Lögberg - 20.10.1955, Blaðsíða 4

Lögberg - 20.10.1955, Blaðsíða 4
4 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 20. OKTÓBER 1955 Lögberg Gefiö út hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA J. T. BECK, Manager Utanáskrift ritstjórans: EDITOR LÖGBERG, 695 Sarg-ent Avenue, Winnipeg, Manitoba Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram The “Lögberg" is printed and published by The Columbia Press Ltd. 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa PHONE 7« 411 Áætlanir um nýja elliheimilis- byggingu á Betel Á síðastliðnu kirkjuþingi Hins ev. lúterska kirkjufélags íslendinga í Vesturheimi, er haldið var að Gimli, Man., var samþykkt í einu hljóði að byggja nýtt hús fyrir Elliheimilið Betel á Gimli, þar sem að bygging sú, sem að heimilið er nú starfrækt í, er nú orðin gömul og of lítil, og þarfnast mikillar aðgerðar við. — Dvalarstaður vistfólks 1 kjallara hússins er nú afnuminn. Þriðja loft hússins er talið óhæft til notkunar fyrir vistfólk öryggis vegna. Það var tilfinningin um aðkallandi og bráða nauðsyn til úrlausnar á þessu stóra vandamáli, sem knúði kirkjuþingið til að samþykkja ofangreint ákvæði. Biðlisti umsækjenda til dvalar á heimilinu fer stöðugt vaxandi. Margir umsækjenda eiga ekkert athvarf á ævikvöldi sínu, annað en von um að fá athvarf á Betel. Jafnframt ákvæði um byggingu var gerð samþykkt um fjársöfnun meðal Islendinga þessu stóra mannúðarmáli til framkvæmdar. Upphæð þess fjárs, sem nauðsynleg er talin, ákvað kirkjuþingið að yrði $175,000.00. Ákvæði þingsins var, að fjársöfnunin færi fram undir umsjón framkvæmdarnefnd- ar kirkjufélagsins. En nú hefir Dr. Valdimar J. Eylands, for- seti félagsins, beðið Betel-nefndina að takast á hendur og hafa umsjón á þessari fjársöfnun, og hefir Betelstjórnar- nefndin orðið við þeirri beiðni hans. Fyrir einhuga beiðni þeirra, er Betel-nefndina skipa, hefir Dr. P. H. T. Thorlakson, sem á sæti í stjórn Betel, góðfúslega tekið að sér að vera “pro-tem” formaður fjársöfnunarnefndarinnar; vinnur hann nú að skipulagningu hennar og undirbúningi í samráði við forseta kirkjufélagsins og Betelnefndina. Væntum vér þess, að valinkunnir íslendingar, sem beðnir verða að starfa í þeirri nefnd og öðrum nefndum málefninu til styrktar, svo sem auglýsinganefnd, ráðgefandi nefnd (Advisory Committee), sjái sér fært að leggja málinu lið og bera það fram til sigurs. Mrs. J. Ágústa Tallman, hin mikilhæfa kona, sem átt hefir langa og farsæla kynningu af Betel, hefir verið ráðin til að gerast “field worker,” við fjársöfnunina og ferðast um bæi og sveitir Islendinga í Manitoba og Saskatchewan fylkj- um og víðar, og vinna þar með heimanefndum, er væntanlega yrðu stofnaðar í hverju umhverfi fjársöfnuninni til styrkar. Fylkisstjórnin í 'Manitoba hefir lofað fjárhagslegri hjálp til byggingar þessa fyrirtækis að upphæð $42,500.00. Áætlaður kostnaður nýju byggingarinnar, sem ráðgert er að verði 50 einnar persónu herbergi, er af byggingar- meistara talinn að verði $130,000.00. Nauðsynleg viðgerð á gamla húsinu er lauslega talið, að muni nema um $30,000.00; auk þess sem kaupa þarf ný hús- gögn í nýju bygginguna, og ný eldhús- og þvottahústæki í gömlu bygginguna. Von Betelnefndarinnar er sú, að í gömlu byggingunni gætu dvalið um 20 vistmenn, auk þess sem að byggingin yrði einnig notuð sem “Service Center.” Betel hefir nú um $37,000.00 í brautryðjendasjóði, er það hinn eini varasjóður, sem stofnunin á yfir að ráða. — Það er í fullu trausti um hjálp og handleiðslu Guðs, að þetta stóra spor um byggingu og fjársöfnun er stigið. Vestur-íslendingar eru kunnuigir þeirri þjónustu, sem á Betel hefir verið af hendi leyst í þágu hinna öldruðu, — sem borið hafa hita og þunga dagsins. Vér treystum yður að hjálpa til að leiða þetta stóra nauðsynja- og mannúðarmál fram til sigurs. Fyrir hönd Betelnefndar, S. Ólafsson ☆ ☆ ☆ Fylkið liði um mæta og hollráða menn Islenzkir kjósendur! Fylkið einhuga liði við bæjarstjórn- arkosningarnar hinn 26. þ. m. um þá Paul W. Goodman og Albert E. Bennett, er þá leita endurkosningar í bæjarstjórn í bæjarstjórn í 2. kjördeild og báðir njóta almenningstrausts; báðir hollráðir nytsemdarmenn. Paul Thorkelsson, hagsýnn atorkumaður verðskuldar einnig endurkosningu í skólaráðið. Vegna almennra áskorana býður Jack St. John sig fram til bæjarstjórnar í 1. kjördeild; er hann hinn mesti ágætismaður með margra ára reynslu að baki. Greiðið honum forgangs- atkvæði. Gjöf til héraðsskjala- safns Skagfirðinga Sauðárkróki, 27. sept.: Hinn 24. sept. kom Árni G. Eylands, stjórnarráðsfulltrúi, hingað og færði héraðsskjala- safninu góða gjöf, þar sem voru bréf og handrit hins merka Vestur-lslendings — Magnúsar Jónssonar frá Fjalli. Magnús var fæddur að Hóli í Sæmundarhlíð 17. júlí 1851. Hann bjó að Fjalli í Sæmundarhlíð og flutti þaðan vestur um haf árið 1887. Var hann þá, þótt ungur væri, einn af forystumönnum Skagafjarðar, í sýslunefnd, í stjórn Hólaskóla a. fl. Magnús andaðist í Blaine í Wash- ington-fylki í Bandaríkjunum 31. marz 1942. — Aska hans var flutt heim og greftruð í heimagrafreit að Hafsteins- stöðum, en þar hafði lengi búið Jón, bróðir Magnúsar. — Magnús var gáfumaður mikill og fékkst nokkuð við ritstörf. Er eftir hann bókin „Vertíðar- lok“, hugleiðingar um ýms efni. Einnig skrifaði hann mikið í blöð og tímarit vestra. Síðan Magnús andaðist hafa bréf hans og handrit verið í vörzlum sr. Alberts Krist- jánssonar í Blaine, en á s.l. vori, er Árni G. Eylands var staddur þar, af henti sr. Al- bert honum þetta til heim- flutnings með þeim ummæl- um að „þá væri Magnús kom- inn allur heim.“ Stjórn bóka- og héraðs- skjalasafns Skagfirðinga veitti gjöfinni móttöku í húsa- kynnum safnsins og vottaði gefendum þakkir. Prófastur- inn, sr. Helgi Konráðsson, for- maður stjórnar safnsins, hélt ræðu og þakkaði Árna fram- tak hans og hugulsemi við safnið bæði fyrr og síðar. Aðrir stjórnendur safnsins, sem viðstadir voru, þeir Jón Sigurðsson, alþm. á Reyni- stað, og Sigurður Sigurðsson, sýslumaður, tóku einnig til máls og fluttu Árna þakkir. Allir ræðumenn minntust Magnúsar frá Fjalli, sérstak- lega ræktarsemi hans við fornar stöðvar fyrr og síðar. Jafnframt var minnzt þess hlýja hugar, sem ýmsir aðrir Vestur-lslendingar hafa sýnt gömlum átthögum með heim- sóknum og gjöfum. —Mbl., 29. sept. Óvenjulega hraust fé Hvergi hefir komið upp mæðiveikisgrunur Blaðið átti í gærkveldi tal við Sæmund Friðriks- son og spurði hann um skoðun á fé, sem nú fer fram á þeim svæðum, sem menn óttast mest, að mæðiveiki kunni að koma upp á, en það er þar sem hennar varð síðast vart, í Dalasýslu og Skagafirði. Reynt hefir verið að fylgj- ast sem bezt með fé í réttum í haust eins og að venju, sagði Sæmundur, og ýtarleg skoðun farið fram í Hjaltadal og því hólfi Dalasýslu, sem mæði- veikin kom upp í síðast. Hvergi hafa fundizt sjúkar kindur, sem grunur léki á um að væru mæðiveikar, og virðist fé yfirleitt vera mjög vel hraust, er þáð kemur af fjalli í haust, jafnvel svo að óvenjulegt er. Flest haust koma fyrir kindur, sem eru sjúkar og grunur gæti leikið á, að væru mæðiveikar, þótt það reynist ekki við lungna- rannsókn. Hafa eiginlega hvergi kom- ið fram kindur í haust, sem slátra þurfti vegna gruns um mæðiveiki. Skoðun í öðrum göngum fer nú fram í Dalasýslu næstu daga. —TIMINN, 25. sept. IIIIIII!IIH!!I!IIIIII!IIIII»HIIB!!IIHIIIII!!IIIIIIII!!I!B ÞAÐ ER ÞESSI ÖRYGGISKEND, SEM FÓLKINU FELLUR í GEÐ . . . Hjá EATON’S kaupir fólk margra ára reynslu: það kaupir öryggið, sem felst í fullvissunni um það, að EATON’S nafnið stendur að baki vörunnar. Skiptir minstu hvað keypt er, smátt, stórt, mikilvægt eða smámunir .... EATON’S tryggingin er ávalt að baki. "VARAN ÁKJÓSANLEG EÐA PENINGUNUM SKILAÐ AFTUR" EATON’S of CANADA "■li!1H!ll!HIII!HlllH!!liB!!!!H!!l!H!lllH!»1HII!IHII!!HIUH!!ilHIII!Hl!>!HI!!IB!lilH!!iiH>ll!HIIIIBIIIIHIII>H!l!l ELECT JACK ST. JOHN FOR ALDERMAN. WARD 1 10 Years on City Council 2 Years in Manitoba Legislature Use His Experience and Ability VOTE ST. JOHN, Jack 1 INDEPENDENT

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.