Lögberg - 14.07.1955, Side 6
6
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 14. JÚLÍ 1955
GUÐRÚN FRÁ LUNDI:
DALALÍF
„Það hefur náttúrlega verið bréfið, sem ég
aftraði Önnu frá að rífa upp. Ég sá, að það var
skriftin hennar Línu utan á því. Nú iðrast ég
eftir, að ég var að sletta mér fram í það“.
„Það var vel gert af þér, eins og allt annað.
Ég veit að þú átt eftir að hjálpa okkur betur. Þú
hefur alltaf verið minn bezti vinur“.
„Nei, það skaltu ekki láta þér detta í hug. Ég
gerði það vegna Önnu að bjarga bréfskömminni“.
„Þú gerir það þá líka vegna hannar að taka
Línu að þér. Þú færð ekki betri konu. Þú ættir
bara að sjá, hvað kofarnir á Jarðbrú eru orðnir
vistlegir. síðan hún fór að hirða þá“.
Þórður hló kuldahlátur. „Svo að þú ert búinn
að heimsækja hana og aðgæta, hvernig hún gangi
um bæinn?“
„Já, ég kom nú ekki inn í baðstofuna. Það
var á þeim tíma sólarhringsins, sem flestir hvíla
sig aðrir en þeir, sem vaka yfir túninu“.
„Þú hefur líka komið seint heim úr kaup-
staðaferðunum þetta vor. Ég hef rennt grun í,
hvar þú hefur verið“.
„Þú gleymir þessu öllu, Þórður minn, og reyn-
ist mér vel í þessu vandræðamáli. Þú gerir það
vegna Önnu, þó að þú sért reiður við mig. Ég
veit, að þú gerir það. Þetta eru ráðin hennar Línu.
Hún vonast eftir að þú fyrirgefir sér“.
„Mín sáttfýsi er ekki eilíf. Ég er svo sem
ekkert reiður við hana, því að hún er mér nú
óviðkomandi manneskja. Ég hafði vit á að losa
mig úr þessu svikaneti, áður en kreppti meira að
mér. Því læturðu hana ekki fara til Ameríku?
Er Ameríka ekki alveg eins þægileg og hún hefur
verið til þess að senda þangað þá, sem eru of
þungir á hreppsfélögunum eða hættulegir mann-
orði vissra manna?“ spurði Þórður með kaldri
hæðni.
„Lína treystir sér ekki — hún er sjóveik, og
svo vill hún helzt ekki fara úr dalnum. Aumingja
stúlkan, hún hefur verið ósköp lasin nú undan-
farið“.
Þeir voru nú báðir alklæddir. Þórður tók
blautu fötin sín, vöðlaði þeim saman í böggul og
batt utan um hann snærisspotta. Hann var óþarf-
lega lengi að því. Svo henti hann bögglinum
harkalega frá sér og sagði:
„Ég mætti Línu um daginn, þegar ég kom
utan af Ósnum. Það var hryggilegt að sjá hana.
Ég þóttist sjá, hvernig komið væri fyrir henni.
Við hverju var öðru að búast? „Sjá hér, hve illan
enda ódyggð og svikin fá“, stendur þar“.
Jón gekk til Þórðar, lagði handlegginn yfir
herðar hans og sagði í sínum hlýjasta málrómi:
„Ekki svona dómharður, vinur. Ég þekki þig
svo vel, að ég veit að þér þykir ennþá vænt um
Línu. Þú ert þannig gerður, að þú gleymir aldrei
góðum vini“.
„Það er alveg satt. Ég lifi ekki lengur en mér
þykir vænt um Línu“, svaraði Þórður.
„Því hikarðu þá við að taka hana að þér?
Finnst þér hún svona auðvirðileg vegna þess, að
hún hefur verið í þessu ástalífi með mér, að þú
getir ekki gert hana að konu þinni? Mér þykir
vænt um hana og langar til þess að henni líði vel.
Hún sagði, að þetta væri sín eina von“.
Þórður færði sig undan handlegg hans. „Ég
hef alltaf hugsað mér að konan mín ætti að elska
mig einan, en ekki einhvern annan. Þess vegna
valdi ég hana. Hún var svo góð og saklaus, áður
en þú náðir henni á þitt vald. Nú er hún orðin
að svikakvendi, sem leikur sér að lyginni eins og
þú. Hvernig gæti ég treyst henni hér eftir? Nei,
sambúðin yrði okkur báðum til kvalar“.
„Ég skal ábyrgjast þér, að hún verður þér trú
og góð kona. Og milli okkar skal öllu vera lokið.
Ég skal aldrei stíga mínum fæti inn fyrir dyrnar í
Seli, ef þú krefst þess“.
Þórður færði sig fjær honum og hristi höfuðið.
„Nei“ og aftur „nei“, sagði hann. Svo bætti hann
við reiðilega: „Hún er ekki fyrsta stúlkan, sem
þú eyðileggur. Hvernig fórstu ekki með Lilju
systir, þessa indælu stúlku? Líklega hefði hún
verið hérna í dalnum gift og öll systkinin ltka,
hefðir þú ekki komið þar við sögu“.
„Mér er ekki kunnugt um, að ég hafi gert
Lilju neitt illt. Hún var bara sama einþykknis-
skepnan og þú. Hvað þurfti hún að stökkva til
Ameríku um leið og ég setti upp hringinn? Við
minntumst aldrei á neitt hjónaband. Við vorum
bara eins og góð systkini, gældum hvort við
annað í sakleysi æskunnar. Ég var búinn að segja
það oft, að Anna yrði konan mín. Þið vissuð það
ölL Og svo þýtur Lilja í burtu, án þess að kveðja
mig. Það eru alltaf þessi fljótræðisflog í kven-
fólkinu“.
„Hún leit víst aldrei glaðan dag fyrsta árið
fyrir vestan, og svo kvaldist hún af sjóveikinni á
leiðinni“, sagði Þórður ásakandi.
„Ég gat ekki að því gert“, sagði Jón. „Þess
vegna má ekki senda Línu okkar til Ameríku,
svo að hún kveljist ekki eins, enda veit ég, að
þú tekur sönsum, því að af ég á nú að tala eins og
mér býr í brjósti, verð ég að segja, að þú berð
ekki alveg hreinan skjöld í þessu máli. Finnst þér
drengilegt af þér að láta mig játa allt fyrir þér
svo dauðadrukkinn, að ég man ekki eitt einasta
orð eða atvik, sem var talað eða gert þó nótt“.
„Ég játa, að það var ekki rétt gert. Ég fann
það þá, þó að ég neyddist til að gera það, en ég
varð einhvern veginn að komast að því, sem var
að gerast í kringum mig, þar sem hún laug að
mér og það þótt ég sama sem stæði hana að
svikunum. Hún hefur líklega ekki þorað annað,
vesalingurinn“.
„Nei, auðvitað hefur hún ekki þorað annað“,
sagði Jón blíðmáll. „En nú skulum við gera gott
úr þessu öllu og sættast heilum sáttum og þú
tekur Línu að þér. Hér er hönd mín til sátta“.
Þórður horfði út undan sér á framrétta hönd-
ina, en snerti hana ekki. Hann sá ánægjulegan
glampa í augum Jóns. Líklega taldi hann taflið
unnið.
•
„Mér kemur höndin á þér ekkert við“, sagði
Þórður. „Þú mátt lifa með henni í frillulífi alla
ævina míh vegna. Ég ætla mér ekki að borga
ykkur svikin með því að verða leppur fyrir ykkur.
Ég reyndi það, sem ég gat, til að aðskilja ykkur,
en það var ekki hægt. Nú er bezt að þið njótið
afleiðinganna".
„Hvað — afleiðinganna? Það er eins og „stóri
dómur“ væri í lögum og við mættum eiga von á
hýðingu eða einhverju þaðan af hræðilegra. Ég
er nú svo sem ekkert mjög smeykur. Ég skyldi
víst hampa blessuðum króganum framan í hvern
sem væri, ef ég bara mætti það. Hann verður
líklega ekki ómyndarlegur, þó að hann sé ekki
hj ónabandsbarn“.
„Jæja, þá skaltu byrja á því að hampa honum
framan í konuna. Henni þykir gaman að börnum
og ykkur hefur víst langað til að eiga fleiri börn“,
sagði Þórður og brosti kuldalega.
„Það er nú einmitt það, sem ég þori ekki“.
„Ef ég ætti nokkuð að leggja til málanna“,
sagði Þórður um leið og hann gerði sig líklegan
til að ganga burtu, „þá ráðlegði ég þér að segja
Önnu sannleikann og það strax, vera ekki með
nein undanbrögð eða svik meiri en þú ert búinn.
Sannleikurinn kemur í ljós, þótt seinna verði, og
það þolir hún ennþá verr. Jafnvel ekki ólíklegt,
að hún yrði geðveikur vesalingur, og þá verður
þú ekki öfundsverður af hjónabandinu“.
Svo stökk Þórður ofan að ánni, hentist yfir
hana og þaut í sama sprettinum heim að Seli og
hvarf inn í kofana. Jón horfði á eftir honum,
þangað til hann var horfinn. Þá fleygði hann sér
niður og starði hugsandi fram undan sér. Síðustu
orðin, sem Þórður hafði sagt, blésu einhverri
slæðu frá fortíðinni. Bak við hana var manns-
mynd, sem gleymskan hafði verið búin að má út
að mestu — náföl mannsmynd með augun langt
inni í höfðinu og augnatóftirnar fullar af myrkri.
Þannig hafði Friðrik kaupmaður litið út, þegar
hann sá hann seinast. Var þessi mynd að minna
hann á, að svona ætti hann eftir að sjá konu sína?
Nei, það mátti ekki verða. Það mátti ekki koma
fyrir. Anna mátti aldrei fá vitneskju um, hvernig
komið var. Lína varð að fara eitthvað langt í
burtu. Þórði hafði aðeins dottið í hug að spá þessu
til þess að hefna sín. Jón lokaði augunum, ef ske
kynni að myndin hyrfi, en hún varð þá bara enn
skýrari. Og honum heyrðist eins og hvíslað í eyra
sér: „Geðveikur — brjálaður“.
Jón þaut á fætur. Hvað ætlaði eiginlega að
verða úr þessari hrakspá? Var hann sjálfur að
verða brjálaður? Ekki nema það þó! Hann minnt-
ist þess, sem faðir hans hafði sagt við hann
morguninn eftir að Erlendur á Hóli hafði gasprað
því út úr sér í ölæði, hver endalok tengdaföður
hans hefðu orðið. „Þú verður að vernda hana frá
öllu, sem getur haft skaðleg áhrif á hana, því að
þetta getur verið arfgengt. Varðveita hana eins
og veikt blóm, sem getur fölnað á einni frostnótt“.
Þetta hafði hann sagt, sá skynsami og gætni
maður. Og s^?o datt Þórði það í hug, að hann
skyldi ganga beint til hennar og segja henni frá
hrösun sinni. Hann hlailt að vera vitlaus. Hann
gekk fram og aftur, þangað til hann heyrði Jakob
kalla skammt frá sér: „Hvar eruð þið?“ Það gat
vel verið, að hann væri búinn að kalla oft.
Jón fór á móti drengnum. Hann rak undan
sér hnakkhesta handa þeim og reiðingshest með
pokum á undir veiðina. Jón fór að tína silunginn í
pokana. Jakob hjálpaði honum.
„Hvar er Þórður?“ spurði Jakob allt í einu.
„Heima í Seli. Hann kemur víst bráðum“,
sagði faðir hans.
En Þórður kom samt ekki. Nú var þúið að
bera silunginn saman og jafna í pokunum, en
ekkert sást til Þórðar.
„Hlauptu heim í Selið og segðu Þórði að við
séum tilbúnir“, sagði Jón.
Jakob hljóp, en kom bráðlega einsamall aftur.
„Hann segist aldrei koma heim aftur. Hann
er svo undarlegur. Hann bað mig að koma með
Skjóna og binda hann við bæjarklinkuna. Því
ætli hann sé svona undarlegur, pabbi?“ sagði
hann vandræðalega.
En faðir hans hristi aðeins höfuðið. „Sæktu
hestana, góði minn, meðan ég fer og tala við karl.
Við skulum sjá, hvort ekki er hægt að hafa úr
honum fýluna“, sagði hann og hljóp af stað.
Jakob horfði á eftir föður sínum, hrifinn af
því, hvað hann var fljótur að hlaupa og hvað
hann stökk langt yfir á hinn bakkann.
Þórður stóð við gluggann og horfði út. Hann
hafði séð til ferða húsbóndans, þótt hann hreyfði
sig ekki úr sporunum eða liti við, þegar hann kom
inn úr dyrunum. Eiginlega hafði hann alltaf fylgt
hverri hreyfingu hans frá því þeir höfðu skilið.
Og nú kom hann þarna hlaupandi eins og kátur,
ábyrgðarlaus strákur, einmitt þegar honum sjálf-
um fundust örlögin svo þungbær, að hann gæti
varla risið undir þeim — og það var allt af hans
völdum.
Jón gekk hvatlega inn í baðstofuna, lagði
höndina á öxl Þórðar og sagði glaðlega: „Komdu
Þórður minn, allt er tilbúið. Jakob er að sækja
hestana“.
Þórður hreyfði sig ekki og hélt áfram að
stara út.
„Þórður, hvað ertu eiginlega að hugsa? Ertu
orðinn að steingervingi?“ sagði Jón öllu hærra.
Þá sneri Þórður sér við. Svipur hans var
ískyggilega þungur. „Ég kem ekki heim aftur!“
sagði hann með erfiðismunum. „Ég get það ekki!“
„Hvað á þetta svo sem að þýða? Fyrst þú fórst
ekki í burtu í fyrra, þegar þú varst næstum kafn-
aður hérna í Selinu úr fýlu og óhreinlyndi, þá er
engin ástæða til þess að að vera með úlfúð núna.
Þú varst búinn að fleyja stúlkunni frá þér, og
þér má standa á sama, hvað okkur hefur farið á
milli eftir það. Og það skal ég segja þér, góðurinn
minn, að þótt þú með allri þinni siðavendni og
miklu dyggðum berir mér það á brýn, að mér
hafi farizt illa við kvenfólk, þá hef ég þó aldrei
komið eins lélega fram við nokkra stúlku eins og
þú við Línu“.
„Þegiðu, Jón, eða ég drep þig. Farðu, ég þoli
ekki að sjá þig“.
„Nú, jæja, ertu svona æstur, Þórður minn.
Hefurðu hníf eða ætlarðu að nota snæri? Taktu
þá fórnarlambið. Ég reyni að verjast, meðan
ég get“.