Lögberg - 18.08.1955, Síða 1

Lögberg - 18.08.1955, Síða 1
ANYTIME — ANYWHERE CALL Transit - Sargent Silverline Taxi 5 Telephone Lines 20-4845 ANYTIME — ANYWHERE CALL Transit - Sargent Silverline Taxi 5 Telephone Lines 20-4845 68. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 18. ÁGÚST 1955 NÚMER 33 Minnismerki reisf á Lundar Sunnudaginn 17. júlí s.l. var afhjúpað og vígt á Lundar, Man., minnismerki um íslenzka frumbyggja í Álfta- og Grunnavatnsbyggð- um. í febrúar s.l. var fyrst rætt um mál þetta, en á al- uiennum fundi síðan kosin undirbúningsnefnd, sem at- huga skyldi um möguleika á framkvæmdum. í nefnd þess- ari áttu sæti, Jón Björnsson, formaður, Gísli Magnússon, Utari, D. J. Lindal, gjaldkeri, K. Byron, V. J. Guttormsson, Halldórsson og séra B. Kriðriksson. Nefndin tók þegar til starfa °g hélt nokkra fundi um Uíálið og lagði tillögur sínar foks fyrir almennan fund, Þ- 20 apríl s.l. og samþykkti Sa fundur gjörðir nefndarinn- ar og veitti henni heimild til a<3 halda áfram, unz minnis- Uierkið væri fullgjört. Nefndin valdi stað við aðal götu bæjarins og samdi við fu-. Svein Björnsson frá Gimli Um yfirstjórn verksins. Þá Var hafin fjársöfnun og urðu Uiargir vel við þegar. Hafin Var einnig skrásetning á nöfn- Um allra Islendinga, er hvíla f grafreitum byggðanna og er það hið þarfasta verk. Á bak- hfið minnismerkisins er hólf, Þar sem geyma á skrá þessa °g annað, sem geymir sögu Sveita þessara. Minnismerkið var svo vígt °g afhjúpað þ. 17. júlí, sem fyrr segir. Sjálft merkið var þá fullgert, en umhverfi þess ekki komið í það horf, er uefndin ákvað. Girða á það svæði og þekja og planta trjám. Athöfnin hófst með guð- þjónustu í Lútersku kirkj- unni, kl. 11 f. h. Dr. V. J. Eylands flutti ávarp, en séra Bragi Friðriksson prédikaði. Fjölmenni var við kirkju. Síðan var haldið til minnis- merkisips. Tók þar formaður undirbúningsnefndar, J ó n Björnsson til máls, bauð fólk velkomið og stýrði síðan dag- skránni. Næstur talaði Kári Byron, oddviti. 1 lok máls síns bað hann Skúla Sigfús- son, fyrrv. þingmann, að afhjúpa minnismerkið. Skúli gekk þá fram og afhjúpaði merkið með því að taka ís- lenzka fánann af plötu þeirrí, sem á merkinu er og ber þessa áletrun: Erected 1955 in commem- oration of the Icelandic pioneers in Lundar, Otto, Westfold, Markland and adjoining districts. They established settlement in 1887. „Hér er þetta minnismerki mönnum jafnt og konum reist, sem þann manndóm sýndu í verki, svo þeim allir gátu treyst. Aldrei glati orðstí góðum, afkomandi landnemans. Frægðarorð þú færð hjá þjóðum fetir þú í sporin hans.“ Vísur þessar eru eftir Vig- fús J. Guttormsson. Skúli Sigfússon talaði síðan hlýjum þakkarorðum til áheyrenda. Þá vígði séra Bragi Friðriks- sem átti frumkvæðið að minnisvarðamálinu, og sá um bygging hans. Frá vinstri til hægri: V. J. Gutt- ormsson, Magnús Halldórsson, J. A. Björnsson, D. J. Líndal, K. Byron, G. P. Magnússon, séra Bragi Friðriksson. Næstur varðanum vinstra megin: Séra V. J. Eylands. Næstur varðanum hægra megin: Séra P- M. Pétursson. Voru þeir viðstaddir til að taka þátt í hátíðahöldunum. son merkið og síðan voru þjóðsöngvar íslands og Canada leiknir. Séra Philip M. Pétursson frá Winnipeg tók nú til máls og síðan flutti Dr. V. J. Ey- lands kveðju Þjóðræknisfé- lagsins og fór viðurkenningar- orðum um framkvæmd þessa. Gísli Magnússon flutti skýrslu undirbúningsnefndar, skýrði frá gangi málsins og öðru í því sambandi. Aðrir ræðu- menn voru C. Halldórsson, þingrriaður, og D. J. Lindal. Þegar athöfninni við merk- ið lauk, var fólki boðið til Lát’in í hárri elli Frú Jóhanna Thórðarson Síðastliðinn sunnudag lézt hér í borginni merkiskonan frú Jóhanna Thórðarson 91 árs að aldri, fædd í Múlakoti í Fljótshlíð 12. maí árið 1864. Foreldrar hennar voru Sig- urður Eyjólfsson bóndi þar í sveit og kona hans Þórunn Jónsdóttir. Jóhanna fluttist hingað til lands árið 1888. Hún giftist 8. nóvember 1890 Guðmundi P. Thórðarsyni bakarameistara frá Gróttu á Seltjarnarnesi, vinsælum at- orkumanni, sem lézt fyrir all- mörgum árum; þeim varð eRefu barna auðið og eru þessi á lífi, Andres Guð- mundur í Vancouver, Mrs. Gabriella Wineke, Detroit, Mrs. LoUise Hawcroft, Win- nipeg, Mrs. Kristjana Nichols í Edmonton og Emil í Calgary. Frú Jóhanna var fríð kona sýnum og að sama skapi trygglynd og ástúðleg; hún bar aldurinn vel og var ung- leg og falleg til hins síðasta. Hin látna starfaði langa ævi að velferðarmálum Fyrsta lúterska safnaðar af þeirri alúð og einlægni, er einkendi afstöðu hennar til manna og málefna. Útförin var gerð í gær, mið- veitinga í samkomuhúsi bæj- arins, þar sem konur í héraði veittu af hinni mestu rausn. Það er mál margra, að minnismerkið sé einfalt og stílhreint og öllum aðilum til sóma og prýði fyrir Lundar- bæ. Og sú er von manna, að merkið muni bæði vekja at- hygli á íslenku landnámi á þessum slóðum og æ minna íslendinga á dyggðir og dugn- að landnemanna. Athöfnin fór vel fram og ánægjulega og ber að þakka öllum, sem þar lögðu hönd til hjálpar. vikudag, frá Fyrstu lútersku kirkju. Dr. Valdimar J. Ey- lands jarðsöng. Til athugunar Söngskemtanir Björgvins GuSmundssonar Eins og auglýst er í blöðun- um í þessari viku, þá hefir Björgvin Guðmundsson tón- skáld frá Akureyri ákveðið að lofa okkur hér að heyra Kantötukór sinn og fleiri yndislega söngva, á þeim stöðum, sem nefndir eru. — Gerir hann þetta ekki til þess að auðgast af því persónulega, því inngangur er ókeypis, og einungis samskota leitað; heldur er hugmyndin að hlúa að þeim þjóðernisglæðum, sem enn eru ekki með öllu útkulnaðar hér vestra. „Mikið má ef duga skal,“ og» er spursmál hversu lengi áhrifin vara. En í þurkatíð er gott að fá skúr á gróður jarðarinnar við og við. Svo er með þetta. Ef til vill geta söngvar frá ættjörðinni snert ýmsa þá strengi í brjóstum okkar, sem slakir eru orðnir og ryðfallnir. Ef þeir megna einskis í þá átt, er ekki líklegt að aðrar að- ferðir dugi betur.' Það er á- reiðanlega mikilsvert atriði fyrir okkur hér að hafa söngva íslands innanborðs á þjóðræknisskútunni, en því aðeins er það mikilsvert að þeim sé gaumur gefinn og þeim sé leyft að tala sínu máli til okkar. í þessari viðleitni Björgvins er því ekki um neina yfirborðs-þjóðrækni að ræða, því það er ekkert til, sem talar betur máli þjóð- rækninnar en íslenzk ljóð og söngvar, — samhljómur. ís- lenzkra radda, — er tala á okkar „ástkæra ylhýra máli.“ Vil ég því með þessum línum mæla með því í fullri ein- lægni og alvöru, að fólk fjöl- menni á samkomur Björgvins. Vinnur mikinn námsframa Daniel John Simundson Mörg íslenzk ungmenni, er stundað hafa nám við æðri mentastofnanir í Canada æg Bandaríkjunum, útskrifuðust við góðan orðstír í sumar. Hefir ýmsra þeirra þegar verið getið í Lögbergi. Einn slíkur ungur íslend- ingur er Daníel John Simund- son, sem útskrifaðist frá Stanford University í Cali- fornia 19. júní síðastl. með hæstu ágætis einkunn (Great Distinction) og hlaut menta- stigið “Bachelor of Arts.” — Hann var kjörinn félagi í “Phi Beta Kappa Scholastic Honor Society.” Eins og áður hefir verið getið í Lögbergi veitti Stan- ford háskóli Daníel náms- verðlaun, er hann lauk mið- skólanámi; voru þau að upp- hæð $1,000 á ári í fjögur ár. Einnig hlaut hann önnur námsverðlaun s.l. ár. — Með þeim námsverðlaunum, sem hann ávann sér og með inn- tekt af ýmiskonar verkefni, er hann tók að sér, borgaði hann allan kostnað náms og veru sinnar við skólann. Auk hinna fyrirskipuðu námsgreina tók Daníel mik- inn þátt í athafnalífi skólans; var meðal annars “track manager,” og meðlimur í söng flokk skólans, sem söng 1954 og aftur s.l. vor, þ. 9. og 10. apríl með San Francisco Sym- phony Orchestra í War Memorial Opera House, San Francisco, hið mikla meistara- verk Handels, “The Messiah.” 1 byrjun septembermánaðar í haust byrjar Daníel nám við Chicago lúterska prestaskól- ann í Maywood, 111. Daníel er sonur séra Kol- beins Sæmundssonar, er þjón- ar lúterskum söfnuði í Seattle. S. E. Björnsson

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.