Lögberg - 14.07.1955, Side 1
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
Transit - Sargent
Silverline Taxi
5 Telephone Lines
20-4845
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
Transit - Sargent
Silverline Taxi
5 Telephone Lines
20-4845
®8. ARGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 14. JÚLÍ 1955
NÚMER 28
Fréttir af kirkjuþingi
Eftir séra ÓLAF SKÚLASON
Hjálp streymir að úr öllum áttum
Frá vinstri sézt Dr. H. V. Waldon, yfirlæknir við
sjúkrahúsið í Vita, Man., og við hlið hans Mr. Pete
Langelle, einn af yfirmönnum SHEA’S Winnipeg
Brewery Limited, sem er meðal elztu iðnstofnana í
fylkinu, þar sem hann afhendir Dr. Waldon, sem er
formaður viðreisnarstarfseminnar í Vita $1,000
bankaávísun frá þessu kunha ölgerðarfyrirtæki í
viðreisnarsj óðinn.
Frá ástandinu í Vita hefir áður verið sagt hér í
blaðinu og fárviðri því hinu geigvænlega, sem hertók
þetta litla og vingjarnlega þorp. —
Tillög í viðreisnarsjóðinn hafa svo að segja streymt
að úr öllum áttum, og má slíkt teljast óblandið
fagnaðarefni þeim öllum, sem finna til með sam-
borgurum sínum þegar mannraunir steðja að.
„íslenzkir stjórnmálamenn skilja
menningarhlutverk leiklistarinnar11
Langruth, 4. júlí
AGANA 25.—29. júní duld-
ist engum, hvað setti
ntestan svip á bæinn Gimli
við Winnipegvatn. Þá gengu
þar um menn og konur með
borða og spjald á barmi, en
Þar á stóð nafn og heimilis-
fang viðkomanda. Tíðir voru
sungnar oftast þrisvar dag
bvern, og hvar sem tveir eða
Þrír komu saman barst talið
újótlega að kirkjunnarmál-
efnum. Hið íslenzka lúterska
birkjufélag í Vesturheimi var
að halda hátíðlegt 70. afmæli
sitt.
í^ingið hófst með borðhaldi
að laugardagskvöldi, 25. júní,
þá
voru og kynntir ýmsir
gestir, sem komnir voru til
þings. Þá flutti forseti Kirkju-
íélagsins, séra Valdimar J.
Eylands skýrsiu sína. Hann
kvað Kirkjufélagið vera í
Vexti og leit björtum augum
a framtíðina. Tveir voru þeir
aðilarnir, sem hann sérstak-
Iega þakkaði, og sagði hann
Þeir væru sem stóru bræður
Khrkjufélagsins. Það voru
The United Lutheran Church
°f America (ULCA) og Þjóð-
kirkja Islands. Kirkjufélagið
befði hlotið yfir 100,000 dali
ffá ULCA (á 14 árum), en nú
væru starfandi í Kirkjufélag-
mu fjórir prestar, sem hlotið
befðu menntun og vígslu
heima á Islandi. Opinberir
fulltrúar þessara aðila voru
þeir Rev. Dr. G. Harkins og
séra Ólafur Skúlason, fluttu
þeir kveðjur og erindi, m. a.
sendi biskupinn yfir Islandi
dr. Ásmundur Guðmundsson
skrautritað ávarp, sem full-
trúi Þjóðkirkjunar afhenti.
Það mun almennt álit, að
fundur þessi og hátíð hafi
verið ein hin bezta í sögu
Kirkjufélagsins. — Fulltrúar
voru áhugasamir um eflingu
og viðgang Kirkjufélagsins og
áhugamála þess. Einkenndist
afgreiðsla mála einna mest af
einkunnarorðum þeim, sem
valin höfðu verið fyrir fund
þennan, en þau voru: „Legg
þú á djúpið“. Þarf ekki annað
en benda á samþykkt fundar-
manna varðandi elliheimilið
Betel. Kunnáttumenn (í sam-
bandi við elliheimilið) töldu
ekki nema um tvennt að ræða,
annað hvort að fækka vist-
mönnum niður í 40 eða byggja
nýtt hús. Að vandlega athug-
uðu máli var samþykkt að
„leggja á djúpið“ vondjarfir
og safna 175 þús. dollurum til
endurbyggingar. Munu allir
þeir, sem bera hag gamal-
menna fyrir brjósti, fagna
þessari ákvörðun og leggja
fram sinn skerf til þess að
settu marki verði náð.
Á þinginu var ekki ein-
göngu horft á nútíðina, heldur
var einnig skyggnzt til baka
Framhald á bls. 4
Viðtal við
E. M. OELENSLAGER.
einn frægasta leik-
tjaldamálara Banda-
ríkjanna
ELENSLAGER leiktjalda-
málari hafði hér skamma
viðdvöl, en notaði að sjálf-
sögðu tækifærið til þess að
kynna sér eftir föngum ís-
lenzk leikhúsmál, skoðaði
m. a. Þjóðleikhúsið í fylgd
með þeim Lárusi Ingólfssyni
leiktjaldamálara, Indriða
Waage leikstjóra og Ævari
Kvaran leikara.
„ísland ber menningar-
nafnið með rentu. Stjórnmála
mennirnir virðast bera fullt
skyn á stórkostlegt menning-
arhlutverk leiklistarinnar hér
á landi. Þið eruð sannarlega
öfundsverð þjóð“, sagði
Oelenslager við tíðindamann
Vísis.
„Mín bíða að vísu sex leik-
rit, er heim kemur, en ég get
varla komizt hjá að öfunda
Lárus Ingólfsson, sem ekki
þarf að brjóta heilann um
framtíðina í þeim efnum.
Sjálfur þarf ég aðstoðarleik-
tjaldamálara, einkaritara og
fleira fólk í skrifstofu minni
og vinnusal í New York. 1
borg hraðans höfum við ekki
ráð á að láta tækifærin ganga
okkur úr greipum.
Lárus Sigurbjörnsson, for-
maður Leikfélags Reykjavík-
ur, en það fyrirtæki myndi ég
kalla Tjarnarleikhús, sýndi
mér gamla leikhúsið í Iðnó.
Það var sannarlega fróðlegt
að fá að vita, að allir leikarar
Þjóðleikhússins eru „aldir
upp“ í þessu gamla, göfuga
húsi. Sennilega er þetta ein-
kennandi fyrir íslenzka menn
Framhald á bls. 8
Endurkosinn í stjórn-
arnefnd hóskóla síns
Dr. Richard Beck prófessor
var nýlega endurkosinn í
stjórnarnefnd (Administra-
tive Committee) ríkisháskól-
ans í Norður-Dakota. Er hann
einn af sex háskólakennurum,
sem sæti eiga í nefndinni og
kjörnir eru á almennum
kennarafundi; en sjálfkjörnir
eru yfirmenn (Deans) hinna
ýmsu sérskóla innan háskól-
ans. Dr. Beck á einnig sæti í
ýmsum öðrum meiriháttar
háskólanefndum, svo sem
bókasafnsnefndinni.
Um f-vent að velja
Rétt áður en vísindamaður-
inn víðfrægi Albert Einstein
lézt, hafði hann ásamt níu
öðrum heimskunnum speki-
mönnum undirskrifað skjal
þar sem skorað var á allar
þjóðir að afnema vopnaburð,
með því að sýnt væri, að
notkun atómsprengjunnar og
vetnissprengjunnar gæti ger-
eytt öllu mannkyninu; í raun-
inni væri því einungis um
það tvent að velja að leggja
niður vopn eða eiga á hættu
gereyðing mannkynsins í
heild; einn þeirra manna, er
undirskrifuðu skjalið var
heimspekingurinn og stærð-
fræðingurinn Russell lávarð-
ur, sem nú er 83ja ára að
aldri, einn af frægustu rit-
höfundum og mælskumönn-
um Breta.
Stórveldafundur
í aðsigi
Hinn 18. þ. m. hefst í
Geneva á Svisslandi stór-
veldafundur, er forustumenn
Breta, Bandaríkjamanna,
Rússa og Frakka standa að.
Fyrir hönd amerísku þjóðar-
innar sækir Eisenhower for-
seti fundinn.
Telja má víst, að mikið af
fundartímanum gangi í um-
ræður um það með hverjum
hætti draga megi úr kalda
stríðinu sem og várðandi
sameiningu Þýzkalands.
Kosin í virðingarstöðu
Frú Björg ísfeld
Á nýafstöðnu ársþingi
hljómlistarkennara sambands
ins canadiska, sem haldið var
í Vancouver, var frú Björg
ísfeld kosin forseti þessara út-
breiddu menningarsamtaka;
var hún makleg slíkrar
sæmdar sakir hæfni sinnar og
persónuleika.
^^^^jóJhirhja Jiiiandi iendir -Jdinu dJuantgeliíba cjCúterila
-Jdirhjupéiayi jCiiendinya í Ueiturbeirni twe&ju iína
°9 iampaynar fnrí, er jrta u eidur nú ijötugaita drifinj iitt.
JJtarfi vjÍtar er orJiJ mihiJ ocj hieiiunarríht. Jér hapiJ t/arJ-
ueitt hirhjuarj-inn dtjra frá j-eJrum i/orum ocj mceJrum otj iacjt
fram mihinn iherf tii vemdunar tuncju uorri ocj ftjóJemi.
-JJriitindómurinn Lfi. iétt tjjur (ífiraun tjar. j-^ér hafiJ
Veitt mihium ocj góJum hirhju (eiJtogum tjjar örucjja fjtjd.
(jóJhirhja JJiiandi fahhar tjjur dit o<j tnjcjjj ocj tretjitir
fuj
aj aidrei rofni höndin i miiii. \Jér uiijum aiiir uera eitt,
jreinar d iama meiJi, Jfeiú -JJriíti.
\Jér hiJjum 2)rottin, athuarf uort frd hjni tii hjni, aJ
(*iJa tjJur um óhomin dr oj hieiia -JJirhjuféiaj tjjar oj tjJur
h uem oj einn.
'J-ifiJ heiiir um a(dur í friJi hani oj hcerieiha.
f^eyljauílt, /7. jtlnt /955.
cr*\<d. LLchv-\.\Afsr\.(A-