzkaland, er að því laut að hin auðugu Saarhéruð yrði fyrst um sinn undir Evrópuþjóða eftirliti. í dag, 16. febrúar, er skozkur Islandsvinur, William George McArthur, starfsmaður við af- greiðslu Eimskips í Leith (R. Cairns & Co.) sextugur. Flestir íslendingar, sem eiga leið um Leith með skipum Eimskips, munu kannast við hann undir nafninu Mr. McArthur. Á þess- um merku tímamótum er mér ljúft að minnast lítillega á hið ágæta starf hans í þágu íslands og íslendinga nú um fjörutíu ára skeið, þakka honum alla greið- vikni, er hann hefir oss í té látið fyrr og síðar, svo og flytja hon- um hugheilar hamingjuóskir í tilefni dagsins. Síðast, er ég var í Skotlandi, átti ég stutt rabb við hann í til- efni afmælisins. Þegar ég spurði hann um starfið, vildi hann lítið um það segja annað, en að sér hefði allt- af þótt það skemmtilegt. Þess vegna hafi hann valið það að ævistarfi, þótt sén: hafi veríð ætlað annað starf af fjölskyld- unnar hálfu. Hann var starfs- maður hjá Ellingsensbræðrum árið 1914, er téð fyrirtæki tók að sér afgreiðslu hins nýstofn- aða Eimskipafélags Islands, og var McArthur settur yfir deild þá, er hafði afgreiðslu Eimskips með höndum. Hefur hann æ síð- an unnið við afgreiðslu skipa Eimskips og fylgzt með þróun félagsins frá byrjun. Hann hefur unnið verk sitt af trúmennsku bæði fyrir húsbændur sína sem og Eimskip og íslenzku þjóðina. Kynni hans við ýmsa af forráða- mönnum Eimskips frá upphafi, ásamt kynnum hans af ýmsum athafnamönnum í íslenzku þjóð- lífi, hafa eflaust valdið því, hversu hann hefur bundizt Is- landi traustum vináttuböndum. Þegar rætt er við hann um liðna tímann, er auðheyrt, að hann er nákunnugur málefnum Islands. Hann hefur fylgzt með hinni öru 0r borg og bygð Vegna lasleika vélsetjarans, hr. Thors Víkings, var ekki unt að prenta nema fjórar blaðsíður af Lögbergi í þessari viku. framþróun á íslandi frá fyrri heimsstyrjöldinni fram til þessa dags og verið að nokkru leyti þátttakandi í þeirri viðreisn. Þegar hann er spurður, hvers vegna honum falli svo vel við Landann, svarar hann eitthvað á þá leið, að sér finnist svo margt líkt með Skotum og íslending- um. Þess vegna eigi hann svo marga vini á íslandi. Eins og ég vék að áður, er greiðvikni McArthurs viðbrugð- ið, og eru þau eigi svo fá sporin, sem hann hefur lagt að baki sér við að liðsinna veglausum Landa í Leith og Edinborg. Þetta hefur verið virt og viðurkennt að nokkru af opinberum aðilum, því að McArthur var sæmdur riddarakrossi Fálkaorðunnar ár- ið 1949, og er hann fyrsti Skot- inn, sem slíkur heiður hefur hefur hlotnazt síðan Island varð frjálst og fullvalda ríki. — McArthur hefur fjórum sinn- um gist ísland á þessum fjórum áratugum, er hann hefur starfað að afgreiðslu íslenzkra skipa. 1 tvö skiptin ferðaðist hann um- hverfis landið og kom þá á all- flestar hafnir þess. McArthur er kvæntur Agnesi Butt, hinni ágætustu konu, er búið hefur honum fagurt heimili í Edinborg. Þau eiga tvo upp- komna syni. Annar þeirra starf- ar hjá Scotland Yard í London, en hinn er nemandi, sem dvelst heima. I dag verður eflaust gest- kvæmt á heimili þeirra hjóna í Edinborg, og gaman væri að geta þrýst hönd þessa heiðursmanns. I stað þess verðum við að láta oss nægja að senda honum hug- heilar hamingjuóskir með von um að mega enn um langt skeið njóta vináttu hans og sam- fylgdar. —Mbl., 16. febr. Samkoma föstudagskveldið 1. apríl Munið samkomuna föstudags- kvöldið 1. apríl kl. 8 e.h. í fyrstu lútersku kirkju. Dr. Valdimar Eylands verður samkomustjóri, frú Elma Gísla- son syngur nokkur lög eftir vest- ur-íslenzk tónskáld, G u n n a r Thoroddsen borgarstjóri flytur erindi um Reykjavík fyrr og nú og sýnir myndir þaðan og víðar af Islandi. Aðgangur 50 cent við dyrnar. ☆ Þeir Matthías Björnson og D. Björnson sonur hans frá Cav- alier, North Dakota, voru staddir í borginni á mánudaginn. ☆ Hin árlega samkoma Viking Club s. 1. föstudag var fjölsótt. Gunnar Thoroddsen, borgar- stjóri flutti snjalla ræðu. For- seti félagsins, Arthur A. Ander- son,< stjórnaði mótinu. Þessir tóku einnig til máls: S. R. Rod- vick, W. J. Lindal dómari, Gret- tir L. Jóhannson konsúll, próf. Finnbogi Guðmundsson, Jón K. Laxdal, Heimir Thorgrímsson og Mrs. Hermannson. H. A. Brodahl las kveðjuskeyti, þar á meðal árnaðaróskir frá Dr. R. Beck. Verðlaunin, sem veitt eru á þessu móti fyrir dyggilegt starf í þau félagsins, hlutu þau Mrs. Palmer og Jón K. Laxdal. Þökk- uðu þau heiðurinn með nokkrum vel völdum orðum. Að kveld- verði og ræðuhöldum loknum var stíginn danz fram á mið- nætti. ☆ Miss N o r m a Ingimundson kom um helgina flugleiðis frá Whitehorse, Yukon í heimsókn til foreldra sinna Mr. og Mrs. L. E. Ingimundson, St. Elmo Road, St. Vital. ☆ Dorcas Socieiy to Show Films The Dorcas Society of the First Lutheran Church extends an invitation to all those inter- ested to attend their meeting on Thursday, March 31st, at 8.30 p.m. in the lower auditorium of the church, at which films en- titled “Iceland on the Prairies,” “Listen to the Prairies” and “Sunny Iceland” will be shown. Collection will be accepted for the refreshments. E. Mae Fitton, Corr. Secretary Björgvin Guðmundsson, tón- skáld, frá Akureyri, og kona hans, frú Fríða eru væntanleg hingað til lands í júní mánuði, koma þau sjóleiðis til New York með Eimskip. Þau eiga bæði margt skyldmenna og fjölda vina bæði í Manitoba og Saskat- chewan og munu verða Vestur Islendingum aufúsugestir. ☆ Hin þrítugasta árlega sýning mynda eftir Manitoba listamál- ara var opnuð af Mrs. John Bracken s.l. sunnudag í Winni- peg Art Gallery. Þar eru myndir til sýnis eftir Helgu Miller, dóttur séra Guðmundar heitins Árnasonar og frú Sigríðar konu hans. Vakti mynd hennar af Allan syni hennar sérstaka athyggli. Peter Wengel, 12 ára að aldri, þykir listamannsefni. Hann er sonur Dr. Aldísar Thorlakson Wengel og Dr. Roman Wengel. Peter byrjaði að mála 9 ára gamall og sýnir þarna olíumála- verk af móður sinni. Sýningin verður opin til 3. apríl. ☆ Við nýafstaðna hljómlistar- samkeppni Manitobafylkis, sem haldin var hér í borginni, hlaut Luxton skólakórinn 86 stig og létu dómendur þannig ummælt, að flokkurinn hefði borið vitni um „great spirit and excellent rhythm." Flokk þennan þjálfaði ásamt mörgum öðrum skólakór- um, Miss Gloria Sivertson, sem er snilingur mikill á vettvangi hljómlistarinnar; hún er íslenzk í móðurætt, dóttir frú Maríu Sivertson. ☆ Mrs. Edwards frá Calgary, Alta., systir Mrs. Ingibjargar Cross, dvelur um þessar mundir í borginni í heimsókn hjá skyld- fólki og vinum. ☆ Séra Harald S. Sigmar, sóknar- prestur á Gimli, var staddur í borginni á þriðjudaginn. ☆ Dr. P. H. T. Thorlakson og frú eru nýlega komin heim eftir rúma mánaðardvöl suður í hinu sólhlýja Floridaríki. ☆ The meeting of the Jón Sigurð son Chapter I.O.D.E., announced for April lst, has been postponed to a later date not yet deter- mined. Seinnipart síðastliðins laugar- dags, höfðu þau G. L. Jóhannson ræðismaður og frú virðulegan móttökufagnað á hinu fagra heimili þeirra, 76 Middlegate, til heiðurs þeim Gunnari borgar- stjóra Thoroddsen og konu hans, frú Völu Thoroddsen; það má til sanns vegar færa, að á heimili ræðismanns hjónanna sitji gest- risnin á Guðastóli, gestrisni hjartans og hinnar fylztu alúðar; var þarna margt um manninn og nutu gestir ósegjanlegrar á- 'nægju af að kynnast þessum glæsilegu og ágætu hjónum, sem nú ráða ríkjum í höfuðborg íslands. ☆ Mr. and Mrs. John Bergman announce the engagement of their only daughter, Joan Aud- rey, to Mr. Bradley R. B. Colbert only son of Mr. and Mrs. C. O. Colbert, Long Acres, Aldershot, Ontario. The wedding will take place at the First Lutheran Church, Victor and Sargent, on May 7, 1955, at 3 p. m. Dr. V. J. Eylands officiating. Brad is a Product manager with the Quaker Oats Co. of Canada at Peterborough, Ont. ■fr Donations to the Arborg Mem- orial Hospital "Memorial Fund" Mr. and Mrs. G. O. Gislason, Gimli, Man., in memory of Jonas M. Jonasson, Geysir, Man., 5.00. Mrs. Thora Oliver, Selkirk, Man. in memory of Guðmundur Vig- fusson, 10.00 and Tryggvi Bjorn- son, 5.00. Received with thanks, ( Mrs. E. Gislason, Sec. Treas. ☆ Hinn 23. marz síðastliðinn varð bráðkvaddur að heimili sínu í Riverton, Hermann Thor- steinsson útgerðarmaður og fiski kaupmaður 68 ára að aldri; hann var drengur góður og vinsæll, er ekki vildi vita vamm sitt í neinu. Hann lætur eftir sig konu sína Margréti, ásamt fjórum upp- komnum börnúm; einnig lifa hann tvær systur. Vegna fjærverandi ættmanna hins látna, varð að fresta útför- inni, sem gerð verður frá kirkju bræðrasafnaðar í Riverton kl. 3 ^e.h. á laugardaginn kemur, þann 2. apríl. ☆ Silver Tea og Home Cooking Sala til arðs fyrir Sunrise Luth- eran Camp verður haldin undir umsjón hinna þriggja kven- félaga fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg (Kvenfélagsins, Wo- men’s Association og Dorcas) í samkomusalnum í Eaton’s búð- inni á fimtudaginn 7. apríl frá kl. 2.30 til kl. 5 e.h. Mrs. Sigurjón Sigurðson, Mrs. Paul Sigurðson og Mrs. C. Scrymgeour taka á móti gestum. Kaffiborðin eru í umsjá Mrs. S. Sigurðson, Mrs. J. Ingimund- son og Mrs, J. R. Storry. Fyrir matarsölunni standa Mrs. S. O. Bjerring, Mrs. H. Olsen og Mrs. L. Gibson. Aðalforstöðukona er Mrs. A. S. Bardal. Þetta er eina samkoman sem hér er haldin í Winnipeg til arðs fyrir sumarheimilið og er þess vænst að sem allra flestir vinir og velvildarmenn styðji þetta góða fyrirtæki eftir föng- um. Allslags kaffibrauð verður til sölu einnig blóðmör og lifrapylsa. ☆ Veitið athygli! Af ófyrirsjáanlegum ástæðum verður FRÓNS-fundinum, sem halda átti 1. apríl, frestað til 11. apríl. — Skemmtiskrá fundarins verður nánar auglýst síðar. —Nefndin Sexiugur íslandsvinur: William G. McArthur

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.