Lögberg - 12.04.1956, Side 8

Lögberg - 12.04.1956, Side 8
8 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 12. APRÍL 1956 Rösklega gengið til verks Úr borg og bygð — ÞAKKARORÐ — Alúðar þakkir flytjum við öllum þeim, sem á einn eða annan hátt auðsýndu okkur samúð og hluttekningu við fráfall og jarðarför okkar elskaða sonar, Stefáns H. Síefánssonar. — Sérstaklega þökkum við prestinum, dr. Valdimar J. Eylands, fyrir hans fögru og eftirminnan- legu kveðjuorð; einnig ein- söngvaranum, Mrs. Perl Johnson, — organistanum, Gunnari Erlendssyni og eldri kirkjukórnum. F. h. vandamanna, Foreldrar, eiginkona og börn ☆ Venju samkvæmt efnir Kvenfélag Fyrsta lúterska safnaðar til skemtisamkomu í kirkjunni á sumardagskvöldið fyrsta; þetta er fagur og þjóð- legur sigur, sem vonandi er að enn haldist um mörg ó- komin ár. Skemtiskráin, sem er vönduð með ágætum, er nú birt hér í blaðinu, og býr hún yfir slíku aðdráttarafli, að víst mun mega teljast, að aðsókn verði geisimikil. Úrvals veitingar að lokinni skemtiskrá. ☆ Albert L. Halldórsson, tenór söngvari, heldur söngskemtun í Eagle Hall, Dagmar og William, kl. 8 að kvöldi á miðvikudaginn hinn 18. þ.m. Aðgangur $1.00. Fjölmennið á samkomuna. ☆ Gefin saman í hjónaband í Lútersku kirkjunni í Selkirk laugard. 7. apríl Theodore Fred Dohanisek, St. Martin, Man., og Fjóla Sesselja Sig- ríður Gíslason, Selkirk, Man. Brúðguminn er af Mið- Evrópuættum, og er bóndi í St. Martin. Brúðurin er dóttir Mr. og Mrs. Árni S. Gíslason, Selkirk, Man. Svaramenn voru Miss Thorbjörg Guð- mundsson, Riverton, Man. og Ronald Fliss, Winnipeg, Man. Giftingin fór fram að morgu fólki viðstöddu. Séra Sigurður Ólafsson gifti. Ungu hjónin setjast að í St. Martin Man. Kvenfélag Sambandssafn- aðar er að efna til hinnar ár- legu sumarmálasamkomu, sem verður höfð í kirkju- salnum þ. 19. þ.m. Skemmti- skráin verður mjög vönduð og vel úr garði gerð, svo að eng- inn, sem þangað kemur, mun verða vonsvikinn. Það er gamall og góður siður meðal okkar fólks að fagna sumar- komunni, og sumardagurinn fyrsti hefir ávalt verið ein mesta hátíð ársins á ættjörð okkar. Hér í landi er hann, að sjálfsögðu eitt af því, sem við tókum með okkur og erum því ófús á að sleppa á meðan við höldum hópinn. Hafið því sumardaginn fyrsta í huga Komið á samkomu Kven- félagsins í Sambandskirkj- unni til að fagna nýju sumri með vinum og ættmennum eins og gerðist á gamla land- inu. S. E. B. ☆ íslenzk stúlka, 14 ára gömul, óskar eftir bréfaskiftum við dreng og stúlku á sama aldri hér vestra. Utanáskrift:' Marselía Gísladóliir, Fjólugötu 11 Akureyri, Iceland ☆ Leiðrélling Ritnefnd Icelandic Canad- ian Magazine biður hlutaðeig- endur afsökunar á því, að í frétt um séra H. S. Sigmar í síðasta hefti megi skilja það svo, að hann hafi þegið köllun frá St. John’s lútersku kirkj- unni í Salsbury N. Carolina. Honum var boðið þangað til prédikunarstarfs dagana 5. til 11. febrúar. Hann er þjónandi prestur í Kelso, Washington. ú Séra Bragi Friðriksson sóknarprestur á Gimli, brá sér suður til Minneapolis, Minn., í fyrri viku ásamt frú sinni. ú Mr. S. V. Sigurdson bæjar- stjóri í Riverton var staddur í borginni á laugardaginn. ☆ Þeir séra Jóhann Fredriks- son og Mr. Conrad Norman frá Glenboro voru staddir í borginni á mánudaginn. MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol. Heimili 686 Banning Street. Sími 3-0744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. Allir ævinlega velkomnir ☆ ST. STEPHEN'S LUTHERAN CHURCH — Silver Heights — Eric H. Sigmar, Pastor Services in St. James Y.M.C.A., Ferry Road South (just off Portage). Sunday, April 15lh: Sunday School 9:45 A.M. Worship Service 11 A.M. ☆ Lúlerska kirkjan í Selkirk Sunnudaginn 15. apríl: Ensk messa kl. 11 árd. Sunnudagaskóli á hádegi Ensk messa undir umsjón yngra fólks kl. 7 síðd. Fólk boðið velkomið. S. Ólafsson t Árdal Lulheran Church Árborg, Manitoba. Sunday, April 15th: Worship Service 8:00 P.M. Rev. Eric H. Sigmar ☆ Riverton Lutheran Church Sunday, April 15th: Worship Service 2 P.M. Rev. Bragi Friðriksson Hin árlega skemtisamkoma og tombóla til arðs fyrir bóka- safn lestrarfélagsins á Gimli, verður haldin í Parish Hall, föstudagskvöldið 20. apríl n.k. og byrjar kl. 8.30. Á meðal skemtana, sem þar verða um hönd hafðar, er ræða, séra P. M. Pétursson; einsöngur, frú Elma Gíslason; upplestrar; samsöngvar , og fleira. — Dregið verður um sex verðmæta muni. Fjölmennið á þessa sam- komu og styrkið gott málefni, jafnframt því sem þér njótið góðra skemtana. ☆ Mr. Sveinn Oddsson prent- ari lagði af stað suður í Banda ríki síðastliðinn mánudag og bjóst við að verða um hálfan annað mánuð að heiman; fór hann þangað til fundar við son sinn í Minneapolis, og systkini sín tvö í Arlington, og einnig átti hann von á bróður sínum þangað, Svein- birni prentara frá Reykjavík. Framhald af bls. 5 Er þeir komu að landi spyr Grettir, „hvárt þeir vildi heldur fara heim með uxann eða setja upp skipit. Þeir kusu heldur að setja upp skipit, og settu þeir upp með öllum sjánum, þeim sem í var, en þat var mjög sýlt, en Grettir leiddi uxann, og yar hann mjög stirðr í böndun- um, en allfeitr. Varð honum Betel Old Folks Home — Building Campaign A committee has been formed in Regina, Saskat- chewan with Dr. B. N. Arna- son, Chairman, Mrs. Jona Halvorson, Secretary, Mrs. Thelma Finnbogason and Miss Jennie Sigurdson. The Elfros, Saskatchewan committee is Mr. Helgi Horn- ford, Chairman, Mr. R. Arna- son and Mr. Valdi Jackson. The Betel Building Cam- paign committee of Langruth, Manitoba is undir the auspices of the Lutheran Ladies Aid and consists of Mrs. V. Bjarnason, Chairman, Mrs. B. Bjarnason, Mrs. J. Finnbogason, Mrs. G. Thor- leifson, Mrs. Emma Johnson, Archie M. Johnson, G. F. Thordarson and G. Hannes- son, Secretary-Treas. Grettir Eggertson ☆ — DÁNARFREGN — Hallgrímur Björnsson smið- ur lézt í Riverton á laugar- daginn var 86 á^a að aldri; hann átti um hríð heima í Winnipeg og í Geysi og Riverton allmörg síðustu æviárin; hann lætur eftir sig tvo sonu, Björn og Garðar og tólf barnabörn. Margrét kona hans lézt 1947. Útför Hall- gríms var gerð frá kirkju Bræðrasafnaðar í Riverton á þriðjudaginn. ☆ A meeting of the Jon Sig- urdson Chapter I.O.D.E. will be held in the University Women’s Club 54 Westgate on Friday Eve. April 13th at 8 o’clock. mjög mætt. En þá er hann kom neðan hjá Tittlingsstöð- um, þraut uxann gönguna. Þeir fóstbræður gengu til húss, því at hvárigir vildi veita öðrum af sínu hlutverki. Þorgils spyr at Gretti, en þeir sögðu, hvar þeir höfðu skilit. Hann sendi þá menn á móti honum, ok er þeir kómu ofan undir Hellishóla, sá þeir, hvar maðr fór í móti þeim ok hafði naut á baki, ok var þar kom- inn Grettir ok bar þá uxann. Undruðust allir, hversu mikit hann gat orkat. Lék Þorgeiri næsta öfund á um afl Grettis". Er ég rifjaði upp söguna um þetta kraftaverk Grettis, kom mér í hug saga, er ég heyrði af miklu afreki, er unnið var af rúmlega tvítugum Stranda manni fyrir nokkrum árum. Á býli nokkru á Ströndum bjuggu þrír bræður. Voru þeir allir mjög vel að manni og fór orð af ýmsum þeirra afrekum. Allir voru þeir há- vaxnir mjög. Dag nokkurn bar það við, að einn þeirra skaut úr fjörunni á útsel, er svamlaði drjúgan spöl frá landi. Bjóst hann síðan til að bíða þess, að selinn ræki að landi, en sá brátt, að svo myndi ekki fara. — Lá straumurinn þannig, að ljóst var, að selurinn mundi berast frá landi fyrir nes eitt, er þar gengur í sjó fram. Þótti afreksmanninum illt til þess að vita að missa feng- inn úr höndum sér. Lagðist hann því til sunds, náði seln- um og hélt til lands. Þess má geta, að selurinn var fullvax- inn — og fullvaxnir útselir verða allt að 2 m. og jafnvel lengri. En skotið mun hafa geigað og ekki gengið af seln- um dauðum. Á miðri leið til lands raknaði selurinn úr rot- inu og bjóst til að glefsa í manninn. Brá piltur þá skjótt við og gaf selnum svo vel úti- látið högg á nasirnar að hann hrærði sig hvergi eftir það. Synti hann síðan til lands með selinn. — Ekki varð Strandamanninum meint af svaðilförinni. —Mbl. SUMARMÁLASAMKOMA undir umsjón Kvenfélags Fyrsta lúterska safnaðar verður haldin í FYRSTU LÚTERSKU KIRKJU Victor Street fimmtudaginn 19. apríl 1956 — Byrjar kl. 8.15 e. h. SKEMMTISKRÁ: SÁLMUR ÁVARP SAMKOMUSTJÓRA .Dr. V. J. Eylands FIÐLUSPIL ...................Carlisle Wilson UPPLESTUR ..................Skúli Jóhannsson EINSÖNGUR Elmer V. Nordal RÆÐA Próf. Finnbogi Guðmundsson FIÐLUSPIL ...................Carlisle Wilson EINSÖNGUR .................Elmer V. Nordal Við hljóðfærið: Mrs. J. Kerr Wilson Að lokinni .skcmmtiskrá er ölluin boðið tll kufndrykkju í funílarsal kirkjunnar. SAMSKOT VIÐ DYRNAB Rkemm-tiskráin fer fraw, á íslttozku SUMARMÁLASAMKOMA í Sambandskirkjunni, Sargent og Banning, fimmtudagskveldið 19. apríl, klukkan 8.15 undir stjórn kvenfélagsins. 1. O CANADA 2. ÁVARP, forseti kvenfélagsins, Mrs. Marja Bjornson 3. EINSÖNGUR Mrs. Elma Gíslason 4. QUARTET: Albert Halldorson, Alvin Blondal Thor Fjelsted, Hermann Fjelsted 5. UPPLESTUR Mr. H. Axdal 6. EINSÖNGUR Mr. Albert Halldorson 7. QUARTET: Albert Halldorson, Alvin Blondal Thor Fjelsted, Hermann Fjelsted 8. EINSÖNGUR .....................Elma Gíslason 9. NÝJAR MYNDIR FRÁ ÍSLANDI GOD SAVE THE QUEEN Inti^aii^ui* r*Oc. Veilinsar í neðri salniitn

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.