Lögberg - 14.07.1955, Page 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 14. JÚLÍ 1955
Úr borg og bygð
Afhjúpun og vígsla
Þann 17. júlí fer fram af-
hjúpun og vígsla minnis-
merkismerkis um íslenzka
brautryðjendur í Álftavatns-
og Grunnavatnsbyggðum.
Athöfnin hefst með guðs-
þjónustu í lútersku kirkjunni
að Lundar kl. 11 f. h.
Dr. V. J. Eylands flytur
ávarp, en séra Bragi Friðriks-
son prédikar.
Við minnismerkið flytur hr.
Kári Byron, oddviti, ávarp.
Hr. Skúli Sigfússon afhjúpar
minnismerkið, en séra Bragi
Friðriksson vígir það. Að því
loknu verða sungnir þjóð-
söngvar íslands og Canada. —
Einnig flytur séra P. M.
Pétursson ávarp, og kveðju
frá Þjóðræknisfélaginu flytur
Dr. V. J. Eylands. Hr. Gísli
Magnússon les skýrslu undir-
búningsnefndar. — Þá verða
leikin ættjarðarlög og veit-
ingar fram bornar.
☆
Hinn 4. þ. m. lézt að Medi-
cine Hat, Alberta, Mrs. Guð-
laug Helga Freeman (Sigurd-
son), fædd 22. nóvember 1876
að Álfhóli í Hofssókn í Húna-
vatnssýslu. Foreldrar hennar
voru Thorleifur Björnsson og
Sigríður Hansdóttir; hún kom
til þessa lands 12 ára að aldri
og átti upp frá því heima hér.
Mann sinn, Sigurð Freman,
misti hún fyrir fjórum árum,
en tveir synir og tvær dætur
létust á undan henni; tvö börn
hennar eru á lífi, Halldór,
búsettur í Charleswood, og
Mary (Mrs. Archie Stewart)
til heimilis í Medicine Hat, og
þar dvaldi hin látna þrjú síð-
ustu æviárin, en lengstan tím-
ann átti hún heima í Charles-
wood.
Útförin var gerð frá Bardals.
Dr. Valdimar J. Eylands jarð-
söng.
☆
Mr. John Myrman frá Van-
couver, B.C., sem dvalið hefir
hér um slóðir nokkrar undan-
farnar vikur og heimsótt ætt-
ingja og vini hér í borg og
eins á Oak Point og í Nýja-
íslandi, lagði af stað heim-
leiðis á fimtudagskvöldið var.
☆
Mr. Hjálmur Thorsteinsson
á Gimli leit inn á skrifstofu
blaðsins um miðja fyrri viku,
og kom þá vestan frá Wyn-
yard, en þar hafði hann setið
ársþing Unitara-kirkjufélags-
ins. Mr. Thorsteinsson hafði
aldrei áður til Vatnabygðanna
í Saskatchewan komið; upp-
skeruhorfur taldi hann hinar
beztu. Mr. Thorsteinsson á
bróður, sem búsettur er í
Leslie.
☆
Kári Jónsson frá Sauðár-
króki, sem dvalið hefir ár-
langt hér um slóðir, lagði af
stað alfarinn til íslands síðast-
liðið þriðjudagskvöld; for-
eldrar hans eru búsett á Sauð-
árkróki og þangað fer hann
jafnskjótt og til íslands
kemur.
Messur í Norður-Nýja-íslandi
Sunnud. 17. júlí:
Hnausar kl. 2.
Geysir kl. 8.
Robert Jack
☆
Mr. Thorsteinn Ásgeirsson
málarameistari frá Lynn
Lake, Man., dvelur í borginni
þessa dagana.
☆
Laugardaginn, 2. júlí kl.
2.30 e. h. voru gefin saman í
hjónaband í lútersku kirkj-
unni í Glenboro Margrét
Hólmfríður, einkadóttir Mr.
og Mrs. Paul Anderson frá
Glenboro, og Earl Winfred,
sonur Mr. og Mrs. Nick Feigel
frá Halliday, N. Dak. Brúður-
in var leidd til altaris af föður
sínum. Svaramenn voru:
Beth Sparling frá Regina,
Sharon Feigel og Howard H.
Sorensen frá Halliday, N.
Dak. Clair Anderson og Glen
Witherspoon leiddu fólk til
sætis. Séra Eric H. Sigmar frá
Winnipeg söng tvo einsöngva
og aðstoðaði sóknarprestinn
við altarið. Mrs. A. Sigmar
lék á píanó og argel.
Vegleg og fjölmenn veizla
var setin í neðri sal kirkjunn-
ar eftir hjónavígsluna. Kven-
félag safnaðarins veitti af
mikilli rausn. Séra Eric H.
Sigmar mælti fyrir minni
brúðarinnar. — Brúðguminn
þakkaði fyrir sig með vel-
völdum orðum.
Eftir brúðkaupsferð vestur
í fylki og suður í Bandaríki
setjast ungu hjónin að í
Breckenridge, Minnesota.
☆
Kristján Sveinbjörn Good-
man andaðist snögglega á
heimili sínu í Glenboro s.l.
miðvikudag þann 6. júlí 69
ára gamall. Hann var fæddur
í Winnipeg þ. 22. nóv 1886.
Foreldrar hans voru Hafliði
Guðmundsson og Halldóra
Stefánsdóttir frá Holugili í
Víðidal í Húnavatnssýslu.
Faðir Kristjáns dó á unga
aldri árið 1901, en móðir hans
í hárri elli 1935. Kristján
kvæntist aldrei. Hann dvaldi
lengst af í Glenboro og grend-
inni. Kristján var einn af sjö
systkinum. Guðmundur bróð-
ir hans dó vestur í fylki fyrir
nokkrum árum síðan. Þau,
sem syrgja bróður sinn, eru:
Jón Rosant og Sveinbjörg,
Mrs. Weird, bæði í Glenboro;
Sigrún, Mrs. Felix Frede-
rickson, og Thorbjörg, Mrs.
Parker frá Edmonton; og
Kapitola, Mrs. Cole r Winni-
peg.
Útförin fór fram frá lút-
ersku kirkjunni í Glenboro
kl. 2 e. h. föstudaginn þ. 8.
júlí. Sóknarpresturinn jarð-
söng.
☆
Þriðjudaginn þ. 5. júlí kl.
7.30 voru gefin saman í hjóna-
band á prestsheimilinu í
Glenboro Thorbjörg J. Sig-
ríður, dóttir Jóns og Mary
Isleifsson frá Glenboro og
William Mike, sonur Mr. og
Mrs. M. Mantyka frá Saska-
toon. Bjarni ísleifson leiddi
brúðurina fram. Svaramenn
voru Marie Arran og Robert
ísleifson.
Eftir hjónavígsluna var
setin veizla á heimili Bjarna
Isleifsonar bróður brúðarinn-
ar. — Ungu hjónin fóru í
brúðkaupsferð austur í fylki.
Þau setjast að í Brandon. —
Sóknarpresturinn vígði.
☆
Hinn 10. júlí s.l. fermdi séra
Ólafur Skúlason eftirtalin
börn í Herðubreiðarkirkju,
Langruth:
Linda Grace Thompson
Louise Bernice Bott
Phyllis Victoria Unger
Edward Karl Larson
Harold Archibald Johnson
Ronnie Guðínundur
Ingimundsson.
☆
Miss Eva Johnson frá
Northumberland á Englandi,
kom til borgarinnar í fyrri
viku í viðskiptaerindum. Hún
kom hingað í fyrra með föður
sínum, en hann lézt á þessu
ári. Miss Johnson er af brezk-
um ættum, en hefir lagt stund
á íslenzku og íslenzkar bók-,
menntir; var hennar að
nokkru getið í Kvennasíðu
Lögbergs í fyrra í því sam-
bandi.
☆
Mrs. Anna Jones frá Hecla,
Man., dvaldi viku í borginni
í heimsókn hjá dætrum sín-
um, Mrs. Webb og Miss M.
Jones og öðru skyldfólki. Á
mánudaginn fór hún norður
á Winnipegvatn til Sandy’s
Island, þar sem maður hennar
og synir reka hvítfisksstöðvar.
☆
Mrs. S. B. Johnson, Elm
Park Rd., St. Vital, fór nýlega
vestur til Vancouver í
skemmtiferð. ,
☆
Mrs. G. A. Williams frá
Hecla, Man., kom til borgar-
innar í fyrri viku í viðskipta-
erindum.
☆
Mr og Mrs. Ian Kennedy
og fjölskylda frá Stonewall,
fóru í fyrri viku alfarin til
California. Mrs. Kennedy
(Helga Thorvaldson) er dóttir
Sveins heitins Thorvalds-
sonar.
☆
Mr. P. N. Johnson að Furby
Court, Winnipeg, fór nýlega
vestur til Saskatchewan að
hitta vini sína í Vatnabyggð-
unum og börn sín þrjú, sem
búsett eru í fylkinu, og var
hann heiðursgestur við hátíða
höldin í Wadena í tilefni af
hálfrar aldar afmæli fylkisins,
en hann var einn af frum-
herjum þess byggðarlags. Mr.
Johnson ráðgerði að verða um
mánaðartíma í ferðalaginu
vestur þar.
☆
Mr. V. Baldwinson, bakara-
meistari frá Vancouver, kom
til borgarinnar nýlega, og
veitir hann forustu brauð-,
gerðarstofu sonar síns á
Ellice Ave., meðan hann eyðir
bvíldardögum sínum vestur
við haf.
Sæmd heiðursmerki
íslendingar eru orðnir
kunnir á sviði mennta og
starfsmála um alllangt skeið,
svo slíkt er ekki beinlínis
nýtt í sögu þeirra, en yfirlýs-
ing sú, er hér fylgir, er þó
dálítið einstök í sinni röð.
Þessi gáfaða stúlka, sem hér
um ræðir er May Kardal,
dóttir Óla Kardals söng-
manns og Sylvíu konu hans.
Eftir tveggja ára dvöl í
Bandaríkjunum er henni veitt
sérstakt heiðursmerki fyrir
gáfur, lærdóm og hegðun.
May var fermd snemma í
sumar í fæðingarbæ sínum
Gimli.
Vafalaust fylgja henni ein-
lægar framtíðarhamingjuósk-
ir allra vina hennar og kunn-
ingja.
* * *
The American Legion
Certificate of School Award
This Certificate of Distin-
guished Achievement is
awarded MAY KARDAL, of
BAKER SCHOOL, in recogni-
tion of attainment acquired as
winner of The American
Legion School Award. In fur-
ther recognition of the poses-
sion of those high qualities of
Honor, Courage, Scholarship,
Leadership and Service which
are necessary to the preserva-
tion and protection of the
fundamental institutions of
Þríburar . . .
Framhald af bls. 4
því mjög erfitt fyrir Sæunni
að fá litlu táturnar allar í
einu, en börn þeirra hjóna
hafa verið mjög hraust og allt
gekk vel, þótt sýnt sé, að
Sæunn hefir haft í mörg horn
að líta fyrstu árin. Hefir
mikið starf hvílt á hennar
herðum, en laun erfiðisins
hafa líka verið mikil að sjá
þessar myndarlegu telpur
komast á legg.
—TIMINN, 15. júní
Ör fjölgun bíla
Bílum fjölgar nú svo ört í
London, að bæjarstjórnin
hefir skipað sérfræðinganefnd
til að athuga möguleika á því
hvort auka megi bifreiðastæði
í borginni þannig að viðun-
andi megi teljast, því að við
svo búið megi ekki lengur
standa.
Mr. Ágúst Sædal fór vestur
á Strönd á föstudaginn í
heimsókn til sonar síns Boða
sjóliðsforingja og dóttur sinn-
ar, Mrs. Rúnu Hopkins og
þeirra fjölskyldna, er búa í
Victoria. Mr. Sædal er og
vinmargur þar um slóðir;
mun hann dvelja þar í þrjár
vikur.
☆
Mr. og Mrs. Sigurður Sig-
urðsson frá Elfros, Sask.,
dvelja í borginni um þessar
mundir.
☆
Mr. Thorður Thompson frá
Swan River er nýkominn til
borgarinnar til að leita sér
læknisaðgerða.
our government and the ad-
vancement of society.
This award is made by
LESTER TIERLUND, Post
No. 451, The Department of
Minnesota, The American
Legion.
Duane E. Spiess,
Post Commander.
Vernon E. Stech,
Post Adjutant.
fslenzkir . . .
Framhald af bls. 1
ingarþróun og framfarir al-
mennt.“
Oelenslager hefir gert leik-
tjöld fyrir ýmsar frægar sýn-
ingar í Bandaríkjunum. Til
gamans má nefna „Frúen fra
havet“ (Ibsen), „Er á meðan
er“, „Brúðuheimilið", „Mýs
og menn“, „Hringinn“ (Som-
erset Maugham), „Kanadídu“
(Bernhard Shaw), „Pymalion“
(Shaw) og „Fædd í gær“. Þá
hefir þessi listamaður gert
tjöld fyrir ýmsa fræga ball-
etta og óperur.
Oelenslager, sem er pró-
fessor í leiktjaldatækni við
leiklistardeild Yale-háskóla í
Bandaríkjunum, hefir hlotið
margvísleg verðlaun fyrir list
sína og ritað bækur um leik-
tjöld og leiktjaldagerð.
Hér skrapp hann til Þing-
valla ásamt konu sinni, en
hún er gamall Islandsvinur.
Eru þau stórhrifin af náttúru
íslands. Héðan fóru þau til
Stokkhólms og Helsingfors,
en þar mun hann flytja fyrir-
lestra um leiktjöld.
—VISIR, 9. júní
BLOOD BANK
CONTRIBUTED
B Y
Dnemys
MANITOIA
D I V I $ I ON
WESTERN
CANADA
BREWERIES
l I M I T [ D
MD-366