Lögberg - 08.12.1955, Page 5
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 8. DESEMBER 1955
5
\
ÁHUGA/HÁ.L
UVCNNA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
H Lí N
Á R S RIT ÍSLENZKRA KVENNA, 37. árgangur
Útgefandi og ritsíjóri Halldóra Bjarnadóttir, Akureyri
Þetta hefti er að miklu leyti
helgað vestur-íslenzkum kon-
um. Hefir ritstjórinn lagt á
sig miklar bréfaskriftir, mik-
inn lestur- og mörg ómök til
að afla sér upplýsinga og
semja yfirlit um félagssamtök
íslenzkra kvenna vestan hafs.
Sýnir hún þannig, enn sem
fyrr, dæmafáa tryggð og vin-
áttu í okkar garð. Þetta yfir-
lit er svo ýtarlegt, greinar-
gott og rétt, að við getum
mikið af því lært og fræðst.
Hún lýkur ritgerð sinni með
þessum orðum:
— „Þannig uxu þau þá upp
hvert af öðru, íslenzku kven-
félögin vestan hafs til bless-
unar landi og þjóð og til sóma
íslenzku þjóðerni.
Verkefni þessar félaga eru
svo margþætt og áhrif þeirra
svo margvísleg, að þau verða
ekki rakin til hlítar og aldrei
metin sem vert er. — En það
má öllum ljóst vera, að þau
hafa unnið stórkostlega þýð-
ingarmikið hlutverk: stutt
kveðju og kristindóm, hjálpað
í ýmis konar erfiðleikum,
haldið uppi íslenzku máli og
erfðavenjum.
Unnið á allan hátt menn-
ingar- og þjóðþrifaslarf.
Guð blessi íslendinga vest-
an hafs og gefi þeim þrek og
styrk til að halda fast við
göfugar hugsjónir sínar“.
Þannig mælir þessi mikla
kona, sem sjálf hefir helgað
allt sitt líf göfugum hug-
sjónum.
Þá eru birtar þrjár greinar
um vestur-íslenzkar konur í
þeim hluta ritsins er fjallar
um merkiskonur: Minningar-
ræða séra Valdimars J. Ey-
lands um frú Láru Bjarnason;
grein úr Heimskringlu um frú
Margréti J. Benedictson og
minningargrein úr Lögbergi
um frú Solveigu Níelsen.
Tvær úrvalsgreinar eru og
bir'tar úr Árdísi: Góður jarð-
vegur eftir frú Lovísu Gísla-
son og Eigin reynsla eftir
Jóhönnu frá Húsabakka.
Ritið hefir að geyma mik-
inn fróðleik um fjölbreytt
efni; einna innviðamest finnst
mér erindi eftir Guðmund
Eiríksson skólastjóra, flutt í
Raufarhafnarkirkju í febrúar
þetta áf. Leyfi ég mér að birta
kafla úr því:
— „Skipshöfnin af „Agli-
Rauða“ baðst fyrir og söng
sálm, er hún í roki og stórsjó
stóð ráðalaus í. stjórnklefa
skips síns. — Ég hef heyrt á
tal fólks, sem undraðist þetta
tiltæki sjómannanna, og þá
alveg sérstaklega, að þeir
skyldu þá ekki syngja sálm
eins og t. d. „Á hendur fel þú
honum“. í stað þess að syngja
barnasálminn „Ó, Jesús bróðir
bezti“. — En ég ætla að leiða
rök að því, að þetta var mjög
eðlilegt. — Skipshöfn þessi
var ekki fyrst og fremst að
hugsa um dauðaan, heldur um
lífið og ástvini sína heima. —
Þeir komu því til Guðs síns
eins og lítið barn, sem kemur
til móður eða föður, þegar það
sjálft sér engin úrræði. —
Þessum samtaka, biðjandi
mönnum varð að trú sinni“.
„Þegar ég var barn, og
löngu eftir að ég var farinn
að kenna, kunni hvert barn,
er í skóla kom, vers, bænir og
Faðirvorið. — En nú eru til
þau börn, sem ekki kunna
einu sinni Faðirvorið, er þau
koma í skólann, og eftir að
hafa lært það í skólanum
gleymist það aftur og aftur
vegna þess að engin þörf er
fyrir slíkt á heimilinu. — En
minnumst þess, að sú getur
komið stundin, að við hvert
og eitt, eins og ráðvilt barn
við móður- eða föðurkné, eins
og ráðlaus skipshöfn, sem ef
til vill vegna eigin vanrækslu
er komin í sjáífheldu í stór-
sjó og hamförum frosta og
hríðar, verður að grípa til
þess að biðja Guð alföður um
líkn og náð. — Þar er þrauta-
ráðið.
Eða finst ykkur það nokk-
ur reginfjarstæða, að skapari
alheimsins hafi sitt eigið
segulband í öldum ljósvakans,
sem hann tekur á allar okkar
hugrenningar, orð og athafnir,
og við megum hlusta á, og
ekkert tekst að fela í myrkr-
inu. — Mér finst þetta engu
ólíklegra en myndin í spegl-
inum, eða úr ljósmyndavél-
inni, bergmálið frá klettinum,
röddin af segulbandinu, sem
má varðveita, enginn veit hve
lengi, eða þá sjónvarpið.
Við vitum, að til þess að
hægt sé að byggja t. d. svona
kirkju, þarf hugsun, skraf og
ráðagerðir, og auk þess at-
hafnir sem orka á efnið: Það
er skynsamra manna-heila.
Er þá líklegt, að alheimurinn
með öllum sínum undrum,
hafi orðið til fyrir eintóma
tilviljun?“
í sambandi við boðskap
þessa erindis er vert að benda
á aðra athyglisverða grein í
ritinu: Er hægt að mæla vís-
indalega kraft bæna og böl-
bæna? Sigurlaug Árnadóttir,
þýddi.
Seinna langar mig til að
vitna í tímabæra grein eftir
Mikilfenglegasta leikhús heimsins
Stundum standa 10 þúsund-
ir manna í biðröð fyrir utan
þetta sérstæða leikhús —
New York's Radio City Music
Hall. Leikhúsgestir koma oft
500 mílna leið, og biðröð tekur
að myndast fyrir birtingu ár-
degis og síðari hluta dagsins
eru þar stundum 10 þúsundir.
Sumir búa sig út með nesti,
smurt brauð og heitt kaffi,
því að biðin varir oft margar
klukkustundir, hátt upp í
dægur. í leikhúsinu eru 6200
sæti.
Á hverju ári velur leikhús-
stjórinn 10—14 kvikmyndir
úr 125, sem eru í uppsiglingu.
Þessar 10—14 eru svo sýndar
12 mánuði ársins, lengst
hefur sama myndin verið
sýnd 11 vikur. Allur leiksviðs-
útbúnaðurinn er mikið snilld-
arverk, leiksviðið sjálft þann-
ig gert, að ýmist getur hljóm-
sveitin — 60 manns, verið
djúpt niðri eða hafizt skyndi-
lega öll eða einhver hluti
hennar upp 1 venjulega leik-
sviðshæð.
Listdansinn er eitt aðdáun-
aratriðið, 46 leggjalangar feg-
urðardísir stíga dansinn að-
eins 6 mínútur. Á þriggja
vikna fresti fær hver dans-
mær vikuhvíld. Samt fá þær
allar full laun, 52 vikur ársins.
Skipt er um 6—8 af dans-
meyjunum árlega. Þær eru
fæstar eldri en 22 ára, verða
að vera vel gefnar og fallegar.
Leiksviðinu er skipt í þrjá
sjálfstæða hluta, sem hefja
má og lækka eftir vild. Við
sérstaka danssýningu var
þetta þrískipta leiksvið ýmist
lækkað eða hækkað á víxl svo
hægt og lipurlega, að ballett-
stúlkurnar gátu dansað af
einum hlutanum á annan án
þess að fipast hið minnsta.
Ofurlitla hugmynd um
mikilfengleik alls leiksviðs-
útbúnaðarins gefur tjaldið.
Það er gert úr gullnum glit-
vefnaði og vegur þrjár þunga-
lestir. 13 aflmiklir mótorar
stjórna tjaldinu í sambandi
við taugarnar í fellingum
þess. 1 13 röðum á bakþili
leiksviðsins eru aflvaka-
hnappar, sem stjórnandi leik-
sviðsins stillir þannig fyrir-
fram, að ekki þarf annað en
að styðja á aflhnappinn til
þess að hið risastóra tjald
hreyfist sjálfkrafa við sýn-
ingarnar, samkvæmt fyrir-
fram gerðri ákvörðun, hvort
heldur aðeins einn maður er
á leiksviðinu í aðeins 5 feta
hvirfingu eða um er að ræða
mikla sýningu.
ritstjórann: „Viðhorf giftra
kvenna, sem vinna utan
heimilis.
HLÍN mun vera eitt allra
útbreiddasta rit, sem gefið er
út á Islandi. Hún á skilið inn-
göngu inn á öll íslenzk heimili
vestan hafs, ekki sízt þetta
síðasta hefti.
Fæst hjá Mrs. J. B. Ska^ta-
son, 378 Maryland Street.
Winnipeg. Verð 50 cents.
Þá er ljósakerfið hið mesta
furðuverk. Það er tengt við
4000 handföng, aflvaka-y
hnappa, skiptilykla og kveikj-
ara, en ljósaperurnar eru alls
25 þúsundir. í flestum venju-
legum leikhúsum mundi
þurfa fimm sérfræðinga til
þess að stjórna ljósabreyting-
um og kastljósum hundruð-
um saman við mikla sjónleiki,
en í húsi þessu (Music Hall)
eru skiptilyklar og aflvaka-
hnappar stilltir þannig fyrir-
fram, að ekki þarf nema einn
mann til þess að styðja á afl-
vakahnappinn til þess að öll
hin geysifjölbreytta ljósa-
skipting gerizt sjálfkrafa á
meðan á hljómleikunum
stendur.
Orgel hússins er ævintýr-
lega voldugt. Húsrúm þess er
8 herbergi. Hljómpípurnar
eru allt frá 2—4 þumlungum
upp í 32 fet á lengd. Risavax-
inn blásari knýr belg þess
með 60 viftum, og áður en
loftstraumurinn nær sjálfu
verkinu í orgelinu er hitastig
loftsins temprað. Talið er að
þrjú þúsund hljómleikara
þyrfti til að framleiða tóna-
magn þessa undurmikla hljóð
færis. Á orgel þetta er leikið
sex sinnum á dag, á milli
þátta.
Að lýsa öllum hinum frá-
bæra og stórkostlega útbún-
aði þessa heimsfræga leik-
húss, eitthvað líkt því, sem
gert er í Reader’s Digest í
júní 1955, er aðeins á færi
sjónarvotts og sérfræðings í
leikhúsagerð. Hér er þetta að-
eins lausleg og ófullkomin
endursögn, aðeins til kynn-
ingar þeim, sem eiga ekki
annars kost.
Öllu er svo viðhaldið, að
jafnvel gólfteppið í forsal
hússins er eins glæsilegt og
það var upphaflega fyrir 22
árum, þótt fætur 8 milljóna
manna spígspori á því árlega.
Speglar forsalsins eru 60 feta
háir og umbúnaður allur
geysilega íburðarmikill. Já,
60 feta háir speglar. Venjuleg
hæð undir loft í íbúðarhúsum
mun vera í mesta lagi 8—9
fet. Hvelfingin í þessum geysi-
háa forsal er öll klædd gulln-
um laufblöðum.
Töluverðan vinnukraft þarf
til þess að hirða þetta hús-
bákn. Strax og síðasti leik-
húsgesturinn stígur út um
miðnætti, kemur 100 manns
til þess að annast hreingern-
ingu. Tæma þarf 2700 ösku-
bakka, fægja margra mílna
langar málmleggingar, þúrrka
af myndastyttum, hreinsa og
fægja eitt og annað. Mörg
hundruð postulíns þvottaskál-
ar og salernisskálar þarf að
spegilfægja. Hvert kvöld er
20 pundum safnað af sog-
leðri (gúm) undan sætum
leikhúsgestanna, svo ekki er
þrifnaður þess fólks á ofháu
stigi, og það þótt margt af því
vilji heita „fínt“ fólk.
Þetta mesta leikhús heims-
ins var fullgert árið 1932 og
kostaði þá rúmar átta millj-
ónir dollara. Það var fyrst
1935 að það tók að gefa eitt-
hvað í aðra hönd, en nú eru
árlegar tekjur þess um níu
milljónir dollara. Leikhúsið
sjálft (the Music Hall) er að-
eins einn hluti af hinu svo
nefnda Rockefeller Cenier.
Upprunalega var lóðin, er
þessi mikla bygging stendur á,
ætluð félagsheimili Metro-
politan Operu félagsins* Árið
1920 báðu nokkrir auðugir
óperuforstjórar Rockefeller
að tryggja sér þessa lóð og
hjálpa þeim til að koma upp
veglegri sönghöll. Hann varð
við beiðni þeirra þeirra og tók
á leigu 12 ekru-lóð, þver ekra
er hátt á fimmta þúsund
fermetrar. Svo skall kreppan
á, hluthafar fyrirtækisins
drógu sig í hlé og Rockefeller
sat einn eftir með leigulóðina,
sem kostaði hann árlega í
leigu og sköttum 4,600,000
dollara. Rockefeller átti þó
næga trú á framtíðinni til
þess að reisa þessa miklu
byggingu, og eins og áður er
sagt, er leikhúsið einn hluti
hennar. Þar er aðsókn og um-
setning hvort tveggja heims-
met. —EINING
Nát-túrugripasafnið
fær safn af
uppseftum dýrum
Dýrafræðideild Náttúru-
gripasafnsins hefir nýlega
borizt gjöf frá Kaj A.
Svanholm í Rio de
Janeiro. Er hér um að
ræða safn af uppsettum
dýrum frá Brasilíu, bæði
spendýrum, fuglum, skrið
dýrum og fleira. Einnig
hefir safnið fengið bóka-
gjöf frá Lundúnum.
Eins og sakir standa er
hvergi hægt að koma þessum
munum fyrir til sýningar, en
þeir verða geymdir, þangað til
hin fyrirhugaða náttúrugripa
safnsbygging verður reist.
Stundaði nám hér
Svanholm er forstjóri bygg-
ingarfélags í Rio. Hann er
danskurí fæddur í Kaup-
mannahöfn 1894, en settist að
í Brasilíu 1925. Þegar hann
var 16 ára fluttist hann til Is-
lands og átti heima í fjögur ár
á Akureyri. Gekk hann þar í
skóla. Hefir hann síðan ætíð
borið hlýjan hug til íslands,
eins og þessi gjöf ber vott um.
Þá hefir safninu borizt 32
bindi bóka um náttúrufræði-
leg efni frá Mr. James
Wittaker í Lundúnum, en
hann er mörgum íslendingum
kunnur frá því er hann dvald-
ist hér á stríðsárunum. Hann
er kvæntur íslenzkri konu.
Mr. Wittaker hefir einnig
haft milligöngu um það, að
British Counsil hefir lagt
fram nokkra fjárupphæð til
kaupa á bókum í Bretlandi
handa safninu.
—TIMINN, 20. sept.